Fleiri fréttir

Sigríður verður ekki á tvöföldum launum

Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari og saksóknari Alþingis, hefur óskað eftir samtölum við skrifstofustjóra Alþingis um að laun vegna starfa hennar fyrir Alþingi verði lækkuð. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri þingsins, í samtali við Vísi.

Þorp rýmt vegna elds í togara

Fimmtánhundruð íbúar hafa verið fluttir frá færeyska bænum Runavik þar sem risatogari liggur brennandi við bryggjuna. Yfirvöld óttast að skipið kunni að springa í loft upp auk þess sem eitraðan reyk leggur frá því. Togarinn Athena er hin mesta óhappafleyta.

Fannst á lífi eftir sjö vikur í óbyggðum

Veiðimenn í Nevada í Bandaríkjunum fundu í gær kanadíska konu á lífi en hennar hefur verið saknað í sjö vikur. Konan er að ná sér á spítala en björgunarsveitir leita enn að manni hennar sem var með í för.

Gáfu fæðingardeildinni fullkominn blóðþrýstingsmæli

Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu, til dæmis ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstaks eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir. Tækið var afhent 2. maí 2011.

Ráðherrar víki sæti á Alþingi

Þingmenn þriggja stjórnmálaflokka hafa lagt fram frumvarp um heimild ráðherra til að víkja tímabundið af þingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti. Fyrstu umræðu þingsins um frumvarpið er lokið og verður það til umræðu í allsherjarnefnd í dag.

Obama krefst skýringa frá Pakistönum

Barack Obama vill að Pakistanar rannsaki hvernig alræmdasti hryðjuverkaleiðtogi heims gat búið velsældarlífi í friðsælu úthverfi í landinu án þess að nokkur yrði hans var.

Amfetamín á Austfjörðum

Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við lögregluna á Seyðisfirði lagði í fyrrinótt hald á 25 grömm af amfetamíni, sem talið er að hafi verið ætlað til dreifingar og sölu á Austfjörðum. Lögreglumenn fréttu af þekktum fíkniefnasala á svæðinu og höfðu upp á honum með þessum árangri. Hann var handtekinn, en sleppt að yfirheyrslum loknum. Fíkniefnahundur frá Seyðisfirði var notaður við aðgerðina.

Ítalskir hermenn í rusli

Ítalskir hermenn hafa verið sendir til borgarinnar Napólí í óvenjulegum erindagjörðum, en þeir eiga að takast á við gríðarlegt magn af rusli sem safnast hefur saman á götum borgarinnar.

Umkringja úthverfi í Damaskus

Mikil skothríð hefur heyrst síðustu tímana í úthverfi Damaskus í Sýrlandi en talsmenn mannréttindasamtaka í landinu segja að herinn hafi umkringt hverfið.

Launin margföld í Noregi

Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar fara í miklum mæli til Noregs og Svíþjóðar til að vinna þar í stuttan tíma í senn. Fólk hefur þá ýmist óskað eftir launalausu leyfi frá vinnu hér á landi eða notar sumarleyfi og vaktafrí til þess að fara á hálfgerða vertíð í þessum nágrannalöndum. Launin eru miklu hærri.

Ammoníakleki á Suðurnesjum

Tveimur reykköfurum í eiturefnabúningum tókst í gærkvöldi að stöðva mikinn ammoníakleka í húsnæði Slægingarþjónustu Suðurnesja í Sandgerði, og varð engum meint af lekanum. Í ljós kom að ammoníakrör hafði sprungið þannig að efnið lak út.

Kona höfuðkúpubrotnaði

Kona höfuðkúpubrotnaði þegar hún féll niður tröppur húss í Biskupstungum aðfaranótt sunnudags. Konan var flutt til Reykjavíkur og liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Engin vitni voru að slysinu.

Hætta vegna lengri boðleiða

Breytingar á lögreglustjóraembættum samkvæmt nýju frumvarpi mæta mikilli andstöðu hjá sveitarstjórn Rangárþings eystra.

