Fleiri fréttir Fjögurra ára fangelsi fyrir blogg Egypskur bloggari hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að móðga bæði Hosni Mubarak, forseta, og Múhameðstrúna. Abdel Karim Suleiman er 22 ára gamall fyrrverandi laganemi, sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum, og hefur setið í fangelsi síðan. Hann var dæmdur fyrir átta blogg sem hann skrifaði árið 2004. 22.2.2007 15:05 Eldorgel opnar Vetrarhátíð í Reykjavík Tilkomumikill gjörningur með eldorgeli verður opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík á Austurvelli kl. 20 í kvöld. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin en henni lýkur á laugardagskvöld. Það er franski tónlistar- og sjónlistarmaðurinn Michel Moglia sem fremur gjörninginn, en með honum verða Sigtryggur Baldursson, Steingrímur Guðmundsson, Gísli Galdur og Herdís Þorvaldsdóttir. 22.2.2007 15:00 Segist hafa tapað þúsundum dollara Scott Hjorleifsson, Vestur-Íslendingurinn sem stendur á bak við netsíðuna sleazydream.com og ætlaði að koma hingað til lands í fyrirhugaða ferð klámframleiðenda, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess að hætt hefur verið við ferðina. 22.2.2007 14:52 Veikir farandverkamenn 22.2.2007 14:50 RKÍ veitir þrjár milljónir vegna flóða í Mósambík Rauði kross Íslands veitti í dag 3 milljónir króna til neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins vegna gífurlegra flóða í Mósambík. 22.2.2007 14:29 Þingflokkar Alþingis harma klámráðstefnu Þingflokkar Alþingis harma að Reykjavíkurborg verði vettvangur ráðstefnu framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla um miðjan marsmánuð. Tilkynning þessa efnis barst frá þinglokkunum rétt í þann mund sem skýrt var frá að hætt hefði verið við ráðstefnuna. 22.2.2007 14:25 Þriðjungur ungmenna stefnir ekki í menntastörf Rúmlega þriðjungur fimmtán ára unglinga á íslandi býst ekki við að stunda störf sem krefjast menntunar um þrítugt. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu frá UNICEF Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þessi niðurstaða er ekki í samræmi við könnun Námsmatsstofnunar sem sýnir að 76 prósent nemenda í 10. bekk stefna á háskólanám. 22.2.2007 14:19 Kapphlaup í kjörbúðinni Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabwe er nú 1600 prósent á ársgrundvelli og landið er gjaldþrota, eftir 27 ára einræðisstjórn hins 83 ára gamla Roberts Mugabe. Þetta hefur auðvitað áhrif á daglegt líf þegnanna. Þeirra á meðal er Nelson Banya sem segist vera heppinn, því hann sé einn af tuttugu prósentum íbúa Zimbabwes, sem þó hafi atvinnu. 22.2.2007 14:04 Klámframleiðendur hætta við ferð til Íslands Aðstandendur ferðar klámframleiðenda sem fyrirtækið FreeOnes hugðist standa fyrir hingað til lands 7.-11. mars hafa ákveðið að hætta við ferðina eftir að stjórn Bændasamtakanna, sem á Hótel Sögu, ákvað að vísa hópnum frá hótelinu þar sem hann hafði bókað gistingu fyrir um 150 manns. 22.2.2007 13:52 Hótel Saga vísar klámráðstefnugestum frá Stjórn Bændasamtaka Íslands, sem eiga hótel Sögu, hefur ákveðið að vísa frá gestum sem bókað höfðu gistingu á Radissan SAS hóteli Sögu vegna klámráðstefnu. Gestirnir höfðu bókað gistingu dagana 7.-11. mars. Rekstraraðili Radisson SAS hótelkeðjunnar, Rezidor Hotel styður ákvörðunina. Bændasamtökin segjast með þessu vilja lýsa vanþóknun sinni á starfsemi þeirri sem hópurinn tengist. 