Fleiri fréttir

Jóhanna boðar til blaðamannafundar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í Alþingishúsinu við Austurvöll í dag klukkan 13. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að fundarefnið sé atvinnumál.

Styrkja íslenska fræðimenn og námsmenn um 275 milljónir

Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Kaupmannahöfn í dag að veita jafnvirði 14,4 milljóna danskra króna, eða rúmlega 275 milljónir íslenskra króna, til að aðstoða Íslendinga í fjármálakreppunni.

56 milljónir í ráðgjöf

Félags- og tryggingamálaáðuneytið greiddi rúmar 56 milljónir fyrir aðkeypta þjónustu og ráðgjafa- og verktakakostnað í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur núverandi forsætisráðherra.

Móttökugleði ári fyrir kosningarnar 2006

Ári fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 stóðu forsvarsmenn R-listans fyrir fleiri móttökum á kostnað borgarstjórnar en á meðalári. Kosið var til borgarstjórnar 27. maí 2006 og voru haldnar 112 móttökur ári fyrir kosningarnar. Á tímabilinu 2004 til 2008 voru að meðaltali haldnar 91 móttökur á ári hverju.

Tugir Vítisengla væntanlegir í dag

Vítisenglar frá öllum Norðurlöndunum og víðar munu reyna að komast inn í landið í dag þrátt fyrir hert landamæraeftirlit samkvæmt heimildum Vísis. Um er að ræða tugi Vítisengla víða um heim. Meðal annars munu Vítisenglarnir koma frá Þýskalandi, Frakklandi, Sviss, Bretlandi og nokkrir frá Bandaríkjunum auk Norðurlandanna. Þeir fyrstu munu koma hingað með flugi um hádegisbilið og er búist við að þeir síðustu munu lenda á Íslandi um miðnætti.

500 búnir að kjósa í forvali Samfylkingarinnar

Rúmlega 500 manns eru búnir að greiða atkvæði í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem hófst í gær og líkur klukkan 18 á morgun. Prófkjörið er opið öllum íbúum kjördæmisins.

Bankarnir óstarfhæfir

Svandís Svavardóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir að forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar sé að snúa hjólum efnahagslífsins af stað með því að gera bankana algerlega starfhæfa. Að hennar mati eru þeir engan veginn starfhæfir. Virkir bankar séu nauðsynlegir fyrir fyrirtækin en fyrirtækin fyrir fólkið.

Lestarsamgöngur í London hægari nú en 1939

Rannsókn á vegum London School of Economics hefur dregið það fram í dagsljósið að það tekur orðið heila eilífð að komast milli staða með lestarkerfi Lundúna.

Víetnamar öflugir í heimabrugginu

Bruggun alls konar korn- og hrísgrjónabrennivíns er nánast þjóðaríþrótt í Víetnam og nú er svo komið að aðeins fjögur prósent þess áfengis, sem Víetnamar neyta, er innflutt.

Hjón styttu sér aldur saman hjá Dignitas

Bresk hjón bundu enda á líf sitt í sameiningu á Dignitas-stofnuninni í Sviss í lok febrúar en stofnunin býður fólki aðstoð við að stytta sér aldur, til dæmis þegar það þjáist af ólæknandi sjúkdómum. Hjónin, milljónamæringarnir Peter og Penelope Duff, eru 70 og 80 ára.

Verðmunur á höfuðborgarsvæðinu allt að 84 prósent

Allt að 84 prósenta verðmunur var á sambærilegum hlutum, í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Fimmtíu og ein vörutegund var skoðuð og reyndist verðið lægst í Bónus í 34 tilvikum.

Ryk bundið í nótt

Allar helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að kom í veg fyrir svifryksmengun. Þetta var gert samkvæmt viðbragðsáætlun borgarinnar um loftgæði en í gær mældist styrkur svifryks við heilsuverndarmörk.

Barist í Hlíðum

Til átaka kom milli tveggja hópa unglinga á mótum Mávahlíðar og Lönguhlíðar í Reykjavík, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vitni töldu að sumir hefðu hampað bareflum og jafnvel hnífum.

Þrír í fangageymslu eftir árshátíð

Þrír unglingar gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi þar sem þeir höfðust ekki við í uppábúnum rúmum á Hótel Selfossi og voru með háreysti og slagsmál á göngum hótelsins. Þeir höfðu verið á árshátíð fjölbrautaskóla úr Reykjavík, sem haldin var á hótelinu í gærkvöldi, en varð ekki svefnsamt.

