Kompáslögmaður í þriggja ára fangelsi 26. september 2007 15:23
Róbert Árni Hreiðarsson lögmaður var í dag dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum unglingsstúlkum. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir vörslu barnakláms. Ákæra á hendur Róberti var í níu liðum og sneru sex þeirra að kynferðsbrotum eða brotum á lögum um barnavernd. Þannig var honum gefið að sök að hafa árið 2005 í tvö skipti tælt 14 ára stúlku til kynferðismaka við sig gegn peningagreiðslum og blekkingum og með því að nýta sér yfirburði sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs- og þroskamunar. Komst hann í samband við stúlkuna með því að villa á sér heimildir á Netinu og þykjast vera 17 ára strákur að nafni Rikki. Þá var Róbert einnig ákærður fyrir að hafa sent stúlkunni myndir af nöktum karlmanni að fróa sér. Róbert var jafnframt ákærður fyrir að hafa í 15 skipti frá hausti 2005 til vors 2006, tælt aðra stúlku, þá 15 ára, til kynferðismaka með peningagreiðslum og blekkingum. Þar notaði hann einnig dulnefni á Netinu til þess að komast í samband við stúlkuna. Enn fremur var hann ákærður fyrir að hafa greitt þriðju unglingsstúlkunni fyrir að hafa kynferðismök við sig í Elliðaárdalnum gegn greiðslu. Fjórðu stúlkuna, sem einnig var 15 ára, reyndi hann að ítrekað að tæla til kynferðismaka með boði um greiðslu og með því að nýta sér yfirburði sína gagnvart henni vegna aldurs- og þroskamunar, eins og segir í ákæru. Enn fremur var hann ákærður fyrir að borga stúlkunni fyrir að sýna á sér brjóstin og fróa sér í gegnum vefmyndavél. Róbert var enn fremur ákærður fyrir vörslu barnakláms. Við leit á heimili hans fundust fimm myndbandsspólur og 104 ljósmyndir á hörðum diski tölvu hans sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þá fann lögreglan 121 ljósmynd á hörðum diski á tölvu í vinnu hans.Mátti vita að stúlkan léti til leiðastDómurinn sakfelldi Róbert fyrir vörslu á myndbandsspólunum og langflestum ljósmyndunum í tölvum á heimili og í vinnu. Dómurinn komst enn fremur að þeirri niðurstöðu að Róbert hefði brotið lög með því að tæla fyrstnefndu stúlkuna til kynmaka til greiðslu. Róberti hafi mátt vera það ljóst að miklar líkur væru á að stúlkan léti til leiðast um síðir og væri reiðubúin að hafa við hann kynferðismök til að afla fjárins. Hins vegar var hann sýknaður af því að hafa sent stúlkunni myndir af karlmanni að fróa sér í tölvupósti þar sem ekki hefði komið fram hvort stúlkan hefði séð myndirnar, en þær fundust í tölvu Róberts. Héraðsdómur sakfelldi hann hins vegar fyrir alla aðra ákæruliði þar sem honum var gefið að sök að hafa tælt 15 ára stúlkur til kynferðismaka eða reynt að gera það. Dómurinnn komst enn fremur að því að Róbert bæri að greiða stúlkunum samtals 2,2 milljónir í skaðabætur. Jafnframt voru tölvur og myndbandsspólur í hans eigu gerðar upptækar. Róbert var enn fremur sviptur lögmannsréttindum að kröfu saksóknara.Hélt áfram brotum eftir að rannsókn hófstDómurinn segir að ljóst sé að Róbert hafi nýtt sér yfirburðastöðu sína í krafti aldurs síns og reynslu gagnvart unglingsstúlkunum sem voru á viðkvæmu kynþroskaskeiði. Allar stúlkurnar hafi átt við að stríða andlega og félagslega erfiðleika og sjálfsmynd þeirra því afar brothætt og hafi Róbert verið fullkunnugt um þetta. Brot hans gagnvart einni fimmtán ára stúlkunni eru talin sérstaklega alvarleg þar sem hann hafði ítrekað við hana mök og brotaviljinn því einbeittur. Þá hafi hann haldið brotum sínum áfram eftir að honum var kunnugt um að hann væri grunaður um