Fleiri fréttir

Stuðlað að betri heilsu hafsins

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað á miðvikudag að setja viðmið um gott umhverfisástand sjávar. Þessu er ætlað að auðvelda aðildarríkjum að þróa samhæfðar áætlanir um þessi mál á hverju hafsvæði fyrir sig. Þetta á að tryggja samræmi og þannig auðvelda samanburð milli svæða.

Milljónir barna í mikilli hættu

Enn eru um 2,3 milljónir barna í Pakistan undir fimm ára aldri án lífsnauðsynlegrar hjálpar. Barnaheill – Save the Children hafa náð til um 10 prósent þeirra barna sem hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra gríðar­miklu flóða sem hafa geisað í landinu undanfarnar fjórar vikur.

Kynjaskekkjan leiðréttist um áramót

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist eiga von á að töluverður sparnaður hljótist af þeirri sameiningu ráðuneyta sem gert er ráð fyrir að verði að veruleika á næstu dögum.

Míla segir samning um sameign vanta

Ásakanir Vodafone vegna dráttar á því að fyrirtækið hafið fengið aðgang að svonefndum Nató-ljósleiðara beinast að röngum aðila, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Mílu.

ESB og Icesave ekki fyrirstaða

Ögmundur Jónasson kemur á nýjan leik inn í ríkisstjórnina og tekur við embættum dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Ég byggi á starfi forvera minna í starfi og alls þess starfsfólks sem vinnur verkin í þessum ráðuneytum,“ segir Ögmundur.

Hafa áhyggjur af olíulekanum

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fundaði í dag og í kvöld með embættismönnum vegna sprengingarinnar sem varð á olíuborpalli á Mexíkóflóa út af ströndum Louisiana í dag. Björgunarmenn segja olíuslikju á sjónum. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, segir að Obama muni fylgjast náið með framvindu mála.

Leggst gegn frekari framlögum í Framtakssjóðinn

Stjórn Félags vélstjóra og málmtæknimanna lýsir yfir furðu sinni á fjárfestingum Framtakssjóðs Íslands og telur þær fara langt fram úr samþykktum sjóðsins. Fyrr í vikunni gagnrýndi miðstjórn Bandalag háskólamanna fjárfestingar sjóðsins og lagðist alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til sjóðsins.

Ögmundur hefur ekki ákveðið hvort hann afþakkar ráðherralaun

Ögmundur Jónasson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann ætli að afsala sér launum ráðherra líkt og hann gerði þegar hann gegndi embætti heilbrigðisráðherra. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun í því efni," segir Ögmundur sem tók í dag við sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Telur að Ingvi Örn fylgi Árna í nýtt ráðuneyti

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Ingvi Örn Kristinsson verði á næstunni skipaður ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verði Ingvi á annað borð ekki skipaður forstjóri Íbúðalánasjóðs.

Annar olíuborpallur á Mexíkóflóa sprakk

Olíuborpallur sprakk á Mexíkóflóa í dag á svipuðum slóðum og annar olíuborpallur sprakk í apríl. Umræddur borpallur er í eigu fyrirtækisins Mariner Energy. Þrettán starfsmönnum tókst að komast undan og hefur þeim nú verið bjargað, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir yfirmanni hjá bandarísku strandgæslunni að olíuflekkir hafi sést við borpallinn.

Óæskilegt að skipta ráðherrum ört út

Það tekur eitt til tvö ár að læra að verða ráðherra og ekki æskilegt að skipta ört út ráðherrum, segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Ráðherrakapallinn nú snúist hins vegar um að treysta samstarf stjórnarflokkanna með því að hleypa fulltrúa órólegu deildarinnar að ríkisstjórnarborðinu.

Aðstoðarmaður Jóhönnu vill Rögnu á Bessastaði

Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, vill að Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir að Rögnu og Gylfa Magnússonar verði sárt saknað.

Herþotur Bandaríkjahers lentu á Keflavíkurflugvelli í dag

Tíu herþotur Bandaríkjahers, sem til stendur að sinni loftrýmisgæslu hér á næstunni, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Vélarnar lentu á flugvellinum uppúr hádegi. Þetta eru F-15 þotur, tíu talsins. Þeim fylgir 175 manna lið, hermenn úr Bandaríkjaher, og líka eldsneytisbirgðalið. Þá hafa herflutningavélar einnig komið hingað með búnað.

