Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Facebook logar - hvar er Sigmar! Þeir voru ófáir sem vildu fá gamla Eurovison-kynninn Sigmar Guðmundsson til þess að kynna keppnina á nýog lýstu yfir óánægju sinni á samskiptavefnum Facebook. Þannig greinir fréttasíðan Fréttir af Facebook frá almennri óánægju með nýja þulinn, Hrafnhildi Halldórsdóttur, sem lýsir nú keppninni. 10.5.2011 20:55
Hamfarir í Japan hafa talsverð áhrif á hvalveiðar á Íslandi Líklega mun ástandið í Japan bitna harkalega á hvalveiðum hér á landi samkvæmt fréttaveitunni AFP. Þar er rætt við Kristján Loftsson eiganda Hvals hf., og hann spurður hvaða áhrif hamfarirnar í Japan munu hafa á hvalveiðarnar. 10.5.2011 20:30
Ísland stóð sig vel - sérfræðingar þó svartsýnir Þá eru Vinir Sjonna búnir að flytja framlag Íslands í Eurovison. Flutningurinn tókst vel eins og við var að búast. Laginu var vel fagnað. 10.5.2011 20:04
Sigmar Guðmundsson: 7 þjóðir öruggar - Ísland fer ekki áfram Kastljósmaðurinn Sigmar Guðmundsson, sem hefur lýst Eurovision keppninni um árabil, þó ekki ár, spári sjö þjóðum öruggu gengi í kvöld. Hann skrifar á Facebook-síðu sína að þetta sé ekki flókið: 10.5.2011 20:00
Segir það þjóðhagslega hagkvæmt að vinna Eurovison Íslendingar gætu vel haldið Eurovision hér á landi og grætt á því ef marka má niðurstöður lokaritgerðar í Hagfræði. Höfundurinn er nú er staddur úti í Dusseldorf. 10.5.2011 19:30
Vill ekki skjóta mávana - vinsamleg tilmæli nægja Borgarfulltrúi Besta flokksins beinir því til fólks að hætta að gefa öndunum á Tjörninni Reykjavík brauð til að sporna við ágangi máva. Ekki stendur til að banna brauðgjafirnar að svo stöddu. 10.5.2011 19:15
Ísland fjórtánda í röðinni Eurovision er hafið og er bein útsending á RÚV. Um er að ræða fyrri undankeppnina sem Íslendingar taka þátt í. Alls munu nítján lönd keppa um að komast áfram í kvöld. Tíu lönd komast áfram. 10.5.2011 19:03
Börn valin eftir tekjum en ekki tannskemmdum Ósanngjarnt er að mismuna börnum eftir launum foreldra sinna þegar kemur að tannlæknaþjónustu. Þetta segir formaður Tannlæknafélagsins. 10.5.2011 19:00
Uppstokkun á kvótakerfinu Fimmtán prósent heildarafla hvers árs verða komin á frjálsan leigumarkað eftir fimmtán ár, samkvæmt frumvörpum sjávarútvegsráðherra um stjórn fiskveiða sem afgreidd voru út úr ríkisstjórn í dag. Veiðigjald verður hækkað um fimmtíu prósent. 10.5.2011 18:30
Saksóknari hefur ákært Geir Saksóknari Alþingis hefur gefið út ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vegna meintra brota hans á tímabilinu febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár. Í ákærunni er Geir sakaður um að hafa framið brotin af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi. Ákæran er í tveimur liðum og skiptist fyrri liðurinn í fimm undirliði. 10.5.2011 16:07
Grunnframfærsla LÍN hækkuð Grunnframfærsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækkar um 10% samkvæmt tillögu Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra, sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í tilkynningu frá ráðherra kemur fram að hækkunin tekur gildi á frá og með skólaárinu 2011-2012 og verður þá tæplega 133 þúsund krónur. Á yfirstandandi skólaári er grunnframfærslan tæplega 121 þúsund krónur og er því um 10% hækkun að ræða. 10.5.2011 15:27
Heldur fyrirlestur um staðgöngumæðrun Karen Busby, feministi og lagaprófessor við Háskólann í Manitoba, heldur fyrirlestur um staðgöngumæðrun á Hótel Cabin klukkan fimm í dag. Í fréttatilkynningu frá félaginu Staðgöngu segir að nýjustu rannsóknir hennar sem varða staðgöngumæðrun á Vesturlöndum séu með þeim ítarlegustu og yfirgripsmestu hingað til. Fyrirlesturinn er í ráðstefnusal á sjöundu hæð á Hótel Cabin í Borgartúni. 10.5.2011 15:19
