Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ísraelsmenn til Egyptalands að ræða vopnahlé Tveir fulltrúar Ísraelsmanna fara til Kaíró í Egyptalandi í dag eða á næstu dögum til að ræða möguleikana á vopnahléi á Gaza-svæðinu, hefur bandaríska sjónvarpsstöðin CNN eftir embættismanni í ísraelska utanríkisráðuneytinu. 8.1.2009 08:21
ESB gengur á milli í gasdeilunni Evrópusambandið hefur nú gerst milligönguaðili í gasdeilunni sem staðið hefur milli Rússa og Úkraínumanna. 8.1.2009 08:19
Minntust falls Rauðu khmeranna Þúsundir Kambódíumanna minntust þess í gær er þrjátíu ár voru liðin frá falli Rauðu khmeranna og leiðtogans Pol Pot. 8.1.2009 08:14
Klámiðnaðurinn biður Bandaríkjastjórn aðstoðar Nýjasti iðnaðurinn sem leitar á náðir Bandaríkjastjórnar um fjárhagsstuðning í efnahagslægðinni er klámiðnaðurinn. Larry Flynt, sem um árabil hefur gefið út tímaritið Hustler, biður stjórnvöld nú um að styrkja amerískt klám um fimm milljarða dollara, annars sé hreinlega hætt við því að iðnaðurinn bíði skipbrot vegna fjárhagsvanda. 8.1.2009 08:09
Danir taka írönsku Mujaheddin af svarta listanum Danir hafa tekið írönsku Mujaheddin-andspyrnuhreyfinguna af lista sínum yfir hryðjuverkahópa og leggur utanríkisráðherrann Per Stig Møller, ásamt öllum stjórnmálaflokkum danska þingsins, hart að Evrópusambandinu að gera slíkt hið sama. 8.1.2009 07:55
Eignaðist 18 hvolpa í einu goti Bresk dalmatíutík eignaðist 18 hvolpa í einu goti á Þorláksmessu en afar sjaldgæft er að þetta kyn eignist fleiri en átta eða níu hvolpa í goti. 8.1.2009 07:23
Endurbyggðu nær allt erfðamengi loðfíls Hugmyndin um að vekja löngu útdauðar skepnur til lífsins gekk í endurnýjun lífdaganna þegar vísindamönnum við Max Planck-mannfræðistofnunina í Þýskalandi tókst að endurbyggja nærri því allt erfðamengi loðfíls, eða mammúts, út frá 60.000 ára gömlum leifum slíks dýrs, sem fundust gaddfreðnar í Síberíu. 8.1.2009 07:19
Loðna á stóru svæði norður og norðaustur af landinu Loðnuskip, sem taka þátt í loðnuleitinni í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun, fundu enn loðnu í gærkvöldi og í nótt á nýjum svæðum, sem þýðir að loðna er nú á nokkuð stóru svæði norður og norðaustur af landinu, þótt hún sé ekki þétt. 8.1.2009 07:16
Fjölþjóðleg átök í Lönguhlíð í gærkvöldi Tveimur hópum útlendinga af fjórum þjóðernum laust saman í Lönguhlíð í Reykjavík í gærkvöldi og kom til átaka. Vitni í nálægum húsum kölluðu lögreglu á vettvang sem skakkaði leikinn áður en nokkur meiddist. 8.1.2009 07:14
Brutust inn og stálu tölvubúnaði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá átján ára pilta í nótt, grunaða um innbrot í fyrirtæki við Bæjarlind í Kópavogi fyrr um nóttina þar sem tölvubúnaði var stolið. 8.1.2009 07:07
Hljóp í sig lífsþrótt og gleði „Í fyrstu hugsaði ég bara um að verða grönn og fyrstu vikurnar hrundu af mér kílóin,“ segir Eva Margrét Einarsdóttir, sem hefur grennst um 30 kíló 8.1.2009 04:00
Hafa áhyggjur af yfirlýsingum heilbrigðisráðherra Sóknarnefnd og sóknarprestur Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði segjast undrast og hafa áhyggjur vegna tilkynningar heilbrigðisráðherra um fyrirhugaða lokun St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í kvöld. 7.1.2009 20:50
Slökkvilið kallað að Þinghólsbraut Slökkviliðið var kallað að Þinghólsbraut í Kópavogi á sjötta tímanum í kvöld þegar að pottur gleymdist á eldavélarhellu. Mikinn reyk lagði um íbúðina en enginn eldur kom upp að sögn slökkviliðsins. Engan sakaði, en íbúðin var reykræst. 7.1.2009 19:17
