Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svínabú vilja aðgang að deyfilyfjum „Hér er þetta bara eins og hjá öllum öðrum svínabúum á Íslandi. Það er bara þessi hefðbundni háttur á að gelda grísi sem hefur verið viðhafður hér í tugi ára. Við höfum ekki aðgang að neinum deyfilyfjum,“ segir Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss sem er stærsta svínabú á landinu. 23.11.2010 16:27
Sólbrunnir hvalir á Kaliforníuflóa Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að hvalir sólbrenni og að það sé vaxandi vandamál. Vísindamenn frá Bretlandi og Mexíkó fylgdust með og gerðu rannsóknir á 156 hvölum á Kaliforníuflóa. 23.11.2010 16:08
Hamborgartréð kemur úr Borgarfirðinum í ár Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Miðbakka Reykjavíkurhafnar næstkomandi laugardag klukkan fimm. Tréð hefur í daglegu talið verið kallað „Hamborgartréð" í gegnum árin en nú kann að verða breyting á því. 23.11.2010 16:00
Lögreglan lýsir eftir Aroni Geir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Aroni Geir Ragnarssyni, þrettán ára, en ekkert hefur heyrst frá honum síðan kl. 20:45, þann 21.nóvember síðastliðinn. 23.11.2010 15:31
Herjólfur siglir á Landeyjahöfn Herjólfur mun sigla á Landeyjahöfn seinnipartinn í dag eins og vonir höfðu staðið til. Í tilkynningu frá Eimskipi, rekstraraðila ferjunnar, segir að veðurútlit fyrir höfnina sé gott næstu daga. Fyrsta ferð þangað verður farin frá Vestmannaeyjum klukkan 17:00 í dag og síðan samkvæmt áætlun. 23.11.2010 14:59
Barnabarn Yoda ? Í frásögn Fox fréttastofunnar af þessum atburði er ekki getið um hvort stúlkan sem þar kemur við sögu er frá "Vetrarbraut langt, langt í burtu." 23.11.2010 14:52
Forsetinn viðstaddur vígslu sjálfbærustu byggingar veraldar Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson var í morgun heiðursgestur við vígslu Masdar tækniháskólans í Abu Dhabi. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að byggingin, sem er teiknuð af hinum heimsþekkta arkitekt Norman Foster, sé talin „sjálfbærasta bygging veraldar þar sem mengun og úrgangur eru komin niður að núll-markinu." 23.11.2010 14:39
Drukknir á flandri með kjarnorkuvopn Opinberir starfsmenn sem sjá um flutninga á kjarnorkuvopnum innan Bandaríkjanna komu á tveggja ára tímabili sextán sinnum við sögu lögreglunnar vegna áfengisneyslu að sögn orkumálaráðuneytis landsins. 23.11.2010 14:30
Halinn klipptur af stressuðum grísum Þegar þröngt er um grísi og þeir hafa lítið fyrir stafni eiga þeir til að fara að naga halann hver á öðrum sér til dægrastyttingar. Þetta getur leitt til sýkinga og aukins kostnaðar fyrir svínabú. Vegna þessa tíðkast víða að starfsfólk svínabúa klippir halann af grísunum og styttir tennur þeirra. 23.11.2010 14:12
Guðlaugur Þór áhyggjufullur vegna sölunnar á Vestia „Það er algjörlega skýrt að það var farið á svig við lög um bankasýslu ríkisins við sölu Vestia. Þó eru tveir menn sem halda öðru fram og það eru fjármálaráðherra og bankastjóri Landsbankans," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 23.11.2010 13:55
Þrettán ára neydd í hjónaband í Noregi Tvennir foreldrar og karlmaður á þrítugsaldri eru fyrir rétti í Osló sökuð um að hafa neytt þrettán ára telpu til þess að giftast manninum, sem er frændi hennar. Hann er einnig sakaður um að hafa margnauðgað henni. 23.11.2010 13:41
