Fleiri fréttir Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley. 6.7.2006 23:06 Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld. 6.7.2006 22:58 Drengur missti meðvitund við inntöku helíums Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum. 6.7.2006 22:54 Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn. 6.7.2006 22:42 Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun. 6.7.2006 22:42 Sautján látnir í átökum á Gaza í dag Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. 6.7.2006 21:00 Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki. 6.7.2006 19:11 Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn. 6.7.2006 18:00 Bílvelta á Uxahryggjum Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir. 6.7.2006 17:45 Felipe Calderon næsti forseti Mexíkó Nú þegar búið er að telja yfir nítíu og átta prósent atkvæða í forsetakosningunum í Mexíkó er ljóst að frambjóðandi hægrimanna Felipe Calderon hefur tryggt sér nauman meirihluta. Kosningarnar fóru fram á sunnudaginn var og endurtelja þurfti atkvæðin. Felipe Calderon fór jafnframt með sigur af hólmi eftir að atkvæði höfðu fyrst verið talin. Frambjóðandi vinstrimanna, Andres Manuel Lopez Obrador, frambjóðandi vinstrimanna, ætlar ekki að sætta sig við úrslitin og segjist ætla að láta ákveðinn kjördómstól fara yfir þau. Endanleg úrslit liggja því jafnvel ekki fyrir fyrr en í september. Lopez Orbador hefur skorað á stuðningsmenn sína að fjölmenna á mótmælafund í Mexíkóborg á laugardaginn og sýna þannig stuðning við hann. 6.7.2006 17:30 Davíð Oddsson segir samkomulag aðila vinnumarkaðarins auka á verðbólguþrýstinginn Verðbólguhorfur hafa versnað að mati Seðlabanka Íslands, sem telur því nauðsynlegt að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir nýlegt samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins auka á verðbólguþrýstinginn og hætta sé á að launahækkanir til hinna lægst launuðu skríði upp allan launastigann. 6.7.2006 17:00 Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum. 6.7.2006 16:15 Faxaflóahafnir dæmdar til að greiða starfsmanni rúmlega 5 milljónir í skaðabætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Faxaflóahafnir hf. til að greiða Sigurði Ólafssyni skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við vinnu sína. Sigurður var þann 20. júlí 2004, sem starfsmaður hjá Skipaþjónustu Reykjavíkurhafnar, að binda olíuskip við Eyjagarð. Landfesti, sver kaðall með nælonkjarna slóst í Sigurð með þeim afleiðingum að hann hlaut höfuðáverka, meiddist í andliti og ökklabrotnaði. 6.7.2006 15:45 Sumarstarfsmaður forðar tuttugu bílum úr eldsvoða Sextán ára norskur strákur í sumarvinnu á bílasölu sem selur lúxusbíla, vann aldeilis fyrir kaupinu sínu þegar kviknaði í næsta húsi við bílasöluna, um nótt. Strákurinn kom á vettvang klukkan fimm um morguninn og sá strax að eldurinn var að berast í bílasöluna. Hann fór því inn í sýningarsalinn og keyrði tuttugu bíla út, hvern á eftir öðrum, meðal annars rándýran Ferrari. Hann ræddi svo við lögregluna sem gerði ekki athugasemdir við aksturinn, þótt stráksi sé ekki kominn með bílpróf. 6.7.2006 15:30 Hatursglæpur að dreifa áróðri Fjórir Svíar hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæp í Hæstarétti landsins. Þeir höfðu áður verið sýknaðir í undirrétti. Mennirnir höfðu dreift fluguritum, fyrir utan skóla, þar sem því var meðal annars haldið fram að útbreiðsla alnæmis væri fyrst og fremst samkynhneigðum að kenna. 