Fleiri
Concerns About Freepaper 15.6.2006 12:38 PM Change Today 15.6.2006 12:32 Sjálfstæðismenn í forsætisráðuneytinu í 39 ár af 52 Sjálfstæðismenn hafa setið í forsætisráðherrastóli í tæp 39 ár í fimmtíu og tveggja ára sögu lýðveldisins og Framsóknarmenn í um 18 ár. Ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra er það 24. frá stofnun lýðveldisins og er hann 15. maðurinn til að gegna embætti forsætisráðherra frá árinu 1944. 15.6.2006 12:15 Maður ákærður vegna mannráns í Belgíu Belgíska lögreglan hefur ákært mann um fertugt fyrir að hafa rænt tveimur skólastúlkum, 7 og 10 ára. Stúlkurnar, sem eru stjúpsystur, hurfu úr götuveislu í borginni Liege seint á laugardagskvöldið og hefur þeirra verið leitað síðan, án árangurs. 15.6.2006 11:45 41 sprenging í Tælandi Að minnsta kosti tveir féllu og sextán særðust þegar sprengjur sprungu á um fjörutíu mismunandi stöðum á Tælandi snemma í morgun. Sprengjunum hafi verið komið fyrir víðsvegar í þremur héruðum í suðurhluta landsins þar sem múslimar eru í meirihluta. 15.6.2006 11:30 Back Home 15.6.2006 11:29 Taylor verður fangelsaður í Bretlandi Bretar hafa lofað því að fangelsa Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, verði hann sakfelldur fyrir stríðsglæpi. Þar með verður hægt að hefja réttarhöld yfir Taylor fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Taylor er nú í haldi í Sierra Leone, nágrannaríki Líberu. 15.6.2006 11:15 Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar funda Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í gær á aðalfundi stofnunarinnar. Nokkur stærstu lönd í mið- og Austur-Asíu eiga aðild að stofnuninni, Kína, Rússland, Tajikistan, Kasakstan, Kyrgistan og Úsbekistan. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. 15.6.2006 11:00 Skotárás í Karachi Þrír féllu og tveir særðust þegar byssumenn réðust á bifreið á vegum pakistönsku lögreglunnar í hafnarborginni Karachi í morgun. Meðal þeirra sem féllu var einn yfirmanna fangelsismála í borginni. 15.6.2006 10:45 Heimsmeistarakeppni vélmenna Það er um fátt annað talað en heimsmeistarakeppnina í fótbolta, og því fer ekki hátt að það er önnur heimsmeistarakeppni sem fer fram þessa dagana, einnig í Þýskalandi. Í óformlegri heimsmeistarakeppni sem nefnist Robocup eru keppendurnir ekki mennskir og ekki einu sinni lifandi, heldur vélmenni með gervigreind. 15.6.2006 10:30 Áhyggjur af fríblaði Dagsbrúnar Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að byrja að gefa út í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til að endurskoða stuðning sinn við hin hefðbundnu dagblöð. 15.6.2006 10:15 Hugmyndin andvana fædd Framkvæmdarstjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. 15.6.2006 10:00 Framlegð í sjávarútvegi aukist Framlegð í sjávarútvegi hefur aukist áberandi meira en í öðrum greinum síðastliðna sex mánuði og horfur til næstu sex mánaða eru einnig bestar í sjávarútvegi, samkvæmt ársfjórðungslegri könnun, sem Gallup gerir í samvinnu við Samtök atvinnulífsins. 15.6.2006 09:45 Forsætisráðherraskipti í dag Í dag lætur Halldór Ásgrímsson af störfum sem forsætisráðherra og ríkisstjórn Geirs H. Haarde tekur við. Ríkisráðsfundur hófst kl. 12 á hádegi og eftir það verður gengið til hádegisverðar í boði forseta Íslands. Þá sest ný ríkisstjórn á ríkisráðsfund þar sem Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. 15.6.2006 09:30 Sjá næstu 50 fréttir
