Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vildi Jóhönnu Sigurðardóttur í forsætisráðherraembættið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, gerði Sjálfstæðisflokknum það tilboð að Jóhanna Sigurðardóttir yrði forsætisráðherra í stað Geirs Haarde. Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði því, eftir því sem Ingibjörg sagði í samtali við fréttamenn rétt í þessu. Enn kemur til greina af hálfu Samfylkingarinnar að Jóhanna verði forsætisráðherra í þjóðstjórn. 26.1.2009 13:55
Þjóðstjórn ólíkleg Þjóðstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokks er hæpin að mati Einars Mar Þórðarsonar stjórnmálafræðings. 26.1.2009 13:47
Stjórnarsamstarfinu slitið Stjórnarsamstarfinu er lokið. Þetta er niðurstaða formanna stjórnarflokkanna, sagði Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokkins, á samstarfi. 26.1.2009 13:04
Geir og Ingibjörg Sólrún ræða stöðuna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar og Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins sitja nú saman og ræða niðurstöðu þingflokksfundanna. Búist er við því að framtíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar ráðist á þeim fundi. 26.1.2009 12:51
Ingibjörg Sólrún: Þarf að finna trúverðugan einstakling til að leiða ríkisstjórn Þingflokksfundi Samfylkingarinnar er lokið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hitti fréttamenn að honum loknum og sagði að hún myndi kynna Geir Haarde niðurstöðu þingflokksins áður en hún verði gerð opinber. 26.1.2009 12:27
Sigmundur beðinn um staðfestingu á tilboði framsóknarmanna Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur verið í samtölum við Samfylkingarmenn að undanförnu og hann beðinn um staðfestingu á því að Framsóknarflokkurinn standi ennþá við tilboð sitt um að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli. 26.1.2009 12:21
Enn fundað í Alþingishúsinu Enn funda þingflokkar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Alþingishúsinu. Hópur fréttamanna er þar saman kominn og bíður eftir upplýsingum frá fulltrúum flokkanna eftir fundina. Óljósar upplýsingar hafa fengist um það hvenær fundunum lýkur en ljóst að það mun ekki verða fyrir hádegi. 26.1.2009 11:53
Hávær en fámenn mótmæli á Austurvelli Fámenn en hávær mótmæli eru nú fyrir utan alþingishúsið. Um tuttugu manns eru samankomin á Austurvelli og berja búsáhöld. Þá heyrist duglega í Sturlu Jónssyni vörubílstjóra sem er á svæðinu með flautur sínar. Mótmælin hafa verið með öllu friðsamleg, en einn viðstadda hafði þó orð á því að það hrykki allur bærinn í kút þegar Sturla þeytti flauturnar. 26.1.2009 11:47
Fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum Fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunni sem leið. Flutningabíll valt sunnan við Hólmavík um hádegisbil þann 20. janúar en ekki urðu slys á fólki. Þá fór fólksbíll út af veginum á Kirkjubólshlíð aðfararnótt 20. janúar og hafnaði niður í fjöru. 26.1.2009 11:30
BBC neitar að sýna fjáröflunarþátt fyrir fólkið á Gaza Deilur hafa blossað upp á Bretlandi vegna þeirrar ákvörðunar BBC að neita að sýna fjáröflunarþátt sem regnhlífarsamtök hjálparsamtaka hafa sett saman og er ætlað að styðja við fólk í neyð á Gaza svæðinu. 26.1.2009 11:22
Strætó fækkar ferðum Strætó bs. mun fækka ferðum frá 1. febrúar vegna erfiðari rekstraraðstæðna í kjölfar bankahrunsins. Helstu breytingarnar eru að allar helstu leiðir, að leiðum 1 og 6 undanskildum, munu aka á hálftíma fresti utan annatíma virka daga og leiðir 21, 22, 33, 34, 35 og 36 á 26.1.2009 10:27
Samkomulag um minnihlutastjórn Náðst hefur samkomulag um að mynda minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn munu verja vantrausti. 26.1.2009 09:55
Hádegisfréttum sjónvarpað Hádegisfréttir verða í beinni útsendingu á Stöð 2, Bylgjunni og á Vísi í dag. Þingflokkar stjórnarflokkanna hittast á fundum núna klukkan tíu og búist er við því að eftir það ráðist framtíð ríkisstjórnarinnar endanlega. 26.1.2009 09:30
Bretar íhuga þriggja daga vinnuviku Bresk framleiðslufyrirtæki sjá nú fram á að stytta vinnuvikuna um tvo daga vegna mikils samdráttar í efnahagslífi landsins. Breska blaðið Independent greinir frá þessu og segir mörg fyrirtæki í bílaiðnaði til dæmis stefna að þessari breytingu. 26.1.2009 08:14