Konunglegt brúðkaup í apríl Vilhjálmur erfðaprins ætlar að kvænast unnustu sinni Kate Middleton þann 29. apríl á næsta ári. Konungsfjölskyldan tilkynnti um þetta í morgun en athöfnin fer fram í Westminster Abbey í London. 23.11.2010 13:01
Grísir geltir á sársaukafullan hátt án deyfingar Á Íslandi eru karlkyns grísir geltir án deyfingar eða verkjastillingar. Starfsmaður svínabúsins sker þá í punginn og slítur eistun út. Aðgerðin er gríðarlega sársaukafull fyrir grísina. Kjöt geltra grísa er án sérstaks bragð og lyktar sem getur komið af ógeltum grísum og er það megin ástæðan fyrir geldingunni. 23.11.2010 12:31
Norðmenn sjái um olíuleit fyrir Íslendinga Þingflokksformaður framsóknarmanna vill að Íslendingar hætti sjálfir að standa í olíuleit en semji í staðinn við Norðmenn um að annast verkefnið. Olíuleitarútboð Íslendinga á Drekasvæðinu var rætt í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. 23.11.2010 12:13
Vonast eftir sátt um færslu Markarfljóts Siglingastofnun mun endurhanna flóðvarnagarð við Markarfljót í samræmi við óskir landeigenda, og vonast sveitarstjóri Rangárþings eystra til að með breytingunni náist sátt um hvernig staðið verður að færslu fljótsins. 23.11.2010 12:05
Sjálfstæðar stofnanir eiga að vera lausar við pólitík Þingmenn að norðan beittu sér fyrir því að samið yrði um bætur til hjónanna á meðferðarheimilinu Árbót. Samningaviðræður um það hófust þremur mánuðum fyrr en stjórnvöld hafa fullyrt að því fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Stjórnsýslufræðingur segir að stofnanir á borð við Barnaverndarstofu eiga að vera sjálfstæðar undan pólitík. 23.11.2010 12:00
Vilja að ríkið yfirtaki tóm fjölbýlishús BSRB leggur til við stjórnvöld, að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi að danskri fyrirmynd, þar sem fólk geti búið alla ævina í leiguíbúðum, ef það vill. 23.11.2010 11:52
Tugir húsa í björtu báli Tugir húsa stóðu í morgun í björtu báli beggja vegna landamæra Kóreuríkjanna, eftir mikinn stórskotaliðsbardaga. Bæði löndin hafa sett herafla sinn í viðbragðsstöðu. 23.11.2010 11:52
Krossmaður kannast ekki við ásakanir „Ég kannast ekki við þessar ásakanir,“ segir framkvæmdastjóri trúfélagsins Krossins, Björn Ingi Stefánsson, en Pressan.is greinir frá því að óskilgreindur hópur kvenna hafi borið alvarlega ásakanir á hendur Gunnari Þorsteinssyni, leiðtoga safnaðarins. 23.11.2010 10:18
Knattspyrnuþjálfarar biðla til ljósmyndaþjófa Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands óskar eftir vitnum af því þegar myndavélum var stolið úr höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal þann 13. nóvember síðastliðinn. 23.11.2010 09:34
Grunur um salmonellu Í reglubundnu eftirliti með salmonellu í kjúklingaslátrun liggur fyrir rökstuddur grunur um að salmonella hafi greinst í einum kjúklingahópi Reykjagarðs. Umræddur kjúklingahópur hefur verið rannsakaður samkvæmt eftirlitsáætlun Matvælastofnunar áður en kjúklingarnir voru slátraðir án þess að salmonella hafi fundist. Sýnin eru enn í greiningu hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og verður sent til staðfestingar á sýkladeild Landspítalans. Endanleg staðfesting mun væntanlega liggja fyrir í lok vikunnar. 23.11.2010 09:19
