Fleiri fréttir

94% nýútskrifaðra 10. bekkinga ætlar beint í framhaldsskóla

Framhaldsskólarnir eru nú hættir að taka við umsóknum fyrir komandi skólaár, alls bárust rúmlega 6.600 umsóknir nýnema, þar af 4.528 frá nýútskrifuðum tíundu-bekkingum. Það eru því rúm 94% árgangsins sem nú er að yfirgefa grunnskólana sem ætlar beint í framhaldsskóla.

Nítján börn í lífshættu á hverjum degi

Á hverjum degi eru 19 börn á Íslandi sett í lífshættu með því að láta þau sitja fyrir framan öryggispúða í bílum. Ný könnun á öryggi barna í bílum sýnir að 3 af hverjum 100 börnum eru ekki látin nota öryggisbúnað á leið í leikskólann.

Fyrrum ritstjórar DV dæmdir til að greiða 1,5 milljón króna í miskabætur

Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, fyrrum ritstjórar DV, voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða saman eina og hálfa milljóna króna í miskabætur ásamt dráttarvöxtum frá 1. desember 2005, vegna ummæla sem birtust um Gunnar Hrafn Birgisson, sálfræðing í DV í júní árið 2005. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk.

Alelda rúta

Rúta á leið um Sandskeið varð alelda um þrjúleytið í dag. Nokkrir farþegar voru í rútunni og sakaði engan þeirra. Slysið átti sér stað rétt fyrir neðan Litlu kaffistofuna og þurfti að loka fyrir umferð meðan lögreglan og slökkviliðið athafnaði sig á vettvangi. Búið er að opna aftur fyrir umferð.

Hefur strax misst sætið sitt

Einn sveitarstjórnarmanna N-listans í Djúpavogshreppi hefur misst nýfengið sæti sitt. Í sveitarstjórnarkosningunum í lok maí voru fjórði maður N-lista og annar maður L-lista jafnir. Hlutkesti var kastað um sætið og fékk þá N-listinn sætið. L-listinn kærði úrslitin og komst kærunefnd að þeirri niðurstöðu í fyrradag, að eitt ógilt atkvæði hefði í raun og veru verið gilt og það atkvæði tilheyrði L-listanum. Sem þýðir að L-listinn fékk sinn annan mann inn.

Betri GSM þjónusta í miðbænum á 17. júní

Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í miðbæ Reykjavíkur fyrir hátíðarhöld á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM viðskiptavinum þar sem gera má ráð fyrir miklum fjölda gesta í tengslum við hátíðarhöld á svæðinu.

Leiðbeinandi reglur um netnotkun barna á leið inn á heimilin

Síminn og SAFT ætla að aðstoða foreldra við að setja börnum reglur um net- og símanotkun. Leiðbeiningaspjald er á leið inn á heimili grunnskólabarna á aldrinum 6-14 ára. SAFT, eða Samtök, fjölskylda og tækni, er verkefni á vegum Heimilis og skóla til að stuðla að vakningu hvað varðar örugga notkun barna og unglinga á Netinu og öðrum miðlum. SAFT varð til í þeim tilgangi að stuðla til öruggrar notkunar barna á miðlunum sem eru allt í kring um þau.

Heilbrigðisráðherra tók á móti tugum undirskrifta

Siv Friðsleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, tók á móti tugum undirskrifta frá starfsmönnum Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur í heilbrigðisráðuneytinu í morgun. Starfsmennirnir eru mótfallnir því að starfsemi heilsuverndarstöðvarinnar verði flutt í nýtt húsnæði í Mjódd.

Stjórnarskrá ESB bíður til 2008

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í Brussel í Belgíu í morgun að styðja áætlun um að ríki og alþjóðlegar stofnanir tryggi Palestínumönnum fjárstuðning, en sniðgangi um leið heimastjórn Hamas-liða. Leiðtogarnir hafa einnig gefið sér frest til ársins 2008 til að taka ákörðun um framtíð stjórnarskrár sambandsins.

Vill breytingu á lífeyriskjörum æðstu embættismanna

Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, leggur til að lífeyriskjör æðstu embættismanna verði reiknuð upp til launa, þannig að laun þeirra hækki en þeir greiði með sambærilegum hætti og aðrir í almenna lífeyrissjóði.

