Fleiri fréttir Hrakandi siðferðisþrek í stjórnartíð Bush Meirihluti aðspurðra Bandaríkjamann segja ákærurnar á Lewis Libby gefa til kynna mun víðtækari siðferðisbrest og spillingu innan stjórnar Bush en þá óraði fyrir. Kemur þetta fram í nýrri könnun sem gerð var á dögunum og þá sagði meira en helmingur aðspurðra að siðferðisþreki og heiðarleika meðal ráðamanna hafi hrakað verulega í stjórnartíð Bush. Niðurstöður könnunarinnar eru skellur fyrir stjórn Bush sem enn sætir hörðum ásökunum vegna slælegra viðbragða við fellibylnum Katrínu. 30.10.2005 15:45 Snjóflóð á Flateyrarvegi Snjóflóð féll á Flateyrarvegi rétt fyrir utan kauptúnið, milli Sólbakka og Hvilftar, um eittleytið í dag . Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði sakaði engan og vegurinn var lokaður fólksbílaumferð í klukkutíma. En þó var snjóflóðið það grunnt að vegurinn var fær jeppum. 30.10.2005 15:09 Bruni í Keflavík í gær Nokkurt tjón hlaust af bruna í iðnaðarhúsnæði í Grófinni í Keflavík síðdegis í gær. Þaðan lagði svartan reyk og þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á vettvang lék talsverður eldur um rýmið á jarðhæð hússins; þar var rekinn Jóga-salur þar til fyrir nokkrum vikum. Inni voru húsgögn og virðist eldurinn hafa komið upp í sófa. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins á nokkrum mínútum. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið. 30.10.2005 15:00 Fagna opnun landamæra Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á. 30.10.2005 15:00 Litli leikklúbburinn á götunni Þrymskviða, sem Litli leikklúbburinn ætlar að frumsýna á Ísafirði 12. nóvember, verður að öllum líkindum sýnt undir berum himni, samkvæmt héraðsfréttavefnum Bæjarins besta á Ísafirði. 30.10.2005 14:45 Álfar og tröll atvinnuskapandi Álfar, tröll og norðurljósin gætu orðið Stokkseyringum féþúfa ef áform um þjóðfræðisafn verða að veruleika. Sunnlenska fréttablaðið greinir frá kaupum 1200 fermetra húsnæðis í þessu skyni þar sem Hólmaröst er með fiskvinnslu, en hún flytur í Þorlákshöfn í byrjun næsta árs. Haft er eftir Benedikti G. Guðmundssyni, forsvarsmanni félagsins um þetta safn, að það gæti gefið Sunnlendingum forskot í málefnum tengdum þjóðfræði og menningartengdri ferðaþjónustu, ef vel tekst til. 30.10.2005 14:00 Auknar líkur á lækningu þunglyndis Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla. 30.10.2005 14:00 Nýtt skip bætist við flota Eyjamanna Nýtt skip, Bergur VE 44, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Vestmannaeyjum um miðjan dag í gær. Bergur kemur frá Póllandi en var keyptur í Noregi. Bergur er ísfisktogari, smíðaður í Danmörku 1998, er 10,50 metra breiður og 36 metrar á lengd. Skipið er samnefnt útgerðinni sem er fjölskyldufyrirtæki, eftir því sem fram kemur í Eyjafréttum. Þar segir einnig að Bergur sé hrein viðbót við flota Eyjamanna. 30.10.2005 12:45 Ný framsetning á leiðarkerfi Leiðarlykill höfuðborgarsvæðisins, þar sem leiðarkerfi strætisvagna tekur á sig mynd neðanjarðarlestakerfis, kemur út í næstu viku. Höfundur kortsins hefur gengið með hugmyndina í maganum í meira en tuttugu ár og telur að það muni hvetja fleiri til að nota strætisvagna. 30.10.2005 12:30 Indverjar á verði Indverjar eru vel á verði í kjölfar þess að þrjár öflugar sprengjur sprungu í miðborg Nýju Delhi í gær. Ekki færri en sextíu og einn féll, flestir óbreyttir borgarar sem voru að kaupa gjafir fyrir mikilvægar trúarhátíðir hindúa og múslíma. 