Kemur íslenskri matarmenningu á kortið

Skorað hefur verið á Íslendinga að bjóða sig fram á ný til stjórnarsetu í Heimssamtökum matreiðslumanna, eða WACS, fyrir kjörtímabilið 2012 til 2016. Þeir Gissur Guðmundsson, Hilmar B. Jónsson og Helgi Einarsson sitja í núverandi stjórn en um tíu milljónir matreiðslumanna í 100 löndum eru meðlimir í WACS.

Jóhanna þrýstir á Ólaf Ragnar

Forsætisráðuneytið hefur ítrekað þrýst á forseta Íslands til að setja sér siðareglur en mælst er til þess í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekkert hefur orðið af því og skilja má af bréfasamskiptum embættanna tveggja að forsetanum finnist forsætisráðuneytið vera með of mikla afskiptasemi.

Ögmundur segist ekki hafa verið í hættu

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að hann og fjölskylda sín hafi ekki verið í hættu þegar ráðist var að húsi hans aðfaranótt laugardags og rúður brotnar. Glerbrotum rigndi yfir ráðherrann sem sat í stofunni ásamt eiginkonu sinni.

Í götubolta í góðu veðri

Það var margt um að vera í góða veðrinu í dag. Fólk stytti sér stundir við róður, reiðtúra, körfuknattleik og fleira. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á ferð um miðborgina í dag og smellti myndum af fólki í sumarskapi.

ESB samningur tilbúinn á næsta ári

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að hægt verði að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið á einu ári. Eiginlegar viðræður munu hefjast í júní en rýnivinnu vegna aðildarumræðunnar lauk á dögunum. "Gangi samningsviðræður ágætlega held ég að svona eftir ríflega ár geti samningur verið að koma heim," segir Björgvin G. Sigurðsson í samtali við Vísi.

Útrásarjeppi til sölu

Útrásin er ekki dauð úr öllum æðum. Hún er staðsett á Höfðabakka skammt frá Gullinbrú. Þar er í það minnsta þessi forláta Daihatsubifreið sem ber einkanúmerið Útrásin. Bíllin er 1998 árgerð og er ekin tæpa 200 þúsund kílómetra. Það má segja að útrásin fáist á spottprís, eða einungis um 500 þúsund krónur.

Nýta veðrið í strandferðir og Esjugöngur

Fjöldi fólks hefur nýtt blíðviðrið sem nú er á höfuðborgarsvæðinu í útivist það sem af er degi. Töluverður fjöldi fólks hefur nýtt daginn til þess að ganga á Esjuna. Þar á meðal voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit eiginkona hans sem voru þar á göngu með hundinn sinn.

Fylltist þunglyndi og sjálfsvígshugsunum vegna Maddie

Kate McCann segist hafa fyllst þunglyndi og sjálfsvígshugsunum eftir að dóttur hennar, Madeleine McCann, var rænt af hótelherbergi í Portúgal. Fjögur ár eru síðan að Maddie litlu, eins og hún var kölluð, var rænt og enn er ekkert vitað um afdrif hennar. Kate McCann hefur nú gefið út bók um hvarfið. Þar lýsir hún meðal annars tilfinningum sínum þegar að rannsókn málsins fór af stað. Hún segir að það hafi valdið sér sársauka að hafa verið álitin vera köld og tilfinningalaus manneskja, vegna þess hvernig hún kom fyrir í viðtölum við fjölmiðla.

Ráðist að heimili Ögmundar

Ráðist var að heimili Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í fyrrinótt. Fjölmennt lið lögreglu var kallað á staðinn þar sem talið var að um umsátur væri að ræða. Öryggi ráðherrans var tryggt með aðgerðum lögreglunnar.

