Fleiri fréttir

Oftast innkölluð vegna eiturs

Hættuleg leikföng eru enn á markaði víðs vegar í Evrópu þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir og tilkynningar heilbrigðis­yfirvalda. Neytendastofa sendi frá sér tilkynningu á heimasíðu sinni í gær þar sem varað er við barnaleikföngum sem hafa verið innkölluð í Evrópu. Ekki er vitað til þess að vörurnar séu á markaði hér á landi.

Fundu bæjarstjóra milli auglýsinga

Enginn þeirra 23 sem sóttu um starf bæjarstjóra Vesturbyggðar hefur að sögn Ingimundar Óðins Sverrissonar, forseta bæjarstjórnar, gert athugasemdir við að þeim var öllum hafnað og Ásthildur Sturludóttir,

Átelur stjórnvöld vegna Magma-máls

Viðskiptaráð er mjög óánægt með framgöngu ríkisstjórnarinnar í máli kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Í greinargerð frá Viðskiptaráði um málið segir að hringlandaháttur, stefnuleysi og ákvarðanafælni stjórnvalda í stórum og mikilvægum málum geri mörgum aðilum í atvinnulífinu erfitt um vik.

Setti lögreglumenn í stórhættu

Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á Malarhöfða í Reykjavík í kvöld eftir að hafa verið veitt eftirför um Suðurlandsveg og Hellisheiðina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi veitti lögreglumaður sem var í eftirlitsflugi með þyrlusveit Landhelgisgæslunni eftirtekt.

Segir lækna ekki vera neitt hátekjufólk

Laun lækna sem birtust í tekjublaði Frjálsrar verslunar lýsa engan veginn raunveruleikanum hjá almennum læknum, að mati þeirra sem aðild eiga að Félagi almennra lækna. Vísir sagði frá því í gær að samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar voru 110 læknar með yfir milljón á mánuði í tekjur á síðasta ári.

Þúsundir samankomnar á Unglingalandsmóti

„Þetta er alveg glymrandi. Það hefur allt verið á áætlun og allir voða kátir og glaðir, bæði þjálfarar, keppendiur, foreldrar og aðrir gestir," segir Helga Guðrún Guðjónsdóttir. 13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands fer nú fram í Borgarnesi. Helga Guðrún segir að allt gangi gangi vel. „Þannig að við brosum bara í hring. Öll sem eitt," segir Helga

Örfáir stöðvaðir fyrir hraðakstur

Lögreglan fylgdist með umferðarhraða á Suðurlandsvegi við Bláfjallaveg eftir hádegi í dag. Á einni klukkustund óku 773 ökutæki þessa leið í suðurátt. Af þeim óku 16 ökumenn of hratt eða einungis um 2% allra ökumanna sem óku þessa leið. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 kílómetra hámarkshraði. Sá sem ók hraðast var á 107 km/klst.

Viðrar vel til útileguferða

Veðurútlit fyrir helgina er mjög gott og hefur farið batnandi eftir því sem nær hefur dregið helginni, segir Elísabet Margeirsdóttir, veðurfréttamaður á 365 miðlum. Hún segir að veðurútlit á mánudag sé jafnframt mun betra en það var. „Það verður minni úrkoma en gert hafði verið ráð fyrir og vindur verður alveg í lágmarki framyfir verslunarmannahelgina. Það verður hæg breytileg átt og sumsstaðar hafgola,“ segir Elísabet.

35 þúsund skoða tekjur Íslendinga

Tekjusíður Vísis, þar sem hægt er að skoða tekjur um þúsund Íslendinga, hafa slegið í gegn síðan þær komu á vefinn á miðvikudagskvöld. Nú hafa 35 þúsund manns skoðað þær og er ekkert lát á vinsældunum.

Óttast nýtt borgarastríð í Líbanon

Það er til marks um hveru óttaslegnir menn eru að leiðtogar Sýrlands og Saudi-Arabíu komu saman í flugvél til Beirut í dag, en þjóðirnar hafa lengi bitist um áhrif í Líbanon.

