Fleiri fréttir

Vonbrigði með lagasetninguna

Samtök evrópskra flugumferðarstjóra hafa lýst yfir vonbrigðum með þau áform ríkis­stjórnarinnar að setja lög gegn hugsanlegu verkfalli flugumferðarstjóra. Í bréfi sem samtökin sendu forsætisráðherra er fullyrt að þetta brjóti gegn Evrópusáttmála um mannréttindi og minnt á að verkfallsréttur sé verndaður af alþjóðlegum lögum.

Óveruleg áhrif og skammvinn

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun Mjólkárvirkjunar í Ísafjarðarbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðunina má kæra til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 20. apríl.

Enn meiri samdráttur í spilunum

Dragist samningar um Icesave enn á langinn má gera ráð fyrir að atvinnuleysi, auk samdráttar landsframleiðslu og fjárfestingar, verði mun meira en Seðlabankinn hefur gert ráð fyrir í spám sínum.

Ókeypis í veiði og byrjað fyrr

Borgarráð samþykkti í gær tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar úr Vinstri grænum um að beita fulltrúa borgarinnar í stjórn Veiðifélags Elliðavatns til að fá það samþykkt að veiðitíma í vatninu verði breytt þannig að hann hefjist 1. apríl í stað 1. maí. Breyting taki gildi strax á þessu ári og framvegis. Þorleifur lagði einnig til að skoðað yrði að gera borgarbúum kleift að veiða ókeypis í Elliðavatni. Borgarráð vísaði þeirri tillögu til umhverfis- og samgönguráðs. - gar

Endurkoma á markað í óvissu

Ísraelska lyfjafyrirtækið Teva hafði betur í samkeppninni um þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Actavis var með í baráttunni frá upphafi. Erlendir fjölmiðlar hafa eftir greinendum að niðurstaðan sé vonbrigði fyrir þá sem eftir sitji. Áætlanir voru á borðinu um skráningu Actavis á hlutabréfamarkaði gengju kaupin í gegn, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Óvíst er hvort af verði nú.

Rekja sýklaslóð í stað fingrafara

Innan tíðar gætu glæpamenn átt erfiðara með að fela slóð sína, því þótt fingraför séu þurrkuð út skilur fólk eftir sig sýkla á öllu sem það snertir.

Með lík föðurins í frystikistu

Lík sjötugs fjölskylduföður í Kína hefur verið geymt í meira en ár í frystikistu á heimili fjölskyldu hans, sem þorir ekki að láta grafa líkið, þar sem hún telur mikilvægt að geyma það vegna gruns um að maðurinn hafi verið myrtur.

Lokatilraun gerð um helgina

Demókratar á Bandaríkjaþingi ætla að gera lokatilraun til að koma frumvarpi sínu um umbætur í heilbrigðistryggingum í gegnum þingið um helgina. Í gær kynntu þeir nýjustu útgáfu fulltrúadeildar þingsins, sem á að kosta ríkissjóð 940 milljarða dala næsta áratug en tryggja 30 milljón manns heilbrigðistryggingar í viðbót við þá sem nú þegar njóta þeirra. Með þessari nýjustu útfærslu á jafnframt að takast að draga úr fjárlagahalla um einn milljarð dala næstu tíu árin.

Stýrislausum fiskibáti bjargað

Varðstjórar Landhelgisgæslunnar urðu kl. 16:37 varir við óvenjulega siglingu fiskibáts í fjareftirlitskerfum vaktstöðvar siglinga. Var báturinn staðsettur á Skerjafirði samkvæmt tilkynningu frá gæslunni.

Grætur sig í svefn á hverri nóttu

„Ég er að verða matarlaus. Ég veit ekki hvernig ég á að gefa börnunum mínum að borða“ segir grátklökk einstæð tveggja barna móðir á þrítugsaldri. Hún gagnrýnir að hún þurfi nú að framvísa launaseðlum og reikningum til að geta fengið mataraðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.

25000 fórust í Dresden

Eftir fimm ára rannsóknir hefur sérskipuð nefnd í Þýskalandi komist að þeirri niðurstöðu að um 25 þúsund manns hafi farist í loftárásum bandamanna á þýsku borgina Dresden í síðari heimsstyrjöldinni.

