Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Félag Landsbankans fer fram á lögbann á trúnaðargögn DV Framkvæmdastjóri Horns fjárfestingafélags, Hermann M. Þórisson, hefur farið fram á lögbann á umfjöllun DV um trúnaðarupplýsingar félagsins sem blaðið hefur undir höndum. 22.3.2011 15:19
Ástæðulaust að óttast geislavirkni á Íslandi Ekki er ástæða til þess að óttast geislavirkni á Íslandi né í Evrópu vegna kjarnorkuslyssins í Japan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geislavörnum ríkisins. 22.3.2011 15:02
Litlir krakkar eiga ekki að þurfa að þvælast milli hverfa „Það er ekki í samræmi við þarfir lítilla krakka að þurfa að þvælast á milli hverfa til að komast í skólann," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er afar ósáttur við sameiningartillögur leik- og grunnskóla, og frístundaheimila í Reykjavík. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag óskaði hann eftir skoðun Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, á þeim tillögum sem fyrir liggja. Katrín sagði tillögurnar hafa verið sendar ráðuneytinu til umsagnar og býst hún við að umsögn verði skilað í lok vikunnar. Hún sagðist almennt telja æskilegt að skera sem minnst niður í menntakerfinu, og að í niðurskurði eigi að hlífa börnum og ungmennum. Í þessu sambandi þyrfti hins vegar að taka mið af því að Reykjavíkurborg býr við þröngan fjárhagslegan stakk. Katrín benti á að sveitarfélög hafi rúmar heimildir, lögum samkvæmt, til að sameina rekstur grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila. Meðal þess sem ráðuneytið hefur nú til skoðunar vegna þeirra hugmynda sem fram hafa komið eru ferðir skólabarna milli hverfa, ólíkar stefnur í leikskólum sem rætt er um að sameina, og samþætting sjónarmiða hjá ólíkum skólastigum. 22.3.2011 14:28
Lögðu hald á 140 kannabisplöntur og tuttugu betur Lögreglan lagði hald á 140 kannabisplöntur auk neysluskammta af hassi og kannabisefnum í íbúð í fjölbýlishúsi í Hlíðunum í gærkvöldi. Þá handtók lögreglan þrjár karlmenn á þrítugsaldri. 22.3.2011 14:27
Hátt í tólf tonnum af röntgenfilmum eytt í Guam Landspítalinn hyggst eyða tíu til tólf tonnum af röntgenfilmum. Spítalinn óskaði eftir umsögn Persónuverndar vegna málsins. Fyrirhugað er að senda filmurnar til fyrirtækisins Film Tech Corporation í Tamuning, sem er landsvæði Bandaríkjanna í Guam. 22.3.2011 13:53
Viðburðastýrð umferðarljós við Hörpuna Vinna við að koma upp nýjum stýribúnaði umferðarljósa við Hörpuna hefst á morgun. Umferðarljósin verða búin skynjurum sem mæla umferðarþunga frá húsinu inn á gatnamót Sæbrautar, Kalkofnsvegar og Faxagötu, og lengja þau tímann sem græna ljósið logar þegar umferðin þyngist. Það má því segja að hér séu fyrstu viðburðastýrðu umferðarljósin í Reykjavík, en búist er við miklum sveiflum í umferðarþunga við Hörpuna sem opnar í maí. Framkvæmdir hefjast eftir að þungi morgunumferðar er hjá miðvikudaginn 23. mars og er gert ráð fyrir að verkið taki um 2 daga. Ljósin verða óvirk meðan unnið er við tengingar og til að gæta umferðaröryggis á gatnamótunum verða vinstri beygjur bannaðar tímabundið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát meðan á framkvæmdum stendur og virða hraðatakmarkanir. Undirbúningur að breytingu umferðarljósanna hefur staðið yfir síðustu vikur og hafa gatnamótin verið endurgerð, bæði með tilliti til bílaumferðar, en einnig hefur sérstaklega verið hugað að öryggi gangandi vegfarenda. 22.3.2011 13:46
