Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Von á ákærum eftir áramót Sérstakur saksóknari hefur nú tæp áttatíu mál til rannsóknar og hefur þeim fjölgað mjög á þessu ári. „Síðan er slatti af kærum sem við vitum af á leiðinni frá Fjármálaeftirlitinu og víðar,“ segir Ólafur Þór Hauksson. Búið er að taka skýrslur af á þriðja hundrað manns frá því að embættið var sett á laggirnar. 28.12.2010 05:00
Fiskveiðiárið gefur forskot Norðmenn verða af verulegum verðmætum fyrir sjávarafurðir sínar og gætu lært af Íslendingum hvernig á að hlusta eftir þörfum markaðarins. Þetta segir Yannick Forget-Dugaret, forstjóri stærsta framleiðanda og dreifingaraðila ferskra sjávarafurða í Frakklandi. Fyrirtæki hans Pomona, sem er með höfuðstöðvar í Boulogne, rekur 18 dreifingarstöðvar þar í landi. 28.12.2010 04:00
IKEA blýantar í skurðaðgerðum IKEA blýantar eru betur til þess fallnir að merkja fyrir skurðum á beinum en hefðbundnir tússpennar. Þetta segja tveir skurðlæknar í jólahefti breska læknablaðsins, British Medical Journal. 28.12.2010 03:45
Áfram fylgst með fjármálum sveitarstjórnarmál Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) mun ekki aðhafast frekar vegna fjármála Kópavogsbæjar. Þetta kemur fram í bréfi EFS til bæjarstjórnar dagsettu 17. desember síðastliðinn. 28.12.2010 03:00
Neyðarástand vegna hríðar Neyðarástand ríkti á dönsku eyjunni Borgundarhólma í gær sökum gríðarlegs fannfergis sem lamaði þar allar samgöngur. 28.12.2010 02:00
Óttast kostnað af sumarhúsum Meirihluti bæjarstjórnar Stykkishólms hefur samþykkt að skipulagt verði svæði fyrir frístundahús við Arnarborg, norðaustan við svæði sem Skipavík hefur til umráða. Lóðirnar eiga að vera til almennrar úthlutunar. 28.12.2010 01:45
Ótti í sendiráði Danmerkur Sprengja var send með pósti til gríska sendiráðsins í Róm í gær. Starfsmenn sendiráðsins fundu sprengjuna áður en hún sprakk. Tveir slösuðust á aðfangadag þegar sams konar sprengjur sprungu í sendiráðum Síle og Sviss í Róm. 28.12.2010 00:30
Gæti beitt eldflaugaárásum Norður-Kórea gæti beitt eldflaugaárásum gegn skotmörkum í Suður-Kóreu á næsta ári. Sérfræðingar reikna með að stjórnvöld í Norður-Kóreu herði á hernaðarlegum ögrunum í aðdraganda valdaskipta í landinu. 28.12.2010 00:00
Þjóðvegur 1 lokaður við Húnaver vegna umferðaróhapps Þjóðvegi eitt er lokað við Húnaver í Húnavatnssýslu. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Flutningabíll virðist hafa lent í árekstri og lokar fyrir veginn. Lögreglan á Blönduósi var upptekin á vettvangi og gat ekki rætt við fjölmiðla vegna málsins. 27.12.2010 19:41
Ekki lokað í Guantanamo á næstunni Hinar alræmdu Guantanamo fangabúðir munu ekki loka á næstunni, samkvæmt upplýsingum sem breska blaðið Telegraph hefur frá Hvíta húsinu í Washington. Vel á annað ár er liðið frá því að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hét því að búðirnar myndu loka innan árs. 27.12.2010 23:07
Þjófarnir elska facebook Þjófar elska Facebook. Þar finnast nefnilega mikilvægar upplýsingar um ferðalög, frítíma og vinnutíma. Það léttir óprúttnum aðilum vinnu þeirra við innbrot, segir í grein á danska vefnum business.dk. Þar er bent á að stöðufærslur á Facebook eða Twitter geti kostað fólk flatskjá, eða jafnvel hægindastóla. 27.12.2010 09:46
