Fleiri fréttir Þurfti að elta uppi ölvaða ökumenn Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt, þar af 21 árs piltur sem reyndi að stinga lögregluna af eftir að hann hafði lent í umferðaróhappi Vesturlandsvegi. 23.2.2007 13:59 Sýknaðir af ákæru um valdarán í Miðbaugs-Gíneu Dómstóll í Pretoríu í Suður-Afríku hefur vísað frá máli á hendur átta málaliðum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um valdarán í Miðbaugs-Gíneu fyrir þremur árum. 23.2.2007 13:50 Harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi Samtök fjármálafyrirtækja harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi á Íslandi sem koma fram í umsögn Læknafélags Íslands til efnahags- og viðskiptanefndar um breytingar á lögum um vátryggingarsamninga. 23.2.2007 13:28 Sextán látnir í ferjuslysi við Indónesíu Að minnsta kosti sextán manns týndu lífi eftir að eldur kom upp í ferju á leið frá Djakarta til eyjunnar Bangka í Indónesíu í gær. Eldurinn kom upp í bílaþilfari og greip mikil skelfing um sig meðal yfir þrjú hundruð farþega sem voru í ferjunni. 23.2.2007 13:00 Fundu fjölda vopna í íbúð í Amsterdam Hollenska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði handtekið mann með bandarískt vegabréf eftir að fjölmargar byssur, handsprengjur og önnur vopn höfðu fundist í fórum hans. 23.2.2007 12:45 Hvirfibylur veldur manntjóni í Mósambík Fjórir eru látnir og að minnsta kosti 70 slasaðir eftir að öflugur hvirfilbylur gekk yfir sumarleyfisstað í Mósambík. Þúsundir húsa skemmdust í óveðrinu, þar á meðal sjúkrahúsið í bænum. 23.2.2007 12:30 Krefjast þess að heildsalar lækki verð á vörum Neytendasamtökin krefjast þess að heildsalar lækki verð á vörum sínum vegna styrkingar krónunnar. Nógu fljótir séu þeir til að hækka verðið þegar gengi gjaldmiðla hækki. Krónan hefur styrkst um sjö prósent frá áramótum. 23.2.2007 12:19 Hafa þegar lækkað mataverð Verðlag í Bónus og Krónunni hefur þegar verið lækkað til samræmis við fyrirhugaða lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti um mánaðamótin. Virðisaukaskattur af öllum vörum, sem báru 24,5 prósenta virðisaaukaskatt og 14 prósent, lækkar niður í sjö prósent. 23.2.2007 12:00 Klámráðstefnugestir gætu krafist skaðabóta Samtök ferðaþjónustunnar segja hættu á að gestir klámráðstefnu, sem halda átti hér á landi en var vísað frá, höfði skaðabótamál. Það sé alvarlegt mál að vísa frá hópum sem engin lög hafi brotið. 23.2.2007 11:47 Sendiherra Frakka lét 500 börn bíða eftir sér Fyrsti dagskrárliður Vetrarhátíðar í dag fór töluvert úr skorðum þegar franski sendiherran, Nicole Michelangeli, mætti hálfri klukkustund of seint í íþróttahúsið við Austurberg. 23.2.2007 11:45 Fundað um framtíð ratsjárvarnarkerfis Fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á Íslandi var haldinn í Brussel fyrr í dag. Að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var rætt um fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu eins og kveðið er á um í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna sem undirritað var í október á síðasta ári. 23.2.2007 11:27 Fiðurfénaður aftur í Húsdýragarðinn Tíu íslenskar hænur og þrír stoltir hanar eru komin í Húsdýragarðinn eftir að öllum fuglum var lógað þar fyrir þremur mánuðum vegna ótta við að einhvers konar fuglaflensa hefði borist í fuglana þar. 23.2.2007 11:22 Lögreglurannsókn gerð af minna tilefni Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir lögreglurannsókn hafa verið gerða af minna tilefni aðspurður um nafnlaust bréf sem fjölmörgum aðilum tengdum Baugsmálinu hefur verið sent. Afrit af bréfinu fylgir fréttinni. 