Svona sækirðu um frest til að skila skattframtalinu Almennur frestur til að skila skattframtali einstaklings 2011 rennur út á morgun, 23. mars. Hér er hægt að sækja um framlengdan frest á vef Ríkisskattstjóra 22.3.2011 13:08
Varaþingmaður Atla tilbúin að taka sæti - krafist afsagnar Atla Arndís Soffía Sigurðardóttur, varaþingmaður Atla Gíslasonar, sagði í viðtali við fréttastofuna í morgun að hún vildi að svo stöddu ekki taka afstöðu til máls Atla, þar sem ekki yrði fjallað um það í sínu svæðisfélagi fyrr en síðar í dag, en hún væri vissulega tilbúin til að taka þingsæti Atla og vinna að stefnu Vinstri grænna í kjördæminu. 22.3.2011 12:15
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir snýr aftur á þing Guðfríður Lilja Grétarsdóttir formaður þingflokkks Vinstri grænna snýr aftur á þing í byrjun apríl. Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafa látið af öllum trúnaðarstörfum fyrir þingflokk Vinstri grænna og sitja ekki lengur í nefndum í umboði flokksins. 22.3.2011 11:57
Ísland fyrsta Evrópuríkið sem fær geislamengun frá Fukushima Örsmáar agnir af geislavirkni úr kjarnorkuverinu í Fukushima, hafa mælst í andrúmsloftinu á Íslandi. Agnirnar eru örsmáar og ekki skaðlegar heilsu manna samkvæmt fréttastofu Reuters sem greinir frá málinu. 22.3.2011 11:50
Forseti Jemens samþykkir að stíga til hliðar fyrir áramót Forseti Jemens, Ali Abdullah Saleh, hefur samþykkt tillögu andstæðinga sinna þess efnis að hann muni hverfa úr embætti fyrir árslok. Þetta staðhæfir hátt settur maður innan ríkisstjórnarinnar. Áður hafði hann aðeins lofað því að hætta fyrir árið 2013 en áköf mótmæli hafa verið í landinu síðustu vikur og hafa tugir eða hundruðir látist í átökunum. 22.3.2011 11:39
Braust inn í blómabúð í Vestmannaeyjum - óskað eftir vitnum Brotist var inn í Blómaskerið við Bárustíg í Vestmannaeyjum þann 16. mars síðastliðinn. Innbrotsþjófurinn braut rúðu í útidyrahurð verslunarinnar og stal um sex þúsund krónum. Lögreglan veit ekki hver var að verki en biður þá, sem gætu hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir, að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum. 22.3.2011 11:29
Bitin af Rottweiler: Ég vil að tíkin fái að lifa! Konan sem var bitin af Rottweiler tík í Hveragerði fyrr í þessum mánuði vill alls ekki að tíkinni verði lógað. "Ég vil að tíkin fái að lifa," segir hún. Fram hefur komið að héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis vill að tíkinni verði lógað og er það almennt mat hans að hunda sem bíta fólk eigi að aflífa. 22.3.2011 11:19
Reykti sígarettu á Volcano og skallaði dyravörð Karlmaður var kærður fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum um helgina eftir að viðkomandi skallaði dyravörð í höfuðið. Ástæðan fyrir árásinni var sú að maðurinn var að reykja inni á skemmtistaðnum Volcano. 22.3.2011 11:19
Bandarísk herþota hrapaði í Líbíu Bandaríski herinn hefur staðfest að herþota af gerðinni F-15 Eagle hafi farist í Líbíu. Ekkert er sagt benda til þess að vélin hafi verið skotin niður heldur hafi hún einfaldlega hrapað til jarðar. Tveir menn voru um borð og náðu þeir að skjóta sér út. Annar þeirra er fundinn en hinns er enn leitað, að því er fram kemur á fréttavef BBC. 22.3.2011 11:01
Pálmi Haraldsson: Dómurinn veldur vonbrigðum Pálmi Haraldsson ætlar að áfrýja sýknudómi, sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, þar sem fréttamaðurinn Svavar Halldórsson var sýknaður af fréttaflutningi sínum í mars á síðasta ári. 22.3.2011 10:49
