Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tyrkir vilja ekki Anders Fogh í NATO Anders Fogh Rasmussen hefur verið sterklega orðaður við embætti framkvæmdastjóra NATO. 4.3.2009 12:16
Segir öryggi sjómanna stefnt í hættu Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það valdi miklum vonbrigðum að heyra af uppsögnum innan Landhelgisgæslunnar en stofnunin er að hans mati ein af meginstoðum í öryggisneti þjóðarinnar, sérstaklega þegar hugað sé að öryggi sjómanna. Hann segir að ríkisstjórnin hafi misst sjónar af því hvað skipti mestu máli hvað megi bíða. 4.3.2009 12:15
Þriggja enn saknað eftir að hús hrundi í Köln Þriggja er enn saknað eftir að borgarskjalasafnið í Köln í Þýskalandi hrundi óvænt til grunna í gær. Tvö samliggjandi hús hrundu einnig að hluta þegar sex hæða skjalasafnsbyggingin féll á þau. Fjölmargir voru í húsunum þegar þau hrundu og tókst langflestum að komast út af sjálfsdáðum. 4.3.2009 12:11
Jeppi út í sjó Ökumaður missti stjórn á jeppa sínum í hálku á Geirsnefi í mynni Elliðaánna í Reykjavík laust fyrir klukkan ellelfu í morgun, með þeim afleiðingum að biíllinn hafnaði úti í sjó og tók að sökkva. 4.3.2009 12:10
Bónusgreiðslur bankastjóranna hugsanlega afturkallaðar Fjármálaráðherra segir vel koma til greina að taka með einhverjum hættti til baka bónusgreiðslur sem greiddar voru til stjórnenda gömlu bankanna rétt fyrir hrun. 4.3.2009 12:03
Taki sameiginlega ákvörðun um skráningu barns í trúfélag Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, telur ástæðu til að breyta lögum þannig að forsjáraðilar taki sameiginlega ákvörðun um skráningu barns í trúfélag þegar og ef þeir kjosi að fara þá leið. 4.3.2009 11:42
Sigmundur í svart-hvítu héðan í frá „Í mjög einföldu máli þá gerði ég þennan einblöðung en það var ódýrara prenta þetta svona í stað þess að notast við litaprentara," segir frambjóðandinn og fyrrum fréttamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, en DV sagði frá því í dag að hann hefði verið áminntur fyrir að brjóta reglur Samfylkingarinnar um prófkjör. 4.3.2009 11:18
Tilkynnt um úrslit í forvali VG í kvöld Til stóð að tilkynna um úrslit í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi í gærkvöldi en vegna lélegra póstsamgangna verður það gert í kvöld, að sögn Drífu Snædals framkvæmdastýru VG. 4.3.2009 11:09
Rýmingu aflétt á Vestfjörðum Rýmingu hefur verið aflétt í Bolungarvík og á Ísafirði og mega íbúar snúa til heimila sinna. Rýmingin nær til þéttbýlis og bæja í dreifbýli. Enn er þó viðbúnaðarstig á norðanverðum Vestfjörðum og Veðurstofan og lögreglan fylgjast vel með gangi mála, að fram kemur í tilkynningu frá Kristínu Völundardóttur sýslumanni á Ísafirði. 4.3.2009 10:06
MA-nám í Bítlunum við háskóla í Liverpool Meistarapróf í mannfræði, málvísindum og hagfræði er meðal þess sem útskrifast má með frá Hope-háskólanum í Liverpool. Hagnýtt, sígilt og staðgott nám allt saman. En nýjasta MA-gráða skólans er próf í sjálfum Bítlunum, rokksveitinni góðkunnu sem uppfóstraðist einmitt þar í borginni og sleit þar bæði barnsskónum og bítlaskónum. 4.3.2009 08:09
Smástirni þaut hjá í 60.000 km fjarlægð Smástirni, sem er um 40 metrar að þvermáli, þaut hjá jörðinni rétt ofan við flughæð gervihnatta á mánudaginn. 4.3.2009 07:36
Samkynhneigðir stefna Massachusetts Átta samkynhneigð pör, sem gefin voru saman í hjónaband í Massachusetts í Bandaríkjunum, hafa stefnt ríkinu til að öðlast sömu réttindi og hefðbundin hjón en ýmis lög standa enn í vegi fyrir því að margs konar félagsleg úrræði og réttindi geti nýst samkynhneigðum sem gengið hafa í hjónaband þótt hjónavígslan sjálf sé lögleg. Er þar meðal annars um að ræða ýmiss konar erfðaréttindi auk réttar hjóna til félagslegrar aðstoðar. 4.3.2009 07:33
