Fleiri fréttir Eiturlyfjagengi í ímyndarvanda Mexíkóskt eiturlyfjagengi tók upp þá nýjung að auglýsa sjálft sig í dagblöðum til þess að segja fólki að það væri í rauninni ekkert slæmt. Í auglýsingunum, sem voru birtar í nokkrum dagblöðum, var tekið fram að gengið, sem er þekkt sem "Fjölskyldan", væri ekki glæpagengi heldur sjálfskipaðir verndarar reglu og réttlætis. 24.11.2006 20:50 Ísland og Noregur í varnarsamstarf Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. 24.11.2006 19:36 Ódæða hefnt Minnst 30 týndu lífi og hátt í 50 til viðbótar særðust þegar vígamenn hófu skothríð í hverfi súnnía í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Að sögn vitna lögðu árásarmennirnir síðan elda að fjórum moskum í hverfinu. Árásin er sögð hefnd fyrir sprengjuárás í Sadr-hverfi sjía í höfuðborginn í gær sem kostaði rúmlega 200 manns lífið. 24.11.2006 19:22 Valdarán á bandarísku dagblaði Maður íklæddur felubúning og vopnaður hríðskotabyssu réðist til inngöngu í húsakynni bandaríska dagblaðsins Miami Herald í dag. Neyddi hann starfsfólk til þess að yfirgefa húsakynnin og gaf til kynna að hann hefði þar með tekið dagblaðið yfir. Ástæðuna sagði hann vera lág laun og að dagblaðið væri illa rekið. 24.11.2006 19:18 Mið tekið af auknum flutningum Dómsmálaráðherra segir þörf á alþjóðlegu átaki ef alvarlegt umhverfisslys verði í olíuflutningum við Ísland. Sérfræðingar spá því að innan fárra ára fari 500 olíuskip um íslenskt hafsvæði á hverju ári. Ráðherrann segir tekið mið af þessu við endurbætur á núverandi varðskipum og smíði nýrra. 24.11.2006 19:17 Úrslit í ljósmyndasamkeppni NFS Úrslit liggja nú fyrir í ljósmyndasamkeppni Veðurstofu NFS. Í fyrsta sæti lenti mynd Þorsteins Ásgeirssonar - Norðurljós við Jökulsárlón. Gríðarleg vinna hefur farið í að fara yfir allar myndirnar og velja þær bestu. 24.11.2006 19:03 Geislavirkt efni í líkama Litvinenkos Töluvert af geislavirku efni hefur fundist í líkama rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos, sem lést af völdum eitrunar á sjúkrahúsi í Lundúnum í gærkvöldi. Skömmu fyrir andlátið sagði hann Pútín Rússlandsforseta bera ábyrgð á örlögum sínum. Forsetinn vísar því alfarið á bug. 24.11.2006 19:02 Barnið í vistun Barnaverndar Reykjavíkur Barnið sem reynt var að fara með úr landi frá Akureyri í gærkvöldi, gegn vilja móður þess, hefur verið sett í vistun á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Drengurinn er sex mánaða og hefur lögheimili í Danmörku. Hann hefur hins vegar verið dvalfastur hérlendis í nokkra mánuði vegna deilu foreldranna, en þau eru bæði íslensk. 24.11.2006 18:57 Ber við minnisleysi Hálfþrítugur karlmaður, sem var handtekinn eftir ólæti um borð í flugvél í gærkvöld, bar við minnisleysi þegar hann var spurður um háttalag sitt. Maðurinn, sem var færður til skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík í dag, var að angra farþega í áðurnefndu flugi og þurfti flugstjóri vélarinnar að taka aukahring af þeim sökum áður en hann gat lent á áfangastað. 24.11.2006 18:55 ASÍ segir loforð um vaxtabætur svikin Alþýðusamband Íslands telur ríkisstjórnina svíkja yfirlýsingu sína um vaxtabætur sem gefin var út í tengslum við endurskoðun kjarasamninga. Fjöldi einstaklinga verði af vaxtabótum verði nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum. 24.11.2006 18:53 Ættleiðingarstyrkur Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti niðurstöðu starfshóps á vegum ráðuneytisins en hann leggur til að veittur verði 480 þúsund króna styrkur til foreldra sem ættleiða börn í gegnum löggild ættleiðingarfélög. Styrkurinn verður undanþeginn staðgreiðslu. Foreldrar barna sem koma til landsins eftir gildistöku laganna eiga rétt á styrknum. 24.11.2006 18:48 Dómsmálaráðherra ræður kröfum um íslenskukunnáttu Dómsmálaráðherra fær að ráða því hversu mikla íslensku útlendingar þurfa að kunna til að geta fengið ríkisborgararétt á Íslandi samkvæmt nýju frumvarpi. 24.11.2006 18:45 Gylliboð verslana falla ekki alltaf í kramið Hvert gylliboðið á fætur öðru er nú sett fram af kaupmönnum sem vilja laða viðskiptavini að. Bílasalar bjóða inneignir í verslunum og kreditkortatímabilið lengist. Nýtt greiðslukortatímabil hefst 7. desember og munu færslur eftir það greiðast í byrjun febrúar. Leikfangaverslunin Leikbær býður viðskiptavinum sínum hins vegar að kaupa vörur núna, sem koma til greiðslu í febrúar. 24.11.2006 18:34 Páfinn og Erdogan munu funda Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Erdogan, ætlar sér að hitta Benedikt páfa þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Tyrklands í næstu viku. Töluvert hafði verið deilt á að ekki hefði verið ákveðinn fundur milli þeirra en mikil spenna ríkir í landinu fyrir heimsókna páfa vegna ummæla hans í sumar um að íslam væri ofbeldisfull trú. 24.11.2006 18:14 Sigurerni ekki fargað Halldór Runólfsson yfirdýralæknir tilkynnti nú rétt í þessu að sýnin sem tekin höfðu verið úr erninum Sigurerni og tveimur fálkum í húsdýragarðinum vegna gruns um fuglaflensumótefni í þeim hefðu reynst neikvæð. Sýnin voru send til Svíþjóðar til rannsókna. 24.11.2006 17:53 Leikskólabörn í Hafnarfirði skreyta Jólaþorp Jólalög hljómuðu um miðbæ Hafnarfjarðar í dag þegar hundruð leikskólabarna skreyttu jólaþorpið sem opnar á morgun. 24.11.2006 17:44 Frakkar hlýta ákvörðun ráðamanna í Rúanda Frakkar sögðu í dag að þeir hörmuðu þá ákvörðun ráðamanna í Rúanda að slíta stjórnmálalegum tengslum ríkjanna tveggja. Ástæðan fyrir vinslitunum er sú að franskur dómari ákvað að gefa út handtökuskipun á leiðtogum í Rúanda vegna atburða sem leiddu til þjóðarmorðanna þar í landi árið 1994. 24.11.2006 17:38 Kársnesbrautin gæti farið í stokk Kársnesbrautin í Kópavogi verður hugsanlega sett í stokk til að liðka fyrir aukinni umferð samfara mikilli fólksfjölgun í vesturbæ Kópavogs. Gunnar I. Birgisson segir að Samfylkingunni hugnist lítt að fá ný atvinnutækifæri í bæinn. 24.11.2006 17:26 Bandaríkin fordæma árás í Írak Talsmenn Bandaríkjaforseta fordæmdu í dag árásina í gær í hverfi shía múslima og sögðu hana glórulausa og miðaða að því að skapa óstöðugleika í landinu. Alls létu um 200 manns lífið í árásinni sem var sú stærsta sem gerð hefur verið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. 24.11.2006 17:19 Íslendingar vernda umhverfið Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sat í dag leiðtogafund aðildarríkja Norðlægrar víddar (Northern Dimension) í Helsinki. Þar voru ríkisstjórnaroddvitar þríeykis Evrópusambandsins, Rússlands, Íslands og Noregs. Norðlæga víddin er samstarfsvettvangur þessara ríkja og er ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun, stöðugleika, velsæld og öryggi í norðanverðri Evrópu. Samþykkt var pólitísk yfirlýsing og ný rammaáætlun um framkvæmd samstarfsins. 24.11.2006 17:06 Alcoa opnar skrifstofu á Húsavík Alcoa hefur opnað skrifstofu og upplýsingamiðstöð á Húsavík vegna vegna hugsanlegs álvers í landi Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir einnig að aðstaða Alcoa sé tekin í notkun nú þegar rannsóknir hafi leitt í ljós að engar tæknilegar hindranir standi í vegi fyrir því að álver rísi við Bakka. 24.11.2006 16:59 Múslimum varla skemmt 24.11.2006 16:57 Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. 24.11.2006 16:52 Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. 24.11.2006 16:37 Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. 24.11.2006 16:37 Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Karlmaður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot í Héraðsdómi Norðurlands eystra í tengslum við alvarlegt umferðarslys á Hringveginum sunnan við Syðri Bægisá í Hörgárbyggð í maí fyrra. 24.11.2006 16:24 Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. 24.11.2006 16:23 Viðræður við Norðmenn um öryggissamstarf ákveðnar Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 24.11.2006 15:50 Myrtur með geislavirkum ísótópum 24.11.2006 15:46 Nasistastytta afhjúpuð í Noregi Stytta af lögreglustjóra Oslóarborgar, á stríðsárunum, hefur verið afhjúpuð í dag. Knut Röd vann sér það helst til frægðar að senda um 850 norska Gyðinga í útrýmingarbúðir nasista. Aðeins ellefu þeirra áttu afturkvæmt. 24.11.2006 15:34 Varað við svifryki í borginni Umhverfissvið Reykjavíkurborgar varar við því að svifryk mælist nú yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stilltu veðri fram á kvöld og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir heilsuverndarmörkum. 24.11.2006 15:31 Svafa Grönfeldt er nýr rektor Háskólans í Reykjavík Dr. Svafa Grönfeldt hefur verið ráðin rektor Háskóla Íslands í stað Guðfinnu S. Bjarnadóttur, sem hefur verið rektor skólans frá stofnun hans 1998. Svafa hefur verið aðstoðarforstjóri Actavis frá því í október í fyrra. Bjarni Ármannsson, formaður háskólaráðs HR tilkynnti starfsmönnum skólans þetta á fundi sem haldinn var klukkan 15:30 í dag. 24.11.2006 15:18 Landsvirkjun tvöfaldar styrk sinn við Ómar Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að tvöfalda stuðning sinn við Ómar Ragnarsson fréttamann úr fjórum milljónum í átta vegna kvikmyndar sem hann vinnur að um fyllingu Hálslóns við Kárahnjúka. Ákvörðunin var tekin á fundi stjórnarinnar í morgun. 24.11.2006 15:13 Íslendingar í samstarf við Bollywood? Íslendingar munu leita eftir nánara samstarfi við Indverja á sviði kvikmynda og reyna að lokka framleiðendur Bollywood-mynda til landsins. Frá þessu er greint á indverska fréttavefnum newkerala.com. 24.11.2006 15:04 IKEA, þú sem ert á himnum Ný könnun sýnir að Svíar setja mublurisann IKEA mikilu hærra en kirkjuna, þegar trú og traust er annarsvegar. 24.11.2006 15:03 Telja hvalaskoðunarbáta ógna lífi hvalanna Sameiginlegar rannsóknir breskra og kanadiskra vísindamanna benda til þess að hvalaskoðunarbátar trufli svo hvalina, að lífi þeirra geti stafað hætta af. Bátarnir trufli hvalina við fæðuöflun og hreki þá jafnvel frá góðum matar- og hvíldarsvæðum. 24.11.2006 14:40 Umferðaröryggi á Íslandi meðal þess besta í Evrópu Íslendingar eru í fremstu röð Evrópuþjóða hvað varðar umferðaröryggi að mati doktors Günters Breyers, aðstoðarvegamálastjóra Austurríkis og forstöðumanns tækni- og umferðaröryggissviðs samgönguráðuneytis landsins. 24.11.2006 14:37 Enn ein fjöldagröfin í Bosníu Enn ein fjöldagröfin er fundin í Bosníu og er talið að hún sé frá fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995. Samtals fundust jarðneskar leifar 156 fórnarlamba. Þar af voru níutíu heil lík og svo líkamshlutar af sextíu og sex mönnum. 24.11.2006 14:29 Hrakningar Wilke halda áfram Hrakningum flutningaskipsins Wilke hér við land virðist ekki ætla að linna því í gær sigldi skipið á fiskiskipið Brynjólf í höfninni í Vestmannaeyjum. Engin slys urðu á fólki en töluverðar skemmdir urðu á Brynjólfi. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta. 24.11.2006 14:26 Enski boltinn aftur á Sýn 365 hafði betur í keppni við Skjásport í baráttu um sýningarrétt frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tímabilinu 2007 til 2010. Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti þetta við fréttastofu NFS. Skjár einn og Skjásport hafa haft réttinn síðastliðin þrjú ár en þar áður hafði Sýn sýningarréttinn. 24.11.2006 14:20 Raðsælkeri dæmdur í eins árs fangelsi Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjársvik, með því að hafa á tímabilinu frá mars til nóvember í ár pantað og neytt veitinga á veitingahúsum í Reykjavík fyrir samtals rúmlega sextíu þúsund krónur án þess að geta greitt fyrir þær. 24.11.2006 13:48 Vonar að Pólverjarnir snúi sem fyrst heim á ný Utanríkisráðherra Póllands kveðst vona að pólskir verka- og iðnaðarmenn snúi heim aftur sem fyrst, enda á landið í nokkrum vandræðum vegna atgervisflótta. 24.11.2006 13:45 Le Pen vinsælli en nokkru sinni Hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le er nú vinsælli en nokkrusinni, í Frakklandi, og gerir sér góðar vonir um að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem haldnar verða eftir sex mánuði. 24.11.2006 13:26 15 mánuðir fyrir rán í apóteki Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir rán í apóteki í Kópavogi í febrúar síðastliðnum. Maðurinn réðst inn í lyfjaverslunina Apótekarann að Smiðjuvegi vopnaður hnífi og með andlit sitt hulið, fór inn fyrir afgreiðsluborðið og ógnaði starfsmönnunum. 24.11.2006 13:15 Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum fyrir vatnsverkefni Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum króna í vatnsverkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar með því að ganga í hús um allt land. Er þar um að ræða metupphæð en í fyrra söfnuðust 6,8 milljónir 24.11.2006 13:00 Sjá næstu 50 fréttir
Eiturlyfjagengi í ímyndarvanda Mexíkóskt eiturlyfjagengi tók upp þá nýjung að auglýsa sjálft sig í dagblöðum til þess að segja fólki að það væri í rauninni ekkert slæmt. Í auglýsingunum, sem voru birtar í nokkrum dagblöðum, var tekið fram að gengið, sem er þekkt sem "Fjölskyldan", væri ekki glæpagengi heldur sjálfskipaðir verndarar reglu og réttlætis. 24.11.2006 20:50
Ísland og Noregur í varnarsamstarf Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. 24.11.2006 19:36