Jóhanna kallar eftir sátt í jafnréttismálinu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar ekki að kæra úrskurð kærunefndar jafnréttismála til dómstóla. Arnar Þór Másson var ráðinn sem skrifstofustjóri á nýrri skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í ráðuneytinu. Anna Ólafsdóttir taldi að með ráðningunni hefðu jafnréttislög verið brotin og kærði málið til kærunefndar jafnréttismála. 10.5.2011 15:07
Forsetafrúin er feykistælt Michelle Obama er orðin fyrirmynd Bandaríkjamanna á öllum aldri sem vilja líta vel út. Hún lagði raunar upp með það verkefni að minnka offitu meðal barna, en það hefur hlaðið utan á sig, ef svo má að orði komast í frétt sem fjallar um fitu. 10.5.2011 14:56
Feðgar dæmdir fyrir árás á verslunarmann Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo karlmenn, sem eru feðgar, í skorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á starfsmann í Fjarðakaupum í Hafnarfirði í apríl 2009. Starfsmaðurinn hugðist stöðva konu, sem er móðirin í fjölskyldunni, þegar að honum sýndist konan hafa stungið inn á sig geisladiskum úr versluninni. Eftir að þeir réðust að starfsmanninum réðust þeir á annan mann við verslunina sem hugðist koma starfsmanninum til aðstoðar. 10.5.2011 14:55
Chrystel verður aflífuð Yfirvöldum ber að aflífa rottweilertíkina Chrystel. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir. 10.5.2011 14:39
Vill að Össur kanni hvort NATO hafi hunsað flóttamen Þórunn Sveinbjarnardóttir þingkona Samfylkingarinnar hvetur Össur Skarphéðinsson til þess að nýta sér stöðu sína og kanna hvað hæft sé í þeim fréttum að 61 flóttamaður á leið frá Líbíu til Ítalíu hafi látið lífið um borð. Málið hefur vakið mikla athygli en það var breska blaðið The Guardian sem fyrst sagði frá því. Blaðið hefur eftir fólki sem komst af að yfirvöld á svæðinu, þar á meðal NATO, hafi vitað af neyðinni án þess að brugðist hafi verið við. 10.5.2011 14:31
Fangelsi fyrir að framvísa röngum vegabréfum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær þrjá eþíópíska ríkisborgara í 30 daga fangelsi fyrir að framvísa röngum vegabréfum við komuna til Íslands. Fólkið kom með flugi frá Osló á föstudaginn. Fólkið játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum. Um er að ræða karlmenn sem fæddir eru 1965 og 1975 og konu sem er fædd árið 1978. 10.5.2011 14:02
Íslenskur húmor fer illa í breska gagnrýnendur Næturvaktin í leikstjórn Ragnars Bragasonar lagðist greinilega misvel í Breta. Fyrsti þátturinn í seríunni var sýndur á sjónvarpsstöðinni BBC 4 í gær. "Orðalag og tungumálið er almennt er jafnan stærsta atriðið sem fær okkur til að hlæja, þannig að Næturvaktin, sem er íslenskur skemmtiþáttur með texta, er dálítil áhætta," segir Brian Viner, gagnrýnandi breska blaðsins Independent. Hann efast hins vegar ekkert um það að Íslendingum finnist þátturinn fyndinn. "Mér fannst það hins vegar ekki,“ segir hann. 10.5.2011 13:24
Ætla að afgreiða kvótamálið í ríkisstjórn í dag Til stendur að afgreiða frumvörp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu út úr rikisstjórn í dag. Ráðherrar komu saman til reglulegs fundar í stjórnarráðshúsinu í morgun og stendur sá fundur enn. 10.5.2011 12:00
Biðlað til Svandísar og Jóhönnu að hlífa hvítabjörnum Alþjóðlegt bænaskjal til þeirra Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, um að hlífa hvítabjörnum, hefur nú verið opnað á netinu og hafa yfir sexhundrað manns þegar skrifað undir. Útlendingar virðast vera í miklum meirihluta. 10.5.2011 12:00
Surtsey á frímerki hjá Sameinuðu Þjóðunum Surtsey hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að prýða frímerki sem gefið er út af Póststofnun Sameinuðu Þjóðanna. Sex frímerki hafa verið gefin út í sérstakri útgáfu sem ætlað er að minnast norrænna heimsmynja. 10.5.2011 11:48