Áttburamamman á leið á götuna Nadya Suleman, sem eignaðist áttbura fyrir tveimur árum og hlaut heimsfrægð fyrir, er í vandræðum. Hún skuldar 450 þúsund dollara í húsi sem hún flutti inn í eftir fæðinguna og fyrri eigandi ætlar að krefjast þess að hún verði borin út ásamt börnum sínum 14, en konan átti sex lítil börn áður en áttburarnir komu undir. Öll komu börnin í heiminn með aðstoð gerfifrjóvgunar. 27.12.2010 22:00
Hjón á sjötugsaldri klemmdu þjófinn í glugganum Hjónum á sjötugsaldri brá heldur betur í brún þegar að þau komu heim til sín um tvöleytið í dag. Í þann mund sem þau komu inn í íbúð sína í Reykjavík er þar ókunnugur maður inni sem var búinn að tína til hluti í íbúðinni. 27.12.2010 16:12
Nýfundin tegund var áður útbreidd í Asíu Fornmenn sem uppi voru í Síberíu fyrir meira en 30 þúsund árum blönduðust nútímamönnum. Þetta sýnir greining á erfðaefni fornmannanna og frumbyggja eyja norðaustur af Ástralíu, sem sagt er frá í nýjasta hefti vísindaritsins Nature. 27.12.2010 15:00
Dýpkunarskipinu seinkar til Landeyjahafnar Til stóð að Scandia, dýpkunarskip Íslenska Gámafélagsins, ætti að hefja vinnu við dýpkun í Landeyjahöfn í byrjun janúar 2011. Skipið átti að fara í skoðun hjá Siglingastofnun í Danmörku þann 15. desember en vegna tafa á viðgerð þurfti að seinka skoðun og fékk skipið ekki úthlutað nýrri skoðun fyrr en 10. janúar. Því er ljóst að skipið kemur ekki til vinnu fyrr en um miðjan janúar. 27.12.2010 14:31
Skallaði mann fyrir framan lögregluna Verið er að yfirheyra strák um tvítugt sem skallaði annan mann um þrjú leytið í nótt. Atvikið átti sér stað á bílastæði við Eyrarveg á Selfossi en lögregla fékk tilkynningu um að tveir hópar ættu í einhverjum útistöðum. 27.12.2010 14:05
Endurskin á norsk hreindýr Norska vegagerðin vinnur nú að því að endurskinsmerkja hreindýr landsins svo síður verði ekið á þau. 27.12.2010 14:00
Einhverjir lagðir í einelti í Áramótaskaupinu Þeir sem hafa verið áberandi í íslensku samfélagi í ár geta farið að skjálfa á beinunum. Í það minnsta játar leikstjóri Áramótaskaupsins því að einhverjir verið lagðir í einelti, þegar hann er spurður út í málið. „Já, það er alltaf tekið á einhverjum. Þeir sem hafa verið fyndnastir á árinu, þeir fá mest," segir Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaupsins. 27.12.2010 13:30
Óvissustigi aflétt á Austurlandi Óvissustigi vegna flóðahættu á Austurlandi hefur verið aflétt. Ekki er vitað til þess að þar hafi orðið flóð eða krapastíflur en mikið óveður var um tíma, segir í tilkynningu frá Almannavörnum. 27.12.2010 12:47
Árið 2010 eitt það hlýjasta frá því mælingar hófust Árið sem er að líða er eitt það hlýjasta frá því mælingar hófust hér á landi. Átta sinnum mældist mánaðarhiti yfir meðaltali og sumarið var óvenju gott 27.12.2010 12:43
Tíu þúsund trassar: Ríkisskattstjóri undirbýr aðgerðir Fleiri en tíu þúsund fyrirtæki eiga eftir að skila ársreikningi til ársreikningaskrár, en ríkisskattstjóri segir sum fyrirtæki hafa trassað skilin svo árum skipti. Hann skorar á fyrirtæki að gera bragarbót á og boðar aðgerðir á næstu mánuðum. 27.12.2010 12:40
Ruddist inn á heimili Karlmaðurinn ruddist á heimili í Hrunamannahreppi í óþökk húsráðanda í gærkvöld. Lögreglu- og sjúkralið var sent á vettvang. 27.12.2010 11:27
Læsa póstkössum til að koma í veg fyrir skemmdarverk Íslandspóstur ætlar læsa póstkössum sem eru staðsettir utanhúss á höfuðborgarsvæðinu nú yfir áramótin. Þetta hefur verið gerst síðastliðin ár vegna ítrekaðra skemmdarverka sem unnin eru á póstkössum á þessum árstíma. 27.12.2010 11:17
