Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tillaga um val presta vísað til biskups og kenningarnefndar Tillaga sem fram kom á fundi prestastefnu um að þeir prestar sem það kjósi verði vígslumenn samkynheigðra var vísað til biskups og kenningarnefndar Þjóðkirkjunnar. Prestastefna stendur nú yfir á Húsavík 25.4.2007 16:44
Yfir 20 stiga hiti í kortunum Mjög hlýtt loft sækir nú að landinu og eru horfur á að hiti fari um og eftir helgi í yfir 20 stig til landsins á norðanverðu landinu. 25.4.2007 16:37
Framsókn tapar miklu í NA-kjördæmi Fylgi Framsóknarflokksins hrynur í Norðausturkjördæmi en Vinstri - grænir og Sjálfstæðisflokkurinn auka fylgi sitt verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. 25.4.2007 16:34
Refsiaðgerðum ESB gegn EFTA ríkjum lýkur Refsiaðgerðum ESB gegn EFTA ríkjunum er lokið. Ákvörðun þess efnis var tekin af sambandinu og mun samstarf ESB við EFTA-ríkin hefjast að fullu um nýja löggjöf í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Þetta kemur fram í norska dagblaðinu Aftenposten. Blaðið segir að gripið hafi verið til þess ráðs að frysta EFTA-ríkin til að fá þau til að láta meira fé til þróunarsjóða Evrópusambandsins eftir að Búlgaría og Rúmenía fengu aðild í byrjun árs. 25.4.2007 16:33
Peningaverðlaun í boði í Reykjavíkurmaraþoni Hundrað þúsund krónur verða veittar þeim sem sigrar í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem fram fer 24. ágúst næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem peningaverðlaun eru í boði í hlaupinu en þau ná til þriggja fyrstu í heilu maraþoni, hálfu maraþoni og 10 kílómetra hlaupi auk brautarmeta í heilu og hálfu maraþoni. 25.4.2007 16:16
Vænir hákarlar á land í Húsavík Þrír myndarlegir hákarlar voru hífðir á land í Húsavíkurhöfn í dag en þeir veiddust á hákarlalínu sem legið hafði út í Skjálfanda síðustu daga. Það var Aðalsteinn Karlsson á bátnum Kalla á höfða sem veiddi hákarlana þrjá en hann er sjómaður og stundar hákarlaveiðar sem aukabúgrein. 25.4.2007 16:04
Mæting nemenda skráð með fingraförum Háskóli í Kína hefur tekið í notkun fingrafaraskanna til þess að fylgjast með mætingu nemenda sinna. Dagblaðið The China daily greindi frá þessu á þriðjudag. Ekki eru víst allir á eitt sáttir við nýja kerfið. 25.4.2007 15:46
Tillaga um vígslu samkynhneigðra í hjónaband felld Fulltrúar á prestastefnu sem fram fer á Húsavík felldu tillögu hóps presta og guðfræðinga á stefnunni um að farið yrði fram á það við Alþingi að breyta lögum þannig að prestar fengju heimild til vígja samkynhneigð pör í hjónaband. 25.4.2007 15:44
Þrjú fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af þremur fíkniefnamálum í gær. Kona á þrítugsaldri var handtekin í austurborginni þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli. Kalmaður á fertugsaldri sem tengdist málinu var síðan færður á lögreglustöð. Í íbúð hans fundust ætluð fíkniefni. 25.4.2007 15:37
Tveir karlmenn í vinnuslysum í Kópavog Tveir karlmenn á þrítugsaldri lentu í vinnuslysum í Kópavogi í gær. Annar var að taka steypumót utan af veggjum þegar hann féll aftur fyrir sig. Fallið var ekki mjög hátt en maðurinn fann fyrir eymslum í baki. 25.4.2007 15:22
Silfur í hópi heitustu staða heims Veitingastaðurinn Silfur á Hótel borg er hópi heitustu veitingastaða heims samkvæmt tímaritinu Condé Nast Traveler. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá eigendum veitingastaðarins sendi blaðið fulltrúa sína til 30 landa til að leita nýrra veitingastaða sem standast ýtrustu gæðakröfur. 25.4.2007 15:16