Kaupa finnska Pizza Hut Pizza Hut á Íslandi, sem er í eigu Péturs Jónssonar og Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, gekk í gær frá samningum um kaup á Pizza Hut-vörumerkinu í Finnlandi af fjölmiðlafyrirtækinu Rautakirja. Kaupverð fékkst ekki uppgefið. 16.6.2006 06:45
Bætt þekking er lykilatriði Sænski lýðheilsuprófessorinn Stig Wall við Háskólann í Umeå hlaut norrænu lýðheilsuverðlaunin þetta árið. 16.6.2006 06:45
Læknir kvað brotið ólíklegt Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað dóttur sinni fyrir tæpum tveimur árum, þá tíu ára gamalli. 16.6.2006 06:45
Kona hætt komin í eldsvoða Kona var hætt komin þegar nágrannar hennar komu henni til hjálpar í brennandi íbúðarhúsi að bænum Hólmaseli í Villingaholtshreppi, fyrir austan Selfoss laust fyrir miðnætti. Þegar nágrannanrir komu á vettvang heyrðist kallað á hjálp og brutu þeir glugga og hjálpuðu konunni út. Hana sakaði ekki. Þegar slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar var húsið alelda og brann allt sem brunnið gat. Eldsupptök eru ókunn, en ekki er útilokað að kviknað hafi í út frá kerti. 16.6.2006 06:45
Hamas-samtökin tilbúin að endurnýja vopnahléssamkomulag við Ísrael Hamas-samtökin hafa lýst yfir vilja Palestínumanna til að endurnýja vopnahléssamkomulag sitt við Ísrael. Talsmaður samtakanna sagði í gær að heimastjórn Hamas vildi sem fyrst sjá vopnahlé á öllu heimastjórnarsvæðinu. Fyrst þyrfti þó Ísraelsher að hætta hernaðaraðgerðum sínum á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum. Hamas lýstu því yfir í síðustu viku að sextán mánaða vopnahlé væri fallið úr gildi eftir að átta Palestínumenn létu lífið í sprengingu á baðströnd. 16.6.2006 06:45
Lofar að fangelsa Taylor Breska ríkisstjórnin sagði í gær að hún væri tilbúin til að útvega fyrrverandi forseta Líberíu, Charles Taylor, vist í fangelsum Bretlands verði hann fundinn sekur um stríðsglæpi. 16.6.2006 06:30
Flóttamenn vegna bágrar stöðu sjónskertra á Íslandi Móðir flúði land til Svíþjóðar vegna bágrar stöðu í skólamálum sjónskertra á Íslandi. Hún segir ótrúlegan mun á stöðu sjónskertra hér og í Svíþjóð og að Íslendinga vanti helst af öllu þekkingarmiðstöð. 16.6.2006 06:30
Kríuna skortir æti Krían hefur ekki enn hafið varp sunnan- og vestanlands en það er venjulega hafið á þessum tíma árs. Austanlands hefur þó eitthvað verið um varp, að sögn Kristins Skarphéðinssonar, fuglafræðings hjá Náttúrufræðistofnun. 16.6.2006 06:30
Vilja heildarendurskoðun Stjórnarandstöðuflokkarnir í Reykjavík vilja heildarendurskoðun á hreinsunar- og fegrunarmálum borgarinnar svo að hægt sé að tryggja jafna hreinsun á borginni allt árið um kring. Þetta kemur fram í bókun stjórnarandstöðunnar úr borgarráði í gær. 16.6.2006 06:30
Stórt skref í aðskilnaðarátt Líkur eru á því að kjósendur í Katalóníuhéraði samþykki næstkomandi sunnudag áætlun um aukna sjálfstjórn héraðsins. Íhaldsmenn á Spáni leggja þetta að jöfnu við áætlun um sjálfstæði Katalóníu og upplausn Spánar. Upplausn Spánar má reyndar kalla stjórnarskrárbundna, því í stjórnarskrá landsins er kveðið á um að vald ríkisins skuli í áranna rás vera fært æ frekar heim í héruðin. 16.6.2006 06:15
Formlegt samráð sjálfsagt Stjórnarandstaða borgarstjórnar telur sjálfsagt að efna til formlegs samráðs við samtök eldri borgara í kjölfar þeirra viðræðna sem átt hefur verið við þau á undanförnum vikum. Ekki sé ástæða til að takmarka samráðið við neina ákveðna þætti enda hafi eldri borgarar lagt áherslu á að geta tekið við hvaða málum sem er sem snúast að hagsmunum þeirra. 16.6.2006 06:15
