Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Undirrituðu samkomulag til að skapa atvinnumöguleika Ísland og Manitobafylki í Kanada undirrituðu samkomulag sem skapar atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Manitoba til eins árs. Sjúkratrygging fæst frá fyrsta degi, börn fá skólavist og makar atvinnuleyfi líka. 5.3.2009 18:55
Fjárreiðustjóri Ísfélagins ósammála stjórnarformanninum Baldvin Johnsen fjárrreiðustjóri Ísfélags Vestmannaeyja segist vera ósammála þeim orðum stjórnarformanns fyrirtækisins að hann hafi farið út fyrir heimildir félagsins eða vanrækt upplýsingagjöf til stjórnar. Baldvin og Ægi Pál Friðbertssyni, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, var sagt upp störfum fyrr í vikunni vegna taps félagsins af afleiðusamningum. 5.3.2009 17:53
Hjálp -kjúklinganaggarnir eru búnir Tuttugu og sjö ára gömul kona í Flórída hefur verið ákærð fyrir misnotkun á neyðarlínunni eftir að hún hringdi þrisvar sinnum til þess að kvarta yfir því að kjúklinganaggarnir á McDonalds væru búnir. 5.3.2009 17:50
Bresk sveitarfélög fá gálgafrest vegna Icesave Breska ríkisstjórnin greip í taumana í dag til að hindra að sveitastjórnir skæru niður margvíslega þjónustu og hækkuðu gjöld til að mæta tapi sem þær urðu fyrir á Icesave reikningum sínum. 5.3.2009 17:11
Kannabisrækt í Kópavogi stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 5.3.2009 17:05
Héraðsdómur: Fá bætur vegna harkalegrar handtöku Þremur ungum mönnum voru í dag dæmdar bætur í Héraðsdómi Reykjavíku þegar lögregla braut gegn meðalhófsreglu þegar gerð var á þeim líkamsleit í kjölfar handtöku. Lögreglan var vopnuð og beitti við handtökuna óþarflega særandi aðgerðum og á niðurlægjandi hátt að mati dómara. Skömmu síðar kom í ljós Mennirnir fá í bætur 200 þúsund krónur hver að viðbættum vöxtum. Gjafsóknarkostnaður sækjanda, 600 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði. 5.3.2009 17:04
Íslandspósti gert að greiða starfsmanni 400 þúsund í bætur Hæstiréttur dæmdi í dag Íslandspóst til að greiða starfsmanni sínum 400 þúsund krónur í bætur vegna slyss þegar starfsmaðurinn féll af rampa. Starfsmaðurinn sem er kona hafði starfað hjá fyrirtækinu í rúma tvo áratugi. 5.3.2009 17:00
Dæmd til þess að greiða Geira 500.000 krónur Björk Eiðsdóttir blaðakona á Vikunni var í Hæstarétti í dag dæmd til þess að greiða Ásgeiri Þór Davíðssyni 500.000 krónur vegna ummæla sem féllu í blaðinu. Elín Arnar ritstjóri var sýknuð af fjárkröfu Ásgeirs. Héraðsdómur hafði áður sýknað blaðamennina en Ásgeir fór í meiðyrðarmál vegna ummæla sem fyrrverandi nektardansmey lét falla um Ásgeir í blaðinu. Vikunni var einnig gert að birta niðurstöður dómsins í næsta tölublaði auk þess sem ummæli voru dæmd dauð og ómerk. 5.3.2009 16:31
Sýslumaður tjáir sig ekki um komu Vítisenglanna Lögreglan og sýslumannsembættið vill ekki tjá sig um ákvörðun dómsmálaráðuneytis um tímabundna upptöku á landamæraeftirliti hér á landi. 5.3.2009 16:23
Gerði árás með hjólaskóflu Palestinskur maður var skotinn til bana í Jerúsalem í dag eftir að hann réðst á hjólaskóflu á lögreglubíl og rútu. 5.3.2009 16:12
Foringi Vítisenglanna: Var á Íslandi fyrir tveimur vikum Leiðtogi norsku Vítisenglanna, Leif Ivar Kristiansen var hér á landi fyrir tveimur vikum síðan, í boði Fáfnis, samkvæmt heimildum Vísis. Leif er einn alræmdasti Vítisengillinn í Noregi en hann hefur meðal annars verið ákærður fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning. 5.3.2009 15:36