22.2.2007 13:37 Fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins fá loks launamiða Launamiðar frá Varnarliðinu munu á næstu dögum berast til fyrrverandi starfsmanna þess og því ættu þeir ekki að lenda í vandræðum með skattframtöl sín. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. 22.2.2007 13:30 73% in Favor of Increased Environmental Protection According to a new Gallup Capacent poll, conducted for the Iceland Nature Conservation Association, roughly 73% of Icelanders believe that political parties should place more focus on environmental protection. 22.2.2007 13:20 Hvar er Peking ? 22.2.2007 13:15
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögurra ára fangelsi fyrir blogg Egypskur bloggari hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að móðga bæði Hosni Mubarak, forseta, og Múhameðstrúna. Abdel Karim Suleiman er 22 ára gamall fyrrverandi laganemi, sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum, og hefur setið í fangelsi síðan. Hann var dæmdur fyrir átta blogg sem hann skrifaði árið 2004. 22.2.2007 15:05
Eldorgel opnar Vetrarhátíð í Reykjavík Tilkomumikill gjörningur með eldorgeli verður opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík á Austurvelli kl. 20 í kvöld. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin en henni lýkur á laugardagskvöld. Það er franski tónlistar- og sjónlistarmaðurinn Michel Moglia sem fremur gjörninginn, en með honum verða Sigtryggur Baldursson, Steingrímur Guðmundsson, Gísli Galdur og Herdís Þorvaldsdóttir. 22.2.2007 15:00
Segist hafa tapað þúsundum dollara Scott Hjorleifsson, Vestur-Íslendingurinn sem stendur á bak við netsíðuna sleazydream.com og ætlaði að koma hingað til lands í fyrirhugaða ferð klámframleiðenda, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess að hætt hefur verið við ferðina. 22.2.2007 14:52
RKÍ veitir þrjár milljónir vegna flóða í Mósambík Rauði kross Íslands veitti í dag 3 milljónir króna til neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins vegna gífurlegra flóða í Mósambík. 22.2.2007 14:29
Þingflokkar Alþingis harma klámráðstefnu Þingflokkar Alþingis harma að Reykjavíkurborg verði vettvangur ráðstefnu framleiðenda klámefnis fyrir netmiðla um miðjan marsmánuð. Tilkynning þessa efnis barst frá þinglokkunum rétt í þann mund sem skýrt var frá að hætt hefði verið við ráðstefnuna. 22.2.2007 14:25
Þriðjungur ungmenna stefnir ekki í menntastörf Rúmlega þriðjungur fimmtán ára unglinga á íslandi býst ekki við að stunda störf sem krefjast menntunar um þrítugt. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu frá UNICEF Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þessi niðurstaða er ekki í samræmi við könnun Námsmatsstofnunar sem sýnir að 76 prósent nemenda í 10. bekk stefna á háskólanám. 22.2.2007 14:19
Kapphlaup í kjörbúðinni Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabwe er nú 1600 prósent á ársgrundvelli og landið er gjaldþrota, eftir 27 ára einræðisstjórn hins 83 ára gamla Roberts Mugabe. Þetta hefur auðvitað áhrif á daglegt líf þegnanna. Þeirra á meðal er Nelson Banya sem segist vera heppinn, því hann sé einn af tuttugu prósentum íbúa Zimbabwes, sem þó hafi atvinnu. 22.2.2007 14:04