Ódæða hefnt Minnst 30 týndu lífi og hátt í 50 til viðbótar særðust þegar vígamenn hófu skothríð í hverfi súnnía í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Að sögn vitna lögðu árásarmennirnir síðan elda að fjórum moskum í hverfinu. Árásin er sögð hefnd fyrir sprengjuárás í Sadr-hverfi sjía í höfuðborginn í gær sem kostaði rúmlega 200 manns lífið. 24.11.2006 19:22
Valdarán á bandarísku dagblaði Maður íklæddur felubúning og vopnaður hríðskotabyssu réðist til inngöngu í húsakynni bandaríska dagblaðsins Miami Herald í dag. Neyddi hann starfsfólk til þess að yfirgefa húsakynnin og gaf til kynna að hann hefði þar með tekið dagblaðið yfir. Ástæðuna sagði hann vera lág laun og að dagblaðið væri illa rekið. 24.11.2006 19:18
Mið tekið af auknum flutningum Dómsmálaráðherra segir þörf á alþjóðlegu átaki ef alvarlegt umhverfisslys verði í olíuflutningum við Ísland. Sérfræðingar spá því að innan fárra ára fari 500 olíuskip um íslenskt hafsvæði á hverju ári. Ráðherrann segir tekið mið af þessu við endurbætur á núverandi varðskipum og smíði nýrra. 24.11.2006 19:17
Úrslit í ljósmyndasamkeppni NFS Úrslit liggja nú fyrir í ljósmyndasamkeppni Veðurstofu NFS. Í fyrsta sæti lenti mynd Þorsteins Ásgeirssonar - Norðurljós við Jökulsárlón. Gríðarleg vinna hefur farið í að fara yfir allar myndirnar og velja þær bestu. 24.11.2006 19:03
Geislavirkt efni í líkama Litvinenkos Töluvert af geislavirku efni hefur fundist í líkama rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos, sem lést af völdum eitrunar á sjúkrahúsi í Lundúnum í gærkvöldi. Skömmu fyrir andlátið sagði hann Pútín Rússlandsforseta bera ábyrgð á örlögum sínum. Forsetinn vísar því alfarið á bug. 24.11.2006 19:02
Barnið í vistun Barnaverndar Reykjavíkur Barnið sem reynt var að fara með úr landi frá Akureyri í gærkvöldi, gegn vilja móður þess, hefur verið sett í vistun á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Drengurinn er sex mánaða og hefur lögheimili í Danmörku. Hann hefur hins vegar verið dvalfastur hérlendis í nokkra mánuði vegna deilu foreldranna, en þau eru bæði íslensk. 24.11.2006 18:57
Ber við minnisleysi Hálfþrítugur karlmaður, sem var handtekinn eftir ólæti um borð í flugvél í gærkvöld, bar við minnisleysi þegar hann var spurður um háttalag sitt. Maðurinn, sem var færður til skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík í dag, var að angra farþega í áðurnefndu flugi og þurfti flugstjóri vélarinnar að taka aukahring af þeim sökum áður en hann gat lent á áfangastað. 24.11.2006 18:55
ASÍ segir loforð um vaxtabætur svikin Alþýðusamband Íslands telur ríkisstjórnina svíkja yfirlýsingu sína um vaxtabætur sem gefin var út í tengslum við endurskoðun kjarasamninga. Fjöldi einstaklinga verði af vaxtabótum verði nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum. 24.11.2006 18:53
Ættleiðingarstyrkur Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti niðurstöðu starfshóps á vegum ráðuneytisins en hann leggur til að veittur verði 480 þúsund króna styrkur til foreldra sem ættleiða börn í gegnum löggild ættleiðingarfélög. Styrkurinn verður undanþeginn staðgreiðslu. Foreldrar barna sem koma til landsins eftir gildistöku laganna eiga rétt á styrknum. 24.11.2006 18:48
