Fleiri fréttir

Cameron beitir sér í máli Madeleine

Lundúnalögreglan ætlar nú að beita sérþekkingu sinni við að rannsaka hvarfið á Madeleine McCann. Á dögunum voru átta ár liðin frá fæðingu stúlkunnar en hún hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007 þá þriggja ára gömul.

Skemmtanastjóri á eigin heimili - stofnaði viðburðavef

"Það má segja að ég hafi verið skemmtanastjóri á eigin heimili. Við hjónin höfum samtals haft sex börn með lögheimili hjá okkur í gegn um árin," Sif Sigfúsdóttir sem heldur úti síðunni Gerumeitthvad.is, viðburðavef fyrir alla fjölskylduna, sem hún opnaði í lok mars. "Mér fannst sárvanta síðu sem ég gat opnað á laugardagsmorgni og fundið út allt það helsta sem væri að gerast þann daginn. Í stað þess að opna margar netsíður fyrirtækja og stofnana er hægt að finna þetta allt á einum stað," segir Sif hefur gengið með hugmyndina að síðunni í maganum í tvö ár. Meðal þess sem nú ber hæst á viðburðavefnum Gerumeitthvad.is er Barnavagnavika Ferðafélags Íslands, útskriftartónleikar úr Listaháskóla íslands, fjöruganga við Bessastaðakirkju og nytjamarkaður í Súðavogi í Reykjavík þar sem allur ágóðinn rennur til ABC barnahjálpar. Vefsíðan er nýsköpunarverkefni Sifjar á námskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,Brautargengi, sem er sérsniðið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd. Hún hafði gengið með hugmyndina í maganum í tvö ár þegar hún loksins varð að veruleika. Sif sér alfarið sjálf um síðuna, og notar til þess lausan tíma á kvöldin og um helgar. Þá vinnur hún aðsendar myndir af á þarf að halda og skrifar texta. "Ég sé um að setja inn auglýsingar og er með góða aðila af öllu landinu sem hafa sýnt síðunni áhuga og senda á mig viðburði. Þetta er auðvitað vinna en á móti kemur að þetta er mín ástríða og mér finnst þetta gaman," segir Sif. Hún hefur alltaf verið virki í öllu félagsstarfi og hefur margvíslega reynslu að baki. Hún sat í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur árin 2008 til 2010, er með meistaragráðu úr viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og með kennsluréttindi fyrir grunn- og menntaskóla. "Ég ákvað að vinna síðuna út frá fræðum markaðsfræðingsins og frumkvöðulsins Guy Kawasaki en hans mottó er meðal annars viðskiptahugmyndin eigi að auka lífsgæði fólks, hún eigi að uppfylla þörf og ennfremur að þörfin fyrir að koma skilaboðunum áleiðis til fólksins sé sterkari en skammtíma gróðasjónarmið. Þessu vinn ég eftir," segir Sif. Öllum er frjálst að senda inn upplýsingar um viðburði og myndir. Sif segir að henni finnist sérstaklega gaman að geta komið á framfæri grasrótarviðburðum sem höfða til allra, og eru án aðgangseyris.

Hefnt fyrir dauða Bin Ladens

Sjötíu og þrír létust þegar tvær sprengjur sprungu í herskóla í Norðvestur Pakistan í gærkvöldi. Tugir slösuðust að auki í sprengingunum en talíbanar hafa lýst ábyrgð ódæðisins á hendur sér. Þeir segjast hafa verið að hefna fyrir drápið á Osama bin Laden í byrjun mánaðarins. Sprengjurnar sprungu þegar hópur nýliða var að stíga upp í rútur á leið í frí eftir að hafa lokið fyrstu önn við skólann.

Keflavíkurflugvelli lokað í kvöld og fram á morgun

Keflavíkurflugvelli verður lokað klukkan átta í kvöld til klukkan sjö í fyrramálið vegna manneklu við flugumferðarstjórn. Veikindi hafa verið boðuð og þar sem yfirvinnubann er í gildi á flugumferðarstjórum er ekki hægt að kalla út mannskap í staðinn. Einhver röskun getur orðið á flugi Icelandair vegna þessa, en lokun vallarins hefur ekki áhrif á flug Iceland Express.

Brotist inn á þremur stöðum

Tilkynnt var um þrjú innbrot á höfuðborgarsvæðinu undir morgun. Brotist var inn í skóla í Breiðholti og í Hafnarfirði, en ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið þar. Svo var brotist inn í verslun í vestuborginni og þaðan stolið tóbaki og ef til vill einhverju fleiru. Þjófarnir komust undan í öllum tilvikum og er þeira nú leitað.