Fékk grætt á sig nýtt andlit 25 ára gamall Bandaríkjamaður fékk í gær grætt á sig nýtt andlit. Maðurinn afmyndaðist í andliti þegar hann snerti háspennulínu hann og tók það 30 lækna rúma fimmtán klukkutíma að græða nýja andlitið á hann. Aðgerðin var framkvæmd nákvæmlega ári eftir að fyrsta aðgerðin af þessu tagi var framkvæmd á Spáni. 22.3.2011 10:47
Brúðurin eyddi brúðkaupsnóttinni í fangelsi Lögregla var kölluð til í borginni Phoenix í Arizona í gær þegar til átaka kom í brúðkaupsveislu. Þegar lögreglan mætti á svæðið voru fjöldaslagsmál í gangi í veislunni. 22.3.2011 10:40
Hljóp uppi símaþjóf í Barcelona Kraftakarlinn Arnar Grant var rændur þegar hann var í Barcelona við tökur á sjónvarpsþáttunum „Arnar og Ívar á ferð og flugi“ sem hefjast á Stöð 2 á fimmtudaginn. 22.3.2011 10:00
Svavar, María og Páll sýknuð - fréttin ekki sett fram í vondri trú Fréttamaðurinn Svavar Halldórsson var sýknaður af meiðyrðakröfu Pálma Haraldssonar í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þá var María Sigrún Hilmarsdóttir og Páll Magnússon, einnig sýknuð. María Sigrún las inngang fréttarinnar en Páli var stefnt sem ábyrgðarmanni fréttastofunnar. 22.3.2011 09:49
Mottumars: 1,6 milljónum safnað í nafni Magnúsar Enn streyma inn áheitin í Mottumars á Magnús Guðmundsson sem lést úr krabbameini þann 15. mars. Magnús setti sér það háleita markmið að safna yfir milljón króna í fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins. Sú uppæð sem nú hefur safnast í hans nafni er ríflega 1,6 milljón króna. Unnusta Magnúsar sagði í viðtali eftir andlát hans hversu glaður hann varð eftir að hann hafði náð að safna 300 þúsund krónum. Magnús skráði sig til keppni 2. mars. Þann sama dag veiktist hann illa og var lagður inn. Degi síða var hann kominn í öndunarvél á gjörgæslu. Á áheitasíðuna skrifaði Magnús: "Það vex nánast ekkert skegg á mér þar sem að ég er með Krabbamein og er í meðferð, en það litla sem vex kemur allavega á efri vörina. vonum að þetta verði sjáanlegt í lok mánaðarinns. annars er það bara hugurinn sem gildir ekki satt.“ 22.3.2011 09:40
Aftur byrjað að kæla kjarnaofnana í Fukushima Vinna er á ný hafin við að kæla kjarnaofnana í Fukushima kjarnorkuverinu. 22.3.2011 09:20
Hjóna saknað eftir snjóflóð í Noregi Hjóna er saknað í Noregi eftir að snjóflóð féll á hús þeirra nálægt Balestrand í Sogni í gærkvöldi. Flóðið tók tvö hús á svæðinu og standa aðeins grunnarnir eftir. Tíu manns voru fluttir á brott í gærkvöldi vegna snjóflóða og snjóflóðahættu og leit að hjónunum sem saknað er hefur tafist vegna hættunnar. Skip frá norsku strandgæslunni er á leið inn í fjörðinn þar sem flóðin féllu til leitar en ekki þykir öruggt að fara landleiðina. 22.3.2011 09:09
Skriðdrekar brenna eftir árásir bandamanna við Benghasí í Líbíu Ónýtir skriðdrekar og brynvarðir bílar sáust víða á vegum í nágrenni borgarinnar Benghasí í gær. Borgin er höfuðvígi uppreisnarmanna gegn stjórn Moammars Gaddafí, einræðisherra Líbíu. Hart hefur verið barist í nágrenni borgarinnar undanfarið. 22.3.2011 09:00
Charlie Sheen að snúa aftur í Two and a Half Men? Nýjustu fregnir úr Hollywood herma að leikarinn Charlie Sheen verði mögulega endurráðinn í sjónvarpsþáttinn vinsæla Two and a Half Men. Gustað hefur um stjörnuna síðustu vikur eftir að hann hellti sér yfir framleiðendur þáttanna og hagaði sér almennt stórundarlega. Í kjölfarið var hann rekinn. Nú segja heimildir úr innsta hring leikarans að honum verði boðið hlutverkið að nýju. Sheen var áður en hann var rekinn hæst launaði leikarinn í Bandarísku sjónvarpi og fékk rúmar hundrað og þrjátíu milljónir fyrir hvern þátt. 22.3.2011 08:58
