Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Offita smitandi rétt eins og kvef Offita getur verið smitandi rétt eins og kvef. Þetta fullyrða vísindamenn við Pennington-líffræðirannsóknarstöðina í Louisiana eftir ítarlegar rannsóknir á kjúklingum og músum. Þær tegundir tóku að fitna verulega eftir að þær voru smitaðar af svokölluðum adenóvírus sem berst manna á milli við hósta eða snertingu. 27.1.2009 07:29
Fréttir bárust af 70.000 uppsögnum í gær Meira en 50 þúsund Bretar hafa nú misst vinnuna eða eru á uppsagnarfresti frá áramótum. Nýjustu uppsagnarbréfin koma frá stálfélaginu Corus, áður British Steel, og raftækjaframleiðandanum Philips. 27.1.2009 07:24
Fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Ökumenn tveggja bíla, sem voru einir í bílunum, voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur bíla þeirra á Höfðabakka á móts við Árbæjarsafn um miðnætti. 27.1.2009 07:22
Fámenn mótmæli í gærkvöldi Fáeinir mótmælendur héldu uppi mótmælum við Alþingishúsið í gærkvöldi, en voru farnir þaðan fyrir miðnætti. Lögregla þurfti ekki að hafa afskipti af þeim, enda voru engin spellvirki unnin. Margir mótmælendur telja að mótmælin undanfarið hafi átt snaran þátt í að ríkisstjórnarsamstarfið rofnaði. 27.1.2009 07:21
Allar líkur á að forseti veiti umboð í dag Margt bendir til þess að ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, undir stórn Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, verði mynduð í dag og að Framsóknarflokkurinn verji hana falli. 27.1.2009 07:10
Jón hættir sem varaformaður Jón Sigurðsson óskaði formlega eftir að láta af starfi sem varaformaður Seðlabanka Íslands í gær. Jón hætti í gær sem formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, eftir að Björgvin G. Sigurðsson, fráfarandi viðskiptaráðherra, fór fram á það. Ekki náðist í Jón við vinnslu fréttarinnar. 27.1.2009 06:15
Bílstjórinn verður ákærður Bílstjórinn sem grunaður var um að hafa ekið á mann á Laugaveginum um helgina, hefur játað að hafa verið undir stýri og verður ákærður, segir Margeir Sveinsson, lögreglufulltrúi yfir rannsóknardeild umferðarmála hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 27.1.2009 06:00
Forsetinn rýfur ekki þing einn Orð forseta um þingrofsréttinn annars vegar og verkefnalista nýrrar ríkisstjórnar hins vegar vöktu athygli. Sagði forsetinn þingrofsvaldið hjá sér. 27.1.2009 05:00
Jóhanna segist tilbúin að taka við „Ég á eftir að sjá hvernig málin leggjast og hvort ég hafi ekki örugglega traust í þetta,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, en í gær sagði Ingibjörg Sólrún að Samfylkingin legði áherslu á að hún yrði forsætisráðherra. Spurð hvort hún sjálf væri tilbúin til að taka það að sér svaraði hún; „Já, já.“ 27.1.2009 04:45
Athyglisverðar fylgissveiflur „Það er athyglisvert hversu mikið afstaða fólks sveiflast,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins um vilja almennings til aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. 27.1.2009 04:00
Tappinn var Davíð „Tappinn var Davíð Oddsson,“ segir Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, um aðgerðaáætlun sem samfylkingarfólk lagði fram á fyrsta fundi sérstaks aðgerðahóps ríkisstjórnarinnar sem tók til starfa í nóvemberbyrjun. 27.1.2009 04:00
Hefðu breytt bankastjórn Bæði Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið tilbúinn til að gera breytingar á stjórn Seðlabankans. Þorgerður sagði flokkinn hafa verið reiðubúinn til að gefa út yfirlýsingar um að klára þyrfti frumvarp um Seðlabankann sem fyrst sem myndi hafa í för með sér breytingar á yfirstjórninni. 27.1.2009 03:30
