Fleiri fréttir

Vill strangt eftirlit með forvirkum rannsóknum

„Ég hafna ekki hugmyndum um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, en geld engu að síður varhug við þeim. Ef af verður er mikilvægt að strangt og gott eftirlit verði með þeim sem hafa slíkar heimildir."

Fækkað um 1.240 á einu ári

Landsmönnum fækkaði um 0,4 prósent frá 1. júlí í fyrra til 1. júlí í ár. Þeta er í fyrsta sinn sem landsmönnum fækkar á einu ári síðan árið 1888 þegar töluverður hópur Íslendinga fluttist vestur um haf til Ameríku. Þá fækkaði landsmönnum um 1.724 frá árinu 1887 eða um 2,4 prósent.

Kemur í veg fyrir smitáhrif

Samningur gekk formlega í gildi í gær á milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem miðar að því að tryggja fjármálastöðugleika í löndunum öllum. Hann kveður á um sameiginleg viðbrögð ríkjanna allra gegn áfalli sem eitt þeirra verður fyrir og draga á úr hættunni á að fjármálakreppa breiði úr sér yfir landamæri. Ástand sem bundið er við einstakt ríki fellur ekki undir samkomulagið, líkt og segir í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Undir samkomulagið undirrituðu fulltrúar fagráðuneyta, seðlabanka og fjármálaeftirlita landanna allra, þar á meðal Íslands.

Þarf að koma atvinnulífinu af stað

„Það er ekki síður þörf á raunsæi en rómantík," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hefur tekið undir ósk þingmanna Sjálfstæðisflokks um að umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra komi á fund iðnaðarnefndar til að ræða áform ríkisstjórnarinnar um stækkun friðlands í Þjórsárverum.

„Erum öll Helga Björk“

Bágum kjörum og niðurskurði hins opinbera við ellilífeyrisþega og öryrkja síðustu ár var mótmælt fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorgun, eða um það leyti sem fyrirtöku í máli gegn níumenningunum svokölluðu var frestað handan við götuna í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hjálpa til við hagræðingu

Samlagssjóðurinn Frumtak hefur keypt hlut í nýsköpunarfyrirtækinu ICEconsult fyrir áttatíu milljónir króna.

Staðfesta leynileg fangelsi CIA

Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur í fórum sínum upptökur af yfirheyrslum yfir Ramzi Binalshibh, sem fóru fram í leynilegu fangelsi á vegum Bandaríkjamanna í Marokkó árið 2002.

Samkynhneigðir þurfa að bíða

Samkynhneigð pör í Kaliforníu, sem höfðu búið sig undir að ganga í hjónaband nú í vikunni, þurfa að bíða lengur.

Fimmti hver heyrnarskertur

Fimmti hver táningur sem tók þátt í nýlegri rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum hafði misst heyrn að einhverju leyti. Sérfræðingar hvetja til þess að fólk lækki í tónlistarspilurum þó tengsl á milli spilaranna og heyrnarskerðingar hafi ekki verið staðfest.

Þrettán ára drengur hengdi sig fyrir slysni vegna netæðis

Hinn þrettán ára gamli Harry Robinson, hengdi sig fyrir slysni í janúar síðastliðnum. Rannsókn lögreglunnar í Essex í Bretlandi leiddi í ljós að Harry hafði ætlað að láta líða yfir sig. Það gerði hann með því að vefja handklæði, sem var fast í sturtuhengi, utan um hálsinn á sér. Svo virðist sem hann hafi misst fótana og kafnað.

Forstjóra Orkuveitunnar sagt upp

Tillaga stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um að Hjörleifi Kvaran verði vikið frá störfum sem forstjóri OR var samþykkt í kvöld. Þetta kom fram í seinni fréttum RÚV í kvöld.

Fleiri handteknir vegna morðrannsóknar

Tuttugu og þriggja ára gömlum karlmanni sem yfirheyrður var vegna manndrápsins í Hafnafirði um helgina, var sleppt úr haldi lögreglu nú síðdegis. Fleiri hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins, segir verjandi mannsins. Hann íhugar málsókn á hendur fjölmiðlum sem birt hafa myndir af skjólstæðingi hans.