Bayrou neitar að styðja annaðhvort Sarkozy eða Royal Francois Bayrou, frambjóðandi miðjumanna í forsetakosningunum í Frakklandi sem fram fóru á sunnudag, segist ekki ætla lýsa yfir stuðningi við annan hvorn frambjóðandann í seinni umferð kosninganna sem fram fer 6. maí. 25.4.2007 14:49
Friðland í Þjórsárverum verði stækkað strax Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stækka þegar í stað friðlandið í Þjórsárverum í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar við undirbúning Náttúruverndaráætlunar. 25.4.2007 14:34
Rannsókn á viðskiptaívilnunum Olmerts Ríkisendurskoðandi Ísraels hefur lagt til að gerð verði lögreglurannsókn á málefnum tengdum Ehud Olmert forsætisráðherra. Hann er grunaður um að hafa ólöglega komið viðskiptatækifærum í kring fyrir vini sína. Þetta á að hafa gerst á meðan Olmert gengdi annarri stöðu í ríkisstjórninni. 25.4.2007 14:31
Skemmdir unnar á skiltum Framsóknar Skemmdir voru unnar á auglýsingaskiltum Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi á Egilsstöðum í nótt og eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá flokknum er þetta í annað skiptið á örfáum dögum sem þetta er gert. 25.4.2007 14:21
Sorpbrennslustöð á Húsavík skemmdist í bruna Sorpbrennslustöðin á Húsavík skemmdist töluvert í bruna í gærkvöld og verður ekki hægt að brenna sorp þar á næstunni. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var tilkynnt um eldinn korter í tíu í gærkvöld og var þá allt tiltækt slökkvilið hvatt á vettvang. 25.4.2007 14:09
List án landamæra hefst á morgun List án landamæra hefst í Reykjavík á morgun. Á hátíðinni vinna margir ólíkir hópar saman að mismunandi listaverkum. Listahátíðinni er ætlað að gera fólk með fötlun eða þroskaskerðingu meira áberandi í listinni, en eins og aðstandendur hátíðarinnar segja er hæfileikafólk á hverju strái, en skortir oft tækifæri til að koma sér á framfæri. 25.4.2007 13:45
Fréttamenn hjá Danmarks Radio mótmæla sparnaði Starfsmenn á fréttastofu danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio, lögðu í dag niður vinnu fram til miðnættis til þess að mótmæla þeim mikla sparnaði sem boðaður hefur verið hjá stofnuninni. 25.4.2007 13:30
Vilja að krónprinsinn sé heima að skipta um bleiur Kynja- og mannfræðingar í Danmörku hafa lýst vonbrigðum með að Friðrik krónprins skuli ekki taka sér fæðingarorlof. Honum fæddist ný prinsessa á laugardag, en strax í dag er hann kominn til opinberra starfa á nýjan leik. Þegar þau Mary eignuðust fyrsta barn sitt, soninn Kristján, tók Friðrk sér gott frí. 25.4.2007 13:30
Níu létust í ofsaveðri í Texas/Mexíkó Níu létust í ofsaveðri við landamæri Texas og Mexíkó í gær. Að minnsta kosti 114 slösuðust. Sex hús úr hjólhýsahverfi á svæðinu hafa enn ekki fundist. Chad Foster bæjarstjóri Eagle Pass í Texas þar sem sex létust sagði CNN fréttastofunni að stormurinn hefði valdið mikilli eyðileggingu í bænum. 25.4.2007 13:30
Ný skoðanakönnun um fylgi flokka í Reykjavík suður kynnt í kvöld Fimmti kosningafundur Stöðvar 2 hefst laust fyrir klukkan sjö í kvöld þegar oddvitar stjórnmálaflokkanna í Reykjavíkurkjördæmi suður takast á um stefnumál sín. 25.4.2007 13:15
Ný ríkisstjórn getur ógilt varnarsamninginn við Noreg án skaða Ný ríkisstjórn getur fallið frá samningi Íslands og Noregs um samstarf í varnar- og öryggismálum án mikils skaða að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Hann hefur boðað harðorða bókun gegn samninginum í utanríkismálanefnd Alþingis. 25.4.2007 13:00
