Fleiri fréttir

Tekst á við eftirhermu

Umdeild regnhlíf hönnuðarins Sruli Recht hefur dúkkað upp í sölu sem hönnun annars manns. Sruli segir að verið sé að stela hönnun hans.

Baðstrendur við Rauða hafið opnaðar að nýju

Stjórnvöld í Egyptalandi ætli að opna aftur baðstrendur við Rauða hafið sem hafa verið lokaðar frá 5. desember eftir að hákarlaárásir kostuðu einn þýskan ferðamann lífið og særðu fjóra aðra ferðamenn alvarlega.

Dómari tók sér frest til að úrskurða um gæsluvarðhald

Dómari tók sér í gærkvöldi frest til að úrskurða um kröfu lögreglunnar í Árnessýslu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum, sem réðust með ofbeldi inn í heimahús á Selfossi í fyrrakvöld og rændu þar ýmsum verðmætum.

Tvöfalt fleiri greinast með lystarstol

Fjöldi þeirra sem leggjast inn á geðdeildir vegna lystarstols hefur tvöfaldast hér á landi á 26 árum. Eru það niðurstöður nýrrar rannsóknar: Lystar­stol 1983-2008: innlagnir, sjúkdómsmynd og lifun, sem birt er í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.

Greiða jafnan lægri gjöld en nágrannarnir

Þrátt fyrir fyrirhugaðar hækkanir á gjaldskrá Reykjavíkur­borgar segja fulltrúar meirihlutans að borgarbúar greiði jafnan mun lægri skatta og gjöld en gengur og gerist í nágrannasveitar­félögunum.

Lausnin tímabundin eftir árs undirbúning

Ráðstöfun verkefna Varnarmálastofnunar liggur fyrir til bráðabirgða. Óvissu rúmlega fimmtíu starfsmanna er eytt með niðurstöðunni, segir formaður verkefnastjórnar. Stjórnsýslan við framkvæmd þess að leggja stofnunina niður er hins vegar harðlega gagnrýnd.

Félag múslima mun eitt fá moskulóðina

Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að Félag múslima muni fá lóð undir mosku frá borginni en ekki Menningarsetur múslima sem einnig sækir um lóð.

Eftirlitið framvegis hjá ríkinu

Matvælastofnun, MAST, mun ekki fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrirtækjum frá og með 1. mars 2011. Eftirlitið verður eftir þann tíma ríkisrekið. Þetta gengur þvert á vilja Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka fiskvinnslufyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins og gegn tilmælum sjávar­útvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis.

Næst hægt að reyna að sex árum liðnum

Japanskar geimrannsóknir urðu fyrir áfalli þegar mistókst að koma rannsóknargeimfari á sporbaug um Venus í síðustu viku. Geimfarið átti að vera á ferð í tvö ár og safna gögnum.

Andvígir kvótasölu ríkisins

Farmanna- og fiskimannasambandið, Sjómannasambandið og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa tekið höndum saman við Landssamband íslenskra útvegsmanna og mótmæla hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum.

Átta manns týndu lífi

Átta manns létu lífið er smárúta sprakk nærri herbúðum NATO í suður Afganistan í gær; sex menn úr sveitum NATO létust auk tveggja afganskara hermanna.

Lánveiting í Búðarháls yrði jólagjöfin

Vonir eru bundnar við að Fjárfestingarbanki Evrópu muni í vikunni samþykkja að afgreiða lán til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar í ljósi nýrrar stöðu í Icesave-málinu. Verkstjóri Ístaks á virkjunarsvæðinu segir að það yrði jólagjöfin í ár.

Bjarni Ben undir feldi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að fara yfir öll gögn sem tengjast nýjum Icesave-samningum. Hann mun ekki tjá sig fyrr en hann hefur kynnt sér málið til hlítar, segir Friðjón R. Friðjónsson, aðstoðarmaður hans.

Samkynhneigð dauðadómur í Úganda - staðan slæm í Afríku

Það hefur aldrei verið jafn erfitt að vera samkynhenigður í Afríku samkvæmt úttekt Washington Post um stöðu samkynhneigðra í álfunni. Þannig hafa stjónvöld í Úganda fest dauðarefsingar í lög fyrir þá sem stunda kynlíf með aðila af sama kyni.

Erill hjá lögreglunni í nótt

Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í nótt, en einkum var um útköll vegna hávaða og drykkjuláta að ræða.

Eyjafjallajökull heltók heimsbyggðina

Gosið í Eyjafjallajökli síðasta vor er einn af fimm stærstu atburðum ársins á heimsvísu. Þetta kemur fram í árlegri úttekt leitarvélarinnar Google, en auk gossins voru talin til jarðskjálftinn á Haítí, Vetrarólympíuleikarnir í Vancouver, olíuslysið í Mexíkóflóa og Heimsmeistaramótið í knattspyrnu.