Kjötframleiðsla gæti aukist um fimmtung

"Bændur segjast á næstu fimm árum treysta sér til að auka framleiðsluna um tíu til tuttugu prósent," segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Vegna horfa á auknum útflutningi segir hann möguleika til aukinnar framleiðslu hafa verið til umræðu á fundum með bændum.

Leif Magnús flytur til Íslands í sumar

"Þetta eru mjög góð tíðindi. Það er þungu fargi af okkur öllum létt,“ segir Óskar P. Friðriksson, afi hins átta ára gamla Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland. Norskur dómstóll hefur samþykkt að veita Grétari, föður Leifs, fullt forræði yfir honum og er von á Leif til Íslands í byrjun júní þegar skólahaldi lýkur í bænum Mandal í Noregi.

Fólkið er ekki talið í lífshættu

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann og konu á bráðamóttöku Landspítalans eftir harðan árekstur á þjóðveginum við Skriðuland, nærri Búðardal, á fimmta tímanum í gær.

Gæti bætt lánshæfismatið

"Það er fylgni á milli þess þegar Seðlabankinn kaupir aftur erlend skuldabréf ríkissjóðs og þess að álagið lækkar,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur á greiningardeild Íslandsbanka.

Rannsaka vinnubrögð siðanefndar HÍ í máli Vantrúar

Háskólaráð Íslands hefur skipað þriggja manna sérfræðinganefnd til að rannsaka vinnubrögð siðanefndar skólans þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann. Formaður nefndarinnar er meðal annars sakaður um að leka trúnaðarupplýsingum um málið til formanns Vantrúar og eiga við hann náin samskipti.

Handriðin í Hörpu slysagildra

Handriðin á svölunum í Eldborgarsal Hörpunnar eru slysagildra og hafa tónleikagestir kvartað til tryggingafélaga. Tónlistarstjóri hússins ráðleggur lofthræddu fólki að kaupa sér ekki miða á svölunum.

Formaður Lögmannafélagsins segir ákæru óskýra

Formaður Lögmannafélagsins telur miklar líkur á að ákærunni gegn Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði vísað frá Landsdómi. Hún uppfylli ekki nútímakröfur um skýrleika í ákæruskjölum. Hann segir pólitískt uppgjör ekki eiga heima í réttarsölum.

Gasleki í Hörpunni - húsið rýmt

Gasleki varð í veitingastaðnum Munnhörpunni tónlistarhúsinu Hörpunni. Að minnsta kosti tveir hafa fundið til óþæginda vegna lekans en lögregla og slökkvilið eru að rýma húsið.

Tveggja ára dómur fyrir brot gegn ölvaðri stúlku

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóm Vesturlands yfir manni sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var sakfelldur að hafa haft samræði við 17 ára stúlku gegn vilja hennar. Karlmaðurinn notfærði sér ástand stúlkunnar sem gat ekki spornað við samræðinu sökum ölvunar og svefndrunga. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands kom fram að brotið hafi verið til þess fallið að valda henni sálrænum erfiðleikum til lengri tíma. Manninum var jafnframt gert að greiða konunni 800 þúsund krónur í bætur.

Egill og Gerplustúlkurnar árita Símaskrána

Egill Einarsson og Gerplustúlkurnar munu árita Símaskrána þegar hún kemur út á laugardaginn. Sérstök útgáfuhátíð verður haldin fyrir framan Hagkaup í Smáralind þegar símaskráin kemur út.

Var endurlífgaður á slysstað

Maðurinn sem ók bílnum sem valt á hliðina á Sæbraut í dag var í hjartastoppi þegar sjúkraflutningamenn komu að honum. Hann var endurlífgaður af sjúkraflutningamönnum á vettvangi og er í aðgæslu á Landspítalanum vegna þess, segir læknir á slysadeild Landspítalans. Maðurinn er ekki með alvarlega áverka af völdum bílveltunnar.