23.2.2007 11:18 Landsfundur Vinstri - grænna settur í dag Vinstri - græn halda í dag og á morgun sinn fimmta landsfund á Grand Hótel Reykjavík sem segja má að marki upphaf kosningabaráttu flokksins fyrir þingkosninganna. Fundurinn hefst klukkann 16.30 en þá flytur Steigrímur J. Sigfússon ræðu sína. 23.2.2007 10:49 Áberandi ölvaður undir stýri Lögreglan í Reykjavík stöðvaði um klukkan fimm í dag mann sem grunaður er um ölvunarakstur í Kollafirði á leið inn í Mosfellsbæ. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maðurinn áberandi ölvaður og ók kantanna á milli. Ekki er vitað hvaðan maðurinn var að koma eða hvort hann hafði verið lengi á ferð. 22.2.2007 22:54 Bílvelta í Skorradal Bíll valt í Skorradal í kvöld í hálku með þeim afleiðingum að klippa þurfti ökumanninn út úr bílnum. Maðurinn var einn í bílnum sem talinn er gjörónýtur. Ökumaðurinn slapp þó með skrámur. 22.2.2007 22:46 Tekinn á tvöföldum hámarkshraða Borgarneslögreglan tók í dag fimm ökumenn fyrir of hraðan akstur, þrjá fyrir utan bæinn en þar ók einn á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Þá voru tveir stöðvaðir innanbæjar í Borgarnesi en annar þeirra ók á 99 kílómetra hraða þar sem hraðast má aka á 50. 22.2.2007 22:45 Grunuð um lyfjaakstur með meint þýfi Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í kvöld konu á leið suður Norðurárdal sem grunuð er um að hafa ekið undir áhrifum lyfja. Ekki er talið að hún hafi verið ölvaður en að sögn lögreglu rásaði bíllinn um veginn og fór meðal annars yfir blindhæð á öfugum vegarhelmingi. Einnig fannst meint þýfi í bílnum. Þegar lögregla grunar menn um lyfjaakstur þarf að taka blóð- og þvagsýni og tekur 10-15 daga að fá niðurstöður rannsókna á sýnunum. 22.2.2007 22:44 Tóku Austurríkismenn á ofsahraða Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í kvöld för þriggja Austurríkismanna á bílaleigubíl sem virtust heldur vera að flýta sér um landið. Þeir mældust á 137 kílómetra hraða rétt sunnan við Blönduós. Ökumaðurinn þurfti að greiða 45 þúsund krónur í sekt og var gengið frá því á staðnum, enda lögreglan með posavél í bílnum. Ætla má að þar sem mennirnir eru frá Austurríki hafi þeir aldrei heyrt um hárnákvæmar starfsaðferðir Blönduóslöggunnar. 22.2.2007 22:31 Royal snýr sér að reynsluboltum Segolene Royal frambjóðandi sósíalista í forsetakosningum í Frakklandi hefur nú ákveðið að snúa sér til reynsluboltanna sem eru með henni í flokki til að fá ráð í kosningabaráttunni. Mennirnir sem hún nú biður um ráð eru þeir sem hún hafði undir í baráttunni um útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar. 22.2.2007 22:20 Lisa Ekdahl Interviews a Reykjavik.com Journalist 22.2.2007 21:31 Eignaspjöll á go-kart höll Snjóþyngslin í Danmörku eru farin að valda þónokkrum eignaspjöllum en þak stærstu go-kart hallar Evrópu féll niður á gólf vegna snjóþyngsla í morgun. Go-Kart höllin Racehall er í nágrenni Árósa en alls hrundu um 400 fermetrar af þakinu niður á þessari 9000 fermetra stóru höll. 22.2.2007 21:07 Hvetur súnnía til að hefna nauðgunar Abu Hamza al-Muhajir leiðtogi Al-Kaída í Írak hvetur súnnía til að hefna fyrir nauðgun sem fjórir írakskir öryggislögreglumenn eru sakaðir um. Lögreglumennirnir eru sjítar og eru sakaðir um að hafa allir nauðgað konunni og barið. Muhajir segir í hljóðskrá sem sett var á vefinn í dag að 300 uppreisnarmenn hafi þegar boðist til að fremja sjálfsmorðsárásir til hefna fyrir nauðgunina. 