Fleiri fréttir

Lögreglan braut ekki lög við innkaup

,,Ég hef sannfærst um að embætti ríkislögreglustjóra hafi farið að lögum í innkaupum sínum. Sú mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmiðlum af embættinu er ómakleg og röng. Hins vegar eru þessi mál almennt ekki í nógu góðum farvegi og því eru tilteknir þættir þeirra teknir til sérstakrar skoðunar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisáðherra, í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu, um innkaup ríkislögreglustjóra á tólum og tækjum fyrir lögregluna.

Fjögur og hálft tonn af hamborgurum seldust á 24 tímum

"Já, ég held að ég verði bara að vera heiðarlegur og segja að þetta fór fram úr okkar björtustu vonum," segir Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa.is sem seldu yfir 40 þúsund hamborgara frá Metró á vefsíðu sinni í gær. Tilboðið var í gangi í 24 klukkutíma en með því var hægt að kaupa ostborgara á 99 krónur í staðinn fyrir 350 krónur.

Veist þú um Ólaf Þóri?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Þóri Guðjónssyni, 16 ára. Ólafur er grannvaxinn og 175 sm á hæð. Ekki er vitað um klæðaburð hans en síðast er vitað um ferðir hans í Kópavogi þann 7 október síðastliðinn. Lögreglan telur líklegt að hann geti verið á Selfossi og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Ræningjarnir enn ófundnir

Ræningjarnir þrír, sem létu greipar sópa um úraverslum Michelsen við Laugaveg í Reykjavík í gærmorgun eru enn ófundnir, eftir því sem fréttastofan kemst næst.

Alvarleg kreppa í danskri kvikmyndagerð

Dönsk kvikmyndagerð er nú í alvarlegri kreppu. Hætta er á að þjóðin glati heilli kynslóð af hæfileikaríku kvikmyndagerðarfólki þar sem ekki fæst fjármagn til að gera stórar kvikmyndir í landinu.

Fjölmenni á borgarafundi í Hveragerði

Fjölmenni var á borgarafundi í Hveragerði í gærkvöldi þar sem jarðvísindamenn og talsmenn Orkuveitu Reykjavíkur fjölluðum um skjálftavirkni, sem orðið hefur vegna niðurdælingu á vatni frá Hellisheiðarvirkjun.

Lagði sig í hættu við að stela miklu af klósettpappír

Kona á miðjum aldri virðist hafa lagt sig í nokkra hættu í nánast mannskaðaroki í gærkvöldi, við að stela miklu af klósettpappír úr stórum flutningavagni, sem fauk aftan úr dráttarbíl undir Ingólfsfjalli í gærmorgun.

Synir Mubaraks áttu stórfé á leynireikningum

Stjórnvöld í Egyptalandi hafa greint frá því að fundist hafa 340 milljónir dollara, eða um 40 milljarðar kr. á leynireikningum í Sviss sem tveir synir Mubaraks fyrrum forseta landsins áttu.

Fangaskipti Ísraels og Hamas hafin

Fangaskipti Ísraelsstjórnar og Hamas samtakanna eru hafin. Ísraelar ætla að láta yfir 1.000 palistínska fanga lausa úr haldi í skiptum fyrir hermanninn Gilad Shalit.

Ræddi ekki mál Guðrúnar Ebbu

„Því miður hafa verið og eru menn sem skreyta sig skikkju kristinnar trúar til að svala ofbeldisfýsn og valdalosta, eins og dæmin sanna. Það er ekki allt geðfellt sem sjá má í ásjónu trúarinnar,“ sagði Karl Sigurbjörnsson biskup í predikun sinni í Reyðarfjarðarkirkju á sunnudag.

Nýtir reynslu sína af hármissi á nýrri stofu

Sigríður Einarsdóttir hárgreiðslumeistari hefur opnað hárgreiðslustofu þar sem áhersla er lögð á alhliða þjónustu við konur sem misst hafa hárið vegna krabbameinsmeðferðar. Sigríður hefur sjálf glímt við bráðahvítblæði og þekkir hármissinn af eigin raun.

Saga íslensku kirkjunnar því miður ekki einsdæmi

Hin langa saga íslensku kirkjunnar og tengsl hennar við kynferðisbrot er, eins og flestir vita, ekki einsdæmi og mörg önnur lönd hafi svipaðar sögur að segja af leiðtogum innan sinna kirkna. Þetta segir Dr. Marie M. Fortune, prestur og stofnandi FaithTrust Institute.

