Fleiri
Beckett inspires dance 7.12.2006 13:26 Sveinki meðal fiskanna í sædýrasafni í Tókýó Fiskarnir í einu af sædýrasöfnum Tókýóborgar fengu skemmtilega heimsókn í morgun. Þar var á ferðinni sjálfur jólasveinninn sem hafði brugðið sér í kafarabúning til að vitja þeirra. 7.12.2006 13:15 Skating Rink on Ingólfstorg 7.12.2006 13:03 Framkvæmdastjórn ESB segir framlag Tyrkja jákvætt Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir þá ákvörðun tyrknesku ríkisstjórnarinnar um að opna hafnir sínar á Kýpur jákvætt framlag til aðildarviðræðnanna sem nú standa yfir. 7.12.2006 13:00 Sjá næstu 50 fréttir
Bretaprins sparar bensínið Umhverfisvitundin er í tísku núna í Bretlandi og kóngafólkið gengur á undan með góðu fordæmi. Karl Bretaprins ætlar að leggja einkaþotum og -þyrlum og taka sér frekar far með áætlunarflugfélögum, lestum eða sparneytnum bílum. 7.12.2006 21:22
Fyrsta nýja húsið í Grímsey í 6 ár Hreppsnefndin í Grímsey fær afhent nýtt parhús um helgina sem ákveðið var að byggja í vor. Að sögn oddvita Grímseyjarhrepps, Brynjólfs Árnasonar, er þetta fyrsta sinn í 6 ár sem smiðshöggið er rekið á nýbyggingu í eynni. Hreppsnefndin tók af skarið í vor og ákvað að byggja nýtt hús, vegna mikil húsnæðisskorts. 7.12.2006 20:52
Samband milli malaríu og alnæmis Vísindamenn telja að tengsl séu á milli útbreiðslu malaríu og alnæmisveirunnar í Afríku. Í niðurstöðum þeirra sem birtast í nýjasta tímariti vísindatímaritsins Science kemur í ljós að þeir sem sýktir eru af malaríu séu mun líklegri til að sýkja bólfélaga sinn af HIV-veirunni við kynmök. 7.12.2006 20:01
Mikið magn sprengiefna í miðaldabæ í Svíþjóð Tíu hús voru rýmd í miðaldaborginni Visby í Svíþjóð eftir að lögreglan fann mikið magn sprengiefna í húsi þar í borg í gærkvöldi, þar sem góðkunningi lögreglunnar var til húsa. Auk sprengiefna fundust í húsinu eldfim efni og eiturlyf. Visby er stærsta borg eyjunnar Gotlands, sem er undan suðausturströnd Svíþjóðar. 7.12.2006 20:00
Vitni í Litvinenko-málinu ekki við dauðans dyr Lögfræðingur heldur því fram að Dmitry Kovtun, eitt aðalvitna í morðrannsókn á Alexander Litvinenko, sé ekki í lífshættu og ber til baka fréttir frá því vyrr í dag, af því að hann hafi fallið í dá í dag og sé við dauðans dyr. Andrei Romashov er lögfræðingur annars mikilvægs vitnis í morðrannsókninni og segist hann hafa talað við Kovtun í kvöld. 7.12.2006 19:42
Staðfest að lögregla elti drengina í dauðann Rannsóknarskýrsla innra eftirlits frönsku lögreglunnar gagnrýnir lögreglumenn fyrir vangá sem á síðasta ári eltu tvo drengi inn í rafmagnsskúr þar sem þeir létu lífið, segir lögmaður fjölskyldna drengjanna. Skýrslan var birt í dag og segir þar að lögreglumennirnir hafi ekki gripið til nauðsynlegra varúðarráðstafana. 7.12.2006 19:30
Skautasvell opnað á Ingólfstorgi Á torgum stórborga víða um heim eru skautasvell órjúfanlegur þáttur af jólastemningunni og í ár eru íslendingar engir eftirbátar New York-borgar eða Parísar. Í tilefni af 50 ára afmæli Tryggingamiðstöðvarinnar leigir fyrirtækið svellið frá Austurríki, en það þekur tvo þriðju Ingólfstorgs. Óskar Magnússon forstjóri fyrirtækisins og Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri opnuðu svellið við hátíðlega athöfn í dag og tókust svo á í krullu að því loknu. 7.12.2006 19:10
Án auglýsinga yrði engin Rás 2 Útvarpsstjóri telur sér ekki sætt í starfi ef frumvarp um hlutafélagavæðingu RÚV verður ekki samþykkt á vormánuðum. Afgreiðslu frumvarpsins hefur nú verið frestað fram á vorþing. Í morgun hófst á Alþingi önnur umræða um málefni Ríkisútvarpsins, en ákveðið hefur verið að fresta þriðju umræðu um Ríkisútvarpið ohf þar til í janúar. Frumvarpið verður sent til umræðu menntamálanefndar í millitíðinni. 7.12.2006 19:01