22.2.2007 20:58 Tröllvaxinn smokkfiskur til rannsóknar Fiskimenn á Nýja-Sjálandi veiddu á dögunum risavaxinn smokkfisk, þann þyngsta sem nokkru sinni hefur veiðst. Hann er um 450 kíló og það tók 2 klukkustundir að landa honum. Smokkfiskar sem þessi verða allt að 14 metrar á lengd og hafa lengi verið einhver leyndardómsfyllstu dýr hafdjúpanna. 22.2.2007 20:00 Snjóþyngsli í Danmörku töfðu ferð Íslendings með vörubíl Umferð í lofti og á láði raskaðist töluvert þegar snjó kyngdi niður sem aldrei fyrr í Danmörku og suðurhluta Svíþjóðar og Noregs í dag. Flugi var frestað og lestir hættu að ganga. Ekki er vitað til þess að alvarleg slys hafi orðið á fólki. 22.2.2007 19:45 Handtekinn grunaður um bréfsprengingar Miles Cooper, 27 ára húsvörður í skóla í Cambridge hefur verið handtekinn grunaður um að hafa lagt á ráðin um nokkrar bréfsprengjur í Bretlandi. Lögregla segist hafa fundið ummerki um sprengjugerð á heimili Cooper. Alls hafa sjö bréfsprengjur sprungið víðsvegar um landið það sem af er ári og í sprengingunum hafa níu slasast. 22.2.2007 19:33 Haraldur Noregskonungur sjötugur Haraldur Noregskonungur varð sjötugur í gær. Mikil hátíðarhöld eru fyrirhuguð í Noregi vegna þess næstu daga. Konungshjónin ræddu opinskátt um samband sitt í viðtali við norska TV2 í vikunni. 22.2.2007 19:30 Dagný Ósk formaður Stúdentaráðs Dagný Ósk Aradóttir var í dag kjörinn nýr formaður Stúdentaráðs HÍ á skiptafundi ráðsins. Dagný var oddviti á lista Röskvu til Stúdentaráðs á síðasta ári. Dagný er sjötta konan til að gegna embætti formanns Stúdentaráðs en hún gengdi embætti ritara ráðsins á nýliðnu starfsári. Röskva hlaut hreinan meirihluta í kosningum í Háskólanum fyrr í mánuðinum en hafði síðast hreinan meirihluta árið 2002. 22.2.2007 19:20 Bretar krefjast endurgreiðslu Viðskiptavinir stærstu bankanna í Bretlandi hafa risið upp í tugþúsunda tali og krefja þá um endurgreiðslu fjár. Ekki hafi verið farið að lögum við innheimtu á fit-kostnaði og þá peninga ætli þeir að sækja, með góðu eða illu langt aftur í tímann. Talsmaður neytenda segir mögulegt að viðskiptavinir íslensku bankanna geti gert sömu kröfu. 22.2.2007 19:15 Horta býður sig fram til forseta Jose Ramos Horta, handhafi friðarverðlauna Nóbels ætlar að bjóða sig fram sem forseta Austur-Tímor. Horta tók við embætti forsætisráðherra á síðasta ári eftir stjórnarkreppu. Landið lýsti yfir sjálfstæði frá Indónesíu fyrir fimm árum en síðan hefur verið afar róstursamt þar. 22.2.2007 18:59 Hatur og bókhaldsbrot Jón Gerald Sullenberger viðurkenndi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa tekið þátt í bókhaldsbroti með Baugsmönnum. Jón Ásgeir segir málið til komið vegna samblöndu af pólitískri óvild og hatri Jóns Geralds í sinn garð. 22.2.2007 18:45 Klámframleiðendum vísað frá Stjórn Bændasamtaka Íslands, sem eiga Hótel Sögu, ákvað í dag að vísa frá 150 manna hópi framleiðenda og dreifingaraðila klámefnis sem bókað höfðu gistingu á hótelinu í byrjun mars. Forsvarsmaður hópsins mótmælir harðlega og spyr hvernig Íslendingar geti drepið hvali með góðri samvisku en bannað fólki úr klámiðnaðinum að skemmta sér hér á landi. 22.2.2007 18:45 Aðstoð við Byrgisfólk takmörkuð Móðir stúlku sem kært hefur Guðmund í Byrginu segir það hneyksli hversu hægt gangi að veita fyrrverandi vistmönnum þá aðstoð sem forsætisráðherra lofaði í síðustu viku. 22.2.2007 18:30 Eignarnám vegna virkjana í þágu stóriðju stangast á við lög Er réttlætanlegt að taka heimili fólks og jarðir við Þjórsá eignarnámi til að ríkisfyrirtæki geti framleitt rafmagn fyrir stóriðju? Umhverfisráðherra var spurður að þessu á Alþingi í dag. Jónína Bjartmarz sagðist ekki telja að almannahagsmunir væru til grundvallar slíku eignarnámi, eins og lög gerðu ráð fyrir. Málið væri þó ekki á borði stjórnvalda. 