Fleiri fréttir Próflaus á stolnum bíl Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að stela bíl við Barónsstíg í Reykjavík og aka um borgina. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Ökuferðin endaði í Breiðholti, en til að komast inn í bílinn braut maðurinn í honum hliðarrúðu. 28.10.2005 02:00 Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló. 27.10.2005 21:53 Sjimpansar ekki vinir í raun Sjimpansar eru ekki vinir í raun. Þetta er í stuttu máli niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum. Athugað var hvort sjimpansar, sem afhentur væri matur, deildu honum með öðrum sjimpönsum sem ekki fengju mat. 27.10.2005 21:52 Ísraelar gera loftárásir á Gaza Sjö Palestínumenn létust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðinu í kvöld. Samkvæmt fréttum frá Ísraelsstjórn voru þeir sem létust meðlimir í uppreisnarhópnum Íslamska-Jihad. 27.10.2005 21:47 Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. 27.10.2005 21:42 Yngsti lifrarþegi landsins 27.10.2005 20:00 Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum. 27.10.2005 19:28 Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. 27.10.2005 19:26 Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. 27.10.2005 19:26 Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. 27.10.2005 19:22 Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. 27.10.2005 19:19 Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. 27.10.2005 19:14 Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:13 Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:07 Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur. 27.10.2005 19:00 Íhugar að stofna eigið flugfélag Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu. 27.10.2005 19:00 Umferðarstofa braut samkeppnislög Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Umferðarstofa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá. Umferðarstofa hafi þannig brotið gegn samkeppnislögum. 27.10.2005 18:06 Dómur héraðsdóms staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli útgerðarfélagsins Gunnvarar gegn manni sem starfaði áður hjá fyrirtækinu. 27.10.2005 18:00 Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til. 27.10.2005 17:50 Flug til suður Grænlands í biðstöðu Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma. 27.10.2005 17:49 Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. 27.10.2005 17:43 Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. 27.10.2005 17:37 Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. 27.10.2005 17:26 Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. 27.10.2005 17:18 Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. 27.10.2005 17:14 Tappa þarf af undirliggjandi verðbólgu 27.10.2005 17:05 Vilja völlinn í Vatnsmýrinni Margir þeirra sem börðust hvað harðast gegn sameiningu sveitarfélaganna í Eyjafirði, og eru taldir hafa haft mikið að segja um að sameiningu var hafnað, hafa nú skorið upp herör gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar. 27.10.2005 16:30 Mjög alvarlegar athugasemdir segir Jóhanna Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mjög alvarlegar athugasemdir koma fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á sérfræðiþjónustu á undanförnum árum. 27.10.2005 16:18 Vöruflutningabíll valt í Mosfellsbæ Bílstjóri vöruflutningabifreiðar slasaðist þegar bifreið hans valt á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbilið í dag. 27.10.2005 15:39 ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. 27.10.2005 14:30 Ole Stavad nýr forseti Norðurlandaráðs Danski þingmaðurinn Ole Stavad verður forseti Norðurlandaráðs á árinu 2006. Hann var einróma kjörinn á Norðurlandaráðsþingi sem lauk nú í Reykjavík klukkan tvö. Hann tekur við að Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem gengt hefur embættinu á þessu ári. 27.10.2005 14:15 Hagsmunir ferðaþjónustu miklir vegna Grænlandsflugs Vestnorræna ráðið ræðir nú hvernig koma megi í veg fyrir að flug frá Íslandi til Grænlands leggist af, en samningur við Grænlendinga þar að lútandi rennur út um áramótin. Framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins segir mikla hagsmuni í húfi bæði fyrir grænlenska og íslenska ferðaþjónustu. 