Aukning í íbúðasölu vestra vegna útburðar Sala íbúðarhúsnæðis í Bandaríkjunum jókst um sjö prósent árið 2008 eftir að hafa dregist saman um 40 prósent árið 2007. Söluaukningin kemur til vegna mikils fjölda íbúða og íbúðarhúsa sem eigendurnir hafa verið bornir út úr vegna vangoldinna húsnæðisskulda og nýir eigendur kaupa af lánardrottnum, oft fyrir mjög lágt verð. Dæmi eru um að fólk hafi keypt meðalstórar íbúðir á 1.100 dollara, jafnvirði tæplega 130.000 króna. 4.3.2009 07:28
Mexíkóski herinn gegn kókaínbarónum Mörg hundruð þungvopnaðir hermenn stormuðu inn í mexíkósku borgina Ciudad Juarez í gær til aðstoðar lögreglu þar, sem farið hefur halloka í baráttu við kókaínbaróna. Þetta er lokaúrræði ríkisstjórans Victors Valencia til að koma á friði í borginni en yfir 2.000 manns voru myrtir í valdabaráttu eiturlyfjagengja þar í fyrra. 4.3.2009 07:25
Vill fleiri konur og minnihlutafulltrúa á þing Fleiri konur og fulltrúar minnihlutahópa þurfa að komast á þing í Bretlandi. Þetta segir Trevor Phillips, formaður jafnréttis- og mannréttindanefndar Bretlands. Hann segir það út í hött miðað við samsetningu þjóðfélagsins að af 646 þingmönnum séu aðeins 15 svartir eða af asískum uppruna og 125 konur, eða 19 prósent. Phillips segir að þingið verði að endurspegla þjóðina sem það starfar fyrir og það geri það ekki eins og staðan sé nú. 4.3.2009 07:21
Geir, Ingibjörg og Steingrímur oftast í fréttum Þeir einstaklingar, sem oftast var minnst á í fréttum í fyrra, voru í réttri röð; Geir Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Björgvin G. Sigurðsson, Guðni Ágústsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur F. Magnússon, Árni Mathiesen og Össur Skarphéðinsson. 4.3.2009 07:17
Borgin fjölgar sumarstörfum um 400 Reykjavíkurborg hefur ákveðið að verja 96 milljónum króna aukalega til að standa undir 400 sumarstörfum til viðbótar við þau 4.100 sem fyrirhuguð voru. Af þeim verða 2.900 hjá Vinnuskóla Reykjavíkur og afgangurinn á fagsviðum borgarinnar, við sumarafleysingar. 4.3.2009 07:13
Þrír teknir með fíkniefni í Hveragerði Þrír menn voru handteknir í Hveragerði um miðnætti, eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra. Þegar þeir sáu til lögreglunnar reyndu þeir að aka á bak við iðnaðarhús, til að fela sig. 4.3.2009 07:09
Óveðri á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti Óveðrinu á Vestfjörðum slotaði undir miðnætti og á sjötta tímanum í morgun hófu vegagerðarmenn snjómokstur á Óshlíð og Súðavíkurhlíð. Á báðum leiðunum hafa þó nokkur snjóflóð fallið. Bæjarstarfsmenn á Ísafirði og í Bolungarvík hófu líka mokstur innanbæjar en víða hefur snjór safnast í mikla skafla og þæfingur er á öllum götum. 4.3.2009 07:06
Fimm innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt Brotist var inn í tvö fyrirtæki, einn skóla og tvo bíla á höfuðborgarsvæðinu frá miðnætti og fram til klukkan sex í morgun. Alls staðar var verðmætum stolið og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. 4.3.2009 07:03
Rasmussen gæti mætt mótlæti frá Tyrkjum Ekkert gæti orðið úr fyrirætlunum Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Dana, um að verða næsti framkvæmdastjóri NATO. 3.3.2009 23:44
Byltingarforingi blæs til tónleika Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason, sem síðustu mánuðina hefur verið þekktastur fyrir að fara fyrir svokallaðri Búsáhaldarbyltingu sem hlaust af bankahruninu, blæs til árlegra Kertaljósatónleika í Borgarleikhúsinu þann 10. mars næstkomandi. 3.3.2009 22:19
Framsóknarþingmaður: Stendur ekki á okkur Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ekki standi á Framsóknarflokknum við afgreiðslu á frumvörpum og þingsályktunum ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Þannig svarar hún orðum Birgis Ármannssonar 3.3.2009 19:56