6.7.2006 15:15 Forsætisráðherra fluttur á spítala eftir býflugnaárás Anders Fogh, forsætisráðherra Danmerkur, var fluttur lífshættulega veikur á sjúkrahús, um síðustu helgi, eftir að svermur af býflugum réðist á hann. Forsætisráðherrann var að klippa hekk í garði sínum þegar þetta gerðist. Hann forðaði sér á hlaupum, en fékk fimm eða sex stungur í höfuðið og hálsinn. 6.7.2006 14:43 Ný tegund símaþjónustu á markaðinn Ný tegund símaþjónustu býður upp á að hægt er að hafa sama símanúmerið hvar sem maður er staddur í heiminum. Viðskiptavinur fær íslenskt símanúmer sem í öllum atriðum er sambærilegt hefðbundnu símanúmeri aðeins óháð staðsetningu. Þannig greiða viðskiptavinir fast mánaðargjald fyrir þjónustuna en ekki mínútugjald fyrir símtöl í heimasíma. 6.7.2006 13:49 French Skippers and French Days 6.7.2006 13:07 Grikklandsforseti í veðurblíðu á Bessastöðum Karolos Papoulos Grikklandsforseti taldi sig vera kominn til Eyjahafsins, slík var veðurblíðan á Bessastöðum í morgun þegar íslensku forsetahjónin tóku á móti forsetanum og föruneyti hans. Grikklandsforseti er hér á landi í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Grískii forsetinn hafði á orði að spegilsléttur sjórinn og dimmblá fjöllin minntu hann helst á eyjarnar í Eyjahafinu og íslenski starfsbróðir hans virtist sama sinnis. 6.7.2006 12:48 Okrað á Pólverjum sem bjuggu sjö saman í íbúð Sjö Pólverjar sem bjuggu saman í 80 fermetra íbúð greiddu á mann 35 þúsund krónur í leigu á mánuði, eða 245 þúsund krónur samanlagt. Mennirnir leita nú réttar síns eftir að leigusali þeirra lét bera eigur þeirra út á meðan þeir voru í vinnu. 6.7.2006 12:20 Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur vegna manneklu frá og með morgundeginum. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur gengið erfiðlega að fá afleysingarbílstjóra til starfa hjá Strætó bs yfir sumarleyfistímann, sem er bein afleiðing mikillar þennslu í þjóðfélaginu og manneklu á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda öllum leiðum Strætó gangandi til þessa, segir í tilkynningu frá Strætó b.s. 6.7.2006 12:16 Kárahnjúkar Dam Protested 6.7.2006 12:05 650 tonna krani fluttur til Reyðarfjarðar Stórt flutningaskip kom til Reyðarfjarðar í morgun með uppskipunarkrana, sem vegur 585 tonn, eða talsvert meira en fullhlaðin júmbóþota. Þetta mun vera þyngsti einstaki hlutur sem fluttur hefur verið til landsins. 6.7.2006 12:04 Sextíu ár liðin frá því Íslendingingar fengu yfirráð yfir Reykjavíkurflugvelli. Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. 6.7.2006 11:56 The Art of Conversation 6.7.2006 11:55 Norður-Kóreumenn hyggjast skjóta fleiri flaugum á loft Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast ekki vera bundin af yfirlýsingum sínum um að fresta eldflaugatilraunum. Þvert á móti hyggjast Norður-Kóreumenn skjóta fleiri flaugum á loft. 6.7.2006 11:42 Icelandic Seals honored at Cannes 6.7.2006 11:32 KB banki hækkar vexti Fyrstu viðbrögð við stýravaxtahækkun Seðlabankans í morgun voru að KB banki hefur þegar ákveðið að hækka vexti og aðrar lánastofnanir munu að öllum líkindum fylgja fast á eftir í dag eða á morgun, eins og við síðustu stýrivaxtahækkun 6.7.2006 11:20 Tafarlaus lækkun á tollum Neytendasamtökin taka undir þau sjónarmið ASÍ um að lækka eigi tolla á innfluttum landbúnaðarvörum. ASÍ telur að samningaviðræður innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hafi siglt í strand um síðustu helgi og gæti tekið nokkur ár til viðbótar að ljúka þessum viðræðum. Því sé ekki ástæða til að bíða eftir niðurstöðum úr þeim viðræðum heldur að snúa sér að því að lækka tolla á innfluttum landbúnaðarvörum. 6.7.2006 10:54 Fíkniefni í Kópavogi Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar i Kópavogi í gærkvöldi og í nótt, en ekkert þeirra var meiriháttar og í engu tilviki leikur grunur á að efnin sem fundust, hafi verið ætluð til sölu. Öll málin hófust með þvi að lögreglan stöðvaði bíla til að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Fundust þá fíkniefni ýmist á fólki í bílunum eða falin í bílunum. Öllum var sleppt að yfirheyrslum loknum. 6.7.2006 10:49 Lækkun matvælaverðs Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að skapa verði þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Ekki dugi að ná samkomulagi um verð á innlendum matvælum, heldur verði líka að grípa til aðgerða til að lækka verð á innfluttum matvælum. 6.7.2006 10:42 Kárahnjúkum mótmælt Lögreglan á Seyðisfirði mun hafa sérstaka gát á farþegum , sem koma með Norrænu fyrir hádegi, þar sem búist er við fólki, sem hyggst efna til mótmæla gegn Kárahnjúkavirkjun, líkt og gerðist í fyrrasumar. Tveir þeirra,sem lögregla hafði afskipti af í fyrra vegna mótmæla, komu með síðustu ferð skipsins til landsins, en ekki er vitað til að mótmælendur hafi enn slegið upp tjaldbúðum á hálendinu. 6.7.2006 10:31 Leitað að eiganda dóps Lögreglan í Keflavík leitar að eiganda að 170 grömmum af hassi, sem hún fann falin undir steini úti í móa fyrir ofan Bolafót í Njarðvík, aðfararnótt þriðjudags. Hassið fanst vegna ábendingar um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Lögregla telur víst að efnið hafi verið ætlað til sölu . Miðað við smásöluverð á götunni nemur andvirði hassins yfir fjögur hundruð þúsundum króna. 6.7.2006 10:19 Queen Elísabet II í Reykjavík Hið sögufræga skemmtiferðaskip Queen Elísabet- önnur, lagðist að Skarfabakka við Sundahöfn í Reykjavík, í blíðskaparveðri í morgun. Hún er lengsta skip sem hefur viðkomu hér í sumar, eða rétt tæpir 300 metrar að lengd. Hún hefur komið hingað áður en ekki getað lagst við bryggju, þar sem engin bryggja hefur verið nógu löng þartil Skarfabakki var tekin í notkun í vor. 6.7.2006 10:07 Drukkinn ökumaður Lögreglumenn úr Keflavík trúðu ekki sínum eigin augum þegar kvarðinn í öndunarsýnatæki þeirra rauk upp úr öllu valdi þegar ökumaður, grunaður um ölvun, var að blása í það, undir kvöld í gær. Var því þegar farið með manninn á heilsugæslustöð til að taka úr honum blóðsýni. 6.7.2006 09:53 Ekkert lát á árásum Ísraelshers Ekkert lát virðist vera á árásum Ísraelshers á Gaza svæðinu en hernum hefur verið fyrirskipað að herða á aðgerðum sínum til að tryggja lausn hermanns þeirra sem er í haldi Palenstínumanna og koma í veg fyrir árasir á ísraelskt landsvæði. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað Ísrael um að hafa brjóta grundvallarreglur alþjóðlegra mannréttinda gegn óbreyttum borgurum. 6.7.2006 09:39 Hjálmur bjargar Lögreglumenn telja víst að reiðhjólahjálmur hafi komið í veg fyrir að níu ára stúlka slasaðist alvarlega, þegar hún hjólaði utan í bíl á Selfossi undir kvöld og féll í götuna. Hún hruflaðist hér og þar við fallið, en hlaut enga höfuðáverka. Þá varð henni líka til happs á bíllinn var á lítilli ferð. 6.7.2006 08:49 Ristruflanir hjá þriðjungi karlmanna Yfir þriðjungur íslenskra karlmanna á aldrinum 45 til 75 ára hafa fundið fyrir ristruflunum. Niðurstöður fyrstu almennu könnunarinnar á ristruflunum hér á landi voru birtar á dögunum. 