Fleiri fréttir Vill reka Írana úr SÞ vegna ummæla Íransforseta Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, hefur farið fram á það að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta Írans um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Stjórnir verstrænna ríkja stíga nú fram hver af annarri til þess að fordæma orðin. 27.10.2005 10:00 Fimm milljónir enn án rafmagns Fimm milljónir manna eru enn án rafmagns í Flórída eftir fellibylinn Wilmu. Hvarvetna um fylkið hafa myndast mörg hundruð metra biðraðir fyrir utan verslanir og þjónustumiðstöðvar þar sem fólk sækist eftir vatni, mat og öðrum nauðsynjum. 27.10.2005 09:45 Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi. Á Austfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja. 27.10.2005 09:33 Gagnrýna Íransforseta fyrir ummæli um Ísrael Stjórnvöld verstrænna ríkja stíga nú fram hver af öðrum til þess að fordæma orð Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, sem sagði að þurrka ætti Ísrael út af heimskortinu. Yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi, á Spáni og í Kanada hafa öll kallað á sendiherra Írans í löndunum og krafist skýringa á ummælunum. 27.10.2005 09:15 Best í lífshættu Knattspyrnuhetjan George Best liggur milli heims og helju á Cromwell spítalanum í London. Best, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á árum áður, þjáist af lifrarsjúkdómi og ástand hans hefur versnað verulega undanfarna daga. 27.10.2005 09:06 Vara við áhöldum úr svörtu nælonefni Sleifar og spaðar úr svörtu nælonefni geta gefið frá sér krabbameins- og ofnæmisvaldandi efni og hafa dönsk heilbrigðisyfirvöld varað við notkun slíkra eldhússáhalda. Í danskri rannsókn á nítján eldhússáhöldum voru tólf áhöld með þessi efni. Áhöld með efninu umrædda hafa verið bönnuð í Svíþjóð frá árinu 2003 en ekki í Danmörku. 27.10.2005 09:00 Samkomulag næst um reykingabann í Bretlandi Frumvarp um bann við reykingum á á opinberum stöðum hefur loks verið lagt fram á breska þinginu eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar komust að samkomulagi um orðalag þess í gær. Bannið nær ekki til kráa sem bjóða ekki upp á mat eða einkaklúbba en þó verður að vera reyklaust svæði á öllum krám. 27.10.2005 09:00 Huga að uppbyggingu á Sogni Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að hafa huga að uppbyggingu við réttargeðdeildina á Sogni. Jón tilkynnti þetta á Sogni í gær þar sem hann var í heimsókn til að kynna sér starfsemina. 27.10.2005 08:45 Barði dyravörð á Gauki á Stöng Ölvaður unglingur réðst að tilefnislausu á dyravörð á Gauki á Stöng í nótt og barði hann svo rækilega að flytja þurfti dyravörðinn á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn náðu að yfirbuga unglinginn, sem gistir fangageymslur. 27.10.2005 08:45 Ríkisvaldið bregðist við háu gengi Ef íslenska krónan stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta stafsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 08:45 Ræða möguleika á alþjóðlegum fuglaflensusjóði Embættismenn hvaðanæva að úr heiminum munu hittast í nóvember til að ræða möguleikann á að stofna alþjóðlegan sjóð til að sporna við útbreiðslu fuglaflensu. 27.10.2005 08:30 Starfsmannafélag Kópavogs samþykkir samninga Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs samþykktu í gær nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna, eftir að hafa tvívegis fellt fyrri samninga við nefndina. Yfir sjötíu prósent félagsmanna, sem greiddu atkvæði, voru fylgjandi nýja samningnum, en kosningaþáttaka var rúm sextíu prósent 27.10.2005 08:15 Fullt út úr dyrum á minningarathöfn í Neskirkju Fullt var út úr dyrum á minningarstund í Neskirkju í gærkvöldi vegna snjóflóðanna á Flateyri fyrir tíu árum og þurftu því sumir að standa á meðan séra Örn Bárður Jónsson predikaði. 