Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geta ekki tekið upp evruna án þess að ganga í ESB Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, telur hvorki Ísland né Noreg hafa möguleika á að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið. 25.10.2005 19:22
Þátttaka vonum framar Ekki komust allir sem vildu nálægt sviðinu sem sett var upp í tilefni af kvennafrídeginum. Skipuleggjendur hans óraði ekki fyrir því að þátttakan yrði jafn mikil og raun bar vitni. 25.10.2005 19:07
Sökk í Sandgerðishöfn Þilfarsbáturinn Ritur ÍS-22 sökk í höfninni í Sandgerði í dag. Báturinn, sem er tíu brúttórúmlestir, sökk á skammri stund þar sem hann var bundinn við flotbryggju í höfninni. 25.10.2005 19:00
Stjórnarskrá samþykkt í skugga voðverka Al-Qaeda lýsti í dag ábyrgð á sprengjuárásunum á hótel í Bagdad í gær. Í miðju skot- og sprengjuárása í dag var greint frá því að mikill meirihluti Íraka hefði samþykkt nýja stjórnarskrá. 25.10.2005 18:53
Gistiskýlið yfirfullt í kuldanum Gistiskýli fyrir heimilislausa í höfuðborginni yfirfylltist í nótt og þurftu starfsmenn að taka við fleirum en húsrúm leyfði, til að vísa ekki fólki út í nístandi kuldann. Frostið í nótt fór niður í fimm gráður. Útigangsmenn skipta tugum í Reykjavík. Þeim hefur fjölgað verulega að undanförnu og oft þarf að vísa þeim frá. 25.10.2005 18:50
Ægir á leið til hafnar með bát í togi Varðskipið Ægir er nú á leið til hafnar með síldveiðibátinn Hákon EA-148 í togi. Hákon fékk veiðarfærin í skrúfuna og þar sem ekki tókst að losa um þau tók Ægir síldveiðibátinn í tog. 25.10.2005 18:45
Fauk í Bandaríkjamenn Það fauk í Bandaríkjamenn í kjölfar viðræðufunda með Íslendingum um varnarmál í síðustu viku í Washington. Í bandaríska varnarmálaráðuneytinu er vilji fyrir því að loka Keflavíkurstöðinni og hörð samningatækni Íslendinga gerir þeim sem bera á móti erfitt fyrir. 25.10.2005 18:30
Héraðsdómur tekur fyrir tvö mál Hannesar í vikunni Tvö mál Hannesar Hólsteinar Gissurarsonar verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. 25.10.2005 18:15
Vaxtabyrði heimilanna eykst Vaxtabyrði heimila er að aukast vegna hækkunar vaxta á óverðtryggðum lánum. Meira af ráðstöfunartekjum heimilanna fer nú í að borga vexti en áður. 25.10.2005 18:00
Grunuð um smygl á fíkniefnum Karl og kona hafa verið dæmt í tíu daga gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnasmygl. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins með póstsendingum. 25.10.2005 17:38
Olíufélagið hf. dæmt til að greiða skaðabætur Olíufélagið hf. var í dag dæmt í Hérðasdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar fimm milljónir í skaðabætur, sökum vinnuslys sem átti sér stað á einni afgreiðslustöð Olíufélagsins hf. í Reykjavík í apríl árið 2003. 25.10.2005 17:35
Tæplega þúsund fangar teknir af lífi á 29 árum Fjöldi þeirra sem teknir hafa verið af lífi í Bandaríkjunum síðan dauðarefsingin var tekin upp þar að nýju á áttunda áratugnum nálgast nú eitt þúsund. Í dag var 48 ára gamall maður, Willie "Flip" Williams að nafni, sem dæmdur var fyrir morð á fjórum mönnum og eiturlyfjasölu, tekinn af lífi með banvænni sprautu í Ohio-ríki. 25.10.2005 17:24
Friður í meirihlutann Meirihlutasamstarf Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í sveitarstjórn Skagafjarðar er ekki lengur í hættu og sömuleiðis starf oddvita Vinstri grænna sem sveitarstjóra í sveitarfélaginu. Sveitarstjóri baðst afsökunar á ummælum um oddvitann. 25.10.2005 17:09
