Fleiri fréttir Þrennt í gæsluvarðhaldi vegna ýmissa brota Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði í dag þrjú ungmenni í gæsluvarðhald til föstudagsins 2. febrúar en þau voru handtekin á Akureyri í gær ásamt tveimur öðrum grunuðum um bílþjófnaði, innbrot og fjársvik með greiðslukortum. 30.1.2007 16:07 DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. 30.1.2007 16:02 Skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær hættulegar líkamsárásir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær stórfelldar líkamsárásir og tvo karlmenn í fjögurra og fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að annarri þeirra. 30.1.2007 15:41 Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. 30.1.2007 15:36 Rafmagnslaust í allan dag á Stokkseyri og Eyrarbakka Rafmagnslaust hefur verið á Stokkseyri og Eyrarbakka í frá því snemma í morgun eftir að háspennustrengur var grafinn í sundur við vegaframkvæmdir í nýju hverfi á Selfossi. 30.1.2007 15:13 Eina örvhenta skytta Dana sögð hafa veikst Danska landsliðið sem mætir því íslenska í kvöld varð fyrir töluverðu áfalli í dag þegar ljóst varð að eina örvhenta skytta liðsins, Per Leegård, gæti ekki verið með vegna veikinda. Þetta þýðir hins vegar að Íslendingurinn í danska landsliðinu, Hans Óttar Lindberg, kemur inn í hópinn en hann spilar í hægra horninu. 30.1.2007 14:59 Kviknaði í bát í Slippnum í Reykjavíkurhöfn Einn bíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Slippnum við Reykjavíkurhöfn nú á þriðja tímanum eftir að tilkynnt var um að eldur hefði komið upp í skipi sem þar er í viðgerð. 30.1.2007 14:45 Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. 30.1.2007 14:39 Þenslan kostar fjölskyldur 21 þúsund á mánuði Tekist var á um efnahagsmálin í landinu í utandagskrárumræðu á Alþingi og ríkisstjórnin sögð bera ábyrgð á auknum skuldum heimilanna og hærri vöxtum með efnahagsstjórn sinni. Stjórnarandstaðan var hins vegar sökuð um hræðsluáróður. 30.1.2007 14:30 Netníðingur fékk níu ár 30.1.2007 14:15 Sagðist hafa stigið óvart á bensíngjöfina Lögreglan á höfuborgarsvæðinu stöðvaði för nítján ára pilts í Ártúnsbrekkunni í nótt en bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða í brekkunni. Pilturinn gaf þá skýringu á akstrinum að hann hefði stigið óvart á bensíngjöfina þegar sími hans féll á milli sætanna og þannig litið af hraðamælinum. 30.1.2007 13:52 Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. 30.1.2007 13:44 Vilja aflétta banni af Palestínumönnum 30.1.2007 13:28
Sjá næstu 50 fréttir
Þrennt í gæsluvarðhaldi vegna ýmissa brota Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði í dag þrjú ungmenni í gæsluvarðhald til föstudagsins 2. febrúar en þau voru handtekin á Akureyri í gær ásamt tveimur öðrum grunuðum um bílþjófnaði, innbrot og fjársvik með greiðslukortum. 30.1.2007 16:07
DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. 30.1.2007 16:02
Skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær hættulegar líkamsárásir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær stórfelldar líkamsárásir og tvo karlmenn í fjögurra og fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild að annarri þeirra. 30.1.2007 15:41
Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. 30.1.2007 15:36
Rafmagnslaust í allan dag á Stokkseyri og Eyrarbakka Rafmagnslaust hefur verið á Stokkseyri og Eyrarbakka í frá því snemma í morgun eftir að háspennustrengur var grafinn í sundur við vegaframkvæmdir í nýju hverfi á Selfossi. 30.1.2007 15:13
Eina örvhenta skytta Dana sögð hafa veikst Danska landsliðið sem mætir því íslenska í kvöld varð fyrir töluverðu áfalli í dag þegar ljóst varð að eina örvhenta skytta liðsins, Per Leegård, gæti ekki verið með vegna veikinda. Þetta þýðir hins vegar að Íslendingurinn í danska landsliðinu, Hans Óttar Lindberg, kemur inn í hópinn en hann spilar í hægra horninu. 30.1.2007 14:59
Kviknaði í bát í Slippnum í Reykjavíkurhöfn Einn bíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Slippnum við Reykjavíkurhöfn nú á þriðja tímanum eftir að tilkynnt var um að eldur hefði komið upp í skipi sem þar er í viðgerð. 30.1.2007 14:45
Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. 30.1.2007 14:39
Þenslan kostar fjölskyldur 21 þúsund á mánuði Tekist var á um efnahagsmálin í landinu í utandagskrárumræðu á Alþingi og ríkisstjórnin sögð bera ábyrgð á auknum skuldum heimilanna og hærri vöxtum með efnahagsstjórn sinni. Stjórnarandstaðan var hins vegar sökuð um hræðsluáróður. 30.1.2007 14:30
Sagðist hafa stigið óvart á bensíngjöfina Lögreglan á höfuborgarsvæðinu stöðvaði för nítján ára pilts í Ártúnsbrekkunni í nótt en bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða í brekkunni. Pilturinn gaf þá skýringu á akstrinum að hann hefði stigið óvart á bensíngjöfina þegar sími hans féll á milli sætanna og þannig litið af hraðamælinum. 30.1.2007 13:52
Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. 30.1.2007 13:44
Krefst skýringa á skipun í stjórn Norræna blaðamannaskólans Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, hefur sent menntamálaáðuneytinu harðort bréf þar sem krafist er skýringa á því að ráðuneytið hafi hunsað tilnefningar félagsins um fulltrúa í stjórn Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. 30.1.2007 13:27
Tók ekki linsurnar úr í heilt ár Fjarlægja þurfti augnlinsur úr kínverskum manni með uppskurði eftir að hann hafði þær í augunum í heilt ár. Liu sem er fertugur fékk linsur fyrir ári síðan. Hann tók þær ekki úr augunum, því honum fannst það erfitt. Þegar hann fann fyrir óþægindum notaði hann augndropa. Fyrir stuttu fannst honum sjónin vera að versna og brá þá á það ráð að kaupa nýjar linsur, sem hann setti yfir þær gömlu. 30.1.2007 13:11
Meira byggt upp á Akureyri en eftirspurn hafi verið eftir Formaður Félags byggingarmanna í Eyjafirði telur að meira hafi verið byggt af húsum á Akureyri upp á síðkastið en svari eftirspurn. Bærinn hafi ekki brugðist nógu hratt við breyttri samkeppni. 30.1.2007 12:45
Vantar helming upp á friðargæslulið í Sómalíu Fulltrúar ríkja Afríkusambandsins reyndu í dag að safna í friðargæslulið til að taka við af herliði Eþíópíumanna sem hjálpaði stjórnarher Sómalíu við að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Markmiðið er að fá að lágmarki 8.000 hermenn til að gæta stöðugleikans í landinu en enn vantar helminginn upp á að það markmið náist. 30.1.2007 12:30
Stefnt að áframhaldandi vexti hjá Kaupþingi Kaupþing skilaði methagnaði á síðasta ári eða yfir áttatíu og fimm milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eigin fjár hjá bankanum var yfir fjörutíu prósent. Stefnt er að áframhaldandi vexti á þessu ári. 30.1.2007 12:19
Aðalritari SÞ boðar til fundar um umhverfismál Ban ki-moon nýskipaður aðalritari Sameinuðu þjóðanna leggur nú drög að neyðarfundi í september á þessu ári. Þar mun helstu þjóðhöfðingjum heims verða stefnt saman til að ræða þau umhverfisvandmál sem steðja að heimurinn og leita leiða til að fylgja ákvæðum Kyoto-bókunnarinnar um hækkum hitastigs jarðar. 30.1.2007 12:08
Borgarstjórnarflokkur frjálslyndra verður óháður Borgarstjórnarflokkur frjálslyndra verður að öllum líkindum óháður eftir að Margrét Sverrisdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins og varaborgarfulltrúi, gekk úr flokknum í gær. Margrét segist reikna fastlega með því að Ólafur F. Magnússon sigli í kjölfar hennar en hann hefur verið hennar helsti stuðningsmaður. 30.1.2007 12:08
