Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögur af hverjum tíu líkum brennd Bálförum hefur fjölgað stórlega í Reykjavík og er nú svo komið að fjögur af hverjum tíu líkum eru brennd fyrir útför, samkvæmt tölum frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. 11.7.2011 06:30
Geitungurinn að taka við sér Tiltölulega lítið hefur farið fyrir geitungum það sem af er sumri en Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna Reykjavíkurborgar, segir að nú virðist vágestur þessi vera að taka við sér. 11.7.2011 06:00
Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. 11.7.2011 05:00
Síðasta ferð Atlantis vel heppnuð Geimskutlan Atlantis lagði að alþjóðlegu geimstöðinni í gær 386 kílómetrum yfir Kyrrahafinu. Atlantis færir geimstöðinni birgðir sem eiga að endast í eitt ár. Verkefnið er hið síðasta sem framkvæmt verður af geimskutlum NASA, bandarísku geimaferðarstofnunarinnar, en að því loknu verður Atlantis tekin úr notkun, síðust geimskutlanna. 11.7.2011 05:00
Koma sprengjuárgangnum fyrir Útlit var fyrir að leikskólar Reykjavíkurborgar stæðu frammi fyrir plássleysi í haust. Ástæðan er sú að um 300 fleiri leikskólabörn eru í þeim árgangi sem nú er að koma inn í leikskólana en í þeim sem fer þaðan. Tekist hefur þó að ráða fram úr þessum vanda að sögn Oddnýjar Sturludóttur, formanns menntaráðs. 11.7.2011 04:00
Upplýsingalög verða skoðuð aftur í haust Fræðimenn, blaðamenn og aðrir sem ekki fara með þau gögn hins opinbera sem undanþegin eru upplýsingarétti, svo sem um fjárhag einstaklinga, í samræmi við fyrirmæli stofnana geta átt yfir höfði sér fjársektir eða allt að þriggja ára fangelsisdóm, samkvæmt frumvarpi um ný upplýsingalög. Frumvarpið liggur nú á borði Allsherjarnefnd Alþingis. 11.7.2011 03:30
Viktoría eignaðist dóttur í dag David og Viktoría Beckham eignuðust dóttur í dag en stúlkan er fjórða barn þeirra hjóna. Barnið fæddist á sjúkrahúsi í Los Angeles heimaborg þeirra hjóna og var hún 3,4 kíló að þyngd. Ekki er búið að gefa henni nafn. 10.7.2011 19:23
Gætu flutt fólk yfir Múlakvísl á trukkum Verið er að skoða möguleika á að selflytja fólk yfir Múlakvísl með trukkum meðan verið er að reisa bráðabirgðabrú. Vegamálastjóri vísar því á bug að mistök hafi verið gerð við smíði brúarinnar, þó íbúar hafi talið hana of lága. 10.7.2011 18:51
Biðin setur ferðaþjónustuna á hausinn Algjört neyðarástand ríkir í ferðaþjónustunni vegna lokunar hringvegsins, en umferð verður ekki komið á fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur. Biðin setur greinina á hausinn segir framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar. 10.7.2011 18:45
Þakkaði fyrir stuðning Íslendinga Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, þakkaði Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, fyrir stuðning Íslendinga og sagði að hann væri mikils metinn á fundi þeirra í Palestínu. 10.7.2011 18:06
Þung umferð á Suðurlandi Mikil umferð hefur verið í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag en um tíu þúsund manns voru á útihátíð Gaddstaðaflötum við Hellu um helgina. Varðstjóri lögreglunnar segir að umferðin hafi gengið mjög vel fyrir sig og að ökumenn séu almennt þolinmóðir. 10.7.2011 16:50
Þannig brúa herir stórfljót á 12 mínútum Hermönnum í bandaríska þjóðvarðliðinu tókst á heræfingu fyrir tveimur árum að brúa Missouri-ána, eitt af stórfljótum Bandaríkjanna, á aðeins 12 mínútum og einni sekúndu. Það var gert með því að nota færanlega og fljótandi brú, sem sett var saman úr mörgum einingum. 10.7.2011 16:18
Árni Þór þurfti að hætta keppni eftir tæplega 37 kílómetra Árni Þór Árnason sundkappi þurfti að hætta sundi yfir Ermarsundið nú fyrir stundu. Á heimasíðu hans segir að axlarmeiðsl og miklir straumar þvingi hann til að taka þessa ákvörðun i samráði við skipstjórann og aðstoðarmenn sína um borð. Árni var búinn að synda í nákvæmlega 9 klukkutíma og 33 mínútur og lagt að baki 36,5 kílómetra. 10.7.2011 14:50
