Fleiri fréttir Borgin vill reka tilraunaframhaldsskóla Menntaráð Reykjavíkur vill að þegar verði teknar upp viðræður við menntamálaráðuneytið um að borgin taki að sér að reka einn af framhaldsskólum borgarinnar í tilraunaskyni. Formaður menntaráðs segir að í slíkum skóla ætti að bjóða upp á einstaklingsmiðað og sveigjanlegt nám. 19.3.2007 18:30 Írakar svartsýnir Írakar eru svartsýnir á framtíðina, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Flestir óttast að týna lífi í átökum og treysta ekki innrásarliðum. Í nótt eru fjögur ár frá upphafi Íraksstríðsins. Von um bjarta framtíð hefur vikið fyrir svartnætti í huga almennra Íraka. 19.3.2007 18:30 Jarðýta valt Kantur gaf sig þegar að jarðýta var að ýta jarðvegi úr jarðgöngum, sem verið er að grafa frá Ólafsfirði til Héðinsfjarðar, með þeim afleiðingum að ýtan valt. Guðmundur Ágústsson, verkstjóri hjá fyrirtækinu Háfelli, sagði í samtali við Vísi að betur hefði farið en á horfðist. 19.3.2007 18:24 Fíkniefnamál mörg um helgina Allmörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Farið var á sex veitinga- og skemmtistaði en á fjórum þeirra fundust ætluð fíkniefni. Á meðal fíkniefna sem fundust voru maríjúana, kókaín, hass og amfetamín. Á þessum stöðum voru höfð afskipti af 25-30 manns af fyrrgreindum sökum. 19.3.2007 18:00 Ramadan hengdur á morgun Fyrrum varaforseti Íraks, Taha Yassin Ramadan, verður hengdur á morgun fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann hafði áður verið fundinn sekur fyrir þátt sinn á morðunum í Dujail árið 1982 en þar voru 148 sjía múslimar myrtir. 19.3.2007 17:52 94 umferðaróhöpp um helgina 94 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í níu tilfellum stungu menn af frá vettvangi. Langflest óhöppin voru minniháttar en í fjórum tilvikum var fólk flutt á slysadeild. 19.3.2007 17:40 Úrskurðaður í gæsluvarðhald Ungur útlendingur sem lögreglan handtók í gær vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars næstkomandi. Hann var yfirheyrður í morgun með aðstoð túlks. 19.3.2007 17:29 Tíu vilja Kjalarnersbrauð Tíu umsóknir bárust um embætti héraðsprests II í Kjalarnessprófastsdæmi. Umsóknarfrestur rann út þann 15. mars s.l. Embættið er veitt frá 1. maí næstkomandi. 19.3.2007 17:08 Hamas gerir árás Hinn vopnaði armur Hamas samtakanna tilkynnti í dag að það hefðu gert sína fyrstu árás á Ísrael, síðan samið var um vopnahlé í nóvember síðastliðinn. Ísraelskur verkamaður var særður alvarlega í skotárás, og vörpusprengjum skotið á ísraelska hermenn. Talsmaður Hamas sagði jafnframt að árásum yrði haldið áfram, þótt hann tilkynnti ekki formlega að vopnhlénu hefði verið einhliða aflýst. 19.3.2007 16:52 Feginn lokum aðalmeðferðar Fimm vikna aðalmeðferð í Baugsmálinu er nú að ljúka í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Ásgeir Jóhannesson er síðasta vitnið sem er yfirheyrt og er hann nú í vitnastúku. Hann sagði fréttastofu Vísis að hann væri feginn því að þessum hluta væri nú að ljúka, því málið hefði reynt mjög á fyrirtækið og persónulegt líf hans. Kostnaður fyrirtækisins vegna málsins væri hátt á annan milljarð íslenskra króna. 19.3.2007 16:49 Lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði Karlmaður á vélsleða lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Selfoss. Hann kenndi sér meins í baki og herðum. Eftir skoðun var ákveðið að flytja manninn til Reykjavíkur. Snjóflóðið féll þar sem nokkrir menn voru saman á snjósleða og lenti á einum þeirra. 