Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
850 taldir af á Indlandi Meira en 850 manns eru taldir af eftir flóðin í Bombay og nágrannahéruðum á Indlandi undanfarna daga. Rúmlega hundrað lík hafa fundist síðastliðinn sólarhring. Óttast er að tala látinna muni nálgast eitt þúsund áður en yfir lýkur. 30.7.2005 00:01
Hefði verið kyrrsett annars staðar Hin sérstaka rannsóknarnefnd sem skoðað hefur alla þætti flugslyssins í Skerjafirði tekur undir margar athugasemdir aðstandenda þeirra sem fórust og gerir fjölmargar tillögur um bætta starfshætti Flugmálastjórnar og Rannsóknarnefndar flugslysa. Danski sérfræðingurinn í nefndinni telur að samkvæmt íslenskum lögum hefði ekki verið hægt að kyrrsetja vélina, en það hefði verið gert í mörgum öðrum löndum. 30.7.2005 00:01
Hlaup hugsanlega hafið Vísbendingar eru um að Skaftárhlaup hefjist á næstu dögum. Ríkissjónvarpið sagði hlaup hafið fyrir nokkrum mínútum en Veðurstofan vill ekki staðfesta það. Hún sagðist þó fyrr í dag vilja vara ferðalanga á þessum slóðum við. 30.7.2005 00:01
Húsleit á fimmtán stöðum á Ítalíu Þó að hryðjuverkamennirnir sem gerðu misheppnaðar árásir í Lundúnum fyrir rúmri viku hafi verið handsamaðir er hættan hvergi nærri liðin hjá, að mati bresku lögreglunnar. Athyglin beinist nú að Ítalíu þar sem lögregla gerði í dag húsleit á fimmtán stöðum eftir að einn tilræðismannanna var handtekinn í Róm í gær. 30.7.2005 00:01
Ógerlegt að taka RÚV af markaðinum Markús Örn Antonsson telur nær ógerlegt að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Páll Magnússon, verðandi útvarpsstjóri, sagði í Íslandi í dag í gær og Kastljósi Ríkissjónvarpsins að hann teldi eðlilegt að skoða að stofnunin yrði ekki á þeim markaði. Markús hefur undirbúið áramótaávarpið fyrir arftaka sinn. 30.7.2005 00:01
Lundúnabúar taka fram reiðhjólin Árásirnar í Lundúnum hafa margvíslegar afleiðingar. Meðal þess sem breyst hefur eru ferðavenjur borgarbúa. Hryðjuverkin hafa sett töluverðan skrekk í marga Lundúnabúa og sumir eru lítt hrifnir af því að nota almenningssamgöngur í kjölfarið. Hjól eru því orðin vinsælli ferðakostur en áður. 30.7.2005 00:01
Brúðarkjólar keyptir á Netinu Tilvonandi brúðir eru farnar að nýta sér Netið í auknum mæli til að kaupa ódýrari brúðarkjóla. Algengt leiguverð er 25 til 40 þúsund krónur en hægt er að kaupa kjóla á Netinu fyrir 10 til 15 þúsund krónur hingað komna. Eigendur kjólaleiga óttast þó ekki samkeppnina. 30.7.2005 00:01
Geimgangan gekk vel <div class="sectionLargeLeadtext">Tveir úr áhöfn Discovery svifu út úr geimskutlunni þar sem hún var í 358 kílómetra hæð yfir Suðaustur-Asíu rétt fyrir hádegi í dag. </div> 30.7.2005 00:01
Norræn innrás í danska háskóla Danir eiga erfiðara með að komast inn í háskóla í Danmörku vegna aukinnar eftirsóknar Norðmanna og Svía. Lægri inntökuskilyrði eru sögð skýring þessarar svokölluðu norrænu innrásar. 30.7.2005 00:01
Eldfimar upplýsingar í könnun Nokkrar niðurstöður lífskjararannsóknar sem IMG Gallup framkvæmdi á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu í vor hafa vakið deilur á Akureyri. Út úr niðurstöðunum má meðal annars lesa laun fylgismanna stjórnmálaflokkanna, menntun og í hvaða hverfum þeir eru búsettir. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa í höndum sambærilegar upplýsingar varðandi Reykvíkinga. 29.7.2005 00:01