Högnuðust um 650 milljónir á dag Stóru bankarnir þrír högnuðust um 650 milljónir króna hvern einasta virkan dag í fyrra sem nægir til að kaupa upp allt íbúðarhúsnæði á Akureyri á einu bretti. Hluthafarnir fá um þrjátíu milljarða í arð af hlutafé sínu í bönkunum inn á reikninga sína í mars. 30.1.2007 12:02
Íslendingurinn ekki með gegn Íslendingum Hans Óttar Lindberg, Íslendingurinn í danska landsliðinu í handknattleik, og leikstjórnandinn Claus Möller Jakobsen verða ekki í danska landsliðshópnum í kvöld sem mætir Íslendingum í Hamborg. 30.1.2007 11:54
"Bleika mjólkurvandamálið" leyst Bónda á Jersey í Bretlandi brá heldur betur í brún þegar kýrnar hans fóru allt í einu að framleiða bleika mjólk. Í ljós kom að eftir að bóndinn Peter Houghuez fór að gefa þeim gulrætur með heyinu, litaðist mjólkin. Peter brá þá á það ráð að gefa þeim hvítar gulrætur í staðinn sem hann keypti frá Frakklandi. Í dagblaðinu Metro sagði bóndinn að kýrnar væru "brjálaðar í gulrætur." 30.1.2007 11:50
Níu ára sjónvarpskokkur í Kína Níu ára gömul stúlka frá Shanghai í Kína er með sinn eigin matreiðsluþátt í sjónvarpi. Shi Yulan er auk þess að skrifa sína fyrstu matreiðslubók, en samkvæmt dagblaðinu Qianjiang Evening News hefur hún unnið í eldhúsinu heima hjá sér frá því hún gat staðið í lappirnar. Shi segist hafa hjálpað mömmu sinni í eldhúsinu frá því hún var tveggja ára með því að þvo leirtau. 30.1.2007 11:39
Grýtti leigubíl vegna deilna um fargjald Lögregla handtók um helgina karlmann sem grýtti steini í gegnum rúðu leigubíls í Breiðholti. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni kom til ósættis milli hans og leigubílstjórans þegar kom að því að greiða fargjaldið. 30.1.2007 11:31
Manchester fær spilavítið Manchester hefur unnið keppnina um að fá að reisa fyrsta stóra spilavítið í Bretlandi, í anda spilaborgarinnar Las Vegas. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir gímaldið Þúsaldarhöllina á suðurbakka Thames-árinnar í London og Blackpool-bæ sem einnig vildu hýsa spilavélar og peningaplokkara. 30.1.2007 11:27
Ólafur Ragnar fundar með Bill Gates Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundar í dag með Bill Gates, stofnanda og stjórnarformanni Microsoft hugbúnaðarfyrirtækisins, í Edinborg og flutti erindi á leiðtogaráðstefnu sem haldin er í skoska þinginu. Forsetinn ræddi um tækifæri sem smáar þjóðir á borð við Íslendinga geta skapað sér með markvissri nýtingu fjarskipta- og upplýsingatækni og sagði Ísland kjörinn vettvang fyrir Microsoft og önnur öflug hugbúnaðarfyrirtæki til að þróa nýjan hugbúnað og tækni. 30.1.2007 11:12
Svíar opna sýndarsendiráð Svíþjóð verður fyrsta landið til að opna sýndarsendiráð í tölvuleiknum Second Life. Nokkur stórfyrirtæki hafa þegar opnað útibú í sýndarheimnum þar sem rúmlega þrjár milljónir spilara eyða stórum hluta af sínum frítíma, eða jafnvel öllum sínum tíma. 30.1.2007 11:08
Bjartsýnin hættulega mikil fyrir leikinn gegn Íslendingum Lars Christiansen, einn reyndasti leikmaður danska landsliðsins í handknattleik, varar liðsfélaga sína og dönsku þjóðina við of mikilli bjartsýni fyrir leikinn við Ísland. Undir það tekur greinarhöfundur í Politiken sem segir bjartsýnina hættulega mikla fyrir leikinn. 30.1.2007 10:41
Umferðarljós óvirk eftir að ekið var á þau Ekið var á umferðarljós á Reykjanesbraut við Arnarnesveg á ellefta tímanum í kvöld. Ljósin eru óvirk og óvíst hvort þau komist aftur í gangið í kvöld. Ekki urðu nein slys á fólki. 29.1.2007 23:43
Varaþingmaður segir sig úr Frjálslynda flokknum Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, varaþingmaður Frjálslynda flokksins, hefur sagt sig úr flokknum. Í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í kvöld segir Sigurlín að hún sjái sér engan vegin fært að vinna með núverandi valdhöfum í flokknum í ljósi þess sem á undan hefur gengið. 29.1.2007 22:48