19.3.2007 16:29 Mannskætt námuslys 19.3.2007 16:29 Ungt fólk borðar minni fisk Fiskneysla ungs fólks minnkar og enn meiri samdráttur er yfirvofandi á komandi árum. Munur er á fiskneyslu eftir landshlutum og hafa matarvenjur í æsku mótandi áhrif. Þá eru ungar konur hrifnar af fiski og grænmeti, en ungir karlar af skyndibita og kjöti. Þetta eru niðurstöður viðamikillar rannsóknar meðal ungs fólks á aldrinum 17 til 26 ára. 19.3.2007 16:12 Tveir nýliðar í landsliðinu í Spánarleiknum Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag 18 manna hóp sinn sem mætir Spánverjum miðvikudaginn 28. mars. Tveir nýliðar eru í hópnum - þeir Atli Jóhannsson úr KR og Gunnar Þór Gunnarsson frá Hammarby. 19.3.2007 16:09 Aha, þessi reykir Reykingar geta ekki aðeins gert andlit hrukkótt og gul, heldur allan líkamann, samkvæmt nýrri skýrslu sem birt er í tímariti bandarískra húðsjúkdómalækna. Samkvæmt henni hafa reykingar áhrif á húð hvar sem hún er á líkamanum, jafnvel á stöðum sem eru verndaðir fyrir sólarljósi. 19.3.2007 16:08 Hvalreki í Ólafsfirði Tveir smáhvalir fundust eftir að hafa strandað í Ólafsfjarðarvatni í morgun. Elstu menn á Ólafsfirði muna ekki eftir hvalreka fyrr í vatninu sem er bæði ferskvatn og sjór. Um er að ræða hnýðinga, kálf og kýr. Gísli Víkingsson hjá Hafrannsóknarstofnun segir athyglisvert að mæðgurnar hafi fundist í ferskvatni þar sem höfrungar lifa bara í sjó. 19.3.2007 15:42 Lögregluþjónar ákærðir fyrir manndráp Tveir lögreluþjónar í New York hafa verið ákærðir fyrir manndráp og sá þriðji fyrir að stofna mannslífi í hættu, þegar þeir skutu óvopnaðan blökkumann til bana á brúðkaupsdegi hans. Sean Bell fór í vasa sinn til þess að ná í skilríki, þegar lögreglumennirnir hófu skothríð. Þeir skutu alls fimmtíu skotum á Bell og félaga hans, sem særðist alvarlega. 19.3.2007 15:30 Borgin reki framhaldsskóla Menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi í dag að leggja til að borgin taki við rekstri eins framhaldsskóla í Reykjavík. Góð raun er að rekstri borgarinnar á grunnskólum eftir að rekstur þeirra fluttist frá ríki til sveitarfélaga. Mikill áhugi er innan ráðsins á þessu tilraunaverkefni. 19.3.2007 15:06 Viðurkennir árásina á USS Cole 19.3.2007 14:53 Banaslys á Reyðarfirði Karlmaður lést í vinnuslysi rétt fyrir hádegi í dag við Hjallanes á Reyðarfirði. Maðurinn var starfsmaður BM Vallár og var að tengja dráttarvagn við bifreið þegar hann klemmdist á milli bifreiðarinnar og vagnsins. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og lést maðurinn af áverkum þeim er hann hlaut í slysinu. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Reyðarfirði. 19.3.2007 14:15 Sjóðandi vatnsleki í gamla Morgunblaðshúsinu Sjóðandi heitt vatn lak inn á loftræstikerfi í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni þar sem Háskólinn í Reykjavík rekur nú kennslustofur. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins lak vatnið niður á milliþil og náði eitthvað að fara niður um eina hæð. Kennsla var í gangi í kennslustofum þegar lekinn uppgötvaðist. Lítil truflun varð þó á kennslu þrátt fyrir störf slökkviliðsmanna. 