Fleiri fréttir Oumou Sangaré Headlines Rite of Spring Festival 12.3.2007 16:47
Sjá næstu 50 fréttir
Lífeyrissjóðir Austurlands og Norðurlands sameinast í Stapa Stapi lífeyrissjóður er nýtt nafn sameinaðs sjóðs Lífeyrissjóðs Austurlands og Lífeyrissjóðs Norðurlands en samþykkt var að sameina sjóðina á ársfundum þeirra fyrir helgi. Sameinaður sjóður á 84 milljarða króna og í honum verða um 21 þúsund lífeyrisþegar sem þýðir að hann verður fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins. 12.3.2007 16:43
Lögmenn mótmæla í Pakistan Lögmenn í Pakistan mótmæltu víða um landið og sniðgengu réttarsali í dag í mótmælaskyni við brottvikningu æðsta dómara landsins úr embætti. Musharaf forseti tók ákvörðunina vegna misnotkunar dómarans í embætti. Meira en 20 lögmenn slösuðust í átökum við lögreglu í Lahore og hundruðir lögmanna í svörtum jakkafötum fylktu liði í öðrum borgum. 12.3.2007 16:36
Fíkniefnahundar úr K-9 sanna gildi sitt Lögregluhundar á höfuðborgarsvæðinu sönnuðu gildi sitt um helgina en þá fundu þeir fíkniefni á þremur stöðum í Reykjavík. Á föstudag þefaði einn af hundum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu uppi talsvert af fíkniefnum við húsleit en efnið er talið vera hass. 12.3.2007 16:33
Smáralindardeila á Spáni Auglýsing frá Giorgio Armani junior hefur vakið athygli á Spáni. Auglýsingin sýnir litla stúlku í bikiníi. Fyrir skemmstu þurfti Dolce og Gabbana að hætta við auglýsingu sem sýndi mann halda konu niðri við jörðina á meðan aðrir karlmenn horfðu á. 12.3.2007 16:07
Auðlindafrumvarp lagt fram í ósætti Geir H. Haarde forsætisráðherra mælti fyrir stundu fyrir frumvarpi að nýju ákvæði um náttúruauðlindir í stjórnarskrá. Geir sagði í hádegisviðtali Stöðvar 2 í dag að verra væri að leggja fram frumvörp í ósætti, en hann sagði ekki fullreynt að ekki næðist sátt um málið. Aðdragandinn að frumvarpinu var mjög óvenjulegur. 12.3.2007 16:06
ESSO hækkar verð á eldsneyti Olíufélagið ESSO hefur ákveðið að hækka bensínlítrann um tvær krónur í dag og þá hækkar dísil-, gas-, flota-, flotadísil- og svartolía um eina krónu á lítra. Að því er fram kemur á heimasíðu ESSO má rekja hækkunina til hækkandi heimsmarkaðsverðs að undanförnu 12.3.2007 15:57
Landsvirkjun hagnast um rúmlega 3,5 milljarða Landsvirkjun hagnaðist um rúma 3,5 milljarðar króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi sem birtur er í dag á vef Kauphallar Íslands. Hagnaður fyrirtækisins minnkaði um nærri 2,8 milljarða á milli ára en hann nam um 6,3 milljörðum árið 2005. 12.3.2007 15:44
Þjóðhagsleg arðsemi nýs Kjalvegar sögð 5,6 milljarðar Þjóðhagsleg arðsemi nýs Kjalvegar sem félagið Norðurvegur ehf. vill leggja er um 5,6 milljarðar samkvæmt mati Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri. 12.3.2007 15:35
Samningur um kjarnorkuþróun milli Líbýu og Bandaríkjanna Bandaríkin munu undirrita samstarfsyfirlýsingu við Líbýu um þróun kjarnorku til orkunota. Líbýska fréttastofan Jana greindi frá þessu í dag. Í yfirlýsingu segir að Líbýsk nefnd um alþjóðlegt samstarf hafi verið falið að skrifa undir samstarfssamning við Bandaríkin um friðsamlega notkun kjarnorku. 12.3.2007 15:12
