Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugdrekinn dró mann í skurð Maður á fertugsaldri var fluttur á slysadeild í Reykjavík í dag eftir að flugdreki sem hann hélt í dró hann á eftir sér svo að maðurinn datt ofan í skurð. Flugdrekinn var í stærra lagi, af þeirri gerð sem skíðamenn nota gjarnan til að drífa sig áfram. Maðurinn hafði hins vegar ekki skíði á fótunum og hafði ekki við drekanum á hlaupum. 26.11.2006 17:37
Jórdaníukonunugur varar við borgarastríði í þremur löndum Abdullah, konungur Jórdaníu, varar við því að borgarastríð geti brotist út á þremur stöðum í Miðausturlöndum ef ekkert verði að gert: í Írak, Líbanon og Ísrael. Hann segir að fundur George Bush Bandaríkjaforseta með Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, í Jórdaníu í vikunni, muni skipta sköpum í baráttunni fyrir friði í Írak og á svæðinu öllu. 26.11.2006 17:07
Bílalest Malikis grýtt í Bagdad Bílalest forsætisráðherra Íraks, Nouri Al-Malikis var grýtt þegar hann fór í úthverfi Bagdad-borgar til að votta virðingu sína rúmlega 200 fórnarlömbum einnar mannskæðustu sprengjuárásar síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. Reiðin kraumar í almenningi í Sadr-hverfinu í Írak þar sem útgöngubann er nú þriðja daginn í röð. 26.11.2006 16:52
Blóðbönd fengu dómnefndarverðlaun í Þýskalandi Íslenska kvikmyndin Blóðbönd fékk verðlaun dómnefndar á þýsku kvikmyndahátíðinni í Mannheim Heidelberg í gærkvöldi en verðlaunin voru veitt sérstaklega fyrir leikstjórn. Þau þykja stór fjöður í hatt Árna Ólafs Ásgeirssonar, leikstjóra myndarinnar en hátíðin er með þeim stærstu í Þýskalandi. 26.11.2006 15:54
Ísraelar notuðu jarðsprengjur í Líbanon í sumar Nú er talið fullvíst að Ísraelskir hermenn hafi komið fyrir jarðsprengjum þegar þeir voru í Líbanon í sumar en þessu hafa Ísraelar staðfastlega neitað. Tveir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna stigu á jarðsprengjur á föstudaginn á svæði sem hafði verið hreinsað af jarðsprengjum eftir að Ísraelsher yfirgaf Líbanon árið 2000. 26.11.2006 15:31
Stjörnuskoðunarferð á Esjuna í kvöld Ferðafélag Íslands stendur fyrir stjörnuskoðunarferð í kvöld enda fádæma gott skyggni og skilyrði til störnuskoðunar. Fararstjórar verða Ólafur Örn Haraldsson og Snævar Guðmundsson stjörnufræðingur. Við Esjurætur verður síðan tjald þar sem hægt verður að fá heitt kakó til að ylja sér við þegar komið er niður. 26.11.2006 15:21
Bresks drengs saknað eftir að báti hvolfdi 14 ára gamals bresks drengs er saknað undan strönd Suður-Englands, eftir að litlum kappróðrarbáti sem hann og vinur hans tóku í leyfisleysi hvolfdi undan suðurströnd Englands. Björgunarbátur fann félaga drengsins í sjónum, um klukkan 3 í morgun, 25 mínútum eftir að bátnum hvolfdi í vindhviðu. Strákarnir voru ekki í björgunarvestum. 26.11.2006 15:14
Slökkvilið með viðbúnað við lendingu flugvélar á Akureyri Viðbúnaður var á Akureyrarflugvelli í dag þegar þegar flugvél Iceland Express var nýlent klukkan 14:20. Slökkviliðið var kvatt á flugvöllinn og kannaði vélina út af reykjarlykt sem barst inn í vélina. Farþegar eru allir komnir frá borði og sakaði engan. Áhöfn lét vita af reykjarlyktinni en hún var til komin af sviðnu dekkjagúmmíi eftir að vélin lenti. Engin hætta var á ferðum. 26.11.2006 14:37
