
Fleiri fréttir

Ofbeldismenn verða dregnir til ábyrgðar
Árás mótmælenda á lögreglumenn í nótt er litin gríðarlega alvarlegum augum og verða ofbeldismenn dregnir til ábyrgðar. Lögreglan hefur fengið ýmsar hótanir og eru hún við öllu búin.

Ekkert annað en táragas í stöðunni
Pokar með saur og þvagi var meðal þess sem reynt var að kasta að lögreglumönnum í nótt. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðiðsins segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að beita táragasi en til þess hefur ekki verið gripið í 60 ár.

Breskir fjölmiðlar þakka lopapeysurnar
Breskir fjölmiðlar fara hlýjum orðum um staurblanka Íslendinga sem hafi sent heilan gám af lopapeysum, treflum, leistum og húfum til aldraðra Breta sem hrynji niður af kulda.

Rassskellir sýknaður í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur sýknað karlmann fyrir að hafa tvisvar til þrisvar sinnum rassskellt drengi á aldrinum 6 ára og 4 ára á beran rassinn með þeim afleiðingum að þeir hlutu roða á rassinn og fyrir að hafa að því loknu borið olíu á rassinn á þeim.

Samfylkingin frestar fundi vegna óvissu
Samfylkingin hefur ákveðið að fresta framtíðarþingi sem átti að fara fram á laugardaginn vegna stjórnmálaástandsins, að fram kemur í tilkynningu til flokksmanna. Fimm dagar eru síðan að flokkurinn boðaði til blaðamannafundar og greindi frá þinginu og að flokkurinn hygðist efna til opinna funda um land allt á næstu vikum um Evrópumál.

ÖBÍ mótmælir aðför að velferðarkerfinu
Aðalstjórn Öryrkjabandalagsins mótmælir harðlega aðför ríkisstjórnarinnar að lífeyrisþegum og langveikum og fer fram á að gripið verði til réttlátra aðgera í þeim efnahagsvanda sem við er að glíma.

Hvatti Ingibjörgu til að íhuga stjórnarslit með sms-i
Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, hvetur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, til að íhuga stjórnarslit og skoða með opnum hug tilboð Framsóknarflokksins um að verja

Glundroði í stjórnarsamstarfinu
Alger glundroði er í samstarfi stjórnarflokkanna, sem standa hvorki saman inn á við né út á við, segir stjórnmálafræðiprófessor. Samfylkingin hagnast á því að flýta kosningum, Sjálfstæðisflokkur tapar.

Eldhestur á Spáni
Kaþólikkar eiga sér marga dýrlinga sem sjá um hina og þessa hluti fyrir þá. Einn þeirra er heilagur Antoníus sem er verndari dýra.

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir meintum brennuvargi felldur úr gildi
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem er grunaður um að hafa orðið valdur að bruna í húsi að Tryggvagötu 10 í síðasta mánuði.

Einnig húsleit hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur
Samkeppniseftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleitir á skrifstofum Mjólkurfélags Reykjavíkur og Fóðurblöndunnar Til húsleitanna var aflað úrskurða frá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Guðlaugi afhent bænaskjal 70 prósent Hafnfirðinga
Velunnarar St. Jósefsspítala afhenda Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðisráðherra, tæplega 14 þúsund undirskriftir, eða 70% kosningabærra Hafnfirðinga, í kvöld vegna fyrirhugaðrar lokunar spítalans.

Eins og draugaskip
Það hefur verið mikið kuldakast bæði austan hafs og vestan undanfarnar vikur. Það hefur komið þjóðum í Austur-Evrópu mjög illa þar sem Rússar skrúfuðu fyrir gasflutninga sína til Evrópu vegna deilna við Úkraínu.

Lögreglan fékk blóm í barminn og heitt kakó frá mótmælendum
Um það bil 300 manns standa nú mótmælavaktina á Austurvelli og andæfa ríkisstjórninni. Að sögn sjónarvotta er stemmningin allt önnur en í gærkvöldi þegar mikil átök brutust út á milli lögreglu og mótmælenda.