Egeland gat ekki mætt á Norðurlandaráðsþingið Jan Egeland, yfirmaður neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, sá sér ekki fært að mæta á þing Norðurlandaráðs, vegna þess hve illa hefur gengið að safna fé til hjálparstarfs á jarðskjálftasvæðinunum í Pakistan. 25.10.2005 17:05
Brýtur lög um erlenda starfsmenn Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir ljóst að allir starfsmenn starfsmannaleigunnar 2B hér á landi, starfi hér ólöglega. Verkalýðsfélag Akraness kærði fyrirtækið í gær og vill að Sýslumaður stöðvi vinnu 10 Pólverja á Grundartanga sem Ístak hefur í vinnu í gegnum leiguna 2B. 25.10.2005 16:54
Íslenskar konur fyrirmynd annarra kvenna Konur á Norðurlöndum eru fyrirmynd kvenna sem berjast fyrir jafnrétti í öðrum löndum. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Rannveigar Guðmundsdóttur, forseta Norðurlandaráðs, við setningu Norðurlandaráðsþings klukkan þrjú í dag. Rannveig sagði að þrátt fyrir þetta væru enn mörg verkefni óunnin hér á landi, meðal annars þurfi að vinna bug á ofbeldi gegn konum og börnum. 25.10.2005 16:38
Ekkert laust í Fossvogskirkjugarði Engin legstæði eru laus í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík og því getur fólk á Reykjavíkursvæðinu látið grafa sig í Gufuneskirkjugarði, að þeim undanskildum sem eiga frátekið legstæði í öðrum kirkjugörðum í Reykjavík. 25.10.2005 16:16
Heimsýn vill eflingu norræns samstarfs Norrænu ríkin ættu að efla samstarf sitt en ekki láta draga sig inn í stofnun nýs stórríkis í Evrópu sem glímir nú við mikla kreppu. Þetta segja norrænar hreyfingar gegn aðild að Evrópusambandinu, en þær kynntu áherslur sínar í morgun í tengslum við fund Norðurlandaráðs hér á landi. 25.10.2005 16:13
Norræn samvinna ef fuglaflensufaraldur brýst út Heilbrigðisráðherrum Norðurlandanna hefur verið falið að finna hvar megi styrkja samvinnu norrænu landanna ef fuglaflensufaraldur brýst út á Norðurlöndum en yfirvöld í löndunum er öll vel á verði. Þetta kom fram á fundi forsætisráðherra norrænu ríkjanna í morgun. 25.10.2005 16:05
Tekið fyrir um miðjan nóvember hið fyrsta Jón Magnússon, lögmaður Fréttablaðsins, bíður enn eftir því að stefna Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu fyrir að birta upplýsingar úr tölvupósti, og lögbann við birtingu frekari upplýsinga, verði tekin fyrir í Héraðsdómi. 25.10.2005 15:06
Embættum fækkar í fimmtán Lögregluumdæmum landsins fækkar um ellefu, úr 26 í fimmtán samkvæmt tillögum framkvæmdanefndar á vegum dómsmálaráðherra sem hefur nú samþykkt tillögur nefndarinnar. 25.10.2005 14:00
Vilja kynbæta kúna Eyfirskir kúabændur vilja að hafinn verði undirbúningur að innflutningi erfðavísa til að kynbæta íslenska kúakynið. Félagar í Búgreinaráði Búnaðarsambands Eyjafjarðar í nautgriparækt samþykktu ályktun þessa efnis á fundi sínum í gærkvöldi. Þar með slást þeir í hóp með borgfirskum bændum sem höfðu áður ályktað í sömu veru. 25.10.2005 13:45
Áfrýjaði úrskurði samkeppniseftirlits Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, áfrýjaði úrkskurði Samkeppniseftirlits til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, í máli klínískt starfandi sálfræðinga. En sálfræðingar hafa leitað eftir því í sex ár að sjúklingar þeirra fái endurgreiðslu til jafns við þá sem leita til geðlækna, sé um sambæirlega meðferð að ræða. 25.10.2005 13:25