Fimmtán þúsund manns í Vestmannaeyjum

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Lögreglunnar í Vestmannaeyjum er áætlað að fimm þúsund manns komi til eyjarinnar í dag. Sjö þúsund komu í gær og „svo er eithvað af heimamönnum,“ segir hann. Hann áætlar að 14 til 15 þúsund manns séu á eyjunni.

Stöð 2 braut ekki gegn útvarpslögum

Fyrirkomulag kosningasjónvarps Stöðvar 2 daginn fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar fól ekki í sér mismunun samkvæmt útvarpslögum. Þetta er niðurstaða útvarpsréttarnefndar sem hefur fjallað um kæru þess efnis.

Á leið til Haítí

Tveir heilbrigðismenntaðir starfsmenn á vegum Rauða krossins halda til Haítí á mánudaginn.

Herjólfur á áætlun

Ferjan Herjólfur siglir samkvæmt ætlun í dag, samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun. Verið er að ljúka við að hreinsa upp svæðið við bryggjuna.

Biðröð eftir því að komast að áfenginu

Gert er ráð fyrir að um 40 þúsund manns komi í Vínbúðirnar í dag, segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, í samtali við Vísi. Hún segir að starfsemi Vínbúðanna hafi gengið vel í dag. „Ég sé á Heiðrúnu að þar hefur verið þétt traffík," segir Sigrún Ósk.

Herjólfur strandaði um stund

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur strandaði um stund, þegar skipið var að leggja af stað með 500 farþega frá Landeyjahöfn áleiðis til Vestmannaeyja á miðnætti í gærkvöldi. Siglingastofnun hefur þegar gripið til aðgerða til að tryggja siglingu skipsins um höfnina.

Dætur morðkvendis í áfalli

Dætur frönsku konunnar sem hefur viðurkennt að hafa kæft átta börn sín strax eftir að þau fæddust eru skelfingu lostnar yfir fréttunum.

Hádegisferð Herjólfs hefur verið flýtt

Vegna óhagstæðra sjávarfalla þarf að flýta ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja sem fara átti klukan 12:00. Ferðin verður nú farin klukkan 11:30., að því er segir í tilkynningu frá Eimskip.

Tvö hjól undir bílnum en áfram skröltir hann þó

Ölvaður ökumaður, sem lögreglan í Árnessýslu stöðvaði austan við Laugarvatn í gærkvöldi hefur verið búinn að aka svo lengi á öðru framdekkinu sprungnu, að það og felgan voru horfin og bremsuskálin var eydd upp til agna.

Ungt par með barn í bílnum tekið undir áhrifum fíkniefna

Ungt par, sem var stöðvað á bíl sínum við eftirlit lögreglunnar í Borgarnesi í gærkvöldi, reyndist undir áhrifum fíkniefna og fundust auk þess fíkniefni á karlmanninum. Með í för var lítið barn þeirra og ætlaði fólkið í langferð.

Þýskt eftirlitsskip á rúntinum undan Arnarstapa

Fólk á Arnarstapa á Snæfellsnesi undraðist í gærkvöldi að þýska eftirlitsskipið Meerkatze skyldi lóna þar fram og aftur nokkrar mílur undan ströndinni, líkt og skipverjar væru að leita að einhverju.

Merki um líf hafa fundist á Mars

Vísindamenn hafa fundið steina sem þeir segja að gætu innihaldið steingerðar leifar lífvera á Mars fyrir milljörðum ára.

Andstæðingar innflytjendalaga fögnuðu

Andstæðingar umdeildra laga sem stemma eiga stigu við fjölgun ólöglegra innflytjenda í Arizona-ríki í Bandaríkjunum fögnuðu í gær þegar dómari féllst á kröfu alríkisstjórnarinnar og setti lögbann á lagasetninguna.