Sænsk lögregla skaut mann til bana Lögreglan í Trelleborg í Svíþjóð skaut tæplega sextugan mann til bana á heimili hans í nótt þegar hann réðst gegn tveimur lögregluþjónum með hníf á lofti. 26.1.2009 08:12
Uppsagnir vofa yfir 1.000 starfsmönnum Starbucks Þúsund starfsmenn kaffihúsakeðjunnar Starbucks í Bandaríkjunum gætu misst vinnuna á næstu mánuðum vegna lokunar margra tuga af kaffihúsum keðjunnar. 26.1.2009 07:56
Gaf sjö manns líffæri sín Ungur breskur lögfræðingur, sem lést í umferðarslysi fyrir hálfum mánuði, hefur eftir andlát sitt bjargað lífi sjö manns sem ýmis líffæri hennar voru grædd í. 26.1.2009 07:35
Tveir handteknir vegna hnífstungu í London Tveir unglingspiltar, 16 og 17 ára gamlir, voru handteknir í London í morgun, grunaðir um að hafa orðið þeim þriðja, 15 ára gömlum, að bana með hnífstungu laust fyrir miðnætti á laugardagskvöldið. 26.1.2009 07:31
Fækkar mjög í rjúpnagöngum Aðeins um helmingur félaga í Skotveiðifélagi Íslands gekk til rjúpna síðastliðið haust, en fyrir fjórum árum gengu um 70 prósent félagsmanna til rjúpna. 26.1.2009 07:28
Innbrot í malbikunarstöð Brotist var inn í malbikunarstöð í Hafnarfirði í nótt, en ekki er ljóst eftir hverju þjófarnir voru að slægjast þar. Þeir eru ófundnir. Sömuleiðis leitar lögregla þjófa sem brutust inn í Olís-sjoppuna í Grundarhverfi í Reykjavík undir morgun. Ekki er enn vitað hverju þeir stálu. 26.1.2009 07:20
Stórreykingamenn brutust inn í sjoppu Brotist var inn í Aðalsjoppuna við Tjarnargötu í Vogunum á Reykjanesi um eittleytið í nótt og þaðan stolið 20 kartonum af Winston-sígarettum, að andvirði um 170 þúsund krónur. 26.1.2009 07:18
Skorar á Gunnar Pál að draga framboð til baka Kristinn Örn Jóhannesson, frambjóðandi til formanns í VR, skorar á Gunnar Pál Pálsson, sitjandi formann, að draga framboð sitt til baka. 26.1.2009 07:10
Fimm handteknir í seðlabankamótmælum Fimm menn voru handteknir eftir að hafa klifrað upp á þak Seðlabankans um tvöleytið í nótt og skemmt þar eftirlitsmyndavél. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum. 26.1.2009 07:06
Meirihluti andvígur ESB Nú segjast 59,8 prósent ekki vilja að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Í nóvember á síðasta ári sögðust 59,6 prósent vera fylgjandi umsókn um aðild. 26.1.2009 06:15
Úrslitastundin er í dag Forysta Sjálfstæðisflokksins vill að Samfylkingin samþykki tuga milljarða króna niðurskurð í ríkisútgjöldum til viðbótar við áður ákveðinn niðurskurð, eigi ríkisstjórnin að starfa áfram. Það er í samræmi við samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 26.1.2009 06:00
Frestur rennur út á miðnætti Nú fer hver að verða síðastur að skila inn tilnefningu til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Frestur rennur út á miðnætti í kvöld. 26.1.2009 05:00
Vörur frá Ísrael sniðgengnar Hákoni Má Oddssyni ofbýður ofbeldisverk Ísraelsmanna. „Ég sem neytandi hef áhuga á að vita hvaða vörur í búðunum eru frá Ísrael svo að hægt sé að sniðganga þær og tryggja að maður sé ekki að styrkja hernað þeirra gegn börnum og konum,“ skrifar hann. „Fór í Bónus í dag og sá sellerí sem virtist ferskt og flott en á kassanum sem var utan um vöruna kom fram að uppruni væri Carmel og ég hætti samstundis við að kaupa selleríið. Mér er óglatt af tilhugsuninni að ég væri að borða mat hvurs ágóði sé notaður til að myrða saklaus börn. Gætirðu hjálpað okkur neytendum með að grafa upp hvaða vörur koma frá Ísrael svo við getum sniðgengið þær?“ 26.1.2009 04:00
Óákveðnum fjölgar Stór hluti óánægðra kjósenda, sem í fyrri skoðanakönnunum Fréttablaðsins hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna, eru ekki tilbúnir til að leggja lag sitt við neinn af stjórnmálaflokkunum og telja sig óákveðna. 26.1.2009 04:00
Ófrjósemisaðgerðir orðnar að karlavígi Þrjú ár eru nú frá því karlar á Íslandi tóku fram úr konum í fjölda ófrjósemisaðgerða. 26.1.2009 03:00
Obama leitar jafnvægis Barack Obama Bandaríkjaforseti reynir nú að finna jafnvægi milli repúblikana á hægri kantinum, sem telja efnahagsráðstafanir hans leggja of miklar byrðar á ríkissjóð, og demókrata á vinstri kantinum, sem vilja ganga enn lengra í að nota skattfé til að bjarga efnahagslífi landsins. 26.1.2009 02:45
