Fleiri fréttir

Sprengjuárás á Indlandi rannsökuð

Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa fordæmt sprengjuárás á farþegalest í Indlandi í gærkvöldi. Segja þeir ætlun ódæðismannanna hafi verið að raska friðarviðræðum landanna og það takist ekki. Minnst 66 týndu lífi í árásinni.

Hringvegurinn klárast ekki

Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, gagnrýnir Sturlu Böðvarsson, eftirmann sinn á ráðherrastól, fyrir að klára ekki að malbika hringveginn í samgönguáætlun næstu tólf ára.

Bakkavör innkallar hummus

Bakkavör hefur innkallað kjúklingabaunamauk úr sex matvöruverslanakeðjum á Bretlandi eftir að salmonellusmit greindist í sýnum úr því. Ekki er talið að nokkur hafi veikst eftir að hafa neytt vörunnar og segir forstjóri fyrirtækisins fjárhagstjón vegna smitsins óverulegt.

Samstarf við Djíbútí

Orkuveita Reykjavíkur og fulltrúar Afríkuríkisins Djíbútí undirrituðu í dag samstarfssamning um þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðslu í Djíbútí. Forseti Djíbútí og stjórnarformaður Orkuveitunnar segja þetta mikilvægan samning sem vonandi tryggi orku í sem flest hús í landinu.

Síminn og Landsvirkjun fallast á háa fjársekt fyrir ólögmætt samráð

Síminn og Landsvirkjun hafa viðurkennt að hafa haft með sér ólögmætt samráð vegna kaupa Símans á fjarskiptafyrirtæki og ljósleiðarastrengjum af Landsvirkjun og fallist á að greiða samtals áttatíu milljóna króna sekt í ríkissjóð. Þetta er hæsta sekt sem samið hefur verið um hérlendis vegna brota á samkeppnislögum.

Tré á svörtum markaði

Grunur leikur á að mörgum stórum trjám, sem rifin voru upp með rótum í Heiðmörk vegna óleyfilegra vatnsveituframkvæmda Kópavogsbæjar, hafi verið komið undan til gróðursetningar á einkalöndum. Öll tré, sem rifin voru upp í Heiðmörk voru fjarlægð þaðan, í stað þess að búa sem best um þau á staðnum til gróðursetningar í Heiðmörk á ný. Þau virðast vera komin í einskonar svartamarkaðsdreyfingu.

Hugsanleg samvinna nýtingu jarðvarma í Djíbútí

Möguleiki á samvinnu íslenskra aðila og aðila frá Djíbútí við að nýta jarðvarma til orkuframleiðslu var ræddur á fundi utanríkisráðherra landanna í dag. Utanríkisráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Mahmous Ali Youssouf ræddu einnig stöðu kvenna og barna í Djíbútí og aðgerðir ríkisstjórnar landsins til að útrýma fátækt.

Flughált á Breiðdalsheiði

Vegagerðin varar við flughálku á Breiðdalsheiði. Þá eru víða hálkublettir á stöku stað á Norður- og Austurlandi. Á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eru einnig hálkublettir hér og þar, en annars greiðfært um allt Suður- og Vesturland. Á vestfjörðum er hálka á hálsum og heiðum.

Vilja hækkun lífeyrisbóta

Félag eldri borgara í Reykjavík vill að lífeyrisbætur aldraðra verði hækkaðar úr 125 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund krónur og fylgi síðan launavísitölu. Félagið leggur mikla áherslu á fjölgun sambýla, leigu- og hjúkrunaríbúða og að málefni aldraðra verði alfarið flutt til sveitarfélaganna.

Fær ekki að snerta bílinn eftir ölvunarakstur

Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, langflestir í Reykjavík. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar í Reykjavík var um að ræða tuttugu karlmenn og fjórar konur.

8000 morðingjum sleppt úr fangelsi

Átta þúsund föngum var sleppt úr fangelsum í Rúanda, í dag, en þeir höfðu verið sakaðir um aðild að þjóðarmorðinu árið 1994. Frelsun þeirra hefur vakið mikla reiði meðal ættingja þeirra sem myrtir voru í blóðbaðinu. Fangelsi í Rúanda eru yfirfull af föngum sem hafa annaðhvort verið sakfelldir eða bíða eftir réttarhöldum.

Lögregla og björgunarsveitir endurnýja samstarfssamning

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.

OR semur um jarðhitarannsóknir í Djíbútí

Orkuveita Reykjavíkur mun starfa að þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðöslu í Djúbúti ásamt yfirvöldum þar samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag.

Enn eitt heiðursmorð í Danmörku

Danskur saksóknari hefur krafist þyngri refsingar yfir pakistanskri fjölskyldu sem myrti nítján ára gamla stúlku vegna þess að hún hafði gifst manni sem fjölskyldan sætti sig ekki við. Það var bróðir stúlkunnar sem skaut hana til bana, að skipun föðurins. Eiginmaður hennar særðist mikið, en lifði tilræðið af.

Síminn og Landsvirkjun viðurkenna samráð og borga sektir

Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., sem er dótturfélag Landsvirkjunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar.

Á svifdreka í 10 þúsund metra hæð

Þýsk kona slapp á undraverðan hátt frá svifdrekaflugi, um síðustu helgi, þar sem óveður þeytti henn i upp í tíuþúsund metra hæð. Það er sama hæð og farþegaþotur fljúga í. Í slíkri hæð er frostið um fjörutíu stig og nánast ekkert súrefni, enda missti konan meðvitund.

Stjórnarskránefnd þarf lengri tíma en vill breyta 79. greininni

Stjórnarskrárnefnd undir formennsku Jóns Kristjánssonar hefur sent frá sér áfangaskýrslu með yfirlit yfir starf nefndarinnar undanfarin tvö ár. Nefndin segist þurfa lengri tíma til að ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni eins og að var stefnt.

Urðu ekki varir við olíuflekki úti fyrir Reykjanesi

Starfsmenn Landhelgisgæsllunnar sem fóru í eftirlitsflug á flugvél Gæslunnar, TF-SYN, í dag á svæðinu frá Garðaskaga inn að Njarðvík urðu ekki varir við neina olíuflekki á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Ráðherra fellur vegna Önnu Nicole

Innflytjendaráðherra Bahamaeyja hefur sagt af sér vegna sögusagna um að hann hafi átt í ástarsambandi við Playboy fyrirsætuna Önnu Nicole Smith. Myndir hafa birst í blöðum af þeim saman uppi í rúmi, þar sem þau voru að vísu alklædd. Ráðherrann neitar að hafa misbeitt valdi sínu til þess að veita henni búsetuleyfi á eyjunum.

Vill ekki að klámiðnaður nái fótfestu hér á landi

Geir H. Haarde forsætisráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á Alþingi í dag að hann vildi ekki að klámiðnaðurinn næði fótfestu hér á landi. Með því tók hann undir orð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, sem gerði fund fólks úr klámiðnaði hér á landi í byrjun marsmánaðar að umtalsefni í fyrirspurnartíma á Alþingi.

‘Liberals’ Reveal Link Between Terrorism, Drug Trafficking

The Icelandic Parliament saw some action last week, as representatives of the Progressive and Liberal parties argued heavily over the nature of terrorism. Spurred by MP (and recent liberal addition) Valdimar Leó Friðriksson’s claims that infamous terrorists had at times been apprehended at the Keflavík International Airport, Keflavík police authorities stated that no known terrorists had thus far been captured at the airport. In response to the statement, Progressive MP Guðjón Ólafur Jónsson called for Liberal MPs to enlighten the parliament of exactly which terrorists had been apprehended to their knowledge.

Sat sinn fyrsta fund í þingflokknum í dag

Forseti Alþingis las við upphaf þingfundar nú klukkan 15:00 tilkynningu um inngöngu Kristins H. Gunnarssonar í þingflokk Frjálslynda flokksins. Kristinn hefur skráð sig sem félaga í Frjálslynda flokknum og sat hann í dag sinn fyrsta formlega fund með þingflokknum.

Múhameð mógðaður aftur

Sádi-Arabía hefur krafist þess að hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders dragi til baka og biðjist biðjist afsökunar á ummælum sínum um kóraninn í síðustu viku. Þess er einnig krafist að hollenska ríkisstjórnin stöðvi frekari yfirlýsingar af þessu tagi. Menn velta því fyrir sér hvort nýtt teiknimyndamál sé í uppsiglingu.

Virða þarf ferða- og fundafrelsi

Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna einhliða fréttaflutnings af væntanlegum fundi fólks úr klámiðnaðnum hérlendis. Þar kemur fram að virða þurfi frelsi fólks til að ferðast og eiga fundi.

Höfnuðu beiðni Greenpeace um sýnatöku

Greenpeace-samtökin vilja rannsaka magn eiturefna í hvalaafurðum. Beiðni þeirra til Sorpurðunar Vesturlands um sýnatöku á urðunarsvæði fyrirtækisins í Fíflholtum á Mýrum var hafnað í síðustu viku. Sorpurðun Vesturlands er í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi.

Dæmd fyrir vörslu á hálfu kílói af amfetamíni

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir að hafa haft í fórum sínum yfir hálft kíló af amfetamíni og um fimm grömm af hassi. Konan játaði brot sitt en bar fyrir dómi að hún hefði einungis haft amfetamínið í sinni vörslu í innan við sólarhring.

Nýjar myndir af yfirborði Mars

Allt lítur út fyrir að vatn hafi eitt sinn runnið á yfirborði Mars á nýjum myndum frá könnunarfari NASA sem sveimar nú á sporbaug um reikistjörnuna rauðu. Myndirnar sýna að yfirborð Mars líkist nokkuð eyðimörkum suðvesturríkja Bandaríkjanna og á því eru rákir sem líkjast uppþornuðum árfarvegum.

