Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Danskir stórmarkaðir hætta að kaupa botnvörpufisk Danskir stórmarkaðir ætla að taka upp samstarf við alþjóðasamtökin World Wildlife Fund um að merkja fiska í kæliborðum sínum og frystiskápum, með tilliti til þess hvort þeir teljist í hættu vegna ofveiði. Einnig á að benda fólki á aðrar tegundir sem hægt sé að kaupa, til dæmis ufsa í staðinn fyrir þorsk. Þá segir talsmaður danskra stórmarkaða að þeir muni tilkynna viðskiptavinum sínum að þeir kaupi ekki lengur fisk sem er veiddur með botnvörpu. 29.8.2007 11:35
Látinn undir ruslahaug í átta ár Króatískur maður lá látinn í íbúð sinni í Sagreb í átta ár áður en hann fannst. Ivan Bosonac týndist í febrúar 1999, þá 81 árs að aldri. Frændi hans tilkynnti lögreglu um hvarfið. Hún leitaði í kjölfarið í lítilli risíbúð mannsins, sem var stútfull af drasli, en fundu ekkert. 29.8.2007 11:25
Stal mat úr Nóatúni fyrir 8000 krónur Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela matarvörum úr versluninni Nóatúni í Nóatúni 17 fyrir tæpar 8000 krónur. Hann gæti átt von á allt að sex ára fangelsisdómi. 29.8.2007 11:10
Breskir fangaverðir í verkfall Þúsundir fangavarða í Englandi og Wales lögðu í morgun niður vinnu. Með verkfallinu, sem áætlað er að standi í sólarhring vilja þeir mótmæla launakjörum sínum. 29.8.2007 11:01
Tóm hamingja að loðnuveiðar hefjast í haust segir LÍÚ "Við teljum það tóma hamingju að loðnuveiðar hefjast í haust og það var mjög jákvætt að Hafrannsóknarstofnun náði að mæla loðnuna í fyrrahaust en þessar tölur um kvótann nú byggjast á þeirri mælingu," segir Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ í samtali við Vísi. Eins og fram hefur komið á Vísi er búið að tilkynna um 145.000 tonna upphafskvóta til Íslendinga. 29.8.2007 10:55
Bráðabirgðaloðnukvóti verður 205 þúsund tonn Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að bráðabirgðakvóti fyrir komandi loðnuvertíð verði 205 þúsund tonn og þar af koma 145 þúsund tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt samningum um nýtingu loðnustofnsins. 29.8.2007 10:44
Frumbyggjar heiðra Al Gore Ættbálkur í afskekktu héraði í norð-austurhluta Indlands ætla að heiðra Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna fyrir baráttu hans gegn loftslagsbreytingum. 29.8.2007 10:28
Fyrsta demantasýningin hérlendis Slípaðir og óslípaðir demantar og hundruð demantsskartgripa verða meðal sýningargripa á ÍSMÓTI 2007 og er það í fyrsta sinn sem demantasýning opin almenningi er haldin hér á landi. ÍSMÓT 2007 er Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins og verður haldið í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal helgina 1.-2. september. 29.8.2007 10:18
Rjúpur gera sig heimakomnar í Hólmavík Rjúpur hafa sótt mjög í þéttbýlið á Hólmavík að undanförnu og eru þær mjög spakar miðað við aðra villta fulga. Á vefnum Strandir segir að grunur leiki á að þær hyggist setjast að í þorpinu fram yfir rjúpnaveiðitímabilið að minnsta kosti því skyttur skjóta ekki í þéttbýli. 29.8.2007 09:57
Dregið verði úr losun áburðar í Eystrasalt Umhverfisráðherrar hinna norrænu ríkja leggja árherslu á að dregið verði úr skolun áburðar í Eystrasalt en þeir funduðu í dag og í gær í Finnlandi. 29.8.2007 09:55
Kartöflubændur horfa fram á 200 milljón kr. tap Kartöflubændur landsins telja að uppskera þeirra í ár vegna þurrkanna fyrr í sumar og næturfrosta nú muni verða allt að helmingi minni en í meðalári. Magnús Ágústsson garðyrkjuráðunautur hjá Bændasamtökunum segir að þetta geti þýtt í kringum 200 milljón kr. tap í þessari búgrein sé miðað við skilaverð. 29.8.2007 09:48