Aðstoð Írana í Írak skilyrðum háð Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í dag að Íranar væru tilbúnir að hjálpa Bandaríkjamönnum og Bretum í Írak en eingöngu ef þeir hétu því að breyta stefnu sinni og draga herlið sitt til baka. Jalal Talabani, forseti Íraks, er væntanlegur til Írans á morgun þegar útgöngubanni verður aflétt í Bagdad. Þeir Ahmadinejad munu ræða ástandið í Írak. 26.11.2006 14:35
Heimsókn páfa mótmælt Þúsundir múslima mótmæla heimsókn Benedikts sextánda páfa til Istanbúl í Tyrklandi, sem hefst á þriðjudaginn. Fólkið hrópar: "ekki koma, páfi," að stórum myndum af Benedikt sem varpað er upp á risaskjá í miðborg istanbul. Óvild í garð páfa stafar af ræðu hans í september þar sem hann vitnaði í kristinn keisara sem fór niðrandi orðum um Múhameð spámann. 26.11.2006 13:44
Sigurörn í forsal vinda Örninn Sigurörn flaug vængjum þöndum úr fangi Sigurbjargar Pétursdóttur fyrir ofan grunnskólann á Grundarfirði í dag. Hátt í hundrað manns fylgdust með þegar Sigurbjörg tók Sigurörn í fangið og þrátt fyrir að hann væri orðinn hinn sprækasti þá hélt hún honum meðan þau kvöddust og svo flaug hann fugla hæst og hvarf úr augsýn. 26.11.2006 13:26
300 Bretar vilja geislarannsókn eftir dauða njósnara 300 manns hafa leitað til heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi eftir að í ljós kom að eitrað var fyrir rússneska njósnaranum Litvinenko með geislavirku póloníumi í byrjun mánaðarins. Fólkið verður sett í rannsókn öryggisins vegna en ólíklegt er talið að geislavirkni sem fundist hefur á sushi-veitingastaðnum þar sem hann át, hafi haft áhrif á aðra í umhverfinu. 26.11.2006 13:15
Yfirlýsingar Jóns skref í rétta átt Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Samfylkingar, segir Jón Sigurðsson feta í slóð Árna Johnsens og telja stuðninginn við Íraksstríðið tæknileg mistök en ekki ásetningssynd. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks VG, segir yfirlýsingar Jóns skref í rétta átt en taka þurfi málið upp á alþjóðavettvangi til að sjá hver hugur fylgi máli. 26.11.2006 13:07
Fyrstu tölur úr prófkjöri á Vísi klukkan sex í kvöld Gríðarlega góð þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í gær. Um 3.300 eru á kjörskrá og greiddu um 3.000 manns atkvæði. Níu gefa kost á sér í prófkjörinu, sex karlar og þrjár konur. Búist er við fyrstu tölum um klukkan sex í dag, sem þá birtast beint á Vísi. Fréttastofan verður að sjálfsögðu fyrir norðan á Hótel KEA í aðalfréttatíma okkar klukkan hálf sjö. 26.11.2006 12:37
Berlusconi hneig niður í ræðustóli Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu til margra ára, hneig niður í ræðustóli í Toskana á Ítalíu í dag. Ekki er vitað hvað amar að fjölmiðlakónginum og stjórnmálamanninum en hann greip fyrir hjartað. Annar ræðumaður sagði fundarmönnum að Berlusconi hefði hjarnað við baksviðs og viljað halda áfram en læknir hefði bannað það. 26.11.2006 12:25
Viðræður um varnarsamstarf við Noreg hefjast brátt Formlegar viðræður um öryggis- og varnarmálasamstarf á milli Íslands og Noregs hefjast í næsta mánuði. Þetta var ákveðið á föstudag á óformlegum fundi forsætisráðherrana Geirs Haarde og Jens Stoltenbergs í Helsinki. 26.11.2006 12:19