Sendiherra Ísraels gripinn ölvaður í BDSM-klæðnaði á götu í San Salvador Ísraelsk yfirvöld hafa kallað sendirherra sinn í Mið-Ameríkuríkinu El Salvador heim eftir að hann fannst í ölvímu í búningi sem iðkendur samdómaskisma klæðast oft í kynlífsathöfnum. 12.3.2007 15:09
Fréttamanni BBC rænt Alan Johnston fréttaritara breska ríkisútvarpsins BBC í Palestínu var rænt á Gaza í dag. Lögreglan segir ekki ljóst hverjir standa á bakvið ránið. Heimildarmenn staðfestu að maðurinn væri Alan Johnston, en bílaleigubíll hans fannst í Gasaborg. Lögreglan vinnur nú að rannsókn mannránsins. 12.3.2007 15:00
Atvinnuleysi minnkar milli ára Atvinnuleysi í febrúar síðastliðnum reyndist 1,3 prósent og jókst um þrjú prósent milli mánaða. Þetta leiða tölur Vinnumálastofnunar í ljós. Atvinnuleysi er töluvert minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,6 prósent og hefur fækkað í hópi atvinnulausra um rúmlega 300 manns á tímabilinu. 12.3.2007 14:51
Reykingabanni í Danmörku frestað fram á sumar Reykingabanni á bæði opinberum og almennum vinnustöðum í Danmörku sem taka átti gildi um næstu mánaðamót hefur verið frestað til 15. ágúst. Flestir flokkar á danska þinginu samþykktu fyrir áramót að styðja slíkt frumvarp en það er þó ekki enn þá komið fram eftir því sem segir á vef Jótlandspóstsins. 12.3.2007 14:40
Sjálfsmorðsárás á Internet kaffihúsi Maður sem var meinaður aðgangur að hryðjuverkasíðu á Internet kaffihúsi í Casablanca í Marokkó sprengdi sjálfan sig í loft upp á staðnum í gærkvöldi. Þrír særðust í sjálfsmorðsárásinni, þar á meðal kaffihúsaeigandinn. Atvikið átti sér stað þegar maðurinn kom inn ásamt félaga sínum og lenti í deilu við eigandann út af aðgangi að vefsíðu íslamskra öfgamanna. 12.3.2007 14:24
300 stöður lagðar niður hjá Danmarks Radio Stjórnendur danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio, hafa uppi áform um að leggja niður allt að 300 stöður innan stofnunarinnar til þess að spara í rekstri hennar. Eftir því sem fram kemur á vef Jótlandspóstsins þarf að spara í rekstri stofnunarinnar eftir að kostnaður við uppbyggingu á húsnæði DR í Örestad fór mikið fram úr áætlun. 12.3.2007 14:19
Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa á heimili sínu ráðist að konu og slegið hana að minnsta kosti tvisvar í andlitið þannig að hún nefbrotnaði meðal annars og hlaut heilahristing. 12.3.2007 13:39
Færeyskir feðgar yfirheyrðir í Baugsmálinu Yfirheyrslum yfir feðgunum Niels H. Mortesen og Hans Mortensen, framkvæmdastjórum færseyska fyrirtækisins SMS, í Baugsmálinu lauk nú fyrir hádegi en þeir voru spurðir um samskipti SMS og Baugs í tengslum við 16. ákærulið Baugsmálsins. 12.3.2007 13:15
Amma í fallhlífarstökki Það er ekki oft sem áttatíu og níu ára gamlar konur stökkva í fallhlíf úr þrjú þúsund metra hæð en það gerði Hilda Person í Ástralíu í gær. Hilda vildi með stökkinu safna fé til krabbameinsrannsókna. Dóttir Hildu varð krabbameini að bráð fyrir ári og vildi Hilda leggja sitt af mörkum til að fé fengist til frekari rannsókna. Hilda stökk út úr flugvélinni með lokuð augun og þjálfara sinn á bakinu. Bæði lentu þau heilu og höldnu. Hilda segir þetta hafa verið skemmtilega upplifun og ætlar í fleiri ævintýraferðir til styrktar krabbameinsrannsóknum. 12.3.2007 12:45
Rannsaka ástæðu rafmagnstruflana Enn er óljóst hver var ástæða rafmagnstruflana á Suðvesturlandi í fyrrinótt, sem olli sumstaðar tjóni. Stjórnendur orkufyrirtækja á svæðinu ætla að fara saman yfir atburðarásina. Orkuveita Reykjavíkur mun bæta það tjón, sem rakið verður til hennar vegna rafmagnstruflananna í fyrrinótt, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Ein afleiðing þessa var sú að loka þurfti fyrir heitt vatn í Árbæjarhverfi fram eftir degi í gær og dælustöð við Ánanaust varð óvirk. 12.3.2007 12:15
Chirac styður engan Jacques Chirac, Frakklandsforseti, lýsti því formlega yfir í gærkvöldi að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum í næsta mánuði. Hann lýsti ekki yfir stuðningi við neinn frambjóðanda líkt og búist var við. 12.3.2007 12:15
Verð á veitingum mikil vonbrigði Geir Haarde forsætisráðherra segir það mikil vonbrigði að verð á veitingahúsum skuli ekki hafa lækkað meira en raun ber vitni. Hagstofan hafði reiknað með lækkun hjá veitingahúsum upp á tæplega 9 prósent, en raunlækkun er einungis rúmlega þrjú prósent. Geir sagði í hádegisviðtali Stöðvar 2 að það væri algjört lágmark að veitingaþjónustan skilaði sínu í átaki um að lækka matarverð: „Mér finnst þetta ekki gott.“ 12.3.2007 12:11
3-400 störf á landsbyggðina Þrjú til fjögurhundruð störf gætu lagst landsbyggðinni til á ári að mati formanns Samfylkingarinnar ef störf óháð staðsetningu væru auglýst sem slík. 12.3.2007 12:02
Tsvangirai laminn af lögreglu Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve hefur verið laminn af lögreglu sem heldur honum í varðhaldi. Þetta segir lögmaður Tsvangirai. Hann var handtekinn í gær ásamt fimm samherjum sínum eftir að óeirðalögregla leysti upp mótmælafund. Lögmenn leita nú leiða til að fá aðgang að sexmenningunum en enn er óvíst hvort þeir hafi verið ákærðir fyrir einhverjar sakir. 12.3.2007 11:40
Hús í Bolungarvík rýmd vegna snjóflóðahættu Fimm íbúðarhús voru rýmd í Bolungarvík í morgun vegna snjóflóðahættu. Eftir samráð snjóflóðasérfræðinga Veðurstofunnar og lögreglustjórans á Vestfjörum var tekin ákvörðun um þetta vegna óstöðugra snjóalaga og snjóflóða, sem fallið hafa á norðanverðum Vestfjörðum undanfarna daga. Þau flóð hafa öll fallið utan við byggð. Húsin sem voru rýmd i mrogun eru unmdir Traðargili, en nokkur snjór er í giljum, þótt ekki sé hægt að tala um fannfergi vestra, að sögn heimamanna. 12.3.2007 11:33
Skildu eftir marijúana fyrir 1,4 milljarða Farmur af marijúana, að verðmæti allt að 1,4 milljörðum íslenskra króna, fannst í yfirgefnum sendiferðabíl í Kaliforníu. Bifreiðin var ólæst og vélarhlífin heit en enginn var ökumaðurinn. 11.3.2007 20:30
Simbabve nálgast suðumark Yfirvöld í Simbabve handtóku í dag einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu fyrir að rjúfa bann við pólitískum samkomum. Ástandið er afar viðkvæmt í landinu enda er atvinnuleysi mikið og efnahagurinn því sem næst í rúst. 11.3.2007 20:00