Mistök að samþykkja umsókn í ESB

Ögmundur Jónasson segist hafa gert mistök þegar hann studdi umsókn Íslendinga í Evrópusambandið. Hann vill flýta samningaviðræðunum og leggja málið í dóm kjósenda.

Bin Laden var virkur við stjórn al-Qaida

Osama Bin Laden var virkur við stjórn hryðjuverkasamtakanna al-Kaida allt til dauðadags. Bandaríska leyniþjónustan telur að hann hafi stjórnað samtökum sínum úr neðanjarðarbyrgi sínu í Pakistan.

Kvótinn ekki eina ástæða fólksfækkunar

Það er mikil einföldun að halda því fram að kvótakerfið sé eina ástæða fólksfækkunar á landsbyggðinni. Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði.

Ekki hvatt til bólusetningar

Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á Sóttvarnasviði, segir Sóttvarnarlækni ekki hafa hvatt landsmenn sérstaklega til að láta bólusetja sig fyrir svínaflensu að undanförnu. Veikin hafi ekki náð sér á strik hér á landi þar sem stór hluti þjóðarinnar fór í bólusetningu á sínum tíma.

Sautján létust í fangaóeirðum

Sautján létust þegar hópur fanga reyndi að brjóta sér leið út úr fangelsi í Írak í morgun. Meðal þeirra sem féllu voru sex lögreglumenn. Sagt er að fangarnir hafi tengsl við Al Qaeda hryðjuverkasamtökin.

Slökkviliðið sótti kött upp á þak

Slökkviliðsmenn sóttu kött upp á þak húss í miðborg Reykjavikur snemma í gærkvöld. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að kisi hafi tekið vel á móti slökkviliðsmönnunum þegar að þeir komu til að sækja hann og hafi verið feginn því að komast niður af húsþakinu. Slökkviliðið segir að yfirleitt komist kettir niður af húsþökum af eigin rammleik, en einstaka sinnum berist útköll eins og þetta.

Hundur í óskilum

Þessi krúttlegi hundur varð viðskila við eiganda sinn. Sá sem hýsir hundinn nú býður eigandanum að hringa í síma 8689495 til að nálgast hann.

Vill stykkilsber frekar en sprautunálar

Öskjuhlíðardagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti í dag. Kynnt var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarperluna Öskjuhlíð. Markmið verkefnisins er að gera Öskjuhlíðina að lifandi og skemmtilegu útivistarsvæði í Reykjavík.

Fjórhjólamaður keyrði á barn og stakk af

Um fimmleytið í dag varð umferðaróhapp á Garðagrund á Akranesi á móts við verslunina Samkaup, eða Grundaval. Þar var fjórhjóli ekið á barn sem var á reiðhjóli. Við þetta slasaðist barnið lítillega. Ökumaður fjórhjólsins fór af vettvangi án þess að huga að barninu eða tilkynna um óhappið. Þeir sem geta veitt upplýsingar um umferðaróhappið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akranesi í síma 4440111.

Tengsl milli bólusetningar og drómasýki

Tengsl eru á milli svínaflensubólusetningar og drómasýki hjá ungmönnum í Finnlandi. Hér á landi hefur tilfellum sýkinnar fjölgað en orsökin eru ókunn.

Saksóknari telur líkur á sakfellingu

Saksóknari Alþingis segir líklegt að Geir H.Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði sakfelldur fyrir vanrækslu í starfi. Hann verður ákærður í næstu viku.

Fá hótanir vegna málefna útlendinga

Mikill viðbúnaður var hjá Útlendingastofnun vegna fundarins sem átti að eiga sér stað með hælisleitandanum Mehdi Pour á föstudaginn. Forstjóri Útlendingastofnunar segir það breyta stöðu Mehdi að hann sé kominn í hendur heilbrigðisyfirvalda. Starfsfólk hafi oft fengið hótanir vegna málefna hælisleitenda.