30.10.2005 12:30 Þrjár milljónir heimilislausar Þrjár milljónir manna eru enn á húsaskjóls og nauðþurfta á skjálftasvæðinu í Kasmír. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja þörf á tvöhundruð og fimmtíu milljónum dollara þegar í stað eigi fólkið ekki að deyja úr kulda og vosbúð á næstu vikum. 30.10.2005 12:00 Aðstandendur stofna félag Stofnfundur aðstandendahóps Geðhjálpar verður haldinn í dag á Túngötu sjö klukkan tvö. Yfirskrift fundarins er Fram í dagsljósið. Árni Magnússon félagsmálaráðherra verður gestur fundarins og mun greina frá því sem er að gerast í málum geðsjúkra í félagsmálaráðurneytinu. 30.10.2005 11:30 Allar líkur meiri styrkleika Fellibylurinn Beta leikur Nikaragva grátt sem stendur en bylnum hefur vaxið mjög ásmeginn og er hann nú af stærðargráðu þrjú. Veðurfræðingar segja allar líkur á að Beta verði enn sterkari þegar bylurinn skellur á skóglendi við ströndina eftir fáeinar klukkustundir. 30.10.2005 11:02 Nóttin nokkuð erilsöm Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík, margir voru á ferli í miðborginni og mikið um pústra en enginn slasaðist alvarlega. Einnig þurfti lögreglan að hafa afkskipti af nokkrum heimilum vegna partíláta og hávaða. Tólf voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Nóttin var hins vegar róleg bæði hjá lögreglunni í Kópavogi og Hafnarfirði og sömu sögu er að segja frá Keflavík. 30.10.2005 10:59 26 þúsund Írakar fallið frá stríðsbyrjun Tuttugu og sex þúsund Írakar hafa verið drepnir eða særðir í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna í Írak frá því í byrjun árs 2004, að mati sérfræðinga bandaríska varnarmálaráðuneytisins. 30.10.2005 10:53 Fleiri konur stjúpættleiddar Mun fleiri konur eru stjúpættleiddar en karlar. Kynfeður umgangast frekar syni sína en dætur. Opinberar tölur um stjúptengsl eru að öðru leyti ekki til. 29.10.2005 20:30 Hræðsla óþörf Sala á kjúklingakjöti hefur tekið dýfu í Frakklandi vegna hræðslu við fuglaflensu - hræðslu sem er algjörlega ástæðulaus. 29.10.2005 20:15 Íslensk rannsókn hjálpar til Með aukinni hryðjuverkastarfsemi í heiminum hafa heilbrigðisyfirvöld víðs vegar vaknað til meðvitundar um þann möguleika að grípa þurfi til bólusetningar gegn bólusótt í stórum stíl. Viðamikil íslensk rannsókn ætti að geta nýst við þróun á nýju bóluefni og jafnframt sýnt hvort arfgengi skipti máli við vörnum gegn smitsjúkdómum 29.10.2005 20:15 Gagnrýna yfirgang síonista Íranskir ráðamenn vilja má Ísrael af landakortinu en segjast alls ekki hafa í hyggju að fara með ofbeldi gegn landinu. Þeir gagnrýna yfirgang síonista sem þeir segja að stjórni Sameinuðu þjóðunum. 29.10.2005 19:45 Mismunur pólitískur Ísland gengur jafnvel lengra í því að taka upp regluverk Evrópusambandsins en sum aðildarríkin. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem gerð var við Evrópufræðasetrið á Bifröst. 29.10.2005 19:45 Sátt ekki í augsýn Formaður Samfylkingarinnar hvetur sjómenn til að líta fram á veginn og viðurkenna að fiskurinn í sjónum sé sameign þjóðarinnar. En útvegsmenn eru ekki á þeim buxunum. Þeir íhuga málssókn til að fá viðurkennt að þeir sem eigi kvótann eigi fiskinn. 29.10.2005 19:30 Varað við Íslenskum þorski Auðlinda- og umhverfisskrifstofunni tókst að hafa áhrif á að náttúruverndarsinnar vestra beittu sér ekki sérstaklega gegn íslenska þorskinum - en þeim finnst samt Íslendingar ganga of hart fram í veiðum sínum. 