27.10.2005 08:00 Kostar 1,3 milljarða króna Toshiba átti lægsta tilboð í vél- og rafbúnað fyrir Hellisheiðarvirkjun. Tilboðið hljóðar upp á átján milljónir evra eða sem samsvarar 1,3 milljörðum króna fyrir vélasamstæðu sem afkastar þrjátíu og fjórum megawöttum. 27.10.2005 07:45 Sharon leyfir hernum að grípa til aðgerða Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið ísraelska hernum leyfi til að grípa til yfirgripsmikilla aðgerða gegn herskáum Palestínumönnum í norðurhluta Vesturbakkans og á Gasaströndinni. Frá þessu greinir ísraelska blaðið Haaretz í dag. 27.10.2005 07:45 Fjölmenni á minningarathöfn Björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar voru meðal kirkjugesta á Flateyri í gærkvöldi, þegar þess var minnst að tíu ár voru liðin frá snjóflóðunum miklu. 27.10.2005 07:30 Fékk skilorðsbundinn dóm Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri undir lok síðasta árs. 27.10.2005 07:12 Tíu létust í bruna á Schiphol-flugvelli Tíu manns létust og fimmtán hlutu brunasár eða reykeitrun, þegar eldur kom upp á Schiphol-flugvelli í Amsterdam upp úr miðnætti. Nokkrum hinna slösuðu er vart hugað líf. Eldurinn kom upp í fangageymslu flugvallarins þar sem 350 manns voru í haldi í nótt, flestir vegna smygls á fíkniefnum. 27.10.2005 07:11 Kaupa sig inn í biðröð eftir bóluefni Kapphlaupið um að verða sér úti um bóluefni gegn fuglaflensu er hafið. Norðmenn hafa farið þá leið að greiða hollenskum lyfjaframleiðanda fúlgur á hverju ári til að tryggja sér lyf. Íslendingar kanna nú alla möguleika. 27.10.2005 07:00 Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra. 27.10.2005 07:00 Engir friðargæsluliðar Flugmálastjórn hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að starfsmenn hennar tengist á engan hátt meintu kynferðisofbeldi, mútuþægni og spillingu friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo. Flugmálastjórn tekur fram að starfsmenn hennar séu ekki friðargæsluliðar og beri ekki vopn. 27.10.2005 07:00 Veikindi geta hafa áhrif á mætingareiningu í framhaldsskólum 27.10.2005 07:00 Óánægður með rýran hlut menningarefnis í Kastljósi "Ég er alvarlega að íhuga að hætta," segir Jónatan Garðarsson, Kastljósmaður í Ríkissjónvarpinu. Hann kveðst afar óánægður með rýran hlut menningarumfjöllunar í Kastljósi. "Mér finnst þátturinn vera að þróast meira út í að vera stórt og mikið Kastljós heldur en þetta sambland sem hann átti að vera og kann því ekki vel." 27.10.2005 06:45 Veldur vonbrigðum "Í svörum heilbrigðisráðuneytisins vegna kvörtunar sálfræðinga kemur skýrt fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að við þá verði samið," segir Halldór Kr. Júlíusson, formaður Sálfræðingafélags Íslands. Hann kveðst undrandi á ummælum heilbrigðisráðherra að athuga þurfi lagagrunninn áður en gengið verði til samninga við sjálfstætt starfandi sálfræðinga um niðurgreiðslur af hálfu hins opinbera. 27.10.2005 06:45 Ríkustu þjóðirnar hafa brugðist Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á að ríki heims leggi fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír til tvöfalda þá upphæð sem stofnunin bað fyrst um. Mörg af ríkustu löndunum hafa ekkert látið af hendi rakna. 