NATO fyrirgefur Rússum vegna Georgíu Rússar fagna því að NATO skuli hafa ákveðið að taka aftur upp samband við Moskvu á æðstu stöðum. Því sambandi var slitið eftir fimm daga stríð Rússlands og Georgíu á síðasta ári. 5.3.2009 15:36
Maður reyndi að tæla stúlku í Langholtshverfi Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er með til skoðunar mál sem kom upp við Langholtsveg í Reykjavík í vikunni. Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri Langholtsskóla sendi foreldrum bréf þar sem þau eru beðin um brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl hjá ókunnugum. Bréfið sendi hann í kjölfar þess að maður reyndi að tæla unga stúlku sem er nemandi í skólanum upp í bíl til sín. 5.3.2009 15:33
Brottvikning Margrétar kostaði Frjálslynda flokkinn rúma milljón Frjálslyndi flokkurinn hefur verið dæmdur til að greiða Margréti Sverrisdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra flokksins, 614 þúsund krónur með dráttarvöxtum vegna ógreiddra launa. Að auki þarf flokkurinn að greiða Margréti 600 þúsund krónur í málskostnað. 5.3.2009 15:03
Viðbygging við Hvíta húsið Þess eru farin að sjást merki að það eru komin ung börn í Hvíta húsið. Dætur forsetahjónanna þær Natasha og Malia eru átta og ellefu ára gamlar. 5.3.2009 14:57
Umdeild eftirlaunalög afnumin á Alþingi Þrjátíu og fjórir þingmenn samþykktu afnám laga um eftirlaun forseta, þingmanna, hæstaréttardómara og ráðherra á Alþingi í dag. Engin greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en tuttugu og sex þingmenn voru fjarverandi. 5.3.2009 14:27
Mandela í framboði Mandla Mandela, sonarsonur Nelsons Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku, er á leið í stjórnmál. Hann verður í framboði til þings fyrir Afríska þjóðarráðið í kosningum í Suður-Afríku í næsta mánuði. 5.3.2009 13:30
Beðinn um að missa minnið í réttarsal Ragnar Magnússon var beðinn um að missa minnið í dómssal í dag. Þar fór fram aðalmeðferð í þremur líkamsárásarmálum gegn Benjamín Þór Þorgrímssyni. Árásin á Ragnar vakti nokkra athygli á síðasta ári þegar hún var sýnd í fréttaskýringarþættinum Kompás. Ragnar sagði meðal annars að eftir þáttinn hefði hann fengið hótanir frá þriðja aðila sem bað hann um að missa minnið fyrir dómi. Hann sagðist því miður ekki geta gefið upp hver sá aðili væri. Fullt var út úr dyrum í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. 5.3.2009 13:30
Sumarannir í staðinn fyrir atvinnuleysi Stúdentaráð Háskóla Íslands telur að stór hluti þeirra 13.500 stúdenta sem stunda nám við Háskólann muni ekki ná að verða sér úti um sumarvinnu. Því hvetur ráðið Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, til að endurvekja sumarannir við skólann. 5.3.2009 13:24
Móttökur hjá borginni fjórða hvern dag Móttökur á vegum borgarstjórnar Reykjavíkurborgar hafa verið haldnar að meðaltali fjórða hvern dag undanfarin ár. Með móttökum er átt við öll mannamót sem haldin hafa verið á kostnað borgarstjórnar hvort sem um er að ræða móttökur með vínveitingum eða öðrum veitingum. 5.3.2009 13:12
Jón Trausti Lúthersson: „Ótrúlega öfgakennd viðbrögð“ Fáfnismenn mótmæla harðlega viðbrögðum stjórnvalda en gefin hefur verið út yfirlýsing, af hálfu dómsmálaráðuneytis, þar sem fram kemur að tekið verði upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til 7. mars. 5.3.2009 13:08
Vítisenglaveisla ógn við þjóðaröryggi Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að taka upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá 5. mars til og með 7. mars. Í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu kemur fram að breytingunni sé ætlað að „koma í veg fyrir væntanlega komu ákveðins hættulegs hóps frá og um nágrannalönd Íslands í Evrópu.“ 5.3.2009 13:04