Klámframleiðendur hætta við ferð til Íslands Aðstandendur ferðar klámframleiðenda sem fyrirtækið FreeOnes hugðist standa fyrir hingað til lands 7.-11. mars hafa ákveðið að hætta við ferðina eftir að stjórn Bændasamtakanna, sem á Hótel Sögu, ákvað að vísa hópnum frá hótelinu þar sem hann hafði bókað gistingu fyrir um 150 manns. 22.2.2007 13:52
Hótel Saga vísar klámráðstefnugestum frá Stjórn Bændasamtaka Íslands, sem eiga hótel Sögu, hefur ákveðið að vísa frá gestum sem bókað höfðu gistingu á Radissan SAS hóteli Sögu vegna klámráðstefnu. Gestirnir höfðu bókað gistingu dagana 7.-11. mars. Rekstraraðili Radisson SAS hótelkeðjunnar, Rezidor Hotel styður ákvörðunina. Bændasamtökin segjast með þessu vilja lýsa vanþóknun sinni á starfsemi þeirri sem hópurinn tengist. 22.2.2007 13:37
Fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins fá loks launamiða Launamiðar frá Varnarliðinu munu á næstu dögum berast til fyrrverandi starfsmanna þess og því ættu þeir ekki að lenda í vandræðum með skattframtöl sín. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. 22.2.2007 13:30
73% in Favor of Increased Environmental Protection According to a new Gallup Capacent poll, conducted for the Iceland Nature Conservation Association, roughly 73% of Icelanders believe that political parties should place more focus on environmental protection. 22.2.2007 13:20
Veggjalúsum fjölgar ört í Danmörku Óværu, sem líkist veggjalús, varð nýverið vart á gistiheimili á höfuðborgarsvæðinu og var gripið til eitrunar til að útrýma henni. Veggjalýs fjölga sér nú ört í Danmörku, að sögn Jótlandspóstsins, og hefur þurft að hreinsa þónokkur hótel út með eitri. 22.2.2007 13:00
Óvíst um framtíð Prodis Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér í gærkvöldi eftir aðeins 10 mánuði í embætti. Ríkisstjórn hans tapaði atkvæðagreiðslu um utanríkismál á ítalska þinginu í gær. Óvíst er hvort Ítalíuforseti samþykkir afsögn Prodis. 22.2.2007 12:45
Fresta því að leggja fram kæru Engar varúðarmerkingar voru við jarðrask verktaka Kópavogsbæjar í Heiðmörk þegar Vinnueftirlit ríkisins gerði úttekt á svæðinu í gær. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur frestað að leggja fram kæru vegna rasksins en Náttúruverndarsamtökin kæra Kópavogsbæ fyrir brot á náttúruverndarlögum. 22.2.2007 12:45
Lýst eftir vitnum að hugsanlegum kappakstri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir vitnum að umferðaróhappi á Reykjanesbraut á móts við Garðheima í Mjódd í gærkvöld klukkan 20.14. Þá var svartri Honda Civic fólksbifreið ekið suður Reykjanesbraut og leikur grunur á að ökumaðurinn hafi verið í kappakstri við annan ökumann. 22.2.2007 12:40
Kærum KB banka vísað frá siðanefnd í Danmörku Siðanefnd danskra fjölmiðla hefur vísað á bug kærum KB banka og Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns hans, á hendur danska Extrablaðinu vegna skrifa blaðsins um starfsemi bankans síðastliðið haust. 22.2.2007 12:31
Stórhríð í Skandinavíu Stórhríð og frost hafa raskað samgöngum verulega í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Horfur eru á umtalsverðum töfum í lofti og á láði fram eftir degi. 22.2.2007 12:30
Segir kosið um stóriðjustefnu ríkisstjórnar í Hafnarfirði Jón Baldvin Hannibalsson sagði á fjölmennum fundi í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gær að hann teldi að kosið yrði um stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar í kosningum um stækkun álversins í Straumsvík í lok mars. 22.2.2007 12:30
Samgöngur í Danmörku raskast vegna óveðurs Stórhríð og frost hafa valdið verulegum samgönguörðugleikum í Danmörku og sunnanverðum Noregi og Svíþjóð. Horfur eru á umtalsverðum töfum í lofti og á láði fram eftir degi. 22.2.2007 12:15
Grunaðir um að hafa reynt að stela þorski úr eldiskví Tveir trillukarlar frá Akureyri eru grunaðir um að hafa reynt að stela þorski úr eldiskvíum Brims skammt frá Krossanesi um síðustu helgi 22.2.2007 12:15
Harry fer til Íraks Harry Bretaprins hefur fengið skipun um að fara til Íraks. Varnarmálaráðuneytið breska tilkynnti þetta í morgun. Harry er hluti af Hinni bláu og konunglegu herdeild breska hersins. Líklegt er talið að hann verði við landamæravörslu á landamærum Íraks og Írans. 22.2.2007 12:11
Viðurkennir aðild að bókhaldsbroti Jón Gerald Sullenberger viðurkenndi við yfirheyrslur í morgun að hafa stuðlað að bókhaldsbroti í Baugsmálinu. Hann hafnar því hins vegar að upphaf Baugsmálsins megi rekja til kvennamála eins og Baugsmenn hafi haldið fram. Þvert á móti mætti rekja það til vanefnda á samningum en mælirinn hefði orðið fullur þegar Jón Ásgeir hefði stigið í vænginn við eiginkonu hans. 22.2.2007 12:04
Sérkennurum fjölgar Kennurum hefur fjölgað um 120 frá síðasta skólavetri eða um tvö og hálft prósent og eru nú tæplega fimm þúsund. Fjölgunina má aðallega rekja til sérkennara, en almennum grunnskólakennurum fækkar milli ára. Almennt fjölgar því kennurum þótt nemendum fækki en þeim hefur fækkað um 461 á tímabilinu. 22.2.2007 11:53
75% vilja áherslu á náttúru- og umhverfismál Mikill meirihluti vill að stjórnmálaflokkarnir leggi meiri áherslu á náttúruvernd og umhverfismál. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands og leiðir í ljós að 75 prósent eru fylgjandi málefninu. Einungis tæp fimm prósent töldu að flokkarnir ættu að leggja minni áherslu á náttúruvernd og umhverfismál. 22.2.2007 11:36
Fagna yfirlýsingu borgarstjóra Mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún fagnar yfirlýsingu borgarstjórans í Reykjavík og ályktun borgarstjórnar. Þar segir að ráðstefna framleiðenda klámefnis í borginni sé í mikilli óþökk borgaryfirvalda. Skýlaus stefna Reykjavíkurborgar sé að vinna gegn klámvæðingu og vændi. 22.2.2007 11:24
Geir fagnar heimköllun herliðs Breta og Dana Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði fulla ástæðu til að fagna þeirri þróun í Írak sem leitt hefði til þess að Bretar og Danir hefðu ákveðið að fækka í eða kalla heim herlið sitt frá Írak. Þetta kom fram í umræðu um störf þingsins sem Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, hóf við upphaf þingfundar. 22.2.2007 11:13
Danir í rusli Verkfall sorphirðumanna breiðist nú út í Danmörku, en það hefur þegar staðið í tvær vikur í Árósum. Landlæknir Danmerkur hefur sent út leiðbeiningar til fólks þar sem það er meðal annars upplýst um að það sé aðeins lífrænn úrgangur sem þarf að hafa áhyggjur af, svosem matarleifar og bleyjur. 22.2.2007 10:44
Lögregla, einhver hefur lagað íbúðina mína! Maður í Þýskalandi kom heim til sín eftir helgarferð og komst að því að brotist hafði verið inn og íbúðin gerð upp. Gunther Hagler hringdi strax í lögregluna. Engu var stolið, en búið var að mála, hreinsa glugga, setja ný húsgögn og jafnvel skipta um ísskáp. Maturinn úr gamla ísskápnum hafði meira að segja verið færður yfir í þann nýja. 21.2.2007 21:55
Nýsköpunarverðlaunin 2007 afhent á morgun Nýsköpunarverðlaunin árið 2007 verða veitt á þingi Rannís og Útflutningsráðs á morgun á Grand Hótel í Reykjavík. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpar þingið og afhendir verðlaunin. Rætt verður um virðisaukann frá sköpun til markaðar. Á dagskrá er einnig tónlist, hönnun ímynd og viðskipti auk tónlistarflutnings. 21.2.2007 21:45
Áttunda þyrlan skotin niður Black Hawk herþyrla Bandaríkjahers var skotin niður norður af Baghdad í Írak í dag. Enginn lést, en níu manns voru um borð. Þeir eru ekki alvarlega slasaðir. Þetta er áttunda þyrlan sem hrapar í Írak á einum mánuði. Talsmaður hersins sagði 28 manns, flesta bandaríkjamenn, hafa látist í átta þyrlum sem uppreisnarmenn hafa skotið niður á einum mánuði. 21.2.2007 21:31
Prodi vill fullan stuðning Romano Prodi er tilbúinn að halda áfram í embætti forsætisráðherra ef, og aðeins ef, vinstrisinnaður meirihluti styður hann að fullu. Þetta er haft eftir talsmanni hans í kvöld. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna munu taka ákvörðun um hvort afsögnin verður samþykkt eða hvort óskað verði eftir að Prodi sitji áfram. 21.2.2007 20:57
Náttúruverndarsamtökin kæra Náttúruverndarsamtök íslands hafa lagt fram kæru til lögreglu og fara fram á rannsókn vegna umhverfisspjalla í Heiðmörk. Spjöllin eru unnin af verktakafyrirtækinu Klæðningu ehf vegna vatnslagnar á vegum Kópavogsbæjar. Í kærunni segir að ekki hafi legið fyrir tilskilin leyfi né samráð, og að stórir skurðir hafi verið ruddir með tilheyrandi spjöllum, m.a. á svokölluðum Þjóðhátíðarlundi. 21.2.2007 20:36
Borgarstjóri: Ekki kæra Á fundi Skógræktarfélags Reykjavíkur í kvöld kom fram að Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur hefur óskað eftir að félagið leggi ekki fram kæru vegna rasks sem orðið hefur í Heiðmörk. Í yfirlýsingu frá Skógræktarfélaginu segir að borgarstjórinn hafi lýst yfir vilja til að beita sér fyrir lausn ágreiningsins vegna eignarspjalla og rasks í sambandi við vatnslögn í Heiðmörk. 21.2.2007 20:04
Fimmburar fæddust í Gaza-borg Uppi varð fótur og fit á sjúkrahúsi í Gaza-borg í dag þegar palestínsk kona ól þar fimmbura. Von var á fjórum börnum í heiminn og það fimmta kom því í kaupbæti. 21.2.2007 19:19
Ösku dreift yfir höfuð og enni kirkjugesta Á öskudegi gera börn sér yfirleitt glaðan dag og er þetta einn af eftirminnilegustu dögum barnanna þar sem búningar, söngvar og gleði eru í fyrirrúmi, eins og sjá mátti á aragrúa uppábúna barna um allt land í dag. 21.2.2007 19:15
Betri lífslíkur hjá fyrirburum Lífslíkur fyrirbura á Íslandi hafa batnað töluvert á síðustu árum, að sögn yfirlæknis á vökudeild Landspítalans. Hann segir lífslíkur þeirra, sem fæðast fyrir tuttugustu og fjórðu viku meðgöngu, afar litlar, en ef þau lifi sé mikil hætta á alvarlegri fötlun sem komi í ljós þegar barnið eldist. Það var í október í fyrra sem Amillia Sonja Taylor fæddist í Miami á Flórída í Bandaríkjunum eftir tæpar tuttugu og tvær vikur í móðurkvið. Algengt er að konur gani með börn í 37 til 40 vikur. Amillia var þá rétt rúmir 24 sentimetrar að lengd og rúm 280 grömm að þyngd. Henni var vart hugað líf enda lifa fyrirburar nær aldrei fæðist þeir svo snemma. Amillia dafnaði hins vegar og fór heim með foreldrum sínum í