Hjálpa fólki við að fylla út skattaskýrsluna

Laganemar í HR ætla að taka á móti fólki í Nauthólsvík á laugardag sem vill aðstoð við að fylla út skattaframtalið. Margrét Rán Kærnested, framkvæmdastjóri lögfræðiþjónustu Lögréttu, segir að verkefnið sé unnið í samstarfi við Deloitte.

Innbrot í söluturna og yfir 20 bíla upplýst

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í 21 bíl í Árbæ í síðasta mánuði og fjóra söluturna og myndabandaleigur um síðustu helgi, að fram kemur á vef lögreglunnar. Þjófarnir í þessum málum reyndust vera alls sjö, sex piltar og ein stúlka, á aldrinum 17 til 22 ára.

Lýst eftir vitnum að íkveikju

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum af því þegar reynt var að kveikja í möstrum vestan við Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg í nótt.

Bætt aðstaða fyrir börn og ungmenni í austurhluta borgarinnar

Borgarráð samþykkti í dag að gengið verði til samninga um aukin afnot af Egilshöll fyrir íþróttafélög í Grafarvogi sem og aðstöðu fyrir frístundastarf ÍTR í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Jafnframt verður gengið til samninga um afnot af svokölluðu Mest-húsi í Norðlingaholti til að koma upp aðstöðu fyrir fimleika, aðrar íþróttir og frístundastarf fyrir börn og unglinga í austurhluta borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra.

Saksóknurum fjölgað í efnahagsbrotadeild

Ríkislögreglustjóri ætlar að ráða nýjan saksóknara sem mun starfa við hlið þess sem nú starfar, segir Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá embættinu.

Dagur: Borgin setur 230 milljónir í golfvöll

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sé í kosningaham. Tillaga sem hún lagði fram í borgarráði í dag um að 230 milljónir verði settar í að bæta 9 holum við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum sýni það.

Ólíkleg morðkvendi

Það hefur vakið nokkra undrun að meðal fólks sem hefur verið handtekið fyrir að ætla að myrða sænskan listamann voru tvær að því er virtist venjulegar bandarískar húsmæður.

Myndir af höfninni í Bakkafjöru

Þessar myndir voru teknar af starfsmönnum Landhelgisgæslunnar um borð í eftirlits- og björgunarflugvélinni TF-SIF í morgun af höfninni sem nú rís í Bakkafjöru á Landeyjasandi. Myndirnar voru teknar úr 1047 feta hæð.

Hald lagt á dóp eftir húsleit í Hafnarfirði

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða um 130 grömm af amfetamíni, á annan tug kannabisplantna og lítilræði af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á allnokkuð af sterum.

Þingmenn Samfylkingarinnar vilja ECA Programs til Íslands

Bæði Björgvin G. Sigurðsson og Róbert Marshall, þingmenn Samfylkingarinnar í suðurkjördæmi, segjast styðja hugmyndir um að fyrirtækið ECA Programs hefji starfsemi á Íslandi. Eftir því sem fréttastofa kemst næst snúast hugmyndir fyrirtækisins að leigja þjóðum innan NATO samstarfsins gamlar rússneksar herþotur til heræfinga.

Darth Vader yfir Malasíu

Tuttugu og tveir loftbelgjaflugmenn frá tíu löndum tóku þátt í árlegri flughátíð yfir Putrajaya í Malasíu í dag.

Meirihluti þjóðarinnar vill ríkisstyrktan landbúnað

Tæplega helmingur landsmanna er frekar fylgjandi því að ríkið greiði styrki til íslensks landbúnaðar. Samanlagt eru 76,3% frekar eða mjög fylgjandi ríkisstyrkjum til landbúnaðar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR.

Marijúana fannst við húsleit í Kópavogi

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöld. Um var að ræða um 300 grömm af marijúana. Einn íbúanna, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu, að sögn lögreglu.

Kúba sama sæluríkið

Hvítklæddu konurnar á Kúbu fóru í mótmælagöngu í gær sem endaði eins og venjulega með því að lögreglan leysti gönguna upp með valdi.

Kvartað undan reglum um mataraðstoð til Persónuverndar

Persónuvernd barst kvörtun fyrr í mánuðinum vegna breyttra reglna Hjálparstarfs kirkjunnar í matarúthlutun samtakanna. Fólk sem sækir sér aðstoð þarf nú að skila inn yfirliti yfir útgjöld og tekjur eftir fyrstu komu.