NATO kemur ekki að málinu nema viðræður sigli í strand

NATO mun ekki taka á varnarmálum Íslands nema viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna sigli í strand. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í morgun í kjölfar fundar Jaap De Hoop Schaffer, framkvæmdastjóra NATO, með Geir Haarde forsætisráðherra og Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra.

Mannskæð gassprenging í Moskvu

Að minnsta kosti tveir létu lífið og sex slösuðust þegar gassprenging varð í fjölbýlishúsi í Moskvu í morgun. Nokkrir veggir hússins hrundu við sprenginguna. 17 slökkvubílar komu þegar á vettvang og 9 björgunarsveitarhópar leita nú í rústum hússins af einhverjum sem þar kunna að liggja.

Svikahrappar safna fé

Borið hefur á því að svikahrappar hafa undanfarið hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp og sagst munu koma heim til fólks og sækja féð. Fólk er beðið að tortryggja þá sem stunda þessi vinnubrögð því hið rétta er að fjársöfnun Fjölskylduhjálpar fer öll í gegnum banka og það er einungis BM-ráðgjöf sem safnar fé fyrir Fjölskylduhjálp með sölu geisladiska.

5 útlendingar festu jeppa sinn

Fimm útlendingar festu jeppa sinn við Alftárkróka, á leiðinni í milli Húsafells og Arnarvatnsheiðar í nótt, og kölluðu eftir hjálp.

Hjólað í kringum Ísland

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla í íslenskri veðráttu. Því hafa hjólagarparnir Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir fengið að kynnast en þau hjóla nú hringinn í kringum Ísland.

Phoenix selur dótturfyrirtæki

Phoenix fjárfestingar hafa selt dótturfyrirtæki sitt, Laugarakur, sem hefur séð um rúmlega 70% byggingarframkvæmda í hinu nýja Akrahverfi í Garðabæ. Kaupverðið er trúnaðarmál en lauslegt mat er að fullklárað húsnæðið verði um 12 milljarða króna virði.

Batamerki síamstvíburastúlkna

Síamstvíburastúlkurnar sem aðskildar voru á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum eru farnar að sýna merki um bata. Læknar eru bjartsýnir á að bati stúlknanna muni ganga að óskum. Stúlkurnar gengust undir tólf tíma aðgerð í fyrradag og í gær og þótti aðgerðin heppanst vel. Systurnar voru fastar saman frá neðra brjóstholi niður að mjaðmagrind. Aðgerðin þótti einstaklega flókin þar sem endurskapa þurfti mörg mikilvæg líffæri en önnur stúlknanna var aðeins með eitt nýra.

Möguleg stökkbreyting fuglaflensuveirunnar

Nýjasta dæmi fuglaflensusmits í mönnum í Kína bendir til þess að H5N1 veiran hafi stökkbreyst. Veiran virðist nú vera jafn smitandi í heitu veðri og í köldu að sögn heilbrigðisráðherra Hong Kong. H5N1 veirustofninn þrífst best í köldum veðrum á norðurhveli jarðar en í gær bárust fréttir af smiti 31 árs vörubílstjóra. Einnig virðist vera hægt að smitast af fuglaflensunni af fuglum sem sýna engin einkenni smits. Rannsóknir á fuglum á mörkuðum í Kína sem taldir voru heilbrigðir sýndu að um eitt prósent þeirra voru smitaðir af fuglaflensu.

Bíl ekið inn í búð

Lögreglan í Keflavík fékk tilkynningu um það í nótt að bíl hefði verið ekið inn í búð. Við nánari athugun kom í ljós að famendi bíls var kominn inn í húsgagnaverslun við Hafnargötu og höfðu tvær stórar rúður brotnað. Ökumaður, sem hafði misst stjórn á bílnum þegar hann ók út úr hringtorgi, slapp ómeiddur og sömuleiðis farþegar hans.