Móðgaði Harald konung Talsvert uppnám hefur orðið í Noregi eftir að norska Dagbladet hélt því fram að Jens Stoltenberg forsætisráðherra hefði komið í veg fyrir að Haraldur konungur sæmdi hermenn heiðursmerkjum á degi uppgjafahermanna síðastliðinn sunnudag. 10.5.2011 11:19
Synda fyrir bætta geðheilsu Sala á K-lykli Kiwanishreyfingarinnar hófst í morgun með því að Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir, afreksmenn í sundi, stungu sér til sunds í Laugardalslauginni í Reykjavík ásamt þeim Herði Oddfríðarsyni, formanni Sundsambandsins, og Óskari Guðjónssyni frá Kiwanissamtökunum. 10.5.2011 10:37
Hertogahjónin farin í brúðkaupsferð Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans, eru farin í brúðkaupsferð, nú þegar 10 dagar eru liðnir frá brúðkaupi þeirra í Westminister Abbey. Daily Telegraph segir að konungshirðin hafi staðfest að þau hefðu lagt af stað í ferðina en ekkert hefur fengist staðfest um það hvert þau fóru. Óstaðfestar heimildir herma að þau hafi farið til Sikileyja en aðrar heimildir segja að þau hafi farið á Indlandshaf. 10.5.2011 09:47
Fjöldi nýnema tvöfaldast Nýnemar á háskólastigi voru um það bil 3900 síðasta haust og hafði fjöldi þeirra tæplega tvöfaldast frá hausti 1997. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Nýnemar voru þó enn fleiri haustið 2009 eða tæplega 4400 og hafa aldrei verið fleiri en þá. 10.5.2011 09:17
Leki kom að Atlasi Leki kom að strandveiðibátnum Atlasi SH þegar hann var staddur út af Grundarfirði undir kvöld í gær. Skipverjum tókst að halda bátnum á floti með stöðugri dælingu á meðan þeir sigldu honum til lands. Þegar þangað kom var töluverður sjór kominn í bátinn. 10.5.2011 09:09
Íbúar í Runavík komnir heim á ný Enn logar um borð í togaranum Athenu en gríðarmikill eldur kom upp í skipinu í gær í höfninni í Runavík. Eldurinn í gærkvöldi var þó mun minni en áður að sögn færeyska útvarpsins og ætluðu menn að hefja aðgerðir til þess að kæla skipið. 10.5.2011 09:08
Leynisamningur gaf Bandaríkjamönnum leyfi til að ná Osama Bandarískir hermenn höfðu leyfi frá pakistönskum yfirvöldum til þess að ráðast inn í landið og ná í Osama Bin Laden. 10.5.2011 09:03
Schwarzenegger skilinn við Maríu Kvikmyndastjarnan og fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, Arnold Schwarzenegger, og eiginkona hans Maria Shriver, hafa ákveðið að skilja að borði og sæng. Arnold og Maria, sem tilheyrir Kennedy fjölskyldunni margfrægu, tilkynntu þetta í gærkvöldi. 10.5.2011 08:26
Uppreisnarmenn með yfirhöndina í Misrata Uppreisnarmenn í Líbísku borginni Misrata segjast hafa náð að hrekja hermenn Gaddafís einræðisherra frá úthverfum borgarinnar. Borgin er sú eina í vesturhluta landsins sem lýtur stjórn uppreisnarmanna og hafa menn Gaddafís setið um hana í tvo mánuði. 10.5.2011 08:24
Veiðar stöðvaðar á svæði eitt Strandveiðar á svæði númer eitt, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem bátarnir voru búnir að veiða heildarkvóta þessa mánaðar. Svæðið nær frá Snæfellsnesi til Bolungavíkur og er lang vinsælasta svæðið, sem sést best af því að lang flestir bátar eru skráðir til veiða þar. 10.5.2011 08:22
Reiðhjólalöggur tóku Vespu-mann úr umferð Tveir lögreglumenn á reiðhjólum tóku ökumann vespu-bifhjóls úr umferð á Akureyri í nótt þar sem hann reyndist undir áhrifum áfengis. Þetta gerðist á Mýrarvegi við Kaupvang og var Vespumaðurinn sviftur ökuréttindum til bráðabirgða. 10.5.2011 07:05
Segja bellibrögðum beitt í vínbúðarmáli Fjölmargir íbúar og húseigendur í nágrenni við vínbúð ÁTVR á Hólabraut á Akureyri mótmæla harðlega fyrirhugaðri deiliskipulagsbreytingu sem gera mun fyrirtækinu kleift að reisa viðbyggingu við húsnæði sitt. 10.5.2011 07:00
