Fleiri fréttir

Sölubann og stytt veiðitímabil

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra kynnti í dag reglugerð um fyrirkomulag rjúpnaveiða haustið 2005. Samkvæmt henni verður sölubann á veiðibráð og rjúpnaafurðum og veiðitímabilið verður frá 15. október til 30. nóvember, en fyrir friðun voru veiðar leyfðar til 22. desember.

Staðfesti varðhald vegna árásar

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir manninum sem tvístakk annan mann í bakið á bílastæðinu við Geirsgötu á Menningarnótt. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi fram á föstudag, en árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps.

Strákar játuðu innbrotafaraldur

Fjórir drengir á aldrinum 18 til 16 ára játuðu allir fjölda innbrota og þjófnaða á höfðuborgarsvæðinu og víðar sem framdir voru á þessu og síðasta ári. Sá fimmti, 18 ára gamall, sem ákærður er fyrir aðild að málum mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Lestarstöð rýmd í Kaupmannahöfn

Lestarstöðin Österport í Kaupmannahöfn var rýmd í dag á háannatíma vegna tösku sem enginn kannaðist við að eiga. Sprengjusveit lögreglunnar mun taka töskuna og sprengja ef engin önnur skýring finnst. Danir eru farnir að hafa vaxandi áhyggjur af hryðjuverkum og hefur öryggisgæsla á fjölförnum stöðum eins og Österport verið aukin.

Alvarleg brotalöm á smyglrannsókn

Verjandi 37 ára gamals Litháa sem ákærður er fyrir að smygla hingað brennisteinssýru til fíkniefnaframleiðslu segir brotalöm í rannsókn sjálfkrafa kalla á sýknudóm. Maðurinn neitar sök og segist hafa ætlað að eiga hér ástarfund. </font /></b />

Mótmælti ekki gæsluvarðhaldi

Sigurður Freyr Kristmundsson, sem játað hefur að hafa banað manni með hnífi að morgni 19. ágúst, mótmælti ekki úrskurði um frekara gæsluvarðhald yfir honum til 22. nóvember í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

SF varar við ráðstefnupöntunum

Samtök ferðaþjónustunnar hafa varað félagsmenn sína við ráðstefnupöntunum frá erlendum aðilum sem augljóslega eru að reyna að svíkja út peninga. Fólkið pantar gjarnan herbergi og fundaraðstöðu í 2-3 vikur, leggur áherslu á að greiða allt fyrirfram, sendir tékka eða kreditkortanúmer og óskar eftir að hluti greiðslunnar sé sendur aftur til baka sem umboðslaun eða framsendur til tiltekinna fyrirtækja.

Mótmæltu yfirgangi stórfyrirtækja

Til stympinga kom á milli lögreglu og fjölda mótmælenda við Óperuhúsið í Sydney í Ástralíu í dag, en þar fer fram ráðstefna helstu leiðtoga í alþjóðlegu viðskiptalífi á vegum viðskiptatímaritsins <em>Forbes</em>. Nokkur hundruð mótmælendur söfnuðust saman í Sydney og gengu að Óperuhúsinu þar sem þeir mótmæltu yfirgangi stórfyrirtækja í alþjóðavæðingu heimsins og stefnu Johns Howards, forsætisráðherra Ástralíu.

R-listi fengi átta borgarfulltrúa

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins hefði R-listinn meiri stuðning Reykvíkinga nú, en samanlagður stuðningur við samstarfsflokka um hann. Tæplega helmingur segist hefðu stutt R-listann hefði samstaða náðst um að bjóða aftur fram undir hans nafni.

Auglýst eftir flaggara

Bæjarstjórn Vesturbyggðar auglýsir nú á vefsíðu sinni eftir áhugasömum manni til að sjá um að flagga í fánastöngum á Bíldudal og Patreksfirði á þeim dögum og tímum sem við hæfa til flöggunar.

Barnavændi á Íslandi

Upplýsingar um skipulagt barnavændi á Íslandi koma fram í viðtalsbók eftir Gerði Kristnýju sem væntanleg er í haust. Bókin byggist á viðtali við hafnfirska konu á fertugsaldri sem lýsir reynslu sinni af því hvernig hún var þvinguð í vændi sem barn. 

Hafi keypt flöskur í Póllandi

Litháinn sem flutti tvær flöskur af brennisteinssýru til landsins neitar því alfarið að hafa vitað um sýruna. Hann hafi keypt flöskurnar á útimarkaði í Póllandi og komið hingað til lands eingöngu til að hitta ástmey sína. Verjandi mannsins gagnrýnir rannsóknargögn málsins.