22.2.2007 18:30 Ítalskir hermenn á leið heim frá Afganistan Hamid Karzai forseti Afganistan hvetur Ítali til að draga ekki herlið sitt út úr landinu. Ítalska þingið hefur hinsvegar ákveðið að flytja alla tvöþúsund ítölsku hermennina sem eru í Afganistan heim. Karzai hefur undanfarna mánuði átt fullt í fangi með að berjast gegn uppreisnarhópum Talibana. Forsætisráðherra Ítalíu sagði af sér í gær vegna málsins. 22.2.2007 18:19 Þrír bandarískir hermenn játa nauðgun og morð Þrír bandarískir hermenn hafa játað fyrir herrétti að hafa nauðgað og myrt 14 ára írakskri stúlku. Þeir nauðguðu stúlkunni allir áður en þeir myrtu hana. Þeir verða dæmdir í lífstíðarfangelsi í bandarískum herrétti en um það hafa lögmenn þeirra og saksóknari náð samkomulagi eftir að þeir játuðu allir glæpinn. Ódæðið frömdu þeir í mars á síðasta ári. 22.2.2007 17:33 Fangelsaður fyrir blogg Dómstóll í Egyptalandi úrskurðaði í dag bloggara í fjögurra ára fangelsi fyrir móðgun við Íslam og forseta landsins. Bloggarinn, Abdel Kareem Soliman er sá fyrsti sem er dæmdur í fangelsi í landinu fyrir skrif á vefinn. Hann hefur um langa hríð notað bloggið sitt til að gagnrýna al-Azhar háskólann, sem er ein helsta trúarstofnun landsins og Hosni Mubarak forseta, sem Soliman hefur kallað einræðisherra. 22.2.2007 17:24 Skógrækt ríkisins kærir framkvæmdir í Heiðmörk Skógrækt ríkisins hefur kært framkvæmdir í Heiðmörk á vegum Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðrar lagningar á vatnslögn. Fram kemur á heimasíðu Skógræktarinnar að forsendur kærunnar séu þær að umræddar framkvæmdir séu brot á 6. og 7 gr. skógræktarlaga. 22.2.2007 17:13 Marel lokar starfsstöð á Ísafirði í haust Forsvarsmenn Marels, sem þróar hátæknibúnað fyrir matvælaiðnað, hefur ákveðið að loka starfsstöð sinni á Ísafirði frá og með 1. september í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá féaginu. 22.2.2007 17:03 Mildaði dóm vegna árásar á lögreglumann Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa ráðist gegn lögreglumanni og kýlt hann ítrekað þar sem þeir voru í lögreglubíl. 22.2.2007 16:40 Veittist að sýslumanni Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Hæstarétti dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að veitast að sýslumanninum á Selfossi. Með brotinu rauf hann skilorð. 22.2.2007 16:36 Skurðlæknar slógust í miðjum uppskurði Slagsmál hófust í miðri aðgerð á skurðstofu á sjúkrahúsi í Belgrad í Serbíu milli tveggja skurðlækna. Slagsmálin færðust svo út af skurðstofunni og héldu áfram á ganginum. Þetta er haft eftir serbneska dagblaðinu Politika. Spasoje Radulovic læknir var í miðjum uppskurði þegar kollegi hans Dragan Vukanic kom inn og gerði athugasemd sem varð upphaf slagsmálanna. 22.2.2007 16:31 How Tom Cruise Almost Saved Icelandic Handball 22.2.2007 16:25 Hvad siger du ? Norræna tungumálayfirlýsingin verður 20 ára á þessu ári. Meginmarkmið yfirlýsingarinnar er að Norðurlandabúar eiga að geta talað móðurmál sitt í samskiptum við yfirvöld í öðrum norrænum ríkjum ef þörf krefur. 22.2.2007 16:08 Bensínþjófar á ferð Lögreglan hafði afskipti af tveimur bensínþjófum í gær. Liðlega þrítugur karlmaður tók eldsneyti fyrir tvö þúsund krónur á bensínstöð í Vogahverfi og keyrði á brott án þess að greiða fyrir það. Maðurinn bar við minnisleysi þegar lögreglan sótti hann heim og fór fram á greiðslu skuldarinnar. Hann lét síðan til leiðast, fór á bensínstöðina og gerði upp. 22.2.2007 16:04 Sjá næstu 50 fréttir