Þúsundir Rússa á flótta undan skógaeldum

Þúsundir Rússa eru nú á flótta undan miklum skógareldum sem geysa skammt austan við Moskvu. Þrjú þorp eru brunnin til grunna en slökkviliðið ræður ekkert við eldanna og raunar eru fregnir um að alltof fáir slökkviliðsmenn séu að reyna að ná tökum á eldunum.

Þurfa að skila rökstuðningi eftir eina viku

Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir hafa eina viku til að skila inn til dómarans Charles E. Ramos í New York rökstuðningi fyrir því að gögn í vörslu hússtjórnar lúxusíbúðablokkar á Manhattan og Royal Bank of Canada skuli ekki afhent slitastjórn Glitnis.

Telja ríkið útrýma samkeppni í lyfjum

Frumtök, samtök sautján lyfjafyrirtækja sem starfa á Íslandi, mótmæla því harðlega að Lyfjaverslun Íslands verði endur­vakin, eins og greint var frá í Fréttablaðinu í vikunni að stjórnvöld hefðu til skoðunar.

Kríuvarpið í Rifi líkist helst kirkjugarði

Of fáir kríuungar hafa komist á legg á stóru varpsvæðunum utarlega á Snæfellsnesi og gengur því á kríustofninn við Ísland. Þetta kemur fram í doktorsrannsókn sem Freydís Vigfúsdóttir hefur gert undir leiðsögn Tómasar G. Gunnarssonar vistfræðings, við Háskólasetur Snæfellsness. Stykkishólmspósturinn greinir frá þessu.

Stal punghlíf og axlaböndum

Tvítugur Akureyringur hefur verið dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ótal afbrot framin á síðasta ári. Maðurinn var ákærður fyrir eina líkamsárás og gerðist einnig sekur um fjölda innbrota og þjófnaða.

Slökkviliðsmenn á Akureyri telja kjarasamning brotinn

Slökkviliðsmenn á Akureyri fá ekki greiddan frítökurétt né fá að taka hann út í fríum. Slíkt er brot á kjarasamningum og lögum frá árinu 1997, samkvæmt framkvæmdastjóra Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSOS). Ítrekað hefur verið reynt að semja við bæinn að hálfu slökkviliðsmanna en ekkert þokast í málinu. Samkvæmt lögum á frítökuréttur að koma fram á launaseðlum starfsmanna en það hefur til þessa aldrei gerst.

Hundruð hafa ekki rétt á atvinnustyrk

Um 500 manns í Reykjavík þiggja bætur frá Reykjavíkurborg þar sem þeir hafa ekki bótarétt hjá Vinnumálastofnun. Þetta á til dæmis við um þá sem hafa dvalið lengi erlendis. Þeir standa verr að vígi þegar kemur að umsóknum um atvinnu, þar sem atvinnurekandi getur ekki fengið styrk með þeim úr Atvinnuleysistryggingarsjóði.

Hundrað manns við störf við nýju höfnina

Sjö björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar taka að sér gæslustörf við Landeyjahöfn um helgina. Verða þetta í kring um hundrað manns sem vinna með einum eða öðrum hætti við höfnina.

Herða eftirlitið í höfuðborginni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með sérstakt eftirlit með eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja um helgina. Þá verður sérstakt hverfaeftirlit í umdæminu vegna þess hversu algeng innbrot eru alla jafna um verslunarmannahelgina.

Búist við metfjölda á Þjóðhátíð

Stærsta ferðamannahelgi ársins er gengin í garð. Búist er við að Þjóðhátíð í Eyjum verði sú fjölmennasta til þessa. Umferðarstofa biður ökumenn að sýna tillitsemi og aðgát. Veðurspáin fyrir landið er hin besta.

Ágóði vatns til Rauða krossins

Rauði kross Íslands mun fá allan ágóða af sölu Pure Icelandic vatnsins á Íslandi. Samningur þess efnis var undirritaður í gær.

Sjá næstu 50 fréttir