27.10.2005 06:15 Menningarsamstarf farið undir hnífinn Um tuttugu samstarfsnefndir og menningarstofnanir Norðurlandaráðs verða skornar niður samkvæmt ákvörðun sem tekin var á ráðherrafundi í gær. Norræna húsið heldur velli. Norræni blaðamannaskólinn verður sleginn af. 27.10.2005 06:15 Ótrúlegar skýringar segir Byko "Okkur finnst gróflega brotið á rétti okkar," segir Ingvar Sverrisson, annar framkvæmdastjóra Góðs fólks. "Með ólíkindum er að tveir risar á byggingavörumarkaði skuli koma fram með nákvæmlega sömu hugmyndina á sama tíma." Hann segir fyrirtækið hafa lagst yfir að kanna allt upplýsingaöryggi hjá sér og hefur ekki útlilokað að málið verði kært. 27.10.2005 06:15 Ölvaðir elgir vekja ugg Yfirvöld í Þelamörk hvetja fólk til að fara gætilega þar sem ölvaðir elgir gætu verið á ferli. Ávaxtaspretta í Noregi var góð þetta sumarið en þar sem vetrað hefur snemma hafa epli og ber skemmst vegna gerjunar og áfengi myndast í þeim sem elgirnir háma í sig með bestu lyst. 27.10.2005 06:00 Réttargeðdeildin byggð upp Starfshópur hefur verið skipaður af heilbrigðisráðherra, Jóni Kristjánssyni, til að huga að uppbyggingu á réttargeðdeildinni á Sogni. Ráðherra greindi frá þessu í heimsókn sinni á Sogni í gær þar sem hann kynnti sér starfsemina og aðstæður allar. 27.10.2005 06:00 2B synjað um atvinnuleyfi Vinnumálastofnun synjaði í gær beiðni atvinnumiðlunarinnar 2B um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem starfa hér á landi. "Okkur sýnast ekki vera lagaforsendur til þess að afgreiða þessar umsóknir," segir Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar. 27.10.2005 06:00 Verðvernd til hagsbóta fyrir neytendur Fyrirtæki á heimilis- og byggingarvörumarkaði, Húsasmiðjan og BYKO, eru nú farin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á þjónustu sem kallast verðvernd, en í henni felst að viðskiptavinurinn getur skilað vöru sem hann sér auglýsta á lægra verði, innan tuttugu daga frá kaupunum, og fengið mismuninn greiddan til baka. 27.10.2005 06:00 Misnota íþróttamót Færst hefur í aukana að þátttakendur á íþróttamótum í Danmörku hafi nýtt þau til að gerast ólöglegir innflytjendur í landinu. Samkvæmt frétt dagblaðsins Urban urðu 125 íþróttamenn, flestir frá Afríku, eftir í landinu í fyrra eftir að hafa komið til keppni í Danmörku. Nú í sumar struku fjórtán drengir frá Burkina Faso. Sjö af þeim hafa sótt um hæli í Svíþjóð en ekki er vitað hvað varð um hina. Einnig hefur ekkert spurst til 41 keppanda frá Moldóvu. 27.10.2005 06:00 Bótakrafa lögð fram aftur Endurskoðaða bótakröfu upp á 2,5 milljónir króna er að finna í nýrri stefnu sem lögð var fram við í fyrirtöku í máli Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Auður stefndi Hannesi fyrir höfundarréttarbrot eftir að út kom eftir Hannes bókin Halldór, en í henni er fjallað um ævi nóbelsskáldsins Halldórs Kiljans Laxness. 27.10.2005 06:00 Parið situr inni fram að dómi Réttað verður í Suður-Afríku 18. apríl á næsta ári í máli morðingja Gísla Þorkelssonar, að sögn Andy Pieke, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Boksburg, úthverfi Jóhannesarborgar. 27.10.2005 06:00 Engin mannekla né biðlistar Engin börn eru á biðlista eftir leikskólaplássum í Mosfellsbæ og jafnframt eru allar deildir skólanna fjögurra fullmannaðar. Ríflega 100 manns starfa á leikskólum bæjarins og líta eftir um 450 börnum. 27.10.2005 05:45 Hálf milljón barna deyr árlega Ríflega tvær milljónir barna eru smitaðar af HIV-veirunni og deyr hálf milljón þeirra á hverju ári. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur skorið upp herör gegn þessari válegu veiki. 27.10.2005 05:30 Auðvelt að hlera farsíma "Í Bandaríkjunum eyða menn árlega um 48 milljörðum íslenskra króna í búnað til hlerunar," segir Friðbert Pálsson, fulltrúi hjá írska markaðsfyrirtækinu EFF. 27.10.2005 05:15 Komin upp að nýju í Kína Fuglaflensa hefur aftur greinst í Kína, í annað sinn á einni viku. Veiran greindist í tæplega tvö þúsund gæsum í Austur-Kína. Jafnframt hafa índónesísk yfirvöld staðfest fjórða dauðsfallið af völdum veirunnar. 