Heilu stöðuvötnin gufuð upp á hálendinu

Ein stærstu stöðuvötn á miðhálendi Íslands, Kjalvötn, eru horfin. Vatnamælingamaður, sem mælt hefur fjallavötn um áratugaskeið, segist aldrei hafa séð hálendið jafn þurrt og nú, - grunnvatn sé í sögulegu lágmarki.

Skúrarnir við Vesturbæjarskóla fluttir

Ákveðið hefur verið að flytja tvo skúra af lóð Vesturbæjarskóla í Reykjavík og að frístundastarf yngstu bekkja fari fram inni í húsnæði skólans í vetur. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að þetta hafi verið ákveðið í samráði við foreldra, skólastjóra og stjórnendur frístundaheimilis.

Hyggja ekki á frama í pólitík

Hvorki Ragna Árnadóttir né Gylfi Magnússon sem létu af ráðherraembætti dag hyggja á frama í pólitík. Gylfi og Ragna settust í ráðherrastól þegar minnihlutastjórn Vinstri grænna og samfylkingarinnar var mynduð í byrjun síðasta árs. Þau gegndu því ráðherraembætti í tæpa 19 mánuði.

Íslenskir strætóbílstjórar í öðru sæti

Norðurlandamót strætisvagnabílstjóra í ökuleikni fór fram um síðustu helgi og hrepptu íslenskir strætisvagnabílstjórar annað sætið í keppninni í ár. Sex keppendur eru í hverju liði og ekur hver keppandi brautina tvisvar.

Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld

Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun.

Styðja gjaldskrárhækkanirnar

Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar í borgarráði lýstu í dag yfir fullum stuðningi við stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í erfiðum verkefnum. Stjórnin Orkuveitunnar samþykkti nýverið að hækka gjaldskrá fyrirtækisins. Fulltrúar VG og Sjálfstæðisflokksins gagnrýndu hækkunina.

Fjölga ferðum til Eyja

Herjólfur mun fara fjórar ferði á degi hverjum í vetur í stað þriggja eins og áður hafði verið ákveðið. Eimskip og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér samkomulag þess efnis.

Ekkert samkomulag um skráningu herþotna á Íslandi

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra vilja kom á framfæri leiðréttingu vegna frétta í dag um að samkomulag hafi náðst um að samgöngu- og sveitastjórnaráðherra myndi veita Flugmálastjórn heimild til að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program.

Um 20% verðmunur á matarkörfunni

Um 20% eða 2.678 króna verðmunur var á matarkörfunni í lágvöruverslunum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á höfðuborgarsvæðinu gær. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem að hún kostaði 13.547 krónur og dýrust í Kosti, þar sem hún kostaði 16.225 krónur. Karfan var 745 krónum dýrari í Krónunni en í Bónus eða 5% og 1.208 króna munur var á körfunni á milli Nettó og Bónus eða 9%.

Hnífurinn í garðinum ekki morðvopnið

Hnífurinn, sem fannst í Setberginu í Hafnarfirði og Vísir greindi frá í morgun, tengist ekki morðinu á Hannesi Þór Helgasyni sem var myrtur um miðjan ágúst.

Guðbjartur kominn með lyklavöld í heilbrigðisráðuneytinu

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu af Álfheiði Ingadóttur forvera sínum klukkan hálffjögur í dag. Ragna Árnadóttir mun svo afhenda Ögmundi Jónassyni lykla af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu klukkan fjögur. Svo verða lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Því næst verða lyklaskipti í samgönguráðuneytinu og loks í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Verkefnastjórn yfir Varnamálastofnun skipuð

Utanríkisráðherra hefur skipað verkefnisstjórn til að fara með stjórn Varnarmálastofnunar og bera ábyrgð á daglegum rekstri hennar frá 1. september til áramóta er stofnunin verður lögð niður.

Nýir ráðherrar taka við - myndir

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tóku við nýjum ráðuneytum á Bessastöðum í dag eins og oft hefur verið sagt frá.

Kristján Möller: Ákveðið á fundi með Steingrími og Jóhönnu

Kristján Möller, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, segir að ákvörðun um að veita Flugmálastjórn heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited á Keflavíkurflugvelli hafi verið tekin eftir spjall hans við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formann vinstri grænna, eftir ríkisstjórnarfund á þriðjudag.

Loforð um lýðræðisumbætur ekki verið efnd

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði við umræður á Alþingi í dag að loforð um lýðræðisumbætur sem gefnar hefðu verið í aðdraganda alþingiskosninganna á síðasta ári hefðu verið svikin.