Gulldeplan á förum

Gulldeplan, sem ýmist er kölluð kreppukóð eða bjargvætturinn, er nú um það bil að yfirgefa íslenska lögsögu djúpt suður af landinu. Tíu skip voru þar að veiðum í gær en eru um það bil að slá botninn í veiðarnar og halda heim.

Sluppu nær ómeiddir úr bílveltu

Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar jeppi þeirra valt út af Hrunamannavegi, skammt frá Flúðum í nótt. Hann valt tvær heilar veltur og er stórskemmdur ef ekki ónýtur. Mennirnir voru fluttir til læknis að Laugarási, þar sem þeir fengu aðhlynningu. Flughálka var á veginum þar sem slysið varð.

Leit að Aldísi ber enn engan árangur

Leit að Aldísi Westergren lauk án árangurs í gærkvöldi og er ekki búið að taka ákvörðun um frekari leit. Margir björgunarsveitarmenn og lögreglumenn tóku þátt í leitinni, en ekkert hefur sést til Aldísar í níu daga, eftir að hún hvarf af heimili sínu. Engar haldbærar vísbendingar hafa borist um ferðir hennar síðan.

Átök milli unglinga í Hlíðahverfinu

Lögreglan var kölluð að gatnamótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar fyrir stundu en svo virðist vera sem komið hafi til slagsmála milli unglinga. Lögreglan er enn á staðnum og ekki er vitað að svo stöddu hvað olli átökunum eða hvort einhver hafi slasast.

Leit að Aldísi lokið í dag

Víðtæk leit sem staðið hefur yfir að Aldísi Westergren í dag lauk án árangurs þegar myrkra tók nú undir kvöld.

Ásgarður hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Ásgarður handverkstæði hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins að þessu sinni. Ásgarður er verndaður vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Framsóknarboð Óskars á sér nokkur fordæmi

Umdeilt boð sem Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, hélt fyrir flokkssystkini sín í nóvember á seinasta ári á sér nokkur fordæmi. Undanfarin ár hafa borgarfulltrúar annarra flokka staðið fyrir samskonar móttökum á kostnað borgarstjórnar.

Bjartsýni á iðnþingi

Formaður Samtaka iðnaðarins spáir því að Íslendingar verði fyrstir þjóða upp úr öldudalnum og að styttra sé í batann en af er látið. Iðnaðarráðherra lýsir sömuleiðis mikilli bjartsýni og spáir því að orkufrekur iðnaður skapi yfir tíu þúsund ársverk á næstu árum.

Loftlagstillagan sett fram fyrir stjórnarfrumvörp

Minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mátti horfa upp á það á Alþingi í dag að meirihluti hinna flokkanna tók völdin af henni og setti loftlagstillögu í flýtimeðferð fram fyrir stjórnarfrumvörp.

Ungum kynferðisbrotamönnum fjölgar

Ungum kynferðisbrotamönnum hefur fjölgað um 65% á þremur árum. Yngstu gerendurnir eru allt niður í 10 ára og eru dæmi um að brotin séu grófari en tíðkast hjá fullorðnum gerendum.

Undirrituðu samkomulag til að skapa atvinnumöguleika

Ísland og Manitobafylki í Kanada undirrituðu samkomulag sem skapar atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Manitoba til eins árs. Sjúkratrygging fæst frá fyrsta degi, börn fá skólavist og makar atvinnuleyfi líka.

Fjárreiðustjóri Ísfélagins ósammála stjórnarformanninum

Baldvin Johnsen fjárrreiðustjóri Ísfélags Vestmannaeyja segist vera ósammála þeim orðum stjórnarformanns fyrirtækisins að hann hafi farið út fyrir heimildir félagsins eða vanrækt upplýsingagjöf til stjórnar. Baldvin og Ægi Pál Friðbertssyni, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, var sagt upp störfum fyrr í vikunni vegna taps félagsins af afleiðusamningum.

Hjálp -kjúklinganaggarnir eru búnir

Tuttugu og sjö ára gömul kona í Flórída hefur verið ákærð fyrir misnotkun á neyðarlínunni eftir að hún hringdi þrisvar sinnum til þess að kvarta yfir því að kjúklinganaggarnir á McDonalds væru búnir.

Bresk sveitarfélög fá gálgafrest vegna Icesave

Breska ríkisstjórnin greip í taumana í dag til að hindra að sveitastjórnir skæru niður margvíslega þjónustu og hækkuðu gjöld til að mæta tapi sem þær urðu fyrir á Icesave reikningum sínum.

