Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljósleiðari á Akureyri Á morgun, þriðjudaginn, verður undirritaður samningur Akureyrarbæjar við Tengi hf. um lagningu ljósleiðara sem víðast um Akureyri. Samningurinn veitir Tengi heimild til að leggja ljósleiðaranet um götur og stíga á Akureyri til afnota fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. 18.7.2005 00:01
Óánægð með frágang við Egilshöll "Frágangur á umferðarmannvirkjum við Egilshöll er fyrir neðan allar hellur," segir Elísabet Gísladóttir, formaður Íbúasamtaka Grafarvogs. Að sögn Elísabetar getur tekið allt að því þrjár klukkustundir að komast út af bílastæðinu þegar haldnir eru mjög fjölmennir viðburðir í Egilshöll. 18.7.2005 00:01
Kaupmenn verjist Ekki mælist marktækur munur á því hvort ránum í lyfjaverslunum fækkar í kjölfar hertra öryggisráðstafana. "Tilfellin eru of fá til þess að slíkir útreikningar séu marktækir, þrátt fyrir að ránin séu auðvitað of mörg," segir Eiður Eiðsson hjá forvarnadeild Lögreglunnar í Reykjavík. 18.7.2005 00:01
Eystri-Rangá heldur forystunni Allt stefnir í að Eystri-Rangá haldi forystu sinni sem mesta laxveiðiá landsins, eins og hún var í fyrra þegar hún var með þrjú þúsund laxa. 469 laxar voru komnir þar á land í gærkvöld, en meðalveiði undanfarinna daga hefur verið 60 laxar á dag. 18.7.2005 00:01
Nýr skólastjóri í Landakotsskóla Stjórn Landakotsskóla réði í gær Fríðu Regínu Höskuldsdóttur skólastjóra í Landakotsskóla. "Ég tel að við höfum valið hæfasta umsækjandann með tilliti til menntunar, kennslureynslu og stjórnunarreynslu," segir Björg Thorarensen, formaður stjórnar skólans. 18.7.2005 00:01
Íbúðalánsjóður heildsölubanki? Félagsmálaráðherra fór til Bandaríkjanna í vor ásamt forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs til að kynna sér starfsemi heildsölubanka þar í landi. Félagsmálaráðherra segist ekki hafa séð lánasamninga Íbúðalánasjóðs við banka og sparisjóði en ætli að kalla eftir þeim núna. 18.7.2005 00:01
Vill stjórnsýsluúttekt á sjóðnum Jóhanna Sigurðardóttir vill að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluúttekt á Íbúðalánasjóði í kjölfar frétta Stöðvar 2 um áttatíu milljarða króna lán til banka og sparisjóða, gegn veði í fasteignum, þar sem Íbúðalánasjóður tekur á sig alla ábyrgð ef eignir hrökkva ekki fyrir skuldum. 18.7.2005 00:01
Lagabreytingu þarf til Hegningarlögunum þarf að breyta til þess að lögreglan geti rannsakað heimasíður þar sem tugir fólks selja líkama sinn gegn greiðslu. Samkvæmt lögunum virðist fólki heimilt að stunda vændi í frítíma sínum. 18.7.2005 00:01
Úrskurður hindrar framsal Þýski stjórnlagadómstóllinn úrskurðaði í gær að maður sem grunaður er um tengsl við al-Kaída skyldi ekki framseldur til Spánar þar sem evrópska handtökutilskipunin, sem framsalsbeiðnin byggði á, bryti í bága við þýsku stjórnarskrána. 18.7.2005 00:01
Erótísk nuddstofa til rannsóknar Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær. 18.7.2005 00:01
Erótísk nuddstofa til rannsóknar Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær. 18.7.2005 00:01
Óveður á Taívan og Mexíkó Öflugir stormar ollu manntjóni og miklum skemmdum í dag. Á Taívan fórust nokkrir þegar hvirfilbylurinn Haitang reið yfir og tugir þúsunda ferðamanna flýðu fellibylinn Emily í Mexíkó. Þeirra á meðal var hópur íslenskra ungmenna. 18.7.2005 00:01