Fer huldu höfði til að forðast fósturforeldra Fjórtán ára stúlka hefur farið huldu höfði í Reykjavík síðustu daga til að komast hjá því að fara til fósturforeldra á Austurlandi. Barnaverndaryfirvöld hafa komið í fylgd lögreglu til að sækja stúlkuna. Foreldrar hennar saka yfirvöld um valdníðslu. 7.1.2009 18:46
Bjarni Harðar farinn úr Framsóknarflokknum Bjarni Harðarson, fyrrverandi alþingismaður, hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum og útilokar ekki nýtt framboð verði boðað til þingkosninga á árinu. Þetta kemur fram í Sunnlenska fréttablaðinu. 7.1.2009 17:18
Efast um ávinning af fyrirhugaðri sameiningu Starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga efast um fjárhagslegan ávinning af fyrirhugaðri sameiningu sjúkrastofnana á Norðurlandi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi í dag. Ályktunin fer hér eftir: 7.1.2009 17:01
Sigmundur smalaði ekki á átakafund ,,Það var búið að vara mig við því að það væri von á átökum á þessum Reykjavíkurfundi en ég átti ekki von á því að þetta gengi svona fyrir sig. Ég hefði haldið að í hátt í 100 ára gömlum flokki væri ekki svona mikil óvissa um hvernig hlutirnir færu fram," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formannsframbjóðandi í Framsóknarflokknum, um mikinn hitafund Framsóknarfélagsins í Reykjavík í gærkvöldi. Hann segist ekki hafa staðið á bak við eða tengjast smölun á fundinn. 7.1.2009 16:49
Eygló gefur kost á sér sem ritari Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem ritari flokksins. Flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið um miðjan janúar og þar verður ný forysta kjörin. Sæunn Stefánsdóttir, núverandi ritari flokksins og Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður úr Skagafirði, hafa áður lýst yfir framboði í embættið. 7.1.2009 16:42
Obama tekst á við Gaza eftir að hann tekur við embætti Barack Obama hyggst bregðast við ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs um leið og hann tekur við embætti þann 20. janúar næstkomandi. 7.1.2009 16:40
Viðurkennt að árásarmaður í Mumbai sé Pakistani Pakistönsk yfirvöld hafa viðurkennt að Mohammed Ajmal Kasab, eini árásarmaðurinn sem lifði af árásirnar á Mumbai í nóvember, hafi tengsl við Pakistan. Fjölmiðlar höfðu áður haft það eftir ónafngreindum embættismönnum að Kasab, sem er í haldi í Indlandi, væri pakistanskur ríkisborgari. 7.1.2009 16:08
Lamdi getnaðarlim sínum framan í tólf ára dreng Þrír piltar voru í dag fundnir sekir af í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára gömlum dreng. Dómari frestaði refsingu í málinu en dæmdi piltana til þess að greiða drengnum 100 þúsund krónur í bætur. Atvikið varð með þeim hætti að drengurinn var að koma af æfingu í íþróttahúsi í bæjarfélagi á Suðurlandi í janúar á síðasta ári þegar piltarnir, sem þá voru fimmtán ára gamlir, réðust að honum. Tveir þeirra héldu drengnum á meðan sá þriðji leysti niður um sig buxurnar og sló getnaðarlim sínum ítrekað í andlit og hendur drengsins. 7.1.2009 16:05
Leit hætt á norska skíðasvæðinu Leit hefur verið hætt á Horgaletten skíðasvæðinu í Noregi þar sem stórt snjóflóð féll í dag. Enginn er talin hafa orðið fyrir flóðinu. 7.1.2009 15:35
Loðna finnst á mjög stóru svæði fyrir austan Vart hefur orðið við loðnu á mjög stóru svæði úti fyrir Norðausturlandi og norðanverðum Austfjörðum í loðnuleitinni sem nú stendur yfir og ljúka átti í dag. 7.1.2009 15:33