29.10.2005 19:30 Fimmtíu féllu í Nýju Delhi Yfir fimmtíu féllu í röð sprengjuárása í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, í dag. Enginn veit hverjir standa á bak við árásirnar sem ráðamenn segja hryðjuverk. 29.10.2005 19:15 Lagt af á næstunni NMT-farsímakerfið, sem til margra ára hefur þjónað og tryggt öryggi allra landsmanna, hvort sem þeir eru staddir á sjó eða landi, jafnt í alfaraleið sem utan, verður lagt niður. Enn er á huldu hvað tekur við, en forstjóri Póst- og fjarskipastofnunar útilokar ekki að erlendir aðilar komi að uppbyggingu nýs kerfis. 29.10.2005 18:45 Öflugar sprengingar á Indlandi Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar. 29.10.2005 13:50 Vatn fyrir alla 29.10.2005 13:00 Tvær handtökur til viðbótar í Danmörku Tveir í viðbót hafa verið úrskurðaðir í varðhald í Danmörku grunaðir um þátttöku í skipulagningu hryðjuverkaárásar í Evrópu. Danska lögreglan útilokar ekki að hópurinn hafi ætlað að láta til skarar skríða í Danmörku. 29.10.2005 12:41 Vilja fjölbreyttara atvinnulíf á Vestfjörðum Ísfirðingar vilja aukna fjölbreytni í atvinnulífinu og horfa í ríkara mæli til háskóla og háskólasamfélags. Þó vantar fólk í vinnu í iðngeiranum og í fiskvinnslu. 29.10.2005 12:21 Olíurisar með methagnað Á sama tíma og olíuverð hefur verið í nánd við sögulegt hámark er hagnaður alþjóðlegra olíufyrirtækja einnig í hámarki. Árið stefnir í að vera það besta í sögu olíuiðnaðarins. Olíurisinn Exxon tilkynnti um hagnað sinn á þriðja ársfjórðungi í gær og hann er sá mesti í sögunni - tíu milljarðar dollara eða ríflega sexhundruð milljarðar króna. 29.10.2005 12:15 Útilokar ekki dómsmál vegna aflaheimilda Formaður Landssambands íslenskra Útvegsmanna útilokar ekki að LÍÚ eða einstaka útvegsmenn höfði dómsmál í framhaldi af lögfræðiáliti sem lagt var fyrir aðalfund samtakanna. Í því eru aflaheimildir sagðar eign handhafa heimildanna en ekki sameign þjóðarinnar. 29.10.2005 12:09 Big Ben þagnar um stund Big Ben er þagnaður. Klukkan í turninum, sem er eitt einkennismerka Lundúnaborgar, er þögnuð um sinn og mun ekkert heyrast í bjöllunum næsta sólarhringinn eða svo. Ástæðan eru sú að stilla þarf bjöllurnar og sinna viðhaldi. Það eru liðnir tveir áratugir frá því að Big Ben þagnaði síðast jafnlengi en sérfræðingarnir sem sinna viðhaldinu segja klukkuna í besta lagi, en viðhaldið sé reglubundið og hjá því verði ekki komist. 29.10.2005 10:45 Lestarslys á Indlandi Óttast er að allt að hundrað og fimmtíu manns hafi farist þegar lest fór út af sporinu í Andhra Pradesh í suðurhluta Indlands í morgun. Ástæðan er sú að brú gaf sig þegar áin sem hún þveraði breyttist úr sprænu í straumharða á. Úthellisrigning og vonskuveður er á svæðinu og hefur það valdið skyndiflóðum víða. 29.10.2005 10:15 Rannsókn ekki lokið Rannsókn á leka frá CIA, bandarísku leyniþjónustunni, þar sem upplýsingum um njósnara þjónustunnar var lekið til fjölmiðla, er ekki lokið, þrátt fyrir að starfsmaður Hvíta hússins, Lewis Libby, hafi verið ákærður. Patrick Fitzgerald, yfirmaður rannsóknarinnar upplýsti þó í gær að stærstum hluta rannsóknarinnar væri lokið. 29.10.2005 10:00 Færð og veður í dag: Enn liggur allt innanlandsflug niðri vegna ísingar og ókyrrðar í lofti, en athugað verður með flug um klukkan ellefu. Þá er Holtavörðuheiðin lokuð vegna ófærðar og eu vegfarendum bent á að fara Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Lokað er um Víkurskarð og Ólafsfjarðarmúla. 