Olíusamráðsdómur ekki fordæmi Sýknudómur í gær, þar sem Essó er sýknað af skaðabótakröfu einstaklings vegna samráðs olíufélaganna, hefur ekki frodæmisgildi gagnvart bótakröfum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður sem rekur málið fyrir borgina. 7.12.2006 18:59
Líf á Mars? Vísindamenn hafa fundið merki um rennandi vatn á Mars. Uppgötvunin eykur verulega líkur á að líf sé að finna á rauðu plánetunni enda er vatn ein af höfuðforsendum þess. 7.12.2006 18:57
Ritstjóri Kompáss sektaður Lögreglustjórinn hefur sektað ritstjóra fréttaskýringaþáttarins Kompáss um fimmtíu og fjögur þúsund krónur fyrir vörslu fíkniefna. Þetta voru fíkniefni sem Kompás lét kaupa til að sýna auðvelt aðgengi barna að þeim en þau voru síðan afhent lögreglu með formlegum hætti. 7.12.2006 18:55
Lítill munur á slysatíðni á 3ja og 4ra akreina vegum Lítill munur er á slysatíðni á þriggja akreina vegum og fjögurra akreina. Fjögurra akreina vegur er hins vegar tvöfalt til þrefalt dýrari. Þriggja akreina lausn gæti því nýst til að bæta umferðaröryggi á jafnvel þrefalt lengri vegalengd. 7.12.2006 18:54
Finnst rjúpan best Vegfarendur ráku upp stór augu í gær þegar fálki steypti sér niður á Lækjartorgi, fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur. Þrátt fyrir að komið væri ansi nærri, fór hann hvergi þar sem hann gæddi sér á hettumáfi. Guðmundur A Guðmundsson fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun segir ekki vera óalgengt að fálkar leiti matar í byggð þegar rjúpnastofnsinn er rýr eins og kom í ljós eftir rjúpnaveiðitímabilið, en óvenjufáar rjúpur veiddust í ár. 7.12.2006 18:53
Bandarískar hleranir á íslandi Skjalfestar sannanir liggja fyrir um að bandarísk yfirvöld blönduðust með beinum hætti í hleranir íslenskra stjórnvalda á eigin þegnum á tímum kalda stríðsins. Utanríkisráðuneytið tregðast við að opinbera þessi skjöl og bíður eftir heimild eða leiðbeiningum frá Bandaríkjunum 7.12.2006 18:51
Risaborar á leið úr landi Tveir af þremur risaborum hafa nú lokið hlutverki sínu við Kárahnjúkavirkjun og verða þeir fluttir úr landi eftir áramót. Þriðji borinn heldur hins vegar áfram og mun á næstu átján mánuðum bora göng í átt að Eyjabökkum til að sækja Jökulsá í Fljótsdal. 7.12.2006 18:46
Óttast að tugmilljónir séu tapaðar Óvissa ríkir um sölu á íslenskum landbúnaðarvörum í Bandaríkjunum eftir að verslanakeðjan Whole Foods, sem er sú stærsta í heiminum á sínu sviði, ákvað að hætta markaðssetningu á þeim vegna hvalveiða Íslendinga í atvinnuskyni. Tugmilljónir króna eru farnar í súginn segir forstjóri matvælafyrirtækisins Norðlenska. 7.12.2006 18:45
Um hundrað merktir í tölvukerfi vegna bakteríunnar Svokölluð Mosa-baktería hefur ekki fundist í þeim sýnum sem hafa verið rannsökuð á Landsspítalanum eftir að hún greindist í sjúklingi á þriðjudag. Búið er að rannsaka um helming sýnanna. Þeir sem eitt sinn hafa greinst með bakteríuna fara ávallt í einangrun við komu á sjúkrahús en um hundrað manns eru þannig merktir í kerfi Landsspítalans. 7.12.2006 18:30
Grunaður um að hafa aftur nauðgað Maður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa nauðgað konu á föstudag. Í október var sami maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottfengið ofbeldi og nauðganir. 7.12.2006 18:30
Bush vill ekki tala við Írana eða Sýrlendinga Bush Bandaríkjaforseti vill ekki sjá viðræður við Íran og Sýrland á næstunni, eftir fund hans með Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Hvíta húsinu í dag. Leiðtogarnir tveir voru sammála um að stefnubreytingar væri þörf í Írak en voru ekki yfir sig hrifnir af að vingast við gamla fjandmenn. 7.12.2006 18:11
