Fleiri fréttir

Rúandskir flóttamenn sendir heim

Ráðamenn í Búrúndí hafa sent nauðuga heim 3.600 flóttamenn frá Rúanda. Sameinuðu Þjóðirnar og samtökin Læknar án landamæra segja að yfirvöld í Búrúndí hafi meinað þeim aðgöngu að flóttamannabúðunum þar sem flóttamennirnir bjuggu áður.

Dræm kosningaþáttaka á Ítalíu

Ítalir kusu í gær og í fyrradag um það hvort slaka eigi á löggjöf um frjósemisaðgerðir. Kosningarnar voru hins vegar marklausar þar sem þátttaka var heldur dræm.

Þrettán akreinar á kafla

Framkvæmdir við breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru nýhafnar og hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins væntanlega ekki farið varhluta af þeim í gær.

Grunur um nauðgun í heimahúsi

Grunur er uppi um nauðgun í heimahúsi í Keflavík um helgina. Lögreglu var tilkynnt um málið um hádegi í gær en fólkið sem á í hlut er um tvítugt. Víkurfréttir greina frá þessu og segja að búist hafi verið við að kæra yrði lögð fram í dag.

Þrjú tonn af kókaíni haldlögð

Spænska lögreglan lagði hald á þrjú tonn af kókaíni í dag sem fundust í bát sem var á leið til landsins. Nítján voru handteknir í aðgerðinni, þrír sem voru um borð í bátnum en hinir sextán voru handsamaðir á Suður- og Norðvestur-Spáni, grunaðir um að tengjast smyglinu.

Mladic að gefa sig fram?

Fjölmiðlar og mannréttindasamtök í Serbíu segja að Ratko Mladic hershöfðingi sé að semja við stjórnvöld um að gefa sig fram við stríðsglæpadómstólinn í Haag. Mladic stjórnaði persónulega aðgerðum í Srebrenitsa þar sem talið er að átta þúsund múslima hafi verið myrt.

Flaggað í hálfa við álráðstefnu

Þjóðfánar blöktu í hálfa stöng utan við ráðstefnu um áliðnað á Nordica-hótelinu síðdegis. Ekki var það þó skipuleggjendum ráðstefnunnar sem fannst þetta viðeigandi heldur náttúruvinum sem stóðu fyrir mótmælum á fundarstað.

Ný samtök gegn álveri í Eyjafirði

Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirðinum voru stofnuð á fjölmennum fundi á Akureyri þann 28. maí síðastliðinn. <font face="Helv"></font>

Vill fyrirbyggja málverkafalsanir

Viktor Smári Sæmundsson, forvörður, fékk á síðasta föstudag 400.000 króna styrk frá Rannsóknarsjóði Listasafns Háskóla Íslands til að vinna sjálfstætt að söfnun og rannsóknum á höfundarmerkingum frumherja íslenskrar myndlistar.

Landsvirkjun býður tvö verk út

Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font>

Útgjöld vaxa hraðar en tekjur

Þjóðarútgjöld Íslendinga, sem eru samanlögð einkaneysla hér á landi og fjárfestingar, hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra þótt landsframleiðsla hafi ekki vaxið nema um 2,9 prósent á sama tíma. Útgjöldin hafa því aukist meira en tekjurnar.

Kominn yfir Húnaflóa

Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur.

Verst settir fá enga hjálp

Skilyrði geta komið í veg fyrir að ávinningur af skuldaniðurfellingu margra af fátækustu ríkja heims komist til þeirra sem mest þurfa á að halda. "Skilyrði um stjórnhætti, baráttu gegn spillingu og þróun í lýðræðisátt útiloka mörg fátækustu landanna," sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær.

Skipuleggjendur kölluðu á lögreglu

Mótmæli sem náttúruverndarsamtökin Náttúruvaktin stóðu fyrir fyrir utan Nordica hótel í gær vöktu litla hrifningu skipuleggjenda alþjóðlegrar álráðstefnu sem þar fer fram. Fór nærvera um tíu mótmælenda svo mjög fyrir brjóstið á þeim að þess var krafist að lögregla yrði kölluð til.

Þungir dómar í fíkniefnamáli

Sex hlutu fangelsisdóma vegna fíkniefnasmygls frá Rotterdam í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Dómarnir voru frá hálfu og upp í tvö ár hver. Ung kona var hins vegar sýknuð af ákæru um að hafa móttekið ágóða af fíkniefnabroti.