Átti ekkert og hafði því engu að tapa „Við rífum okkur upp úr þessu, það eru alveg hreinar línur,“ sagði Gísli Ragnar Pétursson, 71 árs borgarstarfsmaður, sem sat málþing um tengsl fjárhags og heilsu í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Gísli Ragnar segist hafa mikla trú á land og þjóð. Þau orð hans endurspegla ágætlega hugarfar þeirra eldri borgara sem Fréttablaðið ræddi við á málþinginu. 27.1.2009 03:00
Nafn Jóhönnu var ekki að koma fram fyrst í dag Geir H. Haarde var ekki að heyra hugmyndina um að gera Jóhönnu Sigurðardóttur að forsætisráðherra í fyrsta sinn í dag. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir að Geir hafi áður heyrt nafn hennar nefnt í þessu sambandi. Geir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður sögðust bæði hafa heyrt möguleikann nefndan fyrst í dag, rétt áður en ríkisstjórnin féll. 26.1.2009 21:25
Starfhæf stjórn verður að komast á í þessari viku Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins sagði eftir fund sinn með forseta Íslands á Bessastöðum í kvöld að sér litist betur á þjóðstjórn en minnihlutastjórn Samfylkingar og Vg. Hann sagði að ekki væri hægt að bíða lengur en í 2-3 daga með myndun nýrrar ríkisstjórnar. 26.1.2009 23:01
Jónas Fr. hætti í gær Björgvin G. Sigurðsson sem sagði af sér embætti viðskiptaráðherra í gær segist hafa íhugað það alvarlega að segja af sér embætti í nóvember. Þetta kom fram í máli Björgvins sem er gestur Bubba Morthens í þættinum Færibandið á Rás 2. 26.1.2009 22:30
Samfylkingin vildi sprengja stjórnarsamstarfið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir málefnaágreining ekki hafa sprengt Ríkisstjórnina. Staðreyndin hafi verið sú að Samfylkingin hafi sífellt komið með auknar kröfur og á endanum hafi þær breytingar verið óaðgengilegar. Sjálfstæðisflokkurinn hafi haldið að Samfylkingin myndi nota evrópumálin sem ástæðu fyrir stjórnarslitum en það hafi ekki verið gert. 26.1.2009 22:23
Ráðherra þarf stuðning frá meirihluta þings fyrir þingrof Það er röng túlkun að enginn forsætisráðherra sé starfandi í landinu, að mati Bjargar Thorarensen, forseta lagadeildar Háskóla Íslands. 26.1.2009 21:34
Ekki búið að semja um stól forseta Alþingis Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er nýkominn af fundi með forseta Íslands á Bessastöðum. Hann sagðist hafa upplýst forseta um það hvernig flokkurinn mæti stöðuna og ítrekaði að flokkurinn myndi verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna gegn falli gegn vissum skilyrðum sem snúa að heimilunum í landinu og atvinnulífinu. Hann sagði flokkinn einnig vilja sjá breytingar á stjórnarskrá hjá nýrri ríkisstjórn en myndi ekki skipta sér af niðurröðun í ráðherraembætti. 26.1.2009 21:23
Vinstri grænir sitja á fundi Forystumenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sitja nú á fundi í Vonarstræti í Reykjavík. Ungliðar flokksins funda einnig í höfuðstöðvum þeirra að Suðurgötu. 26.1.2009 21:09
Rauðgræn Ríkisstjórn líklegust Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna segir að langlíklegasta ríkisstjórnarmynstrið sé rauðgrænt bandalag VG og Samfylkingar, með stuðningi Framsóknarflokksins, ef þjóðstjórnarfyrirkomulagið sé að þokast út af borðinu. Þetta sagði hann við fréttamenn að loknum fundi hans og Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Hann sagði fundinn hafa verið ágætan, og að þeir Ólafur hafi skipst á skoðunum um það hver næstu skref yrðu. Boltinn væri nú hjá forsetanum. 26.1.2009 20:32