Krafa um að dælingu verði hætt

Hvergerðingar krefjast þess að niðurdælingu jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun verði hætt, sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, í viðtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Hún var þá stödd á fjölmennum íbúafundi á Hótel Örk sem Orkuveita Reykjavíkur efndi til. Tilefnið eru skjálftahrinur síðustu vikna sem hafa valdið íbúum í Hveragerði óþægindum og ugg.

Fortíðin lifnaði við á Íslandsviku í Sóltúni

„Það er ótrúlega gefandi og gaman að bregða svona á leik," segir Anna Birna Jensdóttir, forstöðumaður Hjúkrunarheimilisins Sóltúns, þar sem Íslenskir dagar voru á dagskrá í síðustu viku.

Tveir kaflar samningsins líklega kláraðir á morgun

Búist er við að tveimur köflum í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði lokað strax eftir að þeir verða opnaðir á ríkjaráðstefnu sambandsins á miðvikudag. Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands.

Alcoa nýtti ekki forskotið á aðra

Viðbrögð Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við yfirlýsingu Alcoa í gær eru að ákvörðunin hafi ekki komið sér á óvart. Ákvörðunin skýri línurnar og nú sé að ljúka viðræðum við önnur fyrirtæki sem áhuga hafa á að nýta orkuna til atvinnuuppbyggingar. Hún telur ekki aðalatriði hvaða fyrirtæki það verður svo lengi sem regluverkinu í landinu sé fylgt, umhverfismál séu í hávegum höfð og störf skapist fyrir fólkið á svæðinu.

Kort af leið ræningjanna - Þaulskipulagðir á þremur bílum

Þrír grímuklæddir menn vopnaðir byssum rændu fokdýrum Rolex-úrum úr verslun Michelsen úrsmiða í gær. Frank Michelsen segist viss um að skoti hafi verið hleypt af. Ránið var þaulskipulagt og svo virðist sem ræningjarnir hafi notast við þrjá stolna bíla.

Gervihnöttur fellur til jarðar í vikunni

Úreltur gervihnöttur mun falla til jarðar í vikunni. Vísindamenn segja að líkurnar á að gervihnötturinn gæti skaðað einhvern á jörðu niðri séu 1 á móti 2.000.

Lyfjagjöf til að fresta kynþroska

Par í Kalíforníu gefur nú 11 ára gömlum syni sínum sérstök hormónalyf til að hægja á kynþroska hans. Pilturinn hefur oft talað um að hann langi að vera stelpa. Parið ákvað að hefja lyfjagjöfina svo að sonur þeirri hafi lengri tíma til að ákveða kyngervi sitt.

Ahmadinejad neitar ásökunum Bandaríkjanna

Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur neitað öllum ásökum í máli tveggja íranskra manna sem sakaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að myrða sendiherra Sádí Arabíu í Bandaríkjunum.

Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um Atlantshafsbandalagið

Allir þingmenn VG, nema Steingrímur J. Sigfússon formaður og Jón Bjarnason, vilja að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu fari fram. Samkvæmt þingsályktunartillögunni, sem þingmennirnir hafa lagt fram ásamt Birgittu Jónsdóttur og Atla Gíslasyni vilja þau að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram fyrir mitt næsta ár.

Erfingi L'Oreal svipt sjálfræði

Dómstólar í Frakklandi hafa komist að því að hin vellauðuga Liliane Bettencourt verði svipt sjálfræði. Þetta var niðurstaðan í máli sem fjölskyldumeðlimir hennar höfðuðu gegn henni. Í úrskurði dómarans kom fram að andleg heilsa Bettencourt, sem er 88 ára gömul, væri í afar slæmu ástandi.

Varar við fordómum gagnvart stjórnmálamönnum

„Grundvallaratriðið í þessu öllu saman er að ef við ætlum að búa til þjóðfélag þar sem pólitíkusar, eða allir sem taka þátt í stjórnmálastarfi eru dæmdir út frá því einu lendum við í verulegum vandræðum,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vegna háværrar umræðu um ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins.

Flugslys í Botswana

Sjö létust þegar flugvél hrapaði í Botswana í dag. Þau sem létust voru öll Evrópubúar, þar á meðal þrír Svíar. Flugvélin var af gerðinni Cessna 208.

Alcoa verðlagt burt og orkan tekin í annað

Alcoa er endanlega hætt við álver á Húsavík. Þessi ákvörðun var kynnt sveitarstjórnarmönnum fyrir norðan nú síðdegis. Forstjóri Alcoa segir Landsvirkjun hvorki bjóða næga orku né á samkeppnishæfu verði við nágrannaríki eins og Bandaríkin, Kanada og Noreg.