6.7.2006 08:15 Endurtalningar krafist í Mexíkó Stuðningsmenn hins vinstrisinnaða Andres Manuel Lopez Obrador krefjast endurtalningar í Mexíkósku forsetakosningunum sem fram fóru síðustu helgi. Hinn hægrisinnaði Felipe Calderon, sem samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er sigurvegari kosninganna, er ekki tilbúinn að fallast á þær kröfur og hefur lýst yfir sigri þrátt fyri ásakanir um mistalningu á atkvæðum. Flokkur Obradors heldur því fram að ekki hafi öll atkvæði verið talin og allt að þrjár milljónir atkvæða vantað í talningu. Nú stendur yfir endurtalning 35% atkvæða og er meirihluti þeirra talin tilheyra flokki Obradors. Calderon sem er úr flokki fráfarandi forseta Vicente Fox, segist tilbúinn til að stofna stjórn með andstæðingi sínum Obrador ef til þess kemur. 6.7.2006 08:07 Frystitogari strandaði við Neskaupstað Frystitogarinn Björgvin EA lenti á sand-grynningum við innsiglinguna í Neskaupstað í morgun, þegar skipið var að koma úr veiðiferð. Gott veður var á staðnum og losnaði skipið strax og togarinn Barði togaði í það. Að sögn skipstjórans á Björgvin var engin hætta á ferðum, engar skemmdir urðu á skipinu og tafði þetta förina um aðeins hálftíma. Dýpkunarskip hefur verið að færa til efni í innsiglingunni að undanförnu og hefur rennan inn í höfnina að líkindum eitthvað breyst. 6.7.2006 07:58 Ólafur Ragnar tók við fyrsta eintakinu af nýrri bók um smáríki Forseti Íslands tók við fyrsta eintakinu af nýrri bók um smáríki í dag. Nemendur í sumarskóla um smáríki fengu tækifæri til að spyrja fyrsta stjórnmálafræðiprófessorinn spjörunum úr. 5.7.2006 23:45 Bush kærður til íslenskra yfirvalda fyrir stríðsglæpi George Bush eldri hefur verið kærður til íslenskra yfirvalda fyrir glæpi gegn mannkyni og árásarstríð. Á heimasíðunni aldeilis.net birtist kæran í heild sinni. Hún er gefin út af hópi áhugafólks um mannréttindi og réttlæti. Kæran var afhent ríkislögreglustjóra á mánudaginn. 5.7.2006 23:30 Hlupu hálfnakin gegn nautahlaupi Dýraverndunarsinnar hlupu fáklæddir og sumir jafnvel natkir um götur Pamplona á Spáni í dag til að mótmæla árlegu nautahlaupi sem verður þar í borg á föstudaginn. Aðstandendur mótmælanna telja að um það bil þúsund manns hafi tekið þátt í hlaupinu í dag en yfrvöld draga þá talningu i efa. 5.7.2006 23:15 Forsætisráðherra Íraks krefst ítarlegrar rannsóknar á morðum Forsætisráðherra Íraks krefst þess að morð bandarískra hermanna á ungri konu og fjölskyldu hennar verði rannsakað ítarlega. Fyrrverandi hermaður hefur verið ákærður fyrir morðin og að hafa nauðgað ungu konunni. Talið er að allt að fjórir hermenn til viðbótar hafi átt þátt í ódæðunum. 5.7.2006 23:00 Forseti Grikklands kominn til landsins Forseti Grikklands kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Hann mun ekki munda veiðistöng í heimsókn sinni líkt og fyrrverandi Bandaríkjaforseti, en er þó afreksmaður þegar kemur að annars konar stöng. 5.7.2006 22:56 Sjá næstu 50 fréttir
Bush Bandaríkjaforseti kominn á sjötugsaldur George Bush, Bandaríkjaforseti, er sextugur í dag. Hann ætlar þó ekki að halda daginn hátíðlega. Bush gerði lítið úr aldri sínum í dag og sagði að kvöldið yrði notað til að snæða kvöldverð með stjórnmálamönnum í Chicago, þess á meðal borgarstjóranum og demókratanum Richard Daley. 6.7.2006 23:06