kynferðisbrot gagnvart 14 ára stúlkunni. „Þá verður ekki hjá því litið að ákærði var starfandi lögmaður er hann framdi brotin en hann hefur m.a. annast hagsmunagæslu fyrir brotaþola í sakamálum og sinnt verjandastörfum í kynferðisbrotamálum. Voru honum því fyrirfram einkar ljósir hinir mikilsverðu hagsmunir er brot hans beindust gegn," segir enn fremur í dómnum. Fjallað var um mál Róberts í Kompási fyrir viku þar sem kom að hann hefði haldið fullum réttindum sínum sem lögmaður þau tvö ár sem mál hans var rannsakað og dvalið löngum stundum í Barnahúsi við að yfirheyra fórnarlömb meintra kynferðisbrotamanna sem voru skjólstæðingar hans. Róbert hefur hins vegar haldið fram sakleysi sínu í málinu.Dóminn í heild sinni má lesa hér.Með fréttinni er myndskeið úr Kompási þar sem fjallað var um mál Róberts.
Tengdar fréttir Réttlætinu verður aldrei fullnægt Faðir einnar stúlkunnar sem lenti í klóm Róberts Árna Hreiðarssonar segir það mikinn létti að dómur hafi verið kveðinn upp í máli Róberts gegn dóttur hans og þremur öðrum stúlkum. Hann segir þó að dómurinn eða miskabætur geti aldrei bætt upp fyrir þau ör sem dóttir hans mun bera á sálinni til æviloka. 26. september 2007 15:50 Með 335 stúlkur á skrá Róbert Árni Hreiðarsson, sem í dag var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, hafði í fórum sínum minnisbók með nöfnum, netföngum og símanúmerum 335 stúlkna, þegar lögregla gerði húsleit á heimili hans að Traðarlandi í september 2005. 26. september 2007 16:14 Héraðsdómarar gengu of langt Einar Gauti Steingrímsson, verjandi Róberts Árna Hreiðarssonar sem í dag var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, var harðorður í garð dómara Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að dómur féll í dag. 26. september 2007 15:26 Eðlilegt að Róbert fái þyngri dóm en ella Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður segir að með brotum sínum hafi Róbert Árni Hreiðarsson varpað skugga á heiður lögmannastéttarinnar. 26. september 2007 16:47 Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Bíll valt eftir aftanákeyrslu Innlent Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Erlent Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Innlent Fleiri fréttir Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Sjá meira
Réttlætinu verður aldrei fullnægt Faðir einnar stúlkunnar sem lenti í klóm Róberts Árna Hreiðarssonar segir það mikinn létti að dómur hafi verið kveðinn upp í máli Róberts gegn dóttur hans og þremur öðrum stúlkum. Hann segir þó að dómurinn eða miskabætur geti aldrei bætt upp fyrir þau ör sem dóttir hans mun bera á sálinni til æviloka. 26. september 2007 15:50
Með 335 stúlkur á skrá Róbert Árni Hreiðarsson, sem í dag var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, hafði í fórum sínum minnisbók með nöfnum, netföngum og símanúmerum 335 stúlkna, þegar lögregla gerði húsleit á heimili hans að Traðarlandi í september 2005. 26. september 2007 16:14
Héraðsdómarar gengu of langt Einar Gauti Steingrímsson, verjandi Róberts Árna Hreiðarssonar sem í dag var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, var harðorður í garð dómara Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að dómur féll í dag. 26. september 2007 15:26
Eðlilegt að Róbert fái þyngri dóm en ella Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður segir að með brotum sínum hafi Róbert Árni Hreiðarsson varpað skugga á heiður lögmannastéttarinnar. 26. september 2007 16:47
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent