Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný vefsíða heimsminjanefndar opnuð Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær. Heimsminjasamningurinn miðar að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem eru einstakar í heiminum. Á heimasíðunni má finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það eru þeir staðir á Íslandi sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. 10.12.2010 15:57
Lögregla varar fólk við að skilja verðmæti eftir í bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Í tilkynningu segir að nokkuð sé um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta. 10.12.2010 15:22
Neytendastofa setur sölubann á Latabæjarhjálma Neytendastofa hefur lagt bann á sölu hlífðarhjálma sem seldir eru undir vöruheiti Latabæjar. Hjálmarnir eru af gerðinni ATLAS og eru þeir framleiddir í bláum lit með mynd af íþróttaálfinum og bleikum lit með mynd af Sollu stirðu. Innflytjandi hjálmanna er Safalinn ehf. 10.12.2010 14:53
EFTA-dómstóllinn staðfestir ábyrgð vinnuveitenda Einungis í undantekningartilvikum getur það samræmst tilskipunum ESB um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að gera starfsmann ábyrgan fyrir öllu eða meginhluta tjóns sem hann verður fyrir vegna vinnuslyss, þegar fyrir liggur að vinnuveitandi hefur ekki farið að reglum um öryggi og heilsu á vinnustað. Þetta er staðfest í dómi EFTA-dómstólsins frá í morgun. 10.12.2010 14:33
Vann flatskjá í vinaleik Vísis: „Alveg í skýjunum" Guðrún Ósk Hansen, þriggja barna móðir í Vogum á Vatnsleysustönd, sat við tölvuna í gærkvöldi og var að tala við manninn sinn í Noregi á Skype þegar hún ákvað að gerast Facebook-vinur Vísis. Eiginmaður Guðrúnar starfar í Noregi þar sem hann fékk vinnu eftir atvinnuleysi hér á Íslandi. Guðrún Ósk er sjálf öryrki eftir alvarlegt bílslys og hafa þau hjónin því ekki haft mikið á milli handanna að undanförnu. Það kom henni því skemmtilega á óvart þegar hún fékk símtal þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið dregin út í Vinaleik Vísis og hreppt þar veglegan vinning. 10.12.2010 14:33
Barði fyrrverandi kærustu ítrekað með hnúajárni Karlmaður á fimmtugsaldri, Valur Sigurðsson, var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir sérlega hættulega líkamsárás á fyrrverandi kærustu sína. 10.12.2010 14:16
Starfsfólk Landsbankans gefur 6 milljónir í Jólaaðstoð Starfsmenn Landsbankans söfnuðu rúmum 6 milljónum króna til styrktar Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands. 10.12.2010 13:26
Tollverðir fundu áfengi, sígarettur og snus í flutningaskipi Tollgæslan lagði í síðustu viku hald á talsvert magn af smyglvarningi, sem fannst við leit í flutningaskipi. 10.12.2010 13:21
Ráðherrar ánægðir með nýja samninginn Þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lýstu bæði yfir mikilli ánægju með nýjan Icesave-samning að loknum ríkisstjórnarfundi nú fyrir hádegið. 10.12.2010 12:14
Slæmt veður lokar Landeyjahöfn Herjólfur mun ekki sigla á Landeyjahöfn síðdegis heldur fer ferjan til Þorlákshafnar þess í stað. Slæmt veður kemur í veg fyrir að hægt sé að sigla á nýju höfnina. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar klukkan þrjú frá Vestmannaeyjum og fer til baka klukkan sjö í kvöld. 10.12.2010 12:00
Hjón smygluðu kókaíni frá Kaupmannahöfn Hjón á fertugsaldri sem aldrei hafa komið við sögu lögreglunnar voru handtekin í Leifsstöð á mánudagskvöld með þrjú hundruð gömm af kókaíni í fórum sínum. Konunni hefur verið sleppt en maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13.desember. 10.12.2010 11:47
Umboðsmaður skuldara flytur í Kringluna Umboðsmaður skuldara lokar í dag, föstudaginn 10. desember, klukkan 16.00 á Hverfisgötu 6, og opnar mánudaginn 13. desember kl. 9.00 á nýjum stað í Kringlunni 1, 2. hæð. Þar var áður til húsa Morgunblaðið og síðar Háskólinn í Reykjavík. 10.12.2010 11:35