Vill að alþjóðasamfélagið stöðvi aðgerðir Ísraela Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, vill að alþjóðasamfélagið reyni að stöðva aðgerðir Ísraela á Gaza svæðinu. Haniyeh segir árásirnar glæpi gegn mannkyninu en hann heimsótti fórnarlömb árásanna á Shifa spítalann í Gaza borg í kvöld. 6.7.2006 22:58
Drengur missti meðvitund við inntöku helíums Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum. 6.7.2006 22:54
Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn. 6.7.2006 22:42
Bandarískur hermaður játaði nauðgun og morð Steven Green, fyrrverandi bandarískur hermaður, játaði í dag að hafa nauðgað stúlku í Írak og drepið hana og fjölskyldu hennar. Maðurinn sem er 21 árs var leystur frá störfum í hernum þar sem hann var sagður þjást af persónuleikaröskun. 6.7.2006 22:42
Sautján látnir í átökum á Gaza í dag Að minnsta kosti sextán Palestínumenn féllu í árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í kvöld. Herinn hefur fengið skipanir um að ráðast enn lengra inn á Gazasvæðið. Ofbeldið í dag er það mesta síðan Ísraelsher yfirgaf Gazasvæðið fyrir tæplega ári síðan. 6.7.2006 21:00
Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki. 6.7.2006 19:11
Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn. 6.7.2006 18:00
Bílvelta á Uxahryggjum Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir. 6.7.2006 17:45
Felipe Calderon næsti forseti Mexíkó Nú þegar búið er að telja yfir nítíu og átta prósent atkvæða í forsetakosningunum í Mexíkó er ljóst að frambjóðandi hægrimanna Felipe Calderon hefur tryggt sér nauman meirihluta. Kosningarnar fóru fram á sunnudaginn var og endurtelja þurfti atkvæðin. Felipe Calderon fór jafnframt með sigur af hólmi eftir að atkvæði höfðu fyrst verið talin. Frambjóðandi vinstrimanna, Andres Manuel Lopez Obrador, frambjóðandi vinstrimanna, ætlar ekki að sætta sig við úrslitin og segjist ætla að láta ákveðinn kjördómstól fara yfir þau. Endanleg úrslit liggja því jafnvel ekki fyrir fyrr en í september. Lopez Orbador hefur skorað á stuðningsmenn sína að fjölmenna á mótmælafund í Mexíkóborg á laugardaginn og sýna þannig stuðning við hann. 6.7.2006 17:30
Davíð Oddsson segir samkomulag aðila vinnumarkaðarins auka á verðbólguþrýstinginn Verðbólguhorfur hafa versnað að mati Seðlabanka Íslands, sem telur því nauðsynlegt að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir nýlegt samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins auka á verðbólguþrýstinginn og hætta sé á að launahækkanir til hinna lægst launuðu skríði upp allan launastigann. 6.7.2006 17:00
Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum. 6.7.2006 16:15
Faxaflóahafnir dæmdar til að greiða starfsmanni rúmlega 5 milljónir í skaðabætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Faxaflóahafnir hf. til að greiða Sigurði Ólafssyni skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við vinnu sína. Sigurður var þann 20. júlí 2004, sem starfsmaður hjá Skipaþjónustu Reykjavíkurhafnar, að binda olíuskip við Eyjagarð. Landfesti, sver kaðall með nælonkjarna slóst í Sigurð með þeim afleiðingum að hann hlaut höfuðáverka, meiddist í andliti og ökklabrotnaði. 6.7.2006 15:45