Þurfti að elta uppi ölvaða ökumenn Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt, þar af 21 árs piltur sem reyndi að stinga lögregluna af eftir að hann hafði lent í umferðaróhappi Vesturlandsvegi. 23.2.2007 13:59
Sýknaðir af ákæru um valdarán í Miðbaugs-Gíneu Dómstóll í Pretoríu í Suður-Afríku hefur vísað frá máli á hendur átta málaliðum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um valdarán í Miðbaugs-Gíneu fyrir þremur árum. 23.2.2007 13:50
Harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi Samtök fjármálafyrirtækja harma fordóma í garð vátryggingastarfsemi á Íslandi sem koma fram í umsögn Læknafélags Íslands til efnahags- og viðskiptanefndar um breytingar á lögum um vátryggingarsamninga. 23.2.2007 13:28
Sextán látnir í ferjuslysi við Indónesíu Að minnsta kosti sextán manns týndu lífi eftir að eldur kom upp í ferju á leið frá Djakarta til eyjunnar Bangka í Indónesíu í gær. Eldurinn kom upp í bílaþilfari og greip mikil skelfing um sig meðal yfir þrjú hundruð farþega sem voru í ferjunni. 23.2.2007 13:00
Fundu fjölda vopna í íbúð í Amsterdam Hollenska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði handtekið mann með bandarískt vegabréf eftir að fjölmargar byssur, handsprengjur og önnur vopn höfðu fundist í fórum hans. 23.2.2007 12:45
Hvirfibylur veldur manntjóni í Mósambík Fjórir eru látnir og að minnsta kosti 70 slasaðir eftir að öflugur hvirfilbylur gekk yfir sumarleyfisstað í Mósambík. Þúsundir húsa skemmdust í óveðrinu, þar á meðal sjúkrahúsið í bænum. 23.2.2007 12:30
Krefjast þess að heildsalar lækki verð á vörum Neytendasamtökin krefjast þess að heildsalar lækki verð á vörum sínum vegna styrkingar krónunnar. Nógu fljótir séu þeir til að hækka verðið þegar gengi gjaldmiðla hækki. Krónan hefur styrkst um sjö prósent frá áramótum. 23.2.2007 12:19
Hafa þegar lækkað mataverð Verðlag í Bónus og Krónunni hefur þegar verið lækkað til samræmis við fyrirhugaða lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti um mánaðamótin. Virðisaukaskattur af öllum vörum, sem báru 24,5 prósenta virðisaaukaskatt og 14 prósent, lækkar niður í sjö prósent. 23.2.2007 12:00
Klámráðstefnugestir gætu krafist skaðabóta Samtök ferðaþjónustunnar segja hættu á að gestir klámráðstefnu, sem halda átti hér á landi en var vísað frá, höfði skaðabótamál. Það sé alvarlegt mál að vísa frá hópum sem engin lög hafi brotið. 23.2.2007 11:47
Sendiherra Frakka lét 500 börn bíða eftir sér Fyrsti dagskrárliður Vetrarhátíðar í dag fór töluvert úr skorðum þegar franski sendiherran, Nicole Michelangeli, mætti hálfri klukkustund of seint í íþróttahúsið við Austurberg. 23.2.2007 11:45
Fundað um framtíð ratsjárvarnarkerfis Fyrsti fundur Íslands og Bandaríkjanna um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á Íslandi var haldinn í Brussel fyrr í dag. Að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu var rætt um fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu eins og kveðið er á um í samkomulagi Íslands og Bandaríkjanna sem undirritað var í október á síðasta ári. 23.2.2007 11:27
Fiðurfénaður aftur í Húsdýragarðinn Tíu íslenskar hænur og þrír stoltir hanar eru komin í Húsdýragarðinn eftir að öllum fuglum var lógað þar fyrir þremur mánuðum vegna ótta við að einhvers konar fuglaflensa hefði borist í fuglana þar. 23.2.2007 11:22
Lögreglurannsókn gerð af minna tilefni Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir lögreglurannsókn hafa verið gerða af minna tilefni aðspurður um nafnlaust bréf sem fjölmörgum aðilum tengdum Baugsmálinu hefur verið sent. Afrit af bréfinu fylgir fréttinni. 23.2.2007 11:18