Lögreglan lýsir eftir þrjátíu rafmagnsnuddstólum Skömmu fyrir áramót var um þrjátíu rafmagnsnuddstólum og nokkrum dýnum stolið í innbroti úr fyrirtæki í Hafnarfirði. 7.1.2009 15:19
Læknar krefjast þess að stríðandi fylkingar á Gaza virði Genfarsáttmálann Læknafélög Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur krefjast þess að stríðandi fylkingar á Gaza fylgi í einu og öllu ákvæðum Genfarsáttmálans til að vernda saklausa borgara og tryggja mannréttindi þeirra á stríðstímum. 7.1.2009 15:12
Stórt snjóflóð á norsku skíðasvæði Stórt snjóflóð féll í dag á Horgaletten skíðasvæðinu nærri norska bænum Voss. Lögregla óttast að fjöldi manns kunni að hafa orðið fyrir flóðinu. 7.1.2009 14:55
Harkaleg átök í Framsóknarflokknum ,,Það er ekkert óeðlilegt við það að nýir menn gangi í flokkinn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðmundur Steingrímsson og sjálfsagt að þeim fylgi eitthvað fólk. Ég geri til að mynda fastlega ráð fyrir að fjölskylda og vinir fylgi Sigmundi en þetta var auðvitað öðruvísi gjörningur," segir Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður. 7.1.2009 14:31
Ráðherra kynnir breytingar í heilbrigðisþjónustunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur í hyggju að gera umtalsverðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á næstunni og voru þær breytingar kynntar á fundi nú klukkan tvö. 7.1.2009 14:24
St. Jósefsspítali lagður niður St. Jósefsspítali verður lagður niður og megnið af starfsemi hans flutt til Keflavíkur. Meltingarsjúkdómadeild verður flutt á Landsspítala. Starfsmönnum var tilkynnt þetta á fundi fyrr í dag. 7.1.2009 14:19
Íslenskur hugbúnaður í baráttuna gegn barnaklámi Á næstunni verður tekinn í notkun hjá lögreglunni íslenskur hugbúnaður sem nota á í baráttunni gegn barnaklámi. 7.1.2009 14:01
Kveikt í jólatré á Háaleitisbraut Slökkvilið og sjúkralið voru kölluð að Háaleitisbraut þar sem tilkynnt var um eld og gaf tilkynningin til kynna að um mikinn eld væri að ræða. Þegar slökkvilið kom á staðinn kom hins vegar í ljós að kveikt hafði verið í jólatré utandyra og áttu slökkviliðsmenn ekki í vandræðum með að ráða niðurlögum eldsins. 7.1.2009 13:25
Mótmælt við Landsbankann í Austurstræti Um það bil fimmtíu til sextíu manns mótmæla nú við Landsbankann í Austurstræti. Fólkið krefst þess að þær Elín Sigfúsdóttir bankastjóri Landsbankans og Birna Einarsdóttir bankastjóri Glitnis víkji. Þá hrópa mótmælendur slagorð á borð við: „Engar afskriftir!“ Í gjörningi sem skipulagður hafði verið af mótmælendunum var kona í gervi Elínar borin út úr bankanum. 7.1.2009 13:08
Risastóran búrhval rak á land 40 tonna búrhval rak á land á Borgarhafnarfjöru þann 29. desember síðastliðinn. Hvalurinn er um 14 metra langur og mögulega stærsti búrhvalur sem rekið hefur á land á Íslandi svo vitað sé. Laufey Guðmundsdóttir bóndi á Lækjarhúsum tók meðfylgjandi mynd af ferlíkinu sem er engin smásmíði eins og sjá má. 7.1.2009 12:49
St. Jósefsspítali lagður niður í núverandi mynd Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir að áætlanir geri ráð fyrir að á St. Jósefsspítala verði rekin öldrunarþjónusta og starfsemi hans flutt á Landsspítalann og til Keflavíkur þar sem aðstæður eru betri. Orðrómur hefur verið uppi um að að breyta eigi spítalanum í núverandi mynd í öldrunarstofnun. Á spítalanum eru framkvæmdar á ári hverju fjöldi skurðaðgerða og eru hátt í 1000 manns á biðlista eftir að komast að á spítalanum. 7.1.2009 12:44