29.10.2005 10:00 Hagnaður KB banka jókst um 163% KB banki skilaði níu komma sjö milljarða króna hagnaði eftir skatta á þriðja ársfjórðungi. Það er fjörutíu og sjö komma sex prósentum meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nemur tæplega þrjátíu og fjórum og hálfum milljarði króna sem er aukning um rúmlega 163 prósent miðað við sama tíma árið 2004. 29.10.2005 09:45 Annríki hjá björgunarsveitum og lögreglu Töluvert annríki var hjá björgunarsveitum í óveðrinu sem gekk yfir sunnan- og vestanvert landið í gær. 29.10.2005 09:27 Endurgreiddi 50 milljónir Þróunarsamvinnustofnun Íslands greiddi rúmar fimmtíu milljónir króna til baka til ríkissjóðs á síðasta ári vegna hagstæðs gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. Að sögn Sighvats Björgvinssonar, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunarinnar, er sá hluti fjárframlaga til stofnunarinnar sem fer til þróunarhjálpar í útlöndum með gengistryggingu. Það eru um 85 prósent framlaga. 29.10.2005 08:00 Krefst frávísunar á endurskoðun dóms Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar, hefur krafist frávísunar á endurupptökukröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á fyrri úrskurði héraðsdóms. Hannes hefur farið fram á endurskoðun á fyrri ákvörðun Héraðsdóms um að heimil sé aðför að Hannesi á grundvelli dóms í Bretlandi þar sem hann var sakfelldur fyrir meiðyrði. 29.10.2005 07:30 Viðræður í uppnámi Óþolandi óvissa ríkir um viðræður við Bandaríkjamenn um varnarsamninginn, segja stjórnarandstæðingar eftir fund með utanríkisráðherra. Ekkert hefur breyst síðan samningamenn komu heim, segir formaður utanríkismálanefndar. 29.10.2005 07:00 Lögreglan gleymdi að senda beiðni Krefjist rannsóknarhagsmunir þess að úrskurðir héraðsdóms fylgi ekki dómum Hæstaréttar á netinu þarf lögregla að fara fram á það fyrir fram, að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrifstofustjóra Hæstaréttar. 29.10.2005 06:45 Vilja hindra kennitöluflakk 29.10.2005 06:45 Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald var í gær framlengt um viku yfir manni sem situr í haldi vegna fíkniefna í póstsendingum. Stúlku, starfsmanni pósthúss, sem einnig hefur setið í gæsluvarðhaldi var hins vegar sleppt, að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík. 29.10.2005 06:30 Lokkar ekki til sín ferðamenn Tvö hundruð ár eru liðin á þessu ári frá fæðingu rithöfundarins H.C. Andersen og af því tilefni hafa verið settar upp margvíslegar sýningar í Danmörku. Alþjóðlegri auglýsingaherferð var hrundið af stað til að fá erlenda ferðamenn til landsins. 29.10.2005 06:00 Álpaðist til Frakklands Þegar læðan Emily týndist í heimabæ sínum, Appleton í Wisconsin, fyrir rúmum mánuði bjuggust eigendur hennar við að hana væri að finna í kattageymslum bæjarins. Þeim varð því hverft við þegar fréttist af henni í Nancy í Frakklandi. Talið er að Emily hafi álpast upp í vörugám við pappírsverksmiðju sem síðan var fluttur sjóleiðis yfir Atlantshafið. 29.10.2005 06:00 Lá í líkhúsi í rúm tvö ár Bresk yfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að lík ungs manns lá í líkhúsi í tvö ár án þess að reynt væri að bera á það kennsl. Á meðan beið fjölskylda hans á milli vonar og ótta um hvað orðið hefði um ástvin þeirra. 29.10.2005 06:00 Sjá næstu 50 fréttir