Þúsundir manna flýja fellibyli Fellibylurinn Emily skall á Yucatan-skaga í Mexíkó í fyrrinótt og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Ekki hafði þó frést í gær af neinum dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum af völdum veðurofsans. Þúsundir heima- og ferðamanna leituðu skjóls í neyðarskýlum sem komið hafði verið upp í skólastofum og danssölum hótela. 18.7.2005 00:01
Geymsla díselolíu vandmeðfarin Dæmi eru um að menn geymi díselolíu í rotþróm. Brunamálastjóri segir auðvelt að vera vitur eftir á og að stjórnvöld hefðu í raun átt að geta séð fyrir að fólk myndi hamstra eldsneyti í kjölfar verðhækkunar á díselolíu. 18.7.2005 00:01
Þrýst á Bush að reka Rove George W. Bush sagði í gær að skyldi einhver í starfsliði hans verða uppvís að lögbroti í sambandi við upplýsingaleka sem fletti ofan af CIA-njósnara, myndi viðkomandi "ekki lengur fá að starfa í minni stjórn". Bush kom sér samt sem áður hjá því að svara beint spurningum um hlutverk stjórnmálaráðgjafa síns, Karl Rove, í málinu. 18.7.2005 00:01
Ummæli Össurar heimskuleg Það er heimskulegt að halda því fram að Samfylkingin geti boðið fram undir merkjum R-listans ein og sér segir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Hann segir Össur Skarphéðinsson vita að það er ekki hægt og skilur ekki hvað honum gengur til með því að viðra slíkar hugmyndir. 18.7.2005 00:01
Ásakanir um andvaraleysi MI5 Vangaveltur um hvort bresk yfirvöld hefðu sofið á verðinum færðust í aukana í gær, eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum að innanríkisleyniþjónustan MI5 hefði tekið til athugunar að minnsta kosti einn mannanna fjögurra sem frömdu sprengjutilræðin í London þann 7. júlí. 18.7.2005 00:01
Enginn gengst við könnun Leiðtogaefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segjast grunlaus um hver standi að könnun Gallups á fylgi frambjóðenda flokksins í Reykjavík. 18.7.2005 00:01
Ný steypuaðferð á Íslandi Þeir sem áttu leið fram hjá Borgartúninu í dag hafa eflaust velt fyrir sér hvort þar væri verið að útbúa boltaland fyrir fullorðna. Þarna er hins vegar um að ræða svokallaða kúluplötuaðferð við húsbyggingu, þar sem plastkúlur eru settar í gólfplöturnar, í stað einungis steypu. 18.7.2005 00:01
Mat á Baugsverði dregist í 18 mán Matsnefnd um verð á hlutabréfum í Baugi mun loks skila af sér niðurstöðu í málinu í ágúst, meira en einu og hálfu ári eftir að hún var skipuð. Nefndarmenn viðurkenna að fyrrverandi hluthafar í Baugi, sem ekki sættu sig við verðið sem þeir fengu fyrir bréf sín við þvingaða yfirtöku, hafi mátt bíða allt of lengi. 18.7.2005 00:01
Heilsan betri en útlitið Viktor Júsjenko, forseti Úkraínu, er við mjög góða heilsu segir læknir hans, Jean Saurat, við háskólasjúkrahúsið í Genf þar sem Júsjenko hefur leitað lækninga vegna díoxíneitrunar. 18.7.2005 00:01
Enn friðarvon Ísraelsk stjórnvöld munu ekki senda hersveitir inn á Gazaströnd ef Mahmoud Abbas tekst að koma í veg fyrir árásir vígamanna á Ísrael sagði Ehud Olmert, varaforsætisráðherra Ísraels. Hann segir Ísraela ekki vilja gera neitt sem geti orðið vatn á myllu herskárra Palestínumanna sem vilji binda enda á vopnahléið frá síðasta vetri. 18.7.2005 00:01
Flugeldur banaði barni Sautján ára danskur piltur hefur verið ákærður fyrir að verða barni að bana. Hann hefur viðurkennt að hafa skotið flugeldi lárétt um síðustu áramót. Flugeldurinn fór í brjóstið á tveggja ára barni sem lést samstundis. Pilturinn segist ekki hafa orðið var við að flugeldurinn hafi hitt nokkurn en er ákærður fyrir manndráp af gáleysi. 18.7.2005 00:01