Landsfundur Vinstri - grænna settur í dag Vinstri - græn halda í dag og á morgun sinn fimmta landsfund á Grand Hótel Reykjavík sem segja má að marki upphaf kosningabaráttu flokksins fyrir þingkosninganna. Fundurinn hefst klukkann 16.30 en þá flytur Steigrímur J. Sigfússon ræðu sína. 23.2.2007 10:49
Áberandi ölvaður undir stýri Lögreglan í Reykjavík stöðvaði um klukkan fimm í dag mann sem grunaður er um ölvunarakstur í Kollafirði á leið inn í Mosfellsbæ. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maðurinn áberandi ölvaður og ók kantanna á milli. Ekki er vitað hvaðan maðurinn var að koma eða hvort hann hafði verið lengi á ferð. 22.2.2007 22:54
Bílvelta í Skorradal Bíll valt í Skorradal í kvöld í hálku með þeim afleiðingum að klippa þurfti ökumanninn út úr bílnum. Maðurinn var einn í bílnum sem talinn er gjörónýtur. Ökumaðurinn slapp þó með skrámur. 22.2.2007 22:46
Tekinn á tvöföldum hámarkshraða Borgarneslögreglan tók í dag fimm ökumenn fyrir of hraðan akstur, þrjá fyrir utan bæinn en þar ók einn á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Þá voru tveir stöðvaðir innanbæjar í Borgarnesi en annar þeirra ók á 99 kílómetra hraða þar sem hraðast má aka á 50. 22.2.2007 22:45
Grunuð um lyfjaakstur með meint þýfi Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í kvöld konu á leið suður Norðurárdal sem grunuð er um að hafa ekið undir áhrifum lyfja. Ekki er talið að hún hafi verið ölvaður en að sögn lögreglu rásaði bíllinn um veginn og fór meðal annars yfir blindhæð á öfugum vegarhelmingi. Einnig fannst meint þýfi í bílnum. Þegar lögregla grunar menn um lyfjaakstur þarf að taka blóð- og þvagsýni og tekur 10-15 daga að fá niðurstöður rannsókna á sýnunum. 22.2.2007 22:44
Tóku Austurríkismenn á ofsahraða Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í kvöld för þriggja Austurríkismanna á bílaleigubíl sem virtust heldur vera að flýta sér um landið. Þeir mældust á 137 kílómetra hraða rétt sunnan við Blönduós. Ökumaðurinn þurfti að greiða 45 þúsund krónur í sekt og var gengið frá því á staðnum, enda lögreglan með posavél í bílnum. Ætla má að þar sem mennirnir eru frá Austurríki hafi þeir aldrei heyrt um hárnákvæmar starfsaðferðir Blönduóslöggunnar. 22.2.2007 22:31
Royal snýr sér að reynsluboltum Segolene Royal frambjóðandi sósíalista í forsetakosningum í Frakklandi hefur nú ákveðið að snúa sér til reynsluboltanna sem eru með henni í flokki til að fá ráð í kosningabaráttunni. Mennirnir sem hún nú biður um ráð eru þeir sem hún hafði undir í baráttunni um útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar. 22.2.2007 22:20
Eignaspjöll á go-kart höll Snjóþyngslin í Danmörku eru farin að valda þónokkrum eignaspjöllum en þak stærstu go-kart hallar Evrópu féll niður á gólf vegna snjóþyngsla í morgun. Go-Kart höllin Racehall er í nágrenni Árósa en alls hrundu um 400 fermetrar af þakinu niður á þessari 9000 fermetra stóru höll. 22.2.2007 21:07
Hvetur súnnía til að hefna nauðgunar Abu Hamza al-Muhajir leiðtogi Al-Kaída í Írak hvetur súnnía til að hefna fyrir nauðgun sem fjórir írakskir öryggislögreglumenn eru sakaðir um. Lögreglumennirnir eru sjítar og eru sakaðir um að hafa allir nauðgað konunni og barið. Muhajir segir í hljóðskrá sem sett var á vefinn í dag að 300 uppreisnarmenn hafi þegar boðist til að fremja sjálfsmorðsárásir til hefna fyrir nauðgunina. 22.2.2007 20:58