Óshlíð enn lokuð Enn er lokað um Flateyrarveg, Súðavíkurhlíð og Óshlíð vegna snjóflóða, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 3.3.2009 22:24
Jóhanna segir að fullu staðið við samkomulag gagnvart framsókn Forsætisráðherra segir að það hafi komið á óvart að Framsóknarmenn vilji loka Alþingi sex vikum fyrir kosningar, án þess að gefa nauðsynlegan tíma til afgreiðslu fjölda mála sem ríkisstjórnin hafi afgreitt til þings um aðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. 3.3.2009 20:14
Íbúar fá ekki að snúa heim í kvöld Aftakaveður hefur verið á norðanverðum Vestfjörðum síðan í gærkvöldi og hafa hús verið rýmd þar sem hætta er á snjóflóðum. Íbúar hosanna sem hafa verið rýmd fá ekki að snúa aftur heim fyrr en í fyrsta lagi á morgun. 3.3.2009 18:42
Aðeins níu mál tengd hagsmunum atvinnulífs og heimila Ríkisstjórnin hefur einungis lagt fram 16 mál á þingi af þeim 30 frumvörpum og þingsályktunartillögum sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar, segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin lagði, á blaðamannafundi í morgun, fram lista yfir þau þingmál sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar. 3.3.2009 18:23
Á fimmta þúsund manns ráðnir til sumarstarfa hjá Borginni Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar fyrr í dag að Reykjavíkurborg myndi ráða yfir 4.100 einstaklinga í ýmis konar sumarstörf í sumar. Flestir eða um 2.900 verða ráðnir til tímabundinna starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Ríflega 840 verða ráðnir til afleysinga á 3.3.2009 17:54
Keilir skilar góðri afkomu Fram kom á aðalfundi Keilis, miðstöðvar vísinda fræða og atvinnulífs, sem haldinn var á gamla varnarsvæðinu á Vallarheiði fyrr í dag að heildartekjur félagsins umfram heildargjöld voru rúmlega 200 milljónir. Á fundinum lét Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess af störfum. 3.3.2009 17:22
Ítrekaði fyrri beiðni um afsögn Óskars Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ítrekaði á fundi borgarstjórnar í dag kröfu sína um að Óskar Bergsson, borgarfullrúi Framsóknarflokksins, segi af sér og upplýsi um hagsmunatengsl sín við byggingarverktaka og aðra hagsmunaaðila. 3.3.2009 17:12
Sólkerfi í dauðateygjum Hubble geimsjónaukinn tók þessa mynd af þrem sólkerfum langt langt í burtu. Þessi sólkerfi eru að togast á um tilveru sína. 3.3.2009 17:01
Árekstur við álverið í Straumsvík Árekstur tveggja bifreiða varð á Reykjanesbraut til móts við álverið í Straumsvík á fimmta tímanum. Tveir sjúkrabílar auk tækabíls frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum og munu tveir hafa slasast í árekstrinum. Veginum hefur ekki verið lokað en fólk er beðið um að aka varlega hjá slysstaðnum. 3.3.2009 16:54
Framsóknarboð Óskars enn til umræðu Umdeild móttaka sem Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hélt fyrir rúmlega 30 flokksystkini sín á kostnað borgarinnar í nóvember var til umræðu á fundi borgarstjórnar í dag. 3.3.2009 16:43
Byr vill að þingmaður dragi orð sín til baka Byr sparisjóður hefur skorað á Atla Gíslason alþingismann að hann dragi til baka ummæli sem hann lét falla um sjóðinn í Silfri Egils í síðustu viku. Í tilkynningu frá Byr segir að Atli hafi borið sparisjóðinn alvarlegum sökum í umræddum sjónvarpsþætti. „Enginn fótur er fyrir þeim, nema alþingismaðurinn ætli að kalla arðgreiðslur til um 1.500 stofnfjáreigenda Byrs skattsvik, eða önnur ólögleg eða siðlaus undanskot á fjármunum," segir í tilkynningunni. 3.3.2009 16:40