Börnin fengu sippubönd og sundkort frá ÍBR

Af gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur sumarkomunni og gefur börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir. Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 þegar nemendur í 2.bekk fengu sippuband. Það hefur síðan verið endurtekið ár hvert og hafa þrír árgangar bæst við í hóp þeirra sem fá gjafir frá Íþróttabandalaginu. Börn í öðrum bekk fengu sippuband ásamt litlum bæklingi með hugmyndum af leikjum og æfingum. Allir þriðju bekkir fengu þrjá bolta til að nota í frímínútum. Þá fengu fimmtu bekkingar sundkort sem gildir í þrjú skipti í sundlaugar Reykjavíkur ásamt bækling með hugmyndum að sundleikjum og upplýsingum um opnunartíma sundlauganna í Reykjavík. Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt. Starfsmenn og nemendur skólanna taka ávalt vel á móti gjöfunum og eru þakklát fyrir framtakið eins og sjá má í pósti frá einum skólastjóranum: „Kærar þakkir frá okkur. Gjafirnar eru vorboðar eins og lóan." Alls fengu 1350 börn sippubönd, 1438 börn sundkort og 74 bekkjadeildir (1343 nemendur) bolta frá ÍBR þetta árið. Sumargjöfunum var dreift til skólanna í byrjun maí. 4.bekkingar fengu líka gjöf á þessu skólaári því í tengslum við fyrsta vetrardag í október síðastliðnum voru þeim afhendir boðsmiðar á skauta, samtals 1.365 nemendur.

Undirrita alþjóðasamning gegn heimilisofbeldi

Ísland var í gær á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að samningurinn er fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur heildstætt á baráttunni gegn ofbeldi gegn konum. Samningurinn er lagarammi um vernd kvenna gegn ofbeldi, forvarnarstarf, saksókn á hendur gerendum og útrýmingu ofbeldis gegn konum og heimilisofbeldis. Eftirfylgni með innleiðingu samningsins í hverju landi fyrir sig er einnig hluti hans. Fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu, Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd á ráðherrafundi Evrópuráðsins, sem nú stendur yfir í Istanbúl í Tyrklandi. Auk Íslands undirrituðu Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svartfjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland samninginn.

Óttast að hér sé "hestaripper" á ferð

Hestamaðurinn sem uppgötvaði skurði á kynfærum hryssu um helgina hefur ritað greinargerð um fyrirbærið "hestaripper“ sem hann ætlar að koma til lögreglunnar á Egilsstöðum, lögreglumönnum til upplýsingar. Þá hefur hann einnig mælst til þess að greinargerðin verði hengd upp í hesthúsum þannig að hestaeigendur séu meðvitaðir um hættuna. Höfundur greinargerðarinnar heitir Ólafur Guðgeirsson og er heila- og taugaskurðlæknir. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. Eftir að Ólafur komst fann skurðina á hryssunni sökkti hann sér í þýskar fræðibækur, en sjálfur var hann við nám í Þýskalandi. Þar í landi gengu menn sem misþyrmdu hrossum á þennan hátt undir heitinu "pferderipper.“ "Þetta glæpsamlega tortímingaræði flokkast undir (zoosadisma) dýraníðingsskap. Í hópnum eru kvennaraðmorðingjar, en við yfirheyrslur margra þeirra í Þýskalandi er oft fyrri saga um dýraníðingsskap, raðáverka eða raðmorð. Einnig játuðu flestir að vera kvennahatarar,“ segir í greinrgerð Ólafs, en þar kemur fram að hann sækir fróðleik sinn til þýskra sérfræðinga. Ólafur segir að þegar í ljós kom að um áverka af mannavöldum var að ræða á hryssunni, eftir því sem komist er næst, hafi hann munað eftir fjölmiðlaumfjöllun um hestarippera frá námsárunum í Þýskalandi. "Þá var ákveðið að í stað þess að hlífa almenningi við þessum staðreyndum þá var fjallað um þetta opinskátt. Þannig væru meiri líkur á að níðingarnir kæmust í viðeigandi meðferð eða á bak við lás og slá,“ segir hann. Ólafur segir það ekki hafa verið tekið út með sældinni að lesa sér til um jafn viðurstyggilega hluti og dýraníð. "Það var hörmulegt að þurfa að vinna þetta. Ég gerði það með miklum stunum. Mér leið mjög illa meðan ég var að vinna úr þessu,“ segir hann.

Sæbrautin lokuð vegna umferðarslyss

Sæbrautin er lokuð milli Kleppsmýrarvegs og Súðarvogs í suðurátt vegna umferðaróhapps. Eftir því sem Vísir kemst næst var bíl ekið á steinvegg og valt síðan eftir það. Einn var í bílnum og hefur sá verið fluttur á slysadeild.

Refsing fyrir mansal verði 12 ár

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi þess efnis að refsing fyrir mansal á Íslandi verði allt að 12 ára fangelsi í stað átta ára.

Lögreglan leitar vitna að umferðarslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík laust fyrir klukkan sjö á fimmtudagskvöld fyrir viku. Þar rákust saman svartur Volkswagen Polo og ljósbrún Toyota RAV4 en ökumönnum þeirra ber ekki saman um stöðu umferðaljósa.