"Eins og að vera á tónleikum í útlöndum“ "Við erum alveg í skýjunum bara, þetta gekk alveg vonum framar,“ segir Haraldur Ási Lárusson, einn aðstandenda Bestu útihátíðarinnar sem fór fram á Gaddstaðaflötum við Hellu um helgina. Hann segir að nú þurfi að taka sviðið niður og hreinsa til á svæðinu. "Við áætlum að vera búin að því fyrir klukkan ellefu í kvöld. Nú er starfsfólkið okkar bara að vakna og við erum að fara í þetta,“ segir hann. 10.7.2011 14:39
Hvetja fólk til að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er af stað Slysavarnafélagið Landsbjörg hvetur vegfarendur til að keyra varlega um hálendið og þá sérstaklega Fjallabaksleið nyrðri í ljósi þess að þjóðvegur eitt verður í sundur um sinn sunnan Mýrdalsjökuls. Búast má við aukinni umferð á svæðinu og jafnvel um Sprengisandsleiðina líka. Ferðmenn eru hvattir til að kynna sér aðstæður vel áður en lagt er í hann, til dæmis á heimasíðu vegagerðarinnar. 10.7.2011 14:04
Bílbeltin björguðu Þrjár stúlkur sluppu með minniháttar meiðsli þegar að bifreið þeirra valt í Kúgerði á Vatnsleysiströnd rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var í fyrstu talið að slysið væri alvarlegt og voru sjúkraflutningamenn sendir frá Reykjavík og Keflavík. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að slysið var ekki alvarlegt en stúlkurnar þrjár voru þó fluttar til skoðunar á slysadeild. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að stúlkurnar hafi allar verið í bílbelti og það hafi tvímælalaust bjargað þeim að ekki fór verr. 10.7.2011 13:35
Bíll valt á Landvegi Bíll valt á Landvegi um klukkan tólf í dag en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið að fimm hafi verið í bílnum. Ekki er vitað að svo stöddu hvort einhver hafi slasast í slysinu. 10.7.2011 13:21
Árni Þór búinn að synda í átta klukkutíma Árni Þór Árnason, sundkappi, hefur lagt rúmlega þrjátíu kílómetra að baki á leið sinni yfir Ermarsundið. Hann lagði af stað klukkan fimm í morgun og er því búinn að synda í tæplega átta klukkustundir. 10.7.2011 12:56
Öflugur jarðskjálfti í Japan Öflugur jarðskjálfti reið yfir norðausturhluta Japan í nótt. Engar fréttir hafa borist af mann- eða eignatjóni. 10.7.2011 12:30
Vilja að unnið verði allan sólarhringinn til að laga brúnna Samtök Ferðaþjónustunnar hafa lýst yfir neyðarástandi í greininni vegna lokunar hringvegarins. Erlendir ferðamenn hafa þegar afbóka ferðir sínar til landsins vegna ástandsins. 10.7.2011 11:53
Henti grasi út um gluggann - gaf svo upp nafn á eftirlýstum manni Þegar lögreglumenn á Selfossi snéru við á Hellisheiðinni í gær til að athuga með ástand ökumanns bifreiðar urðu þeir varir við að poka var hent út um gluggann. 10.7.2011 10:45
Byrjað á nýrri brú í gærkvöldi Byrjað var að undirbúa brúarsmíð yfir Múlakvísl strax í gærkvöld, en brúin þar flaut af undirstöðunum í hlaupi í ánni í gær. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að hafist verði handa við að lagfæra veginn að brúarstæðinu í dag svo þungaflutningur á byggingarefni verði mögulegur. 10.7.2011 10:45
Á ofsahraða á Reykjanesbraut Lögreglumenn á Suðurnesjum mældu ökumann bifhjóls á 174 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanesbrautinni á miðnætti í gær. Svo hratt fór hjólið að þegar lögreglumennirnir, sem komu úr gangstæðri átt, voru búnir að snúa við á brautinni var hjólið horfið. Því var gripið til þess ráðs að láta lögreglumenn úr Hafnarfirði mæta hjólinu. Hann var handtekinn og sviptur ökuréttindum á lögreglustöðinni í Hafnarfirði en ökumaðurinn verður ákærður fyrir hraðaksturinn. 10.7.2011 10:04