Geta fengið olíuna endurgreidda Björn Karlsson brunamálastjóri segir Brunamálastofnun hafa borist allmargar vísbendingar um fólk sem hamstraði olíu fyrir gildistöku olíugjaldsins og geymi hana við óviðunandi aðstæður. Hann segir að fólk sem vilji losna við olíuna og hættuna sem fylgir henni geti skilað henni til olíufélaganna og fengið hana endurgreidda. 18.7.2005 00:01
Suðurnes hætta vinnslu Stærsta fiskvinnslufyrirtæki Reykjanesbæjar, Suðurnes, hefur ákveðið að hætta rekstri. Alls hafa á fimmta tug starfsmanna starfað hjá fyrirtækinu og missa þeir nú vinnuna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja óhagstætt gengi krónunnar hafa verið eina helstu ástæðuna fyrir því að fyrirtækið missti rekstrargrundvöllinn. 18.7.2005 00:01
Sjúkraliðar semja Sjúkraliðar hafa samþykkt kjarasamning við fjármálaráðherra sem undirritaður var 30. júní síðastliðinn. Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum kom í ljós að mikill meirihluti félagsmanna hafði samþykkt samninginn. 18.7.2005 00:01
Lítill áhugi á Tyrkjum Einungis 35 prósent íbúa aðildarríkja Evrópusambandsins eru hlynnt aðild Tyrklands að sambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir framkvæmdastjórn sambandsins. Tæpur helmingur styður aðild Rúmeníu að sambandinu en helmingur vill hleypa Búlgaríu í sambandið. 18.7.2005 00:01
Stríðsherra dæmdur fyrir pyntingar Breskur dómstóll hefur fundið afganskan stríðsherra sekan um pyntingar og gíslatöku sem áttu sér stað í útjaðri Kabúl, höfuðborgar Afganistans, á árunum upp úr 1990. 18.7.2005 00:01
Gekk eins og í lygasögu Fyrsta þríburafæðingin í áratugi, þar sem börnin voru ekki tekin með keisaraskurði, gekk eins og í lygasögu segir Sveinborg Hauksdóttir sem fæddi þrjú börn á aðeins fimmtán mínútum, tvær stúlkur og einn dreng. 18.7.2005 00:01
Kveiktu í fyrir slysni Tveir fjórtán ára piltar kveiktu í bíl við Smáralind fyrir slysni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í gærkvöldi kallað út eftir að kveikt hafði verið í bíl við Smáralindina. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi gekk vel að ráða að niðurlögum eldsins en bíllinn telst þó gjörónýtur. 18.7.2005 00:01
Tryggvi meðal umsækjenda Tryggvi Gíslason, fyrrum skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins meðal þeirra sem þegar hafa skilað inn umsókn um stöðu útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Frestur til að skila inn umsókn rennur út á fimmtudag. 18.7.2005 00:01
Viðey aðeins fyrir Sjálfstæðismenn Össur Skarphéðinsson segir að tillögur sjálfstæðismanna í borginni um byggð í eyjunum við Reykjavík eigi að vera fyrir elítuna og fyrir þá sjálfa. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir Össur endurspegla vanda R-listans. 18.7.2005 00:01
Óvíða stífari löggjöf Á undanförnum árum hefur mikið borið á uppátækjum auglýsenda til að vekja athygli á bjór eða léttvíni með slíkum hætti að mörgum þyki lög sem um þetta gilda vera fótum troðin. Nú síðast ögraði Nóatún túlkun margra á þessum lögum með því að veita hverjum gasgrillkaupanda bjór svo lengi sem hann var yfir lögaldri.</font /> 18.7.2005 00:01
