Fleiri fréttir

Frakkar mestu eyðsluseggir Evrópu

Jean-Claude Trichet bankastjóri evrópska seðlabankans ásakar Frakka um að vera mestu eyðsluseggi í Evrópu. Trichet varaði við því að samanburði við verga landsframleiðslu myndu Frakkar eyða meira en nágrannar þeirra árið 2007. Viðvörunin kemur á sama tíma og Francois Fillon forsætisráðherra sagði stöðu fjármála í landinu alvarlega.

IGS þarf að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli (IGS) um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna fyrirtækisins yrði felldur úr gildi. Félagið þarf því að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota.

Ný tegund glæpamanna

Ný tegund glæpamanna hefur stungið upp kollinum á Höfðasvæðinu í Suður-Afríku. Um er að ræða hóp bavíana sem er kennt um röð innbrota á heimili. Aparnir lifa villtir á svæðinu og fara um í leit að æti. Þeir hafa valdið skemmdum fyrir hundruð þúsunda íslenskra króna.

Verðlaunaður fyrir baráttu gegn loftlagsbreytingum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gær við verðlaunum frá Louise T. Blouin stofnuninni fyrir forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir að stuðla að nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku víða um heim.

iPhone til Evrópu í nóvember

iPhone-síminn frá Apple verður gefinn út í nokkrum Evrópulöndum í byrjun nóvember. Evrópuútgáfan verður ekki uppfærð með þriðju kynslóðar (3G) eiginleikum, eins og margir bjuggust við. Þess í stað kemur út þriðju kynslóðar útgáfa um allan heim á næsta ári, samkvæmt tilkynningu frá Apple.

Lögreglan lokar Laugavegi

Lögreglan hefur lokað hluta Laugavegar vegna þess að þakplötur eru farnar að fjúka af þaki húss númer 71 við götuna. Vegfarendum er bannað að ganga framhjá húsinu vegna hættu á því að plöturnar slasi fólk. Körfubíll er á svæðini og eru iðnaðarmenn nú að athafna sig á þaki hússinns.

Reyndu að flýja Fáskrúðsfjörð

Samkvæmt heimildum Vísis reyndu þeir Guðbjarni Traustason og Alvar Óskarsson, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna Fáskrúðsfjarðarmálsins, að flýja Fáskrúðsfjörð þegar þeir urðu varir við að þeim var veitt eftirför.

Rannsókn á húsakaupum Olmerts

Dómsmálaráðuneyti Ísraels hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á fasteignakaupum Ehud Olmerts forsætisráðherra í Jerúsalem. Olmert keypti eign fyrir um 20 milljónir íslenskra króna, sem er um 10 milljónum undir markaðsvirði.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Bjarna Hrafnkelssyni og Einari Jökli Einarssyni. Þeir voru báðir handteknir í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur til 18. október. Alls voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald en aðeins Bjarni og Einar Jökull áfrýjuðu úrskurðinum til Hæstaréttar.

Samherji hættir skreiðavinnslu á Hjalteyri

Samherji hyggst loka skreiðavinnslu sinni á Hjalteyri við Eyjafjörð og missa á bilinu 8-10 manns vinnuna við það. Samherji hefur verið stærsti vinnuveitandinn í Arnarneshreppi og segir Axel Grettisson, oddviti hreppsins, að starfsmönnum hafi verið boðin vinna á Dalvík og akstur þangað, alla vega í vetur.

Máttu líkja múslímum við nasista

Saksóknari í Kaupmannahöfn hefur komist að því að félagar í Danska þjóðarflokknum hafi ekki gerst sekir um kynþáttahatur þegar þeir líktu slæðum múslíma við hakakrossinn og múslímum við nasista.

Ítalir úr haldi afganskra mannræningja

Tveimur ítölskum hermönnum sem mannræningjar tóku höndum í vesturhluta Afganistans á laugardag var bjargað af herafla NATO í dag. Ítalska varnarmálaráðuneytið skýrði frá þessu og sagði að báðir mennirnir væru slasaðir, annar alvarlega. Þeir eru nú á sjúkrahúsi.

Tekist á um mögulegar olíulindir

Íslendingar, Færeyingar, Bretar og Írar ætla í vikunni að freista þess að ná samkomulagi um skiptingu Hatton Rockall svæðisins. Um mikla hagsmuni er að tefla því talið er að þar geti verið gjöfular olíulindir.

Tími kjarnorkusprengjunnar liðinn

Íransforseti segir tíma kjarnorkusprengjunnar liðinn. Íranar stefni ekki að smíði slíkra vopna - þau þjóni engum tilgangi. Ef svo væri hefðu Sovétríkin aldreið liðast í sundur og Bandaríkjamönnum gengið betur í Írak.

