Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ETA lýsir yfir ábyrgð á tilræði á Madrídarflugvelli Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, segjast bera ábyrgð á bílsprengju sem sprakk á Madrídarflugvelli fyrir tíu dögum þar sem tveir menn létust. Samtökin birtu yfirýsingu þessa efnis í dagblaðinu Gara en þar birtast jafnan sjónarmið ETA. 9.1.2007 13:28
Argóarflísin gerir það gott í Danmörku Argóarflísin, bók rithöfundarins SJÓN, sem kom út í fyrra, hefur fengið lofsamlega dóma í Danmörku og verið valin ein af bókum ársins í einu dagblaða landsins. 9.1.2007 13:16
Hlýjasta ár sögunnar Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnir á morgun umfangsmiklar tillögur um framtíðarskipan orkumála innan sambandsins sem verður liður í baráttuáætlun sambandsins gegn loftslagsbreytingum. Því er spáð að árið 2007 verði það hlýjasta í sögunni. 9.1.2007 13:00
Ráðist á þorp í Sómalíu Bandaríkjaher gerði í nótt loftárásir á þorp í Sómalíu þar sem talið var að liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna hefðust við. Vitni segja fjölmarga almenna borgara hafa fallið í árásunum. Bandaríkjamenn hafa ekki viljað tjá sig um aðgerðir næturinnar. Íslamskir uppreisnarmenn, sem hefur verið líkt við Talíbana og Bandaríkjamenn telja hafa tengsl við al-Kaída hryðjuverkasamtökin, náðu stórum hluta Sómalíu á sitt vald í fyrra. Skömmu fyrir jól réðust eþíópískar hersveitir inn í landið með stuðningi sómalískra stjórnvalda og hröktu þá á flótta. Það var svo í morgun sem fréttir bárust af árás á þorpið Badel þar sem talið var að hryðjuverkamenn úr röðum al-Kaída hefðust við. Bandarískar hersveitir sendu í nótt af stað þungvopnaða, fjögurra hreyfla herflugvél til árása. Vél sem þessi eirir engu á stóru svæði þegar vopnum hennar er beytt. Fulltrúar sómalískra stjórnvalda segja marga hafa fallið. Bandaríkjamenn hafa ekki tjáð sig um árás næturinnar en búist var við tilkynningu frá varnarmálaráðuneytinu síðar í dag. Árásin í nótt er fyrsta opinbera hernaðaraðgerð Bandaríkjamanna í Sómalíu frá árinu 1994 þegar átján bandarískir hermenn féllu í höfuðborginni, Mogadishu. Þorpið sem ráðist var á í nótt er nærri landamærunum að Kenýa og sagt síðasta vígi uppreisnarmanna í Sómalíu. Í gær var greint frá því að eþíópískar og sómalískar hersveitir væru nærri því að leggja það undir sig. Ætla má að það reynist auðvelt eftir aðgerðir næturinnar. Abdullahi Yusuf, forseti Sómalíu, segist styðja aðgerðir Bandaríkjamanna. Þeir hafi rétt til að ráðast gegn hryðjuverkamönnum sem beri ábyrgð á árásum gegn sendiráðum þeirra í Kenýa og Tansaníu. Grunur leikur á að einhverjir þeirra sem fallið hafi í nótt hafi átt þátt í þeim árásum árið 1998 sem kostuðu 250 manns lífið. 9.1.2007 12:45
Matvælaverð á Íslandi hæst í heimi Matvælaverð hér á landi er að öllum líkindum hið hæsta í heimi og það sama á við heildarútgjöld heimilanna. 9.1.2007 12:30
Handtekinn grunaður um vegabréfafölsun Erlendur karlmaður var í gær handtekinn á Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann er grunaður um vegabréfafölsun. Víkurfréttir greina frá þessu og jafnframt að málið sé nokkuð umfagnsmikið. 9.1.2007 12:09
Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun. 9.1.2007 12:05
Varað við barnaníðingi á Akureyri Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki. 9.1.2007 11:56
Vestfirðingum fækkaði fyrri hluta 2006 Alls fluttust 202 einstaklingar frá Vestfjörðum fyrstu 6 mánuði ársins 2006 en 163 fluttu til landsfjórðungsins á sama tíma. Fækkunin er því 39 manns. Flestir, sem fóru, fluttust til höfuðborgarsvæðisins, eða 123. Á sama tíma fluttust 163 til Vestfjarða, einnig flestir af höfuðborgarsvæðinu eða 59 einstaklingar. Sagt er frá þessu í blaðinu Bæjarins Besta í dag, en tölurnar koma frá Hagstofu Íslands. 9.1.2007 11:42
