Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jón Bjarnason hitti færeyskan starfsbróður Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í morgun á móti Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja en ráðherrann er hér í þriggja daga heimsókn ásamt sendinefnd. Á fundi ráðherranna í dag 11.1.2011 09:58
Mál sjómanna gegn Arion tekið fyrir í dag Mál Sjómannafélags Íslands gegn Arion banka verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sjómannafélagið stefndi bankanum í júlí síðastliðnum vegna gengistryggðs fasteignaláns sem orlófssjóður félagsins tók í júlí 2007. Fyrir ári síðan hafði félagið greitt 37 milljónir fyrir 15 milljóna króna lán. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður félagsins, telur að lánið sé í íslenskum krónum, en ekki hefur áður reynt á lögmæti lána af þessu tagi. 11.1.2011 09:30
Íbúðarkaup Klovn kjaftæði „Kjaftæði,“ segir danski grínistinn Frank Hvam spurður um meint íbúðarkaup sín og félaga síns, Caspers Christensen, á Íslandi um helgina. Klovn-bræðurnir Frank og Casper komu til landsins á fimmtudaginn í tengslum við frumsýningu kvikmyndarinnar Klovn: The Movie. 11.1.2011 09:15
Heimilið líkist helst sjúkrahúsi - styrktartónleikar fyrir lítinn dreng Heimili hins þriggja ára gamla Ragnars Emils Hallgrímssonar líkist helst sjúkrahúsi. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer allra ferða í rafmagnshjólastól. Aðeins nokkurra mánaða greindist hann með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm, SMA1, og var talið að hann næði því ekki að verða tveggja ára. Hann er nú orðinn elstur þeirra sem greinst hafa með sjúkdóminn hér á landi. 11.1.2011 08:55
Þúsundir íbúa Brisbane flýja flóð Flóðin sem hrellt hafa íbúa Ástralíu síðustu daga virðast aðeins færast í aukana. Lögreglan í Brisbane í Queensland, þriðju stærstu borg Ástralíu, hvetur nú íbúa í úthverfum borgarinnar til þess að yfirgefa heimili sín þar sem flóðgarðar séu við það að rofna. 11.1.2011 08:18
ESB tilkynnir um makrílbann á Íslendinga á fimmtudag Yfirvöld í Brussel ætla að tilkynna Íslendingum það formlega á fimmtudaginn kemur að löndunarbann verði sett á íslenskan makríl innan sambandsins láti Íslendingar ekki af veiðunum. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmönnum í Brussel en á fimmtudag funda aðildarlönd evrópska efnahagssvæðisins. Sömu heimildir segja Reuters að Íslendingar séu ekki taldir líklegir til að gefa eftir, auk þess sem engin dagsetning verði sett fram um hvenær sambandið ætli sér að hefja aðgerðirnar. 11.1.2011 08:14
Braust inn í Árbæ Þjófur braut sér leið inn um glugga á íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi í gærkvöldi og stal þar meðal annars fartölvu og skartgripum. Hann forðaði sér svo út um aðaldyrnar og er ófundinn. Þrátt fyrir þetta virðist heldur hafa dregið úr innbrotahrinunni á höfuðborgarsvæðinu og velta lögreglumenn því fyrir sér hvort kuldinn kunni að hafa þar einhver áhrif. 11.1.2011 08:13
Allar Airbus vélar Qantas aftur í loftið Ástralska flugfélagið Qantas hefur ákveðið að hefja á fulla notkun á risaþotunni Airbus A380 en vélarnar voru kyrrsettar fyrir tveimur mánuðum þegar hreyfill einnar þeirrar sprakk í loft upp. Félagið hafði þegar hafið notkun á vélinni í styttri ferðum en ferðir yfir kyrrahafið hafa legið niðri. Það breytist á sunnudaginn kemur þegar fyrsta ferðin verður farin frá Melbourne til Los Angeles. Sprengingin í hreyflinum, sem er frá Rolls Royce hefur verið rakin til olíuleka sem nú hefur verið komið í veg fyrir. 11.1.2011 08:09
Aðstoðuðu bíla í Víkurskarði Lögreglan á Akureyri kallaði í gærkvöldi út björgunarsveit til að aðstoða fólk í föstum bílum í Víkurskarði, skammt frá Akureyri, en þar var orðið mjög þungfært óg hríð geysaði. Björgunarleiðangurinn gekk vel og lenti engin í hrakningum. 11.1.2011 08:06
