Fleiri fréttir Forsætisráðherra vill bíða skýrslu um símhleranir Forsætisráðherra vill ekkert aðhafast vegna símhlerana hér á landi á kalda stríðsárunum, fyrr en skýrslu hefur verið skilað um málið. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun. Formenn stjórnarandstöðunnar vilja að Alþingi komi að málinu frá upphafi. 1.6.2006 12:45 Mikael Torfason nýr ritstjóri tímaritsins Séð og heyrt Mikael Torfason, fyrrverandi ritstjóri DV, hefur verið ráðinn sem ritstjóri Séð og heyrt tímabundið en Elín Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fróða, staðfesti þetta í samtali við NFS. Mikael hefur undanfarið starfað á vegum Dagsbrúnar við undirbúning að fríblaði sem gefa á út í Danmörku. 1.6.2006 12:42 Íranar hætta ekki auðgun úrans Stjórnvöld í Íran tilkynntu í morgun að þau væru tilbúin til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál en þau myndu samt ekki hætta auðgun úrans líkt og stjórnvöld í Washington gera kröfu um. 1.6.2006 12:30 Málaferli í uppsiglingu Margvísleg málaferli virðast vera í uppsiglingu eftir úrskurð Óbyggðanefndar um hvaða landsvæði á Suðvesturlandi skulu teljast þjóðlendur í ríkiseign. Þetta er að gerast þrátt fyrir að Óbyggðanefnd hafi hafnað hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna. 1.6.2006 12:15 Rokkað í Reykjavík aflýst Tónlistarhátíðinni Rokkað í Reykjavík, sem átti að halda eftir mánuð, hefur verið aflýst vegna dræmrar sölu á aðgöngumiðum. 1.6.2006 10:45 Bíll valt út af þrengslavegi Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar bíll hans valt út af þrengslavegi í nótt. Vegfarandi, sem kom þar að, tók ökumanninn upp í og hringdi eftir sjúkrabíl. 1.6.2006 10:30 Hermenn skutu ólétta konu til bana Bandarískir hermenn skutu ólétta konu til bana í Bagdad í gær. Konan var á leið á fæðingardeildina þegar atvikið varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvers vegna þeir skutu konuna en fréttaskýrendur í Írak segja að almennir borgarar sem banað hefur verið af bandarískum hermönnum síðan innrás Bandaríkjamanna hófst fyrir þremur árum séu mörg hundruð. 1.6.2006 10:15 Deilt um ákvarðanavald í Austur-Tímor Forseta og forsætisráðherra Austur-Tímor greinir á um hvor fer með ákvarðanavald í ríkisstjórn landsins nú um stundir. (LUM) Forsetinn, Xanana Gusmao, tilkynnti í fyrradag að forsætisráðherrann, Mari Alkatiri, hefði afhent sér völdin eftir að tilraunir til að koma á friði í landinu hefðu mistekist. Alkatiri lýsti því hins vegar yfir í gær að hann færi að hluta til enn með völd í Austur-Tímor. 1.6.2006 10:00 Rammasamkomulag undirritað Fulltrúar Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja ætla í dag að undirrita rammasamkomulag um útvegun Orkuveitunnar og Hitaveitunnar á raforku til álvers í Helguvík á Reykjanesi. 1.6.2006 09:45 Sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði á Hellisheiði Óbyggðanefnd hafnaði hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna á Suðvesturlandi, þótt ýmsir hagsmunaaðilar uni illa niðurstöðum nefndarinnar. Einkum er komin upp sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði Orkuveitu Reykjavíkur á Hellsiheiði. 1.6.2006 09:30 Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar tilkynntu í morgun að þeir myndu ekki hætta auðgun úrans, þrátt fyrir sáttaumleitan Bandaríkjamanna í gær. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. Það skilyrði er þó sett að Íranar hætti þegar auðgun úrans. 1.6.2006 09:26 Enn óeirðir í París Nokkur hundruð lögreglumenn stóðu vaktina í úthverfum Parísar í nótt. Þrátt fyrir rólegri nótt en síðustu tvær kveiktu mótmælendur í allmörgum bifreiðum og öskutunnum og voru þrír handteknir. 1.6.2006 09:15 D- og B-listi mynda meirihluta í Fjallabyggð Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í Fjallabyggð, nýju sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, ákváðu í gærkvöld að mynda meirihluta í bæjarstjórn. 1.6.2006 09:00 Sprenging í efnaverksmiðju á Englandi Mikil sprenging varð í efnaverksmiðju á Englandi seint í gærkvöld. Greiðlega gekk þó að slökkva eldinn og segja sérfræðingar enga hættu steðja að en verksmiðjan er í um 400 kílómetra fjarlægð frá Lundúnum. 1.6.2006 08:45 Norður-Kóreumenn bjóða Bandaríkjamönnum til viðræðna Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa boðið helsta samningamanni Bandaríkjastjórnar í kjarnorkudeilu landanna til viðræðna í höfuðborginni, Pyongyang. Þar með hafa norðurkóresk stjórnvöld látið í ljós vilja til að hefja á ný viðræður sem ríkin tvö, auk Rússlands, Kína, Suður-Kóreu og Japans, taka þátt í. 1.6.2006 07:42 Bandaríkjastjórn breyti aðferðum sínum Stjórnvöld í Íran segja að Bandaríkjastjórn verði að breyta aðferðum sínum, ef hún vilji að samskipti milli ráðamanna í Teheran, höfuðborg Írans, og Washington breytist í framtíðinnni. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. 1.6.2006 07:15 Dead Man Walking 31.5.2006 19:21 Posh and secretive 31.5.2006 14:30 Trendy, yet affordable 31.5.2006 22:56 Dedicated Diversity 31.5.2006 00:01 Creative Foam 31.5.2006 00:01 Rammasamkomulag um álver í Helguvík Meginlínur orkusamnings vegna álvers í Helguvík liggja nú fyrir og verður rammasamkomulag undirritað í fyrramálið milli Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Gert er ráð fyrir að álverið taki til starfa árið 2010 og framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. 31.5.2006 18:42 Engar reglur um leyfi ríkisstarfsmanna í átta ár Reglur um leyfi starfsmanna frá störfum í ríkisþjónustu, sem setja átti fyrir átta árum, hafa enn ekki verið settar. Ástæða þess er misskráning í fjármálaráðuneytinu sem taldi málið afgreitt. Formaður Samfylkingarinnar segir málið pínlegt fyrir ráðuneytið. 31.5.2006 23:45 Vill sameina slökkviliðin á suðvesturhorninu Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vill að slökkviliðin á suðvesturhorninu verði sameinuð með það að markmiði að efla björgunar- og öryggismál hér á landi. Þá vill sambandið auka samstarfið við björgunarsveitirnar og Landhelgisgæsluna. 31.5.2006 23:30 Rétt að draga úr áherslu á ál við milljón tonna framleiðslu Þegar framleiðsla á áli er komin í eina milljón tonna á ári er af ýmsum ástæðum rétt að draga úr áherslu á þeim vettvangi, sagði iðnaðarráðherra í fyrirspurnartíma á þingi í dag. Fyrirspyrjandi sakaði ráðherra um að vera á flótta í málefnum áliðnaðarins. 