27.10.2005 14:00 Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim. 27.10.2005 13:54 Vill að ríkisvaldið bregðist við vanda sjávarútvegsfyrirtækja Ef gengi íslensku krónunnar stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta starfsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkrar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 13:45 Fjöldi barnaverndartilfella tvöfaldast á átta árum Börnum, sem njóta þjónustu barnaverndarkerfisins, líður jafn illa eða jafnvel verr en börnum innan geðheilbrigðiskerfisins. Stúlkum líður verr en drengjum. Fjöldi barna undir eftirliti barnaverndaryfirvalda hefur ríflega tvöfaldast á átta árum. 27.10.2005 13:30 Miers gefur ekki kost á sér sem hæstaréttardómari Harriet Miers er hætt við að gefa kost á sér sem hæstaréttardómari í Bandaríkjunum. Þetta tilkynnti hún rétt í þessu. 27.10.2005 13:18 Þingi Norðurlandaráðs að ljúka Þingi Norðurlandaráðs lýkur nú klukkan tvö eftir hádegið, en í morgun hafa samstarfsráðherrar norrænu ríkjanna meðal annars rætt fjármál, orkumál, nýsköpun og framtíðarskipulag norræns samstarfs. 27.10.2005 13:15 Engin ástæða til að óttast skyndisölu á skuldabréfum Erfitt er að átta sig á því hvaða áhrif skuldabréfaútgáfa erlendra fjárfesta hefur á íslenskt efnahagslíf. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, segir að engin ástæða sé til að óttast að fjárfestarnir selji allir bréf sín á sama tíma. Jafn líklegt sé að þeir vilji eiga skuldabréfin áfram eða gefa út ný. 27.10.2005 13:00 Hrærð yfir fjölmenninu Það mátti heyra ekka þegar sveit rauðklæddra björgunarsveitarmanna gekk í íþróttahúsið á Flateyri í gær þar sem þess var minnst að tíu ár eru frá snjóflóðinu sem varð tuttugu manns að bana og lagði stóran hluta þorpsins í rúst. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, ein þeirra sem skipulögðu minningarathöfnina, segist hrærð yfir því hversu margir komu. 27.10.2005 12:45 Malarflutningabíll valt í Mosfellsbæ Malarflutningabíll fór út af veginum í Mosfellsbæ og er maður fastur í honum. Lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll eru á leiðinni á slysstað en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið maðurinn er slasaður. Þá fauk gámur af bíl í Kollafirði. 27.10.2005 12:30 Þverneita að breyta dauðadómni Yfirvöld í Singapore þverneita að breyta dauðadómi yfir áströlskum fíkniefnasmyglara sem var handtekinn með 400 grömm af heróíni árið 2002. Stjórnvöld í Ástralíu hafa mánuðum saman reynt að fá dóminn mildaðan, en án árangurs. 27.10.2005 12:15 Dæmdur fyrir að stela bílum Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist. 27.10.2005 12:00 Fjármálaeftirlit Svíþjóðar varar KB banka við Kaupþing banki hefur fengið alvarlega viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð, meðal annars fyrir að hygla fyrirtæki í eigu stjórnarmanna Kaupþings, á kostnað annarra viðskiptavina. 27.10.2005 12:00 Varar við hættu á berklafaraldri Hætta er á að berklafaraldur brjótist út í Norður-Evrópu vegna lyfjaónæmra berkla sem komið hafa upp í héraðinu Arkhangelsk í Norðvestur-Rússlandi. Þetta segir Jan Henrik Fredriksen, fulltrúi noskra Framfaraflokksins, en hann vakti athygli á málinu í umræðum um norðursvæðin á Norðurlandaráðsþinginu sem nú er haldið í Reykjavík. 27.10.2005 11:45 Fjölga þarf rýmum Fjölga verður rýmum á réttargeðdeildinni á Sogni þar sem hún rúmar ekki lengur alla þá sem þyrfti að vista þar segir heilbrigðisráðherra. Hann hefur skipað starfshóp til að huga að uppbyggingu á Sogni. 27.10.2005 11:05 Sjá næstu 50 fréttir