Katla virðist vera farin aftur að sofa Litið er svo á að hræringum við Kötlu sé lokið í bili hjá Veðurstofu Íslands, en lítil sem engin skjálftavirkni hefur mælst nærri sigkötlum í Mýrdalsjökli frá miðnætti. Mikið hafði hægst um á svæðinu síðdegis í gær, en lítilsháttar skjálftavirkni mældist þó um klukkan tíu í gærkvöld. 10.7.2011 09:58
Var rétt undir áfengismörkum en keyrði alltof hratt Einn ökumaður var tekinn á 139 kílómetra hraða á klukkustund í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt og reyndist ökumaðurinn vera búinn að smakka áfengi fyrr um kvöldið. Hann var þó ekki mældur yfir leyfilegum mörkum og var því látinn hinkra í nokkra klukkutíma áður en hann fékk að halda för sinni áfram. Hans bíður þó 90 þúsund króna sekt fyrir hraðaksturinn og þá fær hann þrjá punkta í ökuferilsskrá. 10.7.2011 09:48
Réðst á dyraverði Austur og síðan á lögregluna Töluvert var um ölvun á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þrettán gistu fangageymslur lögreglu og sex voru stöðvaðir vegna gruns um ölvunarakstur. 10.7.2011 09:47
Besta útihátíðin gengið vel - þrjátíu fíkniefnamál Um níu þúsund manns eru nú á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum við Hellu. Töluverður erill var hjá lögreglunni á Hvolsvelli í tengslum við skemmtanahöldin í nótt, en tuttugu til þrjátíu fíkniefnamál komu inn á borð hennar og tilkynnt var um fjölda líkamsárása. Lögregla segir hátíðarhöldin hafa þó almennt séð gengið vel fyrir sig, sérstaklega í ljósi þess hve margir voru samankomnir á svæðinu. 10.7.2011 09:42
Reyndi að blekkja lögguna - klifraði í aftursætið Ökumaður á þrítugsaldri var stöðvaður við reglubundið eftirlit á Selfossi í morgun en þegar hann varð var við lögregluna reyndi hann að blekkja lögreglumenn. Hann keyrði inn í botnlanga og drap á bílnum. Lögreglumönnum fannst athæfi mannsins eitthvað furðulegt og ákváðu því að athuga hvort allt væri ekki með felldu. Þegar lögreglumaður kom að bílnum var maðurinn að klifra í aftursætið og hélt því fram að hann hefði ekki verið að keyra bílinn. Lögreglumönnum fannst það nú ekki trúverðugt úr því að hann var einn í bílnum, og viðurkenndi hann svo síðar að hafa ekið bílnum. Hann var látinn blása í áfengismæli og reyndist yfir mörkum. Hann sefur nú úr sér í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar í dag. 10.7.2011 09:31
Saga Kötlugosa á Íslandi - myndskeið Hlaupið í Múlakvísl hófst skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Kraftur hlaupsins var svipaður og í hlaupinu árið 1955. Í meðfylgjandi myndskeiði skoðar Símon Birgisson fréttamaður sögu Kötlugosa. 9.7.2011 19:00
Presturinn fékk far með þyrlunni til að komast í jarðaför Landhelgisgæslan hafði í nógu að snúast í dag, en auk þess að fljúga með vísindamenn sótti hún óttaslegna franska ferðamenn og flaug með skrúðbúinn prest í jarðarför. 9.7.2011 18:59
"Alltaf vitað að brúin hefði aldrei þolað meira en venjulegt sumarvatn“ Áhugaljósmyndari á Vík í Mýrdal segist ekki muna eftir öðrum eins vatnsflaumi í Múlakvísl, en hann náði ótrúlegum myndum af beljandi fljótinu og skaðanum sem það olli í morgunsárið í dag. 9.7.2011 18:45
Ný brú kostar 400 milljónir - hringvegurinn lokaður næstu þrjár vikur Hringvegurinn verður lokaður frá Vík austur yfir Mýrdalssand næstu tvær til þrjár vikurnar. Stórtjón varð þegar brúin yfir Múlahvísl fór en ný kostar á bilinu þrjú til fjögur hundruð milljónir. 9.7.2011 18:45
Jónsi kallaði konur hórur á Bestu hátíðinni Jón Jósep Snæbjörnsson, oft kallaður Jónsi í Svörtum fötum, vakti hneykslan á Bestu útihátíðinni þegar hann ávarpaði gesti á hátíðinni: „Herrar mínir og hórur". Talskona Nei - hópsins, sem berst gegn kynbundnu ofbeldi, segir hegðun Jónsa fyrir neðan allar hellur. 9.7.2011 16:34