Fjórir dópmenn handteknir í nótt Fjórir aðilar komu við sögu í þremur fíkniefnamálum hjá lögreglunni í Reykjavík í gær og nótt. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í úthverfi síðdegis en í híbýlum hans fundust ætluð fíkniefni. Í gærkvöld hafði lögreglan afskipti af tveimur karlmönnum um tvítugt. Þeir voru í bíl í austurbænum en mennirnir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. 7.12.2006 17:53
Annar Rússi í lífshættu vegna geislunar Annar Rússi, Dmitry Kovtun, er í lífshættu vegna póloneitrunar, sem er sama geislavirknin og varð njósnaranum fyrrverandi, Alexander Litvinenko, að bana þann 24. nóvember. Rússneska Interfax-fréttastofan hefur þetta eftir ónefndum heimildarmönnum. Dmitry Kovtun hitti Litvinenko þann 1. nóvember, sama dag og eitrað var fyrir Litvinenko. 7.12.2006 17:44
Vitnaleiðslur um dauða Díönu fyrir opnum dyrum Vitnaleiðslur fyrir réttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu af Wales munu fara fram fyrir opnum dyrum, samkvæmt kröfu Mohameds al Fayeds, föður Dodis al Fayeds, sem einnig lést í slysinu. Þar verður ákveðið hvenær réttarhöld hefjast, sem og hvort dauðsföll Dodis og Díönu verða rannsökuð saman eða í sitt hvoru lagi. 7.12.2006 17:30
14 mánaða fangelsi fyrir amfetamínframleiðslu Hæstiréttur staðfesti í dag 14 mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir manni fyrir að hafa í félagi við annan mann framleitt amfetamín. 7.12.2006 17:20
Mary J. Blige tilnefnd til flestra Grammy-verðlauna R&B söngkonan Mary J. Blige trónir á toppnum með flestar tilkynningar fyrir Grammy verðlaunin en tilnefningarnar voru tilkynntar í dag. Rokksveitin kaliforníska Red Hot Chili Peppers er tilnefnd til sex verðlauna. Úrslitin sjálf verða tilkynnt með glamúr og glans í Los Angeles í Kaliforníu þann 11. febrúar næstkomandi. 7.12.2006 17:15
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu og til að greiða henni átta hundruð þúsund krónur í bætur. 7.12.2006 17:03
Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára fangelsisdóm yfir Tindi Jónssyni fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að mann vopnaður sveðju og höggvið í höfuð hans og líkama. 7.12.2006 16:51
Brasilískir Kárahnjúkar Umhverfisverndarsinnar, fiskimenn, gúmmíkvoðusafnarar og Indíánar í vesturhluta Brasilíu hafa tekið höndum saman í baráttu gegn byggingu 560 milljarða króna vatnsorkuvers. 7.12.2006 16:35
Fjórðungi færri á nagladekkjum í ár en í fyrra Mun færri bílar eru á negldum hjólbörðum í ár en á sama tíma fyrra samkvæmt mælingu sem Línuhönnun gerði í fyrradag og greint er frá á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. 7.12.2006 16:28
Fangelsi og sekt fyrir ölvunarakstur og ranga skýrslugjöf Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar fangelsi og til greiðslu 250 þúsund króna fyrir ölvunarakstur og fyrir að framvísa ökuskírteini annars manns þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Þá var hann jafnfram sviptur ökuréttindum í fimm ár. 7.12.2006 16:18
Gerður hættir sem sviðsstjóri menntasviðs Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, hefur beðið um lausn frá störfum. Beiðni hennar þar að lútandi var lögð fram á fundi borgaráðs í dag. 7.12.2006 16:05
Af hverju ljúga hjólreiðamenn að löggunni ? Þýskur hjólreiðamaður hefur viðurkennt, fyrir lögreglunni, að hann hafi logið þegar hann sagði að sex unglingar hefðu ráðist á sig, og veitt sér áverka. Maðurinn kvaðst hafa barist á móti og tekist að hrekja árásarmennina á flótta. Þeir hefðu hlaupið í gegnum limgerði og horfið. 7.12.2006 15:50