Blóðbankinn óskar eftir fleiri blóðgjöfum Blóðbankinn þakkar þeim sem lögðu leið sína í bankann í gær og gáfu blóð. Þá söfnuðust 95 einingar og samkvæmt birgðastöðu í morgun voru þá til 598 einingar. Blóðbankinn stefnir á að eiga öryggisbirgðir sem samsvara minnst 800 einingum til að geta tryggt öryggi sjúklinga vegna skurðaðgerða, krabbameinsmeðferða og annarrar heilbrigðisþjónustu yfir jól og áramót. Því kallar starfsfólk Blóðbankans eftir áframhaldansi aðstoð og hvetur fólk til að gefa blóð í þessari viku. 23.11.2010 08:51
Stærsti njósnagervihnöttur heimsins á braut um jörðu Bandaríkjamenn hafa sent stærsta njósnagervihnött sögunnar á braut umhverfis jörðu. 23.11.2010 07:52
Tala látinna í Phnom Penh komin í 350 manns Tala látinna, sem létust í troðningi sem varð í fjölmennum hátíðarhöldum í Phnom Penh höfuðborg í Kambódíu í gær, er komin upp í 350 manns. Hundruð til viðbótar eru sárir. 23.11.2010 07:44
Játuðu ólöglegar landanir á tugþúsundum tonna af markríl Sex skoskir skipstjórar játuðu fyrir rétti í Edinborg í gær að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsunda tonna af makríl og síld á Hjaltlandseyjum á nokkurra ára tímabili. 23.11.2010 07:39
BSRB vill koma á fót leigukerfi að danskri fyrirmynd BSRB leggur til við stjórnvöld, að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi að danskir fyrirmynd. 23.11.2010 07:37
Slasaður maður fluttur með þyrlu LHG frá Patreksfirði Maður slasaðist þegar hann var að vinna við rennibekk á Patreksfirði undir kvöld í gær. 23.11.2010 07:27
Boðar til þingkosninga á Írlandi á næsta ári Brian Cowen forsætiráðherra Írlands hyggst efna til þingkosninga í landinu á næsta ári. Mikil spenna er nú í írskum stjórnmálum vegna neyðaraðstoðar Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Írland. 23.11.2010 07:25
Varðskip aðstoðar fiskibát á Breiðafirði Vélarbilun varð í litlum fiskibáti, þegar hann var staddur utarlega á Breiðafirði í nótt. Tveir menn eru um borð og kölluðu þeir eftir aðstoð. 23.11.2010 07:24
Bíl ekið á ljósastaur á Selfossi Ungur ökumaður og félagi hans, sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra hafnaði á ljósastaur á Selfossi um miðnætti. 23.11.2010 07:20
Brotist inn í fyrirtæki í Skipholtinu Rúða var brotin í fyrirtæki við Skipholt í Reykjavík í gærkvöldi og þaðan stolið verðmætum. Þjófurinn komst undan. 23.11.2010 07:14
Vonir dvína um að námumennirnir á Nýja Sjálandi séu á lífi Vonir dvína hratt um að nokkur af þeim 29 námamönnum sem fastir eru í námu í suðurhluta Nýja Sjálands séu enn á lífi. 23.11.2010 06:59
Skotbardagi hafinn á landamærum Suður og Norður Kóreu Norður Kóreumenn hófu í morgun stórskotahríð á suður kóreska eyju, skammt undan landamærum ríkjanna. 60 hús á eyjunni standi í björtu báli, einn eyjarskeggi er fallinn og 14 særðir. 23.11.2010 06:47
Létu undan þrýstingi kjördæmisþingmanna Þrýstingur frá þingmönnum Norðausturkjördæmis varð til þess að félagsmálaráðuneytið ákvað að ganga til samninga við rekstraraðila meðferðarheimilisins Árbótar um bótagreiðslur. Þetta segir Árni Páll Árnason, þáverandi félagsmálaráðherra, berum orðum í tölvupósti sem Fréttablaðið hefur fengið í hendur frá ráðuneytinu. 23.11.2010 06:00