Íslensk fjölskylda hélt jól með Obama Íslensk kona, Arnheiður Hlín Guðmundsdóttir, maður hennar og tvö börn hittu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, og eiginkonu hans á Hawaí um helgina. Þar var haldið jólahlaðborð fyrir bandaríska hermenn sem eru starfandi á Hawaí en eiginmaður Arnheiðar er bandarískur og starfar fyrir herinn á Hawaí. 27.12.2010 10:17
Íslenskur bakari gerir það gott í Gimli Kleinur, laufabrauð, kransakaka og rúgbrauð úr bakarínu Reykjavik Cafe hafa sannarlega slegið í gegn hjá íbúum Gimli í Manitobafylki í Kanada. Birgir Róbertsson bakari er einn af þeim sem ákvað að leita tækifæranna í nýju landi og flutti til Kanada í júní 2009. Bakaríið opnaði hann í apríl og hafa viðskiptin sannarlega blómstrað. 27.12.2010 10:13
„Lítur út fyrir að Ísland sé hinn fullkomni staður fyrir glæpi" „Ég vona að þú skammist þín," skrifar Aríel Jóhann Árnason, 21 árs námsmaður og nýbakaður faðir, í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir frá því að á Þorláksmessu hafi hann farið í Kringluna og þar hafi veskinu hans verið stolið. Öryggismyndavélar náðu mynd af þjófinum, sem Aríel segir vera konu í hvítri úlpu. 27.12.2010 10:12
Flugeldasala hefst á morgun Um átta til níu þúsund sjálfboðaliðar á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar munu taka þátt í að selja flugelda fyrir þessi áramót en sölustaðir opna á morgun. 27.12.2010 09:28
Khodorkovsky fundinn sekur Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur um fjárdrátt af dómara í Moskvu. Khodorkovsky, sem eitt sinn var á meðal auðugustu manna heims, afplánar nú þegar átta ára fangelsisdóm fyrir fjársvik og skattaundanskot og nú gæti hann þurft að dúsa í fangelsi í sex ár til viðbótar. 27.12.2010 08:48
Forseti S-Kóreu herskár Forseti Suður Kóreu hét því í ræðu sem hann hélt í morgun að sunnanmenn myndu bregðast við af fullri hörku ef norðanmenn myndu gera aðra árás í svipuðum dúr og þegar fjórir suðurkóreumenn létust í síðasta mánuði. 27.12.2010 08:41
Langt í að Herjólfur komist í Landeyjahöfn Allt að mánuður eða meira gæti liðið þar til Herjólfur getur aftur siglt til Landeyjahafnar, að því er Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun segir í viðtali við blaðið Fréttir í Vestmannaeyjum. 27.12.2010 08:40
Allsherjarverkfall á Fílabeinsströndinni Stuðningsmenn Alessane Outtara, sigurvegara í forsetakosningum á Fílabeinsströndinni, hafa boðað til allsherjarverkfalls í landinu sínum manni til stuðnings en sitjandi forseti neitar að stíga til hliðar. Alþjóðasamfélagið hefur viðurkennt Outtara sem sigurvegara kosninganna en Laurent Ghabo segir brögð hafa verið í tafli. 27.12.2010 08:37
Snjóbylur á austurströnd Bandaríkjanna Snjóstormur skall á austurströnd Bandaríkjanna um helgina og hefur hann haft í för með sér miklar raskanir á samgöngum í landshlutanum. Um 1400 flugferðir féllu niður um jólahelgina þegar milljónir Bandaríkjamanna voru á faraldsfæti. Miklar umferðartafir hafa einnig verið auk þess sem tafir hafa orðið á lestarferðum. Í Maryland, New Jersey, Virginínu og Norður-Karólínu var neyðarástandi lýst yfir vegna veðursins og íbúar í Georgíu og Suður-Karólínu héldu hvít jól í fyrsta sinn í rúma öld. Upptök veðursins eru rakin til mikillar lægðar úti fyrir ströndum Norður Karólínu og hefur hún færst upp strandlengjuna eftir því sem liðið hefur á. 27.12.2010 08:34