Reykjavíkurborg og Hjálpræðisherinn sinna utangarðsfólki
Borgarráð hefur að tillögu velferðarráðs samþykkt að Reykjavíkurborg gangi til samstarfs við Hjálpræðisherinn um starfsemi fyrir utangarðsfólk í dagsetri Hjálpræðishersins í Reykjavík.

Brotist inn í fjölda hesthúsa
Það sem af er árinu hefur verið brotist inn í á annan tug hesthúsa á höfuðborgarsvæðinu.

Drógu bátskrifli flóttamanna út á haf
Thailenski sjóherinn er sakaður um að hafa dregið nokkur bátskrifli með tæplega eittþúsund flóttamönnum á haf út og skilið þá þar eftir. Í bátunum var fólk sem kallar sig Rohingya og kemur frá Burma. Þar er fólkið ekki viðurkennt sem minnihlutahópur og þúsundir hafa flúið land undanfarna áratugi.

Enn mótmælt fyrir utan Alþingi
Enn er nokkur fjöldi mótmælenda fyrir framan Alþingishúsið á Austurvelli, en þar hafa þeir verið frá því klukkan tíu í morgun. Lögreglan segir að mótmælin séu friðsamleg á þessari stundu. Háreysti frá mótmælunum hafa heyrst inn í þinghúsið.

Samkeppniseftirlitið fór inn í Fóðurblönduna
Samkeppniseftirlitið gerði í morgun húsleit á skrifstofu Fóðurblöndunnar hf. í Reykjavík. Samkvæmt dómsúrskurði frá því í gær sem heimilaði húsleitina telur Samkeppniseftirlitið grun leika á að Fóðurblandan og Mjólkurfélag Reykjavíkur hafi viðhaft viðvarandi verðsamráð í andstöðu við samkeppnislög á fóðurmarkaði undanfarin þrjú ár.

Caroline langar ekki lengur í þingsæti Hillary
Caroline Kennedy dóttir fyrrverandi Bandaríkjaforseta hefur dregið til baka umsókn sína um að taka sæti Hillary Clintons í öldungadeild þingsins.

Fordæma ofbeldisseggi
Landssamband lögreglumanna fordæmir framgöngu tiltekinna einstaklinga að beita lögreglumenn alvarlegu ofbeldi en stór hópur lögreglumanna er slasaður eftir atburði undanfarinna daga og einkum eftir nóttina.

Raddir fólksins: Lögreglan er ekki óvinur okkar
Raddir fólksins sem staðið hafa fyrir friðsömum mótmælafundum á Austurvelli undanfarna mánuði segja að sögulegur sigur lýðræðis í landinu sé í augsýn. ,,Lögreglan er ekki óvinur okkar. Beinum sjónum okkar að því að byggja upp nýtt Ísland, nýtt lýðveldi og nýja þjóð,” segir í tilkynningu frá samtökunum.

Geir rangtúlkar skilaboð frá Ingibjörgu Sólrúnu
Geir Haarde forsætisráðherra rangtúlkar skilaboð um framhald ríkisstjórnarsamstarfsins sem hann hefur fengið í samtölum við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra síðastliðna tvo daga. Þetta fullyrti Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarkona Ingibjargar, við nokkra samflokksmenn sína í gær.

Gangstéttarhellan sem rotaði lögreglumanninn var 3,5 kíló
Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir ekki standa til að taka harðar á mótmælendum eftir atburði gærdagsins. Lögreglan meti aðstæður hverju sinni og hingað til hafi hún sýnt þolinmæði. Breyting hafi hinsvegar orðið á því í gær. Lögregluþjónn rotaðist eftir að hafa fengið steinhnullung sem vó 3,5 kg í höfuðið. Áður hafði hann fengið 3 til 4 hnullunga í sig. Stefán segir að tekið verði á grjótkösturunum af fullri hörku.