Próflaus á stolnum bíl Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að stela bíl við Barónsstíg í Reykjavík og aka um borgina. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Ökuferðin endaði í Breiðholti, en til að komast inn í bílinn braut maðurinn í honum hliðarrúðu. 28.10.2005 02:00
Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló. 27.10.2005 21:53
Sjimpansar ekki vinir í raun Sjimpansar eru ekki vinir í raun. Þetta er í stuttu máli niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum. Athugað var hvort sjimpansar, sem afhentur væri matur, deildu honum með öðrum sjimpönsum sem ekki fengju mat. 27.10.2005 21:52
Ísraelar gera loftárásir á Gaza Sjö Palestínumenn létust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðinu í kvöld. Samkvæmt fréttum frá Ísraelsstjórn voru þeir sem létust meðlimir í uppreisnarhópnum Íslamska-Jihad. 27.10.2005 21:47
Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. 27.10.2005 21:42
Ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga Það þarf ekki að vera slæmt fyrir Íslendinga að þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna hafi verið falið að leiða varnarmálin á Íslandi til lykta. Þó er ólíklegt að gerð verði undantekning fyrir Íslendinga og ekki dregið saman í varnarviðbúnaði hér á landi, að sögn sérfræðings í öryggismálum. 27.10.2005 19:28
Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. 27.10.2005 19:26
Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. 27.10.2005 19:26
Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. 27.10.2005 19:22
Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. 27.10.2005 19:19
Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. 27.10.2005 19:14
Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:13
Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. 27.10.2005 19:07
Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur. 27.10.2005 19:00
Íhugar að stofna eigið flugfélag Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu. 27.10.2005 19:00
Umferðarstofa braut samkeppnislög Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Umferðarstofa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá. Umferðarstofa hafi þannig brotið gegn samkeppnislögum. 27.10.2005 18:06
Dómur héraðsdóms staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli útgerðarfélagsins Gunnvarar gegn manni sem starfaði áður hjá fyrirtækinu. 27.10.2005 18:00
Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til. 27.10.2005 17:50
Flug til suður Grænlands í biðstöðu Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma. 27.10.2005 17:49
Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. 27.10.2005 17:43
Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. 27.10.2005 17:37
Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. 27.10.2005 17:26
Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. 27.10.2005 17:18
Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. 27.10.2005 17:14
Vilja völlinn í Vatnsmýrinni Margir þeirra sem börðust hvað harðast gegn sameiningu sveitarfélaganna í Eyjafirði, og eru taldir hafa haft mikið að segja um að sameiningu var hafnað, hafa nú skorið upp herör gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar. 27.10.2005 16:30
Mjög alvarlegar athugasemdir segir Jóhanna Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mjög alvarlegar athugasemdir koma fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á sérfræðiþjónustu á undanförnum árum. 27.10.2005 16:18
Vöruflutningabíll valt í Mosfellsbæ Bílstjóri vöruflutningabifreiðar slasaðist þegar bifreið hans valt á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbilið í dag. 27.10.2005 15:39
ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. 27.10.2005 14:30
Ole Stavad nýr forseti Norðurlandaráðs Danski þingmaðurinn Ole Stavad verður forseti Norðurlandaráðs á árinu 2006. Hann var einróma kjörinn á Norðurlandaráðsþingi sem lauk nú í Reykjavík klukkan tvö. Hann tekur við að Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, sem gengt hefur embættinu á þessu ári. 27.10.2005 14:15