Hjálparstarfsmenn reknir úr landi vegna ákæru um stríðsglæpi Stjórnvöld í Súdan hafa rekið tíu hjálparstofnanir úr landi vegna stríðsglæpaákæru Alþjóða glæpadómstólsins á hendur forseta landsins. Í gær var handtökuskipun gefin út á hendur honum vegna ódæða í Darfúr-héraði í Vestur-Súdan. Forsetinn segist saklaus og ætlar hvergi að fara. 5.3.2009 13:00
Klúbbhús Fáfnis í ólöglegu húsnæði Klúbbhús vélhljólaklúbbsins Fáfnis sem fyrirhugað er að opna um helgina er í ólöglegu húsnæði. Það er byggt og samþykkt sem iðnaðarhúsnæði og öll breyting á því í aðra veru er ekki heimil. 5.3.2009 12:59
Rænt í Osló vegna lottóvinnings pabba Mál þetta hefur farið hljótt þar sem lögreglan hefur varist frétta meðan á rannsókn stendur. Norska blaðið Aftenposten hefur nú grafið upp að manninum hafi verið rænt á miðvikudag í síðustu viku. 5.3.2009 12:30
Ekkert ákveðið um mánaðarlegar barnabætur Ekkert bólar á loforði síðustu ríkisstjórnar um að barnabætur verði greiddar út mánaðarlega en ekki ársfjórðungslega. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lofaði þessu á blaðamannafundi um aðgerðarpakka fyrir heimilin þann 14. nóvember. 5.3.2009 12:16
FME getur tafið vinnu sérstaks saksóknara Tafir geta orðið á rannsóknum sérstaks saksóknara bankahrunsins, þar sem Fjármálaeftirlitið getur borið fyrir sig bankaleynd. Breytingar á lögum um saksóknarann eru langt komnar. 5.3.2009 12:08
1500 glæpamenn undir vopnum í Kaupmannahöfn Hells Angeles og gengi innflytjenda í Kaupmannahöfn fá nú svo mikinn liðsauka að lögreglan er að missa yfirsýn yfir þá sem þarf að fylgjast með. 5.3.2009 12:00
Mannshvarf: Vitni sá Aldísi í miðbænum „Ég var ekkert að spekúlera í þessu fyrr en nokkru síðar," segir Erna Margrét Ottósdóttir, fyrrum vinnufélagi Aldísar Westergren, sem hefur verið týnd í rúma viku. Erna segist hafa séð Aldísi síðdegis fyrir um viku síðan, hún geti þó ekki verið viss hvort það var á mánudegi eða þriðjudegi. 5.3.2009 11:37
Eftirlaunalögin verði afnumin á kjördag Eftirlaunalögin verða afnumin 25. apríl, sem er áætlaður kjördagur, nái breytingartillaga á frumvarpi sem fjallar um eftirlaun æðstu ráðmanna fram að ganga. Lokaumræða um frumvarpið hófst í dag. 5.3.2009 11:19
Jákvæð fyrir sameiningu Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslu Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, telur að sameining Landhelgisgæslunnar og Varnarmálastofnunar sé einn af þeim möguleikum til hagræðingar sem verði að skoða með opnum hug. Erfitt sé að meta hvort slík sameining myndi hafa jákvæð áhrif á fjárhag Landhelgisgæslunnar. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag þegar að Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði ráðherrann um boðaðan niðurskurð hjá Landhelgisgæslunni sem nýverið var tilkynnt um. Fækka þarf starfsmönnum stofnunarinnar um 20 til 30. 5.3.2009 11:01
Hrefnan étur mun meira af þorski og ýsu en áður var talið Niðurstöður hrefnurannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Frá þessu er greint á heimasíðu LÍU og sagt að um fimmfalt meira magn að ræða en en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til samanburðar er nefnt að heildaraflamark þorsks og ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn. 5.3.2009 10:09