Neitaði ásökunum um bókhaldsbrot

Skýrslutaka af Tryggva Jónssyni, sem var aðstoðarforstjóri Baugs á árunum 1998-2002, hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar svaraði Tryggvi fyrir meint bókhaldsbrot sem kveðið er á um í 11.-13. og 17. ákærulið endurákærunnar í Baugsmálinu. Hann neitaði sök.

Forseti Djíbútís kemur til landsins

Forseti Djíbútís, Ismail Omar Guelleh, er væntanlegur hingað til lands nú eftir hádegið í svokallaða vinnuferð sem stendur fram á eftirmiðdag á morgun. Með honum í för eru utanríkisráðherra Djíbútís og sendinefnd skipuð embættismönnum og sérfræðingum á sviði jarðhitanýtingar.

105 teknir fyrir hraðakstur í borginni um helgina

Hundrað og fimm ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni. Allmargir þeirra óku á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða.

Mótmæla stækkun bandarískrar herstöðvar

Tugþúsundir manna á Ítalíu taka þátt í að mótmæla fyrirhugaðri stækkun bandarískrar herstöðvar við borgina Vicensa. Ríkisstjórn Ítalíu er klofin í málinu og mótmælendur hóta að koma í veg fyrir stækkunina með því að leggjast fyrir framan jarðýturnar.

Fjölmenni á Þjóðahátíð Austurlands

Austfirðingur héldu í gær sína árlegu Þjóðahátíð, í þetta sinn í Félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin eyrsta en þar kynna erlendir Austfirðingar menningu heimalands síns.

Gengið frá kæru vegna rasks í Heiðmörk í kvöld

Skógræktarfélag Reykjavíkur gengur formlega frá kæru á hendur Kópavogsbæ vegna jarðrasks í Heiðmörk, á aukastjórnarfundi félagsins í kvöld. Verktakafélagið Klæðning verður líka kært en það hefur annast framkvæmdir fyrir bæinn án framkvæmdaleyfis og valdið talsverðu jarðraski og gróðurskemmdum.

Gæslan skoðar svæði þar sem olíublautir fuglar hafa fundist

Í undirbúningi er að Landhelgisgæslan skoði í dag úr lofti hafsvæðið úti af Garðsskaga á Reykjanesi eftir að olíublautir sjófuglar fundust þar í hundraðatali um helgina. Umhverfisstofnun er að gera ráðstafanir til að fanga fugl til rannsóknar en ljóst er að olía hefur ekki borist upp í fjörur.

Bolla, bolla, bolla

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að bolludagurinn er í dag. Fréttastofa Stöðvar 2 fór á stúfana og leitaði að bollum.

Handtekinn vegna bréfsprengjuárása

Breska lögreglan handtók í morgun karlmann á þrítugsaldri sem grunaður er um aðild að bréfasprengjuárásum víða á Bretlandseyjum fyrr í mánuðinum. Að sögn breskra miðla var maðurinn handtekinn í Cambridgeshire.

Pólverjar og Tékkar segja já við loftvarnarkerfi

Pólland og Tékkland samþykkja líklega beiðni Bandaríkjamanna um að fá að setja upp loftvarnarkerfi á landsvæðum ríkjanna. Forsætisráðherrar landanna skýrðu frá þessu á sameiginlegum fréttamannafundi í dag.

Engin áþreifanleg niðurstaða

Engin áþreifanleg niðurstaða fékkst eftir fund leiðtoga Ísraels og Palestínumanna með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Jerúsalem í morgun. Rice segir viðræðum verða haldið áfram. Markmið fundarins var að koma friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs aftur af stað.

Sætir geðrannsókn vegna íkveikju

Kona er grunuð um að hafa kveikt í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gærkvöldi og með því stofnað lífi og limum samborgara sinna í hættu. Konan hafði komið sér út og yfir í aðra íbúð en lét ekki vita af eldinum. Hún var í annarlegu ástandi þegar hún fannst og verður gert að gangast undir geðrannsókn.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnaklámsmynda

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnarklámsmynda. Myndirnar fundust í tveimur tölvum í eigu mannsins eftir að lögregla hafði gert húsleit hjá honum í september í fyrra.

Átök innan Sjúkraliðafélags Íslands

Átök eru innan Sjúkraliðafélags Íslands og hefur félagið klofnað í tvær fylkingar vegna afstöðu til nýrrar námsleiðar, sem gefur færi á styttra námi til sjúkraliða. Vegna málsins stefnir hópur óánægðra sjúkraliða að því að fella Kristínu Á. Guðmundsdóttur, sem stýrt hefur félaginu í rúma tvo áratugi, úr formannsembættinu.

Rússar fresta byggingu kjarnorkuvers í Íran

Rússar ætla sér að fresta byggingu á kjarnorkuveri fyrir Írana. Ákveðið var að fresta henni þar sem Íranar hafa ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar vegna versins. Þetta sagði starfsmaður innan rússnesku kjarnorkumálastofnunarinnar í dag.

Sjá næstu 50 fréttir