Sprengjuregn í Trípólí Loftárásir héldu áfram á höfuðborg Líbíu þriðju nóttina í röð. Háværar sprengingar heyrðust og loftvarnabyssur geltu í alla nótt í borgina en herþotur bandamanna reyna nú að útrýma loftvörnum einræðisherrans Gaddafís. Árásirnar hafa gert uppreisnarmönnum í landinu auðveldar fyrir að berjast við heri Gaddafís en hernaðarsérfræðingar óttast þó að þrátefli kunni að koma upp þar sem uppreisnarmennirnir séu ekki nægilega vel vopnum búnir til þess að láta kné fylgja kviði. 22.3.2011 08:09
Samfylkingarmenn fyrir norðan skora á ríkisstjórnina Aðalfundur Samfylkingarinnar á Akureyri skorar á ríkisstjórnina að beita sér til árangurs fyrir skarpari og réttlátari uppstokkun fjármálakerfisins. Jafnframt leggur fundurinn áherslu á að jafnaðarmenn komi á skilvirku eftirliti með fjármálamarkaði þannig að unnt verði að hemja áhættusækni og koma böndum á sjálftöku og græðgi. Samhliða því verði réttarstaða lántakenda gagnvart lánakjörum og skilmálum bætt. 22.3.2011 08:01
Ætla að kæra aðstoð verði hún veitt Höfðað verður mál á hendur Kópavogsbæ fari svo að bæjarstjórn staðfesti í dag samþykkt bæjarráðs Kópavogs frá því á fimmtudag um að greiða lögmannskostnað vegna meiðyrðamáls á hendur þremur bæjarfulltrúum. 22.3.2011 08:00
Siglufjarðarvegur enn lokaður vegna snjóflóðs Siglufjarðarvegur er enn lokaður eftr að snjóflóð féllu á veginn síðdegis í gær. Ákveðið var að ryðja ekki fyrr en í birtingu í dag, þegar betur verður hægt að kanna snjóalög og ganga úr skugga um að ekki sé lengur hætta á ferðum. Bærinn er ekki einangraður þrátt fyrir þetta því Héðinsfjarðargöngin eru komin til sögunnar. 22.3.2011 07:57
Björgunarsveitir aðstoðuðu fólk í Reykjavík Afleitt veður var á höfuðborgarsvæðinu um og upp úr miðnætti og kallaði lögreglan björgunarsveitir út til að aðstoða fólk, sem hafði lent í vandræðum í bílum sínum. Einna verst var ástandið á Hlíðarfæti við flugvöllinn. Þar voru tveir rútubílar yfirgefnir auk nokkurra einkabíla. Mjög blint og hvasst var í verstu hryðjunum og sumstaðar dró í skafla þannig að þæfingur myndaðist. Vetrarfæri er á öllu svæðinu, auk þess sem minni þróttur er í snjómokstri en undanfarin ár. 22.3.2011 07:48
Framhald samstarfsins rætt Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar að meta stöðu og styrk ríkisstjórnarinnar og möguleika hennar á að koma í gegn veigamiklum málum í kjölfar úrsagnar tveggja þingmanna úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. 22.3.2011 07:00
Er Vilhjálmur að biðja um þjóðnýtingu? Sú staðreynd að álver í Helguvík er ekki lengra á veg komið en raun ber vitni er mál Norðuráls og orkufyrirtækjanna, ekki ríkisstjórnarinnar. Þetta segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. 22.3.2011 07:00
Starfsmenn flýja reyk úr kjarnorkuveri Starfsmenn sem unnið hafa að viðgerðum á kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan flúðu í gær í ofboði eftir að hvítur reykur tók að stíga upp af kjarnaofnunum tveimur sem skemmdust í flóðbylgjunni fyrir ellefu dögum. 22.3.2011 07:00
Megum ekki endurtaka Íraks-mistök Mikilvægt er að utanríkismálanefnd Alþingis fjalli ítarlega um aðgerðir Vesturveldanna gegn Líbíu og að breið samstaða náist um stuðning við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta er mat Gunnars Braga Sveinssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins og varamanns flokksins í utanríkismálanefnd. 22.3.2011 06:45