27.10.2005 05:00 Djúpavík fær nettengingu Þessa dagana stendur yfir vinna við að koma á ISDN-tengingu við bæi á Ströndum. Á fimmtudag siðastliðinn var gengið frá slíkri tengingu á Djúpavík en þar hefur verið rekin ferðaþjónusta árum saman. Áfram verður unnið við að tengja fleiri staði þar vestra, svo sem ystu byggðir í Bæjarhreppi og í Bjarnarfirði. 27.10.2005 05:00 Norðurlandasamstarf á krossgötum Endurskipulagning Norðurlandasamstarfsins er nauðsynleg, segir Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda. Stjórnmálamennirnir eru áhugalausir segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. 27.10.2005 04:45 Að lækka rafmagnsreikninginn Þó rafmagnsreikningarnir séu ekki veigamestu útgjöld heimilanna kostar rafmagnið sitt. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga, segir hægan vanda að haga rafmagnsnotkun þannig að reikningurinn lækki. 27.10.2005 04:45 Gáfu Kvennaathvarfinu milljón Starfsmenn apótekanna Lyf og heilsu færðu Kvennaathvarfinu eina milljón í styrktarfé í gær þar sem konur sem starfa innan lyfjafyrirtækisins gáfu kvennafrídaginn eftir á mánudaginn. 27.10.2005 04:30 Betur komin án þeirra Mikil umræða hefur skapast um starfsmannaleigur og eru kærur og meiðyrðamál í farvatninu eftir hörð átök verkalýðshreyfingarinnar við starfsmannaleiguna 2B. 27.10.2005 04:30 Norrænt samstarf er athvarf og heimili Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að aðild að Evrópusambandinu reki engan fleyg milli Norðurlandaþjóða utan og innan sambandsins. Í samtali við Fréttablaðið fjallar hann um gildi samstarfsins og aðsteðjandi hættur. 27.10.2005 04:00 Minnumst og höldum áfram "Við minnumst þessara atburða en látum þá ekki trufla okkur og höldum ótrauð áfram," segir Sigurður Hafberg, grunnskólakennari á Flateyri. Húsfyllir var í íþróttahúsinu á Flateyri í gærkvöldi en þar fór fram minningarathöfn í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að snjóflóð féll á bæinn með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns létu lífið. 27.10.2005 03:45 Sjá næstu 50 fréttir
Vill reka Írana úr SÞ vegna ummæla Íransforseta Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, hefur farið fram á það að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta Írans um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Stjórnir verstrænna ríkja stíga nú fram hver af annarri til þess að fordæma orðin. 27.10.2005 10:00
Fimm milljónir enn án rafmagns Fimm milljónir manna eru enn án rafmagns í Flórída eftir fellibylinn Wilmu. Hvarvetna um fylkið hafa myndast mörg hundruð metra biðraðir fyrir utan verslanir og þjónustumiðstöðvar þar sem fólk sækist eftir vatni, mat og öðrum nauðsynjum. 27.10.2005 09:45
Hálka og hálkublettir víða um land Hálkublettir er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi. Á Austfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja. 27.10.2005 09:33
Gagnrýna Íransforseta fyrir ummæli um Ísrael Stjórnvöld verstrænna ríkja stíga nú fram hver af öðrum til þess að fordæma orð Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, sem sagði að þurrka ætti Ísrael út af heimskortinu. Yfirvöld í Bretlandi, Frakklandi, á Spáni og í Kanada hafa öll kallað á sendiherra Írans í löndunum og krafist skýringa á ummælunum. 27.10.2005 09:15
Best í lífshættu Knattspyrnuhetjan George Best liggur milli heims og helju á Cromwell spítalanum í London. Best, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á árum áður, þjáist af lifrarsjúkdómi og ástand hans hefur versnað verulega undanfarna daga. 27.10.2005 09:06
Vara við áhöldum úr svörtu nælonefni Sleifar og spaðar úr svörtu nælonefni geta gefið frá sér krabbameins- og ofnæmisvaldandi efni og hafa dönsk heilbrigðisyfirvöld varað við notkun slíkra eldhússáhalda. Í danskri rannsókn á nítján eldhússáhöldum voru tólf áhöld með þessi efni. Áhöld með efninu umrædda hafa verið bönnuð í Svíþjóð frá árinu 2003 en ekki í Danmörku. 27.10.2005 09:00