Viðurkenna Svartfjallaland Ríkisstjórn Serbíu viðurkenndi í gær sjálfstæði Svartfjallalands og tilkynnti að komið yrði á stjórnmálasambandi ríkjanna á milli. Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði og sambandsslitum frá Serbíu hinn 3. júní eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. 16.6.2006 06:00
Umferðarátak heldur áfram Átak lögreglu í umferðarmálum á landsvísu sem hófst í fyrrasumar mun halda áfram í ár með aukinni fjárveitingu. Í sumar fengust áttatíu milljónir króna frá samgöngumálaráðuneytinu til að halda áfram sérstöku eftirliti á þjóðvegunum með hraðakstri og ölvunarakstri. Þetta kemur ofan á öll hefðbundin löggæslustörf. 16.6.2006 06:00
Segist vera saklaus af smygli Þrítugur litháískur karlmaður sagðist fyrir dómi í gær saklaus af því að flytja inn rúma tvo lítra af amfetamínbasa auk tæplega 700 millilítra af brennisteinssýru, til söludreifingar hér á landi. Mál Ríkissaksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 16.6.2006 06:00
Svikahrappar segjast safna fé til góðgerðarmála Borið hefur á því að svikahrappar hafa undanfarið hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp og sagst munu koma heim til fólks og sækja féð. Fólk er beðið að tortryggja þá sem stunda þessi vinnubrögð því hið rétta er að fjársöfnun Fjölskylduhjálpar fer öll í gegnum banka og það er einungis BM-ráðgjöf sem safnar fé fyrir Fjölskylduhjálp með sölu geisladiska. 15.6.2006 23:00
10 sjíamúslimar dregnir út úr rútu og skotnir Byssumenn drógu 10 íraska sjíamúslima út úr rútu sem þeir voru í og skutu þá til bana í íraska bænum Baqouba, um 60 kílómetra norðaustur af Bagdad, ekki langt frá þeim stað þar sem al-Zarqawi, fyrrum leiðtogi al-Qaida samtakanna í Írak var skotinn. 15.6.2006 22:52
Eldur kviknaði við olíutankana á Akranesi Slökkvilið Akranes var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds sem logaði við birgðastöð Olís á Akranesi. Allt bendir til að eldurinn hafi verið kveiktur af mannavöldum og að einhver hafi farið inn á lokað svæði en eldurinn logaði í plastgámi sem innihélt tjöruhreinsi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikið mildi þykir að eldurinn náði ekki að breiðast út. Lögreglan á Akranesi fer með rannsókn málsins. 15.6.2006 22:49
Uppselt á Hróarskeldu Uppselt er á tónlistarhátíðina vinsælu í Hróarskeldu í Danmörku, sem haldin verður dagana 29.júní til 2.júlí. 75 þúsund miðar voru seldir á hátíðina og þar af rúmlega þúsund á Íslandi og er það sölumet fyrir miða á Íslandi. Þá eru ótaldir miðar Íslendinga sem keyptir eru í útlöndum eða í gegnum netið. Það er því ljóst að það verður talsverður fjöldi Íslendinga á svæðinu. 15.6.2006 22:45
Verslað með húsbyggingafyrirtæki í Akrahverfi Phoenix fjárfestingar hafa selt dótturfyrirtæki sitt, Laugarakur, sem hefur séð um rúmlega 70% byggingarframkvæmda í hinu nýja Akrahverfi í Garðabæ. Það er nýstofnað fyrirtæki, Laugarnes hf, sem keypti Laugarakur og með því byggingarverkefnið, sem fullklárað verður ríflega 45 þúsund fermetrar af húsnæði. 15.6.2006 22:24
Erfitt en ánægjulegt að hjóla í kringum landið Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að hjóla í íslenskri veðráttu. Því hafa hjólagarparnir Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir fengið að kynnast en þau hjóla nú hringinn í kringum Ísland. 15.6.2006 22:00