Borgarahreyfingin kynnir helstu stefnumál Borgarahreyfingin kynnir stefnu sína, markmið og tilgang á fundi með blaðamönnum á morgun. Borgarahreyfingin er pólitísk hreyfing sem á sitt bakland í fjölmörgum hreyfingum sem sprottið hafa upp í kjölfar efnahagshrunsins, að fram kemur í tilkynningu. 3.3.2009 15:29
Ákærður fyrir ítrekaðar mútutilraunir Veitingahúsaeigandinn Andrés Pétur Rúnarsson hefur verið ákærður fyrir ölvunarakstur án þess að hafa ökuleyfi auk þess sem hann reyndi ítrekað að bera fé á lögregluþjóna gegn því að þeir myndu láta málið niður falla. Fyrir vikið er Andrés einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni. 3.3.2009 15:10
Hátæknisjúkrahúsi verði slegið á frest Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja fresta byggingu nýs hátæknisjúkrahúss á Landspítalalóð. Við bankahrunið í haust hafi aðstæður Íslendinga gjörbreyst og mikil skuldsetning ríkisins kalli á endurmat einstakra verkefna. 3.3.2009 14:41
Ákærður fyrir að lemja gamlan mann og ræna Ríkissaksóknari þingfesti ákæru yfir Gytis Keplas í morgun en hann er ákærður fyrir að lemja og ræna sjötugan karlmann í slagtogi við óþekktan karlmann. Árásin átti sér stað um miðjanótt á Laugaveginum í október síðastliðnum. 3.3.2009 14:39
Dómsmálaráðherra skipar nefnd um skipan dómara Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd er vinni að því að móta tillögur um setningu nýrra reglna um skipan dómara, í samræmi við verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að nefndin sé skipuð þeim Guðrúnu Erlendsdóttur, fv. hæstaréttardómara, sem verður formaður hennar. 3.3.2009 14:26
Þingmenn keppast um að biðjast afsökunar Tekist var á um ábyrgð á bankahruninu á Alþingi og kepptust þingmenn um að biðjast afsökunar. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræðuna og þakkaði Ástu Möller, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir afsökunarbeiðni hennar en hún sagðist í gær eiga sinn þátt í því andvaraleysi sem þingmenn þjóðarinnar hafa gert sig seka um á seinustu árum gagnvart þróun efnahagsmála í landinu. Sjálfur sagðist Mörður ekki hafa verið nægjanlega gagnrýnin á forystumenn Samfylkingarinnar og baðst afsökunar á því. 3.3.2009 14:20
Bæir rýmdir - enn hætta á Vestfjörðum Ekki hefur dregið úr vindi og ofankomu á norðanverðum Vestfjörðum og hefur nú verið ákveðið að rýma sveitabæi á svæðinu. ,,Ég hélt að aðgerðum okkar væri lokið en nú eru að bætast við þessir sveitabæir," segir Kristín Völundardóttir lögreglustjóri en embætti hennar hefur fengið beiðni frá Veðurstofunni um rýmingu á eftirfarandi bæjum: 3.3.2009 13:41
Enn er hætta á sjóflóðum á Vestfjörðum Vegna snjóflóða og snjóflóðahættu eru vegirnir um Súðavíkurhlíð, Óshlíð og á Eyrarhlíð enn lokaðir. Ekkert ferðaveður er og er fólk beðið um að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þetta kemur fram i tilkynningu frá Vegagerðinni. Veður fer versnandi á norðanverðum Vestfjörðum og er mokstur víðast hvar í biðstöðu. 3.3.2009 13:32
Hafa skilað ársreikningum fyrir 2007 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa skilað ársreikningum sínum fyrir árið 2007 til Ríkisendurskoðunar. Nú hafa allir flokkar skilað inn reikningum og verða upplýsingar úr þeim birtar opinberlega að öllum líkindum síðar í mánuðinum. 3.3.2009 13:22
Ekkert ferðaveður í Skagafirðinum Ekkert ferðaveður er nú í Skagafiriðinum og er Vegagerðin hætt snjómokstri. Þverárfjall er ófært og lokað og lögreglan á Sauðárkróki vill koma því á framfæri við fólk að það sé ekki á ferð um Skagafjörðinn að óþörfu. 3.3.2009 13:12
Yfirstjórnin nýtur lítils trausts meðal starfsmanna Yfirstjórn Nýja Kaupþings nýtur lítils trausts meðal starfsmanna samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum könnunar sem gerð var meðal starfsmanna bankans. 3.3.2009 12:56