400 ofbeldismál komin upp Hátt í 400 ofbeldistilvik eru skráð á hverju ári á geðdeild Landspítalans. Á það við um tilvik sem eru flokkuð sem munnlegt eða líkamlegt ofbeldi og eiga sér stað á geðheilbrigðissviðinu öllu. Flest atvikin snúa að starfsfólki sjúkrahússins og er munnlegt ofbeldi, oftast hótanir, mun algengara en líkamlegt. Jón Snorrason, deildarstjóri á Kleppi, segir rannsóknir á viðfangsefninu komnar langt á veg erlendis þar sem fjallað hefur verið um málið í fjölda ára. 23.11.2010 06:00
Gæðin orðin meiri en áður „Við erum svo sannarlega að kaupa meiri gæði, hráefnið hefur verið mjög gott að flestra mati. En verkefnið hefur ekki skilað mikilli hagræðingu og fjárhagslegum ávinningi,“ segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs í Reykjavík og formaður starfshóps sem skoðar rekstrarhagræðingu í mötuneytum skóla í höfuðborginni. 23.11.2010 06:00
Upphæðin hvergi útskýrð Í þeim gögnum sem Fréttablaðið hefur undir höndum er hvergi að finna faglegan rökstuðning fyrir þeirri 30 milljóna króna greiðslu sem stjórnvöld ákváðu að greiða eigendum meðferðarheimilisins Árbótar í Þingeyjarsýslu vegna starfsloka heimilisins. 23.11.2010 06:00
Fréttaskýring: Stjörnustríðsáform verði að veruleika Hvað ætlast leiðtogar NATO fyrir? Rússar hafa sýnt áhuga á þátttöku í eldflaugavarnarkerfi sem leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu á fundi sínum í Lissabon fyrir helgi að sett verði upp í Evrópu. 23.11.2010 06:00
Japanar vilja hitaveitu að íslenskri fyrirmynd Japönsk stjórnvöld hafa óskað eftir auknu samstarfi við Íslendinga um nýtingu jarðhita. Japanar hafa ákveðið að verja gríðarlegum fjárhæðum til að byggja upp endurnýjanlega orkugjafa í þróunarlöndunum, að sögn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. 23.11.2010 06:00
Byggt við Hnitbjörg til að bæta aðgengi gesta Listasafn Einars Jónssonar undirbýr nú byggingu tengihúss á austanverðri lóð safnsins á Skólavörðuholti. Studio Grandi hefur hannað frumgerð að viðbyggingunni. 23.11.2010 06:00
Greina þarfir annarra með geðraskanir Einstaklingar með geðraskanir geta skipt lykilmáli í að greina þarfir og þjónustu við aðra sem eins er ástatt um. 23.11.2010 06:00
Viðbúið að sótt sé í bruggið Heimabrugg virðist hafa aukist talsvert að undanförnu og hefur lögreglan haft í nokkru að snúast í þeim málum. 23.11.2010 06:00
Stal fimm rándýrum úlpum Fimm rándýrum úlpum var stolið frá skólabörnum í Valhúsaskóla í gærmorgun. Stúlka náðist á mynd í öryggismyndavél, þar sem hún var að skoða úlpurnar og velja úr þær sem hún síðan tók með sér út. Málið var kært til lögreglu í gær. 23.11.2010 06:00
Vilja banna nektarskanna „Ef við megum ekki taka nektarmyndir af fólki, hvers vegna leyfum við þá stjórnvöldum að gera það?“ spurði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ron Paul, einn helsti talsmaður þeirra repúblikana sem hvað ákafast vilja draga úr umsvifum ríkisins. 23.11.2010 06:00
Vill fleiri valkosti í húnæðismálum Samfélagsmál BSRB hefur lagt til við stjórnvöld að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi í anda almenna leigukerfisins í Danmörku. Hús þessi skulu vera í ríkiseigu og íbúðir leigðar út á verði sem sérstök verðlagsnefnd telur viðráðanlegt. Með því verði einnig sett á fót eins konar öryggisnet fyrir fjölskyldur sem af einhverjum ástæðum hafa ekki aðra kosti. 23.11.2010 06:00