Harður þriggja bíla árekstur á Dalvegi í Kópavogi Harður þriggja bíla árekstur varð á Dalvegi um klukkan hálfníu í morgun. Slökkviliðið þurfti að beita klippum til að ná konu út úr einum bílnum og var hún flutt á slysadeild. Að sögn læknis voru meiðsl hennar minniháttar. Engar upplýsingar hafa fengist um tildrög slyssins. Loka þufti nálægum götum og mynduðust miklar umferðartafir, að sögn lögreglu. 29.8.2007 09:05
Þremur suður-kóreskum gíslum sleppt Talíbanir hafa látið lausar þrjá suður-kóreskar konur úr hópi nítján gísla sem teknir voru fyrir rúmum mánuði. Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því í gær að þau hefðu náð samkomulagi við Talíbani um lausn gíslanna. 29.8.2007 08:42
Vörubíll valt við Kolviðarhól, ökumaður fluttur á slysadeild Vörubíll valt skammt frá Hellisheiðarvirkjun, við Kolviðarhól á níunda tímanum í kvöld. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar en hann var með meðvitund. 28.8.2007 22:39
Bandaríkjamenn handtaka íranska sendinefnd í Bagdad Bandarískir hermenn í Bagdad handtóku í dag sjö Írana sem tilheyra sendinefnd sem var í borginni til þess að skrifa undir samning um sölu á raforku, að því er ríkisútvarp Írans greinir frá. 28.8.2007 21:31
Töskuþjófur komst undan með 150 þúsund krónur Maður rændi veski af fullorðinni konu í Vonarstrætinu rétt eftir fimm í dag. Hann komst undan með veskið sem í voru á bilinu 130 til 150 þúsund krónur. Lögreglan segist vita hver þjófurinn sé og er hans nú leitað. 28.8.2007 21:14
Einnig leitað í húsi á Selfossi Lögreglan á Selfossi fór í þrjár húsleitir í dag en ekki tvær eins og áður kom fram. Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði við húsleitirnar en auk þess að framkvæma leit í Hveragerði og í Ölfusi var einnig leitað í húsi á Selfossi. Á stöðunum fundust efni og áhöld til fíkniefnanotkunar og hnífar voru gerðir upptækir í Hveragerði. 28.8.2007 20:48
Forsvarsmenn Parken vilja 80 milljónir í bætur Danska fótboltabullan sem hljóp inn á völlinn í leik Dana og Svía í júní síðastliðinn og sló til dómara leiksins á yfir höfði sér 80 milljóna króna sekt. Það er rekstraraðili Parken leikvangsins sem fer fram á skaðabæturnar. 28.8.2007 20:09
52 tveir látnir eftir bardaga í Kerbala 52 létust og 260 slösuðust í hörðum bardögum í írösku borginni Kerbala í dag. Þar börðust öryggissveitir stjórnvalda við byssumenn en í borginni fer nú fram trúarhátíð sjíta í borginni. Hundruð þúsunda pílagríma hafa komið til borgarinnar síðustu daga. 28.8.2007 19:29
Bolvíkingar krefjast aðgerða Bæjarráð Bolungarvíkur kom saman í dag þar sem kallað var eftir tafarlausum aðgerðum stjórnvalda vegna niðurskurðar aflaheimilda á næsta fiskveiðiári. Bæjarráðið segir ljóst að niðurskurður aflamarks í þorski sé rúmlega 1100 tonn í bænum. Í bókun ráðsins kemur fram að þær mótvægisaðgerðir sem stjórnvöld hafi lagt til séu ekki fallnar til að leysa vanda Bolungarvíkur nema að litlu leyti. 28.8.2007 19:05
Óheppilegt að gefa umsagnir um hugsanlega samstarfsmenn Það er óheppilegt að dómarar við Hæstarétt gefi umsögn um tilvonandi samstarfsmenn sína og hafi þar með áhrif á hverjir skipaðir eru hæstaréttadómarar. Þetta segir formaður Lögmannafélags Íslands, sem vill að umsögn um tilvonandi hæstaréttadómara verði í höndum fagráðs en ekki dómara við réttinn. 28.8.2007 18:58
Metveiði í Ytri-Rangá Metveiði er í Ytri-Rangá, en þrjú þúsundasti laxinn kom á land í gær. Veiðihollin sem nú eru að veiðum segja að lax sé á í hverju kasti. Yfir tvö hundruð laxar komu á þurrt í gær og yfir áttatíu laxar í morgun. 28.8.2007 18:55