31.5.2006 23:06 Rausnarleg gjöf til Sjómannasafnsins Sjóminjasafnið í Reykjavík fékk í dag afhenta rausnarlega gjöf úr einkasafni hjónanna Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadóttur. Um er að ræða um það bil 700 muni og þykja þeir bera með sér ómetanlegar heimildir um horfna tíma. Sigrún Magnúsdóttir forstöðumaður safnsins að vonum afar þakklát gjöfinni og taldi munina mikla og góða viðbót við Sjómannasafn Reykjavíkur. 31.5.2006 22:56 New Coalition in City Hall 31.5.2006 22:17 Fæddist með þrjá handleggi Læknar á barnaspítala í Shanghai í Kína standa um þessar mundir frammi fyrir óvenjulegum vanda. Ástæða heilabrotanna er hinn tveggja mánaða gamli Djí-djí en hann fæddist með þrjá handleggi. 31.5.2006 19:30 Daring Helicopter rescue 31.5.2006 19:13 Vilhjálmur Þ. og Björn Ingi funda tveir einir Meirihlutaviðræðurnar í Reykjavík eru á hendi tveggja manna og funda þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson tveir einir um málefnasamning og skiptingu embætta milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Líklegt þykir að flokkarnir skipti með sér formennsku í Orkuveitu Reykjavíkur en málefni eldri borgara verða þungamiðjan í málefnasamningi flokkanna. 31.5.2006 19:07 Fjölmiðlar vöktu athygli á fjöldamorðunum Bandarísk stjórnvöld tóku ekki að rannsaka fjöldamorðin óhugnanlegu í Haditha í Írak að neinu ráði fyrr en fjölmiðlar vöktu athygli á þeim. Niðurstöður rannsóknarinnar verða gerðar opinberar þegar þær liggja fyrir. 31.5.2006 19:00 Hluti Hellisheiðarvirkjunar telst þjóðlenda - Esjan eign Reykvíkinga og bænda Málefni Hellisheiðarvirkjunar eru í uppnámi eftir að Óbyggðanefnd kvað upp þann úrskurð í dag að hluti af virkjunarsvæðinu sé þjóðlenda. Skíðasvæðið í Bláfjöllum og Sandskeið teljast einnig þjóðlendur. Kröfu um að háhitasvæði í Trölladyngju falli undir þjóðareign var hins vegar hafnað og Esjan er ekki þjóðlenda heldur telst séreign Reykvíkinga og bænda. 31.5.2006 18:48 Exista kaupir VÍS eignarhaldsfélag Fjárfestingarfélagið Exista hefur keypt VÍS, eignarhaldsfélag. Kaupin eru undirbúningur í skráningu í Exista í Kauphöll Íslands en það mun verða eitt stærsta félagið í Kauphöllinni. 31.5.2006 18:17 Tilbúnir til viðræðna Bandaríkjamenn segjast reiðubúnir til að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra en útiloka ekki að beita hervaldi fari samningar út um þúfur. 31.5.2006 18:13 Samkeppniseftirlitið sýknað af kröfum Sjóvás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Samkeppniseftirlitið af kröfum Sjóvás - Almennra vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála í tengslum við ólöglegt samráð stóru tryggingarfélaganna. Tuttugu og sjö milljóna króna sekt Sjóvás - Almennra stendur því óhreyfð. 31.5.2006 17:53 Hluti virkjanasvæðis Hellisheiðarvirkjunar þjóðlenda Hluti virkjanasvæðis Hellisheiðarvirkjunar er þjóðalenda samkvæmt úrskurði Óbyggðanefndar sem kveðinn var upp í dag. Lögmaður Orkuveitunnar segir úrskurðinn koma á óvart. Kröfu ríkisins um að efsti hluti Esjunnar sé þjóðlenda var hafnað. 31.5.2006 17:42 Stór hluti hugbúnaðar á Íslandi er stolinn Um 57 prósent hugbúnaðar á Íslandi er illa fenginn og skipar Ísland sér í sæti með löndum í Austur-Evrópu og Asíu. Dómsmálaráðuneytið hefur nú til skoðunar að beiðni Microsoft á Íslandi hvernig hægt sé að stemma stigu við hugbúnaðarstuldi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem markaðsrannóknarfyrirtækið IDC gerði fyrir samtökin BSA en meðlimir þeirra eru fyrirtæki á borð við Microsoft, Apple, Adope og McAfee. 