Eiginmaðurinn talinn vera burðardýr

Lögreglan á Suðurnesjum handtók karlmann á þrítugsaldri í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn á fíkniefnamáli sem upp kom í Leifsstöð á mánudagskvöld. Þá voru hjón á fertugsaldri tekin með tæplega þrjú hundruð grömm af kókaíni við komuna til landsins frá Kaupmannahöfn.

Gjöld Íslendinga hækka ekki

Íslenskir háskólanemar á Englandi þurfa ekki að óttast hækkanir á skólagjöldum með tilkomu nýrra laga þar í landi. Mikill styr hefur staðið um breytingar á lögum um hámarksskólagjöld í enska háskóla, frá haustinu 2012 verða gjöldin færð úr 3.290 sterlingspundum á ári upp í 9.000, sem er sama upphæð og nemar utan Evrópusambandsins, þar á meðal Íslendingar, hafa þurft að greiða hingað til.

Frístundahús ekki dæmd til niðurrifs

dómsmál Hæstiréttur segir að eigendur tveggja frístundahúsa í Kiðjabergi í Grímsnesi þurfi ekki að rífa húsin eins og einn nágranni þeirra krafðist.

Einn frambjóðendanna kærir

AP Forsetaframbjóðandinn Michel Martelly, jafnan nefndur Sweet Mickey, ætlar að kæra úrslit úr fyrri umferð forsetakosninganna á Haítí. Martelly er vinsæll söngvari á Haítí og hlaut 21,8 prósent atkvæða, aðeins tæpum sjö þúsund atkvæðum minna en Jude Celestin, lítt þekktur stjórnmálamaður sem fékk 22,5 prósent atkvæða.

Snúrur geta skaðað börn

Tvö til þrjú tilvik koma upp árlega hér á landi þar sem börn eru hætt komin eftir að hafa vafið snúrum af rimlagardínum um hálsinn á sér. Síðasta sumar mátti ekki miklu muna þegar barn féll niður á gólf í verslun eftir að hafa vafið slíkri snúru um hálsinn á sér.

Grunaður um enn eitt ódæðið

Peter Mangs, 38 ára Svíi sem er grunaður um eitt morð og nokkrar skotárásir í Malmö undan­farið ár, er nú grunaður um að hafa skotið sextán ára pilt fyrir fjórum árum. Þessi árás bætist við langan lista af ódæðisverkum sem Mangs er grunaður um að hafa framið, þar á meðal tvö morð árið 2003.

Hafa góð áhrif á nærsamfélagið

Pan American Silver Peru hefur fengið Premio Desarrollo Sostenible 2010 verðlaunin (eða Verðlaun fyrir sjálfbæra þróun 2010) í flokki stuðnings við staðbundin verkefni tengd námuvinnslu. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að verðlaunin séu veitt fyrir fordæmisgefandi starf á vettvangi félags- og umhverfismála og jákvæð áhrif sem fyrirtækið hafi haft á nærsamfélög á athafnasvæðum sínum í Perú.

Skjalið var lagt á auðan stól

Um það bil þúsund manns fylgdust með hátíðlegri athöfn í ráðhúsinu í Ósló í gær, þar sem Thorbjörn Jagland, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, lagði verðlaunaskjal ársins á auðan stól kínverska andófsmannsins Liu Xiaobo.

Krefst frávísunar með sömu rökum og áður

Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, krefst þess að máli á hendur honum vegna 192 milljóna króna innherjasvika verði vísað frá dómi. Rökin fyrir því eru þau sömu og lágu til grundvallar kröfu um að rannsókn málsins yrði hætt fyrir réttu ári. Þeirri kröfu hafnaði Hæstiréttur

Íslenskir jeppar á methraða á pólinn

Hlynur Sigurðsson, starfsmaður frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks, er á heimleið eftir jeppaferð á suðurpólinn. Talið er að hraðamet hafi fallið í ferðinni þar sem 2.300 kílómetrar voru lagðir að baki á fjórum og hálfum sólarhring.

Ríkið býður út lán í stað þess að semja

Samningaviðræður ríkisins og lífeyrissjóðanna um fjármögnun sjóðanna á tugmilljarða vegaframkvæmdum runnu út í sandinn á fimmtudag. Of mikið bar í milli þess sem ríkið var tilbúið til að greiða og þess sem sjóðirnir vildu fá.

Icesave-málið verður ekki klárað fyrir jól

„Ég fagna því mjög að þessi niðurstaða hafi náðst og ekki síst að það hafi náðst sátt í samninganefndinni, sem var meðal annars skipuð fulltrúa frá stjórnar­andstöðunni,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um Icesave-samninginn sem nú liggur á borðinu. „Þetta er gríðarlegur áfangi í endurreisninni.“

Fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu handtekinn

Fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu, Ivo Sanader, var handtekinn í Austurríki í dag. Hann var eftirlýstur vegna gruns um að hafa brotið af sér í opinberu starfi. Sanader flúði frá Króatíu í gær, rétt eftir að króatíska þingið hafði numið úr gildi friðhelgi hans gagnvart lögsóknum og handtökuskipun var gefin út á

Sjá næstu 50 fréttir