Hrakandi siðferðisþrek í stjórnartíð Bush Meirihluti aðspurðra Bandaríkjamann segja ákærurnar á Lewis Libby gefa til kynna mun víðtækari siðferðisbrest og spillingu innan stjórnar Bush en þá óraði fyrir. Kemur þetta fram í nýrri könnun sem gerð var á dögunum og þá sagði meira en helmingur aðspurðra að siðferðisþreki og heiðarleika meðal ráðamanna hafi hrakað verulega í stjórnartíð Bush. Niðurstöður könnunarinnar eru skellur fyrir stjórn Bush sem enn sætir hörðum ásökunum vegna slælegra viðbragða við fellibylnum Katrínu. 30.10.2005 15:45
Snjóflóð á Flateyrarvegi Snjóflóð féll á Flateyrarvegi rétt fyrir utan kauptúnið, milli Sólbakka og Hvilftar, um eittleytið í dag . Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði sakaði engan og vegurinn var lokaður fólksbílaumferð í klukkutíma. En þó var snjóflóðið það grunnt að vegurinn var fær jeppum. 30.10.2005 15:09
Bruni í Keflavík í gær Nokkurt tjón hlaust af bruna í iðnaðarhúsnæði í Grófinni í Keflavík síðdegis í gær. Þaðan lagði svartan reyk og þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á vettvang lék talsverður eldur um rýmið á jarðhæð hússins; þar var rekinn Jóga-salur þar til fyrir nokkrum vikum. Inni voru húsgögn og virðist eldurinn hafa komið upp í sófa. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins á nokkrum mínútum. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið. 30.10.2005 15:00
Fagna opnun landamæra Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á. 30.10.2005 15:00
Litli leikklúbburinn á götunni Þrymskviða, sem Litli leikklúbburinn ætlar að frumsýna á Ísafirði 12. nóvember, verður að öllum líkindum sýnt undir berum himni, samkvæmt héraðsfréttavefnum Bæjarins besta á Ísafirði. 30.10.2005 14:45
Álfar og tröll atvinnuskapandi Álfar, tröll og norðurljósin gætu orðið Stokkseyringum féþúfa ef áform um þjóðfræðisafn verða að veruleika. Sunnlenska fréttablaðið greinir frá kaupum 1200 fermetra húsnæðis í þessu skyni þar sem Hólmaröst er með fiskvinnslu, en hún flytur í Þorlákshöfn í byrjun næsta árs. Haft er eftir Benedikti G. Guðmundssyni, forsvarsmanni félagsins um þetta safn, að það gæti gefið Sunnlendingum forskot í málefnum tengdum þjóðfræði og menningartengdri ferðaþjónustu, ef vel tekst til. 30.10.2005 14:00
Auknar líkur á lækningu þunglyndis Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla. 30.10.2005 14:00
Nýtt skip bætist við flota Eyjamanna Nýtt skip, Bergur VE 44, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Vestmannaeyjum um miðjan dag í gær. Bergur kemur frá Póllandi en var keyptur í Noregi. Bergur er ísfisktogari, smíðaður í Danmörku 1998, er 10,50 metra breiður og 36 metrar á lengd. Skipið er samnefnt útgerðinni sem er fjölskyldufyrirtæki, eftir því sem fram kemur í Eyjafréttum. Þar segir einnig að Bergur sé hrein viðbót við flota Eyjamanna. 30.10.2005 12:45
Ný framsetning á leiðarkerfi Leiðarlykill höfuðborgarsvæðisins, þar sem leiðarkerfi strætisvagna tekur á sig mynd neðanjarðarlestakerfis, kemur út í næstu viku. Höfundur kortsins hefur gengið með hugmyndina í maganum í meira en tuttugu ár og telur að það muni hvetja fleiri til að nota strætisvagna. 30.10.2005 12:30
Indverjar á verði Indverjar eru vel á verði í kjölfar þess að þrjár öflugar sprengjur sprungu í miðborg Nýju Delhi í gær. Ekki færri en sextíu og einn féll, flestir óbreyttir borgarar sem voru að kaupa gjafir fyrir mikilvægar trúarhátíðir hindúa og múslíma. 30.10.2005 12:30