Samkomulag næst um reykingabann í Bretlandi Frumvarp um bann við reykingum á á opinberum stöðum hefur loks verið lagt fram á breska þinginu eftir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar komust að samkomulagi um orðalag þess í gær. Bannið nær ekki til kráa sem bjóða ekki upp á mat eða einkaklúbba en þó verður að vera reyklaust svæði á öllum krám. 27.10.2005 09:00
Huga að uppbyggingu á Sogni Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að hafa huga að uppbyggingu við réttargeðdeildina á Sogni. Jón tilkynnti þetta á Sogni í gær þar sem hann var í heimsókn til að kynna sér starfsemina. 27.10.2005 08:45
Barði dyravörð á Gauki á Stöng Ölvaður unglingur réðst að tilefnislausu á dyravörð á Gauki á Stöng í nótt og barði hann svo rækilega að flytja þurfti dyravörðinn á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn náðu að yfirbuga unglinginn, sem gistir fangageymslur. 27.10.2005 08:45
Ríkisvaldið bregðist við háu gengi Ef íslenska krónan stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta stafsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við. 27.10.2005 08:45
Ræða möguleika á alþjóðlegum fuglaflensusjóði Embættismenn hvaðanæva að úr heiminum munu hittast í nóvember til að ræða möguleikann á að stofna alþjóðlegan sjóð til að sporna við útbreiðslu fuglaflensu. 27.10.2005 08:30
Starfsmannafélag Kópavogs samþykkir samninga Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs samþykktu í gær nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna, eftir að hafa tvívegis fellt fyrri samninga við nefndina. Yfir sjötíu prósent félagsmanna, sem greiddu atkvæði, voru fylgjandi nýja samningnum, en kosningaþáttaka var rúm sextíu prósent 27.10.2005 08:15
Fullt út úr dyrum á minningarathöfn í Neskirkju Fullt var út úr dyrum á minningarstund í Neskirkju í gærkvöldi vegna snjóflóðanna á Flateyri fyrir tíu árum og þurftu því sumir að standa á meðan séra Örn Bárður Jónsson predikaði. 27.10.2005 08:00
Kostar 1,3 milljarða króna Toshiba átti lægsta tilboð í vél- og rafbúnað fyrir Hellisheiðarvirkjun. Tilboðið hljóðar upp á átján milljónir evra eða sem samsvarar 1,3 milljörðum króna fyrir vélasamstæðu sem afkastar þrjátíu og fjórum megawöttum. 27.10.2005 07:45
Sharon leyfir hernum að grípa til aðgerða Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið ísraelska hernum leyfi til að grípa til yfirgripsmikilla aðgerða gegn herskáum Palestínumönnum í norðurhluta Vesturbakkans og á Gasaströndinni. Frá þessu greinir ísraelska blaðið Haaretz í dag. 27.10.2005 07:45
Fjölmenni á minningarathöfn Björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar voru meðal kirkjugesta á Flateyri í gærkvöldi, þegar þess var minnst að tíu ár voru liðin frá snjóflóðunum miklu. 27.10.2005 07:30
Fékk skilorðsbundinn dóm Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri undir lok síðasta árs. 27.10.2005 07:12
Tíu létust í bruna á Schiphol-flugvelli Tíu manns létust og fimmtán hlutu brunasár eða reykeitrun, þegar eldur kom upp á Schiphol-flugvelli í Amsterdam upp úr miðnætti. Nokkrum hinna slösuðu er vart hugað líf. Eldurinn kom upp í fangageymslu flugvallarins þar sem 350 manns voru í haldi í nótt, flestir vegna smygls á fíkniefnum. 27.10.2005 07:11
Kaupa sig inn í biðröð eftir bóluefni Kapphlaupið um að verða sér úti um bóluefni gegn fuglaflensu er hafið. Norðmenn hafa farið þá leið að greiða hollenskum lyfjaframleiðanda fúlgur á hverju ári til að tryggja sér lyf. Íslendingar kanna nú alla möguleika. 27.10.2005 07:00
Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra. 27.10.2005 07:00