Nýjar myndir af Mýrdalsjökli Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug með vísindamenn frá Raunvísindastofnun og Veðurstofu Íslands yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Múlakvísl og Mýrdalssand í dag. Á meðfylgjandi myndum sjást tveir sigkatlar mjög vel en greinilegt er að hrun hefur orðið í miðju þeirra. Myndirnar tóku menn á vegum Landhelgisgæslu Íslands. Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði við fréttastofu í morgun að engin bein merki voru um að eldgos en hann útilokaði þó ekki að gos hafi orðið undir jöklinum. „Það er mjög erfitt að skera úr um það,“ sagði hann. 9.7.2011 16:27
Ferðamenn afbóka hótelgistingar - „Tökum einn dag í einu“ „Þetta eru eðlilega slæm tíðindi og raskar öllum okkar plönum. Við tökum bara einn dag í einu og reynum að vera bjartsýn á framhaldið," segir Karl Rafnsson hótelstjóri á Hótel Klaustri. 9.7.2011 16:13
Rýmingu aflétt - óvissuástand í stað hættustigs Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóran á Hvolsvelli og vísindamenn lækkað almannavarnastig af hættustigi niður á óvissustig. 9.7.2011 15:19
Öll merki sýna að hætta sé yfirstaðin "Við eigum ekki von á því að þetta hættustig vari mikið lengur,“ segir Evgenia Ilyinskaya, eldfjallafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu. 9.7.2011 14:51
Innanríkisráðherra á leið á hamfarasvæðin „Það verður allt gert sem hægt er til að koma á vegasambandi," segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Samgöngumál falla undir ráðuneyti hans. Hlaupið í Múlakvísl olli því að brú yfir ána rifnaði í sundur í morgun. 9.7.2011 14:04
Hjólreiðamaður fluttur á slysadeild Hjólreiðamaður á fimmtugsaldri fékk aðsvif þegar hann var að hjóla á þjóðvegi eitt austan við Þingborg rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Hann féll í götuna og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Hann er ekki talinn vera með alvarlega áverka. Maðurinn var hluti af hóp sem hjólar á Hvolsvöll í dag en einhvers konar keppni er í gangi þar sem mörg hundruð hjólreiðamenn hjóla á þjóðveginum, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögregunni á Selfossi. 9.7.2011 13:48
Brúin rifnaði af í heilu lagi Brúin á Múlakvíslinni eyðilagðist eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Þórir Kjartansson tók og sendi Vísi. Vegagerðin telur að það geti tekið tvær vikur að laga hana. Óljóst er hvernig samgöngum um Suðurlandsveg verður háttað þangað til. 9.7.2011 12:46
Hátt í 200 manns í fjöldahjálparstöðvum Hátt í 200 manns hafa komið saman í fjöldahjálparstöðinni á Kirkjubæjarklaustri og í Vík. Þar af eru um 180 á Kirkjubæjarklaustri en 14 í Vík, samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Sturlusyni, framkvæmdastjóra hjá Rauða krossinum. 9.7.2011 12:15
Ljósleiðarinn rofinn: Merkið sent öfuga leið Ljósleiðari Mílu slitnaði í hlaupinu í Múlakvísl. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja áhrifin á net- og símasamband takmörkuð, en merkjasendingar fara nú norðurleiðina um landið. 9.7.2011 12:00
Þrír greinilegir sigkatlar „Það eru engin bein merki um eldgos. Það útilokar samt ekki að það hafi orði gos undir jöklinum. Það er mjög erfitt að skera úr um það," segir Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Einar var staddur á Vík í Mýrdal þegar Vísir talaði við hann. 9.7.2011 11:55
Saga Kötlu Katla er eitt hættulegasta eldfjall landsins og hafa hlaup úr Kötlu valdið gríðarlegu tjóni á Suðurlandi. Talið er að Katla hafi gosið um tuttugu sinnum frá landnámi en síðasta stóra gos í Kötlu varð árið 1918. Mesta hættan af Kötlugosunum liggur í jökulhlaupum. 9.7.2011 11:54
Varhugavert horn í miðbænum Horn Hávallagötu og göngustígs þar er afar varhugavert, segir Helga E. Jónsdóttir leikkona en hún lenti í hjólreiðaslysi á þeim stað í þarsíðustu viku. Hún handleggs- og rifbeinsbrotnaði þá í árekstri við annan hjólreiðamann. 9.7.2011 11:00