Hamas og Fatha semja um vopnahlé Meðlimir Hamas-samtakanna og Fatha-hreyfingarinnar í Palestínu hafa samþykkt vopnahlé. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir Mahmoud al-Zahar, utanríkisráðherra Palestínu, en fylkingarnar ætla að leggja niður vopn sín klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. 29.1.2007 22:06
Foreldrar reyna að tryggja öryggi barna á Netinu Ekki þykir ástæða til að foreldrar rífi tölvur úr sambandi og sendi börn sín út í brennó til að tryggja öryggi þeirra, segir verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla. Hann leggur til að foreldrar kynni sér heilræði SAFT verkefnisins um örugga netnotkun. 29.1.2007 21:40
Ekki reynt að bola Margréti burt segir Guðjón Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir miður að Margrét hafi tekið þá ákvörðun að hætta í flokknum. Hann segir ekki rétt að reynt hafi verið að bola henni burt úr flokknum, hún hafi aðeins orðið undir í varaformannskjöri. 29.1.2007 21:19
Fasteignasala hrundi á Akureyri í desember Hrun varð í sölu fasteigna á Akureyri í desember. Fasteignasalar segja að hægari fjölgun íbúa og breyttu lánaumhverfi sé um að kenna. 29.1.2007 21:15
Margrét gengur úr Frjálslynda flokknum Margrét Sverrisdóttir ætlar að segja sig úr Frjálslynda flokknum. Í yfirlýsingu sem hún sendi út frá sér í kvöld, eftir fund með stuðningsmönnum sínum, segist hún þó ekki hætt í pólitík. Hún skilar inn formlegri úrsögn úr flokknum á morgun. 29.1.2007 20:29
Óskaði ekki eftir að fulltrúi yrði viðstaddur Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, vill koma því á framfæri að Margrét Sverrisdóttir óskaði ekki eftir því að fulltrúi hennar yrði viðstaddur endurtalningu vegna kosningar til varaformanns Frjálslynda flokksins um helgina. Hefði hún óskað eftir því hefði það verið sjálfsagt mál. 29.1.2007 20:21
Næst stærsta lögreglulið landsins á Suðurnesjum Sameinað lögreglulið Keflavíkurflugvallar og Keflavíkur er nú orðið næst stærsta lögreglulið landsins með yfir 220 starfsmenn. Eitt helsta markmiðið er að auka þjónustu við íbúana. 29.1.2007 20:15
Stutt flugbraut skapar aukakostnað Flugfélagið Norðanflug sér fram á verulegan aukakostnað við fraktflug til Belgíu vegna þess hve flugbrautin á Akureyri er stutt. Að óbreyttu þarf hver fulllestuð vél að millilenda í Keflavík á leiðinni út. 29.1.2007 20:00
Brotist inn í sumarbústað í Grímsneshreppi Brotist var inn í sumarbústað um helgina. Bústaðurinn er í byggingu í landi Mýrarkots í Grímsneshreppi. Stolið var tveimur borvélum, hjólasög, nagara og slípirokk. 29.1.2007 19:32
Kærir vefsíðuna barnarperrar.is Maður, sem var sagður barnaníðingur á vefsíðunni barnaperrar.is, hefur kært aðstandendur síðunnar til lögreglu. Hann segist alsaklaus en mynd af honum var birt á síðunni. Lögregla varar fólk við að leggja gildrur fyrir barnaníðinga á Netinu. 29.1.2007 19:25
Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. 29.1.2007 19:02
Vita deili á öllum fjórum Þrír menn, af þeim fjórum sem gengu í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar þeir héldu sig vera að fara á fund þrettán ára stúlku, hafa gefið sig fram við lögreglu, sem telur sig einnig vita hver sá fjórði er. 29.1.2007 18:50
Margrét á fundi með stuðningsmönnum sínum Margrét Sverrisdóttir situr nú á fundi með nánustu stuðningsmönnum sínum innan Frjálslynda flokksins og íhugar framtíð sína í pólitík eftir að hafa tapað fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni í varaformannskjöri um helgina. 29.1.2007 18:45
Ómar og Jón Baldvin ræða sérstakt framboð fyrir Alþingiskosningar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur enga trú á því að Jón Baldvin Hannibalsson geri alvöru í því að bjóða fram nýjan lista í Alþingiskosningum. Hann skilji manna best að menn megi ekki stökkva frá borði þrátt fyrir ágjöf. 29.1.2007 18:37