Ekið á hross við Hrepphóla Ekið var á hest á þjóðveginum við Hrepphóla í uppsveitum Árnessýslu undir morgun. Ökumaðurinn, sem slapp ómeiddur, óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á Selfossi, þar sem hesturinn var mikið slasaður. 27.12.2010 08:04
Erill hjá lögreglu í borginni og á Selfossi Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna skemmtanahalds í nótt en hvergi dró þó til alvarlegra tíðinda og engin líkamsárás var kærð. 27.12.2010 08:01
Sólheimadeilan gæti fengið farsælan endi Forsvarsmenn Sólheima í Grímsnesi og Sveitarfélagsins Árborgar munu funda um stöðu Sólheima á morgun. Á fundinum mun koma í ljós hvort vilji er til þess af beggja hálfu að halda rekstrinum óbreyttum áfram. 27.12.2010 07:30
Þjóðvegurinn opnaður - vatnavextir á Sandskeiði Þjóðvegur-eitt, við Seljalandsá, skammt frá Markarfljóti, var opnaður í nótt að viðgerð lokinni, en hann rofnaði í vatnavöxtum við brúnna í gær. 27.12.2010 07:21
Boðar víðtækt samráð um nýja peningamálastefnu Boðað verður til viðtæks samráðs og umræðu um mörkun nýrrar peningamálastefnu, skrifar Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í grein í Fréttablaðinu í dag. 27.12.2010 07:00
Þrjú innbrot í nótt Þrjú innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt, tvö í heimahús og eitt í geymsluhúsnæði. Auk þess var þjófnaður kærður á veitingahúsi. 27.12.2010 06:58
Spá mildu veðri um áramótin Útlit er fyrir fremur milt veður á landinu öllu um áramótin. Spár gera ráð fyrir hægri suð-vestanátt og fremur hlýju veðri, segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 27.12.2010 06:00
Jólatrjám stolið: Finna sárin í skóginum á hverju ári Nokkuð hefur borið á því undanfarin ár að fólk hefur tekið jólatré ófrjálsri hendi í Hnausaskógi í Þorskafirði. Umsjónarmenn Skóga hafa boðið íbúum Reykhólahrepps að koma í Hnausaskóg þegar þeir vilja og njóta þess sem skógurinn hefur að bjóða, til að mynda að tína ber, sveppi og njóta náttúrunnar, en skógarhögg hefur ekki verið eitt af þeim atriðum. 27.12.2010 06:00
Nýr stjórnmálaflokkur að fæðast Unnið er að stofnun nýs stjórnmálaflokks hægra megin við miðju sem ber vinnuheitið Norræni borgaraflokkurinn. Flokkurinn sækir sér fyrirmyndir til hægriflokka á Norðurlöndunum og í Mið-Evrópu. 27.12.2010 05:30
Gæslan þarf þriðju þyrluna til að geta sinnt starfi sínu Nýgert samkomulag ríkja Norðurskautsráðsins um skipulag leitar- og björgunar á hafsvæðinu umhverfis Ísland breytir litlu í áætlunum Landhelgisgæslunnar að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Hún segir að vitað sé að samningurinn feli í sér ábyrgð á umfangsmiklu svæði en þarfagreining Gæslunnar frá árinu 2007, varðandi tækjakost til að sinna hlutverki sínu, sé enn í gildi. 27.12.2010 05:00
Skipinu fagnað með flugeldum Fjölmenni var á bryggjunni í Vestmannaeyjum að morgni aðfangadags til að taka á móti Þórunni Sveinsdóttur VE-401, nýju togskipi útgerðarfélagsins Óss ehf., þegar hún sigldi inn í heimahöfn í fyrsta skipti. 27.12.2010 03:00
Tveir látast í árás á Gasa Ísraelsmenn skutu niður tvo Palestínumenn í loftárás á Gasa, en samkvæmt ísraelska hernum ætluðu mennirnir að koma fyrir sprengjum á öryggisgirðingu á landamærunum við Ísrael. 27.12.2010 02:30
Stjórnin minnt á sóknaráætlun Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir hugmyndum um vegatolla á Reykjanesbraut og segir auknar álögur í formi vegatolla munu hafa verulega neikvæð áhrif á búsetu, atvinnustig, fasteignaverð og fyrirtæki á Suðurnesjum. 27.12.2010 02:00