Hagsmunir ferðaþjónustu miklir vegna Grænlandsflugs Vestnorræna ráðið ræðir nú hvernig koma megi í veg fyrir að flug frá Íslandi til Grænlands leggist af, en samningur við Grænlendinga þar að lútandi rennur út um áramótin. Framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins segir mikla hagsmuni í húfi bæði fyrir grænlenska og íslenska ferðaþjónustu. 27.10.2005 14:00
Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim. 27.10.2005 13:54
Vill að ríkisvaldið bregðist við vanda sjávarútvegsfyrirtækja Ef gengi íslensku krónunnar stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta starfsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkrar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 13:45
Fjöldi barnaverndartilfella tvöfaldast á átta árum Börnum, sem njóta þjónustu barnaverndarkerfisins, líður jafn illa eða jafnvel verr en börnum innan geðheilbrigðiskerfisins. Stúlkum líður verr en drengjum. Fjöldi barna undir eftirliti barnaverndaryfirvalda hefur ríflega tvöfaldast á átta árum. 27.10.2005 13:30
Miers gefur ekki kost á sér sem hæstaréttardómari Harriet Miers er hætt við að gefa kost á sér sem hæstaréttardómari í Bandaríkjunum. Þetta tilkynnti hún rétt í þessu. 27.10.2005 13:18
Þingi Norðurlandaráðs að ljúka Þingi Norðurlandaráðs lýkur nú klukkan tvö eftir hádegið, en í morgun hafa samstarfsráðherrar norrænu ríkjanna meðal annars rætt fjármál, orkumál, nýsköpun og framtíðarskipulag norræns samstarfs. 27.10.2005 13:15
Engin ástæða til að óttast skyndisölu á skuldabréfum Erfitt er að átta sig á því hvaða áhrif skuldabréfaútgáfa erlendra fjárfesta hefur á íslenskt efnahagslíf. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, segir að engin ástæða sé til að óttast að fjárfestarnir selji allir bréf sín á sama tíma. Jafn líklegt sé að þeir vilji eiga skuldabréfin áfram eða gefa út ný. 27.10.2005 13:00
Hrærð yfir fjölmenninu Það mátti heyra ekka þegar sveit rauðklæddra björgunarsveitarmanna gekk í íþróttahúsið á Flateyri í gær þar sem þess var minnst að tíu ár eru frá snjóflóðinu sem varð tuttugu manns að bana og lagði stóran hluta þorpsins í rúst. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, ein þeirra sem skipulögðu minningarathöfnina, segist hrærð yfir því hversu margir komu. 27.10.2005 12:45
Malarflutningabíll valt í Mosfellsbæ Malarflutningabíll fór út af veginum í Mosfellsbæ og er maður fastur í honum. Lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll eru á leiðinni á slysstað en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið maðurinn er slasaður. Þá fauk gámur af bíl í Kollafirði. 27.10.2005 12:30
Þverneita að breyta dauðadómni Yfirvöld í Singapore þverneita að breyta dauðadómi yfir áströlskum fíkniefnasmyglara sem var handtekinn með 400 grömm af heróíni árið 2002. Stjórnvöld í Ástralíu hafa mánuðum saman reynt að fá dóminn mildaðan, en án árangurs. 27.10.2005 12:15
Dæmdur fyrir að stela bílum Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist. 27.10.2005 12:00
Fjármálaeftirlit Svíþjóðar varar KB banka við Kaupþing banki hefur fengið alvarlega viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð, meðal annars fyrir að hygla fyrirtæki í eigu stjórnarmanna Kaupþings, á kostnað annarra viðskiptavina. 27.10.2005 12:00
Varar við hættu á berklafaraldri Hætta er á að berklafaraldur brjótist út í Norður-Evrópu vegna lyfjaónæmra berkla sem komið hafa upp í héraðinu Arkhangelsk í Norðvestur-Rússlandi. Þetta segir Jan Henrik Fredriksen, fulltrúi noskra Framfaraflokksins, en hann vakti athygli á málinu í umræðum um norðursvæðin á Norðurlandaráðsþinginu sem nú er haldið í Reykjavík. 27.10.2005 11:45
Fjölga þarf rýmum Fjölga verður rýmum á réttargeðdeildinni á Sogni þar sem hún rúmar ekki lengur alla þá sem þyrfti að vista þar segir heilbrigðisráðherra. Hann hefur skipað starfshóp til að huga að uppbyggingu á Sogni. 27.10.2005 11:05