Lítur á Jóhönnu sem samherja í pólitík Ögmundur Jónasson þingflokksformaður Vinstri grænna sagðist alltaf hafa litið á Jóhönnu Sigurðardóttur sem náinn og góðan samherja í pólitík þó þau væru ekki í sama stjórnmálaflokknum. Hann sagði skoðanir þeirra alltaf hafa farið vel saman en hann vildi horfa út fyrir persónur þegar talað væri um forystumenn nýrrar Ríkisstjórnar. 26.1.2009 19:21
Bauð Ingibjörgu fjármálaráðuneytið fyrir jólin Geir Haarde forsætisráðherra sagði í Íslandi í dag fyrir stundu að krafan um að Samfylkingin tæki að sér forsætisráðuneytið væri hefði fyrst dúkkað upp í gær. 26.1.2009 19:14
Óvíst hverjir taka á móti NATO leiðtogum Ríkisstjórn Íslands er gestgjafi á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins sem fer fram hér á landi næstkomandi miðvikudag og fimmtudag. 26.1.2009 18:53
Jóhanna var fyrst orðuð við forsætisráðuneytið í dag Jóhanna Sigurðardóttir sagði í samtali við fréttamenn í dag að það hefði fyrst verið orðað við sig í morgun að hún yrði forsætisráðherra. 26.1.2009 18:36
Segir ágreining um Davíð Oddsson yfirklór Samfylkingar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir það yfirklór að Ríkisstjórnin hafi sprungið vegna þess að flokkur hennar hefði ekki viljað taka til í yfirstjórn Seðlabankans. 26.1.2009 17:25
Fagna löngu tímabærum afsögnum ráðherra Raddir fólksins fagna löngu tímabærum afsögnum Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra. Ástæða er til að benda á að fyrrverandi viðskiptaráðherra sá sóma sinn í að axla pólitíska ábyrgð og viðurkenna þátt sinn í efnahagslegri óstjórn fráfarandi ríkisstjórnar en fyrrverandi forsætisráðherra hverfur frá völdum nauðugur viljugur, án þess að biðja þjóðina afsökunar á axarsköftum sínum. 26.1.2009 18:06
Forsetinn veitir ekki stjórnarmyndunarumboð í kvöld Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að það komi ekki til greina að hann veiti umboð til stjórnarmyndunar í kvöld. 26.1.2009 17:21
Björgvin fær ekki að hætta Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ræðir nú við fjölmiðlamenn á Bessastöðum en nú er nýlokið fundi hans og Geirs H. Haarde. Í máli hans kom meðal annars fram að hann hefur beðið alla ráðherra ríkisstjórnarinnar að gegna embættum sínum áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið myndið. 26.1.2009 17:09
Árni Páll: Sjálfstæðisflokkur eins og bandalag skæruliðahópa Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, fór hörðum orðum um fyrrverandi samstarfsflokk Samfylkingarinnar í ríkisstjórn í viðtali á RÚV. Þar sagði hann meðal annars að það hafi verið eins og að eiga við bandalag skæruliðahópa en ekki stjórnmálaflokk síðustu daga og vikur. 26.1.2009 14:09
Sigmundur enn inni - Frjálslyndir mættir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins er enn á fundi með forseta Íslands á Bessastöðum. Sigmundur gekk á fund Ólafs um 25 mínútur yfir átta í kvöld. Það vekur athygli að Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins er einnig mættur á Bessastaði en Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður flokksins er með í för. 26.1.2009 21:03
Sjálfstæðisflokkurinn er í gíslingu Davíðs Oddssonar Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé í gíslingu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra. Hann segir út í hött að Samfylkingin sé í tætlum. Hann vonast til þess að Samfylking og Vinstri grænir nái að mynda ríkisstjórn með stuðningi Framsóknar. 26.1.2009 20:10
Steingrímur fundar með forseta Steingrímur J. Sigfússon mætti á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands á Bessastöðum klukkan 19:00 í kvöld. Hann er enn inni á fundi og má reikna með því að hann komi þaðan út innan skamms. 26.1.2009 19:37