Sumarstarfsmaður forðar tuttugu bílum úr eldsvoða Sextán ára norskur strákur í sumarvinnu á bílasölu sem selur lúxusbíla, vann aldeilis fyrir kaupinu sínu þegar kviknaði í næsta húsi við bílasöluna, um nótt. Strákurinn kom á vettvang klukkan fimm um morguninn og sá strax að eldurinn var að berast í bílasöluna. Hann fór því inn í sýningarsalinn og keyrði tuttugu bíla út, hvern á eftir öðrum, meðal annars rándýran Ferrari. Hann ræddi svo við lögregluna sem gerði ekki athugasemdir við aksturinn, þótt stráksi sé ekki kominn með bílpróf. 6.7.2006 15:30
Hatursglæpur að dreifa áróðri Fjórir Svíar hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæp í Hæstarétti landsins. Þeir höfðu áður verið sýknaðir í undirrétti. Mennirnir höfðu dreift fluguritum, fyrir utan skóla, þar sem því var meðal annars haldið fram að útbreiðsla alnæmis væri fyrst og fremst samkynhneigðum að kenna. 6.7.2006 15:15
Forsætisráðherra fluttur á spítala eftir býflugnaárás Anders Fogh, forsætisráðherra Danmerkur, var fluttur lífshættulega veikur á sjúkrahús, um síðustu helgi, eftir að svermur af býflugum réðist á hann. Forsætisráðherrann var að klippa hekk í garði sínum þegar þetta gerðist. Hann forðaði sér á hlaupum, en fékk fimm eða sex stungur í höfuðið og hálsinn. 6.7.2006 14:43
Ný tegund símaþjónustu á markaðinn Ný tegund símaþjónustu býður upp á að hægt er að hafa sama símanúmerið hvar sem maður er staddur í heiminum. Viðskiptavinur fær íslenskt símanúmer sem í öllum atriðum er sambærilegt hefðbundnu símanúmeri aðeins óháð staðsetningu. Þannig greiða viðskiptavinir fast mánaðargjald fyrir þjónustuna en ekki mínútugjald fyrir símtöl í heimasíma. 6.7.2006 13:49
Grikklandsforseti í veðurblíðu á Bessastöðum Karolos Papoulos Grikklandsforseti taldi sig vera kominn til Eyjahafsins, slík var veðurblíðan á Bessastöðum í morgun þegar íslensku forsetahjónin tóku á móti forsetanum og föruneyti hans. Grikklandsforseti er hér á landi í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Grískii forsetinn hafði á orði að spegilsléttur sjórinn og dimmblá fjöllin minntu hann helst á eyjarnar í Eyjahafinu og íslenski starfsbróðir hans virtist sama sinnis. 6.7.2006 12:48
Okrað á Pólverjum sem bjuggu sjö saman í íbúð Sjö Pólverjar sem bjuggu saman í 80 fermetra íbúð greiddu á mann 35 þúsund krónur í leigu á mánuði, eða 245 þúsund krónur samanlagt. Mennirnir leita nú réttar síns eftir að leigusali þeirra lét bera eigur þeirra út á meðan þeir voru í vinnu. 6.7.2006 12:20
Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur vegna manneklu frá og með morgundeginum. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur gengið erfiðlega að fá afleysingarbílstjóra til starfa hjá Strætó bs yfir sumarleyfistímann, sem er bein afleiðing mikillar þennslu í þjóðfélaginu og manneklu á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda öllum leiðum Strætó gangandi til þessa, segir í tilkynningu frá Strætó b.s. 6.7.2006 12:16
650 tonna krani fluttur til Reyðarfjarðar Stórt flutningaskip kom til Reyðarfjarðar í morgun með uppskipunarkrana, sem vegur 585 tonn, eða talsvert meira en fullhlaðin júmbóþota. Þetta mun vera þyngsti einstaki hlutur sem fluttur hefur verið til landsins. 6.7.2006 12:04
Sextíu ár liðin frá því Íslendingingar fengu yfirráð yfir Reykjavíkurflugvelli. Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. 6.7.2006 11:56
Norður-Kóreumenn hyggjast skjóta fleiri flaugum á loft Stjórnvöld í Norður-Kóreu segjast ekki vera bundin af yfirlýsingum sínum um að fresta eldflaugatilraunum. Þvert á móti hyggjast Norður-Kóreumenn skjóta fleiri flaugum á loft. 6.7.2006 11:42