Stjórnlagaráð: Ráðherrar víki af þingi og Alþingi styrkt

B-nefnd Stjórnlagaráðs leggur til að ráðherrar víki af þingi, vægi þingforseta verði aukið og að Alþingi verði styrkt sem löggjafi og eftirlitsaðili gagnvart framkvæmdarvaldinu. Þetta eru meðal annars fyrstu tilögur B- nefndarinnar, sem verða kynntar á stjórnlagaráðsfundi klukkan eitt í dag. Þá mun A-nefnd Stjórnlagaráðs leggja fram fyrstu tillögur í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar fram til afgreiðslu inn í áfangaskjal ráðsins.

Annarr fær grænt ljós hjá Mannanafnanefnd

Mannanafnanefnd hefur samþykkt karlmannsnafnið Annarr og hefur nafnið fært á mannanafnaskrá. Þetta kemur fram í úrskurði mannanafnanefndar frá 27. apríl sem birtur var í dag. Þá samþykkti mannanafnanefnd einnig nöfnin Jane og Denis.

Skjálftinn á Spáni fjarri íslendingabyggð

Átta manns létu lífið og um 15 þúsund misstu heimili sín í bænum Lorca á suðaustur Spáni þegar jarðskjálfti að styrkleika 5,2 á Richterskala reið þar yfir í gær. Um 86 þúsund íbúar eru í bænum.

Verndar- og nýtingaráætlun samþykkt á Alþingi

Alþingi hefur samþykkt lög sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra lagði fram um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að lögin skapi nauðsynlegan ramma um lagalegan sess rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða.

Vormarkaður við Elliðavatn

Skógræktarfélagið heldur Vormarkað á Elliðavatni í annað sinn dagana 13.-15. maí næstkomandi. Föstudaginn 13. maí verður opið klukkan 15-18, en klukkan 10-18 á laugardag og sunnudag. Félag trérennismiða verður með stóra sölusýningu í Gamla salnum og rekur auk þess kaffistofu á staðnum. Þá verða þeir með sýnikennslu á Hlaðinu eins og í fyrra. Á laugardag verður hestaleiga fyrirtækisins Íslenski hesturinn, þar sem teymt er undir börnum í gerði við bæinn klukkan 11-13. Þá verður kynning á stafgöngu á vegum ÍSÍ eftir hádegi og síðdegis verður síðan Vorblót að Vatni á vegum Ásatrúarmanna, sem bjóða öllum að fagna gróandanum með sér. Fuglavernd og Ferðafélag Íslands verða með kynningu á starfseminni og bjóða fólki í fræðslugöngur á meðan á Vormarkaðnum stendur. Á föstudag verður kennsla í fluguhnýtingum. Á laugardag býðst fólki að kasta flugu með leiðsögn og á sunnudeginum verður síðan kastkeppni á túninu neðan við bæinn. Gámaþjónustan býður öllum upp á ókeypis moltu í garðinn -og ekki má gleyma Skógræktarfélaginu sem hefur til sölu eldivið, bolvið og kurl og einnig munu skógarmenn sýna nýjustu vélarnar að störfum á laugardeginum.

Tæpur helmingur yfir hámarkshraða í Furugrund

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, við Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46. Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 38-67% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 41-45 km/klst.

Þrettán brotlegir á Hjarðarhaga

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, við Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50. Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 42-46% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 43-45 km/klst.

Myndirnar af bin Laden eru skelfilegar

Sérvaldir bandarískir stjórnmálamenn hafa fengið að skoða myndirnar af Osama bin Laden eftir að hann var skotinn til bana í Pakistan á dögunum. Um er að ræða tólf myndir. Níu eru teknar í felustað bin Ladens í Pakistan og þrjár á flugmóðurskipinu Vinson þegar honum var sökkt í sæ.

Bannað að geraða í Flórída

Ráðamönnum í Flórída virðist hafa orðið á í messunni þegar þeir settu lög sem banna kynlíf með dýrum. Lykilorðið er dýr. Lögfróðir menn vestra segja að þótt talsverður munur sé á dýrinu homo sapiens og öðrum dýrum þá sé homo sapiens engu að síður dýr. Lögin feli því í sér að kynlíf sé með öllu bannað í sólskinsríkinu.

Vonast til að geta búið til bóluefni gegn HIV

Nýtt bóluefni verndar apa fyrir SIV veirusmiti og gæti leitt til þess að hægt verði að búa til bóluefni gegn HIV veirunni sem gagnast mönnum. SIV veiran í öpum er lík HIV veirunni sem herjar á menn.