Tröllvaxinn smokkfiskur til rannsóknar Fiskimenn á Nýja-Sjálandi veiddu á dögunum risavaxinn smokkfisk, þann þyngsta sem nokkru sinni hefur veiðst. Hann er um 450 kíló og það tók 2 klukkustundir að landa honum. Smokkfiskar sem þessi verða allt að 14 metrar á lengd og hafa lengi verið einhver leyndardómsfyllstu dýr hafdjúpanna. 22.2.2007 20:00
Snjóþyngsli í Danmörku töfðu ferð Íslendings með vörubíl Umferð í lofti og á láði raskaðist töluvert þegar snjó kyngdi niður sem aldrei fyrr í Danmörku og suðurhluta Svíþjóðar og Noregs í dag. Flugi var frestað og lestir hættu að ganga. Ekki er vitað til þess að alvarleg slys hafi orðið á fólki. 22.2.2007 19:45
Handtekinn grunaður um bréfsprengingar Miles Cooper, 27 ára húsvörður í skóla í Cambridge hefur verið handtekinn grunaður um að hafa lagt á ráðin um nokkrar bréfsprengjur í Bretlandi. Lögregla segist hafa fundið ummerki um sprengjugerð á heimili Cooper. Alls hafa sjö bréfsprengjur sprungið víðsvegar um landið það sem af er ári og í sprengingunum hafa níu slasast. 22.2.2007 19:33
Haraldur Noregskonungur sjötugur Haraldur Noregskonungur varð sjötugur í gær. Mikil hátíðarhöld eru fyrirhuguð í Noregi vegna þess næstu daga. Konungshjónin ræddu opinskátt um samband sitt í viðtali við norska TV2 í vikunni. 22.2.2007 19:30
Dagný Ósk formaður Stúdentaráðs Dagný Ósk Aradóttir var í dag kjörinn nýr formaður Stúdentaráðs HÍ á skiptafundi ráðsins. Dagný var oddviti á lista Röskvu til Stúdentaráðs á síðasta ári. Dagný er sjötta konan til að gegna embætti formanns Stúdentaráðs en hún gengdi embætti ritara ráðsins á nýliðnu starfsári. Röskva hlaut hreinan meirihluta í kosningum í Háskólanum fyrr í mánuðinum en hafði síðast hreinan meirihluta árið 2002. 22.2.2007 19:20
Bretar krefjast endurgreiðslu Viðskiptavinir stærstu bankanna í Bretlandi hafa risið upp í tugþúsunda tali og krefja þá um endurgreiðslu fjár. Ekki hafi verið farið að lögum við innheimtu á fit-kostnaði og þá peninga ætli þeir að sækja, með góðu eða illu langt aftur í tímann. Talsmaður neytenda segir mögulegt að viðskiptavinir íslensku bankanna geti gert sömu kröfu. 22.2.2007 19:15
Horta býður sig fram til forseta Jose Ramos Horta, handhafi friðarverðlauna Nóbels ætlar að bjóða sig fram sem forseta Austur-Tímor. Horta tók við embætti forsætisráðherra á síðasta ári eftir stjórnarkreppu. Landið lýsti yfir sjálfstæði frá Indónesíu fyrir fimm árum en síðan hefur verið afar róstursamt þar. 22.2.2007 18:59
Hatur og bókhaldsbrot Jón Gerald Sullenberger viðurkenndi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa tekið þátt í bókhaldsbroti með Baugsmönnum. Jón Ásgeir segir málið til komið vegna samblöndu af pólitískri óvild og hatri Jóns Geralds í sinn garð. 22.2.2007 18:45
Klámframleiðendum vísað frá Stjórn Bændasamtaka Íslands, sem eiga Hótel Sögu, ákvað í dag að vísa frá 150 manna hópi framleiðenda og dreifingaraðila klámefnis sem bókað höfðu gistingu á hótelinu í byrjun mars. Forsvarsmaður hópsins mótmælir harðlega og spyr hvernig Íslendingar geti drepið hvali með góðri samvisku en bannað fólki úr klámiðnaðinum að skemmta sér hér á landi. 22.2.2007 18:45
Aðstoð við Byrgisfólk takmörkuð Móðir stúlku sem kært hefur Guðmund í Byrginu segir það hneyksli hversu hægt gangi að veita fyrrverandi vistmönnum þá aðstoð sem forsætisráðherra lofaði í síðustu viku. 22.2.2007 18:30
Eignarnám vegna virkjana í þágu stóriðju stangast á við lög Er réttlætanlegt að taka heimili fólks og jarðir við Þjórsá eignarnámi til að ríkisfyrirtæki geti framleitt rafmagn fyrir stóriðju? Umhverfisráðherra var spurður að þessu á Alþingi í dag. Jónína Bjartmarz sagðist ekki telja að almannahagsmunir væru til grundvallar slíku eignarnámi, eins og lög gerðu ráð fyrir. Málið væri þó ekki á borði stjórnvalda. 22.2.2007 18:30