Hælisleitandinn skildi eftir sjálfsmorðsbréf

Hælisleitandinn Mehdi Pour afhenti vinkonu sinni sjálfsmorðsbréf áður en hann fór upp í Rauða kross hús þar sem hann reyndi að kveikja í sér. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á viðeigandi stofnun.

Handtekinn fyrir árás á kærustu sína

Karlmaður um tvítugt var handtekinn og færður á lögreglustöð um fimmleytið í gær eftir að hann hafði veist að unnustu sinni og tekið hana hálstaki á lóð við Hamraskóla. Skýrsla var tekinn af karlmanninum og honum síðan sleppt. Að sögn lögreglunnar verður svo skýrsla tekin af stúlkunni eftir helgi og hún þarf þá að taka ákvörðun um það hvort hún vill kæra atvikið.

Bílvelta á Þingvallavegi

Bílvelta varð á Þingvallavegi á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum sem varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði fengið var einn slasaður, en meiðsl hans voru ekki alvarleg. Sjúkrabíll var sendur á vettvang svo hægt væri að hlúa að manninum og þá var tækjabíll sendur til öryggis.

Mestu leyniþjónustugögn sem hafa verið birt

Varnarmálaráðuneytið í Bandaríkjunum birti í dag fimm myndskeið af Osama Bin Laden. Leyniþjónustumenn lögðu hald á myndskeiðin þegar þeir réðust inn á heimili hans í byrjun vikunnar og felldu hann. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja að um sé að ræða mestu leyniþjónustugögn sem þau hafi nokkurn tímann komist yfir.

Flugslysaæfingunni lokið

Flugslysaæfingunni sem fram fór á Hornafjarðarflugvelli í dag er lokið. Hún gekk vel að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa ISAVIA. Hátt í 200 manns tóku þátt í æfingunni. Þar var verið að æfa skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á flugvellinum eða við hann. Markmiðið var að tryggja skipuleg viðbrögð við flugslysi og að þolendum flugslyss berist öll nauðsynleg aðstoð á sem skemmstum tíma. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð og aðstoðaði þá sem eru á vettvangi við æfinguna.

Norsk flugvél nauðlenti vegna slagsmála

Norsk flugvél sem var á leiðinni frá Osló í Noregi til Kýpur lenti óvænt á Kaupmannahafnarflugvelli í morgun vegna þess að slagsmál upphófust í vélinni þegar að hún var í sænskri lofthelgi. Þrír menn voru handteknir og eru nú í gæsluvarðhaldi auka einnar konu. Flugvélin var í Kaupmannahöfn í um það bil 30 mínútur þar til hún fór á flug. Einn af mönnunum þremur hefur auk þess verið kærður fyrir ofbeldi gagnvart lögreglumanni, en hann sparkaði hurð í lögreglumanninn.

Sex sjálfsmorðsárásir í Kandahar

Talibanar hafa gert sex sjálfsmorðsárásir í Kandahar í Afganistan í dag. Árásirnar hafa meðal annars beinst að skrifstofum héraðsstjórans, leyniþjónustu Afganistans og lögreglustöðinni. Alls hafa 23 særst í árásunum, þar á meðal þrír lögreglumenn. Einungis fáeinir klukkutímar eru síðan að Talibanar hétu því að falli Osama Bin Ladens yrði hefnt.

Katrín keypti í matinn fyrir prinsinn

Þótt Katrín Middleton sé nú orðin hluti af bresku konungsfjölskyldunni er hún síður en svo hætt að lifa lífi almúgamanneskjunnar. Daily Mail birti í dag myndir af Katrínu þar sem hún mætti hversdagslega klædd til að kaupa í matinn fyrir sig og bónda sinn í versluninni Waitrose skammt frá búgarðinum þar sem þau hjónin dvelja um þessar mundir. Daily Mail segir að Katrín hafi þó skorið sig úr mannfjöldanum að því leyti að þrír lífverðir fylgdu henni um hvert fótmál.

Sjá næstu 50 fréttir