Tveir menn finnast látnir við Merapi-fjall

Tveir menn fundust látnir við rætur eldfjallsins Merapi á eyjunni Jövu í Indónesíu í morgun. Mennirnir höfðu leitað skjóls í hálfniðurgröfnu skýli sem hafði grafist undir möl, grjóti og hrauni. Mennirnir létust af völdum hita og var annar mannanna illa brunninn af völdum gufu. Skýlið sjálft var fullt af ösku. Merapi-fjallið hefur gosið öðru hverju í nokkrar vikur en á miðvikudaginn var stórt gos. Björgunarmenn höfðu reynt að komast til mannanna síðan í gær, en annar þeirra var þorpsbúi en hinn meðlimur björgunarsveita.

Norður-Kórea að prófa flaugar sem draga milli heimsálfa

Norður-Kóreumenn hafa flýtt undirbúningi að prófun eldflauga sem draga milli heimsálfa segir Bandaríkjastjórn. Sérfræðingar segja að Norður-Kórea hafi yfir að ráða hundruðum flauga, sem stofni Suður-Kóreu og Japan í hættu. Norður-Kóreustjórn naut góðs af samskiptum við Sovétríkin í kalda stríðinu við þróun flaugaáætlunar sinnar.

Kostaði meira en hálfa milljón að laga skemmdir

Kostnaður vegna skemmda sem unnar voru á verslunarmiðstöðinni Grímsbæ við Bústaðaveg í fyrra nemur yfir hálfri milljón króna. Grímur Þórisson, formaður húsfélagsins, segir ástandið hafa versnað eftir að verslun 10-11 kom í húsið. Verslunin sé opin fram á

Fóðrar hunda sína á hauslausum hestum

Hundar í Flekkudal við Meðalfellsvatn eru fóðraðir á hesthræjum sem látin eru liggja undir berum himni dögum saman. Mjög óvenjulegt, segir dýralæknir.

Ríkisstjórnin skoði hvað gert verði

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að ríkisstjórnin sé nú að fara yfir það hvernig hún geti brugðist við til að draga úr verðbólgu í landinu. Landbúnaðarráðuneytið komi að því eins og önnur ráðuneyti en hann vill ekki tilgreina til hvaða ráða landbúnaðarráðuneytið geti gripið.

Ríkisstjórnin vill hækka barnabætur

Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögur verkalýðshreyfingarinnar um hækkun barnabóta og breyta á vaxtabótakerfinu í samræmi við fasteignamarkaðinn. Fráfarandi forsætisráðherra segir að skattleysismörkin verði hækkuð verulega.

Ahmadinejad segist vera að skoða tilboð fastra meðlima Öryggisráðsins

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, var spurður um tilboð fastra meðlima Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í opinberri heimsókn í Kína í morgun. Hann sagðist hafa beðið samstarfsfólk sitt að fara yfir tilboðið sem gengur út á hvata og refsiaðgerðir til að fá Íran til að hætta við kjarnorkuáætlun sína. Spurður um helförina og Ísraelsríki sagði Ahmadinejad enga misklíð vera á milli gyðinga, kristinna og múslima.

Tveggja og hálfs árs fangelsi

Karlmaður á þrítugsaldri, Stefán Hjaltested Ófeigsson, var í gær dæmdur í Hæstarétti í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku. Staðfestir Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.

Lyfsalar buðu ekki upp á ódýrari lyf

Aðeins fjögur apótek buðu í verðkönnun ASÍ upp á ódýrara samheitalyf eins og reglur kveða á um. Munur á frumlyfi og samheitalyfi með sömu verkun er allt að 69 prósent. Lyfsalar standa sig ekki nógu vel segir aðstoðarlandlæknir.

Bóluefni vegna heimsfaraldurs

Norrænir heilbrigðisráðherrar eru sammála um að vinna áfram að því að framleitt verði sameiginlegt bóluefni vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu. Þessi niðurstaða kom fram á ráðherrafundi í Noregi sem stóð dagana 11. til 13. júní.

Allir bátarnir enn í höfn

Hvalveiðitímabilið þetta árið hófst í fyrradag en vegna talsverðrar brælu á miðunum, hélt enginn hvalveiðibátanna út til veiða á miðin.