Lilja í skammarkróknum vegna Icesave frá 2009 „Ég var sett í skammarkrókinn sumarið 2009 vegna andstöðu við Icesave og hef verið þar síðan,“ segir Lilja Mósesdóttir. Forysta VG hafi einangrað hana. Lilja er hagfræðingur og kveðst hafa vonast til að þekking hennar yrði að gagni í störfum VG. Hún hafi raunar farið í pólitík svo að þekking hennar mætti verða að gagni. „Það hefur lítið sem ekkert tillit verið tekið til minna sjónarmiða,“ segir hún. 22.3.2011 06:30
Ekkert heyrt frá ráðuneytinu Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur enn ekki svarað erindi Hermanns Daðasonar, útgerðarmanns frá Ólafsfirði, frá apríl 2009. Hermann telur að brotið hafi verið á útgerð hans við úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2006/2007. 22.3.2011 06:00
Lausnirnar leynast í skólunum sjálfum Á sjöunda þúsund íbúa Reykjavíkur hafa sett nafn sitt við áskorun á borgaryfirvöld um að falla frá fyrirhuguðum sameiningaráformum í grunn- og leikskólum borgarinnar. Foreldrafélög um alla borg hafa ályktað gegn þessum fyrirætlunum síðustu vikur, en hagsmunaaðilar munu skila umsögnum sínum á föstudag. 22.3.2011 06:00
Leyfum börnum að vera börn „Mikið af flóttafólki í Líbíu er frá Sómalíu og öðrum nágrannaríkjum. Þrjú hundruð þúsund flóttamenn eru nú komnir aftur á vergang, þar af er helmingur þeirra börn,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi. Óttast er að fjöldi flóttafólks í Líbíu eigi eftir að aukast mjög á næstu vikum. 22.3.2011 04:00
Bjargað eftir níu daga í húsarústum Sextán ára gamall piltur sem bjargað var úr húsarústum í norðurhluta Japans ásamt ömmu sinni eftir níu daga segir þau hafa nærst á vatni og flögum. Staðfest er að tala látinna sé nú nærri níu þúsund og um þrettán þúsund er enn saknað. 21.3.2011 20:22
Austin Mini-smábíllinn í útrýmingarhættu á Íslandi Austin Mini er eflaust einn sérkennilegasti smábíll sem framleiddur hefur verið. Hann naut talsverðra vinsælda á árum áður, en á nú undir högg að sækja og er smátt og smátt að hverfa af götum landsins. 21.3.2011 20:00
Vilja að Atli segi af sér þingmennsku Stjórn Vinstri grænna í Vestmannaeyjum skorar á Atla Gíslason að segja af sér þingmennsku svo að varamaður hans geti tekið sæti á Alþingi. 21.3.2011 19:50
Hreyfing: Pálmi baðst ekki afsökunar Séra Pálma Matthíassyni sóknarpresti var vikið úr líkamsræktarstöðinni Hreyfingu fyrir framkomu í garð konu sem var íþróttakennari hjá stöðinni. 21.3.2011 19:34
Mesta atvinnuleysið á Íslandi af öllum Norðurlöndunum Atvinnuleysi á Íslandi mælist nú það mesta á Norðurlöndunum. Ekki er vitað til þess að slíkt hafi áður gerst 21.3.2011 19:19
Þarf að sannfæra Jóhönnu um að Vinstri grænir séu enn stjórntækir Ákvörðun Lilju og Atla breytir litlu um þingmeirihluta ríkisstjórnarinnar að mati þingmanna Samfylkingarinnar sem segja að atburðarásin í dag hafi ekki komið á óvart. 21.3.2011 19:06
Jóhanna ætlar að funda með Steingrími á næstu dögum Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að ákvörðun Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur um að segja sig úr þingflokki Vinstri grænna hafi ekki skaðað ríkisstjórnarsamstarfið. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, útilokar ekki breytingar á ríkisstjórnarsamstarfinu en hún ætlar funda með Steingrími á næstu dögum. 21.3.2011 18:51