34 hjálparstarfsmenn í haldi Flótamenn í Darfur héraði í Súdan hafa tekið þrjatíu og fjóra hjálparstarfsmenn í gíslingu í stærstu flóttamannabúðunum í Darfúr. Flóttamennirnir krefjast þess að einn af leiðtogum þeirra sem var nýverið handtekinn, verði látinn laus. 25.10.2005 13:12
Dæmdur fyrir fíkniefnasölu Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi mann í gær til tíu mánaða fangelsisvistar fyrir að selja fíkniefni. Sjö mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. 25.10.2005 12:30
Stjórnarskráin samþykkt Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána. 25.10.2005 11:50
Ker reiðubúið að greiða borginni Ker, sem á Olíufélagið Essó, er reiðubúið að greiða Reykjavíkurborg þá upphæð, sem félagið þáði á laun af Skeljungi, fyrir að tryggja að Skeljungur fengi mikil olíuviðskipti við borgina, í útboði árið árið 1996. 25.10.2005 11:45
Svartsýnni á efnahaginn Annan mánuðinn dregur úr tiltrú almennings á efnahagslífið samkvæmt væntingavísitölu Gallup sem var birt í morgun. Flestir eru þó sáttir við efnahagsástandið eins og það er nú en þeim fjölgar sem eru svartsýnir á þróun efnahagsmála næsta hálfa árið. 25.10.2005 11:38
Ekki hærri í rúm þrjú ár Vextir óverðtryggðra lána eru hærri nú en þeir hafa verið síðan í maí árið 2002. Lægstu vextir eru nú tólf prósent og hafa hækkað um 50 prósent á sextán mánuðum. 25.10.2005 11:15
Actavis styrkir Blátt áfram Actavis veitti forvarnarverkefni Ungmennafélags Íslands, Blátt áfram, einnar milljónar króna styrk í dag. Verkefninu er ætlað að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. 25.10.2005 10:43
Tamiflu nánast uppselt í Danmörku Ótti Dana við fuglaflensu er slíkur að nú er inflúensulyfið Tamiflu nánast uppselt í apótekum og hjá heildsölum í landinu. Sala á lyfinu jókst mikið í síðasta mánuði og hefur einnig aukist í þessum í kjölfar frétta af því að hin banvæni H5N1-stofn veirunnar hafi greinst í fuglum í Austur-Evrópu. 25.10.2005 10:00
Íslenskir karlar eldast og fitna Íslenskir karlar eru að fitna og eldast á sama tíma og konur virðast ráða betur við þyngdina og meðalaldur þeirra hækkar ekki jafn mikið og karla. Aukin velmegun er því ekki eingöngu sýnileg í miklum launamun heldur einnig á heilsu- og holdarfari. 25.10.2005 10:00
Meira en helmingur fórnarlamba yfir sextugu Meira en helmingur þeirra sem létust af völdum fellibylsins Katrínar voru yfir sextugu. Nýjar tölur frá heilbrigðisyfirvöldum í Louisiana benda til að langflest fórnarlömb fellibylsins hafi verið eldri borgarar sem ýmist gátu ekki eða vildu ekki yfirgefa heimili sín. 25.10.2005 09:45
Kínverjar óttast útbreiðslu HIV Allt að tíu milljón Kínverjar gætu smitast af HIV-veirunni á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Þetta sagði helsti alnæmissérfræðingur Kínverja í gær og tók þar með undir varnaðarorð Sameinuðu Þjóðanna. 25.10.2005 09:30
Útiloka ekki samstarf við stjórnarandstöðu Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segist ekki útiloka að Frjálslyndir myndu ganga til liðs við stjórnarandstöðuflokkana í kosningabandalgi að norskri fyrirmynd fyrir næstu alþingiskosningar. Hann segir það hins vegar skyldu stjórnarandstöðuflokkanna að stefna að ríkisstjórnarsamstarfi, falli ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. 25.10.2005 09:15