Einn lést í flóðum á Spáni

Einn lést í flóðum á Spáni eftir úrhellisrigningu síðustu daga. Strandbærinn Almunecar á suðurhluta landsins varð vest úti en talið er að tjón af völdum flóðanna þar hlaupi á sex hundruð milljónum króna.

Vara við litarefnum sem valda hegðunarvanda hjá börnum

Neytendasamtökin hvetja íslenska neytendur til að sniðganga matvæli sem innihalda hin umdeildu asó-litarefni. Fram kemur í frétt á heimasíðu samtakanna að efnin geti valdið ofvirkni og hegðunarvanda hjá börnum. Efnin eru algeng í hvers konar sælgæti.

Ekki vanhæfur til að fjalla um ráðningu frænda

Bæjarlögmaður Kópavogs hefur komist að þeirri niðurstöðu að skólanefndarfulltrúi hafi ekki verið vanhæfur til að að sitja afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Lögmaðurinn mun senda bæjarstjórn Kópavogs niðurstöðu sína á morgun.

Meira frelsi til skoðana í nýrri ríkisstjórn

Formaður Samfylkingarinnar segir að stjórnarliðum leyfist nú að hafa skoðanir og skýtur þannig föstum skotum að fyrri ríkisstjórrn. Stjórnarliðar hafa enda tjáð sig frjálslega mál sem einhugur er ekki um í ríkisstjórninni.

Höfuðklútar bannaðir í skólum í Kosovo

Þrír nemendur í Kosovo hafa verið reknir úr skóla fyrir að bera höfuðklút. Ákvörðunin endurspeglar umræður um höfuðklúta sem ganga nú um Evrópu. Umræðan flækir baráttu fyrir sjálfstæði Kosovo, en héraðið hefur verið undir stórn Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1999.

Hnefaleikaforkólfur ákærður fyrir líkamsárás

Í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun var þingfest ákæra á hendur 45 ára karlmanni sem gefið er að sök að hafa ráðist á 37 ára karlmann á veitingastaðnum Classic Rock með hnefahöggum. Maðurinn neitaði sök þegar hann var inntur eftir afstöðu sinni til ákærunnar í morgun. Ákærði hefur lengi sinnt áhrifastörfum fyrir hnefaleikahreyfingunna á Íslandi og hlaut dóm fyrir að þjálfa hnedaleika áður en Íþróttin var lögleidd hér á landi.

Abe biðst afsökunar á afsögn

Fráfarandi forsætisráðherra Japan Shinzo Abe sagði í dag að hrakandi heilsa hefði orðið til þess að hann ákvað svo skyndilega að segja af sér. Hann bað þjóðina afsökunar á því að stuðla að pólitísku uppnámi.

Eðlileg gagnrýni

Gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á hagstjórn síðustu ríkisstjórnar er eðlileg að mati Péturs H. Blöndal, alþingismanns. Hann segir ekkert óeðlilegt að flokkur sem kemur nýr inn í ríkisstjórn gagnrýni aðgerðir þeirrar sem sat á undan.

Uppreisnarmenn í Nígeríu rjúfa vopnahlé

Uppreisnarmenn á Deltasvæðinu í Nígeríu sem ríkt er af olíu hafa tilkynnt að frá miðnætti muni þeir ekki virða vopnahlé sem verið hefur í gildi. Árásir munu þá hefjast að nýju á olíuvinnslustöðvar. Þá hóta uppreisnarmennirnir frekari mannránum á starfsmönnum við olíuvinnslu á svæðinu.

Fangi framdi ekki sjálfsmorð

Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri segir það alrangt að maðurinn sem lést á Litla-Hrauni um helgina hafi svipt sig lífi eins og líkur eru leiddar að í DV í dag. Valtýr segir að alfrei hafi neitt bent til þess að um sjálfsvíg hafi verið að ræða og það hafi verið staðfest við nánari eftirgrennslan.

Þungt að vita af bróður mínum í varðhaldi

Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í síðustu viku í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið, segir í samtali við Vísi að erfitt sé að vita af bróður sínum á Íslandi í gæsluvarðhaldi

Skýstrókar gengu yfir England

Röð skýstróka hefur gengið yfir England í morgun og gjöreyðilagt heimili á nokkrum stöðum. Bresku fréttastofurnar Sky og BBC greina frá því að skýstrókarnir hafi gengið yfir á sjöunda tímanum í morgun. Íbúar segja tré hafa rifnað upp með rótum og skemmt heimili og bíla.