19.3.2007 13:57 Blaðamaður enn í haldi 19.3.2007 13:42 Áhrif virðisaukalækkunar á verðbólgu minni ,,Hefur lækkun virðisaukaskatts og vörugjalds á matvæli skilað sér til neytenda?" er yfirskrift morgunverðarfundar félags viðskiptafræðinga MBA frá Háskóla Íslands. Fundurinn verður á Nordica hóteli næstkomandi miðvikudagsmorgun. Fjallað er um áhrif lækkunar virðisaukaskatts og vísbendingar þess efnis að nokkuð vanti upp á að lækkunin hafi skilað sér. 19.3.2007 13:23 Danir verjast reykbanni Danskir veitingamenn hyggjast verja um tveim milljörðum króna til þess að tryggja að viðskiptavinir þeirra geti haldið áfram að fá sér smók, þegar reykingar verða bannaðar á veitingastöðum í Danmörku um miðjan ágúst næstkomandi. Peningunum verður varið til þess að útbúa reykingaaðstöðu bæði innan dyra og utan. 19.3.2007 13:19 Eldfjallagarður á Reykjanesskaga Reykjanesskagi verður eldfjallagarður og fólkvangur nái framtíðarsýn Landverndar á Reykjanesskaga fram að ganga. Sólarsamtökin í Straumi, Suðurnesjum og á Suðurlandi halda opna ráðstefnu um málið í Hafnarfirði 24. mars. Þar verður farið yfir hvað skaginn hefur upp á að bjóða varðandi náttúruvernd, útivist, ferðamennsku og nýtingu jarðvarma- og jarðhitaefna. Eldfjallagarður tengir þessa þætti saman. 19.3.2007 13:02 Samtök fyrir fólk af opinberum barnaheimilum Á fjórða tug manna var á fundi í Laugarneskirkju í gær þar sem ákveðið var að stofna formlega samtök fólks sem var á opinberum barnaheimilum í æsku, Breiðavík og öðrum stöðum. Aðstandendur verða einnig í þessum samtökum. 19.3.2007 12:19 Fjárhagslegur ávinningur brostinn Samtökin Sól í Straumi, sem eru andvíg stækkun álversins í Straumsvík, segja í yfirlýsingu að fjárhagslegur ávinningur bæjarins af stækkun álversins sé brostinn. 19.3.2007 12:17 Versta veðrið gengið yfir í bili Holtavörðuheiði var lokuð í nótt vegna ófærðar og þurftu ökumenn því að aka Laxárdalsheiði og Heydal til að komast á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Áhlaupið er nú gengið yfir landið og í hönd fer hláka með tilheyrandi vatnsaga víða um land. 19.3.2007 12:15 Yfirheyrslur hafnar yfir meintum nauðgara Yfirheyrslur eru hafnar yfir ungum útlendingi, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi, grunuðum um að hafa nauðgað ungri konu á kvennasalerni á Hótel Sögu aðfaranótt laugardags. 19.3.2007 12:13 Dauðskelkaður á fyrsta klassa Farþegi með flugi British Airways var illa brugðið þegar hann vaknaði eftir blund á fyrsta farrými með lík sér við hlið. Sætið var autt þegar Paul Trinder sofnaði í fluginu á leið frá Delhi á Indlandi. Konan lést á almennu farrými stuttu eftir flugtak. Að sögn talsmanns British Airways var líkið flutt á fyrsta klassa þar sem afturhluti vélarinnar var fullsetinn. 19.3.2007 12:06 Enn logar ófriðarbál Þrjár bílsprengjur og tvær aðrar sprengjur hafa grandað 18 og sært 37 til viðbótar í borginni Kirkuk í Norður-Írak í morgun. Í nótt verða 4 ár liðin frá innrás bandamanna í Írak. Ekkert lát virðist vera á ófriðaröldunni í landinu, þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir. 19.3.2007 11:39 Hellisheiði opnuð fyrir vel búna bíla Hellisheiði var opnuð nú í kvöld fyrir fjórhjóladrifnum bílum en fyrr í dag þurfti að loka heiðinni vegna skafrennings og slæmrar færðar. Snjómokstursbílar eru enn á ferðinni og er reiknað með að heiðin verið orðin opin öllum bílum síðar í kvöld. 18.3.2007 20:49 Lögregla á inni mikið frí vegna óeirða Kostnaðurinn við óeirðirnar í Kaupmannahöfn í tengslum við niðurif Ungómshússins í byrjun mánaðarins tekur á sig ýmsar myndir ef marka má frétt á vef Politiken. 