Snjóflóð féll í Ljósavatnsskarði Snjóflóð hefur fallið á þjóðveginn um Ljósavatnsskarð á milli bæjanna Sigríðarstaða og Birkihlíðar, á leiðinni á milli Akureyrar og Húsavíkur. Lögreglan á Húsavík varaði vegfarendur í gærkvöldi við því að vera þar á ferð, og var engin þar þegar flóðið féll. Verið er að kanna það nánar. 11.1.2011 07:16
Enn hækkar eldsneytið Olíufélögin Skeljungur og N-1hafa hækkað bensínlítrann um þrjár krónur og 50 aura og kostar hann nú 213 krónur í sjálfsafgreiðslu. 11.1.2011 07:08
Blindur piltur kærir vegna ferðaþjónustu: Glatað dæmi „Félagsþjónustan í Kópavogi er glatað dæmi,“ segir Oddur Stefánsson, sautján ára blindur piltur í Kópavogi sem þarf aðstoð við að komast lengri vegalengdir milli staða og telur sig ekki njóta lögbundinnar ferðaþjónustu. Oddur býr í Laufbrekku í Kópavogi, starfar á Blindravinnustofunni í Hamrahlíð í Reykjavík og leggur stund á nám við Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Kópavogsbær neitar að niðurgreiða leigubíla fyrir Odd á sama hátt og flest önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gera fyrir þá sem eru blindir. 11.1.2011 06:00
Fólk fylgdist dolfallið með samförum steinbíta „Það er mjög spes að verða vitni að þessu,“ segir Margrét Lilja Magnúsdóttir, forstöðumaður Sæheima í Vestmannaeyjum, sem fylgdist í gær með samförum steinbítspars í búri á safninu. 11.1.2011 06:00
Þremenningar sagðir hressir „Þeir voru bara hressir," sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra aðspurð í gærkvöld um málefni VG-þingmannanna þriggja sem eru ósáttir við ríkistjórnina. Þingflokkur VG hélt í gær fundi með hléum frá hádegi til klukkan hálftíu í gærkvöld. 11.1.2011 06:00
Barði föðurinn fyrir framan börnin Fórnarlamb handrukkara, sem varð fyrir byssuárás ásamt fjölskyldu sinni í Bústaðahverfi á aðfangadag, kveðst hafa orðið fyrir síendurteknu ónæði af hendi rukkaranna. 11.1.2011 06:00
Í varðhald vegna nauðgunar á skemmistað Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag vegna gruns um að hann hefði nauðgað konu í Reykjavík um nýliðna helgi. Maðurinn kærði úrskurðinn til Hæstaréttar. 11.1.2011 05:45
Ákærum vegna efnahagsbrota snarfjölgar Ákærum hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur fjölgað verulega á milli ára, úr 21 ákæru á árinu 2007 í 62 ákærur á árinu 2010. Á árinu 2008 voru gefnar út 42 ákærur og 47 á árinu 2009. Á þessum fjórum árum eru útgefnar ákærur 172 talsins. 11.1.2011 05:45
Fjarnemum fækkar um 66% á milli ára Nemendum í grunnskóla sem sækja fjarnám í framhaldsskólum fækkaði úr 444 í 150 á milli áranna 2009 og 2010, eða um 66 prósent. Öllum nemendum í fjarnámi í framhaldsskólum hefur fækkað úr 3.755 í 2.462 á milli ára, sem er rúmlega þriðjungs fækkun. 11.1.2011 05:45
Háskólarnir ættu að tryggja hlutlægnina Þeir átta sem valdir hafa verið til áframhaldandi þátttöku í útboði Evrópusambandsins (ESB) um umsjón kynningarmála sambandsins á Íslandi vegna aðildarumsóknar landsins hafa frest til 7. febrúar til að skila inn lokagögnum. 11.1.2011 05:45
Loka lögreglustöðinni í Búðardal Lögregluumdæmi Borgarfjarðar og Dala þyrfti að fá tíu til tólf milljóna króna aukafjárveitingu ef halda ætti lögregluvarðstöðinni í Búðardal áfram opinni, að sögn Theodórs Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns í Borgarnesi. 11.1.2011 05:30
Lamandi hönd leggst yfir ræktunarstarfið „Það blasir við að stefnt er að því að setja innflutning á plöntum og útplöntun þeirra á Íslandi, svo og flutning á innlendum plöntum innan lands, undir eins konar lögreglueftirlit, leyfisskyldu og bannákvæði.“ Þetta segir Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður Garðyrkjufélags Íslands, um frumvarpsdrög til breytinga á lögum um náttúruvernd sem umhverfisráðherra hefur kynnt. 11.1.2011 05:30