Mótmælin í nótt - myndskeið
Mótmælum í miðborg Reykjavíkur lauk um þrjúleytið í nótt. Einn lögreglumaður slasaðist alvarlega eftir að múrsteinum var kastað í höfuð hans, en hjálmur sem hann bar á höfðinu, kom í veg fyrir að ekki fór verr. Alls voru sjö lögreglumenn fluttir á slysadeild, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki hafa fengist upplýsingar að svo stöddu um það hvers eðlis meiðsl þeirra eru.

Útboð um olíuleit á Drekasvæðinu hefst
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, mun í hádeginu opna vefsíðu vegna olíuleitar á Drekasvæði sem markar upphaf fyrsta útboðs vegna leyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna á landgrunni Íslands.

Geir: Ýmislegt verið gert
Heimilin í landinu þurfa um síðir að greiða niður kostnað vegna halla ríkissjóðs og tvær leiðir eru til þess, sagði Geir Haarde forsætisráðherra á Alþingi í morgun. Annars vegar verður hæt að ganga á eign ríkisins hjá Seðlabankanum sem gæti leitt til aukinnar verðbólgu. Hin leiðin er útgáfa ríkisskuldabréfa sem myndi leiða til hækkun vaxta síðar. Geir frábað sér umræðu um það að stjórnvöld hefðu ekki gert neitt til að bregðast við fjármálakreppunni sem ríkir á landinu. Hann greindi frá ýmsum aðgerðum sem stjórnvöld hefðu unnið að og sem unnið verður að á næstu misserum.

Margt bendir til að lögregla hafi vísvitandi úðað á myndatökumenn
Blaðamannafélag Íslands lýsir undrun á því hversu margir fréttaljósmyndarar og tökumenn urðu fyrir piparúða við aðgerðir lögreglunnar í Alþingisgarðinum þann 20. janúar. Í ályktun frá félaginu segir að margar myndir af vettvangi sem og fjöldi þeirra sem varð fyrir úðanum bendi til þess að lögreglan hafi vísvitandi gripið til aðgerða gagnvart þessum hópi sem var einungis að sinna sínum störfum.

Lögreglan lýsir eftir Agnesi Lilju
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Agnesi Lilju Ingvarsdóttur. Agnes er 14 ára, grannvaxin um 160 sm. á hæð, dökkhærð. Hún gæti verið með síða hárlengingu sem taka má af þannig að eftir er mjög stutt hár. Ekki er vitað með klæðnað hennar.

Vilja að boðað verði til stjórnlagaþings
Síðar í dag verður hleypt af stokkunum undirskriftarsöfnun á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is. Þar gefst þjóðinni kostur á að skora á Alþingi að samþykkja að boða til stjórnlagaþings, nýjan þjóðfund.

Mótmælt við þinghúsið
Mótmæli við Alþingi halda áfram þriðja daginn í röð. Á fjórða tug mótmælenda standa fyrir utan þinghúsið og heyrist hávaðinn vel inni í húsinu, að sögn fréttamanns sem er á staðnum. Lögreglumenn standa fyrir utan húsið og þá standa yfir þrif á þinghúsinu eftir mótmælin í gær og nótt.

Sjö ungmenni handtekin fyrir að stela torfæruhjóli
Lögreglan á Selfossi handtók sjö ungmenni í gær vegna innbrots og þjófnaðar í Laugarási í Biskupstungum. Að sögn lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar ferðir manna á jeppabifreið í gróðurhúsahverfi í Laugarási rétt fyrir miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Lögreglumenn fóru þegar í stað á tveimur lögreglubifreiðum og fóru leiðir sem hugsanlegt væri að mennirnir gætu farið.

Ný könnun MMR: Framsókn stærri en Samfylkingin
Verulega dregur úr fylgi Samfylkingar og stuðningur við Framsóknarflokkinn eykst mikið. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR.