Ströng stefna gagnvart innflytjendum Íslendingar hafa ströngustu innflytjendastefnu í lýðfrjálsum heimi. Þetta fullyrðir Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði sem segir tómt mál að tala um að takmarka flæðið frá Evrópu til landsins á grundvelli undantekninga frá EES samningi. 11.3.2007 19:45
Snaraði þrettán fílakálfum Indverski spekingurinn Sri Chinmoy er enn í fullu fjöri þótt hann sé kominn hátt á áttræðisaldur. Í vikunni brá hann sér til Taílands þar sem hann gerði sér lítið fyrir og lyfti 13 fílakálfum á þremur dögum. 11.3.2007 19:30
Rændi 101 árs gamla konu Myndband sem sýnir óprúttinn ræningja hrinda hundrað og eins árs gamalli konu í gólfið og ræna svo handtösku hennar hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir mikla leit er ræninginn enn ófundinn 11.3.2007 19:15
Ísfirðingar vilja aðgerðir í atvinnumálum Fullt var út úr dyrum á almennum borgarafundi á Ísafirði í dag þar sem þess var krafist að gripið yrði til sértækra aðgerða til að bjarga atvinnulífi á staðnum. Þingmenn og sveitarstjórnarmenn voru hvattir til að leggja flokkspólitísk ágreiningsefni til hliðar og sameinast um brýn úrlausnarefni í atvinnu- og byggðamálum. 11.3.2007 19:00
Saksóknari og Samkeppniseftirlitið gegn breytingartillögum Sjálfstæðismanna Saksóknari efnahagsbrota segir í bréfi til efnahags og viðskiptanefndar að breytingar sem sjálfstæðismenn vilja gera á nýju frumvarpi til samkeppnislaga, hefðu bein áhrif á mál olíuforstjórana sem er fyrir dómstólum. Þetta kemur fram í bréfi hans til efnahags og viðskiptanefndar, þar sem hann leggst gegn breytingunum. 11.3.2007 18:45
Vatnstjón vegna eldingar Gríðarlegt tjón varð í morgun vegna mestu flóða í íbúðarhúsnæði sem slökkviliðið í Reykjavík hefur þurft að kljást við. Orsökina virðist mega rekja til dæla á vegum borgarinnar sem urðu óvirkar þegar eldingu laust niður í raflínur í grennd við borgina. Skammhlaupið olli hitavatnsleysi í Árbæ og sló út rafmagn í álverunum í Straumsvík og á Grundartanga. 11.3.2007 18:30
Stóraðgerð lögreglu á Suðurnesjum Tugir lögreglumanna og tollvarða á Suðurnesjum tóku þátt í stórri aðgerð í gærkvöld til að stemma stigu við vaxandi umsvifum fíkniefnasala í umdæminu. Farið var í sex húsleitir, tólf voru handteknir og hald lagt á talsvert af fíkniefnum. 11.3.2007 18:30
Varaði við að byggð risi nærri álverinu Fyrrverandi forstjóri álversins í Straumsvík fór fram á það við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að ný íbúabyggð myndi ekki rísa nærri álverinu. Þetta kemur fram í fréttaskýringaþættinum Kompási í kvöld. Í bréfinu, sem skrifað var fyrir tólf árum, segir að stækkun ÍSAL þýði meiri mengun frá álbræðslunni og hættu á árekstrum. 11.3.2007 18:15
Spánverjar minnast hryðjuverka Spánverjar minnast nú þess að þrjú ár eru liðin frá því að sprengjuárásir voru gerðar á lestarkerfi landsins en 191 lést í árásunum. 11 metra hár minnisvarði úr gleri var afhjúpaður í því tilefni en innan í hann eru áritaðar samúðaróskir og saknaðarkveðjur sem skrifaðar voru í kjölfar árásanna. 11.3.2007 18:00
Bush fer til Kólumbíu Þúsundir lögreglumanna og hermanna fylltu götur Bogota í Kólumbíu áður en George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom þangað í dag. Heimsókn hans er sú síðasta í röð heimsókna til landa í Suður-Ameríku áður en hann snýr heim á leið. 11.3.2007 17:30