18.3.2007 20:32 Jeppi og snjóruðningstæki rákust saman í Víkurskarði Umferðaróhapp varð í Víkurskarði á Norðurlandi í morgun þar sem jeppi og snjóruðningstæki rákust saman. Að sögn lögreglunnar á Akureyri urðu ekki slys á fólki en draga þurfti jeppan af vettvangi. 18.3.2007 20:15 Á 150 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í dag sex ökumenn fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 150 kílómetra hraða, annar á 142 kílómetra hraða og tveir á rúmlega 120 km hraða. 18.3.2007 20:00 Réttur þriðjungur Bandaríkjamanna styður stríðið í Írak Rétt liðlega þriðjungur Bandaríkjamanna styður hernaðinn í Írak samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem bandaríska fréttastöðin CNN birti í dag en hún var gerð í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í Írak ásamt stuðningsmönnum sínum og steyptu Saddam Hussein af stóli. 18.3.2007 19:47 Skeytti skapi sínu á stórverslun Ekki liggur fyrir hvað reytti unglingsstúlku, í Minnesota í Bandaríkjunum, til reiði á föstudaginn en hún ákvað að skeyta skapi sínu á stórverslun. 18.3.2007 19:45 Grunur um að árásir tengist átökum gengja 15 ára unglingsstrákur var stunginn til bana í Lundúnum í gærkvöldi. Hann er annar unglingurinn sem hlýtur þau örlög þar í borg á þremur dögum. Í síðasta mánuði voru þrír unglingar skotnir til bana í suðurhluta borgarinnar í þremur mismunandi árásum. Grunur leikur á að ódæðin tengist öll átökum gengja. 18.3.2007 19:30 Akkúrat rétti tíminn til að einkavæða orkufyrirtækin Nú er akkúrat rétti tíminn til að einkavæða orkufyrirtækin. Þetta segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans. Hann telur gríðarleg tækifæri felast í því, á alþjóðavettvangi, að leysa þau öfl úr læðingi sem búi í íslensku orkufyrirtækjunum. 18.3.2007 19:13 Málþófshótun kæfði áfengisfrumvarp Lagafrumvarp, sem hefði heimilað sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum, var hársbreidd frá því að ná í gegn. Allsherjarnefnd Alþingis hafði samþykkt málið en áður en kom að lokaafgreiðslu í gær var því kippt út af dagskrá af ótta við málþóf. 18.3.2007 19:06 Þjónustumiðstöð fyrir Norðurhöf verði á Vestfjörðum Varaþingmaður frá Suðureyri fékk samþykkta þingsályktunartillögu í nótt um að þjónustumiðstöð fyrir útgerð og siglingar í Norðurhöfum verði á Vestfjörðum. 18.3.2007 19:02 Aur flæddi niður fjallshlíðina Aur flæddi niður hlíðar eldfjallsins Ruapehu á Nýja Sjálandi í dag og eirði engu, ekki í fyrsta sinn. Íbúar, nærri fjallinu, eru vanir þessum hamförum og búnir undir þær. 18.3.2007 19:00 Miðjuflokkurinn með forystu eftir fyrstu tölur í Finnlandi Miðjuflokkur Mattis Vahanens, forsætisráðherra Finnlands, hefur forystu þegar fyrstu tölur hafa verið birtar í þingkosningum í Finnlandi en búið er að telja fjórðung atkvæða. Hafði flokkurinn fengið 24,8 prósent atkvæða en samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn, Jafnaðarmannaflokkurinn, er með 22,9 prósent. 18.3.2007 18:59 Alþingi samþykkir að stofna stærsta þjóðgarð Evrópu Vatnajökulsþjóðgarður, sem Alþingi samþykkti að stofna í gærkvöldi, verður stærsti þjóðgarður Evrópu. Hann mun ná yfir einn áttunda hluta Íslands. 18.3.2007 18:57 Óvenju mikil endurnýjun framundan á Alþingi Óvenju mikil endurnýjun verður á Alþingi Íslendinga í kosningum eftir átta vikur og má ætla að um helmingur þeirra þingmanna, sem kosnir voru fyrir fjórum árum, setjist ekki á þing á ný. Í hópi þeirra sem yfirgáfu þennan starfsvettvang í síðasta sinn í nótt voru nokkrir með um og yfir tuttugu ára þingreynslu. 18.3.2007 18:54 Sjá næstu 50 fréttir