Skvísa keyrir búkollu 21 árs kona fékk nóg af lágum hárgreiðslunemalaunum, tók meirapróf og keyrir nú vörubíl af stærstu gerð, svokallaða búkollu. Á níu dögum fékk hún rúmlega mánaðarlaun hárgreiðslunemans og sér ekki eftir skiptunum. 15.6.2006 19:00
Búa í tjaldi Pólverji sem vinnur á hóteli í Reykjavík hefur þurft að hírast í tjaldi í tvær vikur og sér ekki fyrir endann á því. Nokkrir aðrir Pólverjar sem komu hingað í leit að vinnu eftir fyrsta maí eru nágrannar hans á tjaldstæðinu í Laugardal. 15.6.2006 18:45
Vísitala íbúðaverðs lækkaði í maí Vísitala íbúðaverðs lækkaði örlítið í maímánuði, um 0,2 prósent. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í dag. Verð á fjölbýli lækkaði meira á milli mánaða en verð á sérbýli. Þetta er fyrsta lækkun fasteignavísitölu síðan í desember síðastliðnum en vísitalan hækkaði talsvert á fyrstu mánuðum ársins. 15.6.2006 17:59
Skildi kött eftir fæðulausan í einn mánuð Karlmaður var í dag dæmdur fyrir brot gegn lögum um dýravernd í Héraðsdómi Vesturlands. Maðurinn skildi kött eftir einan í íbúð sinni og án fæðu í einn mánuð árið 2005. Refsing hans þykir hæfileg 40.000 króna sekt sem greiða skal í ríkissjóð en verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, skal maðurinn sæta fjögurra daga fangelsi. 15.6.2006 17:57
Vonar að sátt verði um næsta formann Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og fráfrandi formaður Framsóknarflokksins, segir það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á val á næsta formanni flokksins. Hann segist vona að sátt og friður verði um næsta formann innan flokksins. 15.6.2006 16:15
Halldór ekki á leið í Seðlabankann Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra segist ekki á leið í Seðlabankann nú þegar hann segir skilið við stjórnmálin. Halldór lét af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag og hyggst segja af sér þingmennsku að loknu flokksþingi Framsóknarflokksins í ágúst. Halldór segir óráðið hvað taki við eftir það. 15.6.2006 15:27
Íranar ekki samvinnuþýðir Helsti sendifulltrúi Bandaríkjamanna hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni segir Írana enn neita að veita stofnuninni allar upplýsingar um kjarnorkuáætlun sína. Sendifulltrúi Írana segir stjórnvöld í Teheran skoða vandlega tilboð Vesturveldanna til lausnar deilunni. 15.6.2006 13:30
Grunaður um að hafa rænt barnungum stúlkum Belgíska lögreglan hefur ákært mann um fertugt fyrir að hafa rænt tveimur skólastúlkum, sjö og tíu ára. Maðurinn hefur tvívegis setið í fangelsi fyrir að hafa misnotað börn. Óttast er um afdrif stúlkanna sem hurfu á föstudagskvöldið. 15.6.2006 13:15
61 féll í sprengingu á Sri Lanka Að minnsta kosti 61 féll þegar sprenging varð um leið og strætisvagni var ekið yfir jarðsprengju á norðurhluta Sri Lanka í morgun. 45 særðust. Ekki hafa jafn margir óbreyttir borgarar fallið í einu síðan vopnahlé tók gildi árið 2002. 15.6.2006 13:00
Engir reikningar þegar heim er komið Nú geta viðskiptavinir í Og Vodafone Frelsi hringt frá helstu nágrannalöndum án þess að skrá númerið sitt sérstaklega. Jafnframt eru símtöl gjaldfærð af inneign um leið og því þurfa viðskiptavinir ekki að hafa áhyggjur af bakreikningum þegar heim er komið. 15.6.2006 12:52