Kannabisrækt í Kópavogi stöðvuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50

Héraðsdómur: Fá bætur vegna harkalegrar handtöku

Þremur ungum mönnum voru í dag dæmdar bætur í Héraðsdómi Reykjavíku þegar lögregla braut gegn meðalhófsreglu þegar gerð var á þeim líkamsleit í kjölfar handtöku. Lögreglan var vopnuð og beitti við handtökuna óþarflega særandi aðgerðum og á niðurlægjandi hátt að mati dómara. Skömmu síðar kom í ljós Mennirnir fá í bætur 200 þúsund krónur hver að viðbættum vöxtum. Gjafsóknarkostnaður sækjanda, 600 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði.

Dæmd til þess að greiða Geira 500.000 krónur

Björk Eiðsdóttir blaðakona á Vikunni var í Hæstarétti í dag dæmd til þess að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni 500.000 krónur vegna ummæla sem féllu í blaðinu. Elín Arnar ritstjóri var sýknuð af fjárkröfu Ásgeirs. Héraðsdómur hafði áður sýknað blaðamennina en Ásgeir fór í meiðyrðarmál vegna ummæla sem fyrrverandi nektardansmey lét falla um Ásgeir í blaðinu. Vikunni var einnig gert að birta niðurstöður dómsins í næsta tölublaði auk þess sem ummæli voru dæmd dauð og ómerk.

Gerði árás með hjólaskóflu

Palestinskur maður var skotinn til bana í Jerúsalem í dag eftir að hann réðst á hjólaskóflu á lögreglubíl og rútu.

Foringi Vítisenglanna: Var á Íslandi fyrir tveimur vikum

Leiðtogi norsku Vítisenglanna, Leif Ivar Kristiansen var hér á landi fyrir tveimur vikum síðan, í boði Fáfnis, samkvæmt heimildum Vísis. Leif er einn alræmdasti Vítisengillinn í Noregi en hann hefur meðal annars verið ákærður fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning.

NATO fyrirgefur Rússum vegna Georgíu

Rússar fagna því að NATO skuli hafa ákveðið að taka aftur upp samband við Moskvu á æðstu stöðum. Því sambandi var slitið eftir fimm daga stríð Rússlands og Georgíu á síðasta ári.

Maður reyndi að tæla stúlku í Langholtshverfi

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er með til skoðunar mál sem kom upp við Langholtsveg í Reykjavík í vikunni. Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri Langholtsskóla sendi foreldrum bréf þar sem þau eru beðin um brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum. Bréfið sendi hann í kjölfar þess að maður reyndi að tæla unga stúlku sem er nemandi í skólanum upp í bíl til sín.

Brottvikning Margrétar kostaði Frjálslynda flokkinn rúma milljón

Frjálslyndi flokkurinn hefur verið dæmdur til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna ógreiddra launa. Að auki þarf flokkurinn að greiða Margréti 600 þúsund krónur í málskostnað.

Viðbygging við Hvíta húsið

Þess eru farin að sjást merki að það eru komin ung börn í Hvíta húsið. Dætur forsetahjónanna þær Natasha og Malia eru átta og ellefu ára gamlar.

Umdeild eftirlaunalög afnumin á Alþingi

Þrjátíu og fjórir þingmenn samþykktu afnám laga um eftirlaun forseta, þingmanna, hæstaréttardómara og ráðherra á Alþingi í dag. Engin greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en tuttugu og sex þingmenn voru fjarverandi.

Mandela í framboði

Mandla Mandela, sonarsonur Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku, er á leið í stjórnmál. Hann verður í framboði til þings fyrir Afríska þjóðarráðið í kosningum í Suður-Afríku í næsta mánuði.

Beðinn um að missa minnið í réttarsal

Ragnar Magnússon var beðinn um að missa minnið í dómssal í dag. Þar fór fram aðalmeðferð í þremur líkamsárásarmálum gegn Benjamín Þór Þorgrímssyni. Árásin á Ragnar vakti nokkra athygli á síðasta ári þegar hún var sýnd í fréttaskýringarþættinum Kompás. Ragnar sagði meðal annars að eftir þáttinn hefði hann fengið hótanir frá þriðja aðila sem bað hann um að missa minnið fyrir dómi. Hann sagðist því miður ekki geta gefið upp hver sá aðili væri. Fullt var út úr dyrum í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Sjá næstu 50 fréttir