Íslendingar sem búið hafa erlendis lengur en í átta ár mega kjósa Breyting á lögum um kosningar til Alþingis sem tók gildi í dag gerir íslenskum ríkisborgurum, sem hafa verið búsettir erlendis í meira en átta ár og höfðu ekki sótt um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. desember sl., kleift að kjósa í alþingiskosningunum 25. apríl nk. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að sæki þeir um til Þjóðskrár í síðasta lagi 25. mars nk. geti þeir kosið í kosningunum í vor ef umsókn þeirra reynist fullnægjandi. 5.3.2009 09:58
Gripinn við innbrot í bíl Lögreglan greip þjóf glóðvolgan eftir að hann hafði brotist inn í fyrirtækjabíl við Ármúla á sjöunda tímanum í morgun. Hann var með þýfi á sér og gistir fangageymslur þar til hann verður yfirheyrður í dag. Ekki er loku fyrir það skotið að hann hafi fleiri innbrot upp á síðkastið á samviskunni. 5.3.2009 08:30
Atvinnuleysisklúbbar spretta upp í Bandaríkjunum Tom Skidmore í Kansas missti vinnuna í desember og er svo sem ekkert einn um það. Hann hefur hins vegar fyrir fimm manna fjölskyldu að sjá og er því ekkert á því að sitja með hendur í skauti. 5.3.2009 08:28
Myndavélar í breskar skólastofur Fjórir breskir barnaskólar hafa komið upp eftirlitsmyndavélum með hljóðupptöku í kennslustofunum til að fylgjast með hegðun nemendanna og frammistöðu kennara. 5.3.2009 08:25
Tryggingasvik stóraukast í Noregi Norsk tryggingafyrirtæki segjast í auknum mæli verða vör við ýmiss konar svik og pretti í þeim tilgangi að fá tryggingafé greitt út og kenna versnandi efnahagsástandi um. 5.3.2009 08:21
Yfir 2.000 Bretar geta ekki unnið vegna offitu Rúmlega 2.000 Bretar þiggja samtals einn og hálfan milljarð króna á ári í örorkubætur vegna þess að þeir teljast of feitir til að vinna. 5.3.2009 08:19
Á ekki von á tekjusamdrætti hjá Google Eric Schmidt, stjórnarformaður leitarvélarisans Google, segist ekki eiga von á miklum samdrætti í tekjum fyrirtækisins þrátt fyrir versnandi ástand á auglýsingamörkuðum en stór hluti tekna Google er af auglýsingum. Schmidt játaði þó að hann teldi botninum ekki náð í kreppunni og Google yrði að fylgja straumnum og lækka verð netauglýsinga eins og aðrir aðilar á þeim markaði. 5.3.2009 08:18
Pakistanar saka Indverja um árás á krikketlið Pakistanar saka nágranna sína, Indverja, um að standa á bak við árásina á krikketlandslið Sri Lanka í pakistönsku borginni Lahore í gær en átta manns létu lífið í árásinni og aðrir átta særðust. Indverjar vísa ásökunum Pakistana á bug en sjálfir sökuðu þeir pakistönsku hryðjuverjasamtökin Lashkar-e-Taiba um hryðjuverkaárásirnar á indversku borgina Mumbai í nóvember. 5.3.2009 08:09
Tveir þriðju telja eigendur og stjórnendur bankanna ábyrga Langflestir, eða tæp 63 prósent þeirrra, sem tóku þátt í skoðanakönnun Viðskiptablaðsins um það hver beri helst ábyrgð á bankahruninu, kenna eigendum og stjórnendum bankanna um það. 5.3.2009 08:07
Stjórnarskrárfrumvarpi dreift í gær Frumvarpi um breytingar á stjórnarskrá var dreift á Alþingi í gærkvöldi þar sem meðal annars er lagt til að auðlindir, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, séu þjóðareign. 5.3.2009 07:37
Viðamikil leit að Aldísi skipulögð Björgunarsveitir Landsbjargar og lögreglan hafa skipulagt viðamikla leit í dag að Aldísi Westergren, sem hvarf frá heimili sínu við Gvendargeisla í Grafarholti 24. febrúar. 5.3.2009 07:33
Átta bílar í þremur árekstrum á Austfjörðum Enginn slasaðist alvarlega þegar samtals átta bílar lentu í þremur árekstrum á Austfjörðum síðdegis í gær, eftir að óveður skall á með ofankomu og skafrenningi. 5.3.2009 07:27
Flugfarþegum fækkar um tæpan þriðjung Tæplega 28 prósent færri farþegar fóru um Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli í febrúar síðastliðnum, en í sama mánuði í fyrra. Þá voru þeir 115 þúsund, en aðeins 83 þúsund í ár. 5.3.2009 07:25