Þrjár milljónir heimilislausar Þrjár milljónir manna eru enn á húsaskjóls og nauðþurfta á skjálftasvæðinu í Kasmír. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja þörf á tvöhundruð og fimmtíu milljónum dollara þegar í stað eigi fólkið ekki að deyja úr kulda og vosbúð á næstu vikum. 30.10.2005 12:00
Aðstandendur stofna félag Stofnfundur aðstandendahóps Geðhjálpar verður haldinn í dag á Túngötu sjö klukkan tvö. Yfirskrift fundarins er Fram í dagsljósið. Árni Magnússon félagsmálaráðherra verður gestur fundarins og mun greina frá því sem er að gerast í málum geðsjúkra í félagsmálaráðurneytinu. 30.10.2005 11:30
Allar líkur meiri styrkleika Fellibylurinn Beta leikur Nikaragva grátt sem stendur en bylnum hefur vaxið mjög ásmeginn og er hann nú af stærðargráðu þrjú. Veðurfræðingar segja allar líkur á að Beta verði enn sterkari þegar bylurinn skellur á skóglendi við ströndina eftir fáeinar klukkustundir. 30.10.2005 11:02
Nóttin nokkuð erilsöm Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík, margir voru á ferli í miðborginni og mikið um pústra en enginn slasaðist alvarlega. Einnig þurfti lögreglan að hafa afkskipti af nokkrum heimilum vegna partíláta og hávaða. Tólf voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Nóttin var hins vegar róleg bæði hjá lögreglunni í Kópavogi og Hafnarfirði og sömu sögu er að segja frá Keflavík. 30.10.2005 10:59
26 þúsund Írakar fallið frá stríðsbyrjun Tuttugu og sex þúsund Írakar hafa verið drepnir eða særðir í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna í Írak frá því í byrjun árs 2004, að mati sérfræðinga bandaríska varnarmálaráðuneytisins. 30.10.2005 10:53
Fleiri konur stjúpættleiddar Mun fleiri konur eru stjúpættleiddar en karlar. Kynfeður umgangast frekar syni sína en dætur. Opinberar tölur um stjúptengsl eru að öðru leyti ekki til. 29.10.2005 20:30
Hræðsla óþörf Sala á kjúklingakjöti hefur tekið dýfu í Frakklandi vegna hræðslu við fuglaflensu - hræðslu sem er algjörlega ástæðulaus. 29.10.2005 20:15
Íslensk rannsókn hjálpar til Með aukinni hryðjuverkastarfsemi í heiminum hafa heilbrigðisyfirvöld víðs vegar vaknað til meðvitundar um þann möguleika að grípa þurfi til bólusetningar gegn bólusótt í stórum stíl. Viðamikil íslensk rannsókn ætti að geta nýst við þróun á nýju bóluefni og jafnframt sýnt hvort arfgengi skipti máli við vörnum gegn smitsjúkdómum 29.10.2005 20:15
Gagnrýna yfirgang síonista Íranskir ráðamenn vilja má Ísrael af landakortinu en segjast alls ekki hafa í hyggju að fara með ofbeldi gegn landinu. Þeir gagnrýna yfirgang síonista sem þeir segja að stjórni Sameinuðu þjóðunum. 29.10.2005 19:45
Mismunur pólitískur Ísland gengur jafnvel lengra í því að taka upp regluverk Evrópusambandsins en sum aðildarríkin. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem gerð var við Evrópufræðasetrið á Bifröst. 29.10.2005 19:45
Sátt ekki í augsýn Formaður Samfylkingarinnar hvetur sjómenn til að líta fram á veginn og viðurkenna að fiskurinn í sjónum sé sameign þjóðarinnar. En útvegsmenn eru ekki á þeim buxunum. Þeir íhuga málssókn til að fá viðurkennt að þeir sem eigi kvótann eigi fiskinn. 29.10.2005 19:30