Ólíklegt að erlendir aðilar bjóði í verkið Ríkiskaup, sem veita opinberum stofnunum þjónustu og ráðgjöf á sviði útboða, ráða hvort útboðsgögn sem gefin eru út innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eru á íslensku eða á öðrum tungumálum. Gögn fyrir framkvæmdir við fangelsið á Hólmsheiði verða birt á íslensku. 11.1.2011 05:30
Skeljungur byrjaði og N1 fylgdi Skeljungur hækkaði í gær verð á bensíni um 3,50 krónur og olíu um tvær krónur, þannig að bensínlítrinn kostaði eftir hækkun víða á stöðvum félagsins 213,60 og dísilolíulítrinn 213,40. 11.1.2011 05:30
Gaf falska fjarvistarsönnun Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir rangan framburð í skýrslugjöf hjá lögreglu. Maðurinn gaf skýrslu sem vitni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í febrúar á síðasta ári og síðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur síðar á árinu. Hann bar ranglega að hann hefði verið með öðrum manni á tilteknum stað á tilteknum tíma til þess að veita honum fjarvistarsönnun. Síðarnefndi maðurinn var þá til rannsóknar hjá lögreglu og síðar fyrir dómi fyrir stórfellda líkamsárás. Hann var í héraði dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi.- jss 11.1.2011 05:15
Vilja ekki missa lækni úr Hrísey Læknir frá Heilsugæslustöð Dalvíkur sem haft hefur viðveru í Hrísey einu sinni í viku í eina klukkustund í senn mun ekki heimsækja eyna frá og með næstu mánaðamótum vegna niðurskurðar. Bæði Hverfisráð Hríseyjar og bæjarráð Akureyrar hafa mótmælt þessari skerðingu. Taka á upp viðræður við heilbrigðisráðuneytið vegna málsins. 11.1.2011 05:00
Fengu rúm og skólavörur Nærri 600 börn á Haítí njóta góðs af tombólum álíkra margra íslenskra barna, sem höfðu safnað samtals rúmlega einni milljón króna til styrktar starfi Rauða kross Íslands á Haítí. 11.1.2011 05:00
Braut tennur með glerglasi Ríkissaksóknari hefur ákært konu á þrítugsaldri fyrir að kasta glasi í andlit annarrar konu með þeim afleiðingum að tennur brotnuðu í hinni síðarnefndu. Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum á Vegamótum í Reykjavík aðfaranótt sunnudags í febrúar í fyrra. 11.1.2011 05:00
Vopnahlésloforð nægir ekki Stjórnvöld á Spáni gefa lítið fyrir vopnahlésyfirlýsingu sem aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, sendu frá sér í gær. 11.1.2011 05:00
Átta létust í flóði í Ástralíu Að minnsta kosti átta létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í gær. Ellefu til viðbótar er saknað. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins. 11.1.2011 04:00
Læknar segjast vera bjartsýnir Átta manns eru enn á sjúkrahúsi eftir skotárásina í Tucson í Arizona á laugardag. Þingkonan Gabrielle Giffords er enn í lífshættu og fimm aðrir eru þungt haldnir. 11.1.2011 03:30
Láti Austur-Jerúsalem eiga sig Sendiherrar 25 aðildarríkja Evrópusambandsins í Jerúsalem og Ramallah skora á leiðtoga Evrópusambandsins að líta á Austur-Jerúsalem sem framtíðarhöfuðborg Palestínuríkis. 11.1.2011 03:15
Óvenju mikið um sinubruna Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í hvert útkallið á fætur öðru vegna sinuelda fyrr í kvöld. Frá klukkan 20 til 21 sinntu slökkviliðsmenn þremur slíkum útköllum, einu í Mosfellsbæ og tveimur í Hafnarfirði. Engin mannvirki voru í hættu. 10.1.2011 21:33
Varð milli fyrir misskilning Sænskur maður varð um helgina 200 milljónum íslenskum krónum ríkari fyrir misskilning. Hann hefur um margra ára skeið keypt veðhlaupamiða á laugardögum og ætlaði að halda þeim sið á laugardaginn. 10.1.2011 20:45