Dómsmálaráðherra ræður kröfum um íslenskukunnáttu Dómsmálaráðherra fær að ráða því hversu mikla íslensku útlendingar þurfa að kunna til að geta fengið ríkisborgararétt á Íslandi samkvæmt nýju frumvarpi. 24.11.2006 18:45
Gylliboð verslana falla ekki alltaf í kramið Hvert gylliboðið á fætur öðru er nú sett fram af kaupmönnum sem vilja laða viðskiptavini að. Bílasalar bjóða inneignir í verslunum og kreditkortatímabilið lengist. Nýtt greiðslukortatímabil hefst 7. desember og munu færslur eftir það greiðast í byrjun febrúar. Leikfangaverslunin Leikbær býður viðskiptavinum sínum hins vegar að kaupa vörur núna, sem koma til greiðslu í febrúar. 24.11.2006 18:34
Páfinn og Erdogan munu funda Tyrkneski forsætisráðherrann, Tayyip Erdogan, ætlar sér að hitta Benedikt páfa þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Tyrklands í næstu viku. Töluvert hafði verið deilt á að ekki hefði verið ákveðinn fundur milli þeirra en mikil spenna ríkir í landinu fyrir heimsókna páfa vegna ummæla hans í sumar um að íslam væri ofbeldisfull trú. 24.11.2006 18:14
Sigurerni ekki fargað Halldór Runólfsson yfirdýralæknir tilkynnti nú rétt í þessu að sýnin sem tekin höfðu verið úr erninum Sigurerni og tveimur fálkum í húsdýragarðinum vegna gruns um fuglaflensumótefni í þeim hefðu reynst neikvæð. Sýnin voru send til Svíþjóðar til rannsókna. 24.11.2006 17:53
Leikskólabörn í Hafnarfirði skreyta Jólaþorp Jólalög hljómuðu um miðbæ Hafnarfjarðar í dag þegar hundruð leikskólabarna skreyttu jólaþorpið sem opnar á morgun. 24.11.2006 17:44
Frakkar hlýta ákvörðun ráðamanna í Rúanda Frakkar sögðu í dag að þeir hörmuðu þá ákvörðun ráðamanna í Rúanda að slíta stjórnmálalegum tengslum ríkjanna tveggja. Ástæðan fyrir vinslitunum er sú að franskur dómari ákvað að gefa út handtökuskipun á leiðtogum í Rúanda vegna atburða sem leiddu til þjóðarmorðanna þar í landi árið 1994. 24.11.2006 17:38
Kársnesbrautin gæti farið í stokk Kársnesbrautin í Kópavogi verður hugsanlega sett í stokk til að liðka fyrir aukinni umferð samfara mikilli fólksfjölgun í vesturbæ Kópavogs. Gunnar I. Birgisson segir að Samfylkingunni hugnist lítt að fá ný atvinnutækifæri í bæinn. 24.11.2006 17:26
Bandaríkin fordæma árás í Írak Talsmenn Bandaríkjaforseta fordæmdu í dag árásina í gær í hverfi shía múslima og sögðu hana glórulausa og miðaða að því að skapa óstöðugleika í landinu. Alls létu um 200 manns lífið í árásinni sem var sú stærsta sem gerð hefur verið síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak. 24.11.2006 17:19
Íslendingar vernda umhverfið Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sat í dag leiðtogafund aðildarríkja Norðlægrar víddar (Northern Dimension) í Helsinki. Þar voru ríkisstjórnaroddvitar þríeykis Evrópusambandsins, Rússlands, Íslands og Noregs. Norðlæga víddin er samstarfsvettvangur þessara ríkja og er ætlað að stuðla að sjálfbærri þróun, stöðugleika, velsæld og öryggi í norðanverðri Evrópu. Samþykkt var pólitísk yfirlýsing og ný rammaáætlun um framkvæmd samstarfsins. 24.11.2006 17:06
Alcoa opnar skrifstofu á Húsavík Alcoa hefur opnað skrifstofu og upplýsingamiðstöð á Húsavík vegna vegna hugsanlegs álvers í landi Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir einnig að aðstaða Alcoa sé tekin í notkun nú þegar rannsóknir hafi leitt í ljós að engar tæknilegar hindranir standi í vegi fyrir því að álver rísi við Bakka. 24.11.2006 16:59