Útilokar þjóðstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var að koma af fundi með forseta Íslands á Bessastöðum. Eftir fundinn ræddi hún við fréttamenn og sagðist hafa greint forseta frá því sem gerst hafi í gær og í dag. Í máli hennar kom fram að hún útilokar þjóðstjórn með forystu Sjálfstæðisflokksins. 26.1.2009 18:52
Ingibjörg Sólrún mætt á Bessastaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar er nú mætt á fund á forseta Íslands á Bessastöðum. Forsetinn ræddi í tæpa klukkustund við Geir H. Haarde forsætisráðherra fyrr í dag. 26.1.2009 18:13
Ætlar ekki að rjúfa þing Geir H. Haarde sagði að fundi loknum með forseta Íslands á Bessastöðum að málin væru nú í höndum forseta sem færi með verkstjórn í þessu máli. Geir sagði einnig að ekki væri heppilegt að rjúfa þing. 26.1.2009 17:02
Jóhanna yrði fyrsti kvenforsætisráðherrann Fari svo að Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, leiði ríkisstjórn í minnihlutasamstarfi við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verður hún fyrst íslenskra kvenna til að gegna starfi forsætisráðherra. 26.1.2009 17:00
Fagna við þinghúsið Boðað hefur verið til fagnaðar við Austurvöll nú þegar ljóst er að ríkisstjórnin er fallin. Nokkuð fámennur hópur er þegar mættur fyrir utan þinghúsið en sent var út fagnaðarboð á samskiptavefnum Facebook fyrr í dag. 26.1.2009 16:40
Ramses með fyrirlestur á Akureyri Keníamaðurinn Paul Ramses mun halda fyrirlestur á svokölluðu Félagsvísindatorgi við Háskólann á Akureyri á miðvikudaginn klukkan 12:00. Það er Kumpáni, nemendafélag Félagsvísinda- og lagadeildar, sem hefur fengið Paul Ramses til að halda fyrirlesturinn. 26.1.2009 16:35
Forsetinn fundar með forystumönnum allra stjórnmálaflokkanna í kvöld Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun funda með öllum forystumönnum stjórnarflokkana í dag. Hann fundar nú með Geir H. Haarde fráfarandi forsætisráðherra. 26.1.2009 16:33
Vill forsætisráðherra utan þings Það kemur vel til greina að maður utan þings taki að sér að leiða þjóðstjórn, segir Jón Magnússon, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins. 26.1.2009 15:50
Hefðu betur hlustað á stjórnarandstöðuna í október Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna sagði í ræðu sinni á Alþingi í dag að ríkisstjórnin hefði betur tekið tilboði stjórnarandstöðunnar um þjóðstjórn í október. Hann sagði vert að velta því fyrir sér hvort hlutum væri ekki betur fyrir komið í dag ef því tilboði hefði verið tekið. 26.1.2009 15:37
Kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins Teymi segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að skipa nýja fulltrúa félagsins í stjórn Tals óviðunandi og henni verði áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gæti leitt það af sér að félagið hefði engin völd í stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% hlut í félaginu. 26.1.2009 15:34
Mismunandi sýn á ástæður stjórnarslitanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir það ekki alveg réttilega með farið þegar Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segi að ástæða stjórnarslita sé krafa Samfylkingarinnar um að taka við forsætisráðuneytinu. 26.1.2009 15:16
Formaður Samfylkingarinnar varð undir Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir í pistli á heimasíðu sinni að í miðjum björgunarleiðangrinum hafi Samfylkingin nú sóað nokkrum dögum í pólitíska kreppu í stað þess að reyna að vinna okkur útúr efnahagskreppunni. 26.1.2009 15:15