Rannsókn á peningafölsunum langt komin Rannsókn lögreglu á fölsuðu peningaseðlunum sem nú eru í umferð hér á landi er komin vel á veg. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns kemst lögregla undantekningarlaust að því hverjir eiga hlut að máli. 25.4.2007 12:45
Tekist á um málefni samkynhneigðra á prestastefnu Tekist var á um það á prestastefnu í morgun hversu langt kirkjan eigi að ganga í málefnum samkynhneigðra. Ekki eru allir sammála um hvort kirkjan eigi að halda sig við núverandi form, sem er að blessa sambönd samkynhneigðra, eða hvort ganga eigi skrefinu lengra og leyfa vígslu þeirra. 25.4.2007 12:30
Ekki bætt úr plássleysi fyrr en félagslegt húsnæði fæst Ekki verður bætt úr plássleysi á geðdeildum Landspítalans fyrr en búið er að útvega geðsjúkum félagslegt húsnæði. Þetta kom fram í máli heilbrigðisráðherra í gær. 25.4.2007 12:15
Samkomulag við NATO um loftferðaeftirlit enn ófrágengið Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að enn sé ófrágengið samkomulag við Atlantshafsbandalagið um loftferðaeftirlit við Ísland. Það sé til viðræðu á vettvangi bandalagsins og ótengt samkomulaginu um öryggis- og varnarmál á friðartímum sem undirritað verður við Dani og Norðmenn í Ósló á morgun. 25.4.2007 12:11
Maraþonhlauparinn lést vegna ofneyslu vatns David Rogers sem lést eftir maraþonhlaupið í London er talinn hafa látist vegna þess að hann drakk of mikið vatn. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest, en samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar þjáðist hann af vatnseitrun. 25.4.2007 12:08
Fjöldi þjóðarleiðtoga við útför Jeltsíns Rússar kvöddu í morgun Borís Jeltsín, fyrrverandi forseta sinn, sem lést á mánudaginn. Hann var jarðsunginn með viðhöfn í Dómirkju Krists í Moskvu í morgun. Fjölmargir þjóðarleiðtogar voru viðstaddir útförina. 25.4.2007 12:06
Díana strippaði fyrir Karl Díana prinsessa strippaði fyrir Karl prins, til þess að reyna að bjarga hjónabandi þeirra. Þessu er haldið fram í nýrri bók þar sem prinsessunni er ekki borin vel sagan. Höfundurinn, Tina Brown segir auk þess að hún hafi gifst Karli eingöngu til þess að verða prinsessa. 25.4.2007 12:00
Vilja afnám tolla og einkarekin orkufyrirtæki Einfaldara og skilvirkara skattkerfi og afnám allra tolla og viðskiptahindrana myndi skipa íslensku viðskiptaumhverfi í fremstu röð. Þetta kemur fram í ályktun Viðskiptaráðs um hvaða atriði stjórnmálaflokkar ættu að leggja áherslu á í komandi kosningum. 25.4.2007 11:50
SAS aflýsir öllu flugi frá Kastrup SAS flugfélagið hefur aflýst öllu flugi frá Kastrup vegna flugfreyjuverkfalls. Hundruð manna gistu í flughöfninni í nótt og upp undir 20.000 farþegar verða að breyta ferðaáætlunum sínum af þessum sökum. Farþegar eru hvattir til þess að sleppa því alveg að koma út á flugvöllinn. 25.4.2007 11:48
Borgarstjóri fagnar með KR-ingum í Höfða Borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, hefur ákveðið að bjóða Íslandsmeisturum KR og bikarmeisturum ÍR í körfubolta til móttöku í Höfða á morgun. Tilefnið er góður árangur liðanna í körfuboltanum í vetur. 25.4.2007 11:29
Forsætisráðherra ritaði nafn sitt í minningabók um Jeltsín Minningabók um Boris Jeltsín er í bústað rússneska sendiherrans að Túngötu 9 í Reykjavík. Fyrstur til að skrifa nafn sitt í bókina var Geir H. Haarde forsætisráðherra sem kom í sendiherrabústaðinn klukkan tíu í morgun. 25.4.2007 11:14
Ný eyja fannst við strendur Grænlands Ný eyja er fundin við austurströnd Grænlands. Hún er margra kílómetra löng og er í laginu eins og hönd með þrjá fingur. Eyjan er um 640 kílómetra norðan við heimskautsbaug. Hún er komin í ljós vegna bráðnunar grænlensku íshellunnar. 25.4.2007 11:14