KB banki hækkar vexti Fyrstu viðbrögð við stýravaxtahækkun Seðlabankans í morgun voru að KB banki hefur þegar ákveðið að hækka vexti og aðrar lánastofnanir munu að öllum líkindum fylgja fast á eftir í dag eða á morgun, eins og við síðustu stýrivaxtahækkun 6.7.2006 11:20
Tafarlaus lækkun á tollum Neytendasamtökin taka undir þau sjónarmið ASÍ um að lækka eigi tolla á innfluttum landbúnaðarvörum. ASÍ telur að samningaviðræður innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hafi siglt í strand um síðustu helgi og gæti tekið nokkur ár til viðbótar að ljúka þessum viðræðum. Því sé ekki ástæða til að bíða eftir niðurstöðum úr þeim viðræðum heldur að snúa sér að því að lækka tolla á innfluttum landbúnaðarvörum. 6.7.2006 10:54
Fíkniefni í Kópavogi Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar i Kópavogi í gærkvöldi og í nótt, en ekkert þeirra var meiriháttar og í engu tilviki leikur grunur á að efnin sem fundust, hafi verið ætluð til sölu. Öll málin hófust með þvi að lögreglan stöðvaði bíla til að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Fundust þá fíkniefni ýmist á fólki í bílunum eða falin í bílunum. Öllum var sleppt að yfirheyrslum loknum. 6.7.2006 10:49
Lækkun matvælaverðs Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, segir að skapa verði þjóðarsátt um lækkun matvælaverðs á Íslandi. Ekki dugi að ná samkomulagi um verð á innlendum matvælum, heldur verði líka að grípa til aðgerða til að lækka verð á innfluttum matvælum. 6.7.2006 10:42
Kárahnjúkum mótmælt Lögreglan á Seyðisfirði mun hafa sérstaka gát á farþegum , sem koma með Norrænu fyrir hádegi, þar sem búist er við fólki, sem hyggst efna til mótmæla gegn Kárahnjúkavirkjun, líkt og gerðist í fyrrasumar. Tveir þeirra,sem lögregla hafði afskipti af í fyrra vegna mótmæla, komu með síðustu ferð skipsins til landsins, en ekki er vitað til að mótmælendur hafi enn slegið upp tjaldbúðum á hálendinu. 6.7.2006 10:31
Leitað að eiganda dóps Lögreglan í Keflavík leitar að eiganda að 170 grömmum af hassi, sem hún fann falin undir steini úti í móa fyrir ofan Bolafót í Njarðvík, aðfararnótt þriðjudags. Hassið fanst vegna ábendingar um grunsamlegar mannaferðir á svæðinu. Lögregla telur víst að efnið hafi verið ætlað til sölu . Miðað við smásöluverð á götunni nemur andvirði hassins yfir fjögur hundruð þúsundum króna. 6.7.2006 10:19
Queen Elísabet II í Reykjavík Hið sögufræga skemmtiferðaskip Queen Elísabet- önnur, lagðist að Skarfabakka við Sundahöfn í Reykjavík, í blíðskaparveðri í morgun. Hún er lengsta skip sem hefur viðkomu hér í sumar, eða rétt tæpir 300 metrar að lengd. Hún hefur komið hingað áður en ekki getað lagst við bryggju, þar sem engin bryggja hefur verið nógu löng þartil Skarfabakki var tekin í notkun í vor. 6.7.2006 10:07
Drukkinn ökumaður Lögreglumenn úr Keflavík trúðu ekki sínum eigin augum þegar kvarðinn í öndunarsýnatæki þeirra rauk upp úr öllu valdi þegar ökumaður, grunaður um ölvun, var að blása í það, undir kvöld í gær. Var því þegar farið með manninn á heilsugæslustöð til að taka úr honum blóðsýni. 6.7.2006 09:53
Ekkert lát á árásum Ísraelshers Ekkert lát virðist vera á árásum Ísraelshers á Gaza svæðinu en hernum hefur verið fyrirskipað að herða á aðgerðum sínum til að tryggja lausn hermanns þeirra sem er í haldi Palenstínumanna og koma í veg fyrir árasir á ísraelskt landsvæði. Sameinuðu þjóðirnar hafa sakað Ísrael um að hafa brjóta grundvallarreglur alþjóðlegra mannréttinda gegn óbreyttum borgurum. 6.7.2006 09:39