Varað við Íslenskum þorski Auðlinda- og umhverfisskrifstofunni tókst að hafa áhrif á að náttúruverndarsinnar vestra beittu sér ekki sérstaklega gegn íslenska þorskinum - en þeim finnst samt Íslendingar ganga of hart fram í veiðum sínum. 29.10.2005 19:30
Fimmtíu féllu í Nýju Delhi Yfir fimmtíu féllu í röð sprengjuárása í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, í dag. Enginn veit hverjir standa á bak við árásirnar sem ráðamenn segja hryðjuverk. 29.10.2005 19:15
Lagt af á næstunni NMT-farsímakerfið, sem til margra ára hefur þjónað og tryggt öryggi allra landsmanna, hvort sem þeir eru staddir á sjó eða landi, jafnt í alfaraleið sem utan, verður lagt niður. Enn er á huldu hvað tekur við, en forstjóri Póst- og fjarskipastofnunar útilokar ekki að erlendir aðilar komi að uppbyggingu nýs kerfis. 29.10.2005 18:45
Öflugar sprengingar á Indlandi Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar. 29.10.2005 13:50
Tvær handtökur til viðbótar í Danmörku Tveir í viðbót hafa verið úrskurðaðir í varðhald í Danmörku grunaðir um þátttöku í skipulagningu hryðjuverkaárásar í Evrópu. Danska lögreglan útilokar ekki að hópurinn hafi ætlað að láta til skarar skríða í Danmörku. 29.10.2005 12:41
Vilja fjölbreyttara atvinnulíf á Vestfjörðum Ísfirðingar vilja aukna fjölbreytni í atvinnulífinu og horfa í ríkara mæli til háskóla og háskólasamfélags. Þó vantar fólk í vinnu í iðngeiranum og í fiskvinnslu. 29.10.2005 12:21
Olíurisar með methagnað Á sama tíma og olíuverð hefur verið í nánd við sögulegt hámark er hagnaður alþjóðlegra olíufyrirtækja einnig í hámarki. Árið stefnir í að vera það besta í sögu olíuiðnaðarins. Olíurisinn Exxon tilkynnti um hagnað sinn á þriðja ársfjórðungi í gær og hann er sá mesti í sögunni - tíu milljarðar dollara eða ríflega sexhundruð milljarðar króna. 29.10.2005 12:15
Útilokar ekki dómsmál vegna aflaheimilda Formaður Landssambands íslenskra Útvegsmanna útilokar ekki að LÍÚ eða einstaka útvegsmenn höfði dómsmál í framhaldi af lögfræðiáliti sem lagt var fyrir aðalfund samtakanna. Í því eru aflaheimildir sagðar eign handhafa heimildanna en ekki sameign þjóðarinnar. 29.10.2005 12:09
Big Ben þagnar um stund Big Ben er þagnaður. Klukkan í turninum, sem er eitt einkennismerka Lundúnaborgar, er þögnuð um sinn og mun ekkert heyrast í bjöllunum næsta sólarhringinn eða svo. Ástæðan eru sú að stilla þarf bjöllurnar og sinna viðhaldi. Það eru liðnir tveir áratugir frá því að Big Ben þagnaði síðast jafnlengi en sérfræðingarnir sem sinna viðhaldinu segja klukkuna í besta lagi, en viðhaldið sé reglubundið og hjá því verði ekki komist. 29.10.2005 10:45
Lestarslys á Indlandi Óttast er að allt að hundrað og fimmtíu manns hafi farist þegar lest fór út af sporinu í Andhra Pradesh í suðurhluta Indlands í morgun. Ástæðan er sú að brú gaf sig þegar áin sem hún þveraði breyttist úr sprænu í straumharða á. Úthellisrigning og vonskuveður er á svæðinu og hefur það valdið skyndiflóðum víða. 29.10.2005 10:15
Rannsókn ekki lokið Rannsókn á leka frá CIA, bandarísku leyniþjónustunni, þar sem upplýsingum um njósnara þjónustunnar var lekið til fjölmiðla, er ekki lokið, þrátt fyrir að starfsmaður Hvíta hússins, Lewis Libby, hafi verið ákærður. Patrick Fitzgerald, yfirmaður rannsóknarinnar upplýsti þó í gær að stærstum hluta rannsóknarinnar væri lokið. 29.10.2005 10:00
Færð og veður í dag: Enn liggur allt innanlandsflug niðri vegna ísingar og ókyrrðar í lofti, en athugað verður með flug um klukkan ellefu. Þá er Holtavörðuheiðin lokuð vegna ófærðar og eu vegfarendum bent á að fara Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Lokað er um Víkurskarð og Ólafsfjarðarmúla. 29.10.2005 10:00