Engir friðargæsluliðar Flugmálastjórn hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að starfsmenn hennar tengist á engan hátt meintu kynferðisofbeldi, mútuþægni og spillingu friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo. Flugmálastjórn tekur fram að starfsmenn hennar séu ekki friðargæsluliðar og beri ekki vopn. 27.10.2005 07:00
Óánægður með rýran hlut menningarefnis í Kastljósi "Ég er alvarlega að íhuga að hætta," segir Jónatan Garðarsson, Kastljósmaður í Ríkissjónvarpinu. Hann kveðst afar óánægður með rýran hlut menningarumfjöllunar í Kastljósi. "Mér finnst þátturinn vera að þróast meira út í að vera stórt og mikið Kastljós heldur en þetta sambland sem hann átti að vera og kann því ekki vel." 27.10.2005 06:45
Veldur vonbrigðum "Í svörum heilbrigðisráðuneytisins vegna kvörtunar sálfræðinga kemur skýrt fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að við þá verði samið," segir Halldór Kr. Júlíusson, formaður Sálfræðingafélags Íslands. Hann kveðst undrandi á ummælum heilbrigðisráðherra að athuga þurfi lagagrunninn áður en gengið verði til samninga við sjálfstætt starfandi sálfræðinga um niðurgreiðslur af hálfu hins opinbera. 27.10.2005 06:45
Ríkustu þjóðirnar hafa brugðist Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á að ríki heims leggi fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír til tvöfalda þá upphæð sem stofnunin bað fyrst um. Mörg af ríkustu löndunum hafa ekkert látið af hendi rakna. 27.10.2005 06:15
Menningarsamstarf farið undir hnífinn Um tuttugu samstarfsnefndir og menningarstofnanir Norðurlandaráðs verða skornar niður samkvæmt ákvörðun sem tekin var á ráðherrafundi í gær. Norræna húsið heldur velli. Norræni blaðamannaskólinn verður sleginn af. 27.10.2005 06:15
Ótrúlegar skýringar segir Byko "Okkur finnst gróflega brotið á rétti okkar," segir Ingvar Sverrisson, annar framkvæmdastjóra Góðs fólks. "Með ólíkindum er að tveir risar á byggingavörumarkaði skuli koma fram með nákvæmlega sömu hugmyndina á sama tíma." Hann segir fyrirtækið hafa lagst yfir að kanna allt upplýsingaöryggi hjá sér og hefur ekki útlilokað að málið verði kært. 27.10.2005 06:15
Ölvaðir elgir vekja ugg Yfirvöld í Þelamörk hvetja fólk til að fara gætilega þar sem ölvaðir elgir gætu verið á ferli. Ávaxtaspretta í Noregi var góð þetta sumarið en þar sem vetrað hefur snemma hafa epli og ber skemmst vegna gerjunar og áfengi myndast í þeim sem elgirnir háma í sig með bestu lyst. 27.10.2005 06:00
Réttargeðdeildin byggð upp Starfshópur hefur verið skipaður af heilbrigðisráðherra, Jóni Kristjánssyni, til að huga að uppbyggingu á réttargeðdeildinni á Sogni. Ráðherra greindi frá þessu í heimsókn sinni á Sogni í gær þar sem hann kynnti sér starfsemina og aðstæður allar. 27.10.2005 06:00
2B synjað um atvinnuleyfi Vinnumálastofnun synjaði í gær beiðni atvinnumiðlunarinnar 2B um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem starfa hér á landi. "Okkur sýnast ekki vera lagaforsendur til þess að afgreiða þessar umsóknir," segir Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar. 27.10.2005 06:00
Verðvernd til hagsbóta fyrir neytendur Fyrirtæki á heimilis- og byggingarvörumarkaði, Húsasmiðjan og BYKO, eru nú farin að bjóða viðskiptavinum sínum upp á þjónustu sem kallast verðvernd, en í henni felst að viðskiptavinurinn getur skilað vöru sem hann sér auglýsta á lægra verði, innan tuttugu daga frá kaupunum, og fengið mismuninn greiddan til baka. 27.10.2005 06:00
Misnota íþróttamót Færst hefur í aukana að þátttakendur á íþróttamótum í Danmörku hafi nýtt þau til að gerast ólöglegir innflytjendur í landinu. Samkvæmt frétt dagblaðsins Urban urðu 125 íþróttamenn, flestir frá Afríku, eftir í landinu í fyrra eftir að hafa komið til keppni í Danmörku. Nú í sumar struku fjórtán drengir frá Burkina Faso. Sjö af þeim hafa sótt um hæli í Svíþjóð en ekki er vitað hvað varð um hina. Einnig hefur ekkert spurst til 41 keppanda frá Moldóvu. 27.10.2005 06:00