Götum borgarinnar lokað í hádeginu Vörubílstjórar sem hyggjast loka fyrir umferð úr höfuðborginni í dag ætla ekki að láta sér segjast þrátt fyrir eindregin tilmæli lögreglu. "Við gætum farið af stað í kringum hádegið," sagði Sturla Jónsson, talsmaður þeirra, í gærkvöldi. "Ég á von á því að fjörutíu til fimmtíu bílar taki þátt, en sjáum til hvort þeir mæta allir þegar á hólminn er komið." 29.7.2005 00:01
Hvirfilbylur í Bretlandi Hvirfilbylur fór um Birmingham, næststærstu borg Bretlands, í gær með þeim afleiðingum að nítján manns slösuðust, þar af þrír alvarlega. Þá eyðilagðist fjöldi bygginga og rifnuðu tré upp með rótum. 29.7.2005 00:01
Hættuástand við aðgerðir bílstjóra Fulltrúar lögreglu og slökkviliðs hafa komið því á framfæri við nokkra atvinnubílstjóra, sem ætla að trufla eða jafnvel stöðva umferð á aðalumferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu í dag, að það teljist hættuástand ef neyðarakstur lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkrabíla tefst af þeim völdum. 29.7.2005 00:01
Sprenging í lest á Indlandi Að minnsta kosti tíu manns fórust og fimmtíu særðust þegar sprengja sprakk í farþegalest í norðurhluta Indlands í gær. Sprengingin varð um 640 kílómetra frá Nýju-Delí en yfirvöld segja líklegt að tala látinna hækki á næstu dögum því að minnsta kosti átta hinna særðu eru í lífshættu. 29.7.2005 00:01
Þyrlan leitaði báts Þyrla Landhelgisgæslunnar hóf leit að fiskibáti með fjögurra manna áhöfn undir kvöld í gærkvöldi eftir að sendingar frá honum hættu að berast inn í sjálfvirka tilkynningaskyldukerfið og farið var að óttast um sjómennina. 29.7.2005 00:01
Lenti á væng Discovery Yfirmenn NASA segja að annar einangrunarfroðuklumpurinn sem datt af geimferjunni Discovery hafi lent á væng ferjunnar. Í gær var fullyrt að stykkin sem duttu af ferjunni hefðu ekki lent á vængjum hennar en nú er komið annað hljóð í strokkinn. 29.7.2005 00:01
Töluverð umferð úr bænum Töluverð umferð var frá höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld en ekki er vitað um slys eða óhöpp, nema hvað nokkur ungmenni sluppu ómeidd þegar bíll þeirra fór út af í lausamöl skammt frá Brú í Hrútafirði. Þar hafði laust slitlag verið lagt á veginn og varar lögregla við því. 29.7.2005 00:01
Londonárásir: Einn til handtekinn Yfirvöld í Afríkuríkinu Sambíu hafa handtekið mann sem talinn er hafa átt þátt í sprengjuárásunum í Bretlandi sem kostuðu fimmtíu og tvo lífið. Maðurinn er breskur ríkisborgari en af indversku bergi brotinn. Hann verður væntanlega framseldur til Bretlands. 29.7.2005 00:01
Eldur í einbýlishúsi á Selfossi Eldur kviknaði í sjónvarpi í barnaherbergi í nýju einbýlishúsi á Selfossi síðdegis í gær og fór reykskynjari í gang. Nágranni heyrði í honum og reyndi að slökkva eldinn en fékk aðkenningu að reykeitrun. 29.7.2005 00:01
Rice áhrifamesta kona heims Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, er nú á toppi lista tímaritsins <em>Forbes </em>yfir eitt hundrað áhrifamestu konur heimsins. Næst á eftir henni kemur Wu Yi, heilbrigðisráðherra Kína, sem jafnframt hefur viðurnefnið „Járnfrúin“ líkt og Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. 29.7.2005 00:01
Fjögur lík finnast á Mont Blanc Lík fjögurra fjallgöngumanna fundust á Mont Blanc í gær en mannanna hafði verið saknað í frönsku Ölpunum frá því á mánudag. Líkin fundust í um 3.900 metra hæð en mennirnir hugðust halda á fjallið fyrir viku. 29.7.2005 00:01
Munch-rán: Látinn laus Þrjátíu og átta ára gamall maður í Noregi, sem var handtekinn í tengslum við þjófnað á tveimur málverkum eftir Edvard Munch, var látinn laus í dag eftir þriggja mánaða gæsluvarðhald. Tveimur af frægustu verkum málarans, „Ópinu“ og „Madonnu“, var stolið úr Munch-safninu í ágúst á síðasta ári og hefur ekkert til þeirra spurst síðan. 29.7.2005 00:01