Gagnrýnir fyrirætlanir um skattahækkanir

Ríkisstjórnin áformar enn að ráðast í skattahækkanir í haust, á þeim tíma sem ríki allt í kringum okkur eru að fara í þveröfuga átt, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. Hann sagði að ekki væri horft til þess að búa til aðstæður þar sem verðmætasköpun verði meiri.

Skattbyrði láglaunafólks minnkar

Skattbyrðin hjá fólki með tekjur undir 6 milljónir í árstekjur eða minna var lægri við álagningu fyrir árið 2009 en hún var fyrir árið 2008, sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Steingrímur sagði að þetta þýddi að ríkisstjórninni hefði tekist áætlunarverk sitt með skattkerfisbreytingum. Að hlífa hinum launalægri.

Fundað um Icesave í Hollandi

Samninganefndir Íslendinga, Breta og Hollendinga hittust í Hollandi í dag til að ræða Icesave-málið. Rósa Björk Brynjólfsdóttir upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins segir í samtali við Reuters að til standi að funda í dag og á morgun.

Stefán Pálsson: Ótrúlega ósmekklegur kveðjuhrekkur

„Þetta er gjörsamlega fráleitt. Þetta er ótrúlega ósmekklegur kveðjuhrekkur af hálfu Kristjáns,“ segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga um ákvörðun Kristjáns l. Möllers, fráfarandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, að veita flugmálastjóra heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited hér á landi.

Efnahagsbatinn ytri skilyrðum og fyrri ríkisstjórn að þakka

Þau jákvæðu teikn sem eru á lofti í efnahagslífinu eru vegna ytri skilyrða og stefnumörkunar fyrri ríkisstjórnar, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag. Hann benti á að verðbólga væri á undanhaldi vegna þess að jafnvægi væri að komast á gengi krónunnar. Útflutningsaðilar hafi staðið sterkt að undanförnu vegna lágs gengis krónunnar.

Bjartari tímar framundan

Mikill árangur hefur náðst á flestum sviðum samfélagsins. Það er árangur sem bjartsýnustu menn óraði ekki fyrir og hefur vakið athygli erlendis, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar þing tók aftur til starfa í dag að loknu sumarleyfi. Benti hún á að aukinnar bjartsýni gætti, atvinnuleysi hefði minnkað og helstu hagvísar bentu til að bjartari tímar væru framundan

Gylfi fer aftur að kenna

Gylfi Magnússon, fráfarandi efnahags- og viðskiptaráðherra, gerir ráð fyrir að hann snúi aftur til kennslustarfa hjá Háskóla Íslands nú þegar að hann hefur látið af störfum ráðherra. „Ég á ekki von á öðru en að snúa aftur upp í Háskóla. Ég er í launalausu leyfi þar. Ég er nú reyndar ekki búinn að tala við samstarfsmenn mína þar en það er ekkert annað í kortunum,“ segir Gylfi.

Brýnt að bæta viðbragðsáætlanir vegna eldgosa

Brýn þörf er á að bæta úr viðbragðsáætlunum almannavarna vegna Kötlugosa og annarrar eldgosahættu á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða doktorsrannsóknar á vegum Háskóla Íslands og Macquarie háskólans í Ástralíu. Doktorsverkefnið vann Deanne K. Bird en hún flytur fyrirlestur um niðurstöður sínar í Háskólanum á morgun.

Hver er þessi Guðbjartur Hannesson?

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins

Suðurgata verður einstefnugata

Suðurgata verður einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi en tvístefnugata fyrir hjólandi umferð. Þetta var samþykkti í umhverfis- og samgönguráði í vikunni samkvæmt tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.

Ríkisráðsfundur á Bessastöðum - 20 mál sett á oddinn

Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan hálftólf þar sem ný ráðherraskipan verður kynnt. Ögmundur Jónasson kemur að nýju inn í ríkisstjórn og Guðbjartur Hannesson kemur nýr inn. Þá verður Árni Páll Árnason ráðherra Efnahags- og viðskiptamála og utanþingsráðherrarnir Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir hverfa á braut.

Nýr efnahagsráðgjafi ráðinn

Forsætisráðherra hefur ráðið Sigurð Snævarr, hagfræðing, í stöðu ráðgjafa á sviði efnahags- og atvinnumála og hefur hann störf í dag. Fimm umsóknir bárust um stöðuna samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu forsætisráðuneytisins.

Sjá næstu 50 fréttir