Afsögnin óvenjuleg Afsögn Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra markar viss tímamót þegar hún er borin saman við aðrar afsagnir ráðherra hér á landi, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. 26.1.2009 02:30
Áfram rætt um vopnahlé Hundruð manna hlupu í ofboði út úr nokkrum stjórnarbyggingum á Gasasvæðinu í gær þegar orðrómur komst á kreik um að Ísraelar ætluðu að gera nýja sprengjuárás. 26.1.2009 02:00
Mótmælt við Seðlabankann Hópur fólks er saman kominn við suðurhlið Seðlabankans og mótmælir bankastjórninni. Um 30 manns er á staðnum að sögn lögregu, kveikt hefur verið í bálkesti og syngur fólkið mótmælasöngva. Markmiðið er að "reka illa anda" út úr bankanum, eins og fólkið orðaði það við lögreglu. Allt hefur farið fram með friðamlegum hætti og fylgist lögregla með aðgerðinni úr fjarlægð. Ætlunin er að vera á svæðinu til miðnættis. 25.1.2009 22:43
Kosið um róttækar breytingar í Bólivíu Kosið var um róttækar breytingar á stjórnarskrá Bólivíu í dag. Verði breytingarnar samþykktar aukast völd ráðamanna í La Paz, höfuðborg Bólivíu, umtalsvert og gefa sósíalistanum Evo Morales, sitjandi forseta, færi á að gefa kost á sér til áframhaldandi setu á stóli forseta. 25.1.2009 21:30
Ráðherrar og þingmenn á borgarafundi Boðað hefur verið til borgarafundar á Hótel Selfossi annað kvöld. Yfirskrift fundarins er: ,,Staða þjóðarinnar. Fortíð – Nútíð – Framtíð." 25.1.2009 20:59
,,Geir er fínn" Á meðan Geir stóð í ströngu í dag í fundarhöldum um framtíð stjórnarsamstarfsins fékk hann heimsókn frá tveimur ungum nágrönnum sínum. 25.1.2009 19:26
Jónas fær 20,4 milljónir Jón Sigurðsson, fráfarandi formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, segist velta því fyrir sér að segja af sér í bankaráði Seðlabankans í kjölfar tíðinda dagsins. Stjórn Fjármálaeftirlitsins lét af störfum í dag eftir að hún gerði starfslokasamning við Jónas Fr. Jónsson, forstjóra eftirlitsins. Hann mun láta af störfum 1. mars og fær 20,4 milljónir á 12 mánaða uppsagnarfresti. 25.1.2009 19:06
Ábyrgðaleysi að skilja landið eftir stjórnlaust Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ábyrgðaleysi að skilja landið eftir stjórnlaust. Hann segir að allir flokkar beri ábyrgð og mikilvægt sé að samningar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn haldi. 25.1.2009 18:37
Framtíð stjórnarinnar ræðst á morgun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að framtíð stjórnarsamstarfsins ráðist líklega á morgun. Ekki sé hægt að bíða mikið lengur. 25.1.2009 18:06
Afsögn Björgvins vekur athygli Íslenska ríkisstjórnin er fyrsta pólitíska fórnarlamb alheimskreppunnar að mati erlendra fjölmiðla sem fjallað hafa um afsögn viðskiptaráðherra. 25.1.2009 19:30
Sullenberger fagnað sem hetju Flugstjóranum sem nauðlenti farþegaflugvél í Hudson fljóti í New York fyrir tíu dögum var fagnað sem hetju í heimabæ sínum í gær. 25.1.2009 19:01
Þjóðstjórn besti möguleikinn Þjóðstjórn er besti möguleikinn í stöðunni að mati Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinsti grænna. Hann segist ekki hins vegar ekkert hafa rætt við forystumenn Samfylkingarinnar í dag. Steingrímur segir að sér virðist að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum. Upplausnarástand sé á stjórnaheimilinu. 25.1.2009 18:51
Stefnt að framboði grasrótarhreyfinga Á fundi talsmanna fjölmargra grasrótarhreyfinga um lýðræðisumbætur í dag var samþykkt að vinna að framboði við næstu kosningar. 25.1.2009 19:54
Þyrla sækir ökklabrotinn mann við rætur Esju Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti nú á sjötta tímanum við Landspítalann með slasaðan vélsleðamann, sem féll ofan í gili við Landamannalaugir, fór hún strax í annað útkall. 25.1.2009 17:55
Jón hættir líka í Seðlabankanum Jón Sigurðsson gerir ráð fyrir að biðjast lausnar úr starfi sínu í stjórn Seðlabanka Íslands, en hann er varaformaður stjórnarinnar skipaður af Samfylkingunni. Fyrr í dag lét hann af störfum sem stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Frá þessu er greint á vefsíðu DV. 25.1.2009 17:47