Snarpur skjálfti í Norðursjó á sunnudag Öflugur jarðskjálfti varð í Norðursjó aðfaranótt sunnudagsins og fannst víða á vesturströnd Noregs. Fram kemur vef Aftenposten að skjálftinn hafi verið 4,8 á Richter og er hann sá stærsti sem mælst hefur í Norðursjó í nærri tuttugu ár. 9.1.2007 11:36
Halastjarnan McNaught sást vel í morgun Halastjarnan McNaught sást vel á austurhimninum í morgun enda heiðskír í höfuðborginni. McNaught, eða C/2006 P1, er á leið gegnum innri hluta sólkerfisins og þegar hún fer næst sólu verður hún helmingi nær sólu en Merkúr, sem er sú pláneta sólkerfisins, sem næst er sólu. 9.1.2007 11:08
Fjarskiptaumferð um CANTAT-3 stöðvuð í á aðra viku Öll fjarskiptaumferð um CANTAT-3 sæstrenginn stöðvast frá og með næstkomandi föstudegi til 22. janúar vegna viðgerðar. Þau fyrirtæki og stofnanir sem nota CANTAT-3 eingöngu gætu lent í vandræðum ef þau gera ekki ráðstafanir. 9.1.2007 11:01
Starfsemi Borgarplasts í Borgarnesi lokað Ákveðið hefur verið að flytja alla starfsemi framleiðslufyrirtækisins Borgarplasts í Mosfellsbæ. Þetta hefur þá þýðingu að starfsemi fyrirtækisins í Borgarnesi verður lokað. Öllum starfsmönnum fyrirtækisins í Borgarnesi var boðið starf í nýjum höfuðstöðvum í Mosfellsbæ en einungis hluti þeirra nýtti sér það. 9.1.2007 10:54
Fögnuður undirbúinn á Akranesi Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóranum, Gísla S. Einarssyni, að undirbúa þau tímamót þegar bæjarbúar verða sex þúsund. Fréttavefur Skessuhorns greinir frá þessu en talið er að þetta geti orðið síðar í þessum mánuði. 9.1.2007 10:39
20 þúsund hermenn í viðbót til Íraks George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að fjölga í herliði Bandaríkjanna um 20 þúsund hermenn en þetta fullyrti öldungardeildarþingmaður sem hitti forsetann í kvöld. Bush sagði þingmanninum að áætlunin um að auka fjölda hermanna væri væri komin frá forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki. 8.1.2007 23:40
3,7 milljónir flóttamanna flúið heimili sín í Írak Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að allt að 3,7 milljónir manna hefðu flúið heimili sín í Írak vegna ástandsins sem þar ríkir. Talið er að um 50 þúsund bætist í hópinn á hverjum mánuði. Konur hafa einnig neyðst út í vændi og frásagnir af þrælkunarvinnu barna verða háværari. 8.1.2007 23:29
Ekki fjölgað í breska herliðinu í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar sér ekki að auka við fjölda breskra hermanna í Írak en búist er við því að George W. Bush, Bandaríkjaforseti, muni tilkynna mikla fjölgun í bandaríska herliðinu í Írak í nótt. Talið er að Bush ætli að auka um allt að 20 þúsund hermenn. 8.1.2007 22:59
30 ára fangelsi fyrir sprengjutilræði Yfirvöld í New York dæmdu í dag pakistanskan innflytjanda í 30 ára fangelsi fyrir að ætla sér að sprengja upp neðanjarðarlestarstöð í Manhattan í New York. 8.1.2007 22:35
Hryðjuverkamenn vara fólk í Alsír við Leiðtogi hryðjuverkahóps í Alsír gaf í dag út viðvörun og sagði að Frakkar í Alsír væru í hættu vegna yfirvofandi sprengjuárása. Sagði hann ennfremur að þeir væru komnir með vopn og sprengiefni og biðu aðeins fyrirmæla frá Osama Bin Laden, leiðtoga al-Kaída samtakanna. 8.1.2007 22:19
Nektarpartý í bandarískum háskólum Bandarískir nemendur í bestu háskólum landsins hafa tekið sig til, gert uppreisn gegn kreddum og hefðum í skólunum og ákveðið að kasta af sér byrðum þjóðfélagsins, sem og fötum sínum, og halda nektarpartý. 8.1.2007 21:54
Kviknaði í út frá potti á Húsavík Slökkvilið Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi í bænum á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í eldhúsinnréttingu út frá potti og var talsverður reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir eru urðu vegna reyks og sóts. Sameign hússins slapp þó nær alveg við skemmdir. 8.1.2007 21:34
Orðið „fáviti“ fjarlægt úr stjórnarskrá Í New Jersey gæti orðið „fáviti“ bráðlega verið fjarlægt úr stjórnarskrá ríkisins til þess að fólk sem er andlega fatlað geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn og kosið. Lögin sem banna að „fávitar“ kjósi voru sett fyrir meira en 150 árum síðan til þess að koma í veg fyrir að þeir sem væru andlega fatlaðir gætu kosið. 8.1.2007 21:15