Borgin vill reka tilraunaframhaldsskóla Menntaráð Reykjavíkur vill að þegar verði teknar upp viðræður við menntamálaráðuneytið um að borgin taki að sér að reka einn af framhaldsskólum borgarinnar í tilraunaskyni. Formaður menntaráðs segir að í slíkum skóla ætti að bjóða upp á einstaklingsmiðað og sveigjanlegt nám. 19.3.2007 18:30
Írakar svartsýnir Írakar eru svartsýnir á framtíðina, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Flestir óttast að týna lífi í átökum og treysta ekki innrásarliðum. Í nótt eru fjögur ár frá upphafi Íraksstríðsins. Von um bjarta framtíð hefur vikið fyrir svartnætti í huga almennra Íraka. 19.3.2007 18:30
Jarðýta valt Kantur gaf sig þegar að jarðýta var að ýta jarðvegi úr jarðgöngum, sem verið er að grafa frá Ólafsfirði til Héðinsfjarðar, með þeim afleiðingum að ýtan valt. Guðmundur Ágústsson, verkstjóri hjá fyrirtækinu Háfelli, sagði í samtali við Vísi að betur hefði farið en á horfðist. 19.3.2007 18:24
Fíkniefnamál mörg um helgina Allmörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Farið var á sex veitinga- og skemmtistaði en á fjórum þeirra fundust ætluð fíkniefni. Á meðal fíkniefna sem fundust voru maríjúana, kókaín, hass og amfetamín. Á þessum stöðum voru höfð afskipti af 25-30 manns af fyrrgreindum sökum. 19.3.2007 18:00
Ramadan hengdur á morgun Fyrrum varaforseti Íraks, Taha Yassin Ramadan, verður hengdur á morgun fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann hafði áður verið fundinn sekur fyrir þátt sinn á morðunum í Dujail árið 1982 en þar voru 148 sjía múslimar myrtir. 19.3.2007 17:52
94 umferðaróhöpp um helgina 94 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í níu tilfellum stungu menn af frá vettvangi. Langflest óhöppin voru minniháttar en í fjórum tilvikum var fólk flutt á slysadeild. 19.3.2007 17:40
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Ungur útlendingur sem lögreglan handtók í gær vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. mars næstkomandi. Hann var yfirheyrður í morgun með aðstoð túlks. 19.3.2007 17:29
Tíu vilja Kjalarnersbrauð Tíu umsóknir bárust um embætti héraðsprests II í Kjalarnessprófastsdæmi. Umsóknarfrestur rann út þann 15. mars s.l. Embættið er veitt frá 1. maí næstkomandi. 19.3.2007 17:08
Hamas gerir árás Hinn vopnaði armur Hamas samtakanna tilkynnti í dag að það hefðu gert sína fyrstu árás á Ísrael, síðan samið var um vopnahlé í nóvember síðastliðinn. Ísraelskur verkamaður var særður alvarlega í skotárás, og vörpusprengjum skotið á ísraelska hermenn. Talsmaður Hamas sagði jafnframt að árásum yrði haldið áfram, þótt hann tilkynnti ekki formlega að vopnhlénu hefði verið einhliða aflýst. 19.3.2007 16:52
Feginn lokum aðalmeðferðar Fimm vikna aðalmeðferð í Baugsmálinu er nú að ljúka í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Ásgeir Jóhannesson er síðasta vitnið sem er yfirheyrt og er hann nú í vitnastúku. Hann sagði fréttastofu Vísis að hann væri feginn því að þessum hluta væri nú að ljúka, því málið hefði reynt mjög á fyrirtækið og persónulegt líf hans. Kostnaður fyrirtækisins vegna málsins væri hátt á annan milljarð íslenskra króna. 19.3.2007 16:49
Lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði Karlmaður á vélsleða lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Selfoss. Hann kenndi sér meins í baki og herðum. Eftir skoðun var ákveðið að flytja manninn til Reykjavíkur. Snjóflóðið féll þar sem nokkrir menn voru saman á snjósleða og lenti á einum þeirra. 19.3.2007 16:29