Þokast í samkomulagsátt Ýmsir þættir þokast í samkomulagsátt hjá aðilum vinnumarkaðarins og talsmenn þar telja að samkomulag geti legið fyrir eftir viku, ef stjónrvöld koma með raunhæft innlegg til samkomulags. 15.6.2006 12:45
Sjálfstæðismenn í forsætisráðuneytinu í 39 ár af 52 Sjálfstæðismenn hafa setið í forsætisráðherrastóli í tæp 39 ár í fimmtíu og tveggja ára sögu lýðveldisins og Framsóknarmenn í um 18 ár. Ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra er það 24. frá stofnun lýðveldisins og er hann 15. maðurinn til að gegna embætti forsætisráðherra frá árinu 1944. 15.6.2006 12:15
Maður ákærður vegna mannráns í Belgíu Belgíska lögreglan hefur ákært mann um fertugt fyrir að hafa rænt tveimur skólastúlkum, 7 og 10 ára. Stúlkurnar, sem eru stjúpsystur, hurfu úr götuveislu í borginni Liege seint á laugardagskvöldið og hefur þeirra verið leitað síðan, án árangurs. 15.6.2006 11:45
41 sprenging í Tælandi Að minnsta kosti tveir féllu og sextán særðust þegar sprengjur sprungu á um fjörutíu mismunandi stöðum á Tælandi snemma í morgun. Sprengjunum hafi verið komið fyrir víðsvegar í þremur héruðum í suðurhluta landsins þar sem múslimar eru í meirihluta. 15.6.2006 11:30
Taylor verður fangelsaður í Bretlandi Bretar hafa lofað því að fangelsa Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, verði hann sakfelldur fyrir stríðsglæpi. Þar með verður hægt að hefja réttarhöld yfir Taylor fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Taylor er nú í haldi í Sierra Leone, nágrannaríki Líberu. 15.6.2006 11:15
Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar funda Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í gær á aðalfundi stofnunarinnar. Nokkur stærstu lönd í mið- og Austur-Asíu eiga aðild að stofnuninni, Kína, Rússland, Tajikistan, Kasakstan, Kyrgistan og Úsbekistan. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. 15.6.2006 11:00
Skotárás í Karachi Þrír féllu og tveir særðust þegar byssumenn réðust á bifreið á vegum pakistönsku lögreglunnar í hafnarborginni Karachi í morgun. Meðal þeirra sem féllu var einn yfirmanna fangelsismála í borginni. 15.6.2006 10:45
Heimsmeistarakeppni vélmenna Það er um fátt annað talað en heimsmeistarakeppnina í fótbolta, og því fer ekki hátt að það er önnur heimsmeistarakeppni sem fer fram þessa dagana, einnig í Þýskalandi. Í óformlegri heimsmeistarakeppni sem nefnist Robocup eru keppendurnir ekki mennskir og ekki einu sinni lifandi, heldur vélmenni með gervigreind. 15.6.2006 10:30
Áhyggjur af fríblaði Dagsbrúnar Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að byrja að gefa út í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til að endurskoða stuðning sinn við hin hefðbundnu dagblöð. 15.6.2006 10:15
Hugmyndin andvana fædd Framkvæmdarstjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. 15.6.2006 10:00
Framlegð í sjávarútvegi aukist Framlegð í sjávarútvegi hefur aukist áberandi meira en í öðrum greinum síðastliðna sex mánuði og horfur til næstu sex mánaða eru einnig bestar í sjávarútvegi, samkvæmt ársfjórðungslegri könnun, sem Gallup gerir í samvinnu við Samtök atvinnulífsins. 15.6.2006 09:45
Forsætisráðherraskipti í dag Í dag lætur Halldór Ásgrímsson af störfum sem forsætisráðherra og ríkisstjórn Geirs H. Haarde tekur við. Ríkisráðsfundur hófst kl. 12 á hádegi og eftir það verður gengið til hádegisverðar í boði forseta Íslands. Þá sest ný ríkisstjórn á ríkisráðsfund þar sem Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. 15.6.2006 09:30