Ríkið styður sjúkraþjálfun á hestbaki Tryggingastofnun ríkisins mun framvegis taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun á hestbaki fyrir fólk sem er með skaða í miðtaugakerfi eftir að heilbrigðisráðherra undirritaði reglugerð þessa efnis. 25.4.2007 11:06
Nunnur myrtar fyrir fjársjóð Lögregla í suðurhluta Grikklands leitar nú morðingja tveggja eldri nunna sem voru myrtar í klaustri sínu. Rán á munum úr klaustrinu virðist liggja að baki morðunum. Meðal þess sem hvarf var viðarbútur sem talinn er vera úr krossinum sem Jesú var krossfestur á. 25.4.2007 11:04
Krefjast þess að Johnston verði sleppt Tugir erlendra og palestínskra blaðamanna söfnuðust í dag saman á landmærum Ísraels og Gasasvæðisins til þess að krefjast þess að Alan Johnston, blaðmanni BBC, yrði sleppt. 25.4.2007 10:52
Samið við Norðmenn án samráðs við þjóðina Samningar við erlend ríki um varnaraðstoð er ekkert smámál sem ber að afgreiða á nokkrum dögum að mati formanns Samtaka herstöðvaandstæðinga. Hann segir nauðsynlegt að þjóðinni sé gefinn kostur að ræða innihald og efni varnarsamningsins við Noreg áður en hann er undirritaður. 25.4.2007 10:50
Kirkjan ekki golfvöllur heldur íslenskur úthagi Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í yfirlitsræðu sinni á Prestastefnu á Húsavík að kirkjan væri ekki golfvöllur heldur eins og íslenskur úthagi þar sem rými væri fyrir fjölbreyttar skoðanir. Lét hann þau orð falla í tengslum við umfjöllun um staðfesta samvist fyrir samkynhneigða. 25.4.2007 10:36
Konum að kenna ef þeim er nauðgað Annar hver norskur karlmaður er þeirrar skoðurnar að ef léttklædd kona daðrar opinskátt við mann, sé það henni sjálfri að kenna ef henni er nauðgað. Þetta kemur fram í könnun sem Amnesty International gerði í landinu. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, er sleginn yfir þessum tölum. 25.4.2007 10:28
Borís Jeltsín borinn til grafar Útför Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússlands, fór fram í Moskvu í morgun að viðstöddum fjölmörgum þjóðarleiðtogum fyrr og nú. 25.4.2007 09:58
Ný súper-stjarna finnst í geimnum Stjörnufræðingar hafa fundið plánetu utan við sólkerfi okkar sem líkist jörðinni mest annarra hnatta. Talið er að vatn geti verið á yfirborði hennar. Plánetan er á sporbraut við stjörnuna Gliese 581, sem er 20,5 ljósár í burtu í stjörnumerki Vogarinnar. Vísindamenn áætla að hitastig á plánetunni sé á milli 0-40 stig á celsíus. 25.4.2007 09:58
Olíuhreinsistöð í Dýrafirði gæti skaðað ferðaþjónustu á Vestfjörðum Ferðaþjónusta á Vestfjörðum gæti borið skaða af tilkomu olíuhreinsistöðvar í Dýrafirði. Þetta kemur fram í grein Stefáns Gíslasonar, umhverfisstjórnunarfræðings, á fréttavefnum strandir.is. Hann telur að sú mengun sem hlýst af starfssemi stöðvarinnar muni skaði hreina ímynd Vestfjarða. 25.4.2007 09:43
Menntaðir leikskólakennarar aldrei fleiri Menntaðir leikskólakennarar eru hlutfallslega fleiri nú en nokkru sinni áður síðan Hagstofan hóf að safna slíkum upplýsingum saman árið 1998. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þriðjungur allra starfsmanna sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólum með leikskólakennarapróf. 25.4.2007 09:35
Sjö létust í sprengjuárás í Afghanistan Sjö afganskir hermenn létust í vegasprengju í Afganistan í morgun. Árásin átti sér stað við landamæri Pakistan. Þetta er síðasta tilfellið í hrinu sprengjuárása á afganskar öryggissveitir í landinu. Hermennirnir voru á moldarvegi í Paktika héraði í suðurausturhluta landsins þegar sprengjan sprakk. 25.4.2007 09:21