Fleiri fréttir

Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og Lundúna

Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og London frá Akureyri núna eftir hádegið. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan þrjú og vélin til London klukkustund síðar eða klukkan fjögur. Sætaferðir fyrir farþega eru frá BSÍ .

Enn takmarkanir á flugumferð

Enn eru miklar takmarkanir á flugumferð um landið vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Ekki er hægt að nota Keflavíkurflugvöll fyrir millilandaflug og fer það því enn um flugvellina á Akureyri og á Egilsstöðum.

Drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli

Miklar drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Hraun rennur nú hægt til norðurs og bræðir ís en ekki er talin flóðahætta á svæðinu. Karen Kjartansdóttir ræddi við jarðfræðing á Veðurstofu Íslands.

Vilja skýrari reglur um forsetann

Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, telur að forsætisráðuneytið verði að setja nýjar siðareglur um forsetaembættið. Menn verði að gera það upp við sig hvaða hlutverki forsetaembættið eigi að gegna í samfélaginu.

Enn í öndunarvélum eftir alvarlegt umferðarslys

Stúlkurnar þrjár, sem slösuðust alvarlega í umferðarslysi við Mánatorg norðan Keflavíkur í gærmorgun, eru enn í öndunarvélum á gjörgæsludeild Landspítalans. Stúlkurnar eru á aldrinum 18 til 19 ára. Að sögn læknis á vakt í morgun er líðan þeirra óbreytt frá því í gær.

Hátt í hundrað manns ætla að taka þátt í hreinsunarstarfi í dag

Nóttin var róleg í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli. Lögreglan á Hvolsvelli á í dag von á hátt í hundrað manns, félögum björgunarsveita, jeppaklúbbnum 4x4, félögum Fésbókarsíðu og öðrum sem vilja aðstoða við hreinsun og störf á bæjum undir Eyjafjöllum.

Gistu fangageymslur eftir að hafa ekið á ljósastaur

Fjórir karlmenn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að bifreið sem þeir voru í var ekið á ljósastaur í Hafnarfirði. Þeir voru allir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og fundust fíkniefni í bifreið þeirra. Ekki er ljóst hver mannanna fjögurra ók bifreiðinni. Þeir voru handteknir rétt fyrir klukkan hálfsex í morgun og munu lögreglumenn ræða við þá þegar líður á daginn.

Segir Grikkjum að óttast ekki AGS

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að Grikkir þurfi ekki að óttast Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Óttast að Madeleine skyggi á Viktoríu systur sína

Tilkynnt var um það í dag að Madeleine svíaprinsessa væri hætt með kærastanum sínum, Jonas Bergstrom. Þetta þykir sæta nokkrum tíðindum enda hafði jafnvel verið búist við því að hjónaleysin myndu ganga upp að altarinu áður en langt um væri liðið.

Engin merki um að gosi sé að ljúka

Gosmökkur stendur upp frá gígnum í Eyjafjallajökli til suðvesturs upp í 4 kílómetra hæð. Gjóskufall er lítið og ekki hefur frést af öskufalli á láglendi. Gróflega áætlað er vatnsrennsli frá Gígjökli um 100 til 120 rúmmetrar á sekúndu, samkvæmt tilkynningu sem send var frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans nú á áttunda tímanum.

Mikilvægar vísbendingar um refsiverða háttsemi

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis má finna mikilvægar vísbendingar um umfangsmikla refsiverða háttsemi í rekstri fjármálastofnana og tengdra aðila. Þetta kom meðal annars fram í erindi Sigurðar Tómasar Magnússonar, prófessors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu um rannsóknarskýrsluna sem fram fór í HR í dag.

Einn með allar tölur réttar í lottóinu

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann tæpum 10,6 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 28, 29, 35, 37, 38. Miðinn var seldur í Kolaportinu við Tryggvagötu. Þá var einn spilari með fimm réttar tölur í réttri röð í Jokernum og er hann tveimur milljónum ríkari.

Haförn orpinn í beinni útsendingu

Haförn er orpinn í beinni útsendingu frá hreiðri úr eyju við innanverðan Breiðafjörð. Ef allt gengur að óskum ætti ungi að skríða úr egginu eftir mánuð eða svo.