fyrradag. Reynir Tómas Geirsson, sviðsstjóri lækninga á kvennasviði Landspítalans, segist ekki vita um að barn hafi fæðst svo mikið fyrir tímann á Íslandi. Hann segir fyrirburafæðingar ekki mjög sérlega algengar á Íslandi. Fyrirburi sé barn sem fæðist fyrir 37. viku og það séu 6% allra fæðinga. Smærri börn sem fæðist fyrir 28. viku séu 0.7%. Feynir Tómas segir að fæðingar á 22. til 24. viku meðgöngu séu 0.4% fæðinga. Atli Dagbjartsson, yfirlæknir á vökudeild Landspítalans, segir lífslíkur barna sem fæðist fyrir 24. viku meðgöngu séu afar litlar. Þau börn sem lifi eigi á hættu alvarlega þroskaskerðingu, svokallað heilalömun. Börnin nái ekki andlegum þroska. Atli segir að lífslíkur fyrirbura hafi batnað á Íslandi og fylgt þróun í heiminum frá því um miðja síðustu öld. Mestu skipti þó að börnin nái ákveðnum þroska fyrir fæðingu til að lífslíkur aukist. Þar skipti lungaþroskinn mestu og hann sé orðinn ásættanlegur í 24. viku meðgöngu. 21.2.2007 19:15
Ógnaði apamanni með hnífi Maður með hníf ógnaði afgreiðslumanni á Akureyri í dag eftir að hafa stolið flíspeysu. Afgreiðslumaðurinn hljóp hann uppi í apabúningi og situr hnífamaðurinn nú í haldi lögreglu. Maðurinn ógnaði Sigurði Guðmundssyni verslunarmanni með hnífi eftir að stela peysu úr Víking búðinni í Hafnarstræti. 21.2.2007 19:08
Bretar og Danir kalla hermenn heim frá Írak Danir ætla að kalla alla hermenn sína frá Írak áður en ágústmánuður gengur í garð. Þetta tilkynnti forsætisráðherra Danmerkur í dag. Á sama tíma greindi starfsbróðir hans í Bretlandi frá því að 1.600 breskir hermenn yrðu kallaðir heim á næstu mánuðum. 21.2.2007 18:58
Fljúgandi hálka í Borgarfirði Lögreglan í Borgarfirði varar ökumenn við fljúgandi hálku frá Hafnarfjalli upp í Norðurárdal. Vegagerðinni gengur erfiðlega að salta, þar sem hiti er við frostmark, mikið fok og snjókoma. Ekki er talið fært bílum á sumardekkjum og ökumenn eru beðnir að haga ökulagi eftir aðstæðum. 21.2.2007 18:31
Athugun ekki leitt ætlan um saknæmt athæfi í ljós Athugun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki leitt í ljós, með óyggjandi hætti, að fólk í hópi vefstjóra sem dreifir klámi á Netinu, hafi gerst brotlegt við lög. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segir fráleitt að banna þessu fólki að koma til landsins. Ekkert mál er að verða sér út um klám á Íslandi án milligöngu Netsins. Við vörum við myndum með þessari frétt sem gætu sært blygðunarkennd fólks. 21.2.2007 18:30
Hundruð fugla hafa smitast af olíumengun Tugir eða hundruð fugla hafa mengast af olíu sem lak úr flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað skammt frá Sandgerði. Mun meira virðist hafa verið eftir af svartolíu í skipinu en áður var talið. 21.2.2007 18:30
Átti að svíkja lit Tryggvi Jónsson, einn sakborninga í Baugsmálinu, sakar lögregluna um að hafa reynt að fá sig til að vitna gegn Jóni Ásgeiri til bæta stöðu sína. Bæði Tryggvi og Jón Ásgeir segja kvennamál þýðingarmikil fyrir upphaf málsins. 21.2.2007 18:25
Eiður Guðnason til Færeyja Eiður Guðnason verður aðalræðismaður Íslands á nýrri sendiræðisskrifstofu í Þórshöfn í Færeyjum. Skrifstofan opnar í byrjun apríl og er nú unnið í samvinnu við dönsk og færeysk stjórnvöld að frágangi málsins. Síðastliðin 60 ár hefur kjörræðismaður haft ólaunað hlutastarf á ræðismannsskrifstofu í Færeyjum. 21.2.2007 18:00