VR gefur 5 milljónir til hjálparsamtaka Stjórn VR hefur samþykkt að styrkja hjálparsamtök um rúmlega fimm milljónir króna þessi jól og vill félagið þannig leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem minna mega sín á þessum tímum. 10.12.2010 11:29
Nemendur beita kennara ofbeldi - alvarlegt vandamál „Þetta ofbeldi varði þar til mér var ofboðið þannig að ég varð að leita læknis og var síðan frá kennslu meðan ég var að ná heilsu á ný. Það þarf ansi mikið til að kennurum ofbjóði. Þeir eru flestir með langlundargeð, annars væru þeir ekki í þessu starfi," segir kennari sem varð fyrir ofbeldi af hálfu ungs grunnskólanema. Kennarinn segir ofbeldið kannski ekki hafa getað kallast líkamlegt en allt að því. Viðkomandi nemandi hafi oftar en ekki slegið til sín og haft í frammi alls konar ögranir án þess þó að líkamleg meiðsl hlytust af. 10.12.2010 11:19
Steingrímur segir ósanngjarnt að bera samningana saman Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er mjög ánægður með nýjan samning í Icesave-deilunni og segir hann vera risaáfanga í endurreisn Íslands. Hann bendir á að allt aðrar aðstæður séu nú en þegar fyrri samningur var gerður í fyrrasumar og því sé ekki sanngjarnt að bera samningana saman. Steingrímur var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun þar sem hann ræddi um Icesave-samninginn. 10.12.2010 10:25
Varað við hafís norður af Horni Hafís er um 10 sjómílur norður af Horni. Veðurstofan segir að víðast sé ísinn gisinn eða mjög gisinn, en með mjög þéttum spöngum og íshellum inn á milli. Næsta sólarhringinn er búist við vestlægri átt á þessu svæði og má því gera ráð fyrir að ísinn þokist í austurátt og nær landi og geti þá verið varasamur fyrir sjófarendur. Þá segir að á sunnudag sé búist við suðvestlægri vindátt og þá má gera ráð fyrir að ísinn berist lengra í austurátt. 10.12.2010 10:14
Enginn eldur - bara viðvörunarljós Guðmundur Óskarsson forstöðumaður hjá Icelandair, segir að enginn eldur hafi komið upp í hreyfli vélarinnar sem snúið var við skömmu eftir flugtak og lenti á Keflavíkurflugvelli við mikinn viðbúnað. Að hans sögn kviknaði viðvörunarljós í flugstjórnarklefanum sem benti til að eldur væri laus. Því var ákveðið að snúa vélinni við og lenda á ný. Ekkert kom hinsvegar fram við skoðun á vélinni að eldur hefði kviknað og líklegast er að um bilun hafi verið að ræða. 10.12.2010 10:01
Eldur í hreyfli Icelandairvélar Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í morgun þegar eldur kom upp í hreyfli Icelandair-þotu sem var á leið til Frankfurt. Vélinni var snúið við og lenti hún á Keflavíkurflugvelli klukkan 12 mínútur yfir níu. Eldurinn hafði verið slökktur áður en vélin lenti og sakaði engan um borð. 140 farþegar voru í vélinni. 10.12.2010 09:15
Flug tryggt til Sauðárkróks, Gjögurs og Bíldudals Flugfélagið Ernir og Vegagerðin hafa náð samkomulagi um að tryggja áframhaldandi áætlunarflug milli Reykjavíkur annars vegar og hins vegar Sauðárkróks, Gjögurs og Bíldudals. Flugfélagið fær aukinn styrk til Vestfjarðaflugsins en styrkur til Sauðárkróksflugs fellur niður. Þetta kemur fram á vef samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins. 10.12.2010 08:58
Það er eitthvað ekki í lagi.... Sekúndum munaði að tvær farþegaþotur frá SAS skyllu saman í flugtaki frá Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í stórhríð. Það var í lok síðasta mánaðar sem tvær SAS þotur voru að búa sig undir flugtak frá Kastrup. 10.12.2010 08:20
Morðingi við dauðans dyr Eini Libyumaðurinn sem hefur hlotið dóm fyrir Lockerbie sprengjutilræðið er sagður við dauðans dyr. Eftir áratuga þvarg var Adelbaset Megrahi framseldur frá Libyu til Alþjóðadómstólsins í Hollandi. 10.12.2010 08:06