Nýr gervigrasvöllur formlega afhentur ÍR Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, afhenti í dag ÍR formlega til afnota nýjan gervigrasvöll, sem gerður hefur verið við félagsheimili ÍR að Skógarseli 12. Afhendingin var í tengslum við 100 ára afmæli ÍR. Gervigrasvöllurinn ásamt öryggissvæðum er nær 9 þúsund fermetrar og er hann afgirtur með fjögurra metra hárri stálgrindargirðingu. Gervigrasvöllurinn er flóðlýstur með 18 m háum ljósamöstrum, sex að tölu. 11.3.2007 16:45
Elding ástæða tugmilljóna tjóns Svo virðist sem að eldingu hafi lostið niður í loftlínur á milli Kolviðarháls og Geitháls og ollið skammhlaupi í háspennukerfi Landsnets. Atvikið virðist hafa haft áhrif á búnað hjá Reykjavíkurborg sem og álverunum á Grundartanga og í Straumsvík. Samkvæmt því sem Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, sem rekur dreifikerfi Landsvirkjunar, segir á það ekki að gerast undir eðlilegum kringumstæðum. Hvers vegna eldingin hafði þessi áhrif verður rannsakað eftir helgi. 11.3.2007 16:30
Vestfirðingar krefjast lausna Um tvö hundruð Vestfirðingar mættu á hvatningar og baráttufund í dag. Blikur eru á lofti í atvinnulífi svæðisins og var fundurinn ákall til kjörinna fulltrúa Vestfjarða á þingi og sveitarstjórnum um að þeir taki höndum saman, leggi flokkspólitísk ágreiningsefni til hliðar og sameinist í að leysa brýn verkefni í atvinnu og byggðamálum Vestfjarða. 11.3.2007 16:15
Olmert fundar með Abbas Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, kom til Jerúsalem í dag til þess að eiga viðræður við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Þetta er annar fundur þeirra á innan við mánuði. Búist er við því að viðræðurnar eigi eftir að snúast um nýlegt samkomulag Fatah og Hamas hreyfinganna um þjóðstjórn í Palestínu og hvernig samskiptum Ísraels við hana verður háttað. 11.3.2007 16:10
Hvetur stjórnmálaflokka til áherslu á umhverfismál Framtíðarlandið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem það hvetur alla stjórnmálaflokka á Íslandi ti þess að svara kalli almennings um auknar áherslur á náttúruvernd og umhverfismál, virða þau verðmæti sem felast í óspilltri náttúru landsins, og vaxtarhugmyndum sem byggja á hugviti, nýsköpun og útrás. 11.3.2007 16:00
Forsetahjónin heimsækja Ártúnsskóla Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu heimsækja Ártúnsskóla á morgun, mánudaginn 12. mars. Ártúnsskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2006 í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem að forsetaembættið sendi frá sér í dag. 11.3.2007 15:45
Búist við því að Chirac bjóði sig ekki fram á ný Búist er við því að Jacques Chirac, forseti Frakklands, muni tilkynna í kvöld að hann ætli sér ekki að bjóða sig fram á ný. Yfirlýsingin verður flutt klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. 11.3.2007 15:38
Elding olli skammhlaupi Svo virðist sem að eldingu hafi lostið niður í loftlínur á milli Kolviðarháls og Geitháls og ollið skammhlaupi. Atvikið virðist hafa haft áhrif á búnað hjá Reykjavíkurborg sem og álverunum á Grundartanga og í Straumsvík. 11.3.2007 15:15