31.5.2006 17:42 Valgerður vill rannsókn vegna áletrunar á borða Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sent lögreglustjóranum í Reykjavík bréf vegna áletrunar á mótmælaborða í göngu Íslandsvina síðastliðinn laugardag. 31.5.2006 17:39 Royal Blue Comfort 31.5.2006 17:24 Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. 31.5.2006 16:11 Uppsagnir í tímaritaútgáfu Fróða Niðurskurður er á tímaritaútgáfunni Fróða. Ritstjórum tímaritanna Séð og heyrt og Vikunnar hefur verið sagt upp störfum auk nokkurra annarra starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu. Þetta var tilkynnt á nýafstöðnum fundi í fyrirtækinu í dag. 31.5.2006 16:11 Bilun hjá þjónustaðila Farice í Skotland Um kl. 14:20 í dag bilaði ljósleiðari hjá fjarskiptafyrirtækinu THUS í Skotlandi, sem tengir Farice-strenginn frá landtengingu í Norður-Skotlandi til London, og rofnaði þá öll fjarskiptaumferð um Farice-strenginn milli Íslands, Færeyja og Bretlands. 31.5.2006 15:44 Nýr meirihluti í Skagafirði Myndun nýs meirihluta í Skagafirði er lokið. Fjórir menn Framsóknarflokksins og einn maður Samfylkingarinnar hafa náð saman og verður Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknarflokks, formaður byggðaráðs. 31.5.2006 15:25 Síminn einfaldar verðskrá sína Síminn hefur ákveðið að einfalda verðskrá sína fyrir farsímanotendur sem eru staddir erlendis og vilja taka á móti símtölum frá Íslandi. 31.5.2006 15:20 Dr. Agnar hlaut hvatningarverðlaunin Agnar Helgason, doktor í mannfræði, hlaut í dag Hvatningarverðlaun Visinda- og tækniráðs. Forsætisráðherra veitti honum verðlaunin fyrir hönd valnefndarinnar. 31.5.2006 14:15 Sjá næstu 50 fréttir
Forsætisráðherra vill bíða skýrslu um símhleranir Forsætisráðherra vill ekkert aðhafast vegna símhlerana hér á landi á kalda stríðsárunum, fyrr en skýrslu hefur verið skilað um málið. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu á Alþingi í morgun. Formenn stjórnarandstöðunnar vilja að Alþingi komi að málinu frá upphafi. 1.6.2006 12:45
Mikael Torfason nýr ritstjóri tímaritsins Séð og heyrt Mikael Torfason, fyrrverandi ritstjóri DV, hefur verið ráðinn sem ritstjóri Séð og heyrt tímabundið en Elín Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fróða, staðfesti þetta í samtali við NFS. Mikael hefur undanfarið starfað á vegum Dagsbrúnar við undirbúning að fríblaði sem gefa á út í Danmörku. 1.6.2006 12:42
Íranar hætta ekki auðgun úrans Stjórnvöld í Íran tilkynntu í morgun að þau væru tilbúin til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál en þau myndu samt ekki hætta auðgun úrans líkt og stjórnvöld í Washington gera kröfu um. 1.6.2006 12:30
Málaferli í uppsiglingu Margvísleg málaferli virðast vera í uppsiglingu eftir úrskurð Óbyggðanefndar um hvaða landsvæði á Suðvesturlandi skulu teljast þjóðlendur í ríkiseign. Þetta er að gerast þrátt fyrir að Óbyggðanefnd hafi hafnað hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna. 1.6.2006 12:15
Rokkað í Reykjavík aflýst Tónlistarhátíðinni Rokkað í Reykjavík, sem átti að halda eftir mánuð, hefur verið aflýst vegna dræmrar sölu á aðgöngumiðum. 1.6.2006 10:45