Björn Bjarnason gagnrýnir ummæli Jóns um Írak Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fjallar um ummæli Jóns Sigurðssonar um stuðninginn við innrásina í Írak á heimasíðu sinni og segir meðal annars að ríkisstjórn Íslands eða einstakir ráðherrar innan hennar hafi enga ábyrgð borið á innrásinni í Írak. Afstaða ríkisstjórnar Íslands hefði engu skipt um það, hvort ráðist hefði verið inn í Írak. 26.11.2006 12:00
Sigurörn fær frelsið aftur eftir hádegi Örninn Sigurörn fær frelsið aftur um eitt-leytið, þegar bjargvættur hans, hin 12 ára Sigurbjörg Pétursdóttir sleppir honum aftur fyrir ofan barnaskólann í Grundarfirði. Sigurörn hefur braggast vel í Húsdýragarðinum og var þar settur á hann sendir svo hægt verði að fylgjast með ferðum hans. Hann er nýorðinn kynþroska og er því búist við að hann fari fljótlega að leita sér að konu. 26.11.2006 11:48
Fríblöðin skapa vandamál í Danmörku Fríblöð flæða um ruslatunnur og stigaganga fjölbýlishúsa í Danmörku. Dönsku neytendasamtökin hafa selt eitt hundrað þúsund límmiða gegn blöðunum. Danska þingið hefur gefið útgefendum blaðanna frest til áramóta til að finna í sameiningu lausn á málinu. 25.11.2006 19:47
Þyngri dóma í kynferðisbrotamálum krafist Þöglar mótmælastöður voru við héraðsdóma víða um landið í dag en mótmælendur kröfðust þyngri dóma í kynferðisbrotamálum. Fólkið kom saman klukkan fjögur í dag á Akureyri, Ísafirði, Selfossi, Egilsstöðum og í Reykjavík. 25.11.2006 19:30
Yfir 200 manns jarðsettir í Írak Yfir tvö hundruð manns voru bornir til grafar í Írak í dag eftir röð sjálfsmorðs- og bílaárása súnnia í borginni Sadr á fimmtudaginn. Dagurinn var sá mannskæðasti frá upphafi stríðsins. Hundruðir sungu og grétu þegar þeir gengu með kistum ástvina sinna á leið frá borginni Sadr til Najaf. Þrátt fyrir útgöngubann fyrirskipaði forsætisráðherrann lögreglu að gæta öryggis fólksins. Hinir látnu voru bornir til grafar í kirkjugarði í Najaf. 25.11.2006 19:30
Fjölhæfir jólasveinar Það þykir öruggt merki um að jólin séu í nánd, þegar ljós jólatrjáa eru tendruð. Í miðborg Chicago í Bandaríkjunum var kveikt á þrjátíu metra háu jólatré við hátíðlega athöfn undir jólasöng og flugeldasýningu. Í New York í dag gengu hins vegar eitt hundrað jólasveinar um götur Manhattan og söfnuðu peningum fyrir fátæka og heimilislausa. 25.11.2006 19:30
Fuglaflensa ekki í fuglum húsdýragarðsins Sýni, sem tekin voru úr þeim tugum fugla sem lógað var í fjölskyldu- og húsdýragarðinum fyrr í vikunni, sýna að dýrin voru ekki sýkt af fuglaflensu. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir vill þó ekki meina að dýrin hafi verið aflífuð að ástæðulausu. Hann segir þessa aðferð hafa verið ráðlagða af alþjóðadýraheilbrigðismálastofnuninni eftir að mótefni fannst í fjórum fullorðnum landnámshænum í garðinum. 25.11.2006 19:15
Rúmlega þrjú þúsund tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Rúmlega þrjú þúsund manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem lauk klukkan 18. Tæplega 3.300 voru á kjörskrá en í utankjörfundaratkvæðagreiðslu greiddu tæplega 500 atkvæði og um tvö þúsund og fimm hundruð manns greiddu atkvæði í dag. 25.11.2006 19:14
Kæra yfirmenn efnahagsbrotadeildar Baugsmenn hafa lagt fram kæru á hendur yfirmönnum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og segja þá vanhæfa í rannsókn á skattamálum þeirra. Þeir neita að svara spurningum lögreglu þar til skorið hefur verið úr um hæfi rannsakenda. 25.11.2006 18:45
