Fleiri fréttir

Þjófur handtekinn í nótt

Lögreglan handtók í nótt karlmann, sem er grunaður um að hafa brotist inn í veitingahús í miðborginni í nótt og síðan inn í bíla við Hverfisgötu. Ekki liggur fyrir hverju hann stal, en málið er í rannsókn.

Þjóðarsorg í Pakistan

Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Pakistan í dag í kjölfar versta flugslyss í sögu þjóðarinnar.

Tugþúsundir á atvinnuleysisbótum

Framteljendum til skatts fækkaði í fyrra miðað við árið á undan að sögn ríkisskattstjóra. Hlunnindi og launatekjur þjóðarinnar lækkuðu um 38 milljarða króna milli ára en atvinnuleysisbætur hækkuðu um 16,7 milljarða. Álagning ríkisskattstjóra nú er sú fyrsta eftir sameiningu skattumdæma um síðustu áramót. Í frétt frá embættinu segir að skil á framtölum hafi verið betri en síðustu ár. Áætla hafi þurft á mun færri einstaklinga en í fyrra eða 13.750 miðað við 22.330 framteljendur fyrir tveim árum.

Orkubúskapur styrkist en veiði dvínar

Miðlunarlón við virkjanir Landsvirkjunar eru að fyllast tveimur til fjórum vikum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er segir í frétt frá fyrirtækinu.

Ráðherra fagnar viðræðum

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir líkindi með stöðu Íslendinga í upphafi aðildarviðræðna við ESB og stöðu Svía þegar þeir gengu í sambandið.

Hugar að sportbátamiðstöð

Ný bæjarstjórn á Ísafirði veltir upp möguleikanum á því að gera bæjarfélagið að sportbátamiðstöð. Frá þessu er greint í Bæjarins besta.

Hraðakstur á leið í Herjólf

Nokkuð hefur borið á hraðakstri á nýja veginum að Landeyjarhöfn undanfarna daga að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Þónokkrir hafa verið sektaðir fyrir hraðakstur.

Hefðu átt að fresta sjálfkrafa

Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem tóku verðtryggð húsnæðislán árið 2005 hafa fengið send bréf þess efnis að nú sé komið að vaxtaendurskoðun. Vextir lánanna voru upphaflega 4,15 prósent en lánasamningar kveða á um rétt bankans til hækkunar vaxtaálags á fimm ára fresti. Með bréfinu fylgdi umsóknareyðublað þar sem lánþegar geta sótt um frest á vaxtaendurskoðunardegi til þriggja ára.

Hafa fundið 185 beinagrindur

Beinagrind af manneskju með Pagets-sjúkdóminn fannst við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri í Fljótsdal í vikunni. Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur og ábyrgðarmaður verkefnisins, segir margt merkilegt hafa komið í ljós við uppgröftinn, en þetta er níunda sumarið sem unnið er við hann.

Mannfólk til sýnis í fyrsta sinn

Mannskepnan verður í fyrsta sinn til sýnis í sínu náttúrulega umhverfi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um næstu helgi. Sýndir verða þrír karlar og ein kona.

Pantanastaða sterk og afkoma góð

Hagnaður heildarstarfsemi Marel eftir skatta á öðrum fjórðungi þessa árs var 117 milljónir evra (18,4 milljarðar króna), en var á sama tímabili í fyrra 17,3 milljarðar evra (2.716 milljarðar króna). Mikill munur skýrist af einskiptiskostnaði í ár og eignasölu í fyrra.

Bankastjórar með tvöföld laun forsætisráðherra

Bankastjórar fjögurra stærstu viðskiptabankanna höfðu í fyrra allir hærri laun en forsætisráðherra landsins þrátt fyrir stefnu stjórnvalda um að engir starfsmenn á vegum ríksins hafi hærri laun en forystumaður ríkisstjórnarinnar.

Miðbæjarskólinn fær 120 milljónir til aðlögunar

Fjármálaráðherra lagði fram tillögu á fundi ríkisstjórnar í byrjun síðustu viku um að leggja fram 500 milljónir króna í uppbyggingu og viðhald ýmissa opinberra bygginga í landinu. Fjárframlagið var samþykkt á fundinum og listi yfir byggingarnar var síðar samþykktur í vikunni af efnahags- og viðskiptanefnd.

Fjórðungs hækkun á leiguverði á hálfu ári

Fermetraverð leiguhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 17,5 prósent á sex mánuðum. Stærstu eignirnar hækka mest. Leiguverð hefur ekki verið hærra síðan á vormánuðum fyrir hrun. Leigjendur vantar málssvara.

Hörð keppni um tjaldstæði

Gestir Þjóðhátíðarinnar árlegu í Vestmannaeyjum eru margir hverjir mættir á svæðið og byrjaðir að koma sér fyrir. Heimamenn merktu fyrir tjöldum sínum í gærdag, en sá siður hefur lengi ríkt í dalnum.

Tekjur Íslendinga: Skoðaðu frítt á Vísi

Vissir þú að Jón Gnarr er með hærri tekjur en Jóhanna Sigurðardóttir? Eða að Hreiðar Már fór úr 36 milljóna tekjum í 300 þúsund krónur? Nú er hægt að skoða tekjur um þúsund Íslendinga frítt á Vísi.

Nokkur fíkniefnamál í Vestmannaeyjum

Samkvæmt varðstjóra hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum er eitthvað að fólki komið til eyjarinnar. Margir af þeim eru í „yngri kantinum“, eins og hann orðaði það. Þá er einhver ölvun hjá fólki en engin alvarleg atvik hafa komið upp.