Lífrænt eldsneyti á Þorvaldseyri í sumar

Þrátt fyrir ákvörðun um að gera hlé á búskap um óákveðinn tíma stefnir bóndinn á Þorvaldseyri að því að framleiða lífrænt eldsneyti þar í sumar.

Karlmaður handtekinn vegna óláta

Karlmaður var handtekinn vegna óláta við Austurvöll, skammt frá veitingastaðnum Kaffi París, seinni partinn í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er maðurinn en í hennar haldi en ekki hafa fengist nánari skýringar um málavöxtu.

Krían er komin

Fuglaáhugamenn á Hornafirði sáu kríuhóp við Ósland á Höfn í dag. Ragnheiður Gestsdóttir, íbúi á Hornafirði, tilkynnti þetta á facebook-síðu sinni og sagði að þarna væru um tíu kríur. Þetta er fyrsta tilkynningin í ár um kríuna.

Vél Icelandair fór í loftið um tvöleytið

Flug Icelandair til Glasgow sem áætlað var að færi klukkan eitt í dag fór í loftið rétt eftir klukkan tvö, samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Reyna að rýma til fyrir strandaglópa

Bresk flugfélög biðja nú farþega sem eiga bókað far um helgina um að fresta heimferð sinni til að skapa pláss fyrir þá farþega sem urðu strandaglópar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Enn órói í Eyjafjallajökli

Órói er enn í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum sérfræðinga Veðurstofu Íslands á fjölmiðlafundi í Skógarhlíð í morgun. Öskuframleiðsla er enn í gangi en gosmökkurinn er undir 3 km hæð og mælist því ekki á ratsjá.

Segir mikilvægt að strandveiðar hefjist á tilsettum tíma

Jón Bjarnason, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt fyrir atvinnulífið á landsbyggðinni að strandveiðar hefjist á tilsettum tíma. Samkvæmt frumvarpi ráðherra eiga strandveiðar að hefjast um næstu mánaðamót en Alþingi á enn eftir að ljúka annarri umræðu um málið.

Flutt meðvitundarlaus á gjörgæsludeild

Þremenningarnir sem fluttir voru á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í morgun hafa allir verið fluttir meðvitundarlausir á gjörgæsludeild, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá vakthafandi lækni á slysadeildinni.

Fjórir fluttir á spítala eftir bílveltu

Fjórir voru fluttir á spítala eftir að bíll valt við Mánatorg norðan við Keflavík um hálfsjöleytið í morgun. Í bílnum voru þrjár stúlkur og einn piltur.

Gosmistur yfir höfuðborgarsvæðinu

Mistur liggur yfir höfuðborgarsvæðinu nú og segir sérfræðingur frá Veðurstofunni að það sé af völdum gossins í Eyjafjallajökli. Dökkan mökk leggur nú frá eldstöðvunum og einhver öskumyndun er enn til staðar.

Innanlandsflug liggur niðri

Innanlandsflug mun liggja niðri að minnsta kosti til klukkan hálfeitt í dag, samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands vegna gosmakkarins sem leggur yfir suðvesturhluta landsins. Kannað verður með flug klukkan hálfeitt.

Rannsaka þarf sparisjóðina

Rannsóknar­nefnd Alþingis telur að íslenska sparisjóðakerfið verðskuldi sérstaka athugun en að það sé Alþingis að taka ákvörðun slíka rannsókn. Ríkið tók yfir rekstur Byrs og Sparisjóðs Keflavíkur í fyrrakvöld.

Allir þingmenn frá 2008 kunni að víkja

Innan Samfylkingarinnar hefur þess verið krafist að allir þeir sem sátu á Alþingi fram að hruni 2008 segi af sér. Ekki er óhugsandi að þetta sé réttmæt krafa og nauðsynlegt sé að verða við henni. Svo segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Öllu vanur eftir þrjú eldgos um ævina

Kristján Guðmundsson býr að Steinum undir Eyjafjöllum og er því í nágrenni eldgossins í jöklinum. Hann kippir sér ekkert upp við eldsumbrotin, enda öllu vanur þar sem þetta er þriðja gosið sem hann sér í návígi.