Stjórnin tekur málið upp Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis telur Íbúðalánasjóð ekki hafa haft samráð við stjórnvöld þegar hann gerði lánasamning við bankana. Hann segist viss um að stjórnarflokkarnir muni taka þetta mál upp til að tryggja að það endurtaki sig ekki. 17.7.2005 00:01
Mikil eftirspurn eftir vændi Giftir karlar eru helstu viðskiptavinir hennar. Hún tekur þrjá í mánuði - níutíu þúsund krónur skattfrjálst. Hún markaðssetur sig á Einkamal.is og eftirspurnin eftir þjónustu hennar er mikil. Stöð 2 ræddi við íslenska vændiskonu í dag, viðskiptafræðing að mennt. 17.7.2005 00:01
Deilt um sekt efnafræðingsins Deilt er um hvort maðurinn sem handtekinn var í Kaíró í gær sé einn skipuleggjenda hryðjuverkanna í London. Lögreglan í Bretlandi telur að svo sé en innanríkisráðherra Egyptalands segir það af og frá. 17.7.2005 00:01
Mynd af hryðjuverkamönnunum Breska lögreglan hefur birt mynd úr eftirlitsmyndavél sem sýnir mennina fjóra sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir sjálfsmorðsárásunum í Lundúnum í síðustu viku. Myndin er tekin á lestarstöðinni Luton, stuttu áður en árásirnar voru gerðar. 17.7.2005 00:01
Írak: 70 látnir og 160 særðir Að minnsta kosti 70 létust og um 160 særðust í sjálfsmorðssprengingu í Írak í gær. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp við bensínstöð nærri mosku sjíta múslima í borginni Mussayyib, 60 kílómetra suður af Bagdad, höfuðborg Íraks. 17.7.2005 00:01
Þrír á slysadeild eftir slagsmál Þrír voru fluttir á slysadeild í nótt með minniháttar meiðsl eftir slagsmál í miðbæ Reykjavíkur. Þá var einn tekinn með íblöndundarefni til að drýgja amfetamín. 17.7.2005 00:01
Hollvinasamtök RÚV með varann á Hollvinasamtök Ríkisútvarpsins gera kröfu um að næsti útvarpsstjóri uppfylli strangar kröfur um hæfni og menntun en sem kunnugt er styttist í að Markús Örn Antonsson láti af því starfi til að taka við starfi sendiherra. 17.7.2005 00:01
Tólf látnir eftir flóð í Indlandi Að minnsta kosti tólf fórust og um 150.000 heimili eyðilögðust vegna flóða í norðausturhluta Indlands í morgun. Alls hafa nú yfir 220 látist af völdum flóða í landinu frá því regntímabilið hófst í vor. 17.7.2005 00:01
Líkamsárásarkæra á Blönduósi Kona hefur kært aðra konu fyrir líkamsárás í félagsheimilinu á Blönduósi í nótt. Árásin er ekki talin vera alvarleg en svo virðist sem um smá stympingar hafi verið að ræða. Þá voru ellefu teknir fyrir hraðakstur í sérstöku verkefni Ríkislögreglustjóra í umdæminu í gærdag. 17.7.2005 00:01
Farþegaflugvél fórst Ekki er vitað hversu margir fórust er farþegaflugvél af gerðinni Anatonov fórst skömmu eftir flugtak í gærkvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu. Þá er ekki heldur vitað hversu margir voru um borð en þó svo að á farþegaskránni hafi verið 35 og tíu manna áhöfn er vel hugsanlegt að þeir hafi verið fleiri því áhöfnum flugvéla er oft mútað til að taka aukafarþega. 17.7.2005 00:01
Meðvitundarlaus eftir líkamsárás Einn var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahúsið á Ísafirði eftir líkamsárás í miðbænum í nótt. Ekki er vitað hver upptök árásarinnar voru en tveir voru handteknir í tengslum við hana og gista þeir nú fangageymslur lögreglunnar. Sá sem slasaðist er til aðhlynningar á sjúkrahúsinu. 17.7.2005 00:01
Hundruð hafa flúið heimili sín Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíka og eyðilagt tugi húsa. Hundruð hafa flúið heimili sín vegna fellibylsins Emily og gista nú þúsundir í athvörfum. 17.7.2005 00:01