Ungt fólk borðar minni fisk Fiskneysla ungs fólks minnkar og enn meiri samdráttur er yfirvofandi á komandi árum. Munur er á fiskneyslu eftir landshlutum og hafa matarvenjur í æsku mótandi áhrif. Þá eru ungar konur hrifnar af fiski og grænmeti, en ungir karlar af skyndibita og kjöti. Þetta eru niðurstöður viðamikillar rannsóknar meðal ungs fólks á aldrinum 17 til 26 ára. 19.3.2007 16:12
Tveir nýliðar í landsliðinu í Spánarleiknum Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag 18 manna hóp sinn sem mætir Spánverjum miðvikudaginn 28. mars. Tveir nýliðar eru í hópnum - þeir Atli Jóhannsson úr KR og Gunnar Þór Gunnarsson frá Hammarby. 19.3.2007 16:09
Aha, þessi reykir Reykingar geta ekki aðeins gert andlit hrukkótt og gul, heldur allan líkamann, samkvæmt nýrri skýrslu sem birt er í tímariti bandarískra húðsjúkdómalækna. Samkvæmt henni hafa reykingar áhrif á húð hvar sem hún er á líkamanum, jafnvel á stöðum sem eru verndaðir fyrir sólarljósi. 19.3.2007 16:08
Hvalreki í Ólafsfirði Tveir smáhvalir fundust eftir að hafa strandað í Ólafsfjarðarvatni í morgun. Elstu menn á Ólafsfirði muna ekki eftir hvalreka fyrr í vatninu sem er bæði ferskvatn og sjór. Um er að ræða hnýðinga, kálf og kýr. Gísli Víkingsson hjá Hafrannsóknarstofnun segir athyglisvert að mæðgurnar hafi fundist í ferskvatni þar sem höfrungar lifa bara í sjó. 19.3.2007 15:42
Lögregluþjónar ákærðir fyrir manndráp Tveir lögreluþjónar í New York hafa verið ákærðir fyrir manndráp og sá þriðji fyrir að stofna mannslífi í hættu, þegar þeir skutu óvopnaðan blökkumann til bana á brúðkaupsdegi hans. Sean Bell fór í vasa sinn til þess að ná í skilríki, þegar lögreglumennirnir hófu skothríð. Þeir skutu alls fimmtíu skotum á Bell og félaga hans, sem særðist alvarlega. 19.3.2007 15:30
Borgin reki framhaldsskóla Menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi í dag að leggja til að borgin taki við rekstri eins framhaldsskóla í Reykjavík. Góð raun er að rekstri borgarinnar á grunnskólum eftir að rekstur þeirra fluttist frá ríki til sveitarfélaga. Mikill áhugi er innan ráðsins á þessu tilraunaverkefni. 19.3.2007 15:06
Banaslys á Reyðarfirði Karlmaður lést í vinnuslysi rétt fyrir hádegi í dag við Hjallanes á Reyðarfirði. Maðurinn var starfsmaður BM Vallár og var að tengja dráttarvagn við bifreið þegar hann klemmdist á milli bifreiðarinnar og vagnsins. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og lést maðurinn af áverkum þeim er hann hlaut í slysinu. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Reyðarfirði. 19.3.2007 14:15
Sjóðandi vatnsleki í gamla Morgunblaðshúsinu Sjóðandi heitt vatn lak inn á loftræstikerfi í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni þar sem Háskólinn í Reykjavík rekur nú kennslustofur. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins lak vatnið niður á milliþil og náði eitthvað að fara niður um eina hæð. Kennsla var í gangi í kennslustofum þegar lekinn uppgötvaðist. Lítil truflun varð þó á kennslu þrátt fyrir störf slökkviliðsmanna. 19.3.2007 13:57
Áhrif virðisaukalækkunar á verðbólgu minni ,,Hefur lækkun virðisaukaskatts og vörugjalds á matvæli skilað sér til neytenda?" er yfirskrift morgunverðarfundar félags viðskiptafræðinga MBA frá Háskóla Íslands. Fundurinn verður á Nordica hóteli næstkomandi miðvikudagsmorgun. Fjallað er um áhrif lækkunar virðisaukaskatts og vísbendingar þess efnis að nokkuð vanti upp á að lækkunin hafi skilað sér. 19.3.2007 13:23