Hefur trú á að grasið spretti

„Ég hef fulla trú á að grasið spretti upp úr öskunni í sumar því hér er rigningasamt og hlýtt en ég óttast að erfitt verði að heyja á túnunum þar sem askan rótast upp undan vélunum.“ Þetta segir Guðni Þorvaldsson, doktor í gróðurfræðum og einn þeirra sem nú sinnir kindum sínum og klárum við erfiðar aðstæður austur undir Eyjafjöllum. Jörðin hans Raufarfell er á því svæði sem öskulagið er hvað þykkast.

Spara á því að taka strætó

Strætó bs. hefur birt útreikninga sem sýna að taki fólk strætó til og frá vinnu eða skóla, megi spara um 150 þúsund krónur á ári. Þar er miðað við að áfangastaðurinn sé innan við tíu mínútur frá heimili.

Áform um hækkun gjalda á flugið

Kostnaði vegna flugmála verður mætt í auknum mæli með notendagjöldum á næstu árum. Á það meðal annars við um rekstur leiðsögukerfis innanlandsflugsins, viðhaldsverkefni á Keflavíkurflugvelli, byggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll og stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri. Bæði stendur til að hækka gjaldskrár og leggja á ný gjöld. Fjallað er um þessi áform í nýrri samgönguáætlun en ekki er gerð nákvæm grein fyrir þeim.

Samþykktu vantraust á stjórn

Aðalfundur Lífeyrissjóðs verkfræðinga samþykkti á þriðjudag yfirlýsingu um vantraust á stjórn sjóðsins síðastliðið starfsár. Stjórnin eigi að segja af sér og boða aukafund til að kjósa lífeyrissjóðnum nýja stjórn.

Akureyrarflugvöllur líka úr leik

Fullt var út úr dyrum í gær í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli sem þjónaði sem miðstöð millilandaflugs Íslendinga. Breyttar vindáttir lokuðu þó flugvellinum um miðnæturbil.

Veiðibannið í endurskoðun

Tillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins um breytt fyrirkomulag hvalveiðibanns fyrir næstu tíu árin er sett fram í þeirri von að hún nægi til að stilla til friðar innan ráðsins, þannig að bæði hvalveiðiþjóðir og andstæðingar hvalveiða megi vel við una.

Hreinsað á Önundarhorni

Þegar hefur verið hafist handa við hreinsum á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum, en jörðin varð sérstaklega illa úti þegar Svaðbælisá hljóp skömmu eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli.

Stálust til veiða í Þorleifslæk

Fjórir menn, sem sást til við veiðar í Þorleifslæk, flúðu af hólmi úr Stöðvarhyl, einum besta veiðistað árinnar, þegar aðvífandi veiðimaður innti þá eftir veiðileyfi. Mun þetta ekki vera eina dæmið um að sést hafi til veiðiþjófa í Þorleifslæk í vor að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.

Viðhald fyrir 13 milljónir króna

Viðhaldskostnaður Grímseyjarferjunnar Sæfara nemur minnst þrettán milljónum króna á þessu ári, samkvæmt nýrri samgönguáætlun.

Eru á móti bótum frá ríkinu

Flugumferð Finnair, ríkisflugfélags Finna, færist í eðlilegt horf um helgina eftir að hafa farið mjög úr skorðum í vikunni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu félagsins í gær var haft eftir Mika Vehviläinen, forstjóra Finnair, að farþegar sem orðið hefðu fyrir röskunum yrðu aðstoðaðir eftir megni. Enn voru þá nokkur þúsund strand.

Grikkir þurfa að skera grimmt niður

George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, fór í gær formlega fram á aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem á að tryggja að ríkissjóður landsins lendi ekki í greiðsluþroti á næstunni.

Ungir bændur fái nýliðastyrk

Aðalfundur Samtaka ungra bænda beindi því til stjórnar samtaka sinna að beita sér fyrir því að komið verði á „raunverulegum nýliðunarstyrkjum til að tryggja endurnýjun í landbúnaði“ eins og segir í ályktun fundarins sem haldinn var við Mývatn 17. apríl.

Sektuð fyrir að aka með blæju

Frönsk kona var nýlega sektuð um 22 evrur (jafnvirði tæpra 3.800 króna) fyrir að aka með höfuðblæju. Taldi lögregla að blæjan byrgði henni fulla sýn í umferðinni.

Sjá næstu 50 fréttir