Sigurður Óli verður aðstoðarforstjóri Actavis Sigurður Óli Ólafsson tekur við af Svöfu Grönfeldt sem aðstoðarforstjóri Actavis en Svafa var í dag kynnt sem næsti rektor Háskólans í Reykjavík. Fram kemur í tilkynngu frá Actavis að Sigurður Óli hafi verið framkvæmdastjóri félagsins í Bandaríkjunum og muni nú einnig gegna stöðu aðstoðarforstjóra félagsins frá 1.desember 2006. 24.11.2006 16:52
Skautasvell á Ingólfstorgi í desember Skautasvell verður opnað á Ingólfstorgi þann 7. desember og verður opið til mánaðarloka. Það er Tryggingamiðstöðin, sem er með höfuðstöðvar sínar við Aðalstræti, sem setur svellið upp í samvinnu við borgina og er það gert vegna 50 ára afmælis félagsins sem einmitt verður haldið hátíðlegt þann 7. desember næstkomandi. 24.11.2006 16:37
Slíta stjórnmálasambandi við Frakkland Rúanda hefur slitið stjórnmálasambandi við Frakkland og gefið franska sendiherranum tuttugu og fjóra tíma til þess að koma sér úr landi. 24.11.2006 16:37
Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Karlmaður var í dag sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot í Héraðsdómi Norðurlands eystra í tengslum við alvarlegt umferðarslys á Hringveginum sunnan við Syðri Bægisá í Hörgárbyggð í maí fyrra. 24.11.2006 16:24
Brenndu sex menn lifandi Vopnaðir sjía múslimar, í Írak, réðust í dag á sex súnní múslima sem voru að koma frá bænahaldi, og brenndu þá lifandi. Þetta er talið vera hefnd fyrir mannskæða sprengjuárás, í gær, sem kostaði yfir 200 manns lífið, í hverfi sjía múslima í Bagdad. 24.11.2006 16:23
Viðræður við Norðmenn um öryggissamstarf ákveðnar Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ákváðu í dag að hefja þegar í næsta mánuði formlegar viðræður milli Íslands og Noregs um eftirlit í Norðurhöfum og framtíðarsamstarf landanna á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 24.11.2006 15:50
Nasistastytta afhjúpuð í Noregi Stytta af lögreglustjóra Oslóarborgar, á stríðsárunum, hefur verið afhjúpuð í dag. Knut Röd vann sér það helst til frægðar að senda um 850 norska Gyðinga í útrýmingarbúðir nasista. Aðeins ellefu þeirra áttu afturkvæmt. 24.11.2006 15:34
Varað við svifryki í borginni Umhverfissvið Reykjavíkurborgar varar við því að svifryk mælist nú yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík. Búist er við áframhaldandi stilltu veðri fram á kvöld og því er útlit fyrir að magn svifryks í andrúmslofti verði áfram yfir heilsuverndarmörkum. 24.11.2006 15:31
Svafa Grönfeldt er nýr rektor Háskólans í Reykjavík Dr. Svafa Grönfeldt hefur verið ráðin rektor Háskóla Íslands í stað Guðfinnu S. Bjarnadóttur, sem hefur verið rektor skólans frá stofnun hans 1998. Svafa hefur verið aðstoðarforstjóri Actavis frá því í október í fyrra. Bjarni Ármannsson, formaður háskólaráðs HR tilkynnti starfsmönnum skólans þetta á fundi sem haldinn var klukkan 15:30 í dag. 24.11.2006 15:18
Landsvirkjun tvöfaldar styrk sinn við Ómar Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að tvöfalda stuðning sinn við Ómar Ragnarsson fréttamann úr fjórum milljónum í átta vegna kvikmyndar sem hann vinnur að um fyllingu Hálslóns við Kárahnjúka. Ákvörðunin var tekin á fundi stjórnarinnar í morgun. 24.11.2006 15:13