Hjálmur bjargar Lögreglumenn telja víst að reiðhjólahjálmur hafi komið í veg fyrir að níu ára stúlka slasaðist alvarlega, þegar hún hjólaði utan í bíl á Selfossi undir kvöld og féll í götuna. Hún hruflaðist hér og þar við fallið, en hlaut enga höfuðáverka. Þá varð henni líka til happs á bíllinn var á lítilli ferð. 6.7.2006 08:49
Ristruflanir hjá þriðjungi karlmanna Yfir þriðjungur íslenskra karlmanna á aldrinum 45 til 75 ára hafa fundið fyrir ristruflunum. Niðurstöður fyrstu almennu könnunarinnar á ristruflunum hér á landi voru birtar á dögunum. 6.7.2006 08:15
Endurtalningar krafist í Mexíkó Stuðningsmenn hins vinstrisinnaða Andres Manuel Lopez Obrador krefjast endurtalningar í Mexíkósku forsetakosningunum sem fram fóru síðustu helgi. Hinn hægrisinnaði Felipe Calderon, sem samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er sigurvegari kosninganna, er ekki tilbúinn að fallast á þær kröfur og hefur lýst yfir sigri þrátt fyri ásakanir um mistalningu á atkvæðum. Flokkur Obradors heldur því fram að ekki hafi öll atkvæði verið talin og allt að þrjár milljónir atkvæða vantað í talningu. Nú stendur yfir endurtalning 35% atkvæða og er meirihluti þeirra talin tilheyra flokki Obradors. Calderon sem er úr flokki fráfarandi forseta Vicente Fox, segist tilbúinn til að stofna stjórn með andstæðingi sínum Obrador ef til þess kemur. 6.7.2006 08:07
Frystitogari strandaði við Neskaupstað Frystitogarinn Björgvin EA lenti á sand-grynningum við innsiglinguna í Neskaupstað í morgun, þegar skipið var að koma úr veiðiferð. Gott veður var á staðnum og losnaði skipið strax og togarinn Barði togaði í það. Að sögn skipstjórans á Björgvin var engin hætta á ferðum, engar skemmdir urðu á skipinu og tafði þetta förina um aðeins hálftíma. Dýpkunarskip hefur verið að færa til efni í innsiglingunni að undanförnu og hefur rennan inn í höfnina að líkindum eitthvað breyst. 6.7.2006 07:58
Ólafur Ragnar tók við fyrsta eintakinu af nýrri bók um smáríki Forseti Íslands tók við fyrsta eintakinu af nýrri bók um smáríki í dag. Nemendur í sumarskóla um smáríki fengu tækifæri til að spyrja fyrsta stjórnmálafræðiprófessorinn spjörunum úr. 5.7.2006 23:45
Bush kærður til íslenskra yfirvalda fyrir stríðsglæpi George Bush eldri hefur verið kærður til íslenskra yfirvalda fyrir glæpi gegn mannkyni og árásarstríð. Á heimasíðunni aldeilis.net birtist kæran í heild sinni. Hún er gefin út af hópi áhugafólks um mannréttindi og réttlæti. Kæran var afhent ríkislögreglustjóra á mánudaginn. 5.7.2006 23:30
Hlupu hálfnakin gegn nautahlaupi Dýraverndunarsinnar hlupu fáklæddir og sumir jafnvel natkir um götur Pamplona á Spáni í dag til að mótmæla árlegu nautahlaupi sem verður þar í borg á föstudaginn. Aðstandendur mótmælanna telja að um það bil þúsund manns hafi tekið þátt í hlaupinu í dag en yfrvöld draga þá talningu i efa. 5.7.2006 23:15
Forsætisráðherra Íraks krefst ítarlegrar rannsóknar á morðum Forsætisráðherra Íraks krefst þess að morð bandarískra hermanna á ungri konu og fjölskyldu hennar verði rannsakað ítarlega. Fyrrverandi hermaður hefur verið ákærður fyrir morðin og að hafa nauðgað ungu konunni. Talið er að allt að fjórir hermenn til viðbótar hafi átt þátt í ódæðunum. 5.7.2006 23:00
Forseti Grikklands kominn til landsins Forseti Grikklands kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Hann mun ekki munda veiðistöng í heimsókn sinni líkt og fyrrverandi Bandaríkjaforseti, en er þó afreksmaður þegar kemur að annars konar stöng. 5.7.2006 22:56