Bótakrafa lögð fram aftur Endurskoðaða bótakröfu upp á 2,5 milljónir króna er að finna í nýrri stefnu sem lögð var fram við í fyrirtöku í máli Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Auður stefndi Hannesi fyrir höfundarréttarbrot eftir að út kom eftir Hannes bókin Halldór, en í henni er fjallað um ævi nóbelsskáldsins Halldórs Kiljans Laxness. 27.10.2005 06:00
Parið situr inni fram að dómi Réttað verður í Suður-Afríku 18. apríl á næsta ári í máli morðingja Gísla Þorkelssonar, að sögn Andy Pieke, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Boksburg, úthverfi Jóhannesarborgar. 27.10.2005 06:00
Engin mannekla né biðlistar Engin börn eru á biðlista eftir leikskólaplássum í Mosfellsbæ og jafnframt eru allar deildir skólanna fjögurra fullmannaðar. Ríflega 100 manns starfa á leikskólum bæjarins og líta eftir um 450 börnum. 27.10.2005 05:45
Hálf milljón barna deyr árlega Ríflega tvær milljónir barna eru smitaðar af HIV-veirunni og deyr hálf milljón þeirra á hverju ári. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur skorið upp herör gegn þessari válegu veiki. 27.10.2005 05:30
Auðvelt að hlera farsíma "Í Bandaríkjunum eyða menn árlega um 48 milljörðum íslenskra króna í búnað til hlerunar," segir Friðbert Pálsson, fulltrúi hjá írska markaðsfyrirtækinu EFF. 27.10.2005 05:15
Komin upp að nýju í Kína Fuglaflensa hefur aftur greinst í Kína, í annað sinn á einni viku. Veiran greindist í tæplega tvö þúsund gæsum í Austur-Kína. Jafnframt hafa índónesísk yfirvöld staðfest fjórða dauðsfallið af völdum veirunnar. 27.10.2005 05:00
Djúpavík fær nettengingu Þessa dagana stendur yfir vinna við að koma á ISDN-tengingu við bæi á Ströndum. Á fimmtudag siðastliðinn var gengið frá slíkri tengingu á Djúpavík en þar hefur verið rekin ferðaþjónusta árum saman. Áfram verður unnið við að tengja fleiri staði þar vestra, svo sem ystu byggðir í Bæjarhreppi og í Bjarnarfirði. 27.10.2005 05:00
Norðurlandasamstarf á krossgötum Endurskipulagning Norðurlandasamstarfsins er nauðsynleg, segir Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda. Stjórnmálamennirnir eru áhugalausir segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. 27.10.2005 04:45
Að lækka rafmagnsreikninginn Þó rafmagnsreikningarnir séu ekki veigamestu útgjöld heimilanna kostar rafmagnið sitt. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Sambandi sveitarfélaga, segir hægan vanda að haga rafmagnsnotkun þannig að reikningurinn lækki. 27.10.2005 04:45
Gáfu Kvennaathvarfinu milljón Starfsmenn apótekanna Lyf og heilsu færðu Kvennaathvarfinu eina milljón í styrktarfé í gær þar sem konur sem starfa innan lyfjafyrirtækisins gáfu kvennafrídaginn eftir á mánudaginn. 27.10.2005 04:30
Betur komin án þeirra Mikil umræða hefur skapast um starfsmannaleigur og eru kærur og meiðyrðamál í farvatninu eftir hörð átök verkalýðshreyfingarinnar við starfsmannaleiguna 2B. 27.10.2005 04:30
Norrænt samstarf er athvarf og heimili Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að aðild að Evrópusambandinu reki engan fleyg milli Norðurlandaþjóða utan og innan sambandsins. Í samtali við Fréttablaðið fjallar hann um gildi samstarfsins og aðsteðjandi hættur. 27.10.2005 04:00
Minnumst og höldum áfram "Við minnumst þessara atburða en látum þá ekki trufla okkur og höldum ótrauð áfram," segir Sigurður Hafberg, grunnskólakennari á Flateyri. Húsfyllir var í íþróttahúsinu á Flateyri í gærkvöldi en þar fór fram minningarathöfn í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá því að snjóflóð féll á bæinn með þeim hörmulegu afleiðingum að tuttugu manns létu lífið. 27.10.2005 03:45