Bíll valt út af þrengslavegi Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar bíll hans valt út af þrengslavegi í nótt. Vegfarandi, sem kom þar að, tók ökumanninn upp í og hringdi eftir sjúkrabíl. 1.6.2006 10:30
Hermenn skutu ólétta konu til bana Bandarískir hermenn skutu ólétta konu til bana í Bagdad í gær. Konan var á leið á fæðingardeildina þegar atvikið varð. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvers vegna þeir skutu konuna en fréttaskýrendur í Írak segja að almennir borgarar sem banað hefur verið af bandarískum hermönnum síðan innrás Bandaríkjamanna hófst fyrir þremur árum séu mörg hundruð. 1.6.2006 10:15
Deilt um ákvarðanavald í Austur-Tímor Forseta og forsætisráðherra Austur-Tímor greinir á um hvor fer með ákvarðanavald í ríkisstjórn landsins nú um stundir. (LUM) Forsetinn, Xanana Gusmao, tilkynnti í fyrradag að forsætisráðherrann, Mari Alkatiri, hefði afhent sér völdin eftir að tilraunir til að koma á friði í landinu hefðu mistekist. Alkatiri lýsti því hins vegar yfir í gær að hann færi að hluta til enn með völd í Austur-Tímor. 1.6.2006 10:00
Rammasamkomulag undirritað Fulltrúar Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja ætla í dag að undirrita rammasamkomulag um útvegun Orkuveitunnar og Hitaveitunnar á raforku til álvers í Helguvík á Reykjanesi. 1.6.2006 09:45
Sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði á Hellisheiði Óbyggðanefnd hafnaði hátt í helmingi krafna ríkisins til þjóðlendna á Suðvesturlandi, þótt ýmsir hagsmunaaðilar uni illa niðurstöðum nefndarinnar. Einkum er komin upp sérkennileg staða varðandi virkjunarsvæði Orkuveitu Reykjavíkur á Hellsiheiði. 1.6.2006 09:30
Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar tilkynntu í morgun að þeir myndu ekki hætta auðgun úrans, þrátt fyrir sáttaumleitan Bandaríkjamanna í gær. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. Það skilyrði er þó sett að Íranar hætti þegar auðgun úrans. 1.6.2006 09:26
Enn óeirðir í París Nokkur hundruð lögreglumenn stóðu vaktina í úthverfum Parísar í nótt. Þrátt fyrir rólegri nótt en síðustu tvær kveiktu mótmælendur í allmörgum bifreiðum og öskutunnum og voru þrír handteknir. 1.6.2006 09:15
D- og B-listi mynda meirihluta í Fjallabyggð Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í Fjallabyggð, nýju sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, ákváðu í gærkvöld að mynda meirihluta í bæjarstjórn. 1.6.2006 09:00
Sprenging í efnaverksmiðju á Englandi Mikil sprenging varð í efnaverksmiðju á Englandi seint í gærkvöld. Greiðlega gekk þó að slökkva eldinn og segja sérfræðingar enga hættu steðja að en verksmiðjan er í um 400 kílómetra fjarlægð frá Lundúnum. 1.6.2006 08:45
Norður-Kóreumenn bjóða Bandaríkjamönnum til viðræðna Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa boðið helsta samningamanni Bandaríkjastjórnar í kjarnorkudeilu landanna til viðræðna í höfuðborginni, Pyongyang. Þar með hafa norðurkóresk stjórnvöld látið í ljós vilja til að hefja á ný viðræður sem ríkin tvö, auk Rússlands, Kína, Suður-Kóreu og Japans, taka þátt í. 1.6.2006 07:42
Bandaríkjastjórn breyti aðferðum sínum Stjórnvöld í Íran segja að Bandaríkjastjórn verði að breyta aðferðum sínum, ef hún vilji að samskipti milli ráðamanna í Teheran, höfuðborg Írans, og Washington breytist í framtíðinnni. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að stjórnvöld í Washington væru tilbúin til viðræðna við Írana um stefnu þeirra í kjarnorkumálum. 1.6.2006 07:15