Foreldrar Madeleine biðla til forsætisráðherra Breta

Foreldrar Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007 og hefur verið leitað síðan, hafa biðlað til Dave Cameron forsætisráðherra Breta að hann fyrirskipi óháða rannsókn á hvarfi hennar. Þá krefjast þau þess að öll gögn í málinu verði gerð opinber.

Sorpbrennsla: Sofandaháttur einkennir málið

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á fjölmörg atriði þar sem heilbrigðisyfirvöld brugðust í framkvæmd reglna um sorpbrennslustöðvar. Bæði umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa ráðist í að stórbæta verklag sitt að undanförnu.

Kanadamenn gættu Íslendinga

Kanadamenn hafa lokið loftrýmiseftirliti hér við land. Þeir voru með fimm CF-18 Hornet vélar hér, sem komu í byrjun apríl og fóru í lok mánaðarins.

Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru vegna dagssekta

Vestmannaeyjabær íhugar stjórnsýslukæru á hendur Umhverfisstofnun vegna vinnubragða stofnunarinnar við mat á mengun frá sorpbrennslustöð bæjarfélagsins og ákvörðunar um að beita Vestmannaeyjabæ dagsektum. Ákvörðun Umhverfisstofnunar byggir á því að mengun frá sorpbrennslustöðinni mældist yfir mörkum, og því að bæjarfélagið hafi ekki gert nauðsynlegar úrbætur á hreinsibúnaði stöðvarinnar. Umhverfisstofnun kunngerði ákvörðun sína um dagsektir í gær. Vestmannaeyjabær gagnrýnir að í tilkynningu frá Umhverfisstofnun hafi láðst að geta þess að bæjarfélagið hafi gripið til margvíslegra úrræða til að draga úr mengun. Í tilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, segir að bæjarfélagið hafi óskað eftir nýrri mælingu á menguninni þar eð mengunarvarnarbúnaður hafi verið að hluta óvirkur þegar fyrri mæling Umhverfisstofnunar var gerð. Einnig fór bæjarfélagið formlega fram á að beðið yrði með íþyngjandi ákvæði, þar með taldar dagsektir, þar til ný mæling lægi fyrir. "Í stað þess að fresta úrskurði meðan beðið væri eftir niðurstöðu mælinga valdi Umhverfisstofnun að senda frá sér fréttatilkynningu þar sem boðaðar voru dagsektir á Vestmannaeyjabæ sem og önnur íþyngjandi ákvæði – allt byggt á mælingu sem Vestmannaeyjabær dró í efa,“ segir í tilkynningunni. Þá er bent á að nýjar mælingar hafi sýnt að mengun var ekki jafn mikil og í fyrri mælingu, og því forsendur ákvörðunar Umhverfisstofnunar rangar. " Í ljósi nýrra mælinga sem sýna að ekki einungis hefur Umhverfisstofnun sniðgengið þessar athugasemdir heldur beitt verulega íþyngjandi úrræðum á grunni mælinga sem nú ekki gefa rétta mynd af ástandi mála - eins og bent hafði verið á - íhugar Vestmannaeyjabær nú að fela lögfræðingi sveitarfélagsins að leita réttar þess á grundvelli m.a. rannsóknarreglu stjórnsýslulaga (þar sem kveðið er á um að mál séu nægjanlega upplýst áður en tekin er ákvörðun í þeim) og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga (þar sem m.a. er kveðið á um að stjórnvald skuli gæta þess að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til),“ segir í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar.

Fréttaskýring: Deila um Schengen

Innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hittast í dag til að ræða tillögu framkvæmdastjórnar sambandsins um breytingar á Schengen-samkomulaginu. Þær verða svo afgreiddar á fundi leiðtogaráðs sambandsins í júlí.

Íslendingar á faraldsfæti - mikil aukning frá því í fyrra

Íslendingar hafa farið mun meira til útlanda það sem af er árinu samanborið við sama tímabil í fyrra. Frá áramótum til aprílloka nemur fjölgunin um 20 prósentum en í síðasta mánuði fóru 50 prósent fleiri Íslendingar til útlanda en í apríl í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálaskrifstofu.

Kýrin Lýsa áfram á toppnum

Afurðahæsta kýr landsins í aprílmánuði, reiknað út frámjólkurlítrum, er Lýsa frá Stakkhamri 2. Hún heldur fyrsta sætinu frá því í mars. Meðalafurðir Lýsu voru tæplega 12 tonn í apríl en ríflega 12 tonn í mars. Þetta kemur fram á vef Landssambands kúabænda. Þar segir að af 10 afurðahæstu kúm landsins eru fimm frá sama búinu, Gunnbjarnarholti.

Sjá næstu 50 fréttir