Meiddist í andliti vegna öryggispúða Tíu ára drengur var fluttur á slysadeild í gær eftir árekstur tveggja bifreiða í borginni. Fram kemur á vef lögreglunnar að drengurinn hafi verið farþegi í bíl sem ekið var aftan á annabn bíl en við áreksturinn blés út öryggispúði í bílnum og meiddi hann í andliti. 7.12.2006 15:44
Hugmyndir uppi um að lengja Norrænu um 30 metra Hugmyndir eru uppi um að lengja farþega- og bílferjuna Norrænu um 30 metra þar sem hún er orðin of lítil. Þetta kemur fram á fréttavef færeyska dagblaðsins Dimmalættings. 7.12.2006 15:17
Björn Bjarnason gagnrýnir brottflutning varnarliðsins Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra lagði áherslu á þátt NATO í öryggi siglingaleiða á Norður-Atlantshafi í ræðu, sem hann hélt í Aþenu í dag, og gagnrýndi brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi í því samhengi. Björn sagði einkennilegt, að Bandaríkjamenn hefðu horfið með hernaðarlegan viðbúnað frá Íslandi, þegar litið væri til þess, sem formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings hefði sagt nýlega um mikilvægi þess, að Bandaríkin að tryggðu orkuöryggi. 7.12.2006 14:57
SA hótar RÚV málssókn vegna innheimtuaðgerða Samtök atvinnulífsins hóta því að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort Ríkisúvarpinu sé heimilt að að krefja fyrirtæki um auknar greiðslur afnotagjalda vegna útvarpstækja í bílum. 7.12.2006 14:53
Tvö bílslys í Eyjafirði í morgun Tvö slys urðu í Eyjafirði með nokkurra mínútna millibili laust fyrir klukkan ellefu í morgun. Bíll fór út af við bæinn Klöpp í hálku og valt en engin slys á fólki. Skammt sunnan Hrafnagils ók svo pallbíll út af veginum og valt. 7.12.2006 14:50
Enginn hefur fengið hæli á Íslandi frá árinu 2001 Engum sem sótt hefur um pólitískt hæli hér á landi hefur verið veitt það frá árinu 2001 samkvæmt svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri - grænna, á Alþingi. 7.12.2006 14:26
Gleðilega sekt Hvað gefur maður þeim sem á allt, í jólagjöf ? Ef þið byggjuð í Hollandi, væri til dæmis hægt að gefa gjafakort sem nær yfir sektir fyrir hraðakstur og önnur umferðarbrot. 7.12.2006 14:12
Vilja vísa RÚV-frumvarpi frá Minnihluti menntamálanefndar leggur til að frumvarpi um Ríkisútvarpið ohf. verði vísað frá en önnur umræða um frumvarpið stendur nú yfir. 7.12.2006 14:06
Ók á ljósastaur við Hafnarfjarðarveg Ökumaður sendibíls slapp án teljandi meiðsla þegar bifreið hans lenti á ljósastaur á mótum Fífuhvamsvegar og Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi nú eftir hádegið. Ökumaðurinn var að beygja af Fífuhvamssvegi og inn á Hafnarfjarðarveg þegar slysið varð en talið er að bíllinn hafi runnið til vegna mikillar hálku 7.12.2006 13:53
Slaka verður á sönnunarkröfum vegna bótakrafna í samráðsmálum Slaka verður á sönnunarkröfum í málum eins og máli Sigurðar Hreinssonar á hendur Keri að mati Neytendasamtakanna, en Ker var í gær sýknað af kröfum Sigurðar vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna samráðs olíufélaganna á árunum 1995-2001. 7.12.2006 13:33
Sveinki meðal fiskanna í sædýrasafni í Tókýó Fiskarnir í einu af sædýrasöfnum Tókýóborgar fengu skemmtilega heimsókn í morgun. Þar var á ferðinni sjálfur jólasveinninn sem hafði brugðið sér í kafarabúning til að vitja þeirra. 7.12.2006 13:15
Framkvæmdastjórn ESB segir framlag Tyrkja jákvætt Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir þá ákvörðun tyrknesku ríkisstjórnarinnar um að opna hafnir sínar á Kýpur jákvætt framlag til aðildarviðræðnanna sem nú standa yfir. 7.12.2006 13:00