„Við gátum ekki hugsað okkur að lifa barnlausu lífi" „Við sáum ekki fram á að geta eignast barn á næstu árum og við gátum ekki ekki hugsað okkur að lifa barnlausu lífi. Þannig að við fórum að hugsa hvað og hvort við gætum gert sjálf. Við vissum að íslensk pör hafa farið erlendis og eignast börn með hjálp staðgöngumóður. Við erum alls ekki þau fyrstu,“ segir Helga Sveinsdóttir sem er föst ásamt eiginmanni sínum, Einari Þór Færseth, þar sem þau eignuðust á síðasta ári drenginn Jóel Færseth með aðstoð staðgöngumóður. Rætt var við Helgu í Kastljósi í kvöld. 10.1.2011 20:23
Bjarni: Við höfum rétt úr kútnum „Frá því að kosið var síðast þá höfum við mjög verulega rétt úr kútnum. Ég finn fyrir því að okkar sjónarmið eru smám saman að ná í gegn. Fólk er farið að finna á eigin skinni að það gengur ekki að fara skattahækkunaleiðuna út af þeim þrengingum sem við höfum lent í,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 10.1.2011 21:50
Snjóflóðahætta í Ljósavatnsskarði Lögreglan á Húsavík vill beina þeim tilmælum til vegfarenda að vera ekki á ferðinni um Hringveg í Ljósavatnsskarði í Þingeyjarsveit. Þar er iðulaus stórhríð og færð tekin að spillast mjög. Snjósöfnun hefur verið mikil í fjöll í Ljósavatnsskarði og telur lögregla snjóflóðahættu vera til staðar. 10.1.2011 20:35
Aðeins tveir kostir í stöðunni Ríkisstjórnin getur keypt HS Orku í frjálsum samningum eða tekið fyrirtækið eignarnámi með lögum. Þessar tvær leiðir eru færar að mati sérfræðings í löggjöf um orkugeirann. Tvær nefndir á vegum hins opinbera hafa fjallað um kaupin sem nú eru fullfrágengin og talið þau lögmæt. 10.1.2011 20:00
Kaffihús sérsniðin að þörfum barna nýjasta æðið Hugmyndin fæddist í móðurkviði en Lára Guðrún Jóhönnudóttir lét ekki þar við sitja heldur bretti upp ermar og opnaði kaffihús með stóru leiksvæði. Eftir margra ára bið foreldra hafa á einum vetri tvö barnvæn kaffihús sprottið upp og tvö til eru í burðarliðnum. 10.1.2011 19:57
Steingrímur: Engin krafa um afsökunarbeiðni Enn eru harðar deilur í þingflokki Vinstri grænna en þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga saka meirihlutann á Alþingi um ofríki. Þá krefja þeir starfandi formann þingflokks Vinstri grænna um opinbera afsökunarbeiðni. 10.1.2011 19:25
Þjónum og bensínafgreiðslumönnum skylt að stöðva drukkið fólk Upplýsingafulltrúi Umferðarstofu segir þá ábyrgð hvíla á herðum einstaklinga að meta hvort þeir séu hæfir til að setjast undir stýri, en sömuleiðis annarra viðstaddra. Þannig sé þjónum og bensínafgreiðslumönnum skylt að reyna að hindra að drukkið fólk keyri ölvað. 10.1.2011 19:21
Umdeildar framkvæmdir við Landeyjahöfn Vinna við að færa ósa Markarfljóts austur frá Landeyjahöfn er hafin. Siglingastofnun fullyrðir að ekki þurfi umhverfismat vegna framkvæmdanna eins og krafist hafði verið. 10.1.2011 19:16
Frægur vegarkafli hverfur í sumar Vegarkafli sem skipar sess í kvikmyndasögu Íslands verður aflagður í sumar. Þetta er jafnframt einn síðasti kafli þjóðvegakerfisins sem liggur í gegnum hlaðið á bóndabæ. 10.1.2011 19:15
Snjóflóð féll á Fnjóskadalsveg eystri Snjóflóð féll á Fnjóskadalsveg eystri um klukkan 17 í dag, rétt norðan við bæinn Veisusel. Snjóflóðið lokaði veginum og biður lögreglan vegfarendur um að vera alls ekki á ferðinni á þessu svæði. 10.1.2011 19:11
Fjórir fórust í flóði í Ástralíu Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í dag. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins. Björgunarmenn unnu mörg afrek við að bjarga fólki af húsþökum. Sumum þurfti að bjarga af þökum bíla sinna. Mestu flóð í fimmtíu ár hafa hrjáð Ástrala undanfarna daga. Flóðasvæðið hefur verið stærra en Frakkland og Þýskaland samanlagt. 10.1.2011 18:16
Þingmenn VG funda um ágreining Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman á nýjan leik klukkan 18 eftir að hlé var gert á fundi þingflokksins síðdegis. Þremenningarnir sem sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga gagnrýna það sem þeir kalla ofríki meirihlutans á Alþingi. Þingflokkurinn reynir nú að jafna ágreining milli ólíkra fylkinga. 10.1.2011 17:51