Kæra borgina vegna ákvörðunar um trúmál

Sóknarnefnd Grafarvogskirkju vill að reglur Reykjavíkurborgar, sem banna trúar- og lífsskoðunarfélögum að stunda starfsemi sína innan leik og grunnskóla, verði felldar úr gildi en nefndin ætlar að leggja fram stjórnsýslukæru vegna málsins.

Fjögurra ára sænskur drengur myrtur

Lögreglan í Ljungby í Svíþjóð hefur nú staðfest að fjögurra ára gamall drengur sem fannst látinn í nágrenni við leikvöll í gærkvöldi var myrtur. Drengurinn hvarf af leikvellinum síðdegis í gær og um kvöldmatarleytið var lýst eftir honum af lögreglu. Víðtæk leit fór í gang og stuttu síðar fundu sjálfboðaliðar sem þátt tóku í leitinni lík hans.

Skotum hleypt af í ráninu

Mennirnir sem réðust inn í úraverslunina Michelsen á Laugavegi í morgun hleyptu af alvöru byssu inni í versluninni þegar þeir voru að ræna hana. Þetta telur Frank Úlfar Michelsen, eigandi búðarinnar.

Tveir menn grunaðir um að hafa nauðgað stúlku sem fékk með þeim far

Tveir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa nauðgað konu sem fékk far með þeim á sunnudagsmorgun. Konan leitaði strax á neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi og kærði svo mennina til lögreglu. Mennirnir, sem eru af erlendu bergi brotnir, voru handteknir í gær og í kjölfarið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Lögreglan verst allra frétta af málinu en rannsóknin er á byrjunarstigi.

Herjólfur fer í Þorlákshöfn

Ferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á fimmtudag en nú er unnið hörðum höndum að dýpkun í Landeyjahöfn og eru dýpkunarskipin Skandía og Perlan eru þar við dælingar. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að stefnt sé að því að mæla dýpi hafnarinnar á miðvikudag eða fimmtudag. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að festa siglingar í Þorlákshöfn á fimmtudaginn en bíða með ákvörðun um framhaldið þar til niðurstöður mælinga liggja fyrir. Farþegum er bent á að fylgjast með ferðunum á herjólfur.is og á Facebook-síðu ferjunnar.

Synir Mubaraks áttu tugi milljarða á bankareikningum

Tveir synir Hosni Mubaraks, fyrrverandi forseta Egyptalands, eru sagðir eiga 340 milljónir dollara á bankareikningum í Sviss, eða rétt tæpa fjörutíu milljarða. Bræðurnir Alaa og Gamal eru fyrir rétti í Kairó sakaðir um spillingu ásamt föður sínum. Þá hafa svissnesk yfirvöld greint frá því að verið sé að rannsaka hvort Alaa hafi verið viðriðinn peningaþvætti. Að auki hefur Hosni Mubarak verið ákærður fyrir að bera ábyrgð á því að um 850 mótmælendur létu lífið í uppreisninni sem leiddi til afsagnar forsetans.

Framsókn kynnir „plan b“

Framsóknarmenn hafa lagt fram svokallað „plan b“ til að hefja sókn í atvinnumálum og koma á stöðugleika í efnahagsmálum. Meðal tillagna er að afnema verðtryggingu í skrefum og einfalda skattakerfið.

Meint brot ná allt til ársins 1998

Skýrslutökum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið. Tryggvi er einn þriggja einstaklinga sem ákærður í er skattahluta Baugsmálsins, en aðalmeðferð í málinu fer fram í dag.

Kvennó nýtir sér Miðbæjarskólann

Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á síðasta ári. Húsið var tekið til gagngerra breytinga í samstarfi við húsafriðunarnefnd áður en skólinn tók við aðstöðunni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að almenn ánægja ríki meðal nemenda og kennara með breytingarnar.

Skýrslur teknar af sakborningum í dag

"Ég hef aldrei talið vísvitandi rangt fram til skatts," sagði Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, við aðalmeðferð skattahluta Baugsmálsins sem fram fer í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Mjög hvasst undir Ingólfsfjalli - vörubíll fauk útaf

Vörubíll með tengivagni fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli á tólfta tímanum. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Tengivagninn er gjörónýtur en óvíst er með skemmdir á bílnum. Ekki verður farið í að koma honum aftur upp á veg fyrr en lægir.

Sjá næstu 50 fréttir