Áhersla á samkomulag í Doha Að ná góðum árangri í Doha-viðræðum Alþjóðaviðskiptasambandsins er forgangsatriði bæði Evrópusambandsins og Bandaríkjanna en frá þessu skýrði Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 8.1.2007 21:00
Þjóðvæðing fyrirtækja hafin í Venesúela Forseti Venesúela, Hugo Chavez, biðlaði í kvöld til þingsins í landinu og bað það um að veita honum sérstök völd til þess að geta þjóðvætt ýmis fyrirtæki. Meðal þeirra sem þjóðvæða á er fjölmiðlafyrirtækið CANTV sem og einhverjir hlutar olíuverkefna á Orinoco svæðinu. 8.1.2007 20:45
Sjö á bráðamóttöku vegna gaseitrunnar Gasið sem angraði íbúa New York borgar í dag varð til þess að sjö manns voru flutt á bráðadeild með einkenni sem hlutust af gasinu. Ekki er vitað um uppruna gassins en það hefur verið talið harmlaust hingað til. 8.1.2007 20:30
Gullæði í Brasilíu Þúsundir fátækra Brasilíumanna streyma nú, vopnaðir skóflum og vélsögum, á nýfundið gullsvæði djúpt í Amazon frumskóginum og óttast yfirvöld umhverfisslys. Einnig eru áhyggjur af því að heilsu fólks verði stefnt í hættu þar sem aðbúnaður á svæðinu er nær enginn. Fyrir aðeins nokkrum vikum fundust gullæðar á yfirborðinu á svæðinu og þegar fréttir fóru að berast af gullfundinum streymdu vongóðir á staðinn. 8.1.2007 20:15
Sprengjusveit í Miami kölluð út Sprengjusveit lögreglunnar í Miami í Bandaríkjunum var kölluð út í dag til þess að rannsaka grunsamlegan hlut sem fannst á hafnarsvæði borgarinnar. Verið var að afferma hlutinn úr vörubíl á svæðinu þegar leitartæki hafnarvarða fundu eitthvað óeðlilegt. 8.1.2007 20:11
SÞ ætla að auka þátt friðargæslu Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) verða að styrkja sig til þess að geta tekist á við þær fjölmörgu ógnir sem steðja að friði á komandi ári en þetta sagði Ban Ki-moon á fundi öryggisráðsins í dag. 8.1.2007 19:45
David Bowie sextugur í dag Hann kom til jarðar sem Ziggy Stardust, fór í ýmis gervi eftir það og söng meðal annars um Starman og Major Tom. Söngferillinn spannar rúma fjóra áratugi. Hann heitir David Bowie og er sextugur í dag. 8.1.2007 19:30
Tveir dvergkafbátar seldir Íslenska hátæknifyrirtækið Hafmynd hefur samið við tvo kaupendur um sölu á dvergkafbát sem fyrirtækið hefur framleitt. Samanlagt kaupverð er tæpar hundrað milljónir. Annar báturinn fer til Ástralíu en ekki fæst gefið upp að sinni hvert hinn fer. Vonast er til að fimm til átta kafbátar til viðbótar verði seldir síðar á árinu. 8.1.2007 19:15
Icelandair tilnefnt til alþjóðlegra vefverðlauna Icelandair hefur verið útnefnt til alþjóðlegu „Technology For Marketing“ verðlaunanna fyrir best hannaða vefsvæði ársins, eða „Best Website Design of the Year“ eins og það heitir á frummálinu. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í London þann 6. febrúar næstkomandi. Icelandair er eina íslenska fyrirtækið sem hlotið hefur útnefningu til verðlaunanna en keppt er í 12 flokkum. Icelandair keppir í sínum flokki við fyrirtækin Orange, Dabs, Odeon og Xchange Wales. 8.1.2007 19:11
Dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir aðild að árásunum á New York Þýskir dómstólar hafa dæmt vin flugræningjanna, sem tóku þátt í árásunum á New York þann 11. september árið 2001, í 15 ára fangelsi fyrir aðild að fjöldamorði. 8.1.2007 18:49
Telja ekkert styðja sögu landgönguliða Bandarískir rannsóknarmenn telja ekkert styðja frásögn bandarískra landgönguliða af aðdraganda fjöldamorða í bænum Haditha í Írak fyrir rúmu ári. Ákærur í málinu voru birtar skömmu fyrir jól og er óttast að málið muni auka enn á ófriðinn í Írak eftir því sem meira kemur fram í dagsljósið. 8.1.2007 18:45