Hagnaður KB banka jókst um 163% KB banki skilaði níu komma sjö milljarða króna hagnaði eftir skatta á þriðja ársfjórðungi. Það er fjörutíu og sjö komma sex prósentum meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nemur tæplega þrjátíu og fjórum og hálfum milljarði króna sem er aukning um rúmlega 163 prósent miðað við sama tíma árið 2004. 29.10.2005 09:45
Annríki hjá björgunarsveitum og lögreglu Töluvert annríki var hjá björgunarsveitum í óveðrinu sem gekk yfir sunnan- og vestanvert landið í gær. 29.10.2005 09:27
Endurgreiddi 50 milljónir Þróunarsamvinnustofnun Íslands greiddi rúmar fimmtíu milljónir króna til baka til ríkissjóðs á síðasta ári vegna hagstæðs gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadal. Að sögn Sighvats Björgvinssonar, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunarinnar, er sá hluti fjárframlaga til stofnunarinnar sem fer til þróunarhjálpar í útlöndum með gengistryggingu. Það eru um 85 prósent framlaga. 29.10.2005 08:00
Krefst frávísunar á endurskoðun dóms Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar, hefur krafist frávísunar á endurupptökukröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á fyrri úrskurði héraðsdóms. Hannes hefur farið fram á endurskoðun á fyrri ákvörðun Héraðsdóms um að heimil sé aðför að Hannesi á grundvelli dóms í Bretlandi þar sem hann var sakfelldur fyrir meiðyrði. 29.10.2005 07:30
Viðræður í uppnámi Óþolandi óvissa ríkir um viðræður við Bandaríkjamenn um varnarsamninginn, segja stjórnarandstæðingar eftir fund með utanríkisráðherra. Ekkert hefur breyst síðan samningamenn komu heim, segir formaður utanríkismálanefndar. 29.10.2005 07:00
Lögreglan gleymdi að senda beiðni Krefjist rannsóknarhagsmunir þess að úrskurðir héraðsdóms fylgi ekki dómum Hæstaréttar á netinu þarf lögregla að fara fram á það fyrir fram, að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrifstofustjóra Hæstaréttar. 29.10.2005 06:45
Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald var í gær framlengt um viku yfir manni sem situr í haldi vegna fíkniefna í póstsendingum. Stúlku, starfsmanni pósthúss, sem einnig hefur setið í gæsluvarðhaldi var hins vegar sleppt, að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík. 29.10.2005 06:30
Lokkar ekki til sín ferðamenn Tvö hundruð ár eru liðin á þessu ári frá fæðingu rithöfundarins H.C. Andersen og af því tilefni hafa verið settar upp margvíslegar sýningar í Danmörku. Alþjóðlegri auglýsingaherferð var hrundið af stað til að fá erlenda ferðamenn til landsins. 29.10.2005 06:00
Álpaðist til Frakklands Þegar læðan Emily týndist í heimabæ sínum, Appleton í Wisconsin, fyrir rúmum mánuði bjuggust eigendur hennar við að hana væri að finna í kattageymslum bæjarins. Þeim varð því hverft við þegar fréttist af henni í Nancy í Frakklandi. Talið er að Emily hafi álpast upp í vörugám við pappírsverksmiðju sem síðan var fluttur sjóleiðis yfir Atlantshafið. 29.10.2005 06:00
Lá í líkhúsi í rúm tvö ár Bresk yfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að lík ungs manns lá í líkhúsi í tvö ár án þess að reynt væri að bera á það kennsl. Á meðan beið fjölskylda hans á milli vonar og ótta um hvað orðið hefði um ástvin þeirra. 29.10.2005 06:00