Hjúkrunarheimili Hrafnistu vígt í Kópavogi

Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu verður vígt við Boðaþing í Kópavogi á morgun. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu.

Fundur í kjaradeilu flugvirkja

Fundur í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair stendur nú yfir. Stuttur var fundur haldinn í gær en hefur lítið þokast í átt að samningum.

Lögreglumenn vilja verkfallsrétt

Landssamband lögreglumanna vill að lögreglumenn fái verkfallsrétt aftur. Tillaga þess efnis var lögð fram á síðasta fundi lögreglumanna með viðsemjendum sínum. Þetta staðfestir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglunnar, í samtali við fréttastofu.

Var með tvö kíló af kókaíni innanklæða

Íslenska konan sem handtekin var á flugvellinum í Líma í Perú um síðustu helgi var með tvö kíló af kókaíni innanklæða, að því er þarlendir miðlar greina frá. Fíkniefnin voru í nokkrum pakkningum sem hún hafði límt um sig miðja. Samkvæmt fréttum frá Perú var konan á leið til Noregs.

Íslensk kona tekin í Perú með fíkniefni

Íslensk kona er í haldi í Perú grunuð um fíkniefnasmygl. Samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu var konan handtekin um síðustu helgi. Ráðuneytið hefur verið í sambandi við fjölskyldu konunnar og ræðismann Íslands í Lima, höfuðborg Perú, en konan var handtekin þar.

Spellvirkin hefðu getað rofið tengslin við umheiminn

Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarvarga hefði virkað að fullu, þegar þeir reyndu að vinna skemmdarverk á fjarskiptamöstrum í grennd við Veðurstofuna við Búsataðaveg í nótt. Lögregla lítur málið mjög alvarlegum augum, því svona spellvirki þykja ganga hryðjuverkum næst.

Um 200 erlendir gestir sækja ráðstefnu um nýsköpun

Gert er ráð fyrir því að um tvö hundruð erlendir gestir frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjóðlega frumkvöðlaráðstefnu í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Ráðstefnan er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs.

Að drepa fyrir frægðina

Frönsk félagsfræðitilraun hefur vakið mikla athygli en í tilrauninni var þáttakendum talin trú um að þeir væru að taka þátt í nýjum sjónvarpsþætti. Þátturinn var kallaður "Leikur dauðans" og var þáttakendum talin trú um að þeir væru að taka þátt í fyrsta þættinum og var íburðarmikil sviðsmynd sett upp eins og um alvöru spurningaþátt væri að ræða. Leikurinn gekk út á að spyrja annan þáttakanda, sem bundinn var í stól og var í raun og veru leikari, spurninga.

Ísraelar trampa á Evrópusambandinu

Utanríkisráðherra Ísraels notaði heimsókn utanríkis- og öryggismálafulltrúa Evrópusambandsins til þess að verja þá ákvörðun ríkisstjórnar sinnar að byggja 1600 nýjar íbúðir í Austur-Jerúsalem.

Stúlkan fundin

Elísa Auður sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær er komin í leitirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi tilkynningu um þetta rétt fyrir miðnætti í gærkvöld.

Rafmagn komið á í Holtunum

Rafmagni hefur aftur verið komið á í í Holtunum í Reykjavík, nánar tiltekið Brautarholti, Skipholti og þar um kring.

Elísabet á pundinu í hálfa öld

Í þessari viku er hálf öld liðin frá því fyrstu sterlingspundin með andliti Englandsdrottningar voru prentaðir. Elísabet önnur Englandsdrottning gengur aldrei með reiðufé á sér að því er sagt er en í vikunni er hálf öld liðin frá því seðlar bretaveldis fóru að bera mynd af henni.

Búálfur framdi bankarán

Lögreglan í Tennessee í Bandaríkjunum skaut tvo menn til bana í gær, þegar til skotbardaga kom eftir að bankarán sem þeir frömdu fór út um þúfur. Annar mannanna var klæddur sem búálfur að írskum sið en í gær var dagur heilags Patreks haldinn hátíðlegur en hann má kalla þjóðhátíðardag Íra.

Sjá næstu 50 fréttir