Talibanar ætla að láta gísla lausa Talibanar samþykktu í dag að sleppa nítján suður-kóreskum gíslum sem þeir hafa haft í haldi í Afganistan síðan í júlí. 28.8.2007 18:55
Hátt í hundrað verkamenn ekki löglega skráðir Talið er að hátt í eitt hundrað þeirra verkamanna sem starfað hafa við byggingu Hraunaveitu við Kárahnjúka séu ekki löglega skráðir til vinnu hér á landi. Hátt í tuttugu þeirra lentu í rútuslysi í fyrradag. Félagsmálaráðherra segir ljóst að brotalamir séu í eftirlitskerfinu. 28.8.2007 18:54
Varhugavert að virkja í Þjórsá segir Ragnar Stefánsson Varhugavert er að reisa virkjun á fyrirhuguðu svæði við Þjórsá, að mati Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings, sem telur að það geti reynst mönnum dýrkeypt að virkja þar. 28.8.2007 18:52
Lögregla á Indlandi uppvís að hrottaskap Lögreglumenn á Indlandi börðu grunaðan þjóf, bundu hann við mótorhjól og drógu hann eftir götunni. Þetta sést á myndbandi sem kom fram í dag. 28.8.2007 18:50
Uppskerubrestur hjá kartöflubændum Uppskerubrestur blasir við kartöflubændum. Grös eru fallin og er búist við að uppskeran verði aðeins helmingur venjulegs árs. Kartöflubændur í Þykkvabænum vöknuðu upp við vondan draum í morgun í því enn hafði næturfrostið sagt til sín og grösin eru öll fallin í görðunum. Þetta er mikið áfall fyrir bændur því hlýindin í sumar höfðu vissulega gefið fyrirheit um góða uppskeru þótt vætan hafi verið í minna lagi. 28.8.2007 18:47
Slæður umdeildar í Tyrklandi Abdullah Gul var í dag kjörinn forseti Tyrklands, í atkvæðagreiðslu á tyrkneska þinginu. Gul var áður framarlega í flokki íslamista í Tyrklandi, en hann hefur heitið því að styðja áframhaldandi aðskilnað ríkis og trúar í landinu. 28.8.2007 18:41
Leiðin verið torsótt og grýtt Lúðvík Gizurarson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fagnar því að barnsfaðernismálinu sem hann höfðaði fyrir þremur árum fari nú að ljúka. Hann segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart, hún sé aðeins staðfesting á því sem móðir hans sagði alla tíð. Lúðvík segir líka að leiðin að niðurstöðunni hafi verið torsótt og grýtt. 28.8.2007 17:53
Leitin í dag bar engan árangur Leit sem hófst aftur í morgun að þýsku ferðamönnunum tveimur, sem búið er að telja af, bar engan árangur. Ákveðið var að hefja leitina eftir munir, sem taldir eru tilheyra þeim, fundust neðst í Svínafellsjökli í gær. 28.8.2007 17:44
Sérsveitin gerði húsleit í Hveragerði og í Ölfusi Lögregla á Selfossi naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í dag þegar framkvæmd var húsleit hjá pari á þrítugsaldri í Hveragerði auk þess sem leitað var á vinnustað þeirra í Ölfusi. Aðspurð hversvegna sérsveitin hafi verið kölluð til segir lögregla að það hafi verið til styrkingar, en ekki hafi leikið grunur á því að fólkið væri hættulegt. 28.8.2007 17:35
Á 158 km hraða á Vesturlandsvegi Fimmtíu og níu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 158 km hraða á Vesturlandsvegi. 28.8.2007 17:02
ÖBÍ fagnar úrskurði siðanefndar SÍA Örykjabandalag Íslands fagnar niðurstöðu siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa þess efnis að auglýsingar Öryggismiðstöðvarinnar með Lalla Johns hafi brotið gegn siðareglum sambandsins. Bandalagið sakar Öryggismiðstöðina um að þvo hendur sínar af málinu og varpa ábyrgðinni á Lalla Johns. 28.8.2007 16:44
Best að taka Austur-Grænland inn í haustrallið Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar segir að stofnunin hafi töluverðann áhuga á að senda rannsóknarskip á miðin við Austur-Grænland til að kanna hina miklu þorskgengd sem þar virðist vera. Jóhann segir að best væri að samræma slíkan leiðangur við haustrall stofnunarinnar í byrjun október. 28.8.2007 16:39