Krefjast úrbóta tafarlaust Fjölmennur baráttufundur aðstandendafélags aldraðra í dag krefst tafarlausra úrbóta í húsnæðismálum aldraðra. Staða mála er sorgleg og skammarleg fyrir eina ríkustu þjóð í heimi, sögðu fundarmenn. 25.11.2006 18:29
Reynt að breyta niðurstöðu prófkjörs fyrir fjórum árum Landssamband Sjálfstæðiskvenna óttast að framboð Árna Johnsen geti dregið úr fylgi flokksins á landsvísu og haft áhrif á gengi kvenna í baráttusætum listanna. Reynt var að breyta niðurstöðu prófkjörs í kjördæminu fyrir fjórum árum að kröfu Kristjáns Pálssonar. 25.11.2006 18:23
Umferð hleypt á Sæbrautina Umferð hefur verið hleypt á aftur á alla Sæbrautina. Enn er verið að vinna við frágang meðfram akbrautum og í miðeyju, einkum við gatnamótin Dalbraut-Sundagarðar. Vegagerðin býst ekki við að þeirri vinnu ljúki fyrr en í byrjun desember. 25.11.2006 18:04
Útgöngubann í Írak fram á mánudag Útgöngubann í Bagdad í Írak mun vera í gildi fram á mánudag. Írösk stjórnvöld tilkynntu í dag að banninu verði aflétt á mánudagsmorgun. Útgöngubannið var sett á eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Um tvö hundruð manns týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad á fimmtudaginn. 25.11.2006 17:45
Yfir tvö hundruð þúsund fuglum slátrað Slátra á tvö hundruð þrjátíu og sexþúsund alifuglum í Suður-Kóreu eftir að hinn banvæni stofn fuglaflensunnar, H5N1, greindist í fuglum á fuglabúi í landinu. 25.11.2006 17:00
Um sautjánhundruð hafa kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins Klukkan korter í fjögur höfðu rúmlega sautjánhundruð manns kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Níu gefa kost á sér í prófkjörinu, sex karlar og þrjár konur en kosið er um sex sæti. Ekki er búist við fyrstu tölum fyrr en annað kvöld. 25.11.2006 16:27
Átök milli þjófs og starfsmanns Kom til átaka milli þjófs og starfsmanns, í versluninni Intersport á Bíldshöfða í Reykjavík, á þriðja tímanum. Starfsmaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús með áverka á enni en hann var kýldur í ennið. 25.11.2006 15:42
Safnað fyrir hreinu vatni fyrir íbúa í Afríku Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst í dag en í ár er verið að safna fjármunum í vatnsverkefni í Afríku. Á ári hverju deyja 1,8 milljón manna af vatnsskorti og sjúkdómum þeim tengdum. Um 1,1 milljarður manna hefur ekki aðgang að hreinu vatni og veikist oft af menguðu vatni. 25.11.2006 15:16
Aðbúnaði ábótavant á leikskólum Aðbúnaði er ábótavant á nánast öllum leikskólum á Norður- og Austurlandi samkvæmt nýrri könnun háskólanema. 25.11.2006 15:08
Sjálfstæðiskonur óttast áhrif framboðs Árna Johnsen Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur farið fram á það við flokksforystuna að hún skoði sérstaklega mál Árna Johnsen og óttast stjórnin að framboð hans í Suðurkjördæmi kunni að draga úr fylgi flokksins á landsvísu. 25.11.2006 14:30
Baugsmenn kæra yfirmenn efnahagsbrotadeildar Baugsmenn hafa lagt fram kæru vegna vanhæfni yfirmanna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra í rannsókn á skattamálum þeirra. Þeir ætla ekki að svara spurningum lögreglu um skattrannsóknina fyrr en skorið hefur verið úr um hæfi rannsakenda. 25.11.2006 13:50
Á fjórða hundrað hafa tekið þátt í prófkjöri Á hádegi höfðu þrjú hundruð og fimmtíu manns greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið er á 22 stöðum en alls gefa níu einstaklingar kost í prófkjörinu, sex karlar og þrjár konur. Þrír sækjast eftir því að leiða listann. 25.11.2006 13:24