Áður hellt seyruvökva út í náttúruna

Fyrirtækið sem losaði seyruvökva úr roþtróm á vatnsverndarsvæðinu á Þingvöllum hefur áður gerst sekt um að leka slíkum vökva út í náttúruna.

Norðlingaölduveita talin hagkvæmasti orkukosturinn

Landsvirkjun taldi Norðlingaölduveitu á sínum tíma hagkvæmasta kost sinn til orkuöflunar sem hún gæti gripið til með skömmum fyrirvara. Þeim áformum var hins vegar frestað fyrir sex árum.

Hjólastígur á Hverfisgötu

Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna nú að uppsetningu tímabundins hjólreiðastígs á Hverfisgötu sem tekinn verður í notkun föstudaginn 20. ágúst. Umhverfis- og samgönguráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hleypa þessu tilraunaverkefni af stað til að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til aukinna hjólreiða.

Fordæmir forkastanleg vinnubrögð fjölmiðla

Lögmaður ungs manns sem var handtekinn vegna manndrápsmáls í Hafnarfirði fordæmir vinnubrögð ákveðinna fjölmiðla vegna nafn- og myndbirtingar af skjólstæðingi sínum.

Morðið í Hafnarfirði: Manninum sleppt úr haldi

Lögreglan leggur ekki fram kröfu um gæsluvarðhald yfir manninum sem handtekinn var í gær og hefur verið í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar á morðinu í Hafnarfirði um helgina. Maðurinn er á þrítugsaldri. Lögreglan heldur rannsókn málsins áfram.

Jinky er ekki dóttir Bobbys Fischer

Niðurstaða úr DNA greiningu á lífssýnum úr skákmeistaranum Bobby Fischers liggja fyrir. Niðurstöðurnar benda til þess að ekki sé skyldleiki milli Fischers og stúlkunnar sem sögð var vera dóttir hans.

Samningafundur boðaður á morgun

Samninganefndir Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga munu funda hjá Ríkissáttasemjara klukkan hálftvö á morgun. Eins og fram hefur komið hafa slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn verið samningslausir í um það bil eitt ár. Þrjár verkfallslotur hafa gengið yfir í sumar og nú er í gildi yfirvinnubann hjá þeim.

Tryggja 190 ungmennum námsvist

Félags- og tryggingamálaráðherra mun beita sér fyrir því að fé verði veitt úr Atvinnuleysistryggingarsjóði til þess að mæta viðbótarkostnaði framhaldsskólanna vegna skólavistar fyrir um 190 ungmenni eldri en 18 ára sem nú eru á atvinnuleysisskrá.

Fangar fengu gervigrasvöll gefins

Fangelsið á Litla Hrauni hefur fengið rúmlega sjö milljóna króna styrk frá Evrópska knattspyrnusambandinu UEFA til að kaupa gervigrasvöll. Í sunnlenska fréttablaðinu Dagskránni kemur fram að völlurinn sé kominn til landsins og bíði nú eftir því að verða settur upp.

Bílastæðum á Hverfisgötu breytt í hjólastíg

„Þetta er með því heimskasta sem maður hefur séð lengi," segir Guðjón Pétursson íbúi á Hverfisgötu í Reykjavík. Samþykkt hefur verið í Umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar að koma fyrir hjólreiðastíg tímabundið í einn mánuð, sunnanmegin í Hverfisgötunni svo að öll bílastæði á götunni munu víkja fyrir hjólastígnum. Íbúum var sent bréf í gær um málið.

Útvarpsstjóri boðar til starfsmannafundar

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefur boðað starfsmenn Ríkisútvarpsins til fundar klukkan eitt. Tilefni fundarins er ástand og horfur í rekstri Ríkisútvarpsins.

Kona slasaðist við hellaskoðun í Eldhrauni

Björgunarsveitin Kyndill á Kirkjubæjarklaustri er nú á leið að Miklafelli í Eldhrauni til aðstoðar konu sem slasaðist þegar að hún var í hellaskoðun á svæðinu.