Íslendingar í samstarf við Bollywood? Íslendingar munu leita eftir nánara samstarfi við Indverja á sviði kvikmynda og reyna að lokka framleiðendur Bollywood-mynda til landsins. Frá þessu er greint á indverska fréttavefnum newkerala.com. 24.11.2006 15:04
IKEA, þú sem ert á himnum Ný könnun sýnir að Svíar setja mublurisann IKEA mikilu hærra en kirkjuna, þegar trú og traust er annarsvegar. 24.11.2006 15:03
Telja hvalaskoðunarbáta ógna lífi hvalanna Sameiginlegar rannsóknir breskra og kanadiskra vísindamanna benda til þess að hvalaskoðunarbátar trufli svo hvalina, að lífi þeirra geti stafað hætta af. Bátarnir trufli hvalina við fæðuöflun og hreki þá jafnvel frá góðum matar- og hvíldarsvæðum. 24.11.2006 14:40
Umferðaröryggi á Íslandi meðal þess besta í Evrópu Íslendingar eru í fremstu röð Evrópuþjóða hvað varðar umferðaröryggi að mati doktors Günters Breyers, aðstoðarvegamálastjóra Austurríkis og forstöðumanns tækni- og umferðaröryggissviðs samgönguráðuneytis landsins. 24.11.2006 14:37
Enn ein fjöldagröfin í Bosníu Enn ein fjöldagröfin er fundin í Bosníu og er talið að hún sé frá fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995. Samtals fundust jarðneskar leifar 156 fórnarlamba. Þar af voru níutíu heil lík og svo líkamshlutar af sextíu og sex mönnum. 24.11.2006 14:29
Hrakningar Wilke halda áfram Hrakningum flutningaskipsins Wilke hér við land virðist ekki ætla að linna því í gær sigldi skipið á fiskiskipið Brynjólf í höfninni í Vestmannaeyjum. Engin slys urðu á fólki en töluverðar skemmdir urðu á Brynjólfi. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta. 24.11.2006 14:26
Enski boltinn aftur á Sýn 365 hafði betur í keppni við Skjásport í baráttu um sýningarrétt frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tímabilinu 2007 til 2010. Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti þetta við fréttastofu NFS. Skjár einn og Skjásport hafa haft réttinn síðastliðin þrjú ár en þar áður hafði Sýn sýningarréttinn. 24.11.2006 14:20
Raðsælkeri dæmdur í eins árs fangelsi Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fjársvik, með því að hafa á tímabilinu frá mars til nóvember í ár pantað og neytt veitinga á veitingahúsum í Reykjavík fyrir samtals rúmlega sextíu þúsund krónur án þess að geta greitt fyrir þær. 24.11.2006 13:48
Vonar að Pólverjarnir snúi sem fyrst heim á ný Utanríkisráðherra Póllands kveðst vona að pólskir verka- og iðnaðarmenn snúi heim aftur sem fyrst, enda á landið í nokkrum vandræðum vegna atgervisflótta. 24.11.2006 13:45
Le Pen vinsælli en nokkru sinni Hægri öfgamaðurinn Jean-Marie Le er nú vinsælli en nokkrusinni, í Frakklandi, og gerir sér góðar vonir um að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem haldnar verða eftir sex mánuði. 24.11.2006 13:26
15 mánuðir fyrir rán í apóteki Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir rán í apóteki í Kópavogi í febrúar síðastliðnum. Maðurinn réðst inn í lyfjaverslunina Apótekarann að Smiðjuvegi vopnaður hnífi og með andlit sitt hulið, fór inn fyrir afgreiðsluborðið og ógnaði starfsmönnunum. 24.11.2006 13:15
Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum fyrir vatnsverkefni Fermingarbörn söfnuðu sjö milljónum króna í vatnsverkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar með því að ganga í hús um allt land. Er þar um að ræða metupphæð en í fyrra söfnuðust 6,8 milljónir 24.11.2006 13:00