„Þetta var bara algjört bull“

Björgólfur Thor Björgólfsson segir að einkavæðingarferlið hafi stökkbreyst frá því að hann keypti Landsbankann ásamt föður sínum í árslok 2002. Í ítarlegu viðtali við Viðskiptablaðið á morgun segir Björgólfur að þeir feðgar haldið að þeir myndu fá einhvern tíma til að koma Landsbankanum á ról.

Íslendingum ber að borga Icesave

Innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins var ekki innleidd hér með réttum hætti. Það er önnur meginástæða þess að Íslendingum beri að greiða fyrir Icesave reikninga Landsbankans.

Umhverfisstofnun rannsakar mengunarslysið á Eskifirði

Umhverfisstofnun mun óska eftir upplýsingum um hvort rétt hafi verið staðið að málum í tengslum við mengunarslysið á Eskifirði þegar löndunarvatn blandaðist neysluvatni bæjarbúa fyrr í mánuðinum.

Ostabúðin í fullum rekstri

Ostabúðin á Bitruhálsi í Reykjavík er í fullum rekstri, enda þótt Osta- og smjörsalan hafi þar ekki starfsemi lengur.

Sjáiði blokkirnar

Rússar eru hreinlega að drepast úr hita. Þar hefur gengið yfir margra vikna hitabylgja og hvert hitametið slegið af öðru.

Davíð Oddsson með milljónir í laun

Ritstjórar Morgunblaðsins eru samtals með um 6 milljónir í mánaðarlaun. Morgunblaðið er sem kunnugt í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur frá Vestmannaeyjum sem er skattadrottning Íslands í ár.

Aftur orðið fært inn í Bása

Vegurinn inn í Bása er orðinn fær öllum jeppum en í gær og morgun flæddi Krossá eftir veginum með þeim afleiðingum að hann varð ófær.Að sögn Skúla Skúlasonar framkvæmdastjóra Útivistar var fengin grafa til beina ánni í rétta átt og nú í dag hafi vegurinn verið opnaður aftur. „Það var orðinn talsverður vatnsflaumur eftir veginum en okkur tókst að koma þessu í lag," segir Skúli.

Runólfur tjáir sig ekki

Runólfur Ágússtsson, umboðsmaður skuldara, vildi ekki tjá sig um skuld sem hann skildi eftir sig í eignarhaldsfélagi í aðdragandi hrunsins, í samtali við fréttastofu. Hann segir von á yfirlýsingu í dag vegna málsins.

Bóksalinn í Kabúl vann gegn Seierstad

Norska blaðakonan og rithöfundurinn Åsne Seierstad hefur verið dæmd til þess að greiða eiginkonu bóksalans í Kabúl 125 þúsund norskar krónur í miskabætur fyrir samnefnda bók sem hún skrifaði árið 2001.

Aldi bróðir látinn - skiptu heiminum á milli sín

Theo Albrecht, sem stofnaði lágvöruverslunarkeðjuna Aldi í Þýskalandi ásamt bróður sínum Karl, er látinn - 88 ára gamall. Bræðurnir voru tveir ríkustu menn Þýskalands frá því hugmynd þeirra að stofna lágvöruverslun gekk upp og sló í gegn.

Eitt prósent þjóðarinnar á auðinn

Um eitt prósent þjóðarinnar, vel innan við fjögur þúsund manns, á yfir þrjú hundruð og fimmtíu milljarða króna eignir, eða sem slagar hátt upp í fjárlög íslenska ríkisins.

Umboðsmaður skuldara í skuldasúpu

Runólfur Ágústsson nýráðinn umboðsmaður skuldara skildi eftir sig hálfan milljarð í eignarhaldsfélagi sem hann átti í aðdraganda hrunsins. Útlit er fyrir að Sparisjóður Keflavíkur og aðrir bankar þurfi að afskrifa skuldina þar sem félagið er eignalaust.

Máttur Samtaka lánþega mikill

Í skriflegu svari FME til umboðsmanns Alþingis vegna fyrirspurnar umboðsmanns um lagalegan grundvöll tilmæla FME og Seðlabankans um uppgjör á gengistryggðum lánum segir að hættuástand hefði getað skapast í kjölfar tveggja yfirlýsinga sem Samtök lánþega sendu út hinn 23. og 26. júní síðastliðinn. Í þessum yfirlýsingum hvöttu samtökin almenning annars vegar til að hætta að greiða af lánum og hins vegar til að taka innstæður sínar úr bönkum.

Vörubílstjórinn sem seldi Ritz hótelið

Atvinnulaus vörubílstjóri í Bretlandi hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að reyna að selja Ritz lúxushótelið í Piccadilly fyrir 250 milljónir sterlingspunda.

Skipting 60 hæstu skattgreiðenda eftir bæjarfélögum

Þegar litið er á tölurnar yfir 60 hæstu skattgreiðendur landsins sést að flestir þeirra eru búsettir í Reykjavík eða 35. Þar á eftir kemur Garðabær en þar eru 6 sem komast inn á listann. Seltjarnarnesið fylgir svo fast á eftir en þar eru 5 á listanum svo eru 4 sem búa í Kópavogi og tveir í Hafnarfirði. Restin er dreifð yfir landsbyggðina.

Harður árekstur á Suðurlandsbraut

Tveir bílar lentu í árekstri á Suðurlandsbraut við Skeifuna á ellefta tímanum í morgun og hefur lögreglan lokað fyrir umferð við Engjaveg og Skeiðarvog. Einn var fluttur á slysadeild eftir áreksturinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vegurinn lokaður meðan unnið er að hreinsun á slysstað en lögreglan gat ekki gefið upp frekari upplýsingar um málið.

Katalónía bannar nautaat

Þingið í Katalóníuhéraði á Spáni hefur samþykkt að banna nautaat. Bannið tekur gildi árið 2012.

Sjá næstu 50 fréttir