Rammasamkomulag um álver í Helguvík Meginlínur orkusamnings vegna álvers í Helguvík liggja nú fyrir og verður rammasamkomulag undirritað í fyrramálið milli Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Gert er ráð fyrir að álverið taki til starfa árið 2010 og framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. 31.5.2006 18:42
Engar reglur um leyfi ríkisstarfsmanna í átta ár Reglur um leyfi starfsmanna frá störfum í ríkisþjónustu, sem setja átti fyrir átta árum, hafa enn ekki verið settar. Ástæða þess er misskráning í fjármálaráðuneytinu sem taldi málið afgreitt. Formaður Samfylkingarinnar segir málið pínlegt fyrir ráðuneytið. 31.5.2006 23:45
Vill sameina slökkviliðin á suðvesturhorninu Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vill að slökkviliðin á suðvesturhorninu verði sameinuð með það að markmiði að efla björgunar- og öryggismál hér á landi. Þá vill sambandið auka samstarfið við björgunarsveitirnar og Landhelgisgæsluna. 31.5.2006 23:30
Rétt að draga úr áherslu á ál við milljón tonna framleiðslu Þegar framleiðsla á áli er komin í eina milljón tonna á ári er af ýmsum ástæðum rétt að draga úr áherslu á þeim vettvangi, sagði iðnaðarráðherra í fyrirspurnartíma á þingi í dag. Fyrirspyrjandi sakaði ráðherra um að vera á flótta í málefnum áliðnaðarins. 31.5.2006 23:06
Rausnarleg gjöf til Sjómannasafnsins Sjóminjasafnið í Reykjavík fékk í dag afhenta rausnarlega gjöf úr einkasafni hjónanna Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadóttur. Um er að ræða um það bil 700 muni og þykja þeir bera með sér ómetanlegar heimildir um horfna tíma. Sigrún Magnúsdóttir forstöðumaður safnsins að vonum afar þakklát gjöfinni og taldi munina mikla og góða viðbót við Sjómannasafn Reykjavíkur. 31.5.2006 22:56
Fæddist með þrjá handleggi Læknar á barnaspítala í Shanghai í Kína standa um þessar mundir frammi fyrir óvenjulegum vanda. Ástæða heilabrotanna er hinn tveggja mánaða gamli Djí-djí en hann fæddist með þrjá handleggi. 31.5.2006 19:30
Vilhjálmur Þ. og Björn Ingi funda tveir einir Meirihlutaviðræðurnar í Reykjavík eru á hendi tveggja manna og funda þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson tveir einir um málefnasamning og skiptingu embætta milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Líklegt þykir að flokkarnir skipti með sér formennsku í Orkuveitu Reykjavíkur en málefni eldri borgara verða þungamiðjan í málefnasamningi flokkanna. 31.5.2006 19:07
Fjölmiðlar vöktu athygli á fjöldamorðunum Bandarísk stjórnvöld tóku ekki að rannsaka fjöldamorðin óhugnanlegu í Haditha í Írak að neinu ráði fyrr en fjölmiðlar vöktu athygli á þeim. Niðurstöður rannsóknarinnar verða gerðar opinberar þegar þær liggja fyrir. 31.5.2006 19:00
Hluti Hellisheiðarvirkjunar telst þjóðlenda - Esjan eign Reykvíkinga og bænda Málefni Hellisheiðarvirkjunar eru í uppnámi eftir að Óbyggðanefnd kvað upp þann úrskurð í dag að hluti af virkjunarsvæðinu sé þjóðlenda. Skíðasvæðið í Bláfjöllum og Sandskeið teljast einnig þjóðlendur. Kröfu um að háhitasvæði í Trölladyngju falli undir þjóðareign var hins vegar hafnað og Esjan er ekki þjóðlenda heldur telst séreign Reykvíkinga og bænda. 31.5.2006 18:48