Lambakjötið gæti klárast

"Það íslenska lambakjöt sem er í verslunum í dag má segja að sé ekki fyrsta flokks og flestar vænustu steikurnar uppseldar," segir Jóhann Ólafsson, fulltrúi hjá Bændasamtökunum. Nú er grillvertíð landsmanna að sönnu hafin og léleg birgðastaða lambakjöts veldur því að hætta er á að kjötið klárist áður en nýslátrað kemur aftur á markaðinn.

Komið í veg fyrir leka

Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu var í viðbragðsstöðu þegar Lagarfoss, leiguskip Eimskipafélagsins, lagðist að bryggju við Grundartanga í gærmorgun. Ekkert frekara tjón var þó vegna ammóníaksleka í skipinu eins og óttast var.

Hæfi Halldórs ekki á dagskrá

Formaður fjárlaganefndar ætlar ekki að taka skýrslu ríkisendurskoðunar um hæfi forsætisráðherra til umræðu á fundi nefndarinnar á morgun. Stjórnarandstaðan segir skjóta skökku við að forsætisráðherra hafi kynnt skýrsluna sjálfur.

Þjóðaratkvæðagreiðsla ógild

Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort milda eigi lög um gervifrjóvgun, á Ítalíu var ógild vegna ónógrar þátttöku. Kaþólska kirkjan, með Benedikt páfa í broddi fylkingar, barðist hart gegn því að lögunum yrði breytt og hvatti fólk til þess að sitja heima og kjósa ekki.

Varúðarráðstafanir á Grundartanga

Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar á Grundartanga í morgun þegar Lagarfoss lagðist þar að bryggju eftir að ammóníakleki varð um borð. Talið er að fjögur hundruð og fimmtíu lítrar af efninu hafi lekið úr tanki í flutningagámi.

Jackson sýknaður af öllum ákæruatriðum

Kviðdómur sýknaði nú fyrir stundu Michael Jackson af öllum ákæruatriðum en Jackson var ákærður fyrir að hafa misnotað 13 ára dreng og gefið honum áfengi. Kviðdómur taldi Michael Jackson saklausan í öllum tíu atriðum ákærunnar. Michael Jackson gengur því frjáls maður úr dómhúsinu í Santa María í Kaliforníu.

Hryðjuverkamanna leitað stíft

Írakski herinn gerir nú hverja árásina af annarri á stöðvar hryðjuverkamanna. Það er þó ekkert lát á sprengjutilræðum í borgum landsins.

Ekki hægt að tryggja sig

Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign.

Vörubíl ekið á stúlku

Vörubíl var ekið á tíu ára stúlku á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar laust eftir hádegið í gær.

Enn eitt áfall ESB?

Útlit er fyrir að Evrópusambandið sé að verða fyrir enn einu áfallinu, að þessu sinni út af fjárlögum þess. Það eru langtímafjárlög Evrópusambandsins sem nú er deilt um.

Halldór ekki vanhæfur

Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font />

Skóflustunga að nýrri álmu við ME

Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar.

Valgerður ber alla ábyrgð

Ríkisendurskoðandi segir að Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um sölu Búnaðarbankans árið 2002 þrátt fyrir óbein eignatengsl við kaupendur bankans, S-hópinn. Ríkisendurskoðandi segir ábyrgðina á bankasölunni alfarið á höndum Valgerðar Sverrisdóttur, viðskiptaráðherra. </font /></b />

Jackson er saklaus

Michael Jackson var í gær sýknaður af öllum ákæratriðum um að hafa misnotað þrettán ára gamlan pilt á búgarði sínum snemma árs 2003. Jackson mætti nokkuð seint í dómsalinn og sýndi engin svipbrigði þegar dómurinn var kveðinn upp.

Ný reikisstjarna fundin

Bandarískir stjörnufræðingar hafa fundið reikistjörnu sem er sú smæsta sem vitað er um utan okkar sólkerfis.

92 farast í flóði í Kína

Nú er ljóst að í það minnsta 92 fórust í skyndilegu aurflóði sem féll á barnaskóla í Shalan, Heilongjiang-héraði í Kína á föstudag. 88 þeirra sem létust voru lítil börn sem komust ekki út úr kennslustofu sinni þegar flóðbylgjan skall á skólanum.

Aoun kom sá og sigraði

Þriðja og næstsíðasta umferð þingkosninganna í Líbanon var haldin í fyrradag. Flokkum maroníta og sjía vegnaði ágætlega en kosið var í austur- og miðhluta landsins. Flokkar sem börðust gegn áhrifum Sýrlandsstjórnar eru með sterk ítök á þessu landsvæði en fyrir fram var búist við því að þeir færu með öruggan sigur af hólmi.