Árni Þór vill annað sæti V-lista

Árni Þór Sigurðsson Vinstri grænum, sem skipaði efsta sæti R-listans í síðustu borgarstjórnarkosningum, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti lista Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næst vor.

Málefnin ráða afstöðu kjósenda

Í skoðanakönnun sem Opinion hefur gert fyrir norska dagblaðið Aftenposten telja 57 prósent aðspurðra að málefni ráði mestu um hvaða flokk þeir kjósa í kosningunum til norska Stórþingsins eftir 12 daga.

Blásið til sóknar gegn garnaveiki

Dýralæknar hyggjast herða enn baráttuna gegn garnaveiki í sauðfé. Markmið þeirra er að hægt verði að leggja bólusetningar af. Það hefði í för með sér minni kostnað, betri afurðir og betri meðferð á skepnunum. </font /></b />

Hátt í hundrað látnir í hamförum

Hátt í hundrað manns hafa farist af völdum fellibylsins Katrínar, sem skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Eyðileggingin er gríðarleg og vatn þekur um 80 prósent borgarinnar.

Rannsókn á Vioxx að hefjast

Landlæknisembættið er að hrinda úr vör rannsókn á afleiðingum aukaverkana gigtarlyfsins Vioxx hér á landi. Hæstaréttarlögmaður segir niðurstöður hennar geti hugsanlega leitt til málshöfðunar af hendi þeirra sem notuðu Vioxx og fengu hjartaáfall. </font /></b />

Aldrei kynnst neinu þessu líku

Alabama er einn þeirra staða þar sem lýst hefur verið yfir neyðarástandi vegna Katrínar. Íslendingur sem þar er staddur segist aldrei hafa kynnst neinu í líkingu við rigninguna í gærkvöldi þó að hann sé staddur vel inni í landi.

Dýrasti fellibylur sögunnar

Talið er nær öruggt að tjónið vegna fellibylsins Katrínar sé það mesta sem orðið hefur af völdum óveðurs. Olíuverð var enn afar hátt í gær og skreið verðið á fatinu yfir sjötíu dali annan daginn í röð.

Óþreyjan vex

Risið á fólkinu sem leitaði skjóls á Louisiana Superdome leikvanginum undan Katrínu var orðið verulega lágt í gær.

Netanyahu hjólar í Sharon

Benjamín Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur boðið sig fram gegn Ariel Sharon, núverandi forsætisráðherra, í formannskosningum í Likud-bandalaginu.

Ofbeldisklám bannað

Breska ríkisstjórnin hyggst leggja fram lagafrumvarp þar sem varsla ofbeldistengds kláms verður gerð refsiverð. Bretland yrði fyrst Vesturlanda sem bannaði slíkt.

Handtökur vegna Hariri-morðs

Fjórir menn hafa verið hnepptir í varðhald vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, 14. febrúar síðastliðinn.

Prinsessan verður flengd

Sikhanyiso prinsessa í Svasílandi hefur komið sér í vandræði eftir að upp komst að hún hélt veislu með félögum sínum til þess að fagna því að stúlkur undir átján ára aldri mættu stunda kynlíf.

Lokað vegna sprengjuótta

Østerport-lestarstöðinni í Kaupmannahöfn var lokað um tveggja tíma skeið í gær vegna sprengjuótta.

Allt að hundrað taldir af

Óttast er að allt að hundrað manns hafi týnt lífi þegar fellibylurinn Katrín gekk yfir sunnanverð Bandaríkin í fyrradag. Margir mánuðir geta verið þangað til fólk fær að snúa aftur til heimila sinna.

Hótelgistingin of ódýr

Að mati samtaka hótela og veitingahúsa í Danmörku er hótelgisting í Kaupmannahöfn of ódýr.

Hálfunnið amfetamín frá Póllandi

Hálfunnið amfetamín frá Póllandi er sent til landa víða um heim og fullunnið þar. Til þess þarf brennisteinssýru eins og fannst í farangri Litháa á mánudaginn. Lögreglan telur að fíkniefnahundar myndu finna slíkt efni og segja að hægt sé að þjálfa þá til að finna brennisteinssýru.

Hvatt til hófstilltrar rjúpnaveiði

Rjúpnaveiðitímabilið verður sjö vikur og verða veiðimenn hvattir til hófstilltra veiða. Þá er algjört sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Umhverfisráðherra kynnti nýja reglugerð um rjúpnaveiðar í dag.

Helmingur starfsmanna Íslendingar

Íslendingar eru helmingur starfsmanna Alcoa í Reyðarfirði. Innkaup fyrirtækisins á Íslandi nema nú um tíu milljörðum króna.

Hryggskekkja vaxandi vandamál

Hryggskekkja barna og unglinga vegna langvarandi setu er vaxandi vandamál, en dæmi eru um að börn niður í 10 ára aldur sæki þjónustu sjúkraþjálfara vegna stoðkerfisvandamála.