Danir verjast reykbanni Danskir veitingamenn hyggjast verja um tveim milljörðum króna til þess að tryggja að viðskiptavinir þeirra geti haldið áfram að fá sér smók, þegar reykingar verða bannaðar á veitingastöðum í Danmörku um miðjan ágúst næstkomandi. Peningunum verður varið til þess að útbúa reykingaaðstöðu bæði innan dyra og utan. 19.3.2007 13:19
Eldfjallagarður á Reykjanesskaga Reykjanesskagi verður eldfjallagarður og fólkvangur nái framtíðarsýn Landverndar á Reykjanesskaga fram að ganga. Sólarsamtökin í Straumi, Suðurnesjum og á Suðurlandi halda opna ráðstefnu um málið í Hafnarfirði 24. mars. Þar verður farið yfir hvað skaginn hefur upp á að bjóða varðandi náttúruvernd, útivist, ferðamennsku og nýtingu jarðvarma- og jarðhitaefna. Eldfjallagarður tengir þessa þætti saman. 19.3.2007 13:02
Samtök fyrir fólk af opinberum barnaheimilum Á fjórða tug manna var á fundi í Laugarneskirkju í gær þar sem ákveðið var að stofna formlega samtök fólks sem var á opinberum barnaheimilum í æsku, Breiðavík og öðrum stöðum. Aðstandendur verða einnig í þessum samtökum. 19.3.2007 12:19
Fjárhagslegur ávinningur brostinn Samtökin Sól í Straumi, sem eru andvíg stækkun álversins í Straumsvík, segja í yfirlýsingu að fjárhagslegur ávinningur bæjarins af stækkun álversins sé brostinn. 19.3.2007 12:17
Versta veðrið gengið yfir í bili Holtavörðuheiði var lokuð í nótt vegna ófærðar og þurftu ökumenn því að aka Laxárdalsheiði og Heydal til að komast á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Áhlaupið er nú gengið yfir landið og í hönd fer hláka með tilheyrandi vatnsaga víða um land. 19.3.2007 12:15
Yfirheyrslur hafnar yfir meintum nauðgara Yfirheyrslur eru hafnar yfir ungum útlendingi, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi, grunuðum um að hafa nauðgað ungri konu á kvennasalerni á Hótel Sögu aðfaranótt laugardags. 19.3.2007 12:13
Dauðskelkaður á fyrsta klassa Farþegi með flugi British Airways var illa brugðið þegar hann vaknaði eftir blund á fyrsta farrými með lík sér við hlið. Sætið var autt þegar Paul Trinder sofnaði í fluginu á leið frá Delhi á Indlandi. Konan lést á almennu farrými stuttu eftir flugtak. Að sögn talsmanns British Airways var líkið flutt á fyrsta klassa þar sem afturhluti vélarinnar var fullsetinn. 19.3.2007 12:06
Enn logar ófriðarbál Þrjár bílsprengjur og tvær aðrar sprengjur hafa grandað 18 og sært 37 til viðbótar í borginni Kirkuk í Norður-Írak í morgun. Í nótt verða 4 ár liðin frá innrás bandamanna í Írak. Ekkert lát virðist vera á ófriðaröldunni í landinu, þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir. 19.3.2007 11:39
Hellisheiði opnuð fyrir vel búna bíla Hellisheiði var opnuð nú í kvöld fyrir fjórhjóladrifnum bílum en fyrr í dag þurfti að loka heiðinni vegna skafrennings og slæmrar færðar. Snjómokstursbílar eru enn á ferðinni og er reiknað með að heiðin verið orðin opin öllum bílum síðar í kvöld. 18.3.2007 20:49
Lögregla á inni mikið frí vegna óeirða Kostnaðurinn við óeirðirnar í Kaupmannahöfn í tengslum við niðurif Ungómshússins í byrjun mánaðarins tekur á sig ýmsar myndir ef marka má frétt á vef Politiken. 18.3.2007 20:32