Ráðist á bíl Karls bretaprins Það voru stúdentar að mótmæla hækkuðum skólagjöldum sem réðust á bíl hjónanna. Þeir höfðu áður reynt að brjóta sér leið inn í breska fjármálaráðuneytið og kom þar til harðra átaka. 10.12.2010 07:14
Tannlæknir hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Tannlæknir á Suðurnesjum hefur kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands þess efnis að stöðva þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar hans frá og með 1. október síðastliðnum. Þetta staðfestir Gestur Jónsson hrl., lögmaður tannlæknisins, við Fréttablaðið. 10.12.2010 06:30
Neita að reisa mosku með nýja trúfélaginu „Þetta er alveg eins og að segja þjóðkirkjunni að vera með Vottum Jehóva,“ segir Salmann Tamimi, forstöðumaður Félags múslima, sem kveður það ekki koma til greina að félagið byggi mosku sameiginlega með Menningarsetri múslima eins og borgaryfirvöld vilja. 10.12.2010 06:30
Steingrímur íhugi stöðu sína „Það er greinilegt að það borgar sig að hafa fagmenn í vinnu,“ segir Þór Saari, Hreyfingunni, um nýjan Icesave-samning. „Þeir hafa náð umtalsverðum árangri miðað við það sem áður var uppi á borðum. 10.12.2010 06:00
Núna þarf að vega og meta kosti þess að semja um málið „Þegar þessi niðurstaða samninganefndarninar er kynnt er manni auðvitað efst í huga hversu miklu máli það skipti að hnekkja fyrri samningum og að það skuli hafa verið gert með jafnafgerandi hætti og samstöðu meðal þjóðarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. „Það sendi skýr skilaboð um að menn ætluðu ekki að sæta neinum afarkostum í þessu máli og ólíkt því sem forysta ríkisstjórnarinnar hélt þá fram, um að þjóðaratkvæðagreiðslan væri tilgangslaus tímasóun, hefur komið í ljós að hún skipti öllu.“ 10.12.2010 06:00
Gefa salernisrúllur „Taktu þátt í að gefa gjöf“ heitir styrktarherferð íslenska hreinlætispappírsframleiðandans Papco nú fyrir jólin. „Ein rúlla af hverri seldri pakkningu af hreinlætispappír í jólaumbúðum frá Papco rennur til góðgerðamála,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins, en það styrkir Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Rauða krossinn og Fjölskylduhjálpina. 10.12.2010 06:00
Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn „Fljótt á litið er þetta mun hagstæðara tilboð en fyrri samningurinn,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „En hafi Íslendingar lært af reynslunni í þessu máli þá verðum við að kynna okkur þetta mál í þaula áður en mikið er hægt að segja.“ 10.12.2010 06:00
Porsche hlýtur Gullstýrið í ár Evrópsku bílaverðlaunin „Gullstýrið 2010“ komu nýverið í hlut sportjeppans Porsche Cayenne í flokki jepplinga. 10.12.2010 06:00
Verklag til reiðu í næstu viku Verklagsreglur fyrir ný úrræði vegna skuldavanda heimilanna verða væntanlega tilbúnar hinn 15. þessa mánaðar. Eftir þann tíma ætti almenningur að geta borið sig eftir öllum þeim lausnum sem í boði eru. 10.12.2010 05:00
Endurvinna í auknum mæli Akureyrarbær mun verja um 189 milljónum króna á næsta ári til að breyta fyrirkomulagi við sorphirðu og förgun. 10.12.2010 05:00
Ráðherrar hafna tillögu um 20 vikna orlof Ráðherrar Evrópusambandsríkja hafa hafnað tillögu Evrópuþingsins frá því í október um að lengja lágmarksfæðingarorlof í ESB-löndunum 27 í 20 vikur. Lágmarksorlof í ESB er nú 14 vikur, að því er greint er frá á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. 10.12.2010 05:00
Án byssuleyfa með vopnasafn Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega fimmtugan karlmann fyrir að brjótast inn í bifreið sem stóð í fjöru í landi Hafnar í Hvalfjarðarsveit. Úr bílnum stal maðurinn haglabyssu og riffli, ásamt skotum í bæði skotvopnin. 10.12.2010 04:00