Þingfundur á eftir - Geir kynnir skýrslu um efnahagsmál
Alþingi kemur saman klukkan hálf ellefu. Einhverjar skemmdir urðu á þinghúsinu í aðgerðum mótmælenda í gær og í nótt. Þingfundi sem stóð til að halda í gær var frestað vegna mótmælanna sem urðu við húsið í fyrradag.

Sjö lögreglumenn leituðu á slysadeild
Sjö lögreglumenn þurftu að leita á slysadeild í nótt eftir grjótkast frá mótmælendum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem mest slasaðist fékk þungt höfuðhögg þegar múrsteini var kastað í höfuðið á honum og var fluttur burt frá

Loftpressa brann yfir í Skeifunni
Lögreglu barst í morgun tilkynning um að reyk legði frá kjallara fatahreinsunarinnar Fannar í Skeifunni. Í ljós kom að loftpressa hafði brunnið yfir í kjallara hússins og skapaðist mikill reykur en enginn eldur við það. Slökkviliðsmenn reykræstu rýmið.

Mótmælafundur gegn ofbeldi
Boðað hefur verið til mótmæla gegn ofbeldi og eignaspjöllum. Þau munu fara fram á Lækjartorgi næst komandi sunnudag.

Á sjöunda þúsund krefjast kosninga á kjósa.is
Á sjöunda þúsund Íslendinga hafa skráð sig til stuðnings kröfu um kosningar til Alþingis eins fljótt og mögulegt er, á vefnum Kjósa.is. Með því taka þeir undir það sjónamið, sem sett er fram á vefnum, að ekki sé hægt að hefja uppbyggingarstarf eftir bankahrunið nema með endurskoðuðu umboði stjónrvalda.

Grunaður um að myrða móður sína
Kona fannst látin í íbúð í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í morgun og er talið að hún hafi verið myrt. Sonur hinnar látnu hefur verið handtekinn, grunaður um verknaðinn, en það var hann sem hafði samband við lögreglu og greindi frá því að lík væri í íbúðinni. Áverkar á líkinu benda til þess að konan hafi fengið þungt högg í andlitið.

Jákvæðar úrtölur hjá Parmigiani
Svissneski armbandsúraframleiðandinn Parmigiani kvíðir því ekki að hinir efnameiri hætti að kaupa sér úr þótt aðrir framleiðendur í sama bransa finni fyrir samdrætti.

Ísraelsher rannsakar fosfórnotkun á Gaza
Ísraelsher rannsakar nú hvort fosfórsprengjum hafi verið varpað á óbreytta borgara á Gaza-svæðinu en mannréttindasamtökin Amnesty International fullyrða að slík atvik hafi átt sér stað.

Obama sver á ný
Barack Obama bandaríkjaforseti sór embættiseið sinn aftur í gærkvöldi til að hafa það örugglega á hreinu að hann gegni embættinu réttilega en John Roberts, forseti Hæstaréttar, fipaðist þegar hann fór með eiðstafinn fyrir Obama við embættistökuna á þriðjudaginn.

Ómanneskjulegt álag á lögreglumenn
Þeir lögreglumenn sem stóðu vaktina lengst við Alþingishúsið í fyrradag og aðfaranótt miðvikudagsins voru að í allt að tuttugu klukkustundir, að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Fjórir af tíu brotamönnum sleppa með aðvörun
Fjórir af hverjum tíu afbrotamönnum sem fremja alvarleg brot í Bretlandi sleppa með aðvörun þegar í raun ætti að ákæra þá og rétta yfir þeim. Þetta hefur Telegraph eftir David Ruffley, skuggaráðherra lögreglumála, sem nýlega gagnrýndi aukastörf lögreglumanna harðlega.

Danska tollgæslan kvartar yfir skorti á eftirliti
Danska tollgæslan hefur þungar áhyggjur af slælegu eftirliti með vopnum, lyfjum og peningum við landamæri. Niðurskurður og skortur á úrræðum er orsök þess vanda að sögn Jørn Rise, formanns Tollvarðafélags Danmerkur.