Æfðu viðbrögð við hryðjuverkum

Mikill hvellur varð þegar skotið var á bílsprengju á Keflavíkurflugvelli í dag. Engin hætta var þó á ferðum enda þar samankomnar margar frægustu sprengjueyðingarsveitir í Evrópu.

R-listinn héldi meirihlutanum

Reykjavíkurlistinn hefði nú stuðning tæplega helmings Reykjavíkurbúa og héldi völdum í borginni, hefðu samstarfsflokkarnir þrír ákveðið að bjóða aftur fram undir hans nafni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Íhuga að skjóta mávinn

Mávum hefur fjölgað verulega í höfuðborginni í sumar og hefur borgaryfirvöldum borist óvenjumikið af kvörtunum vegna þessa. Þetta kom fram í svari frá umhverfissviði Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Gísla Marteins Baldurssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, á fundi umhverfisráðs borgarinnar.

Þegar Davíð lagði Albert

Margir spá því að komandi prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, geti orðið sögulegt. Ekki síst þar sem keppt er um fyrsta sætið í fyrsta skipti frá því árið 1981. Þá sigraði Davíð Oddsson naumlega og varð síðar borgarstjóri.

Veiðimenn hvattir til hófsemi

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að leyfa rjúpnaveiðar á ný.

Sóknarnefndin hafði sigur

Sóknarnefnd Garðasóknar hafði sigur í kosningu á fjölsóttum átakafundi safnaðarins. Kosið var um þrjú sæti af sjö í sóknarnefnd, sem ráða úrslitum um hvar völdin liggja og féllu þau sóknarnefndinni í hlut.

Dregur aðeins úr hraða Katrínar

Aðeins er um klukkustund í að einhver öflugasti fellibylur sögunnar skelli beint á hjarta borgarinnar New Orleans í suðurhluta Bandaríkjanna. Það hefur dregið lítið eitt úr hraða fellibylsins Katrínar og er hann nú flokkaður sem fjórða stigs fellibylur á Saffire Simpson skalanum, sem er næsthæsta stigið. Katrín æðir þó enn áfram á nærri sjötíu metra hraða á sekúndu.

Hafi ekki skemmt þak Stjórnarráðs

Mennirnir tveir sem klifruðu upp á Stjórnarráðsbygginguna síðastliðinn föstudag til að mótamæla álversframkvæmdunum í Reyðarfirði segja að það hafi aldrei verið ásetningur þeirra að vanvirða minningu Guðmundar Benediktssonar sem flaggað hafði verið fyrir í hálfa stöng fyrr um daginn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem mennirnir hafa sent frá sér. Þeir vísa því á bug að hafa valdið skemmdum á byggingunni og benda á að þak hússins sé í hörmulegu ástandi.

Þriðji hver Dani óttast árás

Þriðji hver Dani óttast að hryðjuverkaverkaárásir verði gerðar í landinu, samkvæmt könnun sem dagblaðið <em>Berlingske Tidende</em> segir frá í dag. 40 prósent telja eftirliti og öryggisgæslu á fjölförnum stöðum ábótavant og 75 prósent vilja að fleiri eftirlitsmyndavélar verði settar upp. Skiptar skoðanir eru meðal danskra stjórnmálamanna hversu langt eigi að ganga í því.

Æfa viðbrögð við sprengjuárásum

Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, hefst í dag. Landhelgisgæslan og varnarliðið standa að æfingunni en markmið hennar er að líkja eftir raunverulegum hryðjuverkum og æfa viðbrögð við þeim. Æfð verða viðbrögð við sjálfsmorðssprengjuárásum og sprengingum á flugvöllum, í höfnum og um borð í skipum. Þátttakendur eru um 100 talsins, en helmingur þeirra kemur frá sex erlendum sprengjueyðingarsveitum.

Tveir látast í árás í Nablus

Tveir Palestínumenn létust í sprengjuárás á flóttamannabúðir í borginni Nablus á Vesturbakkanum í morgun. Ekki er enn vitað hver stóð að baki árásinni og lögreglu hefur ekki tekist að bera kennsl á hina látnu.

Skutu hljóðmann frá Reuters

Bandarískir hermenn í Írak skutu í gær hljóðmann frá Reuters-fréttastofunni til bana í Bagdad, höfuðborg Íraks, og særðu myndatökumann sem var með honum. Að sögn íröksku lögreglunnar var myndatökumaðurinn síðan handsamaður og færður til yfirheyrslu þar sem hann mátti dúsa í sex klukkutíma án þess að hugað væri að skotsári sem hann hlaut.

Sjá næstu 50 fréttir