Öllum í hag að klára málið „Þessi niðurstaða er í takt við það sem okkur hafði verið kynnt áður og eftir kynningunni að dæma er þessi niðurstaða mun hagstæðari en þeir samningar sem áður voru á borðinu, þannig að ég tel að það sé öllum í hag að klára málið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann kveðst vonast til að það geti orðið fljótlega. 10.12.2010 04:00
Stríð út af Wikileaks í netheimum Greiðslumiðlunarsíðan Paypal lét í gær undan árásum frá netþrjótum og losaði um fé sem komið var inn á reikning Wikileaks. Ekki verður þó hægt að greiða meira inn á reikninginn. 10.12.2010 04:00
Verðlaunahafinn mætti ekki Kínversk stjórnvöld afhentu í gær sín eigin friðarverðlaun til höfuðs friðarverðlaunum Nóbels, sem afhent verða í Ósló í dag. 10.12.2010 03:30
Jim Morrison náðaður í Flórída Ríkisstjórinn í Flórída hefur ákveðið að náða Jim Morrison söngvara The Doors þrátt fyrir að söngvarinn hafi látist í baðkeri í París árið 1997. Morrison var sakfelldur fyrir að bera á sér kynfærin á tónleikum í ríkinu árið 1969. Hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir athæfið og var málið í áfrýjunarferli þegar hann lést. 9.12.2010 21:00
Sex klukkustunda gömlu barni rænt Umfangsmikil leit að litlu barni var sett af stað í Þýskalandi í dag. Barninu var rænt af spítala í Frankfurt í dag. 9.12.2010 20:47
Lagalegu fyrirvararnir skipta miklu máli Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins segist vilja vera spar á yfirlýsingar um nýja Icesave samninginn þangað til hann sé búinn að kynna mér samninginn í þaula. En miðað við það sem kynnt hafi verið fyrir honum virðist samningurinn vera sanngjarnari á margan hátt. 9.12.2010 22:12
Nýtt félag stofnað um vestræna samvinnu Varðberg - samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál heitir félag sem stofnað var á fjölmennum fundi á Hótel Sögu í dag. 9.12.2010 21:36
Konur pirraðar á stærðamun í fataverslunum Kona sem kaupir stærð 12 í Topshop getur þurft að kaupa stærð 14 í Next til að fá sambærilegt mittismál á flík þar. Mittismál flíkur í stærð 12 úr Next er 3,2 cm minna en mittismál stærðar 12 í Topshop. Þetta kemur fram í könnun breska neytendablaðsins Which? sem kannaði fatastærðir í átta tískuverslanakeðjum í Bretlandi. Sagt er frá könnuninn í nýjasta hefti Neytendablaðsins sem Neytendasamtökin gefa út. 9.12.2010 21:00
Leggja skatt á ferðamenn Fjármálaráðherra lagði í dag fram frumvarp á Alþingi um farþegagjald og gistináttagjald sem innheimt verður af ferðamönnum á Íslandi, bæði innlendum og erlendum. 9.12.2010 20:25
Alveg óvíst hver endanleg upphæð verður „Grundvallarspurningin sem við stóðum frammi fyrir var þessi. Hvernig semur maður um greiðsluskilmála af skuld sem maður veit ekki hver er og mun ekki vita um nokkur ár?“ Þetta sagði Lee Buchheit, aðalsamningamaður Íslendinga í Icesave deilunni, á blaðamannafundi sem hófst laust fyrir klukkan sjö í kvöld. 9.12.2010 19:08
Dreifa 5000 smokkum á næsta ári Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og HIV Ísland dreifa 5000 smokkum til almennings á Íslandi á næsta ári. Þá munu Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og HIV Íslands hefja forvarnarátak sem er liður í samstarfi félaganna. Smokkadreifingin skipar stóran sess í því samstarfi og rík áhersla verður lögð á að efla vitund ungs fólks um HIV og ná til áhættuhópa varðandi HIV smit. Það er Pasante sem leggur til smokkana en Pasante er einn stærsti smokkaframleiðandi á Bretlandi. 9.12.2010 18:46
Umtalsvert lægri vextir Vextirnir sem samið hefur verið um að Íslendingar greiði af Icesave láninu eru umtalsvert lægri en áður hafði verið komist að samkomulagi um. 9.12.2010 17:45