Hreindýraleyfi verði seld hæstbjóðendum Tekjur af hreindýrum á Austurlandi eru verulega minni en þær gætu verið vegna þess að veiðileyfin er seld á undirverði. Þetta segja kennarar við Háskólann á Akureyri. 10.5.2011 06:30
Aukið samstarf hjá háskólum Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra í dag. 9.5.2011 16:33
Pakistanar hefja rannsókn á veru Osama í landinu Pakistanar ætla að hefja opinbera rannsókn á því hvernig stóð á því að hryðjuverkaleiðtoganum Osama Bin Laden tókst að dvelja í borginni Abbottabad í sex ár án þess að yfirvöld kæmust á snoðir um það. Forsætisráðherra landsins lýsti þessu yfir í þinghúsinu í Islamabad í dag. 9.5.2011 16:05
Helgi Seljan fór í hjartaþræðingu Helgi Seljan sjónvarpsfréttamaður gekkst undir hjartaþræðingu í fyrir fáeinum dögum. Hann er nú að jafna sig á Landspítalanum, samkvæmt heimildum Vísis. Helgi fann fyrir verki í hjarta og ákvað að leita læknisaðstoðar á bráðamóttöku Landspítalans. Fréttavefurinn Eyjan segir að þar hafi komið í ljós að ekki hafi verið um kransæðastíflu að ræða heldur bólgur í hjartavöðvum. Helgi baðst undan viðtali þegar Vísir spurði hann út í málið. 9.5.2011 15:15
Pöddur og skordýr í heimahúsum Ef þú þekkir fyrirbærið þá þarftu ekki að vera með æsing, heldur bregðast rétt við, segir Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur. Pöddur, eins og ryklús, hambjöllur, húsamaur, silfurskottur - og svo humlur og geitungar eru yfirleitt illa séðir gestir í heimahúsum. Þóra segir að sér finnist viðbrögð við slíkum gestum oft líkjast hysteríu. Þörf sé á meiri fræðslu um slík dýr. Hún ætlar að bæta úr þessu með fyrirlestri í sal Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar á morgun. „Auk þess vil ég gefa innsýn í það sem mér finnst vera heillandi heimur smádýra," segir Þóra í samtali við Vísi. 9.5.2011 14:31
Herjólfur í Landeyjahöfn fram á fimmtudag Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun áfram sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en siglingar til Landeyja hófust að nýju um helgina. Ferjan mun sigla þrjár ferðir á dag á hverjum degi fram á fimmtudag þegar ástand mála verður endurmetið. 9.5.2011 14:27
Umferðarslys í Hafnarfirði - leitað að vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á mótum Reykjavíkurvegar og Hraunbrúnar í Hafnarfirði um klukkan 16 fimmtudaginn 5. maí. Að sögn lögreglu var grænum pallbíl, með húsi yfir palli, ekið á reiðhjólamann sem var á leið yfir götuna umferðarljós eru á gatnamótunum. 9.5.2011 14:18
Togarinn logar stafnanna á milli Togarinn Athena logar stafnanna milli í Runavik í Færeyjum og er talið að hann sé gjörónýtur. Margar öflugar sprengingar hafa orðið í skipinu frá því kviknaði í því í gærkvöldi og voru 1500 íbúar bæjarins fluttir þaðan í öryggisskyni. 9.5.2011 14:04
Skarst illa á hendi í Ólafsvík Maður slasaðist á Ólafsvík fyrir hádegið þegar hann fór með hendina í fiskvinnsluvél. Skarst maðurinn svo illa að kallað var á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti manninn. Þyrlan kom til Reykjavíkur um klukkan eitt var maðurinn lagður inn á Landspítalann í Fossvogi. 9.5.2011 13:43
Ríkissaksóknari beitir sér ekki vegna ísbjarnardráps Ríkissaksóknari hyggst að óbreyttu ekkert aðhafast vegna ísbjarnardrápsins á Hornströndum í síðustu viku. Dýrafræðingur telur að lagaákvæði um friðun hvítabjarna hafi verið brotin. Samkvæmt lögum eru hvítabirnir friðaðir á Íslandi. Þó má fella hvítabjörn, sem gengið hefur á land, ef fólki og búfénaði er talin stafa hætta af. 9.5.2011 13:36
Lögreglan leitar að eiganda myntsafns Lögreglan lýsir á Facebook síðu sinni eftir eiganda myntsafns sem er í hennar vörslu. Safnið er í möppu og er merkt „Íslenzkar myntir“. Þeir sem telja sig kannast við safnið geta haft samband við lögregluna í Hafnarfirði. 9.5.2011 13:10