Valt í þrengslunum

Malarflutningabíll fór útaf veginum í Þrengslunum til móts við Votaberg laust fyrir klukkan tíu í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild.

Munkar leiða mestu mótmæli í Burma

Þúsundir munka og almennra borgara marsera um götur Yangon fyrrum höfuðborgar Burma og mótmæla þannig herstjórninni í landinu. Vitni segja allt að 30 þúsund manns á götum borgarinnar, sem er mesti mannfjöldi í mótmælum í 20 ár. Mótmælin í dag fylgja í kjölfar mótmæla í gær sem 20 þúsund munkar og nunnur tóku þátt í.

Fannst látinn í klefa sínum

Karlmaður fæddur 1972 fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni um helgina. Frá þessu er greint á heimasíðu fanga, Timamot.is. Þar segir að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi tekið sitt eigið líf. Hinn látni var við það að ljúka afplánun á 16 ára fangelsisdómi sem hann fékk fyrir morð. Hann strauk af áfangaheimilinu Vernd fyrir hálfum mánuði og var greint frá því í fjölmiðlum.

Hillary segist ekki vera lesbía

Andstæðingar Hillary Clinton í slagnum um að verða forsetaframbjóðandi Demókrata í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum reyna hvað þeir geta til að sverta ímynd hennar. Í nýjasta tölublaði The Advocate neitar hún til að mynda því að hún sé lesbía.

Stjórnarsáttmáli útilokar ekki aðildarumsókn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra bendir á það í viðtali við Stöð tvö að ekki sé kveðið upp úr um það í stjórnarsáttmálanum að ekki verði sótt um aðild að Evrópusambandinu á kjörtímabilinu.

Heilbrigðar konur fjarlægja jafnvel brjóst sín til að forðast krabbamein

Pétur Hauksson geðlæknir telur ákaflega vafasamt að bjóða almenningi að kaupa greiningu á erfðamengi sínu eins og Íslensk erfðagreining áformar að gera. Hann segir að svo geti farið að heilbrigðar konur með kortlagða áhættuþætti láti jafnvel fjarlægja brjóst sín til að fá ekki krabbamein.

Stunginn hundrað sinnum

Það draup hunang af hverju strái í húsdýragarðinum í dag þegar býflugnabændur héldu uppskeruhátíð og kynntu afurðir sínar. Framleiðslan gengur þó ekki alltaf áfallalaust fyrir sig og einn bóndi segist hafa verið stunginn mörg hundruð sinnum.

Líður sem hústökumanni í eigin íbúð

Íbúar við Skúlagötu 32 í Reykjavík eru ósáttir við fyrirhugaða framkvæmdir á hinum svokallaða Barónsreit. Þeir fréttu fyrst fyrir nokkrum dögum að reisa ætti verslunarmiðstöð þar sem íbúðir þeirra standa í dag.

Smyglskútan sigldi langa leið

Smyglskútan sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudag var tekin á leigu í Bergen og þaðan siglt til ýmissa landa áður en henni var siglt hingað til lands. Íslendingnum, sem var í haldi norsku lögreglunnar, hefur verið sleppt.

Skotið á skútusmyglara í fyrra

Skotárás fyrir tveimur árum á tvo af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, gefur innsýn í veruleika íslenska fíkniefnaheimsins en sjónarvottar lýsa árásinni sem framhjá-aksturs-skothríð.

Fara yfir öryggismál í Soginu

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun á næstunni fara ítarlega yfir öryggismál í Soginu til að reyna að koma í veg fyrir að slys verði í ánni, meðal annars í samráði við Landsvirkjun. Bjarni Júlíusson, formaður félagsins, segir félagið einnig ætla að fara yfir öryggismál almennt í ám landsins og fá til liðs við sig björgunarsveitarmenn og aðra sem til þekkja.

Flugvél KLM-flugfélagsins lenti óvænt í Keflavík

Flugvél frá KLM-flugfélaginu á leið til Kanada lenti óvænt á Keflavíkurflugvelli rétt eftir klukkan fjögur í dag. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar segir að í vélinni hafi verið töskur sem ekki fylgdu þeim farþegum sem um borð voru. Í þeim tilfellum sé alltaf gripið til ákveðinna ráðstafana „Flugvél á ekki að fara í loftið með farangur sem tilheyrir ekki farþega um borð," segir Friðþór.

Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara.

Bílvelta við Skarðsmýrafjall

Bíll valt á Þúsundvatnaleið í átt að Skarðsmýrarfjalli á Hellisheiðinni nú á fimmta tímanum. Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi. Ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki.

Sjá næstu 50 fréttir