Ákærður fyrir ránstilraun í 10-11 Þingfesting var í máli tvítugs pilts í Héraðsdómi Reykjaness í dag en hann er ákærður fyrir ránstilraun í verslun 10-11 við Dalveg í Kópavogi í júní í sumar. Þá fór hann inn með lambhúshettu fyrir andlitinu vopnaður hnífi og ógnaði afgreiðslustúlku með hnífnum. 28.8.2007 16:32
Vill lækka hámarkshraða við Borg í Grímsnesi Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, hefur lagt til við embætti vegamálastjóra að hámarkshraði á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi verði lækkaður úr 90 km hraða niður í 70 km hraða. 28.8.2007 16:20
Brann lifandi með fjórum börnum sínum Tugir manna hafa farist í skógareldunum í Grikklandi og margir eiga um sárt að binda. Sérstaklega þykir þó sorgleg saga 37 ára gamallar móður sem reyndi að flýja eldana ásamt fjórum börnum sínum. Hún átti heima í Aþenu en var í heimsókn hjá móður sinni í smáþorpinu Artemida sem er um 330 kílómetra suðvestur af höfuðborginni. 28.8.2007 16:15
Páll Hreinsson nýr hæstaréttardómari Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur skipað Páll Hreinsson, prófessor við Háskóla Íslands og deildarforseta lagadeildar, sem hæstaréttardómara í stað Hrafns Bragasonar sem lætur af störfum sökum aldurs um næstu mánaðamót. 28.8.2007 15:46
Stal bíl á Stokkseyri og ók til Reykjanesbæjar Ákæra á hendur 22 ára karlmanni vegna þjófnaðar og nytjastulds var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Manninum er gefið að sök að hafa skömmu eftir síðustu áramót stolið bíl á Stokkseyri og ekið honum til Reykjavíkur og þaðan til Reykjanesbæjar. 28.8.2007 15:41
Slegist um boðskort á minningarathöfn um Díönu Hatrammur slagur geisar nú um það í Bretlandi að fá boðskort í minningarathöfn um Díönu prinsessu. Þá eru liðin tíu ár frá dauða hennar. Þannig hringdi fyrrverandi bryti hennar öskureiður í skipuleggjendurna þegar hann fékk ekkert kort. Paul Burrell taldi sig trúnaðarvin hennar. Hann hefur hinsvegar makað krókinn vel á bókum sem hann hefur skrifað um þjónustu sína. 28.8.2007 15:39
Ahmadinejad vill aðstoða í Írak Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans sagði í dag að máttur Bandaríkjanna Írak færu þverrandi og að Íran væri tilbúið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. 28.8.2007 15:24
Bíða niðurstaðna hugmyndasamkeppni fyrir Kvosina Eigendur húsanna við Austurstræti 22 og Lækjargötu 2, sem skemmdust illa í bruna í vor, bíða niðurstöðu í hugmyndasamkeppni borginnar um skipulag í Kvosinni áður en ákvarðanir verða teknar um uppbyggingu á lóðunum. Ekki náðist samkomulag milli eigenda hússins að Austurstræti 22 og borgarinnar um kaup á húsinu og er niðurrif á því þegar hafið. 28.8.2007 15:23
Glíma við hryðjuverkasprengjur á sprengjueyðingaræfingu Sprengjusérfæðingar hvaðanæva úr heiminum eru staddir hér á landi um þessar mundir til þess að taka þátt í sprengjueyðingaræfingunni Northern Challenge 2007 sem hófst í morgun. 28.8.2007 14:47
Auglýsingar með Lalla Johns gegn almennu velsæmi Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsing Öryggismiðstöðvarinnar með Lalla Johns hafi brotið gegn siðareglum sambandsins. Þátttaka Lalla Johns í auglýsingunum brjóti gegn almennu velsæmi og sé til þess fallin að höfða til ástæðulauss ótta almennings. 28.8.2007 14:30
Ryanair rukkar meira Flugfélög hafa löngum verið lagin við að finna sér matarholur. Lággjaldafyrirtækið Ryanair er nú búið að finna enn eitt gjaldið til þess að leggja á farþega sína. Frá og með tuttugusta september verða farþegarnir að greiða 200 króna aukagjald fyrir að fá að fara um borð í flugvélina sem þeir eiga að ferðast með. 28.8.2007 14:23