Blair og Pútín funda

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sótti Vladimir Pútín, Rússlandsforseta, heim í gær. Niðurfelling skulda þróunarlandanna og umhverfismál voru þar ofarlega á baugi. Í kjölfar fundarins hélt svo Blair til Þýskalands þar sem hann hitti Gerhard Schröder, kanslara.

Þeistareykir og Landsvirkjun semja

Stjórn Þeistareykja hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Landsvirkjun um orkuöflun fyrir álver á Norð-Austurlandi.

Rætt um staðsetningu álvers

Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Húsavíkurbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði áttu í gær fund í Reykjavík með starfsmönnum Fjárfestingastofu og Alcoa varðandi staðsetningu nýs álvers á Norðurlandi.

Ógnaði fólki með skrúfjárni

Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins.

Eldur í Breiðholti

Eldur kviknaði í viftu í eldhúsi í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Vesturbergi 138 í Breiðholti um miðjan dag á sunnudag.

Felldu 40 uppreisnarmenn í V-Írak

Fjörutíu manns létust í loftárás Bandaríkjahers í Vestur-Írak í gær. Hernaðaryfirvöld segja mennina hafa verið uppreisnarmenn sem ógnuðu óbreyttum borgurum. Á svæðinu, sem er við landamæri Sýrlands, hefur andspyrna uppreisnarmanna verið gríðarleg. Bandaríkjamenn notuðu hvort tveggja flugvélar og þyrlur vð árásina.

Á 187 km hraða á Reykjanesi

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Reykjanesbæ í nótt. Fjórir voru kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók var á 187 kílómetra hraða. Tvívegis var lögreglan kölluð að skemmtistaðnum Traffic við Hafnargötu. Í annað skiptið var það vegna stúlku sem sparkaði í bíl þar fyrir utan eftir að hafa verið vísað út.

Franskri blaðakonu sleppt í Írak

Franskri blaðakonu og íraskum ökumanni hennar hefur verið sleppt úr haldi mannræningja í Írak. Þeirra hefur verið saknað í fimm mánuði. Blaðakonunni Florence Aubenas var ásamt ökumanninum Hussein al-Saadi rænt fyrir utan hótel í Bagdad í byrjun janúar. Í mars sendu mannræningjar myndband af Aubenas sem sýndi hana illa á sig komna og biðja um hjálp.

Ekið á unga stúlku í Kvennahlaupi

Ekið var á níu ára stúlku sem þátt tók í Kvennahlaupinu í gær. Stúlkan hljóp í veg fyrir bíl á mótum Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar og var bílnum ekið á rólegum hraða að sögn lögreglu. Stúlkan var flutt á slysadeild og er talið að hún sé fótbrotin. Á átjánda þúsund konur tóku þátt í Kvennahlaupinu í gær og var hlaupið á 90 stöðum á landinu.

Rólegt á Akureyri í gærkvöld

Skemmtanalífið fór vel fram á Akureyri í nótt. Tveir þurftu þó að gista fangageymslur lögreglunnar þar sem þeir gátu ekki greitt reikning sem þeir höfðu stofnað til á veitingastað í bænum. Þeir voru báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru teknir klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi. Fjórir voru teknir fyrir hraðakstur, tveir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur án réttinda.

Lestarslys vegna sprengju á teinum

Tólf manneskjur slösuðust í lestarslysi í Rússlandi í morgun. Lestin var á leið frá Tsjetsjeníu til Rússlands. Að sögn lestarstjórans sprakk sprengja á lestarteinunum sem varð þess valdandi að lestin fór út af sporinu. Enginn hefur enn lýst sig ábyrgan fyrir sprengjutilræðinu.

Teknir fyrir fíkniefnaneyslu

Fjórir voru teknir höndum og færðir á lögrelgustöðina á Ísafirði eftir að bifreið sem þeir voru í var stöðvuð við eftirlit. Mennirnir eru grunaðir um neyslu fíkniefna en þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Kveikt í þremur ruslagámum

Tólf voru teknir fyrir hraðakstur í gærkvöld og nótt í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Sá sem fór hraðast ók á 138 kílómetra hraða. Þá var ungur maður tekinn grunaður um ölvun við akstur. Eins hafði slökkvilið á staðnum í nógu að snúast en kveikt var í þremur ruslagámum á Eyrarbakka, Selfossi og í Grímsnesi.

Sjá næstu 50 fréttir