Jarðskjálfti á Skjálfandaflóa Jarðskjálfti upp á 3,0 á Richter varð á Skjálfandaflóa um eittleytið í nótt. Upptökin voru 15 km norðvestur af Húsavík. Einn smærri jarðskjálfti fylgdi í kjölfarið. Ekki hefur orðið vart við frekari virkni á svæðinu. 29.7.2005 00:01
Lyf sem lætur fólk gleyma Hefðbundið blóðþrýstingslyf gæti nýst til að hjálpa fólki sem hefur lent í áföllum við að gleyma atburðum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar geðlækna við Cornell-háskólann geta svokallaðir „beta blokkerar“, sem alla jafna eru notaðir við of háum blóðþrýstingi, fengið fólk til að gleyma streituvaldandi atburðum. 29.7.2005 00:01
Páll næsti útvarpsstjóri RÚV Páll Magnússon hefur verið skipaður í embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins til fimm ára, frá 1. september næstkomandi. Menntamálaráðuneytinu bárust alls 23 umsóknir um embættið. 29.7.2005 00:01
Páll skipaður útvarpsstjóri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað Pál Magnússon í embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins til fimm ára, frá 1. september næstkomandi. Menntamálaráðuneytinu bárust alls 23 umsóknir um embættið. 29.7.2005 00:01
Lík de Menezes komið til Brasilíu Komið var með líkkistu Jean Charles de Menezes til heimabæjar hans í Brasilíu í gær. Vika er í dag síðan lögreglan í Bretlandi skaut Menezes til bana á lestarstöð fyrir mistök. 29.7.2005 00:01
Fengu ekki endurgreiðslu skattsins Mörgum sem áttu von á endurgreiðslu frá skattinum eða barnabótum brá í brún snemma í morgun þegar ekkert hafði verið lagt inn. Fólk sem hringdi í fréttastofuna sagði að það hefði stólað á þessar greiðsur til að geta gert sér og sínum dagamun um helgina og það yrðu mikil vonbrigði ef greiðslurnar bærust ekki í tæka tíð. 29.7.2005 00:01
Talinn hafa skipulagt árásirnar Maðurinn sem handtekinn var í Afríkuríkinu Sambíu í morgun í tengslum við hryðjuverkin í London er talinn hafa skipulagt árásirnar. 29.7.2005 00:01
Svæði girt af í London Vopnaðir lögreglumenn hafa girt af svæði í vesturhluta London og sent vegfarendur burt. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvers vegna svæðinu hefur verið lokað en fréttir hafa borist af nokkrum litlum sprengjuárásum á svæðinu og vitni segjast hafa heyrt skothvelli. 29.7.2005 00:01
Lögreglan gerir allt sem hún getur Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að lögreglan muni gera allt til þess að umferðin geti gengið snurðulaust fyrir sig, þrátt fyrir að atvinnubílstjórar ætli að trufla eða jafnvel stöðva umferð á aðalumferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. 29.7.2005 00:01
Áherslubreytingar hjá RÚV Páll Magnússon, nýskipaður útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, segist þakklátur fyrir það að vera treyst fyrir svo mikilvægri og virðulegri stofnun og að hann hlakki til að takast á við starfið. Hann segir áherslubreytingar örugglega munu eiga sér stað. 29.7.2005 00:01
Írak: Hundruð milljóna horfin Endurskoðandi sem fylgist með því fjármagni sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt til uppbyggingarstarfs í Írak segir milljónir dala, eða hundruð milljónir króna, hafi horfið. Er talið að bandarískir embættismenn og fyrirtæki hafi stolið peningunum. 29.7.2005 00:01
Ódrekkandi vatn í Höfnum Ferskvatnið í Höfnum á Reykjanesi er svo vont að íbúarnir fara langar leiðir til þess að sækja sér neysluvatn á brúsa. Ekki er útlit fyrir að ástandið batni næstu tvö til þrjú árin. 29.7.2005 00:01