Bætur skertar eða felldar niður að óbreyttu Lífeyrisbætur ríflega 2000 öryrkja eiga að falla niður eða lækka, að óbreyttu, um mánaðarmótin. Lífeyrissjóðir frestuðu þessum aðgerðum í október en sá frestur rennur út fyrsta febrúar. Í desember var því beint til fulltrúa fjórtán lífeyrissjóða, í stjórn Greiðslustofu lífeyrissjóðanna, að fresta skerðingum fram til sumarsins en niðurstaða liggur enn ekki fyrir. Öryrkjabandalagið telur hins vegar að félagsmenn þess þurfi ekkert að óttast. 8.1.2007 18:39
Jólatrén hirt fram á föstudag Hátt í áttatíu tonn af jólatrjám fara upp á pallbíla framkvæmdasviðs borgarinnar þessa vikuna. Starfsmenn borgarinnar verða að fram á föstudag við að fjarlægja jólatrén. 8.1.2007 18:32
Áhætta í evrulaunum Launþegar taka mikla áhættu með því að þiggja laun í evrum, segir aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann telur hverfandi líkur á að evran laumi sér bakdyramegin inn í íslenskt efnahagslíf. Hún verði aldrei tekin upp nema um það ríki pólitísk sátt. 8.1.2007 18:30
Kínverska lögreglan í átökum við hryðjuverkamenn Kínverska lögreglan varð 18 manns að bana í dag þegar hún gerði árásir á búðir hryðjuverkamanna í Xinjiang, sem er sjálfstjórnarhérað í vesturhluta Kína. Árásin átti sér stað á föstudaginn og var fyrst sagt frá henni í dag. Hryðjuverkamennirnir eru af tyrkneskum uppruna og kínversk yfirvöld segja vera aðskilnaðarsinna. 8.1.2007 17:47
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Laugavegar og Nóatúns um klukkan fimm í dag. Lögregla og sjúkralið eru enn á vettvangi og ekki fást upplýsingar um líðan vegfarandans að svo stöddu. 8.1.2007 17:20
Spilakassana í Örfirisey Spilakössum í borginni hefur fjölgað um meira en helming á tveimur árum. Borgarstjóri vill að fólk spyrji sig hvar eðlilegt sé að slík tæki séu staðsett og stingur sjálfur upp á því að þeim verði fundinn staður í Örfirisey. 8.1.2007 17:08
Hjartavernd tekur í notkun nýjan hjartarita Hjartavernd hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn hjartarita sem keyptur var fyrir áheitafé sem safnaðist í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ágúst síðastliðnum. 8.1.2007 17:04
Einstakt afrek Bandarísk kona synti tæpa tvo kílómetra í jökulköldu hafinu við Suðurheimskautið. Þetta þykir einstakt afrek og er aðeins vitað um einn annan mann þolir slíkan kulda. Það er Guðlaugur Friðþórsson sem synti um fimm kílómetra að landi eftir skipskaða austur af Heimaey fyrir meira en tuttugu og tveimur árum. Og enn standa vísindamenn á gati yfir þessu afreki. 8.1.2007 17:01
Bush kynnir Íraksáætlun sína á miðvikudag George Bush Bandaríkjaforseti ávarpar bandarísku þjóðina klukkan níu að austurstrandartíma á miðvikudag, eða klukkan tvö að nóttu að íslenskum tíma, þar sem hann kynnir nýja áætlun sína í Írak og í baráttunni gegn hryðjuverkum. 8.1.2007 16:54
Miðborg Austin í Texas lokað vegna mikils fugladauða Miðborg Austin í Texas var lokað í morgun vegna þess að þar hafa fundist tugir dauðra fugla. Þúsundir manna komust ekki til vinnu sinnar af þessum sökum. Embættismenn segja að þetta sé gert í varúðarskyni, en enginn hefur hugmynd um hversvegna fuglarnir drápust. 8.1.2007 16:49
Bilun í aðveitustreng olli rafmagnsleysi á Akranesi Skömmu eftir hádegi í gær varð bilun í aðveitustreng að dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur við Smiðjuvelli á Akranesi. Við það sló út rafmagni á öllu Akranesi um skamma stund. Á meðan starfsmenn Orkuveitunnar unnu við að komast fyrir bilunina, eða í um eina klukkustund, var hins vegar rafmagnslaust á neðri hluta Skagans. Skessuhorn skýrði frá þessu í dag. 8.1.2007 16:36
Innfluttir þriðjungur Hollendinga 2050 Um það bil þriðjungur hollensku þjóðarinnar verður af erlendu bergi brotinn árið 2050, en í dag er einn af hverjum fimm íbúum innflytjandi eða af innflytjendum kominn. Hollenska hagstofan býst við því að á þessu tímabili fjölgi landsmönnum um 400 þúsund, upp í 16,8 milljónir, mest vegna innflytjenda frá löndum eins og Tyrklandi, Marokkó og Surinam. 8.1.2007 16:25