Jeppi og snjóruðningstæki rákust saman í Víkurskarði Umferðaróhapp varð í Víkurskarði á Norðurlandi í morgun þar sem jeppi og snjóruðningstæki rákust saman. Að sögn lögreglunnar á Akureyri urðu ekki slys á fólki en draga þurfti jeppan af vettvangi. 18.3.2007 20:15
Á 150 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í dag sex ökumenn fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 150 kílómetra hraða, annar á 142 kílómetra hraða og tveir á rúmlega 120 km hraða. 18.3.2007 20:00
Réttur þriðjungur Bandaríkjamanna styður stríðið í Írak Rétt liðlega þriðjungur Bandaríkjamanna styður hernaðinn í Írak samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem bandaríska fréttastöðin CNN birti í dag en hún var gerð í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í Írak ásamt stuðningsmönnum sínum og steyptu Saddam Hussein af stóli. 18.3.2007 19:47
Skeytti skapi sínu á stórverslun Ekki liggur fyrir hvað reytti unglingsstúlku, í Minnesota í Bandaríkjunum, til reiði á föstudaginn en hún ákvað að skeyta skapi sínu á stórverslun. 18.3.2007 19:45
Grunur um að árásir tengist átökum gengja 15 ára unglingsstrákur var stunginn til bana í Lundúnum í gærkvöldi. Hann er annar unglingurinn sem hlýtur þau örlög þar í borg á þremur dögum. Í síðasta mánuði voru þrír unglingar skotnir til bana í suðurhluta borgarinnar í þremur mismunandi árásum. Grunur leikur á að ódæðin tengist öll átökum gengja. 18.3.2007 19:30
Akkúrat rétti tíminn til að einkavæða orkufyrirtækin Nú er akkúrat rétti tíminn til að einkavæða orkufyrirtækin. Þetta segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans. Hann telur gríðarleg tækifæri felast í því, á alþjóðavettvangi, að leysa þau öfl úr læðingi sem búi í íslensku orkufyrirtækjunum. 18.3.2007 19:13
Málþófshótun kæfði áfengisfrumvarp Lagafrumvarp, sem hefði heimilað sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum, var hársbreidd frá því að ná í gegn. Allsherjarnefnd Alþingis hafði samþykkt málið en áður en kom að lokaafgreiðslu í gær var því kippt út af dagskrá af ótta við málþóf. 18.3.2007 19:06
Þjónustumiðstöð fyrir Norðurhöf verði á Vestfjörðum Varaþingmaður frá Suðureyri fékk samþykkta þingsályktunartillögu í nótt um að þjónustumiðstöð fyrir útgerð og siglingar í Norðurhöfum verði á Vestfjörðum. 18.3.2007 19:02
Aur flæddi niður fjallshlíðina Aur flæddi niður hlíðar eldfjallsins Ruapehu á Nýja Sjálandi í dag og eirði engu, ekki í fyrsta sinn. Íbúar, nærri fjallinu, eru vanir þessum hamförum og búnir undir þær. 18.3.2007 19:00
Miðjuflokkurinn með forystu eftir fyrstu tölur í Finnlandi Miðjuflokkur Mattis Vahanens, forsætisráðherra Finnlands, hefur forystu þegar fyrstu tölur hafa verið birtar í þingkosningum í Finnlandi en búið er að telja fjórðung atkvæða. Hafði flokkurinn fengið 24,8 prósent atkvæða en samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn, Jafnaðarmannaflokkurinn, er með 22,9 prósent. 18.3.2007 18:59
Alþingi samþykkir að stofna stærsta þjóðgarð Evrópu Vatnajökulsþjóðgarður, sem Alþingi samþykkti að stofna í gærkvöldi, verður stærsti þjóðgarður Evrópu. Hann mun ná yfir einn áttunda hluta Íslands. 18.3.2007 18:57
Óvenju mikil endurnýjun framundan á Alþingi Óvenju mikil endurnýjun verður á Alþingi Íslendinga í kosningum eftir átta vikur og má ætla að um helmingur þeirra þingmanna, sem kosnir voru fyrir fjórum árum, setjist ekki á þing á ný. Í hópi þeirra sem yfirgáfu þennan starfsvettvang í síðasta sinn í nótt voru nokkrir með um og yfir tuttugu ára þingreynslu. 18.3.2007 18:54