Exista kaupir VÍS eignarhaldsfélag Fjárfestingarfélagið Exista hefur keypt VÍS, eignarhaldsfélag. Kaupin eru undirbúningur í skráningu í Exista í Kauphöll Íslands en það mun verða eitt stærsta félagið í Kauphöllinni. 31.5.2006 18:17
Tilbúnir til viðræðna Bandaríkjamenn segjast reiðubúnir til að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra en útiloka ekki að beita hervaldi fari samningar út um þúfur. 31.5.2006 18:13
Samkeppniseftirlitið sýknað af kröfum Sjóvás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Samkeppniseftirlitið af kröfum Sjóvás - Almennra vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála í tengslum við ólöglegt samráð stóru tryggingarfélaganna. Tuttugu og sjö milljóna króna sekt Sjóvás - Almennra stendur því óhreyfð. 31.5.2006 17:53
Hluti virkjanasvæðis Hellisheiðarvirkjunar þjóðlenda Hluti virkjanasvæðis Hellisheiðarvirkjunar er þjóðalenda samkvæmt úrskurði Óbyggðanefndar sem kveðinn var upp í dag. Lögmaður Orkuveitunnar segir úrskurðinn koma á óvart. Kröfu ríkisins um að efsti hluti Esjunnar sé þjóðlenda var hafnað. 31.5.2006 17:42
Stór hluti hugbúnaðar á Íslandi er stolinn Um 57 prósent hugbúnaðar á Íslandi er illa fenginn og skipar Ísland sér í sæti með löndum í Austur-Evrópu og Asíu. Dómsmálaráðuneytið hefur nú til skoðunar að beiðni Microsoft á Íslandi hvernig hægt sé að stemma stigu við hugbúnaðarstuldi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem markaðsrannóknarfyrirtækið IDC gerði fyrir samtökin BSA en meðlimir þeirra eru fyrirtæki á borð við Microsoft, Apple, Adope og McAfee. 31.5.2006 17:42
Valgerður vill rannsókn vegna áletrunar á borða Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sent lögreglustjóranum í Reykjavík bréf vegna áletrunar á mótmælaborða í göngu Íslandsvina síðastliðinn laugardag. 31.5.2006 17:39
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. 31.5.2006 16:11
Uppsagnir í tímaritaútgáfu Fróða Niðurskurður er á tímaritaútgáfunni Fróða. Ritstjórum tímaritanna Séð og heyrt og Vikunnar hefur verið sagt upp störfum auk nokkurra annarra starfsmanna sem starfa hjá fyrirtækinu. Þetta var tilkynnt á nýafstöðnum fundi í fyrirtækinu í dag. 31.5.2006 16:11
Bilun hjá þjónustaðila Farice í Skotland Um kl. 14:20 í dag bilaði ljósleiðari hjá fjarskiptafyrirtækinu THUS í Skotlandi, sem tengir Farice-strenginn frá landtengingu í Norður-Skotlandi til London, og rofnaði þá öll fjarskiptaumferð um Farice-strenginn milli Íslands, Færeyja og Bretlands. 31.5.2006 15:44
Nýr meirihluti í Skagafirði Myndun nýs meirihluta í Skagafirði er lokið. Fjórir menn Framsóknarflokksins og einn maður Samfylkingarinnar hafa náð saman og verður Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Framsóknarflokks, formaður byggðaráðs. 31.5.2006 15:25
Síminn einfaldar verðskrá sína Síminn hefur ákveðið að einfalda verðskrá sína fyrir farsímanotendur sem eru staddir erlendis og vilja taka á móti símtölum frá Íslandi. 31.5.2006 15:20
Dr. Agnar hlaut hvatningarverðlaunin Agnar Helgason, doktor í mannfræði, hlaut í dag Hvatningarverðlaun Visinda- og tækniráðs. Forsætisráðherra veitti honum verðlaunin fyrir hönd valnefndarinnar. 31.5.2006 14:15