Sáttatillaga frá Egyptum skoðuð Ísraelar og Hamas samtökin eru nú að skoða tillögu frá Egyptum um vopnahlé á Gaza ströndinni. Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hafa þegar lýst stuðningi við tillöguna. 7.1.2009 12:24
Ekkert ákveðið um yfirtöku á myntkörfulánum Til greina kemur að íbúðalánasjóður yfirtaki erlend íbúðalán á því gengi sem var í gildi þegar þau voru tekin. Þessi lausn er nú í skoðun hjá félagsmálaráðuneytinu og viðskiptaráðuneytinu. Ekkert hefur þó verið ákveðið í þeim efnum. 7.1.2009 11:55
Vodafone: Rannsókn mun taka af allan vafa um eðlilega viðskiptahætti Forsvarsmenn símafyrirtækisins Vodafone, sem Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá í morgun, taka í sama streng og stjórnarformaður Teymis og fagna aðgerðunum. Félagið segir að húsleitin muni taka af allan vafa um eðlilega og heiðarlega viðskiptahætti fyrirtækisins. 7.1.2009 11:01
Meirihluti styður einhliða upptöku gjaldmiðils í stað krónu Meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi einhliða upptöku alþjóðlegs gjaldmiðils í stað krónu. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir áhugamenn um stjórn peningamála. 56,4% sögðust hlynntir einhliða upptöku alþjóðlegrar myntar, 21,6% andvígir en 22% sögðu hvorki né. 7.1.2009 10:11
Umtalsverðar breytingar á heilbrigðisþjónstunni Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnir umtalsverðar breytingar á skipulagi og verkaskiptingu í heilbrigðisþjónustunni í landinu á fundi með blaðamönnum í dag. Ráðgert er að sjúkrastofanir verði sameinaðar og aðrar jafnvel lagðar niður. Starfsmenn St. Jósefsspítala og Sólvangurs fordæmdu í gær vinnubrögð ráðherra en orðrómur er uppi um að að breyta eigi spítalanum í öldrunarstofnun. 7.1.2009 09:35
Fordæmir innrás Ísraelshers Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. Í ályktun stjórnarinnar segir að loftárásir og innrás hersins bitni helst á íbúum svæðisins sem þegar búa við kröpp kjör. Ekkert réttlæti ofbeldi gegn saklausum borgurum. 7.1.2009 09:16
„Meira að segja kaldara en á Íslandi“ Óttast er að rúmlega 12 eldri borgarar í Bretlandi geti dáið að meðaltali vegna kulda á hverri klukkustund eins og ástandið er nú þar í landi. 7.1.2009 08:53
Marsleiðangri frestað um tvö ár vegna tækjaprófana Ákveðið hefur verið að fresta leiðangri til Mars, sem hefjast átti í haust, um tvö ár vegna prófana á tækjabúnaði. 7.1.2009 08:33
Breska vísindamenn bráðvantar heila Ætlirðu þér ekki að nota heilann mikið eftir dauðann yrðu vísindamenn við King´s College í London ákaflega þakklátir fyrir að fá að nota hann. 7.1.2009 08:25
Fyrsta mannskæða gulusóttin síðan 1966 í Argentínu Fyrstu mannskæðu gulusóttartilfellin síðan 1966 eru komin upp í Argentínu og er nú unnið hörðum höndum að því að bólusetja á aðra milljón manna sem búa á svæði nálægt landamærum Brasilíu og talið er að séu berskjaldaðir gagnvart sjúkdómnum. 7.1.2009 08:23
Rændi fyrrum eiginmann sinn Lögregla á Vestur-Jótlandi í Danmörku handtók í gærkvöldi par sem eftirlýst var fyrir rán. Það var fyrrverandi eiginmaður konunnar sem varð fyrir barðinu á ræningjunum en þau réðust að honum í heimahúsi og tóku hann með sér að næsta hraðbanka þar sem þau neyddu hann til að taka út andvirði rúmlega 20.000 íslenskra króna og afhenda parinu. 7.1.2009 08:21