Vörubílstjórar gera sig klára Atvinnubílstjórar eru nú farnir að safnast saman á trukkum sínum á stæðinu neðan við Háskóla Íslands og búa sig undir að leggja af stað í snigilhæga mótmælakeyrslu til þess að trufla umferð út úr höfuðborginni. Lögreglan hefur sagt að þessar aðgerðir verði ekki liðnar og að bílstjórarnir verði handteknir ef þeir tefja umferð af ásettu ráði. 29.7.2005 00:01
Reyndi að stytta sér aldur Karlmaður sem sennilega er ættaður frá Alsír reyndi að stytta sér aldur þegar starfsmenn alþjóðadeildar Ríkislögregustjóra birtu honum í gær þann úrskurð að hann fengi ekki hæli hér á landi sem pólitískur flóttamaður. Þetta átti sér stað í gistiheimili þar sem maðurinn hefur dvalið í nokkra mánuði eftir að hann kom hingað til lands. 29.7.2005 00:01
Tveir handteknir í umsátrinu Breska lögreglan hefur nú handtekið þrjá af fjórum mönnum sem lýst var eftir vegna misheppnaðra sprengjuárása í Lundúnum þann 21. júlí. Tveir þeirra voru handteknir í dag eftir vopnað umsátur lögreglunnar um hús í vesturhluta borgarinnar. 29.7.2005 00:01
Magnús skattakóngur í Eyjum Tölur um álagningu opinberra gjalda í Vestmannaeyjum hafa nú borist. Þar greiðir hæstan skatt Magnús Kristinsson, rúmlega 29 milljónir króna. Í öðru sæti er Gunnar Jónsson, sem borgar rúmlega tólf og hálfa milljón, og númer þrjú er Hanna María Siggeirsdóttir sem borgar rúmlega ellefu og hálfa milljón króna. 29.7.2005 00:01
Bretar rífa varðturna sína Bretar byrjuðu í dag að rífa varðturna sína á Norður-Írlandi en þeir hafa í áratugi verið tákn um veru breskra hersveita í landinu. Ákveðið var að byrja þegar að rífa turnana eftir að Írski lýðveldisherinn. IRA, lýsti því yfir í gær að hann hefði lagt niður vopn og myndi hér eftir stunda pólitíska baráttu fyrir markmiðum sínum. 29.7.2005 00:01
Lóan komin og farin Lóan er komin, búin að kveða burt snjóinn, farin aftur - og hvað þá? Sandlóan Signý kom hingað í vor, verpti við flugvöllinn í Holti í Önundarfirði, ól upp unga sína og tók að því búnu flugið til Frakklands þar sem til hennar sást fyrir nokkrum dögum. 29.7.2005 00:01
Strollan af stað Atvinnubílstjórar héldu fyrir stundu af stað á bílum sínum frá stæðinu neðan við Háskóla Íslands og aka sem leið liggur út úr borginni. Bílarnir sem eru tuttugu til þrjátíu, óku í nokkrum hollum og voru ýmist í halarófu eða hlið við hlið og töfðu þannig umferð. Lögregla fylgir bílunum í bak og fyrir en aðhefst ekki eins og er. 29.7.2005 00:01
Bílalestin hægir á ferðalöngum Mótmælabílalest atvinnubílstjóra keyrir nú í gegnum borgina en lagt var af stað frá bílastæðunum við aðalbyggingu Háskóla Íslands þar sem hún hefur verið að safnast saman í dag. Jóhann K. Jóhannsson, umferðarfulltrúi Landsbjargar og Umferðarstofu, segir þetta ganga hægt en slysalaust. 29.7.2005 00:01
Óánægja með lóðaúthlutun Óánægja er með úthlutun lóða í nýju hverfi í Kópavogi. Bent hefur verið á hversu hátt hlutfall þeirra sem úthlutað fengu lóð eru þekktir eða efnaðir einstaklingar eða tengjast bæjarmálum eða bæjarfulltrúum í Kópavogi. </font /></b /> 29.7.2005 00:01
Mótmæla lokun Íslandsbankaútibús Yfir 500 undirskriftum hefur verið safnað í mótmælaskyni við fyrirhugaða lokun útibús Íslandsbanka að Réttarholtsvegi. 29.7.2005 00:01
Condoleezza Rice valdamest Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, er talin valdamesta kona heims, samkvæmt tímaritinu Forbes. Þetta er annað árið í röð sem Rice trónar efst á lista 100 valdamestu kvenna heimsins. 29.7.2005 00:01