Skotið á herskáa Palestínumenn Ísraelsk herþota skaut í morgun sprengjum að vígi herskárra Palestínumanna í borginni Beit Hanoun á Gaza. Hópur sem tengist Fatah-hreyfingunni heldur til í byggingunni en enginn virðist hafa slasast í árásunum. 25.10.2005 09:00
Hlýtur Norrænu textílverðlaunin Norrænu textílverðlaunin renna í ár til Íslensku listakonunnar Hrafnhildar Sigurðardóttur. Þau verða afhent við formmlega athöfn í Boräs í Svíþjóð næstkomandi fimmtudag. Í tilkynningu frá dómnefnd segir að verk Hrafnhildar séu fjölbreytt, frumleg og vönduð þar sem konan og hið kvenlega eru í brennidepli. 25.10.2005 08:45
Fjölmennt á kvennafrídegi á landsbyggðinni Konur á landsbyggðinni voru mun virkari þátttakendur í kvennafrídeginum en fyrir þrjátíu árum. Á Akureyri fjölmenntu konur í Sjallann. Starfsemi fyrirtækja var víða hálflömuð og öll þjónusta gekk hægar en venjulegt er. 25.10.2005 08:45
Nýr endurvarpi á Hornströndum Nýr endurvarpi fyrir talstöðvarbúnað björgunarsveita var settur upp í friðlandi Hornstranda á Vestfjörðum í fyrradag. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig en þyrlu þurfti til verksins. 25.10.2005 08:45
Ben Bernanke tilnefndur sem seðlabankastjóri BNA George Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Ben Bernanke, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Bernanke er ætlað að taka við af Alan Greenspan sem hættir snemma á næsta ári eftir ríflega 18 ár í starfi seðlabankastjóra. 25.10.2005 08:30
Baráttukonan Rosa Parks látin Rosa Parks, saumakonan frá Alabama, sem varð heimsfræg fyrir að fylgja ekki þeirri reglu aðskilnaðarlaga að standa upp fyrir hvítum í strætisvagni árið 1955, lést í gær í Detriot í Bandaríjkunum 92 ára gömul. 25.10.2005 08:15
Gluggagægir í Þingholtunum Grunur leikur á að gluggagægir hafi verið á ferðinni í Þingholtunum í nótt , en hann fanst ekki þrátt fyrir talsverða leit lögreglunnar. Íbúi í húsi á svæðinu sá manninn á glugga íbúðar sinnar en hann forðaði sér í skyndingu þegar hann sá að íbúinn hafði orðið hans var. 25.10.2005 08:15
Sex borgarar drepnir í Afganistan Afganskir uppreisnarmenn drápu sex óbreytta borgara seint í gærkvöldi í árás sem beindist að bandarískum herjeppa. Árásin mistókst og hermennirnir sluppu allir ómeiddir. Bíll sem átti leið hjá varð hins vegar fyrir skoti úr sprengjuvörpu með þeim afleiðingum að allir farþegarnir sex létust. 25.10.2005 08:15
Skýrla kynnt í öryggisráði SÞ Höfundur skýrslu Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hairiri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, mun í dag kynna skýrsluna í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Í skýrslunni er því haldið fram að hátt settir menn innan stjórnkerfis Sýrlands hafi átt aðild að morðinu. 25.10.2005 08:00
Hvetja til samstöðu Norðurlandanna Nokkur norræn samtök munu í dag, strax að loknum blaðamannafundi fulltrúa Norðurlandaráðs, kynna sameiginlega yfirlýsingu sína í Þjóðleikhúskjallaranum. Í yfirlýsingunni koma fram hugmyndir og tilmæli um það hvernig Norðurlöndunum beri að halda á málum og sýna samstöðu, því að mati samtakanna stendur Evrópusambandið frammi fyrir alvarlegri kreppu. 25.10.2005 08:00