Ítalskir hermenn á leið heim frá Afganistan Hamid Karzai forseti Afganistan hvetur Ítali til að draga ekki herlið sitt út úr landinu. Ítalska þingið hefur hinsvegar ákveðið að flytja alla tvöþúsund ítölsku hermennina sem eru í Afganistan heim. Karzai hefur undanfarna mánuði átt fullt í fangi með að berjast gegn uppreisnarhópum Talibana. Forsætisráðherra Ítalíu sagði af sér í gær vegna málsins. 22.2.2007 18:19
Þrír bandarískir hermenn játa nauðgun og morð Þrír bandarískir hermenn hafa játað fyrir herrétti að hafa nauðgað og myrt 14 ára írakskri stúlku. Þeir nauðguðu stúlkunni allir áður en þeir myrtu hana. Þeir verða dæmdir í lífstíðarfangelsi í bandarískum herrétti en um það hafa lögmenn þeirra og saksóknari náð samkomulagi eftir að þeir játuðu allir glæpinn. Ódæðið frömdu þeir í mars á síðasta ári. 22.2.2007 17:33
Fangelsaður fyrir blogg Dómstóll í Egyptalandi úrskurðaði í dag bloggara í fjögurra ára fangelsi fyrir móðgun við Íslam og forseta landsins. Bloggarinn, Abdel Kareem Soliman er sá fyrsti sem er dæmdur í fangelsi í landinu fyrir skrif á vefinn. Hann hefur um langa hríð notað bloggið sitt til að gagnrýna al-Azhar háskólann, sem er ein helsta trúarstofnun landsins og Hosni Mubarak forseta, sem Soliman hefur kallað einræðisherra. 22.2.2007 17:24
Skógrækt ríkisins kærir framkvæmdir í Heiðmörk Skógrækt ríkisins hefur kært framkvæmdir í Heiðmörk á vegum Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðrar lagningar á vatnslögn. Fram kemur á heimasíðu Skógræktarinnar að forsendur kærunnar séu þær að umræddar framkvæmdir séu brot á 6. og 7 gr. skógræktarlaga. 22.2.2007 17:13
Marel lokar starfsstöð á Ísafirði í haust Forsvarsmenn Marels, sem þróar hátæknibúnað fyrir matvælaiðnað, hefur ákveðið að loka starfsstöð sinni á Ísafirði frá og með 1. september í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá féaginu. 22.2.2007 17:03
Mildaði dóm vegna árásar á lögreglumann Hæstiréttur mildaði í dag dóm héraðsdóms yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa ráðist gegn lögreglumanni og kýlt hann ítrekað þar sem þeir voru í lögreglubíl. 22.2.2007 16:40
Veittist að sýslumanni Karlmaður á fertugsaldri var í dag í Hæstarétti dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að veitast að sýslumanninum á Selfossi. Með brotinu rauf hann skilorð. 22.2.2007 16:36
Skurðlæknar slógust í miðjum uppskurði Slagsmál hófust í miðri aðgerð á skurðstofu á sjúkrahúsi í Belgrad í Serbíu milli tveggja skurðlækna. Slagsmálin færðust svo út af skurðstofunni og héldu áfram á ganginum. Þetta er haft eftir serbneska dagblaðinu Politika. Spasoje Radulovic læknir var í miðjum uppskurði þegar kollegi hans Dragan Vukanic kom inn og gerði athugasemd sem varð upphaf slagsmálanna. 22.2.2007 16:31
Hvad siger du ? Norræna tungumálayfirlýsingin verður 20 ára á þessu ári. Meginmarkmið yfirlýsingarinnar er að Norðurlandabúar eiga að geta talað móðurmál sitt í samskiptum við yfirvöld í öðrum norrænum ríkjum ef þörf krefur. 22.2.2007 16:08
Bensínþjófar á ferð Lögreglan hafði afskipti af tveimur bensínþjófum í gær. Liðlega þrítugur karlmaður tók eldsneyti fyrir tvö þúsund krónur á bensínstöð í Vogahverfi og keyrði á brott án þess að greiða fyrir það. Maðurinn bar við minnisleysi þegar lögreglan sótti hann heim og fór fram á greiðslu skuldarinnar. Hann lét síðan til leiðast, fór á bensínstöðina og gerði upp. 22.2.2007 16:04