Jökulsá í miklum ham - Öskjuleið ófær

Öskjuleið er ófær eftir að Jökulsá á Fjöllum rauf varnargarð við Herðubreiðarlindir í gærmorgun. Óvíst er að vegurinn opnist á ný þetta sumar. Hálendisfulltrúi Vatnajökulsþjóðgarðs segir að áin hafi verið óvenju vatnsmikil í sumar og telur skýringuna þá að askan úr Eyjafjallajökli valdi meiri snjóbráðnun á jöklum.

Kona í ísraelsher í klandri vegna Facebook myndar

Eden Aberjil fyrrum hermaður hjá ísraelska hernum setti myndir inn á Fésbókar-síðu sína þar sem hún stiltti sér upp með palestínskum föngum. Við eina myndina þar sem hún sést fyrir framan þrjá fanga sem allir eru með bundið fyrir augun og einn bundinn á höndum, stendur: „Herinn - besti tími lífs míns".

Fyrirtökunni frestað - Ragnar segir dómara vanhæfan

Fyrirtöku í máli níumenningana svokölluðu sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi var frestað í morgun. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður fjögurra sakborninga í málinu, lagði fram kröfu um að dómarinn í málinu víki sæti vegna vanhæfis og að málinu verði vísað frá.

Íbúum fækkaði um 1240

Íbúum á landinu hefur fækkað um 1.240 á einu ári eða um 0,4%, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Þann 1. júlí síðastliðinn voru landsmenn 318.006 en voru 319.246 fyrir ári síðan.

Mál níumenninga: „Komið allir inn“

Fyrirtaka fer fram í máli svokallaðra níumenninganna í Héraðsdómi Reykjavíkur þessa stundina en fólkið hefur meðal annars verið ákært fyrir árás á Alþingi í búsáhaldabyltingunni í desember 2008.

Douglas með æxli í hálsi

Hollywood leikarinn Michael Douglas hefur hafið átta vikna lyfjameðferð vegna æxlis sem uppgötvaðist í hálsi. Samkvæmt talsmanni hans gera læknar ráð fyrir því að hann muni ná fullum bata en Douglas sjálfur segist vera bjartsýnn á að æxlið fari.

Brotist inn í líkamsræktarstöð í Reykjavík

Tilkynnt var um innbrot í líkamsræktarstöð í austurhluta Reykjavíkur um klukkan fjögur í nótt. Að sögn lögreglu virðist engu hafa verið stolið í innbrotinu en þjófarnir voru búnir að taka nokkra verðmæta hluti til þegar styggð virðist hafa komið að þeim og þeir látið sig hverfa út í myrkrið. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Sprengdi sig í loft upp í Bagdad

Að minnsta kosti 41 létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Írak í morgun. Yfir hundrað eru særðir en sprengjan var sprengd þar sem í höfuðborg landsins, Bagdad.

Þyrlan í þrjú útköll í röð

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur haft í nægu að snúast frá því í gærkvöldi en þyrlan hefur farið þrisvar sinnum í útkall frá því klukkan sjö í gærkvöldi. Fyrsta verkefnið var að sækja sjómann um borð í norskan togara en sá var með bólgur í munnholi. Togarinn var staddur um 175 sjómílur norðvestur af Reykjavík og lenti TF-Líf með manninn á Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálfellefu.

Þátturinn Orð skulu standa tekinn af dagskrá í sparnaðarskyni

„Okkur er sagt að þetta hafi verið vinsælasti þátturinn á Rás 1 undanfarin ár," segir Karl Th. Birgisson, umsjónarmaður þáttarins Orð skulu standa á Rás 1 hjá Ríkisútvarpinu. Ákveðið hefur verið að taka þáttinn af dagskrá í vetur.

Kom að manninum sofandi og margstakk með eggvopni

Karlmaður á fertugsaldri sem ráðinn var bani á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði um helgina fannst liggjandi á gangi að svefnherbergi sínu í einbýlishúsinu sem hann bjó í, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Krefjast skýringa á ummælum lögreglu

Ummæli Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, sem hann lét falla í samtali við DV í gær, hafa sætt mikilli gagnrýni. Segir Björgvin um fjölda nauðgana í landinu að „fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér“.

Brugg og smygl eykst með hærri sköttum

neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir.

Sjá næstu 50 fréttir