Eitt karlavígi á eftir að falla

Valgerður Sverrisdóttir tók við utanríkisráðuneytinu í gær af Geir H. Haarde og er því fyrsta konan til að gegna embættinu. Hún lét þau orð falla að nú væri forsætisráðuneytið eina ósigraða karlavígið.

Vísitala íbúðaverðs lækkar í fyrsta sinn síðan í desember

Vísitala íbúðaverðs lækkaði örlítið í maímánuði eða um 0,2 prósent. Þetta kom fram í Vegvísi Landsbankans í gær. Verð á fjölbýli lækkaði meira á milli mánaða en verð á sérbýli. Þetta er fyrsta lækkun fasteignavísitölu síðan í desember síðastliðnum en vísitalan hækkaði talsvert á fyrstu mánuðum ársins. Þetta gæti táknað kólnun fasteignamarkaðarins að mati sérfræðinga bankans en þó ber að varast að draga of miklar ályktanir af lækkuninni núna, því sveiflur eru talsverðar á milli mánaða á fasteignamarkaðinum.

Áætlanir sagðar hafa staðist

Samdráttur í þjónustu og lokun þjónustustofnana Varnarliðsins á Miðnesheiði gengur samkvæmt áætlun, að sögn Friðþórs Eydal, upplýsingafulltrúa Varnarliðsins. Lokanir stofnana hófust í byrjun maí og hefur meðal annars háskólaútibúi, sérverslunum og miðbylgjuútvarpi verið lokað.

Brunar á Akranesi og í Húsavík

Eldur var kveiktur í rusli við olíubirgðastöð Olís á Akranesi í gærkvöldi og munaði minnstu að hann næði í tunnu með eldfimu efni með ófyrirséðum afleiðingum. Slökkviliði tókst að koma í veg fyrir það en brennuvargurinn er ófundinn. Um svipað leyti kviknaði í íbúðarhúsi úr timbri á Húsavík þegar unnið var að viðgerðum þar. Slökkviliðið slökkti þar á augabragði.

Ofsaakstur á sæbraut

Glæfraakstur ölvaðs ökumanns endaði úti í móa á Laugarnesinu í Reykjavík laust fyrir miðnætti, en þá hafði hann nýverið ekið utan í þrjá bíla og hundsað stöðvunarmerki lögreglu. Vegfarendur tilkynntu lögreglu um háskalegt ökulag mannsins en þegar hún ætlaði að hafa afskipti af honum á Sæbraut jók hann hraðann og ók til vesturs. Þar sem Sæbrautin sveigir til vinstri á Laugarnesinu missti maðurinn stjórn á bílnum, enda gatan rennblaut, svo hann þeyttist út af. Maðurinn og tveir farþegar sluppu ómeiddir.

Fótboltabullur til vandræða

Þýska lögreglan stendur í ströngu þessa dagana vegna óláta í fótboltabullum. Hefur hún fengið aðstoð frá pólskum og breskum lögreglumönnum.

Stóriðjustefnan heldur áfram

Nýr iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, Jón Sigurðsson, segir komu sína í ráðuneytið ekki marka stefnubreytingu í málefnum stóriðju. "Það er unnið af mikilli varúð. Það má ekki dæma stóriðjustefnuna eftir mestu og stærstu framkvæmdum Íslandssögunnar, sem standa nú yfir. Við þurfum að horfa á þetta yfir lengri tíma."

Braut nef eftir rifrildi á Dalvík

Tæplega nítján ára gamall maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás á Dalvík í október síðastliðnum. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í fyrradag.

Köttur sveltur í nokkrar vikur

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir brot á dýraverndunarlögum í febrúar á síðasta ári.

Bill Gates að hætta

Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, tilkynnti í gær að hann ætli að hætta að sjá um almennan rekstur fyrirtækisins en hann er einn af stofnendum þess. Í staðinn ætlar Gates að nýta tíma sinn í baráttu fyrir bættri heilsu fólks og eflingu menntunar á vegum stofnunar Bill og Melindu Gates. Fyrirtækið tilkynnti að tveggja ára ferli, sem á að tryggja að breytingarnar myndu ganga vel fyrir sig, væri farið í gang.

Sjá næstu 50 fréttir