Banaslys á Fljótsdalsheiði Maður lést í vinnuslysi á Fljótsdalsheiði í morgun, þar sem verið er að breyta Kröflulínu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Slysið bar að með þeim hætti að einangrunarkeðja, sem verið var að hífa upp í eitt mastur línunnar, féll til jarðar og lenti á starfsmanni króatísks fyrirtækis sem þar er að störfum sem verktaki fyrir Landsnet. 25.11.2006 12:59
Mistök að styðja innrás í Írak Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins segir stuðning við Íraksstríðið hafa verið mistök sem hafi byggst á röngum upplýsingum. Ákvarðanir um öryggismál og alþjóðaverkefni beri ævinlega að taka eftir vandaðasta undirbúning og trúnaðarsamráð við lögmætar stofnanir eins og utanríkismálanefnd alþingis. 25.11.2006 12:53
Verður var við andstöðu Framsóknarmanna við RÚV frumvarp Björn Ingi Hrafnsson formaður borgarráðs og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra segist verða var við mikla andstöðu innan Framsóknarflokksins við hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Hann sagði í þættinum Pólitíkinni á Stöð tvö í dag að hann gæti ekki talað um það sem fram færi á þingflokksfundum en að hann hefði fáa Framsóknarmenn hitt sem vildu að RÚV yrði breytt í hlutafélag. 25.11.2006 12:52
Flugvél brotlendir á bíl á hraðbraut Sjö eru slasaðir eftir að einkaflugvél brotlenti á bíl á hraðbraut nálægt borginni Essen í vesturhluta Þýskalands í gær. Vélin var í aðflugi að flugvellinum í Essen-Muelheim þegar slysið varð. Hún klippti í sundur umferðarljós og brú áður en hún brotlenti á bíl á fjölfarinni hraðbraut við flugvöllinn. Bílstjóri flutningabíls náði að slökkva eld sem kviknaði í flaki vélarinnar, en báðir vængirnir brotnuðu af við áreksturinn. 25.11.2006 12:17
Geislavirk efni á „njósnara“ stöðum í London Fólk sem heimsótti sama veitingastað og hótel og rússneski njósnarinn sem lést á fimmtudaginn er hvatt til að hafa samband við heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi vegna geislavirkra efna sem hafa fundist þar. Efnin fundust á veitingastaðnum Itsu Sushi bar við Piccadilly og Pine bar Millenium hótelsins við Grosvenor torg. 25.11.2006 12:10
Breska lögreglan finnur leifar af geislavirku efni Bresk yfirvöld hafa fundið leifar af sama geislavirka efninu og fannst í líkama Alexanders Litvinenko eftir að hann lést á þeim þremur stöðum sem hann dvaldi á daginn sem hann taldi að hefði verið eitrað fyrir honum. 24.11.2006 23:29
Bílvelta undir Hafnarfjalli Fólksbíll keyrði útaf undir Hafnarfjalli rétt um sjö leytið í kvöld. Velti ökumaður bílnum og er bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn var einn á ferð. Hlaut hann áverka á höfði og brjóstkassa og var því fluttur á sjúkrahúsið í Borgarnesi og verður fylgst með honum þar yfir nótt. Lögreglan í Borgarnesi gat ekkert sagt um ástæður útafaksturins að svo stöddu. 24.11.2006 23:05
Boðið upp á hraðþjónustu á flugvöllum Einkafyrirtæki í Bandaríkjunum hafa nú séð sér hag í því að setja upp þjónustu sem að flýtir ferð fólks í gegnum flugvelli þar í landi. Vegna ótta við hryðjuverk eru mörg öryggishlið sem fólk þarf að fara í gegnum og hefur það valdið miklum pirringi meðal fólks sem ferðast mikið. 24.11.2006 22:40